Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Atvinnuleitendur fá námstækifæri Ríkisstjórnin kynnti í morgun aðgerðir til að skapa námstækifæri fyrir eitt þúsund atvinnuleitendur á næstu þremur árum. Sjö milljarðar fara í verkefnið sem eitt og sér er ætlað að draga úr atvinnuleysi um eitt prósent. 19.4.2011 13:58
Falsaðir fimmþúsundkallar í umferð Undanfarnar vikur hefur nokkuð borið á því að fölsuðum 5.000 kr. peningaseðlum hefur verið komið í umferð á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn lögreglu hefur sjaldnast uppgötvast að um falsaða seðla sé að ræða fyrr en við uppgjör á sjóðvélum eða við innlegg í banka. 19.4.2011 13:57
Hindrar hugsanlega framgöngu Brown hjá AGS David Cameron, forsætisráðherra Breta, hefur gefið til kynna að hann kunni að koma í veg fyrir að Gordon Brown verði næsti yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Forsætisráðherrann segir að maður sem hafi ekki séð fyrir að Bretland væri í skuldavanda yrði ef til vill ekki besti maðurinn til þess að stjórna alþjóðlegu fjármálaeftirlitskerfi. 19.4.2011 13:26
Kvikmyndin Eldfjall keppir í Cannes Eldfjall, fyrsta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar leikstjóra, verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes 13. maí. Eldfjall keppir bæði í flokknum Directors Fortnight og um Camera d´Or verðlaunin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá framleiðendum Eldfjalls hjá Zik Zak kvikmyndum. 19.4.2011 13:07
ESB vill senda fótgönguliða til Líbíu Evrópusambandið er reiðubúið að senda hersveitir till Líbíu til þess að aðstoða flóttafólk, ef Sameinuðu þjóðirnar fara framá það. Hermönnunum yrði ekki ætlað að berjast við sveitir Moammars Gaddafis heldur aðeins veita mannúðaraðstoð. 19.4.2011 13:05
Upplýsingum haldið frá almenningi Ný upplýsingalög eru nú til meðferðar hjá allsherjarnefnd Alþingis. Meðal þeirra sem skilað hafa inn umsögnum um lögin er Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður. Hún bendir á að þegar frumvarpið var lagt fram hafi forsætisráðherra sagt megintilgang frumvarpsins að auka upplýsingarétt almennings, gera stjórnsýsluna opnari, bæta lýðræðislega stjórnarhætti og auka aðhald um starfsemi stjórnvalda. 19.4.2011 13:04
Húsleit hjá Ölgerðinni og Vífilfelli Starfsmenn Samkeppniseftirlitsins fóru á skrifstofur Ölgerðarinnar í morgun og framvísuðu heimild til þess að leggja hald á gögn hjá fyrirtækinu. Samkvæmt frétt á vef Ölgerðarinnar tók heimsókn eftirlitsins skamman tíma og ekkert var látið uppi um ástæður hennar. Stjórnendur Ölgerðarinnar hafa því engar upplýsingar um það, að hverju rannsókn Samkeppniseftirlitsins beinist. 19.4.2011 13:01
Ný vopn Hamas auka hættu á stórátökum Aukin hætta er á hörðum árásum Ísraela á Gaza ströndina vegna nýrra fullkominna vopna sem Hamas samtökin hafa aflað sér. Hamas liðar skutu á dögunum leysigeislastýrðri rússneskri eldflaug á skólarútu og gjöreyðilögðu hana. 19.4.2011 13:00
Björgunarsveitir sækja slasaðan vélsleðamann Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Hofsósi, Siglufirði og Ólafsfirði eru nú á leið í Hólaskarð fyrir ofan Héðinsfjörð eftir að tilkynning barst um slasaðan vélsleðamann þar. Á þessari stundu er lítið vitað um tildrög slyssins og aðstæður en talið er að maðurinn, sem var á ferð með hópi vélseðamanna, sé ökklabrotinn. 19.4.2011 12:16
Heppnir höfuðborgarbúar 60 milljónum ríkari Lottóspilararnir sem unnu 61 milljón í lottó á laugardag keypti miðann í Olís á Siglufirði. Fólkið er af höfuðborgarsvæðinu en hafði verið í heimsókn á Siglufirði síðutu helgi. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að þetta sé þriðji stærsti vinningur í laugardagslottóinu þau 25 ár sem það hefur verið starfrækt á Íslandi. Fólkið hefur gefið sig fram við Íslenska getspá. 19.4.2011 12:08
Engar formlegar viðræður í dag Engar formlegar viðræður fara fram milli Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins vegna nýrra kjarasamninga í dag. Hjá ríkissáttasemjara fengust þau svör fyrir hádegi að ekki væri búist við að þessir aðilar kæmu saman hjá honum fyrr en eftir páskahelgina. 19.4.2011 11:59
Braut rúður á Lundanum Lögreglan í Vestmannaeyjum þurfti að vista mann í fangageymslu eftir að hann braut rúðu á veitingastaðnum Lundanum þar í bæ um síðustu helgi. Manninum hafði verið vísað út af staðnum og var ósáttur við það. Hann greip þá rörbút og braut tvær rúður í húsinu. Maðurinn var handtekinn í kjölfarið og fékk hann gistingu hjá lögreglunni. Eftir að víman var runnin af honum var hann færður til skýrslutöku þar sem hann viðurkenndi verknaðinn. 19.4.2011 11:40
Köstuðu björgunarhringjum Herjólfs í sjóinn Skemmdarvargar tóku sig til á dögunum og hentu björgunarhringjum sem eru á dekki Herjólfs í sjóinn þegar skipið var á leið til Vestmannaeyja þann 12. apríl síðastliðinn. Að sögn lögreglu er ekki vitað hverjir voru að verki. Hún óskar því eftir upplýsingum frá farþegum sem voru í fyrri ferð skipsins frá Þorlákshöfn þennan dag um hvort þeir hafi orðið var við að einhver eða einhverjir væru að eiga við björgunarhringi skipsins. Atvikið er litið mjög alvarlegum augum enda er nauðsynlegt að öryggisbúnaður skipsins sé í sem bestu lagi. 19.4.2011 11:35
Segir Dani verða að framselja Múhameðsteiknara Danir hafa skuldbundið sig til þess að framselja skopmyndateiknarann Kurt Westergaard til Jórdaníu að sögn borgarfulltrúa í Kaupmannahöfn. Réttarhöld yfir Westergaard hefjast þar í landi 25 apríl, vegna teikninga hans af Múhameð spámanni. 19.4.2011 11:21
Rokkhátíð alþýðunnar verður "live from Ísafjörður rock city!" Rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, verður í beinni útsendingu á vefsíðunni Inspired by Iceland. Hátíðin verður haldin um komandi helgi á Ísafirði. Aldrei fór ég suður var fyrst haldin árið 2004, og kviknaði hugmyndin að hátíðinni hjá tónlistarmanninum ísfirska Mugison og föður hans, sem kallaður hefur verið Mugipapa. Hátíðin hefur stækkað ár frá ári og sækir nú gríðarlegur fjöldi Ísafjörð heim þegar hún er haldin. Þeir sem ekki eiga heimangengt, sem og erlendir tónlistarháhugamenn, geta nú fylgst með hátíðinni í fyrsta sinn í beinni útsendingu á vefnum. Á vef hátíðarinnar s er beina útsendingin kynnt sem „Live from Ísafjörður rock city!" Meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni í ár eru Bjartmar og Bergrisarnir, Páll Óskar Hjáltýsson og FM Belfast. Allir sem koma fram á rokkhátíðinni gefa vinnu sína. Tenglar: Aldrei fór ég suður http://aldrei.is/ Inspired by Iceland http://www.inspiredbyiceland.com/ 19.4.2011 11:07
Hraðbraut gerir menntamálaráðherra nýtt tilboð Forsvarsmenn Menntaskólans Hraðbrautar vilja gera nýjan þjónustusamning við menntamálaráðuneytið um að skólinn taki inn allt að 120 nemendur á fyrra námsár 2011-2012. Þetta verði til viðbótar þeim samningi sem fyrir liggur um skólastarf á síðara námsári veturinn 2011-2012. Greiðsla vegna hvers ársnemanda í námi verði 480 þúsund krónur. Segja forsvarsmenn skólans að sú upphæð sé mun lægri en lægstu greiðslur sem þekkjast til annarra framhaldsskóla í landinu. 19.4.2011 10:42
Vinstrimenn á Skaganum vilja Ásmund Einar burt Félagar í VG á Akranesi skorar á Ásmund Einar Daðason, þingmann VG, að segja af sér sem þingmaður þar sem hann hafi fyrirgert trausti þeirra sem kusu lista VG við síðustu þingkosningar. Þetta segir ályktun sem félagsfundur VG á Akranesi samþykkti í gær og var birtur á vef Skessuhorns. 19.4.2011 10:23
95% skólasókn 16 ára ungmenna Skólasókn 16 ára ungmenna á Íslandi haustið 2010 er 95%, sem er sama hlutfall og haustið 2009. Á milli áranna 2008 og 2009 hafði orðið talsverð fjölgun nemenda. Um 88% 17 ára nemenda sækja skóla, sem er fækkun um tvö prósentustig frá fyrra ári. Um 82% 18 ára ungmenna stunda nám, og fjölgaði um eitt prósentustig í þeim aldursflokki. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofu Íslands. Hlutfallslega flestir 16 ára unglingar sækja skóla á Austurlandi og Norðurlandi eystra eða 96%, en fæstir á Vestfjörðum (91%) og á Suðurnesjum (92%). Jafnframt fækkar eldri nemendum á framhaldsskólastigi frá fyrra ári. Þannig fækkar nemendum í öllum 5 ára aldursflokkum frá 15 til 54 ára frá hausti 2009. Sú fækkun helst í hendur við umtalsverða fækkun nemenda í öldungadeildum (45,5%) og fjarnámi (18,8%) á framhaldsskólastigi frá hausti 2009. Þriðjungur í starfsnámi Um 66.0% nemenda á framhaldsskólastigi stunda nám á bóknámsbrautum en 34.0% eru í starfsnámi. Hlutfall nemenda í starfsnámi er mun hærra meðal karla en kvenna, eða 39,0% á móti 29,1% hjá konum. Hlutfall nemenda í starfsnámi hefur lítið breyst síðasta áratug, þegar það hefur verið 33,8% til 38,5%. Nemendum fækkar um 1,6% Nemendur á skólastigum ofan grunnskóla á Íslandi voru 44.949 haustið 2010 og hafði fækkað um 435 nemendur frá fyrra ári, eða 1,6%. Þetta er í fyrsta skipti sem nemendum ofan grunnskóla fækkar á milli ára frá endurskoðun nemendaskrár Hagstofu Íslands haustið 1997. Á framhaldsskólastigi stunduðu 25.090 nemendur nám og fækkaði um 4,8% frá fyrra ári og á viðbótarstigi voru 990 nemendur. Á háskólastigi í heild voru 18.869 nemendur. Þar fjölgaði nemendum um 4,5%, þar af um 52,7% á doktorsstigi. 19.4.2011 10:22
Doktorsnemum fjölgar - fjórðungur útlendingar Nemendum á doktorsstigi hefur fjölgað ár frá ári hér á landi. Þeir voru 14 haustið 1997 en eru 478 haustið 2010. Nemendum á doktorsstigi hefur fjölgað í yngri aldurshópunum sem bendir til þess að fleiri fari í doktorsnám fljótlega að loknu meistaranámi. Frá 1998 til 2006 voru doktorsnemar flestir á aldrinum 30-34 ára en frá 2007 er aldurshópurinn 25-29 ára stærstur. Konur hafa verið í meirihluta meðal doktorsnema frá árinu 2001 og eru 58,2% þeirra haustið 2010. Tæplega fjórðungur (23,4%) doktorsnema eru útlendingar, flestir frá öðrum Evrópulöndum. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofu Íslands. Tveir af hverjum þremur nemendum á meistarastigi eru konur Nemendum á meistarastigi hefur einnig fjölgað ár frá ári. Þeir voru 383 haustið 1997 en eru 4.243 haustið 2010. Tveir af hverjum þremur nemendum á meistarastigi eru konur, eða 66,7% nemenda. Nemendum í námi til grunnsprófs á háskólastigi, t.d. Bachelor gráðu eða diplóma gráðu hefur fjölgað síðustu tvö ár eftir að hafa fækkað lítillega á árunum 2004-2008. Nemendur sem stunda nám til grunnprófs hafa aldrei verið fleiri eða 14.005. Þá voru 143 nemendur í stuttu hagnýtu námi á háskólastigi og hefur fækkað lítillega síðustu ár. 19.4.2011 10:17
Norðmenn ákváðu stríð í gegnum farsíma Ákvörðun um að senda norskar orrustuþotur til Líbíu hinn 19. mars var tekin í farsímum. Ríkisstjórnin hélt engan sérstakan fund um málið og þingið kom þar hvergi nærri. 19.4.2011 10:10
Svona verður sameiningin í skólakerfinu Borgarráð samþykkti í gær að hefja undirbúning að sameiningu leikskólasviðs og menntasviðs. Ennfremur var samþykkt að færa verkefni sem nú eru á skrifstofu tómstundamála á íþrótta- og tómstundasviði á þetta sameiginlega svið. Þá samþykkti borgarráð jafnframt umfangsmiklar tillögur um samreksturs og/eða sameiningar leikskóla, gunnskóla og frístundaheimila í Reykjavíkurborg. Málinu var vísað til borgarstjórnar sem tekur endanlega ákvörðun um það á fundi í dag. 19.4.2011 09:15
Níu prósent eldri borgara í vistrýmum Alls bjuggu 3.144 á stofnunum með vistrými fyrir aldraða í desember í fyrra og hafði þeim þá fækkað um 47 frá árinu 2009. Konur voru rúm 64% allra vistmanna. Um 9% 67 ára og eldri bjuggu í vistrýmum í desember 2010. Þetta hlutfall var rúm 10% á landsbyggðinni en rúm 8% á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2010 bjuggu rúm 21% fólks 80 ára og eldra í vistrýmum aldraðra. Það átti við um rúm 17% karla á þessum aldri og rúm 24% kvenna. Hagstofa Íslands hefur tekið saman tölur um stofnanaþjónustu og dagvistir aldraðra árið 2010. Samantektin sýnir að í desember voru vistrými alls 3.125, þar af voru hjúkrunarrými á dvalar- og hjúkrunarheimilum 2.217 eða 70,9% allra vistrýma. Á milli áranna 2009 og 2010 fækkaði rýmum á dvalar- og/eða hjúkrunarheimilum um 168. Þar af fækkaði dvalarrýmum um 70 og hjúkrunarrýmum um 98, en rýmum á heilbrigðisstofnunum fækkaði um 76 á sama tíma. Árið 2010 voru rúm 54% vistrýma á höfuðborgarsvæðinu, en tæp 46% annarsstaðar. 19.4.2011 09:07
Segja stjórnsýslulegt stórslys í vændum Á fundi borgarstjórnar í dag verður fjallað um og afgreiddar tillögur um sameiningar á leik- og grunnskólum, og frístundaheimilum Reykjavíkurborgar. "Ef fyrirliggjandi tillögur meirihluta borgarstjórnar verða samþykktar er um stjórnsýslulegt stórslys að ræða þar sem tillögurnar fara gegn fjölmörgum umsögnum og álitsgerðum fagaðila á borð við umboðsmann barna, menntavísndasvið Háskóla Íslands og Menntamálaráðuneytið,“ segir í tilkynningu frá regnhlífarsamtökunum Börn.is. Fulltrúar samtakanna verða á pöllunum í ráðhúsinu þegar fundurinn hefst, klukkan 14.00. Þeir skora á alla foreldra, skólastjórnendur og kennara til að mæta "... og hvetja þannig meirihlutann til að sýna það hugrekki að bakka með þessar vondu tillögur,“ segir í tilkynningunni. 19.4.2011 08:24
Castro hættir sem leiðtogi Kommúnistaflokks Kúbu Fidel Castro, hefur sagt af sér sem leiðtogi Kommúnistaflokks Kúbu, en árið 2006 afsalaði hann sér forsetaembættinu til Rauls bróður síns. 19.4.2011 08:17
Mikil mótmæli í þriðju stærstu borg Sýrlands Þúsundir mótmælenda söfnuðust saman í miðbæ Homs í Sýrlandi í gærkvöldi en Homs er þriðja stærsta borg landsins. 19.4.2011 07:48
Fjórir slösuðust þegar jeppi valt í Kömbunum Fjórir slösuðust en einn slapp ómeiddur þegar jeppi valt í Kömbunum í gærkvöldi. Einn farþegi viðbeinsbrotnaði en jeppinn fór tvær og hálfa veltu. 19.4.2011 07:42
Noma aftur kosinn besti veitingastaður heimsins Danski veitingastaðurinn Noma í Kaupmannahöfn er áfram besti veitingastaður heimsins eins og í fyrra. 19.4.2011 07:40
Brotist inn í fyrirtæki við Smiðjuveg í nótt Brotist var inn í fyrirtæki við Smiðjuveg í Kópavogi í nótt og fór þjófavarnakerfi í gang. 19.4.2011 07:38
Tveir skipverjar á litlum fiskibáti hætt komnir Tveir skipverjar á litlum fiskibáti voru hætt komnir eftir að vélin bilaði í bát þeirra, Kópanesi frá Hvammstanga, þegar þeir voru staddir á Húnaflóa í nótt og bátinn tók að rekan undan norðaustanátt, í átt að Óðinsboða. 19.4.2011 07:05
Hundruð bygginga í miðborg niðurnídd Ítarleg úttekt var gerð á ástandi húsa í miðborginni árið 2008. Þeir eigendur bygginga þar sem endurbóta var krafist skiptu hundruðum, segir Magnús Sædal Svavarsson, byggingafulltrúi hjá Reykjavíkurborg. 19.4.2011 07:00
Gera heimildarmynd um skáldanýlendu „Með sanni má segja að hér í bæ hafi byggst upp eitt af fáum listamannasamfélögum á Íslandi,“ segir bæjarráð Hveragerðis, sem ætlar að styrkja gerð heimildarmyndar um götu í bænum sem kölluð er Skáldagata. 19.4.2011 06:30
Refsing kannabisræktenda stytt Hæstiréttur stytti með dómi sínum fyrir helgi fangelsisrefsingu yfir tveimur mönnum á þrítugsaldri úr tuttugu mánaða fangelsi í fjórtán mánuði. Mennirnir voru dæmdir fyrir stórfellda kannabisræktun. 19.4.2011 06:00
Efast um lögmæti 15 metra reglu „Að öllu samanlögðu og virtu er þetta vanhugsað gönuhlaup sem best og réttast er að afturkalla alveg eða í það minnsta fresta því í ár,“ segir í ályktun aðalfundar Húseigendafélagsins um svokallaða fimmtán metra reglu í sorphirðu sem borgaryfirvöld í Reykjavík eru að innleiða. 19.4.2011 05:45
Evrópska efnahagssvæðið endurskoðað Evrópusambandið hefur hug á því að endurskoða samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, með hliðsjón af því hvernig samstarf EFTA-ríkjanna við ESB hefur þróast undanfarin fimmtán ár. 19.4.2011 04:30
Vilja hætta við allar sameiningar Stjórnendur þeirra leikskóla sem sameina á í Reykjavík krefjast þess að fallið verði frá hugmyndum um sameiningu, þar sem innan veggja skólanna ríki gjörólík hugmyndafræði. Ekkert réttlæti sé falið í því að börn í 25 af 76 leikskólum borgarinnar taki á sig afleiðingar af niðurskurði leikskólasviðs. 19.4.2011 04:00
Endurkjörinn í skugga óeirða Goodluck Jonathan var í gær útnefndur sigurvegari forsetakosninga í Nígeríu, fjölmennasta ríki Afríku. Jonathan, sem tók við forsetaembættinu í þessu mikla olíuríki um mitt síðasta ár, fékk rúmlega tíu milljónum atkvæða meira en helsti keppinautur sinn, Muhammadu Buhari. Auk þess sigraði Jonathan í nógu mörgum fylkjum til að ekki þyrfti að kjósa aftur milli tveggja efstu. 19.4.2011 00:30
Þúsundir vilja flýja Misrata Nærri eitt þúsund manns, mest farandverkamenn, hafa verið fluttir frá hafnarborginni Misrata í Líbíu eftir að hafa verið þar í herkví í fimm vikur. Þúsundir til viðbótar bíða þess að komast frá borginni. 19.4.2011 00:00
Segja maraþonhlaupurum mismunað eftir kynþætti í Hollandi Keppnishaldarar maraþonsins í Utrecht í Hollandi eru sakaðir um kynþáttamismunun eftir að þeir samþykktu að veita hollenskum verðlaunahöfum mun hærri peningaverðlaun en öðrum. 18.4.2011 20:30
Súkkulaðijöfur lést af slysförum Ítalski súkkulaðijöfurinn Pietro Ferrero lést af slysförum í Suður Afríku samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins. 18.4.2011 20:00
Spá mörgþúsund milljarða uppbyggingu í Norður-Noregi Mikil bjartsýni ríkir nú í Norður-Noregi eftir að gríðarstór olíulind fannst þar undan ströndum í byrjun mánaðarins. Spáð er að á næstu árum verði fjárfest þar fyrir yfir fjögurþúsund milljarða króna. 18.4.2011 19:30
Hanna Birna: Sameiningin þvinguð í gegn Borgarráð samþykkti í morgun tillögur um samrekstur og sameiningu skóla, leikskóla og frístundaheimila í Reykjavík. Fulltrúi minnihlutans segir meirihlutann þvinga í gegn sameiningar í algjörri andstöðu við borgarbúa. 18.4.2011 19:15
Hjörtur Howser fær ekki að búa á æskuheimilinu Dæmi eru um að bankar leysi til sín húseignir á minna en sem nemur helmingi fasteignamats og miði leigu á húsnæðinu til fyrri eigenda við fullt fasteignamat. Sú er raunin hjá tónlistarmanninum Hirti Howser en beiðni bankans um að bera hann út úr húsnæði sínu var samþykkt í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 18.4.2011 19:00
Lög um fiskveiðar henta illa í þjóðaratkvæði Lög um stjórnun fiskveiða henta illa til þjóðaratkvæðagreiðslu að mati framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, eins og utanríkisráðherra boðar að komi til greina. Ráðherrann ætti fremur að beita sér fyrir lausn deilunnar um framtíð sjávarútvegsins innan ríkisstjórnarinnar því ekkert verði að langtíma kjarasamningum án slíks samkomulags. 18.4.2011 18:26
Tekinn með dóp í fimmta sinn á tveimur mánuðum Lögreglan á Akranesi handtók ungan mann vegna gruns um vörslu fíkniefna aðfaranótt laugardagsins síðasta. Á manninum fundust 8 grömm af amfetamíni en lögreglumenn höfðu veitt því athygli að maðurinn var að koma frá þekktum fíkniefnamanni sem býr í nágrenni við lögreglustöðina. Þeir fóru því þangað og kvöddu dyra. 18.4.2011 16:27
Meintur fjársvikamaður kominn í leitirnar Maðurinn sem leitað var að í New York eftir að greint var frá því í fjölmiðlum á föstudaginn að hann væri grunaður um fjárdrátt er kominn í leitirnar heilu og höldnu. Þetta hefur Vísir samkvæmt upplýsingum úr utanríkisráðuneytinu. Óskað var eftir aðstoð ráðuneytisins um helgina við að komast að því hvar maðurinn væri. Það var í gær sem það upplýst var hvar maðurinn væri niðurkominn. 18.4.2011 16:21