Samtök vistheimilabarna fordæma heimsóknir barnaníðings á fósturheimili VG skrifar 12. júní 2012 10:05 Víglundur Þór Víglundsson gagnrýnir forstöðumann fósturheimilisins harðlega. „
Okkur er mjög brugðið að sjá þetta," segir Víglundur Þór Víglundsson, formaður samtaka vistheimilabarna, en sjálfur varð hann fyrir grimmu ofbeldi á Breiðavík þegar hann dvaldi þar sem barn. Samtök vistheimilabarna sendu frá sér ályktun seint í gærkvöldi þar sem þau fordæmdu ákvörðun fósturheimilis úti á landi sem leyfði barnaníðingi að umgangast börn sem þar voru í fóstri. Í tilkynningu frá samtökum vistheimilabarna kemur fram að barnaníðingurinn heitir Roy Svanur Shannon en hann var dæmdur árið 1997 fyrir að misnota sex stúlkubörn. Síðan flutti hann tIl Noregs þar sem hann bjó um hríð. Þegar hann snéri aftur var hann búinn að breyta nafni sínu í Gunnar Jakobsson. Forstöðumaður fósturheimilisins er bróðir Roy Svans. Það var RÚV sem greindi fyrst frá málinu. Þar kom meðal annars fram að fyrir tilviljun bar nágranni - sem hafði starfaði sem fangavörður - kennsl á Roy Svan og nágrannar hófu að fylgjast með þegar níðingurinn heimsótti fósturheimilið. Í kjölfarið var barnaverndarnefnd látin vita af málinu sem tilkynnti málið áfram til lögreglunnar sem ekkert gat aðhafst þar sem maðurinn var ekki grunaður um afbrot. „Eftirlitið brást algjörlega," segir Víglundur Þór um málið. Útvarp Saga tók viðtali við Roy Svan á dögunum en þar kom meðal annars fram að Roy er búsettur á Stokkseyri og heldur til í húsnæði sem er í eigu dvalarheimilisins Kumbaravogs. Þess má geta að Kumbaravogur var áður fósturheimili, og uppi hafa verið ásakanir um að gestkomandi aðili þar á bæ hafi misnotað börn á Kumbaravogi þegar fósturheimilið var starfrækt. Í viðtali við Útvarp Sögu sagði Roy að málið væri úti í hött. Hann játaði ennfremur í viðtalinu að vera barnaníðingur og að hafa „fiktað við sofandi smástelpu" eins og hann orðaði það sjálfur. Hann neitaði alfarið að hafa leitað á börn á fósturheimilinu í viðtalinu. Hægt er að lesa ályktun samtakanna hér fyrir neðan:Samtök vistheimilabarna –SVB eru regnhlífasamtök fyrrum vistheimilisbarna sem hafa verið vistuð á hinum ýmsu stöðum eins og Breiðavík, Heyrnleysingjaskólanum, Bjargi, Silungapolli og fleiri stöðum. Við erum fólk með slæma reynslu af dvöl okkar á vistheimilum. Reynslan einkennist oftar en ekki af kynferðislegu, líkamlegu og andlegu ofbeldi af hendi þeirra sem áttu að gæta okkar. Við sjáum okkur ekki annars kost en að senda út yfirlýsingu vegna fréttarinnar sem birtist í útvarp Sögu og síðar öðrum fjölmiðlunum í byrjun júní um dæmda barnaníðinginn Gunnar Jakobsson og ótakmarkað aðgengi hans að ungum saklausum börnum á fósturheimili fyrir norðan.Dæmdur barnaníðingur Roy Svanur Shannon, sem í dag heitir Gunnar Jakobsson fékk að valsa um óáreittur á fósturheimili á Stokkseyri sem er á vegum barnaverndaryfirvalda í að minnsta kosti hálft ár eftir að lögreglu og barnaverndaryfirvöldum var tilkynnt um að hann væri að áreita barnungar stúlkur.Svona hljómar byrjun fréttarinnar inni á útvarp Sögu sem þar að auki tók viðtal við manninn sem viðurkenndi barnagirnd sína. Í sömu frétt kemur ýmislegt annað fram sem okkur þykir ekki hægt að horfa framhjá og þar stendur hæst sú staðreynd að umsjónarmaður þessara fósturbarna ákvað að líta framhjá þessum dómi og hleypa honum að þessum börnum. Til að átta okkur aðeins betur á alvarleika málsins þá eru eftirfarandi upplýsingar líka teknar af vef útvarps Sögu þar sem afbrotaferill hans og síðustu ár eru rakin.Gunnar var í apríl árið 1997 dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn sex barnungum stúlkum og var það þyngsti dómur sem hafði fallið í barnaníðingsmáli hérlendis á þeim tíma en hann var einnig fundinn sekur um að hafa gífurlegt magn af barnaklámi undir höndum. Þá var Gunnar sakfelldur fyrir að hafa framleitt og deilt barnaklámi á vefnum en meðal þess sem kemur fram í dómi Héraðsdómi Norðurlands eystra er að Gunnar hafði tekið sum brota sinna upp á myndbandsupptökuvél.Við rannsókn málsins var eldra mál gegn Gunnari tekið upp en það mál má rekja til ársins 1991 en þá átti Gunnar að hafa áreitt barnungar stúlkur kynferðislega í sumarhúsi í Húsafelli. Það mál var kært árið 1992 en var fellt niður 1994. Eftir að hafa setið af sér dóminn breytti maðurinn sem þá hét Roy Svanur Shannon nafninu sínu í Gunnar Jakobsson og flutti til Danmerkur. Þar dvaldi Gunnar í nokkur ár en sjá má á myndasíðu Gunnars að þar hefur hann umgengist barnungar stúlkur og er í myndasafni hans að finna vafasamar myndir af ungum stúlkum sem teknar eru í Danmörku en ekki er hægt að sjá hvernig Gunnar tengist stúlkunum. Þá er einnig að finna þar myndbönd af ungum stúlkum.Barnaverndaryfirvöld hafa ekki enn tekið ákvörðun um hvort börn verði send á fósturheimilið eftir að málið komst upp í síðustu viku en forstöðumaður fósturbarnana á heimilinu tengist Gunnari fjölskylduböndum.Samtök vistheimilabarna fordæma þá ákvörðun forstöðumanns þessa fósturheimilis og starfsfólks fyrir að veita þessum manni aðgengi að börnum.Samtök vistheimilabarna fordæma eftirlitsleysi barnaverndaryfirvaldanna á þessu fósturheimili og krefjast þess að slík vistheimili verði undir smásjá héðan í frá. Svona vistheimili eru svartur blettur á sögu þjóðarinnar um það geta félagsmenn SVB borið vitni og við hörmum af öllu hjarta að það sé enn í dag ekki betur komið fyrir þeim börnum sem vistuð eru af hálfu barnaverndaryfirvalda á vist- og fósturheimilum fjarri fjölskyldu sinni.Það er réttur barnanna að vera örugg, það er réttur þeirra að vel sé um þau hugsað og að kynferðisglæpamenn fái ekki undir neinum kringumstæðum aðgang að þeim. Það er skylda okkar allra að fylgjast með því að ofbeldi gegn börnum sé ekki liðið né að þeim sé hætta búin á svona heimilum.Það er skylda okkar allra að fylgjast með því að ofbeldi gegn börnum sé ekki liðið né að þeim sé hætta búin á svona heimilum, því slíkt skilur eftir sig djúpt sálarsár. Yfirvöldum ber að tryggja allt ofangreint, ekki á morgun né í næstu viku heldur núna strax.
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Fleiri fréttir Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Sjá meira