Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tíu ára fangelsi í Landsrétti Muhudiin Mohamed Geele, sem réðist inn á heimili skopmyndateiknarans Kurts Westergaard á nýársdag í fyrra, vopnaður öxi, var í gær dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir landsrétti. 23.6.2011 08:15
Fækkar í herliðinu í Afganistan Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt um verulega fækkun í herliðinu í Afganistan. Forsetinn greindi frá áætluninni í ræðu í Hvíta húsinu en hún gerir ráð fyrir að fækkað verði í herliði Bandaríkjamanna í landinu um þrjátíu og þrjú þúsund menn fyrir lok september á næsta ári. Tíu þúsund hermenn munu fara frá landinu áður en þetta ár er úti og 23 þúsund á því næsta. 23.6.2011 08:14
Vilja fjölga ferðum Herjólfs Bæjarráð Vestmannaeyja vill að ferðum Herjólfs á milli Eyja og Landeyjahafnar verði fjölgað, ekki síst í ljósi þess hve skipið er þétt setið í hverri ferð og mörg dæmi séu um að fólk þurfi frá að hverfa þar sem skipið er fullt. 23.6.2011 08:13
Svifu 380 kílómetra leið Þremur svifflugmönnum á þremur svifflugum tókst í gær að svífa 308 kílómetra fyrirfram ákveðna leið, sem mun vera einstakur árangur í svifflugi hér á landi. Flugið hófst á Sandskeiði og lauk þar. 23.6.2011 08:11
Blái herinn skorar á ráðherra Umhverfissamtökin Blái herinn hafa sent umhverfisráðherra áskorun um að taka strax á olíumenguninni, sem fannst í fjörunni við Garðskagavita í fyrrakvöld, en Umhverfisstofnun telur ekki ástæðu til aðgerða. Hún telur að náttúran sjálf muni vinna á menguninni. Ekki er vitað hvaðan hún kemur, nema hvað hún er væntanlega komin úr einhverju skipi, sem hefur átt leið hjá. Árleg sólstöðuhátíð hefst á svæðinu í dag, en undanfarin ár hafa börn leikið sér í fjörunni, þar sem mengunin er nú. 23.6.2011 08:06
Enn á sjúkrahúsi en ekki í lífshættu Vélhjólamaður, sem féll á hjóli sínu á Reykjanesbraut undir kvöld í gær, er enn á sjúkrahúsi, en er ekki í lífshættu. Hann hlaut nokkur beinbrot í fallinu og missti meðvitund, en var kominn til meðvitundar um það bil sem komið var með hann á slysadeild Landspítalans. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir og er óljóst hvort hann hefur verið á mikilli ferð. 23.6.2011 08:05
Þrír bílar í árekstri við Hveragerði Engin slasaðist en töluvert eignatjón varð þegar þrír bílar lentu í árekstri við hringtorgið á þjóðveginum við Hveragerði í gærkvöldi. Þar höfðu tveir bílar numið staðar þar sem vegaframkvæmdir voru í torginu. Þriðji bíllinn kom að og ók á annan bílinn, sem kastaðist áfram á þann fremsta. Fjarlægja þurfti einn bílinn með kranabíl. 23.6.2011 08:04
Árangurslaus fundur með flugmönnum Ekki náðist niðurstaða á löngum samningafundi flugmanna hjá Icelandair og viðsemjenda þeirar hjá Ríkissáttasemjara, sem var slitið í gærkvöldi. Annar fundur hefur verið boðaður klukkan hálf ellefu fyrir hádegi, en flugmenn hafa boðað yfirvinnubann hjá félaginu, sem hefst á morgun, náist ekki samningar fyrir þann tíma. Það gæti raskað flugi umtalsvert, því þá mega flugmenn á frívakt ekki hlaupa í skarðið ef einhver flugmaður forfallast. 23.6.2011 08:03
Þörf á nýrri byggðaúttekt véfengd Samþykkt var í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis á þriðjudag að óskað yrði eftir við sjávarútvegsráðuneytið að gerð verði úttekt á áhrifum fiskveiðistjórnunarkerfisins á íslenskt samfélag allt frá árinu 1991. Áhrif á íbúa og byggðaþróun verði skoðuð auk annarra samfélagslegra þátta. 23.6.2011 08:00
Alþingi hættir að úthluta styrkjum til samtaka, félaga og einstaklinga Alþingi mun hætta að úthluta styrkjum til samtaka, félaga og einstaklinga á næsta ári. 23.6.2011 07:30
„Whitey" Bulger handtekinn í Santa Monica Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur handtekið James "Whitey" Bulger, glæpaforingja frá Boston sem hefur verið á flótta í sextán ár. Bulger var efstur á lista þeirra sem alríkislögreglan vill ná í eftir að Osama Bin Laden var drepinn í Pakistan á dögunum. 23.6.2011 07:25
Ísland 83 prósent sammála Evrópu Ísland tók undir 83 prósent af yfirlýsingum ráðherraráðs ESB um afstöðu sambandsins til mála víðs vegar um heiminn í fyrra, að því er fram kemur í 28. fundafrásögn samninganefndar Íslands gagnvart ESB. 23.6.2011 07:00
Prestur skrifaði til varnar barnaníðingi Séra Örn Friðriksson, fyrrverandi sóknarprestur Mývetninga, skrifaði félagsmálayfirvöldum bréf í september árið 1998 til varnar dæmdum kynferðisbrotamanni. Maðurinn hafði misnotað stjúpdætur sínar kynferðislega um langt skeið og var dæmdur í tveggja ára fangelsi í júní árið 1995. Hann afplánaði fangelsisdóminn á Kvíabryggju og var sleppt einu og hálfu ári síðar. 23.6.2011 07:00
Aðhaldsaðgerðir óafgreiddar Þótt Georgios Papandreú, forsætisráðherra Grikklands, hafi fengið meirihlutastuðning þingsins til að halda áfram að ná tökum á skuldavanda ríkisins, á hann þó enn mikið verk óunnið því ekki er öruggt að þingmeirihlutinn fallist á þær skattahækkanir og niðurskurð sem hann hefur boðað. 23.6.2011 06:00
Heimsmet í strumpi Alþjóðlegi strumpadagurinn verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 25. júní næstkomandi og mun þá samstillt átak tæplega 30 þjóða að öllum líkindum verða til þess að slá núverandi heimsmet í "strumpi". 22.6.2011 21:45
Heppnir Norðmenn Þrír Norðmenn höfðu heppnina með sér í Víkingalottóinu í kvöld og fær hver og einn tæplega 69 milljónir í sinn hlut. 22.6.2011 21:33
Sjö ára ökumaður vildi hitta pabba sinn Lögreglumenn í Detroit í Bandaríkjunum velta því nú fyrir sér hvernig sjö ára gamall drengur náði að keyra bíl stjúpföður síns 32 kílómetra. Drengurinn náði mest 80 kílómetra hraða þegar að lögreglumenn veittu honum eftirför. 22.6.2011 21:17
Alvarlegt vélhjólaslys á Reykjanesbraut Vélhjólamaður slasaðist alvarlega þegar hann féll af hjóli sínu á Reykjanesbrautinni við Innri Njarðvík um klukkan hálf sex í dag. 22.6.2011 20:40
Eigandinn fundinn - lambið búið að vera týnt í fimm daga "Það er bara gott að þetta endaði vel og gott að eigandinn fannst,“ segir Sólveig Ingvarsdóttir, íbúi í Flúðaseli í Reykjavík. Við sögðum frá því fyrr í dag að lamb hafi legið í garðinum hennar þegar hún ætlaði að fara vökva blómin í dag. Sólveig auglýsti eftir eigandanum og er hann nú fundinn. 22.6.2011 20:20
Innbrot í skartgripaverslun: „Þeir réðust á skápana með sleggju“ „Ég kom klukkan átta í morgun og það var eins og handsprengju hefði verið kastað hingað inn, glerbrotin voru eins og snjór yfir öllu," segir Elísabet Elíasdóttir, annar tveggja eigenda skartgripaverslunarinnar Úr og skartgripir - Nonni Gull í Hafnarfirði. 22.6.2011 19:23
Verðhækkanir ganga á ávinning kjarasamninga Verðhækkanir á mjólkurvörum draga úr þeim ávinningi sem nýgerðir kjarasamningar áttu að færa launafólki, segir hagfræðingur Alþýðusambandsins. Tilkynnt var í dag um verðhækkun mjólkurvara um næstu mánaðamót um fjögur til sjö prósent. 22.6.2011 18:47
Munu funda fram á kvöld Samningar hafa enn ekki tekist milli flugmanna hjá Icelandair og félagsins um nýjan kjarasamning en tæpir tveir sólarhringar eru þar til ótímabundið yfirvinnubann þeirra tekur gildi. 22.6.2011 18:33
Heimalningur í Breiðholti "Það lá bara lítið lamb úti í garði hjá mér þegar ég ætlaði að fara vökva blómin áðan,“ segir Sólveig Ingvarsdóttir, íbúi í Flúðaseli í Reykjavík. Það verður að teljast nokkuð sérstakt að lítið lamb kemur sér fyrir í garði í miðju íbúðarhverfi í Breiðholti um hásumar. 22.6.2011 18:02
Kæru Eimskips vísað frá Áfrýjunarnefnd samkeppnismála féllst í dag á kröfu Samkeppniseftirlitsins um frávísun á kæru Eimskipa á þeim grundvelli að hún hafi borist eftir að fjögurra vikna kærufrestur var liðinn. 22.6.2011 16:38
Mjólk hækkar um mánaðarmótin - smjör hækkar meira Heildsöluverð á mjólk hækkar um 4,25% þann 1. júlí. Þetta er gert samkvæmt ákvörðun verðlagsnefnd búvara, en þær mjólkurafurðir sem nefndin verðleggur munu hækka um sömu prósentutölu. Smjör hækkar þó meira, um 6,7%, og mjólkurduft til iðnaðar um 6%. Frá sama tíma hækkar afurðastöðvar verð til bænda um 3,25 krónur á mjólkurlítra, eða um 4,4%. Þá hækkar vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur um liðlega 4,1%. Ástæður verðhækkananna eru launabreytingar og hækkanir á aðföngum við búrekstur. 22.6.2011 16:13
Áfrýjunarnefnd staðfestir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti í dag ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að beita Seðlabankann dagsektum vegna vanrækslu á afhendingu gagna og upplýsinga um útlán banka. 22.6.2011 15:50
Ljósmæður styðja leikskólakennara Ljósmæðrafélag Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu leikskólakennara fyrir leiðréttingu á launakjörum sínum. Í tilkynningu frá félaginu segir að kjarabarátta leikskólasnúist um að störf þeirra verði metin í samræmi við menntun, ábyrgð og þá grunnhugmynd að hægt sé að lifa mannsæmandi lífi á launum sínum. Þá taka ljósmæður fram að kjarabarátta leikskólakennara sé ekki síst jafnréttisbarátta enda langstærsti hluti leikskólakennara konur. "Ljósmæðrafélag Íslands skorar því á fjármálaráðherra að sýna kjark og þor og ganga strax í að leiðrétta laun leikskólakennara. Það er hagur samfélagsins alls að fólkið sem sér um fjöregg þjóðarinnar, börnin okkar, sé umbunað fyrir það mikla og góða starf," segir í tilkynningunni. 22.6.2011 15:14
Galliano fyrir rétt í París Réttarhöld hófust í dag í París yfir tískumógúlnum John Galliano, sem sakaður er um að hafa tvívegis hreytt and-gyðinglegu níði í fólk á kaffihúsi í borginni. Galliano, sem í framhaldi af fréttum af málinu var rekinn sem yfirhönnuður Dior tískuhússins, gæti átt yfir höfði sér sex mánaða fangelsi og milljónasekt. 22.6.2011 14:53
Aukin trú á stefnu Íslands Trú Íslendinga á framtíð Íslands virðist vera að styrkjast ef marka má könnun sem þjónustufyrirtækið Miðlun hefur framkvæmt undanfarna mánuði. Könnunin nær yfir fjóra mánuði, en samkvæmt henni virðist útlitið hafa verið svartast í mars, þegar aðeins 31,4% svarenda töldu landið vera á réttri leið. 22.6.2011 14:22
Dagur sauðfjárræktarinnar Dagur sauðfjárræktarinnar verður haldinn hátíðlegur föstudaginn 24. júní næstkomandi en það eru Landbúnaðarháskóli Íslands og Búnaðarsamtök Vesturlands sem standa fyrir honum samkvæmt því sem fram kemur á héraðsmiðlinum feykir.is. 22.6.2011 14:04
Al Kaída liðar sluppu úr fangelsi Tugir liðsmanna Al Kaída hryðjuverkasamtakanna flúðu úr fangelsi í suðurhluta Jemens í dag í kjölfar árásar á fangelsið. Yfirvöld í landinu segja að félagar fanganna hafi gert árás og um leið hafi brotist út bardagi á milli fanganna og fangavarða. 22.6.2011 13:54
Leikjadagur ÍTR í Nauthólsvík - ungir sem aldnir velkomnir Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur á 25 ára afmæli um þessar mundir og af því tilefni verður efnt til leikjadags ÍTR í Nauthólsvík laugardaginn 25. júní næstkomandi milli klukkan 13 og 16. Þá gefst ungum sem öldnum borgarbúum færi á að taka þátt í skemmtilegum, spennandi og öðruvísi leikjum og fjölbreyttri afþreyingu. Heiti dagsins er ætlað að undirstrika vægi leiksins í starfi ÍTR. Auk leikjanna verður boðið uppá aðstöðu til að grilla, poppað verður yfir eldi, hægt verður að fara á báta í Siglunesi, sýndir verða munir og myndir úr starfi ÍTR og sýnd ný heimildamynd um starfsemi skrifstofu tómstundamála ÍTR. Í þrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur var stofnað 19. júní 1986 við sameinginu Íþróttaráðs Reykjavíkur og Æskulýðsráðs Reykjavíkur. 22.6.2011 13:08
Fordæma vinnubrögð samninganefndar Félagsfundur verkalýðsfélagsins Hlífar fordæmir þau vinnubrögð sem samninganefnd Sambands íslenskra sveitafélaga viðhefur í kjarasamningsviðræðum við félagið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu en þar segir jafnframt að félagsmenn hvetji samningarnefnd Hlífar til að láta ekki af kröfunni um að fylgja þeirri launastefnu sem 85% vinnumarkaðarins hefur nú þegar samið um. 22.6.2011 12:57
Kaþólski biskupinn tekur ásakanirnar alvarlega - dómstólar ákvarða sekt "Biskup tekur mjög alvarlega þær ásakanir sem fram eru bornar um kynferðislegt áreiti innan vébanda Kaþólsku kirkjunnar. Vill kirkjan af öllum mætti styðja við þá einstaklinga sem hlut eiga að máli og stendur öll sú þjónusta sem kirkjan hefur fram að bjóða þeim opin." 22.6.2011 12:09
Vann 2 milljónir í lottósjálfsala Konu á Akureyri brá heldur betur í brún þegar hún gerði sér grein fyrir því að lottóvinningur sem hún taldi fyrst hljóða upp á 2.000 krónur reyndist vera heilar 2 milljónir króna. 22.6.2011 12:05
Reiknað með fundarhöldum í allan dag Samninganefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair komu saman til fundar hjá Ríkissáttasemjara klukkan hálf tíu í morgun. Ótímabundið yfirvinnubann flugmanna Icelandair hefst á föstudagsmorgun hafi ekki samist. Flugmenn krefjast meiri launahækkana en gert er ráð fyrir í almennum kjarasamningum og minni vinnuskyldu. 22.6.2011 12:00
Einn dómara hugsanlega vanhæfur vegna ummæla um Ísland Nýr dómari við EFTA-dómstólinn er hugsanlega vanhæfur til þess að fjalla um Icesave-málið komi það til kasta dómsins vegna ummæla hans um málið í fjölmiðlum. 22.6.2011 12:00
Mikill meirihluti andvígur því að Geir verði sóttur til saka Mikill meirihluti landsmanna er andvígur því að höfða mál gegn Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra fyrir Landsdómi. Afstaða fólks er þó ólík eftir því hvaða stjórnmálaflokk það styður. 22.6.2011 11:46
Öryggi sjúklinga á Akureyri kann að vera ógnað Læknaskortur á Sjúkrahúsinu á Akureyri hefur þær afleiðingar að öryggi sjúklinga kann að vera ógnað. Mikilvægt er að landlæknisembættið geri útttekt á öryggi sjúklinga á sjúkrahúsinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar þar sem fjallað er um skipulag, stefnu og stjórnun Sjúkrahússins á Akureyri. Fram kemur að samkvæmt viðhorfskönnun sem Ríkisendurskoðun gerði meðal starfsmanna sjúkrahússins ríkir óánægja með ýmsa þætti í skipulagi og stjórnun þess, m.a. með starfshætti framkvæmdastjórnar en í henni sitja fjórir æðstu stjórnendur stofnunarinnar. Tekið skal fram að auk könnunarinnar byggði úttekt Ríkisendurskoðunar m.a. á viðtölum við fyrrverandi og núverandi starfsmenn og greiningu margvíslegra gagna. Ríkisendurskoðun leggur til að skipulag Sjúkrahússins á Akureyri verði einfaldað og framkvæmdastjórn þess styrkt. Einnig þurfi að móta nýja stefnu fyrir sjúkrahúsið og ákveða framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi. Starfsemi sjúkrahússins fer nú fram í 38 einingum og eru millistjórnendur um 50 en starfsmenn samtals um 600. Að mati Ríkisendurskoðunar er mikilvægt að fækka starfseiningum með því að sameina þær. Stofna ætti nokkur kjarnasvið og setja framkvæmdastjóra yfir hvert þeirra sem sæti jafnframt í framkvæmdastjórn sjúkarhússins. Með þessu móti telur Ríkisendurskoðun að unnt sé að styrkja framkvæmdastjórnina. Einnig sé mikilvægt að hún verði sýnilegri starfsmönnum en verið hefur og bregðist hratt við ábendingum og erindum frá þeim. Ríkisendurskoðun telur að móta þurfi nýja stefnu og framtíðarsýn fyrir sjúkrahúsið með aðgerðaáætlun og árangursmælikvörðum. Þá sé brýnt að velferðarráðneytið ákveði framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi, meðal annars með verkaskiptingu milli heilbrigðisstofnana á svæðinu. Í skýrslunni kemur fram að þegar sé hafin vinna innan sjúkrahússins við að móta nýja stefnu. 22.6.2011 11:30
Hárið sett upp í Hörpunni Söngleikurinn Hárið, sem sló í gegn á Akureyri um páskana, verður settur upp í Hörpunni í júlí og verður þar með fyrsta leiksýningin sem sett er upp í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu. 22.6.2011 11:16
Þjóðin spurð um Þingvelli Almenningi gefst til 22. ágúst kostur á að senda hugmyndir sínar um þróun þjóðgarðsins á Þingvöllum til Þingvallanefndar. Veitt verða fimm 200 þúsund króna verðlaun. 22.6.2011 11:00
Olíumengun við Garðskaga Umhverfisstofnun barst í gær tilkynning um olíumengun á ströndinni við Garðskaga. Fulltrúi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja kannaði svæðið bæði í gær og í dag og var það niðurstaða hans og Umhverfisstofnunar að mengunin sé ekki þess eðlis að ástæða sé til að fara í hreinsunaraðgerðir, um er að ræða lítið magn af olíu, svæðið muni jafna sig á einhverjum dögum og ekki verða skaði af. Hætta er á raski og skemmdum sem verður við hreinsunaraðgerðir og því betra að olían skolist burt með flóðum ef mögulegt er. Heilbrigðisfulltrúi Suðurnesja mun fara og skoða aðstæður aftur eftir hádegið en þá mun annað flóð hafa gengið yfir. 22.6.2011 10:44
Íslendingar halda sig nálægt heimahögum Íslendingar sækjast helst eftir sumarhúsum nálægt heimili sínu á meðan Svíar, Norðmenn og Danir setja það í fyrsta sæti að hafa sumarhúsin sín við sjóinn. Þetta kemur fram í nýrri samnorrænni könnun meðal fasteignarsala, en 89% þeirra sem svöruðu könnuninni á Íslandi nefndu fjarlægð frá heimili þegar þeir voru inntir um þau sjónarmið sem helst hafi áhrif á eftirspurn eftir sumarhúsum. 22.6.2011 10:30
Áfram barist í Belfast Eldsprengjum hefur rignt og flöskum og múrsteinum hefur verið kastað í Belfast á Norður Írlandi í alla nótt, aðra nóttina í röð. Óeirðir hafa geisað í austurhluta borgarinnar og segja fréttaskýrendur að átökin hafi ekki verið eins mikil í borginni í áraraðir. 22.6.2011 09:58
Ban Ki-moon endurkjörinn framkvæmdastjóri Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna var í gærkvöldi endurkjörinn í embættið til fimm ára. Þetta var ákveðið á aðalþingi stofnunarinnar en áður hafði Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkt endurkjörið. Enginn hafði boðið sig fram á móti honum og nýtur hann almenns stuðnings. 22.6.2011 09:54