Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Varað við lóni við Gígjökul Lögreglan á Hvolsvelli varar ferðamenn við lóni, sem myndast hefur við Gígjökul, sem skríður út úr Eyjafjallajökli. 24.6.2011 07:41
Níu manna gönguhópur þurfti aðstoð Björgunarsveitarmenn úr Skagafirði voru kallaðir út laust fyrir miðnætti til að aðstoða fólk í níu manna gönguhópi innst í Kolbeinsdal. 24.6.2011 07:37
Setja varaforða olíu á markað Alþjóða orkumálastofnunin og orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna ætla að setja sextíu milljónir olíutunna á markað á næstu þrjátíu dögum. Tunnurnar eru hluti af varaforða Bandaríkjanna og Alþjóða orkumálastofnunarinnar. 24.6.2011 07:30
Tveir stórir jarðskjálfar vestur af Alaska Tveir stórir jarðskjálftar upp á 7,2 og 7,4 á Richter, skóku Aleutian eyjar í Norður-Kyrrahafi, vestur af Alaska, um klukkan þrjú í nótt. 24.6.2011 07:24
Kjalvegur opinn Búið er að opna Kjalveg, samkvæmt heimasíðu Vegagerðarinnar, en fjölmargir hálendisvegir, sem venjulega er löngu búið að opna á þessum árstíma, eru enn lokaðir, þar sem snjór hefur legið yfir vegunum. 24.6.2011 07:21
Dóttir Heinrich Himmlers enn að berjast fyrir nasista Gudrun Burwitz rúmlega áttræð dóttir nasistaforingjans Heinrich Himmler vinnur enn að hugsjónum föður síns. 24.6.2011 07:18
Samningafundur flugmanna heldur áfram fyrir hádegi Samningafundur flugmanna hjá Icelandair og viðsemjenda þeirra, sem hófst í gærmorgun, stóð hjá Ríkissáttasemjara fram yfir miðnætti, að hlé var gert til klukkan hálf ellefu fyrir hádegi í dag. 24.6.2011 07:14
Flugfarþegar hvattir til að kanna rétt sinn Flugfarþegar sem lenda í óþægindum vegna tafa á flugferðum gætu átt margs konar rétt gagnvart flugfélögunum, að því er Neytendasamtökin segja. 24.6.2011 07:00
Leita leiða til bjargar evrunni Fjárhagsvandi Grikkja skyggði á öll önnur mál á leiðtogafundi Evrópusambandsins sem hófst í Brussel í gær. Mestur tíminn fór í að leita leiða til að forða Grikkjum undan gjaldþroti og bjarga evrunni, hinni sameiginlegu mynt sautján Evrópusambandsríkja. 24.6.2011 06:45
Með þúsundir barnaníðsmynda Karlmaður á sextugsaldri, Ólafur Barði Kristjánsson, hefur verið dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir vörslu á miklu magni af efni sem sýnir barnaníð. Hæstiréttur hafði árið 2007 dæmt manninn í átján mánaða fangelsi fyrir kynferðislegt athæfi gegn þremur stúlkubörnum og að hafa haft í fórum sínum myndir sem sýndu níð gegn tveimur öðrum litlum stúlkum, auk fleiri mynda sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. 24.6.2011 06:30
Tvíburar áfrýja ekki úrskurði Cameron og Tyler Winklevoss, tvíburabræðurnir sem telja sig eiga hugmyndina að Facebook, hafa ákveðið að áfrýja ekki úrskurði Alríkisdómstóls til Hæstaréttar. 24.6.2011 11:00
Seldi litháíska stúlku í kynlífsþrælkun Tæplega fertugur litháískur karlmaður var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í Danmörku í gær fyrir að halda 19 ára gamalli litháískri stúlku í kynlífsþrælkun. Maðurinn verður að líkindum ákærður fyrir mansal, að því er danska blaðið Berlingske greinir frá. 23.6.2011 22:47
Köngulóarmaðurinn lögsóttur fyrir pókerspil Hollywood-leikarinn Tobey Maguire, sem er hvað þekktastur fyrir að leika Köngulóarmanninn í samnefndum kvikmyndum, stendur nú frammi fyrir lögsókn en hann er sagður hafa unnið meira en andvirði 34 milljónir íslenskra króna í ólöglegum pókerleikjum hinna ríku og frægu. 23.6.2011 21:30
Facebook-tvíburarnir ætla ekki að áfrýja Cameron og Tyler Winklevoss, tvíburabræðurnir sem telja sig eiga hugmyndina að baki Facebook, hafa ákveðið að áfrýja ekki úrskurði Alríkisdómstóls til Hæstaréttar. 23.6.2011 20:58
Gifti sig 99 ára gamall Gilbert Herrick sagðist aldrei ætla að gifta sig fyrr en hann myndi hitta hina einu réttu. Hann hitti svo konuna í lífi sínu - þegar hann var orðinn 98 ára. 23.6.2011 20:15
Risastórt skemmtiferðaskip í Reykjavík Hið veglega skemmtiferðaskip Azora lagðist að bryggju við Skarfabakka í Reykjavík í morgun. 23.6.2011 20:00
Tólf teknir á Reykjanesbraut - einn á 133 kílómetra hraða Tólf ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur á Reykjanesbrautinni í dag. Sá sem hraðast ók var á 133 kílómetra hraða og bíður hans nú 90 þúsund króna sekt og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. 23.6.2011 19:30
Fasteignaverð svipað í krónum og í ársbyrjun 2007 Fasteignaverð er almennt á uppleið og er verð fasteigna nú í krónum talið svipað og það var í upphafi ársins 2007. Heildarmat íbúðarhúsnæðis á landinu hækkar um 9 prósent á næsta ári, en hækkunin er töluvert mismunandi milli hverfa á höfuðborgarsvæðinu og milli landshluta. 23.6.2011 19:15
Fjármálaráðherra vonar að fasteignaverð kalli ekki á verðbólgu Fjármálaráðherra segir hækkandi húsnæðisverð auka á verðbólguna og vonar að húsnæðisverð sveiflist ekki of hratt upp á við. Hann telur alltaf ástæðu til að hafa áhyggjur af víxlhækkunum launa og verðlags en óttast ekki áhrif boðaðra verðhækkana á mjólkurvörum. 23.6.2011 18:46
Sáttafundur stendur enn yfir Sáttafundur í kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair sem hófst klukkan hálftíu í morgun stendur enn yfir hjá Ríkissáttasemjara. 23.6.2011 18:30
Áhersla á mannlíf og iðandi stemmingu Gangandi vegfarendur fá að njóta sín í miðborg Reykjavíkur í sumar. Göngugötum verður fjölgað og miðborgin þannig efld til muna með enn frekari áherslu á mannlíf og iðandi stemmningu, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 23.6.2011 17:40
Gefa vinnu sína á jónsmessugleði í Garðabæ Jónsmessugleði myndlistarsamtakanna Grósku er fjölskylduhátíð sem haldin er í Garðabæ í dag. Gleðin stendur frá klukkan 18-22 og er á margan hátt ólík hinum hefðbundnu fjölskylduhátíðum. 23.6.2011 17:24
Perlan til sölu? Í aðgerðaráætlun Orkuveitunnar sem kynnt var á ársfundi hennar í dag kemur meðal annars fram áætluð fækkun starfsmanna um 90 á tímabilinu 2011-2016 en starfsmannafjöldi fyrirtækisins hefur þegar lækkað úr 607 í 495 frá árinu 2008. 23.6.2011 17:04
Bensínverð lækkar Atlantsolía og Orkan hafa riðið á vaðið og lækkað verð á bæði bensíni og díselolíu í dag. 23.6.2011 16:06
Fimm þúsund gestir á Galtalæk um helgina Búist er við fimm þúsund gestum á Útihátíðina á Galtalæk um helgina en undirbúningur hátíðarinnar, sem byrjar á morgun, er nú á lokastigi. 23.6.2011 16:06
Vísindavefurinn opnar Evrópuvef Alþingi hefur gert þjónustusamning við Vísindavef Háskóla Íslands um samningu og rekstur Evrópuvefs. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, opnaði vefinn í dag á Háskólatorgi og mun Evrópuvefurinn starfa í nánum tengslum við Vísindavefinn. 23.6.2011 15:32
Heimagert skotvopn fannst - eigandinn talinn tengdur Hells angels Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær rúmlega tvítugan mann eftir að skotvopn fannst við húsleit í Hafnarfirði. 23.6.2011 15:19
Hrædd um kóp í Kópavogi Sonja Óskarsdóttir, íbúi í Kópavoginum, segist hafa miklar áhyggjur af agnarsmáum kóp sem hún fann þar í fjöru skammt frá heimili sínu síðastliðinn þriðjudagsmorgun. Hún segist fyrst hafa haldið að mamma hans hefði aðeins skroppið frá að finna æti, en nú séu liðnir rúmir tveir dagar og alltaf sé kópurinn þar aleinn og umkomulaus. 23.6.2011 15:10
Úttektarnefnd Orkuveitu Reykjavíkur skipuð Borgarráð hefur samþykkt að skipa þrjá einstaklinga í úttektarnefnd sem mun fara yfir málefni Orkuveitu Reykjavíkur og er nefndinni ætlað að gera óháða úttekt á þeim þáttum sem leiddu til núverandi fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 23.6.2011 14:24
Ótrúleg heppni að enginn slasaðist á Dalveginum Mildi þykir að enginn slasaðist þegar að ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Dalveginum í Kópavogi um klukkan eitt í dag. 23.6.2011 13:54
Fékk grjótregn á þakið: Þetta hljómaði eins og hvellhetta Rúður eru brotnar og þök dælduð í Bolungarvík eftir að grjóti ringdi þar yfir íbúðarhús um hádegisbilið. Ástæðan er sú að verktaki var að sprengja í fjallinu fyrir ofan þar sem unnið er að gerð snjóflóðagarðs. Nikólína Beck Þorvaldsdóttir var heima hjá sér ásamt fjölskyldu þegar grjótinu tók að rigna yfir húsið. Þeim brá skiljanlega mjög en gerðu sér í fyrstu ekki grein fyrir hvað var að gerast. Nokkuð hefur verið um sprengingar að undanförnu og hélt hún í fyrstu að þarna hefði sprenging mistekist. "Þetta hljómaði eins og hvellhetta," segir hún. Ekki er vitað til þess að slys hafi orðið á fólki. "Margir voru úti að vinna í görðunum sínum og ég þakka bara fyrir að þetta lenti ekki á neinum," segir Nikólína. Eftir því sem hún best veit eru engin hús óíbúðarhæf eftir grjóthrunið þó sum þeirra séu vissulega illa farin. Hjá henni urðu mestu skemmdirnar á þakinu þar sem gat kom í bárujárnið, jafnvel þó þar hafi ekki verið um stóra hnullunga að ræða. Þar hafi hraði grjótsins haft úrslitaáhrif þegar kom að skemmdum. 23.6.2011 13:47
Lýst eftir vitnum að umferðaróhappi við Hörpuna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum að umferðaróhappi sem átti sér stað á Sæbraut á móts við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpuna síðdegis fimmtudaginn 9. júní síðastliðinn. Á þessum tíma voru umferðartafir þar sem farmur hafði fallið af bifreið og lokað akreinum til austurs. Lögregla stjórnaði umferð sem var hleypt til austurs á einni akrein. Þar varð umferðaróhapp er rauðleitri Toyota Corolla station bifreið og hvítri Scania vörubifreið lenti saman. Ökumönnum bifreiðanna ber ekki saman um málsatvik og því er lýst eftir vitnum að óhappinu. Þeir sem geta varpað ljósi á málið eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000. 23.6.2011 13:18
Georg Guðni: Málari eilífðarinnar Georg Guðni myndlistarmaður féll frá um liðna helgi, langt fyrir aldur fram. Ragna Sigurðardóttir, myndlistarrýnir Fréttablaðsins, fer yfir feril listamannsins og metur áhrif hans og vægi. 23.6.2011 13:00
Vettvangshjálparlið sett á fót á Flúðum Samkomulag um stofnun 13 manna vettvangshjálparliðs á Flúðum var undirritað af Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Björgunarfélagi Eyvinds á Flúðum, Lögreglunni í Árnessýslu og Árnesingadeild Rauða Krossins þann 21. júní síðastliðinn. 23.6.2011 12:52
Heyskortur blasir við í vetur Heyskortur blasir við víða á Norðausturlandi í vetur þar sem grasspretta er mun seinni en í meðalári og tún eru sumstaðar kalin. Ráðgjafaþjónusta bænda ætlar að miðla upplýsingum um slægjumöguleika annarsstaðar. 23.6.2011 12:16
Allt að tveggja ára biðtími eftir talmeinafræðingi Börn sem þurfa á talþjálfun að halda geta þurft að bíða í allt að tvö ár eftir að komast að. Gífurlegur skortur er á talmeinafræðingum hér á landi. Biðin er sérstaklega löng hjá talmeinafræðingum sem eru með samning við Sjúkratryggingar Íslands enda eru þeir örfáir. 23.6.2011 12:08
Ólafur Ragnar hrósar hinni umdeildu Söruh Palin Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kom blaðamanni Alaska Dispatch nokkuð á óvart á dögunum þegar hann hrósaði í hástert Söruh Palin, fyrrverandi ríkisstjóra Alaska og varaforsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum. Sem kunnugt er var Ólafur Ragnar eini þjóðarleiðtoginn sem Palin hafði hitt þegar hún bauð sig fram til varaforseta. "Þegar við hittumst var hún nýorðinn ríkisstjóri og við ræddum ekkert um landsmálin," segir Ólafur í viðtali við Alaska Dispatch, en hann er staddur á fjölþjóðlegri ráðstefnu í Alaska um nýjar siglingaleiðir vegna bráðnunar íss á Norðurslóðum. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flytur í dag, mánudaginn 20. júní, ræðu á setningarathöfn fjölþjóðlegrar ráðstefnu sem haldin er í Alaska. Viðfangsefni hennar er að ræða nauðsyn framkvæmda og sérstakra framtíðaráætlana með tilliti til nýrra siglingaleiða sem bráðnun íss á Norðurslóðum mun innan tíðar hafa í för með sér. Ólafur segir að þau Palin hafi rætt um möguleika Alaska á sviði jarðvarmaorku. "Ég skynjaði hjá henni hæfileika á sviði stjórnmála, pólitíska hæfni sem fólk annað hvort hefur eða ekki. Þetta er eins og tónlistarhæfileikar. Hvort sem fólk er sammála henni eða ekki þá er það skýrt merki um hæfileika henna að á aðeins nokkrum árum hefur hún farið frá því að vera embættismaður í Alaska til þess að vera eitt áhrifamesta afl stjórnmálanna," segir Ólafur Ragnar. Blaðamaður tekur fram í greininni að aðdáun Ólafs Ragnars á Palin kunni að vekja sérstaka kátínu meðal vinstri sinnaðra stjórnmálamanna í Evrópu, en Palin er eins langt til hægri í hinu pólitíska litrófi og hægt er. Spurður hvað honum finnist um stjórnmálaskoðanir Palin segir Ólafur kíminn við blaðamann Alaska Dispatch: "Við skulum ekkert vera að ræða það neitt," og beinir umræðuefninu snarlega að loftslagsbreytingum og grænni orku. 23.6.2011 12:04
Ný starfsstöð Fræðslunets Suðurlands Fræðslunet Suðurlands og Rangárþing eystra undirrituðu í dag húsaleigusamning vegna nýrrar starfsstöðvar Fræðslunetsins á Hvolsvelli. Um er að ræða skrifstofu, fullbúna kennslustofu með fjarfundabúnaði og hlutdeild í sameiginlegu rými Tónlistarskóla Rangæinga og Hvolsskóla. 23.6.2011 11:37
Náðu manni á hlaupum frá kannabisræktun Síðastliðinn þriðjudag stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Árbæ. Við húsleit fundust 36 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Á meðan aðgerðum lögreglu stóð komu tveir karlmenn á staðinn og er þeir urðu varir lögreglu varir reyndi annar þeirra að komast undan á hlaupum. Hann náðist eftir stutta eftirför og voru báðir mennirnir vistaðir. Við yfirheyrslu viðurkenndu þeir aðild sína að ræktuninni. Í kjölfarið var farið í húsleit á heimili annars mannsins og fannst þar ræktunarbúnaður og þurrkað marijúana. Mennirnir eru á þrítugs- og fertugsaldri. Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. 23.6.2011 11:31
SA segja Ögmund fara villu vegar Samtök atvinnulífsins gagnrýna harðlega málflutning innanríkisráðherra í samgöngumálum og segja hann bókstaflega tala gegn yfirlýstri stefnu ríkisstjórnarinnar. Í pistli sem birtist á vef samtakanna er gengið svo langt að segja: „Verkstjórar stjórnarsamstarfsins hljóta að bregðast við og sjá til þess að innanríkisráðherra snúi af villu síns vegar. Takist það ekki er vart annar kostur en að fela öðrum að fara með samgöngumálin í ríkisstjórninni." Samtökin benda á að ríkisstjórnin hafi gefið út, í tengslum við gerð kjarasamninga þann 5. maí, að áfram verði unnið að útfærslu tillagna um vegaframkvæmdir á Suðvesturlandi og fjármögnun þeirra. Þá segir í pistlinum: „Yfirlýsingin er gefin af ríkisstjórninni allri og einstök atriði hennar eru samin með vitund og vilja viðkomandi fagráðherra. Þannig hefur innanríkisráðherra sem fer með samgöngumálin samþykkt og jafnvel samið sjálfur þann hluta yfirlýsingarinnar sem um vegaframkvæmdirnar fjalla. Nú hefur það komið skýrt fram á síðustu dögum að ráðherrann er á móti eigin yfirlýsingu og ætlar ekkert með hana að gera. Þá vaknar spurningin hvort ríkisstjórnin í heild og þingmenn hennar sætti sig við að ráðherrann geri alla ríkisstjórnina að ómerkingi." 23.6.2011 11:20
Vara Lýsis um allan heim Lýsisbragð gæti heyrt sögunni til, verði niðurstöður úr prófunum Matís á lýsi í duftformi, sem norska fyrirtækið Oil4Life hefur framleitt, jákvæðar. Í framhaldinu gæti fyrirtækið samið við Lýsi um framleiðslu. 23.6.2011 11:00
Hjólar um Vestfirði fyrir Grensásdeild Hjólagarpurinn, Ísfirðingurinn, og kontrabassaleikarinn Hávarður Tryggvason lagði upp í hjólreiðaferð um Vestfirði í gær til styrktar Grensásdeild sem hluti af átakinu Á rás fyrir Grensás. Hávarður lagði af stað frá Ísafirði og kvaddi Daníel Jakobsson bæjarstjóri hann á Silfurtorgi. Hávarður hjólar sem leið liggur vestur yfir heiðar, í gegnum Bíldudal og Patreksfjörð, Flókalund, innfirði Breiðafjarðar, Steinadalsheiði, Hólmavík og Ísafjarðardjúp aftur til Ísafjarðar. Alls er þetta tæplega 700 kílómetra vegalengd og 5 þúsund metrar í hækkanir yfir fjallvegi. Þeim sem vilja heita á Hávarð er bent á heimasíðu Grensásdeildar www.grensas.is <http://www.grensas.is> undir liðnum Á rás fyrir Grensás, eða á söfnunarreikning átaksins, reikningsnúmer: 311-26-3110, kennitala: 670406-1210. Í tilkynningu frá Ísafjarðarbæ er Hávarði óskað alls hins besta á leið hans um fjórðunginn. 23.6.2011 10:51
Bónus vill afnema skilarétt á kjöti Bónus vill afnema allan skilarétt fyrirtækisins á kjötvörum frá og með 1. nóvember. Þá taka gildi reglur samkvæmt nýrri matvælalöggjöf sem meðal annars snerta rekjanleika búfjárafurða. Bændablaðið greinir frá því í dag að Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónuss hafi sent öllum kjötbirgjum fyrirtækisins erindi þar sem þetta kemur fram. Matvöruverslanir hafa almennt unnið eftir þeirri vinnureglu í samskiptum við kjötbirgja að skilaréttur sé á kjöti sem ekki selst í verslunum. Guðmundur segir í samtali við Bændablaðið að þeir sem hafa verið með skilarétt í Bónus hafi nánast haft frjálsan aðgang að verslunum, þeir panti sjálfir og ákveði magnið með tilliti til eigin birgðastöðu. "Ef þeir eiga mikið af bjúgum þá senda þeir mikið af bjúgum í búðirnar sem dæmi. Þeir gera þetta nánast eftir sínu höfði," segir Guðmundur. "Það sem mun hins vegar gerast ef skilarétturinn verður afnuminn, þá mun verslunin sjálf ákveða vöruvalið, panta sjálf og bera þá rýrnun sem verður," segir hann í Bændablaðinu. Steinþór Skúlason, forstjóri SS, fagnar frumkvæði Bónuss. Hann telur þetta jákvætt skref sem muni minnka sóun í keðunni frá framleiðanda til neytenda. Skiptar skoðanir eru þó um skilaréttinn og segir Sigmundur Ófeigsson, framkvæmdastjóri Norðenska, sem þó er í litlum viðskiptum við Bónus, að hann óttist að vöruúrval í verslunum muni minnka ef skilarétturinn verður afnuminn. 23.6.2011 10:40
Grafa undirgöng vestan við Litlu kaffistofuna Næstu daga verður unnið við gerð undirganga á Suðurlandsvegi, vestan við Litlu kaffistofuna. Á meðan að vinna við undirgöng stendur yfir mun umferð fara um bráðabirgðarveg við hlið framkvæmdasvæðis. Vegfarendum er bent á að hámarkshraði við framkvæmdasvæðið er 50km/klst. Vegfarendur eru hvattir til að sýna fyllstu aðgát og fylgja þeim merkingum sem uppi eru hverju sinni. 23.6.2011 09:55
Þrisvar tekinn fullur sömu nótt Lögreglan í Óðinsvéum í Danmörku hafði þrívegis afskipti af 28 ára gömlum manni vegna ölvunaraksturs á nokkurra klukkustunda tímabili í fyrrinótt. 23.6.2011 09:15