Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
SA ítreka samningsvilja Stjórn Samtaka atvinnulífsins ákvað á fundi nú í hádeginu að láta enn á ný reyna á vilja Alþýðusambands Íslands og landssambanda þess til að ljúka gerð þriggja ára kjarasamnings á svipuðum forsendum og áður. SA munu því hitta viðsemjendur sína á fundi í dag kl. 15 hjá ríkissáttasemjara til að freista þess að ljúka gerð nýs kjarasamnings á almennum vinnumarkaði. Framkvæmdastjórn SA lýsti því yfir á föstudag að samtökin telji mikilvægt að skapa fyrirtækjum landsins starfsöryggi og frið. Undanfarna mánuði hafa Samtök atvinnulífsins og ASÍ og landssamböndin unnið að gerð þriggja ára kjarasamnings sem byggir á atvinnuleiðinni. Með henni er sköpuð ákveðin framtíðarsýn þar sem áherslan er lögð á hagvöxt, öruggt og tryggt starfsumhverfi fyrir allar atvinnugreinar, aukningu kaupmáttar og að draga úr atvinnuleysi. Til þess að ná þessu fram var aðkoma ríkisstjórnarinnar nauðsynleg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SA. Þegar viðræðum um kjarasamning var slegið á frest fyrir páska lá fyrir grunnur að kjarasamningi aðila en út af stóðu nokkur mál sem ræða þurfti nánar við ríkisstjórnina. Á fimmtudagskvöld í síðustu viku bárust ný drög að yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana. Að mati SA var þar komið að nokkru til móts við sjónarmið samtakanna um auknar framkvæmdir í hagkerfinu auk þess sem sett var fram ákveðin bókun um meðferð frumvarps um sjávarútvegsmál. Ljóst er að ríkisstjórnin er óbundin af yfirlýsingunni náist ekki kjarasamningar til þriggja ára. 3.5.2011 14:17
Strætó reynsluekur tvinnvagni næsta mánuðinn Strætó bs. mun næsta mánuðinn prófa tvinnvagn í fyrsta sinn við íslenskar aðstæður. Tilgangurinn með tilraunaakstrinum er að meta hvort slíkir vagnar séu raunhæfur valkostur fyrir Strætó bs., sem stendur frammi fyrir töluverðri endurnýjunarþörf vagnakosts og leitar jafnframt leiða til að gera vagnaflotann umhverfisvænni og hagkvæmari í rekstri. Á næstu árum þarf Strætó að endurnýja 7-8 vagna árlega. Strætó bs. stefnir að því að rekstur strætisvagnakerfisins verði umhverfisvænni og leitar leiða til að nýta aðra orkugjafa en jarðefnaeldsneyti. Um leið skiptir miklu að vagnarnir séu hagkvæmir í innkaupum og rekstri. Valkostum í visthæfum orkugjöfum hefur fjölgað síðustu ár og má til að mynda nefna vetni, metangas og rafmagn í því sambandi auk þess sem tvinntækni hefur í sumum tilvikum reynst vel til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Í tilkynningu frá Strætó bs. segir að hver þessara valkosta hefur kosti og galla í för með sér og mikilvægt er að gera ítarlegar prófanir á þeim við íslenskar aðstæður áður en tekin er ákvörðun um vagnakaup. Með prófun Strætó á tvinnvagninum er metið hversu vel hann geti hentað á íslenskum strætóleiðum og er sérstaklega fylgst með eldsneytisnotkun auk þess sem fleiri þættir eru metnir. Tvinnvagninn er af gerðinni Volvo 7700 Hybrid og fær Strætó bs. hann að láni frá Volvo í samvinnu við Brimborg. Vagninn gengur bæði fyrir raforku og dieselolíu og segja framleiðendur að með honum megi draga úr eldsneytisnotkun um allt að 30%, auk þess sem útblástur sé um 40-50% minni frá slíkum vagni en hefðbundnum diesel-vögnum. Þar sem vagninn vinnur rafmagn úr bremsum og nýtir það bæði til að taka af stað og við hægan akstur þykir hann henta best á strætóleiðum þar sem hægt er ekið og oft þarf að stöðva. „Það er spennandi að fá tækifæri til að prófa tvinntæknina hér á landi og verður áhugavert að sjá hvernig vagninn stendur sig í samanburði við aðra kosti. Það er hröð þróun í framleiðslu visthæfra vagna um þessar mundir og ljóst að í framtíðinni verðum við minna háð jarðefnaeldsneyti en verið hefur. Við hjá Strætó bs. fylgjumst að sjálfsögðu mjög vel með þessari þróun og leitum að þeirri samsetningu strætisvagnaflotans sem er í senn eins umhverfisvæn og hagkvæm í rekstri og kostur er," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó 3.5.2011 13:34
Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk við Sellafield kjarnorkuverið Breska lögreglan handtók í gær fimm menn sem grunaðir eru um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverkaárás á Sellafield kjarnorkuverið á Englandi. Þeim er haldið á grundvelli hryðjuverkalaganna bresku en lögreglan handtók þá þar sem þeir voru að taka myndir af verinu. Sky fréttastofan segir að um breska ríkisborgara af asískum uppruna sé að ræða. 3.5.2011 12:19
Verkföll blasi við bjóði SA ekki betur Formaður Starfsgreinasambandsins segir að ákveða verði tímasetningu verkfalls trax á morgun eða í síðasta lagi á fimmtudag. Ef Samtök atvinnulífsins hafi ekkert nýtt fram að bjóða á fundi hjá ríkissáttasemjara í dag, blasi verkfallsleiðin við. 3.5.2011 12:06
Pabbamorgnar á fjölskyldukaffihúsi Fjölskyldukaffihúsið Fjallkonubakarí fer af stað með pabbamorgna í fyrramálið, miðvikudaginn 4. maí. Feður eru þá boðnir sérstaklega velkomnir með börnin sín, föndurkörfur verða á borðum og geta feður þá átt gæðastund með sínu barni og komist í kynni við aðra feður. Lára Guðrún Jóhönnudóttir, eigandi Fjallkonubakarís, segist hafa fengið góð viðbrögð við pabbamorgnunum. Ætlunin er að þeir verði alla miðvikudagsmorgna. Lára Guðrún segir að vissulega komi bæði mæður og feður á kaffihúsið með börnin sín. Hún bendir þó á að kaffihúsið Hljómalind, sem var þarna áður til húsa, hafi verið með sérstaka pabbamorgna sem nutu mikilla vinsælda, og því hafi blasað við að koma þeim aftur í gagnið. Fjallkonubakaríið var opnað á Laugavegi 23 í Reykjavík, skömmu fyrir síðustu jól, og var það yfirlýst stefna frá upphafi að fjölskyldufólk gæti þar komið saman. Boðið er upp á hefðbundnar kaffihúsaveitingar, auk þess sem hægt er að fá grænmetismauk fyrir þau allra yngstu. Inn af kaffihúsinu er síðan leiksvæði þar sem börnin geta leikið sér á meðan foreldrarnir spjalla. Fjallkonubakaríið er með Facebook-síðu sem má sjá hér. http://www.facebook.com/fjallkonubakari 3.5.2011 11:50
Liggja yfir tölvu Bin Ladens Her sérfræðinga í Afganistan liggur nú yfir tölvu Osama Bin Ladens sem bandarísku hermennirnir tóku með sér eftir að hafa ráðið hann af dögum. Bæði er verið að skoða harða diskinn en einnig býsnin öll af geisladiskum sem fundust á staðnum. 3.5.2011 11:28
Ofboðslega ríkir Norðmenn -eða þannig Um 200 Norðmenn eru nú hundrað þúsund milljörðum dollara ríkari eftir gjaldeyrisviðskipi. Vá. Gallinn er sá að um er að ræða Zimbabwe dollara sem Norðmennirnir fengu keypta fyrir 30 norskar krónur. Það gerir um 636 íslenskar krónur. 3.5.2011 11:16
Forseti Slóveníu í opinberri heimsókn Opinber heimsókn forseta Slóveníu hingað til lands hefst í dag á Bessastöðum. Forsetinn, Dr. Danilo Türk og eiginkona hans, frú Barbara Miklič Türk hitta þar Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands. Með í för eru þrír ráðherrar í ríkisstjórn Slóveníu auk embættismanna. 3.5.2011 10:41
Barnaskóli í Bergen rýmdur eftir hótun Mikið lið lögreglu er nú við Gimle barnaskólann í Bergen í Noregi en norska blaðinu Verdens Gang barst hótun um að árás yrði gerð í skólanum í dag. Blaðið hafði strax samband við lögreglu og hafa nemendur verið fluttir úr skólanum og eru undir eftirliti lögreglu. Samkvæmt hótunarbréfinu átti blóðbað að eiga sér stað í skólanum og var sérstaklega tekið fram að múslimar yrðu skotmörk. 3.5.2011 10:02
Fylgdust með árásinni á Bin Laden í beinni útsendingu Barack Obama og helstu ráðgjafar hans fylgdust með árásinni á virki Osama Bin Ladens í beinni útsendingu í stríðsherbergi Hvíta hússins. Kvikmyndatökuvélar voru bæði í þyrlunum og eins á hjálmum einhverra hermannanna. Forsetinn gat því fylgst með því sem gerðist bæði utan dyra og innan. 3.5.2011 09:40
Meira brottfall hjá körlum Karlar hætta frekar í námi á framhaldsskólastigi en konur. Haustið 2002 voru 3.982 nýnemar í dagskóla á framhaldsskólastigi á Íslandi. Fjórum árum eftir innritun höfðu 51% kvenna og 38% karla verið brautskráð. Bilið á milli karla og kvenna hélst svo til óbreytt þegar hópurinn var skoðaður sex og sjö árum frá upphafi náms. Karlar voru fleiri í hópi brottfallinna fjórum árum frá upphafi náms, 35% á móti 23% kvenna. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þá er þar brautskráning nema í heild sinni skoðuð hjá þessum sama hópi sem hóf nám 2002. Fjórum árum síðar höfðu 45% nýnemanna verið brautskráðir úr námi á framhaldsskólastigi sem var að minnsta kosti tvö ár að lengd. Um 29% nýnemanna höfðu þá hætt námi eða tekið sér tímabundið hlé án þess að vera brautskráðir en 26% voru enn í námi án þess að hafa brautskráðst. Þette kemur fram á vef Hagstofunnar. Árið 2008, sex árum frá upphafi náms, höfðu 58% nýnemanna verið brautskráðir, 29% nýnemanna höfðu hætt námi eða tekið hlé frá námi án þess að vera brautskráðir en 13% voru enn í námi. Árið 2009, sjö árum eftir upphaf náms, hafði hlutfall brautskráðra hækkað í 61% en 28% voru brottfallnir. Það er athyglisvert að stærð þess hóps sem hér er skilgreindur sem brottfallinn úr námi minnkaði aðeins um eitt prósentustig þótt svigrúm til að ljúka námi hafi aukist úr fjórum árum í sjö. Hlutfall þeirra sem voru brautskráðir óx úr 45% í 61% og hlutfall þeirra sem voru enn í námi minnkaði að sama skapi. Um 43% nemenda í bóknámi höfðu verið brautskráðir fjórum árum eftir upphaf náms en 49% nemenda í starfsnámi. Hærra hlutfall brautskráðra í starfsnámi skýrist m.a. af því að í starfsnámi er hægt að ljúka námi eftir tvö eða þrjú ár en fjögur ár þarf til að ljúka flestum bóknámsbrautum. Þannig hafði fjöldi nemenda lokið tveggja ára verslunar- og viðskiptabrautum sem teljast til starfsnámsbrauta. Sjö árum frá upphafi náms höfðu 61% nemenda í bóknámi verið brautskráðir og sömuleiðis 61% nemenda í starfsnámi. Algengt er að nemendur skipti um námsleið í framhaldsskólum. Þannig höfðu 29% nemenda sem innrituðust í starfsnám haustið 2002 lokið bóknámi fjórum árum síðar. Þá höfðu tæp 7% allra nýnema bæði verið brautskráðir úr starfsnámi og bóknámi fjórum árum frá upphafi náms. 3.5.2011 09:32
Vilhjálmur prins á að mæta í vinnu sína í dag Breski flugherinn gerir ráð fyrir því að Wilhjálmur prins snúi aftur til vinnu sinnar í dag. 3.5.2011 08:04
Brown varar Skota við íslenskum örlögum Gordon Brown fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, varar Skota við því að það geti farið fyrir þeim eins og Íslendingum og Írum í bankahruninu, kjósi þeir yfir sig stjórn Skoska þjóðernisflokksins í komandi kosningum til skoska þingsins. 3.5.2011 07:56
Ísland framarlega hvað varðar aðstæður mæðra og barna Mæður og börn hafa það best í Noregi samkvæmt nýrri könnun alþjóðasamtakanna Save the Children, eða Barnaheilla. Mæður og börn búa við næst bestar aðstæður í Ástralíu og þar næst á Íslandi samkvæmt könnuninni, sem gerð er árlega og birt daginn fyrir alþjóðlegan mæðradag sem er á morgun. 3.5.2011 07:54
Mikil leit að sex skátum í Arkansas Mikil leit stendur nú yfir af hópi sex skáta sem saknað er eftir helgarferð í skóglendi í Arkansas. Skátarnir, sem eru 14 ára gamlir, koma frá Lafayette í Louisiana. 3.5.2011 07:46
Segir Pakistana ekki hafa tekið þátt í að drepa Osama Asif Ali Zardari forseti Pakistan hafnar því að drápið á Osama bin Laden sé merki um að Pakistönum hafi mistekist að takast á við hryjuverkavandamálið í landinu. 3.5.2011 07:41
Öryggisráðið einhuga í fögnuði yfir drápi Osama bin Laden Allir 15 meðlimir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir lýsa yfir ánægju sinni með því að tekist hefur að bana Osama bin Laden leiðtoga al-Kaída. 3.5.2011 07:37
Íhaldsflokkurinn náði hreinum meirihluta í Kanada Fyrstu tölur úr þingkosningunum í Kanada sýna að Íhaldsflokkurinn hefur náð hreinum meirihluta. 3.5.2011 07:35
Landhelgisgæslan hóf leit að strandveiðibáti Landhelgisgæslan boðaði út um klukkan hálf fimm í nótt björgunarskip og björgunarbáta Slysavarnafélagsins á Austfjörðum, nærstadda báta og þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna strandveiðibáts sem hvarf úr ferilvöktun við Barðsneshorn og ekki náðist talstöðvarsamband við. 3.5.2011 07:05
Vöxturinn mestur í sölu á tölvuleikjum iMesti vöxtur útflutningstekna í skapandi greinum hér á landi hefur verið í útgáfu tölvuleikja. Heildarverðmæti hefur sexfaldast á árunum 2005 til 2009, úr 1,9 milljörðum króna í 13,2 milljarða. Nær öll velta í útgáfu á tölvuleikjum hér á landi telst til útflutnings. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um hagræn áhrif skapandi greina á Íslandi. Að 3.5.2011 07:00
Áttu engan annan kost en neyðarlögin Íslensk stjórnvöld höfðu ekki annan kost til að verja innstæðueigendur í bankahruninu en að setja neyðarlögin. Með því var ekki brotið gegn tilskipun Evrópska efnahagssvæðisins (EFTA) um að innleiða og framfylgja tilskipun um innstæðutryggingar, að því er segir í formlegu svari stjórnvalda til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA. 3.5.2011 06:00
Nemar í Ásbrú fá skólagarða Íbúum Ásbrúar á Keflavíkurflugvelli gefst nú kostur á að setja niður kartöflur og aðrar matjurtir í matjurtagörðum á Ásbrú, að því er segir í orðsendingu frá Hjálmari Árnasyni, framkvæmdastjóra Keilis. 3.5.2011 06:00
Boða sátt um veiðar Hverju eru stjórnvöld tilbúin til að lofa aðilum vinnumarkaðarins takist þeim að semja til þriggja ára? 3.5.2011 05:00
Útskriftarnemar borðuðu ís utandyra "Það er aldrei að vita en eins og veðrið hefur verið er þó engu að treysta,“ sagði grafíski hönnuðurinn Bjarki Fannar Atlason aðspurður í gær hvort sumarið sé nú loks komið. Bjarki brá sér undir bert loft ásamt samnemanda sínum, Guðbjörgu Tómasdóttur, af útskriftarsýningu Listaháskólans í Hafnarhúsinu til að gæða sér á ís og fylgjast með mannlífinu á Ingólfstorgi. 3.5.2011 05:00
Mannfjöldinn krafðist hefndar Meira en tvö þúsund Líbíumenn komu saman í Trípolí í gær við útför næstyngsta sonar Múammars Gaddafís og þriggja barna hans í gær. Mikil reiði var í mannfjöldanum, sem krafðist hefndar. 3.5.2011 04:00
Kaliforníutilraun með lýðræðið Íbúar í Kaliforníu eru afar duglegir við að efna til þjóðaratkvæðagreiðslna. Guðsteinn Bjarnason kynnti sér umfjöllun tímaritsins The Economist, sem fyrir fimmtán árum fór í herferð í þágu beins lýðræðis en telur nú að tilraunin í Kaliforníu hafi misheppn 2.5.2011 23:00
Rétt viðbrögð að fella björninn Mörður Árnason, formaður umhverfisnefndar Alþingis, telur að brugðist hafi verið við af mikilli fagmennsku þegar hvítabjörninn var felldur á Hornströndum í dag. Hann telur að ekki hafi verið unnt að fanga dýrið lifandi. 2.5.2011 21:41
Eiríkur og Þorgeir hæfastir í Hæstarétt Eiríkur Tómasson og Þorgeir Örlygsson eru hæfastir umsækjenda til að hljóta embætti hæstaréttardómara sem auglýst voru laus til umsóknar 18. febrúar 2011. Þetta er niðurstaða dómnefndar sem mat hæfni umsækjendanna. Nefndin gerði ekki greinamun á hæfni þeirra tveggja. 2.5.2011 20:20
Bin Laden notaði eiginkonuna sem skjöld Osama Bin Laden notaði lifandi eiginkonu sína sem skjöld áður en hann var skotinn í gær. Þetta segir John Brennan, yfirmaður gagnhryðjuverkamála í Hvíta húsinu. 2.5.2011 19:25
Sendiherra segir fall Bin Laden mikilvægan áfanga Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi segir að fall Osama Bin Laden sé mikilvægur áfangi í stríðinu gegn hryðjuverkum en marki ekki endalok þess. Luis Arreaga sendiherra Bandaríkjanna hér á landi fagnar því að Bin Laden hafi náðst enda hafi hann verið svarinn óvinur bandaríkjanna með líf þúsunda manna á samviskunni. 2.5.2011 18:51
Óæskilegt að olíulind fái nafn sem tengist Íslandi Norska málnefndin hefur mælst til þess að Statoil hætti að nota heitið Katla um nýja olíulind. Nefndinni þykir óæskilegt að nota nafn sem tengist Íslandi. 2.5.2011 18:51
Jón Gnarr segir ísbjarnardrápið vera sorglegt Jón Gnarr borgarstjóri segir ísbjarnardrápið á Hornströndum í dag vera sorglegt. Eins og fram hefur komið var björninn sem sást við Hælavík felldur um miðjan dag í dag. Um var að ræða ungt dýr. 2.5.2011 18:00
Björninn á leið til Reykjavíkur Þyrla Landhelgisgæslunnar flytur nú hvítabjörninn sem var felldur í Rekavík fyrr í dag til Reykjavíkur. Hræið verður fært Náttúrufræðistofnun Íslands. Eins og sést á meðfylgjandi mynd sem fréttaritari Stöðvar 2 á Vestfjörðum tók er húnninn smár að vexti. 2.5.2011 17:29
Varað við svifryksmengun í höfuðborginni Styrkur svifryks í Reykjavík verður sennilega yfir heilsuverndarmörkum í dag. Mystrið sem verið hefur yfir borginni er að mestu ryk sem berst sennilega af Landeyjarsandi. Í tilkynningu frá borginni segir að líklegast verði mengunin áfram yfir heilsuverndarmörkum í kvöld. Þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri ættu að taka tillit til aðstæðna og fylgjast með loftgæðum á vefmæli borgarinnar á rvk.is, sem sýnir svifryksmengun við Grensásveg. 2.5.2011 16:54
Krefjast þess að málið verði látið niður falla Ísland hafnar því að brot gegn innistæðutryggingatilskipun Evrópusambandsins hafi átt sér stað og krefst þess að mál Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA verði látið niður falla. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í bréfi Íslands til stofnunarinnar þar sem málstaður Íslands í Icesave málinu er settur fram. en sendiherra Íslands í Brussel afhenti bréf efnahags- og viðskiptaráðuneytisins þess efnis á skrifstofu stofnunarinnar í dag. 2.5.2011 16:23
Björninn skotinn í Rekavík - fluttur til Reykjavíkur Nú hafa fregnir af drápi hvítabjarnarins sem sást á Hornströndum í morgun verið staðfestar en Vísir sagði frá því að dýrið hefði verið fellt fyrr í dag. Í tilkynningu á heimasíðu Umhverfisstofnunar segir að unnið hafi verið á birninum í Rekavík. Mikil yfirferð var á dýrinu og þoka á svæðinu. Lögreglan á Ísafirði var með í för og voru aðstæður metnar á þann veg að ómögulegt væri að vakta dýrið allan sólarhringinn og tryggja að það færi ekki í sjó eða flytti sig um set í átt að byggð. "Því var tekin ákvörðun um að fella dýrið af öryggisástæðum,“ segir í fréttinni, en dýrið var skotið klukkan 21 mínútu yfir tvö. 2.5.2011 16:05
Guðlaugur stefnir Birni Val: Óvíst með bótakröfu Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að stefna Birni Val Gíslasyni, þingmanni Vinstri Grænna, fyrir meiðyrði. Guðlaugur Þór gaf Birni Val fimm daga frest til að draga ummælin til baka, en sá frestur rann út í gær án þess að Björn Valur fjarlægði þau eða bæðist á þeim afsökunar. 2.5.2011 15:22
Björninn felldur í Hornvík Ísbjörninn sem sást við Hælavík á Hornströndum í morgun hefur verið felldur. Það voru lögreglumenn sem skutu dýrið en það var þá komið yfir í Hornvík. 2.5.2011 15:11
Hópakstur Snigla fer fram í kvöld Vélhjólaklúbburinn Sniglar ætlar að fara í hópferð sína í kvöld klukkan átta. Samkvæmt venju er farið í slíka hópferð 1. maí á hverju ári en sökum snjóalaga þurfti að fresta viðburðinum í gær. Sniglar ætla að safnast saman á Laugavegi og aka hring um Vesturbæinn áður en hópurinn kemur saman á Kirkjusandi. 2.5.2011 14:43
Iðnaðarráðherra á Íslendingaslóðum í Kanada Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra var heiðursgestur á ársfundi sambands Íslendingafélaga í Norður Ameríku sem haldinn var um helgina í Edmonton í Kanada. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að um 250 manns af íslensku bergi brotnir hafi sótt fundinn en um 200 þúsun Kanadamenn eiga ættir sínar að rekja til Íslands og 100.000 Bandaríkjamenn. 2.5.2011 14:28
Fundu 300 grömm af maríjúana í Breiðholti Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í Breiðholti fyrir helgina en þeir voru gripnir við sölu á fíkniefnum. Lögreglan hafði fylgst með ferðum þeirra en kaupandinn, karl á fertugsaldri, var sömuleiðis handtekinn. Í bíl fíkniefnasalanna fundust rúmlega 30 grömm af marijúana og var það ætlað til sölu. Mennirnir voru færðir á lögreglustöð en í framhaldinu var farið í húsleit hjá karl á þrítugsaldri, búsettum í Breiðholti, en sá hefur alloft áður komið við sögu hjá lögreglu, meðal annars vegna fíkniefnamála. Þar fannst ennþá meira af marijúana, eða yfir 300 grömm, og einnig hass og nokkuð af amfetamíntöflum. Á sama stað var einnig lagt hald á mikið af þýfi, en meðal annars var um að ræða hljóðfæri, hljómflutningstæki, tölvur og tölvubúnað en ljóst er að þetta eru umtalsverð verðmæti 2.5.2011 14:13
Lokað í Bláfjöllum fram á haust Bláfjöllum hefur nú verið lokað þannan veturinn. Í tilkynningu á heimasíðu skíðasvæðisins er skíða- og brettafólki þakkað fyrir ágætan vetur þrátt fyrir að veðrið hafi nokkuð spillt fyrir, sérstaklega í mars og apríl. "Þó nægur snjór hefði verið þá var veðurfarið okkur óhagstætt og sem dæmi þá náðist ekki að opna nema eina heila helgi eftir áramót.“ 2.5.2011 14:08
Munu reyna að hefna fyrir dauða Osama Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunanr CIA segir að hryðjuverkasamtökin Al Kaída muni án vafa reyna að hefna fyrir drápið á leiðtoga sínum Osama bin Laden. Leon Panetta segir að þrátt fyrir að Osama sé allur, sé ekki hægt að segja það sama um samtökin sem hann stýrði. 2.5.2011 13:54
Felustaður Bin Laden brennur Kveikt var í felustað Osama Bin Laden í morgun eftir að fréttir bárust af því að hann hefði verið myrtur af bandarískum sérsveitarmönnum. Sjónvarpsstöðvar í Pakistan hafa sýnt myndir af logandi húsinu en eftir því sem næst verður komist voru það heimamenn sem kveiktu í því. Osama hafði falið sit í bænum Abbottabad, sem er í um 100 kílómetra norðan við höfuðborg Pakistans, Islamabad. Húsið var girt af með ríflega fimm metra háum vegg, og gaddavír. 2.5.2011 12:21
ESA fær svar vegna Icesave sent í dag - blaðamannafundur síðdegis Efnahags- og viðskiptaráðherra segir að rökstuðningur íslenskra stjórnvalda í svari til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave sé það öflugur að hann ætti að duga stofnuninni til að ljúka málinu. Svarið verður sent ESA í dag. Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra segir menn hafa lagt sig fram um halda fram öllum rökum Íslands í málinu. En ESA sendi íslenskum stjórnvöldum áminningarbréf í fyrra þar sem stofnunin heldur því fram að Íslendingum beri að tryggja greiðslur á 21 þúsund evrum samkvæmt innstæðutrygginga reglum á hverjum Icesave reikningi í Bretlandi og Hollandi. Fjöldi fólks hafi sökt sér ofan í þetta mál á undanförnum árum og búi yfir mikilli þekkingu á því sem mikilvægt hafi verið að nýta. Svarið sem sent verður til ESA í dag er upp á 34 síður og verður kynnt á fréttamannafundi klukkan fjögur. Árni telur að rökstuðningur Íslands sé traustur og málið ætti ekki að þurfa að fara fyrir EFTA dómstólinn eins og það mun gera fallist ESA ekki á rök Íslendinga. 2.5.2011 12:17