Fleiri fréttir

Sæstrengur verði metinn næstu 2-3 ár

Forstjóri Landsvirkjunar hvetur til þess að þjóðin noti næstu tvö til þrjú ár til að meta kosti og galla sæstrengs áður en ákvörðun verður tekin. Hann telur að raforkusala til útlanda um streng myndi að mjög takmörkuðu leyti skerða möguleika til iðnaðaruppbyggingar hérlendis.

Leikstjóri Svartur á leik snýr sér að Ég man þig

Óskar Axelsson, leikstjóri Svartur á leik, hefur verið ráðinn til að leikstýra hrollvekju sem byggð verður á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur "Ég man þig". Sjálfur var hann skíthræddur við lestur bókarinnar og missti svefn.

Baldur fær enga sérmeðferð

Fangelsismálastjóri segir Baldur Guðlaugsson ekki fá neina sérmeðferð. Að jafnaði óska um tíu prósent þeirra sem fá óskilorðsbundna dóma, eftir að fá að afplána dóm sinn sem allra fyrst.

Ekkert bólar á endurútreikningu gengislána

Talið er að enn þurfi að koma fjórtán gengislánamálum í gegnum dómstóla áður en hægt verður að reka smiðshöggið á endurútreikninga gengislána. Ekkert bólar á endurútreikningi láns hjóna sem Hæstiréttur dæmdi fyrir mánuði að mætti ekki setja á afturvirka vexti.

Kraumur úthlutað í dag

Tónlistarsjóðurinn Kraumur hefur kynnt úthlutun sína fyrir árið 2012. Alls styður sjóðurinn 15 verkefni í ár, þar af tíu verkefni listamanna af margvíslegum toga á erlendum og innlendum vettvangi.

Dyngja hlaut samfélagsverðlaun Fréttablaðsins

Áfangaheimilið Dyngjan hefur hlotið samfélagsverðlaun Fréttablaðsins. Markmið verðlaunanna, sem nú eru veitt í sjöunda sinn, er að beina sjónum að þeim góðu verkum sem unnin eru í samfélaginu.

"Hamborgarinn okkar er gæðavara"

"Þetta er ekkert slor þessir hamborgarar," sagði Ásgerður Guðmundsdóttir, framkvæmdarstjóri Metró. Hún var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag.

Hundruð milljóna króna tjón

Tjónið vegna eldsins á Selfossi nemur hundruðum milljóna króna, segir Árni Steinarsson í samtali við Vísi. Árni rekur 800 bar ásamt félaga sínum Eiði Birgissyni. Eldurinn kom upp í plaströraverksmiðjunni Set og breiddist svo út í húsnæði 800 bars. Árni segir að hann og Eiður eigi húsnæði veitingastaðarins sjáflir en auk þess hafi verið þarna inni dýrir munir sem fylgi rekstri sem slíkum. "Þetta eru hljóðkerfi og sjónvörp og bara það sem fylgir þessu," segir Árni.

Mikill viðbúnaður vegna Vítisengla

Lögreglan var með mikinn viðbúnað í Héraðsdómi Reykjaness í dag þegar fólk sem tengist Vítisenglum var fært fyrir dómara og krafist var framlengingar á gæsluvarðhaldi yfir þeim. Fólkið var handtekið snemma í janúar síðastliðnum, grunað um að hafa gengið í skrokk á konu skömmu fyrir jól. Rannsókn lögreglunnar á árásinni stendur enn yfir.

Telja að búið sé að ná tökum á eldinum

Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu segist telja að búið sé að ná tökum á eldinum sem logað hefur í dag. Geymsluhúsnæði hjá SET röraverksmiðjunni brann, sem og skemmtistaðurinn 800 bar. Bæði húsin eru brunninn til kaldra kola en Kristján segir að komið hafi verið í veg fyrir að eldurinn næði að læsa sig í sjálfa röraverksmiðjuna, eins og leit út fyrir um tíma.

Verksmiðjan alelda þegar starfsmenn komu úr hádegismat

Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri Set röraverksmiðju, segir að eldurinn hafi blossað upp á mjög stuttum tíma. Starfsfólkið hafi verið í hádegismat í mötuneytinu sem er í öðru húsi og um hálftíma síðar hafi verksmiðjan verið alelda.

800 bar brunninn til kaldra kola

800 bar á Selfossi er brunninn til grunna. Slökkviliðsmenn reyna að verjast því að eldurinn breiðist enn frekar út og segir slökkviliðsstjórinn á Selfossi að útlitið sé betra en það var fyrir tíu mínútum síðan. Nú sé ítil hætta sé nú á að eldurinn breiðist út í húsnæði TRS.

Öflugir jarðskjálftar í Tókíó

Nokkrir öflugir jarðskjálftar riðu yfir borgina Tókíó og nærliggjandi héruð í dag, en rétt rúmt ár er nú liðið frá því skjálfti á sama svæði olli flóðbylgjunni sem banaði um nítján þúsund manns. Stærsti skjálftinn í dag var 6,8 að stærð en til samanburðar mældist skjálftinn fyrir ári 9 stig. Tjón af völdum skjálftanna í dag virðist hafa verið lítið sem ekkert.

Segir að neyðarlán frá Seðlabanka hafi enn verið í Kaupþingi við fall

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings banka, fullyrðir að 500 milljóna evra neyðarlán sem Seðlabanki Íslands veitti Kaupþingi 6. október 2008, sama dag og neyðarlögin voru sett, hafi verið í bankanum við fall hans tveimur dögum síðar. Hann vill ekki tjá sig um 170 milljóna evra lán til félagsins Lindsor Holdings sem veitt var á sama tíma, en það er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.

Skýrslutökur yfir ofbeldismönnum í dag

Skýrslutökur fara fram núna eftir hádegi vegna aðgerða lögreglunnar í morgun. Þá voru fimm menn handteknir og húsleitir gerðar á átta stöðum á landinu. Auk þess lagði lögreglan hald á meint þýfi og fíkniefni. Fram kom í fréttatilkynningu frá lögreglunni í morgun að hluti af rannsókninni snerist að hótunum og líkamsmeiðingum. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hafa mennirnir sem handeknir hafa verið komið við sögu lögreglu áður og verið dæmdir fyrir alvarleg brot.

Eldurinn breiðist út - 800 bar logar líka

Eldurinn sem kom upp í Set röraverksmiðju rétt eftir klukkan eitt í dag er nú farinn að breiðast út og hefur nú fest sig í þakinu á skemmtistaðnum 800 bar, sem er í samtengdu húsi við röraverksmiðjuna. Að sögn Kristjáns Einarssonar slökkviliðsstjóra sem er á staðnum er nú verið að rjúfa þakið á barnum og freista menn þess að koma í veg fyrir að eldurinn nái að læsa sig í næsta hús. Þar er TRS rafeindaþjónustan til húsa. Nærliggjandi fyrirtæki hafa verið rýmd vegna mikils reyks sem gengur yfir svæðið. Að sögn Kristjáns er vindátt þó tiltölulega hagstæð með tilliti til íbúabyggðar. Slökkvilið frá höfuðborgarsvæðinu hefur sent tvö slökkviliðsbíla til Selfoss til að aðstoða slökkviliðsmenn. Allt tiltækt slökkvilið af nærliggjandi svæðum hefur verið kallað til, frá Selfossi, Hveragerði og Þorlákshöfn. Björgunarsveitin á Selfossi er að stjórna umferð þar sem fjöldi ökumanna er að reyna að sjá eldinn.

Sendiherra Íslands í Belgíu: Hér er mikil sorg

Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Belgíu, segir að þjóðarsorg ríki í landinu og að fjallað sé um lítið annað í fjölmiðlum en hörmulegt rútuslys í Sviss í gærkvöldi þar sem tuttugu og tvö belgísk börn fórust. Krakkarnir sem voru 12 ára gamlir voru á heimleið úr skíðafríi þegar rútan sem þau voru í keyrði á vegg í undirgöngum hraðbrautar í suðurhluta Sviss. Þórir segir að margir spyrji sig hvað hafi valdið því að rútan klessti á en nefnt hefur verið að rútan hafi verið á of miklum hraða. Lögreglan ætlar að halda blaðamannafund núna klukkan tvö á íslenskum tíma þar sem farið verður yfir rannsóknina. Fimmtíu og tveir voru í rútunni og fórust tuttugu og átta, þar af tuttugu og tvö börn, eins og áður segir, en þau koma öll frá tveimur litlum sveitarfélögum. Aðkoman á slysstað í gærkvöldi var hrikaleg og er rútan ónýt. "Konungur Albert annar er búinn að lýsa yfir mikilli sorg og forsætisráðherrann er á leið til Sviss núna síðdegis. Hér er mikil sorg, þetta er skelfilegt slys,“ segir Þórir en það ætlar hann að gera til að sýna fjölskyldum og vinum þeirra látnu stuðning.

Röraverksmiðja á Selfossi alelda

Eldur er laus í Set röraverksmiðju á Selfossi. Samkvæmt sjónarvotti sem hafði samband við fréttastofu er húsið alelda og mikill reykur kemur frá húsinu. Lögreglan á Selfossi hefur ekki frekar upplýsingar um eldsvoðann. Reykurinn frá húsinu sést langar leiðir.

Fimm handteknir í átta húsleitum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í morgun í átta húsleitir á heimilum og í fyrirtækjum vegna rannsóknar á skipulagðri brotastarfsemi. Fimm hafa verið handteknir og lagt hefur verið hald á meint þýfi og fíkniefni. Hluti rannsóknarinnar snýr að hótunum og líkamsmeiðingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni, en þar er jafnframt tekið fram að ekki verði veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Viðamiklar aðgerðir lögreglu í dag

Lögregla hefur verið í viðamiklum aðgerðum í dag. Erfitt hefur reynst að fá upplýsingar um málið en farið hefur verið í nokkrar húsleitir nú fyrir hádegið, að því er heimildir fréttastofu herma. Í hádegisfréttum RÚV kom fram að þrír hafi verið handteknir vegna málsins. Von er á tilkynningu frá lögreglu innan tíðar.

Ráðast líklegast í átak fyrir sumarstörf

Allt útlit er fyrir að ráðist verði í sérstakt átak vegna sumarstarfa ungmenna þetta árið. Nauðsynlegar aðgerðir að mati formanns stúdentaráðs Háskóla Íslands.

Rektor á Hólum um líkamsárás: Okkur er rosalega brugðið

"Okkur öllum er alveg rosalega brugðið því þetta er eitthvað sem við eigum ekki að venjast hérna,“ segir Skúli Skúlason, rektor í Háskólanum á Hólum. Kona sem er nemandi við skólann var slegin ítrekað með hurðarhún í andlitið aðfaranótt sunnudagsins. Hún hlaut skurði í andliti og margar tennur brotnuðu og var flutt til Reykjavíkur með sjúkrabíl. Árásarmaðurinn hefur játað árásina en hann er ekki nemandi í skólanum var einungis gestur á heimavistinni um helgina.

Barnaníðsmálum fjölgar hjá lögreglu

Kærum til lögreglu vegna kynferðisbrota gegn börnum fjölgaði um 30 prósent milli áranna 2010 og 2011. Í fyrra voru kærurnar 58 talsins en 41 árið á undan. Tilkynningum til barnaverndarnefnda vegna barnaníðs fjölgaði að sama skapi á tímabilinu, úr 428 tilkynningum árið 2010 í 461 árið 2011.

Mun ódýrara að hita upp húsin á Seltjarnarnesi en í Reykjavík

Verð á heitu vatni í Reykjavík er ennþá tæplega 70% hærra en hjá nágrannasveitafélaginu Seltjarnarnesi, sem býður lægst verð, en er 23% hærra en í Mosfellsbæ. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Orkuvaktarinnar sem meðal annars fylgist með verðbreytingum á orkumarkaði. Þróunin frá október 2010 og fram til 2012 var tekin saman og hefur mesta hækkunin orðið hjá Selfossveitum, um 32,7% og hjá Hitaveitur Mosfellsbæjar, um 34,6 prósent.

Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins afhent í dag

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun afhenda Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins á Hótel Reykjavík Natura klukkan fimm í dag. Þetta er sjöunda árið í röð sem verðlaunin eru afhent. Veitt verða verðlaun í fjórum flokkum auk heiðursverðlauna.

Bók Viktors á meðal 10 efstu

Rafbókarútgáfan af glæpasögunni Flateyjargáta, eftir Viktor Arnar Ingólfsson, skaust í sjötta sæti á metsölulista bandarísku Amazon-vefverslunarinnar á mánudaginn og sat þar enn í gær. Flateyjargáta er ein af tíu íslenskum skáldsögum sem AmazonCrossing-útgáfan gefur út á þessu ári. Enskur titill bókarinnar er The Flatey Enigma.

Hundruð þúsunda á flótta

Um 230 þúsund manns eru á flótta vegna átakanna í Sýrlandi, samkvæmt upplýsingum frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna.

Yfirlýsing vegna gjaldmiðlaskipta týnd í ráðuneytinu

Steingrímur J. Sigfússon, sem tók við sem fjármálaráðherra eftir kosningar vorið 2009, sagðist fyrir Landsdómi í gær ekki hafa verið upplýstur um yfirlýsingu um aðgerðir íslenskra stjórnvalda vegna gjaldmiðlaskiptasamnings við Noreg, Danmörku og Svíþjóð við komuna í ráðuneytið. Hann sagði það hafa verið afar auðmýkjandi að komast að tilvist plaggsins, sem hann kallaði samkomulag, í samræðum við sænska fjármálaráðherrann og sænska seðlabankastjórann nokkrum mánuðum eftir að hann hefði tekið við embætti fjármálaráðherra.

Marine Le Pen fer í framboð

Marine Le Pen, dóttir þjóðernissinnans Jean Marie Le Pen, hefur tryggt sér nægilega margar undirskriftir til þess að geta boðið sig fram í forsetakosningum í næsta mánuði.

Náðu mynd af pari í innbroti

Lögregla leitar nú að ungu pari sem braust inn í sumarbústað í Svínadal í Hvalfjarðarsveit í fyrrinótt og vann einhverjar skemmdir við að komast þar inn.

Hætta að gefa út Encylopedia Britannica í bókarformi

Ákveðið hefur verið að hætta að gefa út hið þekkta alfræðirit Encylopedia Britannica í bókarformi. Líkur þar með 244 ára gamalli sögu ritsins sem bókar og verður útgáfan sem kom út árið 2010 sú síðasta í bókarformi.

Styttist í setu í nefnd hjá Jóni

Jón Bjarnason, sem hætti sem landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra um áramótin, hefur enn ekki tekið sæti fyrir hönd VG í neinni nefnda Alþingis.

Jarðvarminn býður mörg góð tækifæri

Ný könnun sýnir að níu af hverju tíu telja mikil tækifæri fólgin í nýtingu jarðvarma. Forstjóri ÍSOR segir mikilvægt að umgangast landið af virðingu.

Horn ekki á markað á næstunni

Horn fjárfestingafélag, dótturfélag Landsbankans, verður ekki skráð á hlutabréfamarkað á næstunni eins og til stóð. Stefnt er að því að taka ákvörðun um framtíð Horns á næstu vikum.

Snarráður vegfarandi bjargaði mannslífi

Snarráður vegfarandi bjargaði að öllum líkindum mannslífi, þegar hann sá bíl á hvolfi ofan í Laxá á Ásum, skammt frá Blönduósi, í gærkvöldi og kom ökumanninum til hjálpar.

Rútuslys kostaði 22 börn lífið í Sviss

Rútuslys í Sviss í gærkvöldi kostaði 28 manns lífið þar af 22 börn. Rútan, sem var full af belgískum farþegum á leið heim frá skíðafríi, keyrði á vegg í undirgöngum hraðbrautar í Valais kantónunni í suðurhluta Sviss með fyrrgreindum afleiðingum.

Hjólageymsla byggð fyrir ráðuneytisfólk

Sprenging er í notkun reiðhjóla hjá starfsfólki stjórnarráðsins. Starfsmenn menntamálaráðuneytisins hjóla mest allra. Engin aðstaða er fyrir hjólin svo reisa á geymslu sem verður í fiskihjallastíl til að minnast Sölvhólsbæjarins.

Einn hermaður lést í árásinni

Uppreisnarmenn í Afganistan gerðu árás á háttsetta fulltrúa Afganistan-stjórnar í þorpinu Balandi, þar sem þeir tóku þátt í minningarathöfn um þorpsbúa sem bandarískur hermaður myrti um helgina.

Lektorinn skýri leka til DV fyrir rektor

Ársæll Valfells, lektor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, þarf að skila Kristínu Ingólfsdóttur, rektor skólans, greinargerð vegna þáttar síns í leka á trúnaðargögnum úr Landsbankanum.

Bankastjórar í mjög djúpri afneitun

Seðlabanki Íslands gaf ekki út heilbrigðisvottorð fyrir íslenska bankakerfið vorið 2008 heldur varaði við án þess að valda sjálfur fjármálaáfalli. Neyðarlögin skiluðu góðri niðurstöðu og það eina sem frekari undirbúningur hefði skilað væru mögulega betri endurheimtur fyrir kröfuhafa bankanna. Þetta kom fram í vitnaleiðslum yfir Tryggva Pálssyni fyrir Landsdómi í gær.

Sjá næstu 50 fréttir