Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Telja lögreglu brjóta gegn ákvæðum stjórnarskrár Málsmetandi lögmenn telja að lögreglan hafi brotið gegn ákvæðum stjórnarskrár um friðhelgi heimilisins, þegar hún tók myndatökumann Morgunblaðsins með í húsleit á dögunum. 29.4.2011 11:59
Skýrist á mánudag hvenær Landeyjahöfn opnar Enn liggur ekki ljóst fyrir hvenær Landeyjahöfn verður opnuð. Á mánudag mun þó vonandi skýrast hvenær það verður. Vonast hafði verið til að hægt yrði að opna höfnina þann 1. maí en það gengur ekki upp. Samkvæmt upplýsingum frá Siglingastofnun verður dýpkunarskipið Skandia við störf við Landeyjahöfn í dag og jafnvel fram í miðja næstu viku. Í ljósi þessa mun Herjólfur sigla til og frá Þorlákshöfn þangað til annað verður gefið út. 29.4.2011 11:49
Óku til hallarinnar í opnum hestvagni Um tveir milljarðar manna um allan heim fylgdust með þegar Vilhjálmur prins og Katrín prinsessa voru gefin saman í Westminster Abbey í dag. Fyrir utan að vera orðin prinsessa sæmdi drottningin Katrínu titlinum Hertogaynjan af Cambridge. Og fyrir þá sem tóku þátt í að veðja um litinn á hatti Elísabetar drottningar má geta þess að hann var gulur, eins og raunar flestir höfðu veðjað á. Sömuleiðis var hún í gulri dragt. Eins og nærri má geta var athöfnin afskaplega formleg og virðuleg en brúðhjónin skiptust þó á mörgum brosum. Að henni lokinni óku brúðhjónin í opnum hestvagni frá Westminster Abbey til Buckingham hallar. Á leiðinni voru þau hyllt af að minnstakosti einni milljón Breta og ferðamanna sem vörðuðu veginn. Og nú verður hátt í höllinni því þar verða veislur og móttökur langt fram á kvöld. Þegar veisluhöldum lýkur munu drottningin og Filipus hertogi yfirgefa Buckinghamhöll á eftirláta hana brúðhjónunum á brúðkaupsnóttina. Brúðarkjóll Katrínar prinsessu og blómvöndur hennar var nánast eins ólíkur skrúða Díönu prinsessu og hugsast getur. Kjóllinn var fílabeinshvítur, skreyttur blúndum og virtist léttur. Slóðinn var stuttur. Brúðarvöndurinn var hvítur og grænn og mjög nettur. Hún var ekki með hálsfesti en hinsvegar demantseyrnalokka. Katrín bar litla kórónu sem drottningin lánaði henni, en kórónan er frá árinu 1936 og hefur verið kölluð "geislabaugurinn" frá Cartier. Vilhjálmur prins var í einkennisbúningi. 29.4.2011 11:27
Úthlutar styrkjum til atvinnumála kvenna Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra úthlutar í dag styrkjum til atvinnumála kvenna. Alls fá 42 konur styrki að þessu sinni til fjölbreyttra verkefna en til úthlutunar eru 30 milljónir króna. Styrkirnir eru ætlaðir konum sem vinna að góðum viðskiptahugmyndum og verkefnum sem fela í sér nýnæmi eða nýsköpun. Árið 1991 var í fyrsta sinn úthlutað sérstökum styrkjum til atvinnumála kvenna að frumkvæði Jóhönnu Sigurðardóttur þáverandi félagsmálaráðherra. 29.4.2011 11:15
Tölvum og flatskjám stolið úr Búðinni í nótt Brotist var inn í húsakynni vefverslunarinnar Búðarinnar í nótt og þaðan meðal annars stolið tölvum, flatskjám og myndavélum. Ránið hefur verið verið kært til lögreglu en enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. Líklegt er talið að reynt verði að selja þýfið á svörtum markaði en vakin er athygli á því að lögregla hefur heimild til að gera þýfi upptækt hjá kaupendum þess, og skiptir þá engu hvort fólk segist ekki hafa vitað af því að um þýfi var að ræða við kaupin. Meðal þess sem var stolið í Búðinni eru 14 tommu Asus fartölvur, 32 tommu Sony flatskjár, Olymps og Canon Ixus myndavélar, flakkarar og minnislyklar. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ránið eru hvattir til að hafa samband við lögreglu. 29.4.2011 11:08
SA: Vilja semja til þriggja ára Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins ætlar að leita eftir því við samningsaðila að ljúka gerð kjarasamnings. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem samtökin héldu nú rétt fyrir ellefu. 29.4.2011 11:05
SA boðar til blaðamannafundar Framkvæmdastjórn Samtaka Atvinnulífsins hafa boðað til blaðamannafundar í Borgartúni klukkan kortér fyrir ellefu í dag. Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sagði í samtali við fréttastofu í morgun að í útspili ríkisstjórnarinnar til samtakanna í gærkvöldi, hafi vissulega verið komið til móts við kröfur þeirra. 29.4.2011 10:14
Katrín í hvítum kjól frá hönnuði Alexander McQueen Brúðarkjóll Katrínar Middleton er fílabeinshvítur og blúndum skreyttur. Brúðurin var sérlega glæsileg þegar hún gekk inn kirkjugólfið í kjól sem hönnuður Alexander McQueen hannaði, Sarah Burton. Sögusagnir höfðu verið uppi fyrir brúðkaupið um að Burton hannaði kjólinn en hún vísaði öllu slíku á bug enda mátti ekkert láta uppi um kjólinn fyrr en í athöfninni sjálfri. 29.4.2011 10:07
Prinsessur og prinsar í leikskólanum Arnarsmára Litlir prinsar og prinsessur mættu prúðbúin á leikskólann Arnarsmára í Kópavoginum í morgun. Starfsfólk leikskólans tók á móti þeim á konunglegan máta, og voru konurnar með glæsilega hatta að sið breskra hefðarfrúa. 29.4.2011 10:02
Auðveld skotmörk í opnum hestvagni Það verður líklega um korter yfir ellefu að íslenskum tíma sem taugar öryggissveita í Lundúnum þenjast til hins ítrasta. Þá lýkur kirkjuathöfninni í brúðkaupi þeirra Vilhjálms og Kate og við tekur ferð í opnum hestvagni frá Westminster Abbey til Buckingham hallar. 29.4.2011 10:00
Tíu prósent leikskólabarna með erlent móðurmál Tæp tíu prósent leikskólabarna hafa annað tungumál en íslensku að móðurmáli, og hafa aldrei verið fleiri. Í desember 2010 voru 1.815 börn með erlent tungumál að móðurmáli, eða 9,6% leikskólabarna.. Þessum börnum fjölgaði um 201, eða12,5%, frá desember 2009. Af þeim hafa 520 börn pólsku sem móðurmál og er það algengasta erlenda tungumálið eins og undanfarin ár. Pólskumælandi leikskólabörnum fjölgar um 97 frá fyrra ári. Þá fjölgar leikskólabörnum sem hafa lithásku að móðurmáli um 25 og börnum sem hafa tælensku að móðurmáli fjölgar um 19. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Börnum með erlent ríkisfang fjölgar Í desember 2010 voru 711 börn í leikskólum landsins með erlent ríkisfang og hafði fjölgað um 82 börn frá fyrra ári, eða 13,0%. Þetta rímar við fjölgun barna í leikskólum sem hafa erlent móðurmál. Fjölgunin er tilkomin vegna fjölgunar barna frá Austur-Evrópu, 57, og frá Eystrasaltslöndunum, 26. Aldrei fleiri börn á leikskóla á Íslandi Í desember 2010 sótti 18.961 barn leikskóla á Íslandi og hafa þau aldrei verið fleiri. Leikskólabörnum hefur fjölgað um 245 frá desember 2009, eða um 1,3%. Þrátt fyrir þessa fjölgun hefur hlutfall barna á aldrinum 1-5 ára sem sækja leikskóla lækkað lítillega, úr 83% fyrir ári síðan í 82% í desember 2010. Þá má greina breytingar á viðverutíma barnanna. Milli áranna 2009 og 2010 fækkar um tæplega 1.100 börn sem dvelja í leikskólanum í 9 klukkustundir eða lengur á dag en á sama tíma fjölgar börnum sem dvelja í leikskóla í 8 klukkustundir á dag um tæplega 1.400. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar Börnum sem njóta sérstaks stuðnings fækkar milli ára Í desember 2010 nutu 1.232 börn sérstaks stuðnings vegna fötlunar, félagslegra eða tilfinningalegra erfiðleika, 6,5% leikskólabarna. Þetta er fækkun um 130 börn frá fyrra ári, 9,5%. Eins og undanfarin ár eru fleiri drengir í þessum hópi. Árið 2010 nutu 834 drengir stuðnings, 68%, og 398 stúlkur, 32%. Hlutfall barna sem njóta stuðnings er mishátt eftir landssvæðum. Þannig njóta 3,9% leikskólabarna á Norðurlandi eystra stuðnings, meðan 11,2% austfirskra barna fá stuðning. 29.4.2011 09:19
Prinsinn orðinn hertogi, barón og jarl Vilhjálmur Bretaprins hefur verið gerður að hertoganum af Cambridge en amma hans drottningin sæmdi hann titlinum í morgun. Vilhjálmur fær einnig titlana jarlinn af Strathearn og Baróninn af Carrickfergus. 29.4.2011 09:07
Obama heimsækir hamfarasvæðið í Alabama Að minnsta kosti 297 hafa látist í óveðri sem gengið hefur yfir suðaustur-ríki Bandaríkjanna síðustu daga. Skýstrókar hafa tætt byggingar og önnur mannvirki í sig og er slóð eyðileggingarinnar sumstaðar gríðarleg. 29.4.2011 09:03
Dikta spilar fyrir verkalýðinn Baráttudagur verkalýðsins, 1. maí, fellur í ár á sunnudag. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika því fyrir kröfugöngu sem farin verður frá Laugaveginum í Reykjavík og niður á Ingólfstorg. Safnast verður saman klukkan 13.00 á sunnudag á horni Snorrabrautar og Laugavegar. Örræður verða fluttar á meðan gangan stendur yfir en útifundur hefst á Austurvelli klukkan 14.10. Dagskrá fundarins er sem hér segir: Ræða Signý Jóhannesdóttir, varaforseti ASÍ. Tónlist Hljómsveitin Dikta. Ræða Garðar Hilmarsson, 2. varaformaður BSRB. Tónlist Hljómsveitin Dikta. Ræða Heiða Karen Sæbergsdóttir, formaður Samband íslenskra framhaldsskólanema. Fundarstjóri Ingvar Vigur Halldórsson, stjórnarmaður í Eflingu. 29.4.2011 08:52
Giffords fylgist með síðasta geimskoti Endeavor Bandaríska geimskutlan Endeavor heldur af stað í sína síðustu geimferð í dag frá Flórída. Ferðinni er heitið í alþjóðlegu geimstöðina sem er á sporbaug um jörðu og tekur leiðangurinn fjórtán daga. Þegar skutlan snýr aftur verður henni komið fyrir á safni í Los Angeles. 29.4.2011 08:44
Hvatt til mótmæla í Sýrlandi Múslimska bræðralagið hvetur Sýrlendinga til að mótmæla stjórnvöldum að loknum föstudagsbænum í dag. 29.4.2011 08:40
Manning brátt laus úr einangrun Bradley Manning, bandaríski hermaðurinn sem situr í fangelsi fyrir að hafa lekið skjölum til WikiLeaks síðunnar losnar innan tíðar úr einangrun. Hann hefur síðustu mánuði verið í einangrunaklefa í herfangelsi í Virginíu en hefur nú verið fluttur í Fort Leavenworth í Kansas og þar mun hann umgangast aðra fanga. 29.4.2011 08:34
Gagnrýna að myndatökumenn fari með í húsleitir Maður sem lögregla gerði húsleit hjá í fylgd myndatökumanns fréttavefs Morgunblaðsins fyrir skömmu er afar óhress með þá framgöngu lögreglunnar. 29.4.2011 07:05
Segir Kate já? - brúðkaupið í beinni á Vísi Brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton fer fram í Westminster Abbey í London í dag. Gríðarlegur mannfjöldi er samankominn í borginni til þess að berja kóngafólkið augum enda ekki á hverjum degi sem verðandi krónprins Breta gengur í hnapphelduna. Útsendingin hefst klukkan sjö en sjálf athöfnin klukkan tíu. Hægt er að fylgjast með herlegheitunum í beinni útsendingu á Vísi og á Stöð 2 í opinni dagskrá. 29.4.2011 07:00
SA funda um yfirlýsingu ríkisstjórnar Stjórn Samtaka atvinnulífsins kemur saman í morgunsárið til að meta yfirlýsingu stjórnvalda sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra kynnti forystumönnum samtakanna í gærkvöldi. Það gæti því ráðist í dag hvort endanlega slitnar upp úr kjaraviðræðum eða hvort fulltrúar SA og Alþýðusambandsins setjast aftur að samningaborðinu. 29.4.2011 06:56
Kvótafrumvarpið lagt fram Frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða verður lagt fyrir ríkisstjórn í dag eða strax eftir helgi í síðasta lagi. Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi fá ekki að sjá frumvarpið fyrr en það hefur fengið umfjöllun í ríkisstjórn og í þingflokkum stjórnarflokkanna. 29.4.2011 06:30
Krakkarnir í skólanum kalla mig Royal "Hann er núna aðalkarlinn í þorpinu sínu,“ segir Óðinn Páll Ríkharðsson, sautján ára nemandi í Fjölbrautaskólanum í Ármúla. Þar vísar hann til afa síns, Davids Middleton, sem verður í dag viðstaddur brúðkaup frænku sinnar, Kate Middleton, og Vilhjálms Bretaprins í Westminster Abbey í London. 29.4.2011 06:00
Ísraelsstjórn hafnar samstarfi við Hamas Stjórnvöld í Ísrael munu ekki ræða við palestínsk stjórnvöld á meðan Hamas-samtökin eiga aðild að stjórn Palestínu, sagði Avigdor Lieberman, utanríkisráðherra Ísraels, í gær. Forsvarsmenn stríðandi fylkinga Palestínumanna náðu á miðvikudag sögulegu samkomulagi um að sameina á ný svæði í Palestínu og hætta innbyrðis átökum Hamas og Fatah, sem kostað hafa hundruð manna lífið á síðustu árum. 29.4.2011 05:00
Nota úrgang til að knýja þúsund bíla Fyrir lok næsta árs er stefnt að opnun fyrsta metanorkuversins hér á landi sem nýtir lífrænan úrgang til framleiðslu á metangasi. Í dag verður skrifað undir viljayfirlýsingu Stjörnugríss og Metanorku hf., dótturfélags Íslenska gámafélagsins, um að kanna vænleika þess að nýta úrgang frá svínabúi Stjörnugríss að Melum í Melasveit til framleiðslu og sölu metans. Metanorkuverið að Melum á að verða fyrst í heimi til að nýta heitt vatn til að halda gerjunartanki við kjörhitastig. 29.4.2011 04:00
Bæti kjör sjúklinga sem mest þurfa Með fyrirhuguðum breytingum á lögum um sjúkratryggingar er stefnt að því að draga verulega úr lyfjakostnaði þeirra sjúklinga sem mest greiða. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra kynnti frumvarpið í fyrradag. Meginmarkmiðið er að auka jöfnuð sjúklinga og draga úr heildarútgjöldum þeirra sem mest þurfa á lyfjum að halda. 29.4.2011 03:15
Hjálmar Jónsson endurkjörinn formaður Blaðamannafélagsins Hjálmar Jónsson var endurkjörinn formaður Blaðamannafélags Íslands á aðalfundi félagsins sem haldinn var í kvöld. Hjálmar fékk 166 atkvæði af 198 greiddum atkvæðum. Ingimar Karl Helgason fékk 26 atkvæði. Alls greiddu 198 atkvæði en 545 voru á kjörskrá. Hjálmar Jónsson hefur starfað fyrir Blaðmannafélagið um árabil og gegndi formennsku undanfarið ár. 28.4.2011 21:57
Segir hagræðingu ekki ástæðu bættrar niðurstöðu Bættur rekstrarárangur á Álftanesi frá áætlun skýrist alfarið af hækkun á greiðslum frá jöfnunarsjóði sveitarfélaganna og vegna hækkunar á gengi krónunnar sem skilaði gengishagnaði vegna erlendra lána, segir Sigurður Magnússon, bæjarfulltrúi Álftanesslistans. 28.4.2011 21:40
Kosið til vígslubiskups fyrri hluta júlímánaðar Gert er ráð fyrir að kosning vígslubiskups í Skálholtsumdæmi geti farið fram að nýju fyrri hluta júlímánaðar. Ákveðið hefur verið að leggja fram nýja kjörskrá sem tekur gildi 1. maí 2011. Þetta kemur fram í tilkynningu frá kjörstjórn sem fundaði í dag. Í tilkynningunni kemur fram að 149 prestar eru á kjörskrá, en tveir þeirra presta sem voru á kjörskrá hinn 1. febrúar síðastliðinn hafa ekki lengur kosningarétt þar sem þeir hafa látið af störfum. 28.4.2011 20:17
Rekstur Álftaness gekk betur en búist var við Um átta milljóna króna tap var á rekstri Álftanesbæjar á síðasta rekstrarári. Áætlanir höfðu hins vegar gert ráð fyrir að tapið yrði 102 milljónir króna. Eigið fé sveitarfélagsins er neikvætt um 1249 milljónir króna. 28.4.2011 20:11
Ríkisstjórnin sendi frá sér yfirlýsingu vegna kjaraviðræðna Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sendu í kvöld ríkissáttasemjara lokaútgáfu yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við mögulega kjarasamninga til þriggja ára, milli aðila á almennum vinnumarkaði. 28.4.2011 19:52
Ríkisstjórnin efni tveggja ára gamlan sáttmála Framkvæmdaáform stöðugleikasáttmálans fyrir tveimur árum hafa meira og minna brugðist og snúast kröfur Samtaka atvinnulífsins á hendur ríkisstjórninni nú í raun um að hún efni þau loforð sem þá voru gefin. Hvorki hefur tekist að draga úr atvinnuleysi né stöðva fólksflótta frá landinu. 28.4.2011 18:39
Tekur allt að þrjú ár að greiða brúðkaupsreikninga Það tekur pör allt að þrjú ár að greiða reikninga fyrir brúðkaupið sitt, segir breska blaðið Daily Telegraph. Kostnaður við brúðkaup getur numið allt upp undir tveimur milljónum íslenskra króna. 28.4.2011 18:31
Evrópusambandið segir samningaviðræður geta hafist Evrópusambandið hefur lýst því yfir að það sé tilbúið að hefja eiginlegar samningaviðræður við Íslendinga og leggur til að viðræðurnar hefjist formlega 17. júní, á þjóðhátíðardegi Íslendinga. 28.4.2011 18:15
Gatnamótin opnuð á ný Búið er að opna gatnamótin Grensásvegur/Miklubraut. Þar varð árekstur tveggja bíla um hálffimmleytið í dag. Tveir voru fluttir á slysadeild til skoðunar og slökkviliðið þurfti að beita klippum til að ná bílstjóra út úr öðrum bílnum, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá slökkviliðinu. Tildrög árekstursins eru ókunn. 28.4.2011 17:10
Tryggvi vill fund í efnahags- og skattanefnd Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður sjálfstæðismanna og meðlimur í efnahags- og skattanefnd hefur óskað eftir fundi í nefndinni hið fyrsta. Ástæðuna segir Tryggvi vera þá að sér hafi borist til eyrna að á fundi þingmannanefndar Evrópusambandsins og Alþingis þann 27. apríl síðastliðinn hafi átt að ræða bókun þar sem fram komi viðurkenning á að efnahagsleg aðlögun Íslands að Evrópusambandinu, sem samþykkt var í janúar síðastliðinn, með forgagnsröðun verkefna til ársins 2013, sé komin af stað. 28.4.2011 16:45
Beita þurfti klippum til að ná bílstjóranum út Árekstur varð á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar um klukkan hálf fimm í dag. Þrír voru í bílnum og slasaðist enginn þeirra alvarlega en slökkviliðið þurfti að beita klippum til að ná bílstjóra út úr öðrum bílnum, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra. Tildrög árekstursins eru ókunn. Gatnamótin eru lokuð um óákveðinn tíma. 28.4.2011 16:33
Farþegar Iceland Express ferðast með Iron Maiden vélinni Ein þeirra véla sem notuð verður á flugleiðum Iceland Express í sumar er kyrfilega merkt bresku þungarokkssveitinni Iron Maiden. Vélin hefur verið á ferð og flugi með hljómsveitina síðustu ár og gengur undir nafninu Ed Force One, í höfuðið á „lukkudýri“ dýri sveitarinnar, Eddie. 28.4.2011 16:23
Össur hitti forsætisráðherra Kasmír Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í gær fund í borginni Jammu með Omar Abdullah, forsætisráðherra Kasmír, og innanríkisráðherranum, Nasir Aslam Wani, um þróun á samstarfi íslenskra og indverskra fyrirtækja um nýtingu jarðhita. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að mikill áhugi sé á slíku samstarfi af hálfu yfirvalda í Kasmír en þar er að finna möguleika á að virkja jarðhita til raforkuframleiðslu. Samvinna er þegar hafin á milli indverskra og íslenskra fyrirtækja um verkefni í héraðinu. 28.4.2011 15:44
Forsetinn tekur á móti sérstökum sendiherrum Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands mun í dag, fimmtudaginn 28. apríl, afhenda sjö einstaklingum tilnefningu þeirra sem sérstakir sendiherrar Sáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir fatlað fólk. 28.4.2011 15:33
Fjöldi fólks bíður fyrir utan Westminster Abbey "Við erum búin að hitta fólk frá Kanada og frá Simbabwe. Hér er fólk alls staðar að úr heiminum sem er búið að tjalda við Westminster Abbey og ætlar að bíða hér þangað til á morgun, til að sjá brúðina ganga inn,“ segir Helga Arnardóttir, fréttamaður, sem er stödd í London. Þegar hafa allt að hundrað manns komið sér fyrir utan við kirkjuna og skín eftirvæntingin úr hverju andliti. Um 20 stiga hiti og sól er í borginni og eru vonir bundnar við að veðrið haldi sér til morguns. Þó er búið að gera ráðstafanir ef veður breytist til hins verra og eru því til reiðu tveir hestvagnar fyrir brúðhjónin til að komst á milli staða á morgun, annar opinn og hinn lokaður. Enn hefur ekki verið opinberað hver hannaði kjól Kate Middleton en sögur herma að hún hafi jafnvel látið hanna fyrir sig allt að þrjá kjóla, bara til öryggis ef eitthvað myndi koma upp á. Þá er talið að hönnuðir Alexander McQueen hafi hannað minnst einn kjól fyrir brúðina verðandi. Áhangendur brúðkaupsins bíða spenntir eftir að sjá kjól Kate á morgun. Vilhjálmur prins, heitmaður hennar, verður þó síðastur manna til að sjá kjólinn enda koma sjónvarpsáhorfendur heima í stofu til með að sjá hann á undan Vilhjálmi sem ber ekki dýrðina augum fyrr en Kate er komin inn í kirkjuna á morgun. "Hún hefur haft á orði að hann þekki öll fötin hennar og að hún vilji koma honum virkilega á óvart,“ segir Helga. Þá hafa jafnvel verið uppi veðmál um hvort Kate verður með blóm í hárinu á morgun eða kórónu. "Það er ótrúlegt að vera hér í borginni. Fólk skiptist algjörlega í tvo hópa. Það eru konungssinnarnir sem ganga helst til langt til að sjá brúðhjónin með eigin augum, þó ekki sé nema í fimm sekúntur. Síðan eru það Bretarnir sem stendur nett á sama en eru samt þakklátir fyrir auka frídag,“ segir Helga. Fylgst verður með undirbúningi brúðkaupsins og athöfninni sjálfri í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi á morgun. Athöfnin hefst klukkan tíu að íslenskum tíma í fyrramálið. Hún er rúmur klukkutími. Eftir það fara þau í hestvagni frá Westminister Abbey til Buckingham-hallar. Bein útsending hefst klukkan sjö í fyrramálið. 28.4.2011 15:29
Trampólín fór á flug í Garðabænum Tvær stelpur í Garðabænum, þær Berglind Egilsdóttir og Auður Indriðadóttir ráku upp stór augu þegar þær komu heim úr skólanum í dag og stærðarinnar trampólín var komið inn í garðinn. Rokið á höfuðborgarsvæðinu hefur lyft nokkrum trampólínum á flug eins og sjá má á myndunum. 28.4.2011 15:08
Ekki fljúga með þessum flugfélögum Yfir 250 flugfélög eru á svörtum lista Evrópusambandsins sem nú hefur verið uppfærður í sautjánda skipti. Svarti listinn þýðir að þessi flugfélög fá ekki að fljúga til Evrópusambandsríkjanna. 28.4.2011 14:35
Viðræðum SA og VLFA slitið hjá sáttasemjara Viðræðum á milli Verkalýðsfélags Akraness og Samtaka atvinnulífsins með ríkissáttasemjara hefur verið slitið. „Í morgun fundaði formaður félagsins með ríkissáttasemjara og forsvarsmönnum Samtaka atvinnulífsins vegna kjarasamnings Verkalýðsfélags Akraness á hinum almenna vinnumarkaði. Það er skemmst frá því að segja að niðurstaðan var engin og lét formaður bóka hjá ríkissáttasemjara árangurslausan fund sem er forsenda fyrir því að hægt sé að hefja verkfallsaðgerðir,“ segir á heimasíðu félagsins. 28.4.2011 14:24
Þráðlaust net komið í Hörpuna Lokið hefur verið við uppsetningu á þráðlausu neti í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi. Um er að ræða eitt af stærri þráðlausu netkerfum á landinu en Harpan er um 28 þúsund fermetrar að stærð. Þráðlausa netið verður einkum ætlað gestum og viðskiptavinum hússins, svo sem í fyrirlestra- og fundarsölum Upplýsingafyrirtækið Nýherji sá um uppsetninguna, en rekstrarfélag Hörpunnar hefur einnig samið við Nýherja um kaup á tölvu- og tæknibúnaði fyrir starfsemina. Um er að ræða "Rent a Prent" prentlausn sem gerir Hörpunni meðal annars kleift að prenta út ráðstefnugögn fyrir skipuleggjendur ráðstefna. Ennfremur voru innleiddar Lenovo tölvur, Cisco netbúnaður, Canon prentbúnaður og APC varaaflgjafar fyrir starfsemina. Þá verður símkerfi tónlistarhússins hýst í Avaya IP símstöð Nýherja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hörpu. Rekstrarfélag Hörpunnar ákvað að velja búnað og lausnir frá Nýherja eftir ítarlega verðkönnun þar sem þær þóttu hagkvæmastar og féllu vel að rekstri tölvukerfa Hörpunnar. "Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpan þarf að reiða sig á hnökralausan rekstur upplýsingatæknikerfa og tölvu- og tæknibúnað fyrir starfsfólk og alla þá gesti og viðskiptavini sem eiga eftir að sækja húsið heim. Þess vegna leggjum við áherslu á hátt þjónustustig og ennfremur er mikilvægt að allur kostnaður sé fastur og fyrirsjáanlegur," segir Höskuldur Ásgeirsson framkvæmdastjóri Hörpu. "Með útvistun tölvukerfa er hægt að auka öryggi og tryggja aðgengi að sérfræðiþjónustu. Þá geta fyrirtæki skapað sér mikinn fjárhagslegan ávinning með því að úthýsa tölvukerfum í stað þess að eiga og reka sitt eigið," segir Þorvaldur Jacobsen framkvæmdastjóri Rekstrarlausna Nýherja. 28.4.2011 14:20
Grunaðir um að hafa ætlað að spilla fyrir hátíðahöldunum í London Um 20 manns hafa verið handteknir í Bretlandi í dag, grunaðir um að hafa lagt á ráðin um að spilla fyrir hátíðahöldunum í London á morgun þegar Vilhjálmur Bretaprins gengur að eiga Kötu Middleton. Breska lögreglan réðist inn í fimm íbúðir sem hústökumenn hafa tekið yfir og í einu þeirra voru 14 handteknir. 28.4.2011 14:09