Fleiri fréttir

Heimsmetstilraun í Silfru

Hópur Íslendinga tók þátt í heimsmetstilraun í gærkvöldi þegar kafað var í upplýstri Silfru á Þingvöllum. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins var á staðnum og náði flottum myndum eins og sjá má.

Óttast að ákveðnir hópar séu skildir eftir í skuldavanda

Marínó G. Njálsson, fyrrverandi stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna, fagnar útspili stjórnvalda. Aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna voru kynntar á fundi í Þjóðmenningarhúsinu í morgun. Þar kemur fram að skuldir vegna yfirveðsettra eigna verða afskrifaðar og breytingar gerðar á vaxtabótakerfinu til hagsbóta fyrir skuldara.

Bónus með lægsta verðið á vörum til baksturs

Bónus var oftast með lægsta verðið og Samkaup Úrval oftast með hæsta verðið í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum víða um land, miðvikudaginn 1. desember. Kannað var verð á 56 algengum vörum til baksturs.

Tekjuháir fá ekki skuldir afskrifaðar

Einstaklingar sem eru með greiðslubyrði sem er innan við 20% af ráðstöfunartekjum heimilanna munu ekki fá afskrifaðar skuldir, þrátt fyrir að þeir séu með yfirveðsettar eignir.

Jörð skelfur á ný í Krýsuvík

Þónokkrir jarðskjálftar hafa orðið á Krísuvíkursvæðinu síðustu klukkustundirnar , en allir hafa mælst innan við þrjá á Richter og flestir innan við tvo. Töluverður órói hefur verið á svæðinu alla vikuna og virðist þetta vera ein hrinan enn á skömmum tíma.

Lífeyrisréttindi skerðast ekki

Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka Lífeyrissjóða, ítrekar að lífeyrisréttindi sjóðfélaga eiga ekki að skerðast með þeim aðgerðum sem kynntar voru í dag. „Við teljum að þessi aðgerði ein og sér muni ekki færa niður þessi réttindi," sagði Arnar á blaðamannafundinum sem haldinn var í Þjóðmenningarhúsinu í dag.

Ríkið og lífeyrissjóðir hársbreidd frá samkomulagi um stórframkvæmdir

Ríkisstjórnin og Lífeyrissjóðirnir eru „hársbreidd“ frá því að ná samkomulagi um að lífeyrissjóðirnir fjármagni stórframkvæmdir á næstunni. Þetta kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra í Þjóðmenningarhúsinu í dag þegar aðgerðapakkinn var kynntur. Ráðherrann sagðist vonast til að hægt verði að ganga frá samningum þessa efnis eftir helgi, og sagði að þegar það yrði komið komið á hreint væri hægt að tala um „dágóðan jólapakka.“

Kostnaður bankastofnana tæpir 70 milljarðar

Guðjón Rúnarsson, formaður Samtaka fjármálafyrirtækja, segir viljayfirlýsingu um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna vera jákvætt skref. „Þetta er mikilvægt skref sem ætti að hjálpa flestum," sagði Guðjón á blaðamannafundinum sem lauk fyrir stundu í Þjóðmenningarhúsinu.

Aðskotahlutur í steiktum lauk

Fundist hefur aðskotahlutur í einu 100 gramma boxi af steiktum lauk undir vörumerkinu Cronions. Vegna þessa hefur varan verið innkölluð af markaði. Vara þessi er í takmarkaðri dreifingu og í mjög litlu magni í matvöruverslunum. Neytendur eru beðnir um að skila inn viðkomandi vöru ef varan reynist vera með lotunúmerið LO:160 22:36 og best fyrir dagsetningu 09-02-11 til Nathan & Olsen hf. sem er innflytjandi vörunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nathan & Olsen hf.

Fréttamannafundur ríkisstjórnarinnar í beinni

Fréttamannafundur ríkisstjórnarinnar, þar sem kynnt verða úrræði vegna skuldavanda heimilanna, verður haldinn klukkan ellefu í dag. Þess hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu, svo ekki sé fastar að orði kveðið, eftir því að úrræðin yrðu kynnt.

Þessi eru tilnefnd til Hvatningarverðlauna ÖBÍ

Alþjóðlegur dagur fatlaðra er í dag. Hann hefur verið haldinn 3. desember ár hvert frá því að Sameinuðu þjóðirnar stóðu fyrir alþjóðlegu ári fatlaðs fólks árið 1981. Markmið alþjóðlegs dags fatlaðra er að auka skilning á aðstæðum fólks með fötlun, baráttunni fyrir réttindum þess og fullri þátttöku í samfélaginu til jafns við aðra.

Metfjöldi af hassplöntum hirtur á síðasta ári

Hegningarlagabrotum fjölgaði um tíu prósent á síðasta ári en auðgunarbrot, innbrot og þjófnaðir, höfðu þar mestu áhrifin en þeim fjölgaði um 19% milli ára. Sérrefsilagabrot voru 19% færri og fjöldi umferðarlagabrota hélst svipaður. Þetta kemur fram í tölfræðiskýrslu ríkislögreglustjóra sem birtir staðfestar tölur um afbrot fyrir árið 2009.

Lokuðu Fílabeinsströndinni

Stjórnarherinn á Fílabeinsströndinni hefur lokað landamærum landsins og vísað öllum erlendum fjölmiðlamönnum úr landi. Spennan í landinu er gríðarleg en þar voru haldnar forsetakosningar nýverið og úrslitanna hefur verið beðið með óþreyju.

Kuldinn herjar enn á Evrópubúa

Evópubúar búa enn við kulda og fannfergi og spáin fyrir helgina gerir ekki ráð fyrir að sólin láti sjá sig í bráð. Allt að 28 hafa látist víðsvegar um álfuna í atvikum sem rakin eru til veðursins og þúsundir hafa verið innlyksa eftir að vegum hefur verið lokað og samgöngur raskast. Á Balkanskaga hafa mikil flóð þröngvað þúsund manns til þess að yfirgefa heimili sín. Flest dauðsföll vegna kuldans hafa verið í Póllandi enda hefur frostið mælst allt að þrjátíu og þremur gráðum þar í landi.

Loðnuskipin lögð af stað

Þrjú fiskiskip , Ingunn, Faxi og Börkur, hófu loðnuleit norður af Kolbeinsey í gærkvöldi, en ekkert skip leitaði loðnu á þessum tíma í fyrra, enda var kvóti ekki gefinn út fyrr en eftir áramót.

Da Vinci fléttan: Vickram og Helga vilja semja

Helga Ingvarsdóttir og Vickram Bedi, sem sökuð eru um að hafa haft allt að 20 milljónir dollara af moldríkum sérvitringi í New York fylki í Bandaríkjunum, hafa fallist á að mál þeirra verði fært á annað dómstig í ríkinu, með það fyrir augum að semja um lyktir þess.

Búist við undirskrift í dag

Stjórnvöld vonast til að geta kynnt viljayfirlýsingu um aðgerðir í þágu skuldugra heimila eftir ríkisstjórnarfund fyrir hádegi. Málið fór í hnút í gærmorgun þar sem Líferyissjóðirnir gátu ekki fallist á viss atriði, en eftir ýmsar tilfærslur náðist samkomulag við þá undir kvöldið og voru þær kynntar fulltrúum bankanna í gærkvöldi.

Greiða 80 milljónir í bónusa

Útgerðarfélagið Samherji hefur ákveðið að greiða starfsfólki sínu í landi 260 þúsund króna launauppbót í desember til viðbótar við umsamda 46 þúsund króna desemberuppbót. Uppbótin nemur í heildina 320 þúsund krónum á mann og kostar Samherja í kringum 80 milljónir króna að frátöldum tengdum gjöldum.

Vill að sérsveitin fái að beita rafbyssum

Engin ástæða er til þess að lögreglumenn hér á landi verði vopnaðir rafbyssum, að mati ríkislögreglustjóra. Hann vill þó heimila sérsveitarmönnum að beita slíkum vopnum í tilraunaskyni, að því er fram kemur í skýrslu embættisins um ofbeldi gegn lögreglumönnum.

Skoða lækkun tolla á innfluttum kjúklingi

„Það er verið að skoða þessi mál mjög alvarlega," segir Bjarni Harðarson, upplýsingafulltrúi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um kröfur um tollfrjálsan innflutning á kjúklingi.

Formaður bænda segir ábyrgð „klínt“ á þá

Orð formanns samninganefndar Íslands gagnvart ESB, Stefáns Hauks Jóhannessonar, í Fréttablaðinu á laugardag sýna að „fjarvera [Bændasamtakanna] frá fundum í Brussel var nauðsynleg“ segir Haraldur Benediktsson, formaður samtakanna, í leiðara Bændablaðsins í gær.

Þúsund hafa látið vita um grunsamlegar mannaferðir

„Nágrannavarslan hefur komið sér afar vel og það er mikill áhugi hjá fólki,“ segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, spurður um árangur nágrannavörslu, sem lögregla hefur lagt áherslu á í baráttunni gegn innbrotum.

Sjónvarpssöfnun fyrir Barnahjálpina

Með Fréttablaðinu í dag fylgir sérstakt blað tileinkað Barnahjálpinni og sölu Rauða nefsins. Í kvöld verður skemmtiþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2 þar sem efnt verður til landssöfnunar til styrktar Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.

Tugir farast í skógareldum

Slökkvilið Ísraels sagðist í gærkvöld ekkert ráða við skógareldana sem geisuðu skammt frá borginni Haífa. Stjórnvöld sögðu þetta verstu náttúruhamfarir í sögu Ísraels.

Tómas tyllir sér við Tjörnina

Jón Gnarr borgarstjóri afhjúpaði styttu af Reykjavíkurskáldinu Tómasi Guðmundssyni við Reykjavíkurtjörn í gær.

Styttist í samninga um eftirlit

Þótt litlar líkur séu á að samkomulag takist á sextándu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Mexíkó um að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, þá hafa Bandaríkjamenn og Kínverjar að mestu náð saman um það hvernig eftirliti með útblæstri verður háttað.

Milljónir urðu strandaglópar

Milljónir manna komust hvergi og þurftu að fresta ferðum sínum þegar loka þurfti flugvöllum og tafir urðu á lestarsamgöngum víðs vegar um Evrópu vegna snjóa og kulda í gær.

Vilja fá dómsmál fellt niður

„Eitt af helstu viðfangsefnum bandaríska sendiráðsins í Madríd undanfarin sjö ár hefur verið að reyna að fá fellt niður sakamál gegn þremur bandarískum hermönnum, sem sakaðir eru um að hafa drepið spænskan sjónvarpstökumann,“ segir spænska dagblaðið El Pais, sem hefur upplýsingar um þetta úr leyniskjölum bandarísku utanríkisþjónustunnar.

Verði Cheryl Cole dómari í X-Factor þarf að texta hana

Framleiðendur X-Factor sjónvarpsþáttarins í Bandaríkjunum eru í vandræðum. Girls Aloud stjarnan Cheryl Cole kemur sterklega til greina sem einn af dómurum í þáttinn á næsta ári en samtök þýðenda segja augljóst að þá verði að texta allt sem hún segir. Samtökin létu gera könnun á málinu á meðal 226 þýðenda um heim allan og settu þeir Cheryl í fjórða sætið yfir breskar stjörnur sem erfitt er að skilja.

Útsvar óbreytt í Garðabæ

Álögur á íbúa í Garðabæ verða áfram lágar á árinu 2011, skv. frumvarpi að fjárhagsáætlun bæjarins sem lagt var fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag samkvæmt tilkynningu frá bænum.

Samkomulag í höfn og undirritað á morgun

Samkomulag náðist nú síðdegis milli ríkisstjórnarinnar og lífeyrissjóðanna um aðkomu þeirra að aðgerðum til aðstoðar skuldugum heimilum og fyrirtækjum. Forsætisráðherra segir að einungis eigi eftir að ganga frá nokkrum þáttum við bankana og reiknar með að skrifað verði undir aðgerðaáætlun á morgun.

Byrjað að marka víglínuna - fréttaskýring

Í aðildarviðræðum Íslands við ESB stendur nú yfir rýniferli þar sem farið er yfir löggjöf ESB og Íslands til að skapa grundvöll fyrir eiginlegar viðræður. Klemens Ólafur Þrastarson yfirheyrði í vikunni Stefán Hauk Jóhannesson, sendiherra og formann samninganefndar Íslands, um rýnivinnu, aðlögun og IPA-styrki. Stefán viðurkennir að afstaða bænda geti skaðað samningsstöðuna.

Forsætisráðherra: Samkomulag í höfn

Samkomulag hefur náðst milli ríkisstjórnar og lífeyrissjóða um aðgerðir vegna skulda heimila og fyrirtækja. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði eftir langa fundarsetu í dag að aðeins ætti eftir að fínstilla nokkur atriði við bankana áður en málið verður lagt fyrir ríkisstjórnarfund í fyrramálið. Hún reiknar með að skrifað verði undir samkomulag stjórnvalda, fjármálastofnana og fleiri, að loknum ríkisstjórnarfundi í fyrramálið.

Búast við að Assange verði handtekinn í dag

Breska lögreglan, Scotland Yard, veit hvar Julian Assange, stofnandi Wikileaks, heldur sig og gera ráð fyrir því að þeir geti handtekið hann síðar í dag. Þetta er fullyrt á fréttavef Daily Mail. Sænskur dómstóll gaf nýlega út alþjóðlega handtökuskipun á hendur honum vegna ásakana um kynferðisbrot.

„Lét“ 13 ára stúlku hafa við sig samræði

23 ára karlmaður var í gær dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára stúlku. Maðurinn játaði brotið sem átti sér stað í mars á þessu ári. Í Héraðsdómi Reykjavíkur var maðurinn dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi. Brotið sem maðurinn játaði, samkvæmt ákæru er að hafa „látið A, þá 13 ára, hafa við sig samræði "

Ófyrirleitnar og harkalegar árásir á fyrrverandi unnustu

Tuttugu og sjö ára gamall karlmaður hefur verði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir ítrekað ofbeldi gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða konunni tæpar 500 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta.

Borgarstjóri afhjúpaði styttu af Tómasi

Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, afhjúpaði styttu af Reykjavíkurskáldinu Tómasi Guðmundssyni eftir Höllu Gunnarsdóttur við Reykjavíkurtjörn í dag.

Reykjavíkurborg skapar á sjötta hundrað ársverk

Fjárfestingar- og framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar næsta árs gerir ráð fyrir að 6,5 milljörðum króna verði varið til fjárfestinga. Það er umtalsverð aukning frá því sem gert var ráð fyrir í gildandi þriggja ára áætlun, en svipuð fjárhæð og á þessu ári. Með þessum áherslubreytingum er stuðlað að framkvæmdum og auknu atvinnuframboði. Framkvæmda- og eignasvið áætlar að á bilinu 530 til 580 bein ársverk geti verið að ræða, að því er kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þá er ótalin afleidd störf.

Sauðféð rúið inn að skinni

Sauðfé Fjölskyldu- og húsdýragarðsins fær jólaklippinguna á sunnudag. Þá mætir Guðmundur Hallgrímsson til rúningsverka en þær eru orðnar æði margar ærnar og hrútarnir sem hann hefur rúið. Hann kann því vel til verka og ætla má að hann spari ekki lýsingarnar í kringum rúninginn. Guðmundur mun hefjast handa klukkan eitt en með honum í för verður föruneyti kvenna sem munu spinna band úr ullinni.

150 þúsund manns vildu eyða jólunum í Reykjavík

Undanfarinn mánuð hefur Höfuðborgarstofa í samstarfi við Icelandair boðið erlendum Reykjavíkurvinum að taka þátt í leiknum Win a trip to Reykjavík in December á ferðavefsvæði Reykjavíkurborgar www.visitreykjavik.is með það að markmiði að kynna Reykjavík sem spennandi áfangastað á aðventunni.

Þær földu þýfið HVAR?

Tvær konur hafa verið handteknar fyrir búðahnupl í bænum Edmond í Oklahoma í Bandaríkjunum. Svosem ekki óvenjulegt nema hvað þessar konur földu þýfið í spikfellingum á líkama sínum.

Sjá næstu 50 fréttir