Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forseti Alþingis fékk frumvarp að stjórnarskrá Stjórnlagaráð afhenti forseta Alþingis, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, frumvarp að nýrri stjórnarskrá í Iðnó í morgun. Frumvarpið var samþykkt einróma með atkvæðum allra ráðsfulltrúa á síðasta fundi ráðsins á miðvikudaginn. 29.7.2011 11:52
Sundkennara meinað að fara með barnabörnin í sund Sundkennari til fjörtíu ára var stöðvaður þegar hann ætlaði með fjögur barnabörn sín í sundlaugina að Laugarvatni í gær. Ástæðan er nýjar reglur um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Samkvæmt reglunum er fullorðnum einstaklingi óheimilt að hafa fleiri en tvö börn með sér í sund, nema um sé að ræða foreldri eða forráðamann barna. 29.7.2011 11:13
Erill í Eyjum - samt bara einn í fangageymslu Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt og má segja að hátíð hafi byrjað í gærkveldi með svokölluðu Húkkaraballi. Töluverð ölvun var í bænum og þurfti lögreglan að hafa afskipti að nokkrum aðilum vegna ölvunarástands. Þó gistir aðeins einn aðili fangeymslu lögreglunnar vegna ölunarástands. Sinna þurfti nokkrum útköllum vegna ónæðis á tjaldsvæðum í bænum og einnig hávaðaútköllum í heimahúsum. Þá komu upp fjögur minniháttar fíkniefnamál í gær og nótt þar sem ræða kannabisefni, amfetamín og e-töflur, eða „Extacy" eins og segir í tilkynningu frá lögreglunni. Allir þessir aðilar sögðu efnin til eigin nota. Mjög öflugt fíkniefnaeftirlit verður á hátíðinni og auk lögreglumanna munu þrír fíkniefnahundar starfa með þessum lögreglumönnum. 29.7.2011 10:31
Bylting í baráttu gegn flensu Vísindamenn segjast hafa fundið mótefni gegn öllum tegundum af flensuveiru í fyrsta sinn. Rannsóknir á flensusýktum músum sýna góðan árangur af notkun þessa mótefnis. 29.7.2011 09:58
Íslenskir unglingar fávísir um endurvinnslu Íslenskir unglingar hafa margir litla trú á endurvinnslu auk þess sem þau virðast hafa litla vitneskju um heimilissorpið. Grænn fræðsluleiðbeinandi í vinnuskóla Reykjavíkur ræddi við Vísi um málið. 29.7.2011 09:57
Dannebrog í heimsókn í Reykjavíkurhöfn Danska snekkjan Dannebrog er nú í stuttri heimsókn í Reykjavíkurhöfn. Skipið hefur hér skamma viðdvöl á leið yfir hafið og heldur áfram ferð sinni á sunnudag. Þetta kemur fram á vefsíðu Faxaflóahafna. 29.7.2011 09:53
Nærbuxur Greifanna fundnar - stolið í flippi Nærbuxur stórhljómsveitarinnar Greifarnir, sem stolið var nýverið, eru aftur komnar í réttar hendur. Hljómsveitarmeðlimir fagna þessu mjög og segjast nú geta haldið verslunarmannahelgina eins og vera ber. Í tilkynningu frá Greifunum segir að þjófurinn sé að öllum líkindum ungur maður sem hafi stolið nærbuxunum „í einhverju flippi," Hann hafði síðan samband, með númeraleynd, og sagðist munu skilja þær eftir á stað þar sem hægt væri að sækja þær. „Sjálfsagt hefur honum orðið um og ó yfir þeirri athygli sem uppátæki þetta fékk og viljað bæta fyrir gjörðir sínar," segja Greifarnir. 29.7.2011 09:24
Glæpamenn setja fé til höfuðs Breivik Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun ekki kemba hærurnar lengi í norsku fangelsi. Hann er svo gott sem dauður. Þetta eru skilaboðin sem glæpaheimur Noregs hefur komið áleiðis til Verdens Gang stærsta dagblaðs landsins. 29.7.2011 09:23
Hestamenn íhuga að stefna Kópavogsbæ Hestamannafélagið Gustur hyggst sækja rétt sinn gagnvart Kópavogsbæ ef ekki semst um nýja aðstöðu fyrir félagið að Kjóavöllum. Bæjaryfirvöld hafa ekki staðið við samning um uppbyggingu á svæðinu. 29.7.2011 09:00
Helguvíkurkaleikurinn kostar Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir stjórnvöld sýna atvinnuuppbyggingu grátlega lítinn áhuga. Fréttablaðið sagði frá því í gær að tvö fyrirtæki væru með áform um hátæknifiskeldi á Reykjanesi. 29.7.2011 08:00
Ný kenning um hvarf Neanderdalsmanna Ný rannsókn bendir til þess að Neanderdalsmenn hafi dáið út í Evrópu þar sem þeir urðu minnihlutahópur í álfunni eftir að nútímamenn hófu að flytja þangað í stórum stíl frá Afríku. 29.7.2011 07:51
Þrír þjóðhátíðargestir fluttir á sjúkrahús Þrír þjóðhátíðargestir voru fluttir á sjúkrahúsið í Eyjum í nótt til aðhlynningar. Einn hafði dottið og handlegsbrotnað. Annar hafði meiðst á baki, þagar sparkað var í hann og sá þriðji snérist á fæti. 29.7.2011 07:48
Tveir á slysadeild eftir líkamsárás á Akureyri Tveir voru fluttir á slysadeild sjúkrahússins á Akureyri á fimmta tímanum í nótt eftir að maður hafði ráðist á þá og veitti þeim áverka. 29.7.2011 07:45
Stofnfrumur notaðar til að lækna MS sjúklinga Tilraunir með að nota stofnfrumur til að lækna MS sjúklinga munu hefjast í Evrópu síðar á árinu. 29.7.2011 07:43
Sprenging í kolanámu kostar 16 mannslíf Sprenging í kolanámu í Úkraníu hefur kostað 16 námumenn lífið og a.m.k. 10 annarra er saknað. Náman er staðsett í Lugansk héraðinu í austurhluta landsins. 29.7.2011 07:39
Herstjóri uppreisnarmanna í Líbú ráðinn af dögum Abdel Younes, einn af leiðtogum og herstjóri uppreisnarmanna í Líbíu, var ráðinn af dögum í gærdag. Younes féll í fyrirsát á leið til bækistöðva uppreisnarmanna. 29.7.2011 07:38
Jesús tók við af Jack Daniel"s hjá Duane Eflaust hafa margir vegfarendur í Reykjavík tekið eftir götupredikaranum Duane H. Lyon á leið sinni um götur og torg. Fréttablaðið ákvað að forvitnast um hann og erindið sem bar hann hingað. 29.7.2011 07:30
Taldi sig sloppinn en var gripinn heima hjá sér Lögregla stöðvaði þrjú ungmenni sem voru að koma á bíl úr Heiðmörk í nótt og fundu lögreglumennirnir kannabislykt í bílnum. Ekkert saknæmt fannst þó í bílnum og fékk fólkið að halda áfarm. 29.7.2011 07:19
Upplausn á bandaríska þinginu Hálfgerð upplausn virðist ríkja á bandaríska þinginu þessa stundina. Þannig tókst leiðtoga Repúblikana í fulltrúadeildinni ekki að safna saman nægilegum stuðningi meðal eigin flokksmanna fyrir frumvarpi sem átti að hækka skuldaþakið og skera niður opinberan kostnað á móti. 29.7.2011 07:14
Mikið rykmistur á Fáskrúðsfirði Mikið rykmistur var á Fáskrúðsfirði í gærkvöldi og líktist það allt eins öskufalli, að sögn heimamanna. 29.7.2011 07:11
Þrír íþróttaþjálfarar reknir vegna kynferðisbrota í starfi Þrjú kynferðisbrotamál hafa komið inn á borð forsvarsmanna Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) á síðustu þremur árum. Þjálfararnir áreittu allir nemendur sína kynferðislega og var vikið úr starfi fyrir vikið. 29.7.2011 07:00
Bentley ekið á Ferrari, Porche, Aston Martin og Benz Árekstur sem aðeins gat orðið í Monte Carlo kostaði skemmdir á bílum af gerðunum Bentley, Ferrari, Porche, Aston Martin og Mercedes Benz. 29.7.2011 06:56
Fundu risavaxinn járnloftstein í Mongólíu Kínverskir vísindamenn hafa fundið það sem gæti verið einn stærsti járnloftsteinn sem hingað til hefur fundist á jörðinni. 29.7.2011 06:50
Ekkert bólar á Skaftárhlaupi Ekkert bólaði á Skaftárhlaupi í nótt þrátt fyrir mikla leiði í vatninu, sem yfirleitt er fyrirboði hlaups. Vatnið er líka gruggugt. 29.7.2011 06:46
Hjúkra fimm þúsund börnum Um 5.500 börn eru nú í næringarstöðvum Rauða krossins í Sómalíu þangað sem þau komu aðframkomin af hungri. Þessar næringarstöðvar eru meðal annars á svæðum uppreisnarmanna, að því er Þórir Guðmundsson, sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða kross Íslands, greinir frá. 29.7.2011 06:00
Vatn frá bílaplani skóp holuna Vatn frá bílaplani ofan við Almannagjá sytraði undir veginn niður gjána og varð til þess að jarðfall myndaðist á veginum. Losnað hafði um uppfyllinguna í jarðskjálftunum 2000 og 2008 og regn- og yfirborðsvatn gróf síðan undan veginum og því fór sem fór. 29.7.2011 05:45
Járnsmiður, silfurrani og tungljurt nema land Nokkrar nýjar tegundir fundust í árlegri ferð vísindamanna til Surtseyjar. Tanginn norðan á eyjunni hefur minnkað um 100 metra á einu ári, að því er fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands. 29.7.2011 05:30
Tugþúsundir á faraldsfæti Tugþúsundir Íslendinga leggja land undir fót nú um verslunarmannahelgina þrátt fyrir að veðurspáin sé ekki beysin. 29.7.2011 05:00
Froðukastari Murdoch sakfelldur Jonathan May-Bowles, maðurinn sem kastaði raksápuböku á fjölmiðlamógúlinn Rupert Murdoch þann 20 júlí síðastliðinn, var í dag sakfelldur fyrir líkamsárás og áreiti vegna atviksins. 29.7.2011 00:00
Einn grunaður um fíkniefnaakstur, umferðarmál þó almennt farsæl Svo virðist sem umferð hafi gengið vel um allt land í dag, þrátt fyrir mikinn straum fólks milli bæjarfélaga þar sem útihátíðir eru víða í þann mund að hefjast. Einn ökumaður hefur verið tekinn grunaður um fíkniefnaakstur og þrír fyrir of hraðan akstur. 28.7.2011 20:45
Tax Free: Stefnir í metsumar Stjórnendur Tax Free á Íslandi segja að allt stefni í metsumar hvað varðar eyðslu erlendra ferðamanna hér á landi. Þeir segja að tölur annarra fyrirtækja um samdrátt gefi ranga mynd af stöðunni. 28.7.2011 20:00
Slátrun flýtt um tvær vikur Sláturleyfishafar hafa nú í samvinnu við sauðfjárbændur ákveðið að flýta slátrun um tvær vikur. Sindri Sigurgeirsson formaður Landssamtaka sauðfjárbænda segir í fréttatilkynningu samtakanna að með þessu sé verið að bregðast við kröfum markaðarins. 28.7.2011 19:28
Verður látinn svara fyrir lát hvers einasta manns sem féll Norski hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik verður látinn svara fyrir lát hvers einasta manns sem féll á föstudag í síðustu viku, en norski ríkissaksóknarinn Tor-Aksel Busch sagði í samtali við norska ríkissjónvarpið að ljóst væri að ákæran gegn Breivik verði ekki tilbúin fyrir áramót. 28.7.2011 19:15
Vinnueftirlitið rannsakar slys á ungmennum Vinnueftirlitið rannsakar nú fjögur vinnuslys í fiskvinnslustöðvum sem hafa orðið hjá ungmennum undir átján ára aldri. Í nýlegu tilviki slasaðist starfsmaður undir fimmtán ára alvarlega á hönd en hin þrjú eru talin minniháttar. 28.7.2011 19:04
Fjárhagslegt öryggi Sólheima ekki tryggt Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu í morgun að íslenska ríkið hefði vanefnt skuldbindingar sínar samkvæmt þjónustusamningi með því að skerða fjárframlög til Sólheima. Guðmundur Ármann Péturson, framkvæmdastjóri Sólheima, segir reksturinn ekki tryggðan. 28.7.2011 18:29
Hálfs árs gömul frétt um ferðir Herjólfs vinsæl á Facebook „Herjólfur siglir ekki í dag“ er fyrirsögn fréttar Vísis sem Íslendingar deila nú í óðaönn með vinum sínum, við misgóðar undirtektir, en margir halda nú suður til Vestmannaeyja með ferjunni þar sem Þjóðhátíð er í þann mund að hefjast. 28.7.2011 17:56
Fullbúin ákæra í fyrsta lagi tilbúin um áramót Fullbúin ákæra gegn norska hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik verður í fyrsta lagi tilbúin um áramót. Þetta segir norski ríkissaksóknarinn Tor-Aksel Busch í samtali við norska ríkissjónvarpið. 28.7.2011 16:31
Laugavegur verður göngugata til 7. ágúst Stjórn Miðborgarinnar okkar lýsir í bréfi til borgarráðs Reykjavíkur sérstakri ánægju með samstarfið við borgaryfirvöld við útfærslu á Laugavegi sem göngugötu. Til stóð að Laugavegur allur yrði opnaður fyrir bílaumferð nú um mánaðarmótin en verslunarmenn við götuna óskuðu eftir því að hann yrðu lokaður lengur. Borgarráð ákvað á fundi sínum í dag að verða við þessari beiðni og verður hluti Laugavegar því göngugata til 7. ágúst. Jafnframt veitti borgarráð leyfi fyrir götuhátíð á skólavörðustíg dagana annan til sjöunda ágúst, en þá verður gatan lokuð frá Bergstaðastræti að Bankastræti. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að á þeim tíma sem Laugaveginum frá Vatnsstíg að Skólavörðustíg var breytt tímabundið í göngugötu hefur mannlífið fengið að blómsta. Meðal annarra hefur hópurinn Mako Mar unnið á svæðinu og sett inn litlar skemmtilegar innsetningar sem lífga upp á götuna ásamt því að standa fyrir margvíslegum uppákomum. Þá fengu þau leikskólabörn til þess að koma og skreyta götuna og leika sér á bíllausri götunni. Einnig var haldið „götupartý" einn laugardag í júlí. Framhald skoðað í ljósi reynslunnar Fylgst er með hvaða áhrif breytingin hefur og talningar hafa sýnt að fleiri gangandi og hjólandi nota Laugaveginn eftir breytinguna. Hópurinn Borghildur hefur rannsakað mannlífið í miðbæ Reykjavíkur og fylgst með breytingunni á Laugavegi. Viðbrögð borgarbúa eru skoðuð og efni miðlað reglulega í gegnum heimasíðu Borghildar með myndböndum, hljóðbrotum, pistlum og kortum. Á heimasíðu Borghildar er að finna áhugaverðar upplýsingar > <http://borghildur.info/> Mánudaginn 8. ágúst verður síðan opnað fyrir bílaumferð á ný bæði niður Skólavörðustíg og Laugaveg, og verður skoðað í ljósi reynslunnar hvernig framhaldið verður. 28.7.2011 15:12
Búist við 10 þúsund manns á Egilsstöðum Það fjölgar jafnt og þétt á tjaldstæðinu sem staðsett er rétt við flugvöllinn við Egilsstaði. Ástæðan er sú að þar fer fram Unglingalandsmót UMFÍ um helgina. Umferðinni á svo eftir að þyngjast enn frekar eftir sem á daginn líður. 28.7.2011 15:11
Ríkið braut gegn Sólheimum Íslenska ríkinu var óheimilt að skerða fjárframlög til Sólheima í Grímsnesi á fjárlögum ársins 2009, með þeim hætti sem gert var. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi í málinu í morgun. Framlög til Sólheima voru á þeim tíma skert um 4%. 28.7.2011 13:54
Stuð í Herjólfi Gríðarlega stemning var í Herjólfi þegar hann yfirgaf Landeyjahöfn fyrir stundu. Á fjórða hundrað glaðbeittra ungmenna stigu um borð og ljóst að í þeirra huga var þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar hafin. Þau létu það ekki á sig fá þó veðrið væri ekki upp á sitt besta þennan daginn. Mikil gæsla er við Landeyjahöfn og fíkniefnalögregla á staðnum. Allt hefur gengið eins og í sögu en ljóst er að mikil umferð verður um höfnina næstu daga enda uppselt í fjölda ferða Herjólfs til Vestmannaeyja. 28.7.2011 13:16
Ráðleggur fólki að fá lánuð eldhús Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra ráðleggur fólki sem hyggur á matvælaframleiðslu fyrir kökubasara og önnur góð málefni að fá lánuð eldhús í grunnskólum eða félagsheimilum sem eru vottuð af eftirlitinu. Þannig sé hægt að mæta reglum um matvælaöryggi og baka í þágu góðs málstaðar. 28.7.2011 13:05
Látinn eftir hnífstungu á Monte Carlo Karlmaður á fimmtugsaldri, sem hlaut lífhættulega áverka eftir árás á Monte Carlo fyrir hálfum mánuði síðan, lést af þeirra völdum fyrr í vikunni. Karlmaður um fertugt var í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 26. ágúst af kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að maðurinn uni þeirri niðurstöðu. 28.7.2011 11:55
Fiskvinnslufyrirtæki grunuð um að brjóta gegn rétti ungmenna Vinnueftirlitið ætlar að ráðast í könnun á störfum og starfsskilyrðum ungmenna í fiskvinnslufyrirtækjum á næstunni. Fyrirtækin megi búast við kæru ef í ljós kemur að þau hafi brotið reglugerð um vinnu barna og unglinga er að ræða. Vinnueftirlitið hefur sent út dreifibréf til fiskvinnslufyrirtækja um land allt vegna þessa. 28.7.2011 11:41
Tóku DNA-sýni úr stúlku sem er sögð vera Madeleine McCann Lögregluyfirvöld á Indlandi hafa tekið DNA-sýni úr ungri stúlku eftir að breskur ferðamaður grunaði að hún væri Madeleine McCann, sem hefur verið saknað frá árinu 2007. 28.7.2011 11:40