Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Björgunarskip rak upp í fjöru Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar slitnaði upp í veðurofsa í Njarðvíkurhöfn snemma í morgu og rak upp í fjöru. Þetta er 15 metra skip, yfirbyggt með tveimur aðalvélum, en engin var um borð þegar þetta gerðist. Reynt verður að draga skipið á flot á flóði í dag og taka það svo á þurrt, svo hægt verði að kanna hugsanlegar skemmmdir. Björgunarmenn fóru um borð í skipið eftir miðnætti til að treysta landfestar, en það hefur ekki dugað til. 8.11.2011 10:50
Falsaður fatnaður fluttur inn til landsins Tollgæslan stöðvaði á dögunum sendingu, sem innihélt töluvert magn af fatnaði sem grunur lék á að væri falsaður. Um var að ræða 175 stykki af peysum og buxum sem komu með hraðsendingu frá Kína. 8.11.2011 10:46
Enginn gosórói sjáanlegur Veðurstofan segir að enginn gosórói sé sjáanlegur syðst í Kötluöskjunni í Mýrdalsjökli en jarðskjálfti upp á 3,2 á Richter varð um klukkan 9:50 þar í morgun. Annar skjálfti upp á 2,5 á Richter mældist á sömu slóðum um klukkan 10:18. Skjálftar af þessari stærð eru nokkuð algengir en vegna þess hver sunnarlega varð fannst hann greinilega í Vík og nágrenni. Íbúar á svæðinu höfðum samband við fréttastofu í morgun og greindu frá því að þeir hefðu fundið fyrir skjálftanum. Jarðvísindamenn fylgjast grannt með stöðu mála. 8.11.2011 10:42
Jarðskjálfti í Kötlu fannst greinilega í Vík Jarðskjálfti af stærðinni 3,2 varð nú rétt fyrir klukkan 10 í morgun syðst í Kötluöskjunni í Mýrdalsjökli. Skjálftar af þessari stærð eru nokkuð algengir en vegna þess hve sunnarlega hann varð, fannst hann greinilega í Vík og nágrenni. Íbúar á svæðnu höfðu samband við fréttastofu í morgun og sögðu frá skjálftanum. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að klukkan 10:20 hafi ekki fleiri skjálftar mælst. 8.11.2011 10:28
Fjögurra bíla árekstur á Miklubraut Nokkur truflun varð á umferðinni um Miklubrautina þegar fjögurra bíla árektur varð þar um níuleytið. Bílarnir skullu aftan á hvor öðrum rétt austur af umferðarljósunum á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar. Áreksturinn var nokkuð harður en enginn meiddist að ráði. Hinsvegar voru þrír af bílunum fluttir á brott með dráttarbílum og tók það nokkurn tíma. Umferðin er komin í eðlilegt horf að nýju. 8.11.2011 10:02
Um 130 farþegar gistu á Egilsstöðum í nótt Flugvél Icelandair gat ekki lent í Keflavík í gærkvöldi vegna veðurs og var því ákveðið að snúa henni til Egilsstaða. Vélin lenti á flugvellinum á Egilsstöðum um miðnætti og var um hundrað og þrjátíu farþegum komið fyrir á fjórum gististöðum í bænum í nótt. 8.11.2011 09:55
Veiðiþjófa leitað á Vesturlandi Svo virðist vera sem veiðiþjófar hafi gert vart við sig á Vesturlandi í síðustu viku. Bræðurnir Benedikt Guðmundsson og Guðmundur Arnar Guðmundsson leigja þar bæinn Smyrhól innst í Haukadal í Dölum til rjúpnaveiða, ásamt bræðrunum Jóni Inga og Sigurði Björnssyni. Þegar þeir Jón Ingi og Sigurður fóru á lendurnar við Smyrhól á laugardagsmorgun var aðkoman ekki frýnileg. 8.11.2011 09:49
Ætla að áfrýja dómnum yfir lækninum Verjendur Conrads Murray, sem var fundinn sekur í gær um að bera ábyrgð á andláti poppkóngsins Michaels Jackson, segja að dómnum verði áfrýjað. Refsingin yfir Murray verður ákveðin þann 29. nóvember næstkomandi en Murray var umsvifalaust færður í fangaklefa í Los Angeles eftir að dómurinn var kveðinn upp í gær. 8.11.2011 09:23
Ríki og borg þurfa að lána Hörpu 730 milljónir króna Íslenska ríkið og Reykjavíkurborg hafa samþykkt að lána 730 milljónir króna til Austurhafnar-TR, eiganda tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. Austurhöfn er í 54% eigu íslenska ríkisins, sem mun lána 394 milljónir króna, og 46% eigu Reykjavíkurborgar, sem mun lána 336 milljónir króna. 8.11.2011 09:00
Deila um dagsektir Forsvarsmenn Vestmannaeyjabæjar hafna því að sveitarfélaginu beri að greiða háar dagsektir sem Umhverfisstofnun (UMST) hefur lagt á vegna ófullnægjandi mengunarvarna Sorporkustöðvar Vestmannaeyja. Dagsektirnar, á bilinu 25 til 50 þúsund á dag, hafa reiknast síðan 1. júlí. 8.11.2011 08:00
Ómetanlegum fornmunum stolið í Trípolí Stóru safni af ómetanlegum fornmunum var stolið úr bankahólfi í Trípolí höfuðborg Líbíu á meðan á uppreisninni stóð þar fyrr í ár. 8.11.2011 07:40
Lögreglumenn fundu endurmarkað lamb Lögreglan í Borgarnesi rannsakar nú meintan þjófnað á hrútlambi í Skorradal fyrr í haust. Í síðustu viku barst tilkynning um að lambið væri mögulega að finna í girðingu rétt utan við Akranes. 8.11.2011 07:30
Bolivía og Bandaríkin taka upp stjórnmálasamband að nýju Stjórnvöld í Bólivíu og Bandaríkjunum hafa ákveðið að taka stjórnmálasamband upp að nýju þremur árum eftir að Evo Morales forseti Bólivíu skar á þetta samband með því að reka bandaríska sendiherrann heim. 8.11.2011 07:29
Fundu 19 vændiskonur og 100 bardagahana í mexíkönsku fangelsi Óvænt heimsókn lögreglunnar í Acapulco í Mexíkó í eitt af fangelsum borgarinnar leiddi í ljós að þar innan veggja var að finna 19 vændiskonur, um 100 flatskjái, tvo sekki fulla af marijúana og 100 bardagahana. 8.11.2011 07:27
Kornhænan á Selfossi komin heim Kornhænan, sem vistuð var á lögreglustöðinni á Selfossi í fyrrinótt, eftir að hafa fundist villt inn í miðjum bæ, komst til síns heima í gær, eftir að eigandinn heyrði af henni í fréttum. 8.11.2011 07:25
Hnefaleikakappinn Joe Frazier látinn Joe Frazier fyrrum heimsmeistari í þungavikt í hnefnaleikum er látinn 67 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein í lifur. 8.11.2011 07:23
Lífi ungra danskra nýbúa stjórnað frá heimalandi þeirra Ný umfangsmikil rannsókn á högum ungra nýbúa í Danmörku sýnir að fjölskyldur þessarar nýbúa í heimalandinu stjórna lífi þeirra á margvíslegan hátt en þó einkum þegar kemur að ást og kynlífi. 8.11.2011 07:21
Lögreglan handtók þrjá innbrotsþjófa í nótt Lögreglan handtók þrjá innbrotsþjófa á móts við Smáralind laust fyrir klukkan þrjú í nótt eftir að öryggisvörður hafði tilkynnt um innbrot í raftækjaverslunina Max í Kauptúni í Garðabæ. 8.11.2011 07:19
Smástirni ekki nær jörðinni í 200 ár Risavaxið smástirni sem er á leið framhjá jörðinni var í aðeins 325 þúsund kílómetra fjarlægð frá jörðinni um klukkan sex í morgun. Smástirni sem þetta hefur ekki komið nær jörðinni undanfarin 200 ár. 8.11.2011 07:18
Pólitísk örlög Berlusconi talin ráðast í dag Silvio Berlusconi virðist vera kominn að endalokum í pólitík og dagar hans taldir sem forsætisráðherra Ítalíu. 8.11.2011 07:14
Loka á veiðimennina Gremju gætir nú meðal rjúpnaveiðimanna vegna takmarkana sem ýmis sveitarfélög hafa sett á veiðimennskuna á þessu tímabili. 8.11.2011 07:00
Björgunarsveitir stóðu í ströngu í nótt Björgunarsveitir voru kallaðar út víða á svæðinu frá Suðurnesjujm og vestur á Snæfellsnes í gærkvöldi og í nótt til að hefta fok, en hvergi virðist hafa orðið alvarlegt tjón og ekki er vitað um neinar slysfarir. 8.11.2011 06:57
Herdís endurkjörin forseti Herdís Þorgeirsdóttir var endurkjörin forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga á aðalfundi samtakanna í Berlín í síðustu viku. 8.11.2011 06:00
Bíða DNA-rannsóknar á hnúajárni Rannsókn á máli manns sem réðst á fyrrverandi kennara sinn í Grindavík í júlí er á lokastigi hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Einungis er beðið eftir niðurstöðum DNA-rannsóknar á lífsýnum sem fundust á hnúajárni sem maðurinn er talinn hafa beitt við árásina. 8.11.2011 06:00
Kvartað yfir verndun og nýtingu á náttúru - fréttaskýring Drög að þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða liggja nú til umsagnar og eru þegar komnar inn 25 umsagnir um tillöguna. Drögin eru hluti af rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða og að umsagnarferli loknu verður tillagan unnin nánar og síðan lögð fyrir Alþingi. Þar bíður þingmanna að taka endanlega afstöðu til þess á hvaða svæðum verður leyft að virkja, hver verða vernduð og hvaða svæði fara í biðflokk. 8.11.2011 05:30
Ferðavenjur gesta kannaðar Ferðavenjur viðskiptavina og gesta Landspítalans verða kannaðar næstu daga. Fram kemur í tilkynningu að könnunin sé liður í undirbúningi vegna byggingar nýs Landspítala, en ferðavenjur starfsfólks hafa verið kannaðar. 8.11.2011 05:00
Ásakanir um orðhengilshátt Fyrirhugað æfingahús við Grýluvöll í Hveragerði veldur enn deilum í bæjarráðinu þar. Meirihluti Sjálfstæðisflokks hefur ákveðið að bjóða út framkvæmdina. Um er að ræða uppblásanlegt hús. 8.11.2011 04:00
HH vilja kröfu í þjóðaratkvæði Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna átti nýverið fund með þingflokksformönnum þar sem rætt var um að setja kröfugerð samtakanna í þjóðaratkvæðagreiðslu. 8.11.2011 03:30
Stuðlar að málefnalegri ESB-umræðu Össur Skarphéðinsson hefur skipað samráðshóp í tengslum við samningaviðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. 8.11.2011 03:30
Bakveik á bótum bar hundruð bjórdósa Kona sem var á bótum vegna bakveiki bar sjálf hundruð bjórdósa úr farangursgeymslu rútu sem hún hafði ferðast með ásamt öðrum bótaþegum til þess að kaupa ódýrt áfengi í Þýskalandi. Þetta gerði konan fyrir framan tollverði og starfsmenn sænsku sjúkratrygginganna sem tóku þátt í skoðun tollsins í Helsingborg í tvo daga í októberlok. 8.11.2011 00:00
Keisari Japans fluttur á spítala Keisari Japans, hinn 77 ára gamli Akihito, var fluttur á spítala í gær. Akihito hefur verið veikur síðustu daga og þjáist af bronkítis. 7.11.2011 23:30
Hafði hægðir 25 sinnum og er loks laus Nígeríumanninum Babatunde Omidina var sleppt gegn tryggingu af dómstólum í Nígeríu eftir að hafa setið inni í 24 daga. Omidina var grunaður um að reynt að smygla fíkniefnum til að Frakklands en hann var handtekinn í París þann 12. október síðastliðinn. 7.11.2011 22:30
Endurheimti hjólastólinn og fékk lögregluderhúfu í kaupbæti Fatlaður maður sem lenti í því að hjólastóllinn hans var fjarlægður á meðan hann fór í göngutúr í Elliðaárdalnum fékk stólinn aftur í dag. Hjón á kvöldgöngu fundu stólinn í gær og höfðu samband við lögreglu. 7.11.2011 21:00
Rólegt hjá björgunarsveitunum Þrátt fyrir mikið óveður er rólegt að gera hjá björgunarsveitunum að sögn Ólafar Snæhólm Baldursdóttur, upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Björgunarsveitir voru kallaðar út fyrr í dag vegna þaks á húsi í Garði sem fauk. 7.11.2011 20:58
Vegagerðin: Vindhviður undir Hafnarfjalli geta orðið allt að 45 m/s Fljótlega hvessir af S og SSA, einkum um landið vestanvert, en reiknað er með 20-25 m/s í lofti um mest allt land til morguns samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinn. Gera má ráð fyrir vindhviðum undir Hafnarfjalli allt að 40-45 m/s. og víða á norðanverðum Snæfellsnesi þar til í fyrramálið að það tekur að lægja. 7.11.2011 20:41
Telur systur sína búa til falskar minningar um misnotkun föður síns „Þetta kemur á engan hátt saman við okkar minningar,“ sagði Skúli Sigurður Ólafsson, sonur Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups, en Guðrún Ebba Ólafsdóttir hefur sakað föður sinn um að hafa misnotað sig um árabil. Mál Guðrúnar Ebbu hefur vakið landsathygli og nú síðast kom út bókin „Ekki líta undan“ þar sem hún lýsir misnotkun föður síns. 7.11.2011 20:07
Fundu 29 múmíur heima hjá virtum sagnfræðingi Rússneskir lögreglumenn uppgötvuðu á dögunum 29 múmíur heima hjá þekktum sagnfræðingi sem býr í borginni Nizhny Novgorod á bökkum Volgu. Maðurinn virðist hafa um áraraðir grafið upp lík í kirkjugörðum borgarinnar og komið þeim fyrir í stofunni heima hjá sér. 7.11.2011 17:05
Harðnar í átökum Biebers og Yeater Talsmenn Justin Bieber tilkynntu í dag að söngvarinn myndi gangast undir faðernispróf. Tvítug stúlka frá San Diego, Mariah Yeater, segir Beibers vera barnsföður sinn. Hún greindi frá því í síðustu viku að Bieber hefði boðið henni baksviðs eftir tónleika og að þau hafi notið ásta á baðherbergi. 7.11.2011 22:15
Gríðarleg eftirvænting fyrir Modern Warfare 3 Framhald eins vinsælasta tölvuleiks veraldar fer í sölu á miðnætti í dag. Talið er að Modern Warfare 3 eigi eftir að slá öll sölumet en gríðarleg eftirvænting er fyrir honum. 7.11.2011 21:45
Ljós verður notað í krabbameinsmeðferðum Vísindamenn í Bandaríkjunum telja nú að ljós verði eitt af framtíðar verkfærum í baráttunni við krabbamein. 7.11.2011 21:15
Ný spjaldtölva frá Barnes & Nobles Bókaverslunin Barnes & Nobles kynnti í dag nýja spjaldtölvu. Tölvan er arftaki Nook-tölvunnar vinsælu en hún var gefin út árið 2009 og var í beinni samkeppni við lestrartölvu vefverslunarinnar Amazon - Kindle. 7.11.2011 19:47
Sindri tók vakt með löggunni um helgina "Mál sem tengjast heimilisofbeldi eru alltaf erfiðust en ef við tækjum allt inn á okkur, entumst við ekki lengi í þessu starfi," segja lögreglumenn sem Ísland í dag fylgdi eftir frá laugardagskvöldi til sunnudagsmorguns. Fylgist með áhugaverðu Íslandi í dag klukkan 18:55 í kvöld. 7.11.2011 16:21
Gríðarlega ósáttur við niðurstöðuna - hvetur aðra til að kæra "Ég er gríðarlega ósáttur og mér finnst þau vera að flýja þetta mál," segir Hallur Reynisson, tvítugur starfsmaður Hagkaupa á Akureyri, sem kærði nokkur fyrirtæki og VR til jafnréttismála í september síðastliðnum. Hann taldi fyrirtækin brjóta jafnréttislög með því að fara eftir hvatningu VR um að veita konum 10 % afslátt af vörum sínum yfir eina helgi. Átakið var til vekja athygli á launamun kynjanna. 7.11.2011 16:05
Bannað verði að flytja inn lifandi dýr og hrátt kjöt Það hlýtur að verða algert skilyrði við hugsanlega inngöngu Íslands í Evrópusambandið að takmarkanir verði settar við innflutning á lifandi dýrum og hráu kjöti til Íslands. Þetta sagði Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á opnum fundi atvinnuveganefndar og utanríkismálanefndar á Alþingi í dag. 7.11.2011 15:36
Hestar voru eitt sinn blettóttir Vísindamenn hafa fundið vísbendingar um að blettóttir hestar hafi eitt sinn gengið um sléttur Evrasíu. Hingað til hafa vísindamenn aðeins fundið erfðaefni svarta og brúna hesta. Þeir telja að blettótti fákurinn hafi verið uppi fyrir rúmum 25.000 árum. 7.11.2011 23:00