Sveppi í bíó og reiðhjól í vinning 29. október 2011 05:45 Ragna Marinósdóttir
Sjálfur Sveppi mun mæta á sérstaka sýningu á Algjörum Sveppa og töfraskápnum á morgun, 30. október, kl. 12 í Kringlubíói. Bíómiðinn gildir sem happdrætti og verða reiðhjólin sem Sveppi og félagar hjóla á í myndinni í vinning. Allur ágóði af sýningunni rennur til styrktarsjóðs Umhyggju, félags sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. „Hlutverk sjóðsins er að styrkja langveik börn og foreldra þeirra, sem orðið hafa fyrir verulegum fjárhagsörðugleikum vegna veikinda barna sinna,“ segir Ragna Marinósdóttir, framkvæmdastjóri Umhyggju. „Við erum upp á almenning og fyrirtæki í landinu komin með rekstur þessa styrktarsjóðs. Við viljum gjarnan að hann styrkist sem mest svo að við getum hjálpað sem flestum foreldrum sem leita til okkar.“ Að sögn Rögnu er þörfin mikil. „Stundum þarf að kaupa stærri bíl fyrir fjölskyldu barns með hjálpartæki, auk þess sem foreldrar þurfa í sumum tilvikum að hætta að vinna úti. Við höfum getað veitt foreldrum sem ekki komast út að vinna styrk en hann er ekki mjög hár. Það er mikið álag á foreldrum, sem hafa ekki alltaf ráð á að sinna þörfum annarra barna sinna sem skyldi.“ - ibs
Fréttir Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira