Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ill meðferð dýra til að mæta kröfum neytenda Kröfur neytenda og aukin eftirspurn er ástæðan fyrir því að dýrum sem slátrað er til matvælaframleiðslu er haldið innilokuðum við þröngan kost, jafnvel án þess að nokkurn tíman komast undir bert loft. Þetta er mat Árna Stefáns Árnasonar sem er að ljúka við meistararitgerð sína um íslensku dýraverndarlögin, við lagadeild Háskólans í Reykjavík. 24.11.2010 13:48
Ólafur Ragnar: Kostir evru óljósari en áður Aðild að evrusamstarfinu tryggir ekki sjálfkrafa efnahagslega farsæld og kostir evrunnar fyrir Íslendinga eru óljósari en áður í kjölfar efnahagshrunsins. Þetta segir Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands í samtali við Reuters fréttastofuna í dag. 24.11.2010 13:06
Margbrotinn eftir að hafa lent fyrir strætisvagni „Ég var á leiðinni í vinnustaðapartí í Hjálpræðishernum þegar þetta gerðist,“ segir starfsmaður Hjálpræðishersins, Þorsteinn K. Kristiansen, sem varð fyrir strætisvagni á laugardagskvöldið. Þorsteinn fót- og handleggsbrotnaði og þarf líklega að vera í gifsi næstu fimm vikurnar. 24.11.2010 12:38
Fjölmargir vilja hjálpa Tryggva Jóni Hópur manna og fyrirtækja brást skjótt við fregnum af vandræðum Tryggva Jóns, fimmtán ára drengs í hjólastól á Akureyri, og vilja freista þess að breyta heimili hans þannig að hann geti áfram búið hjá fjölskyldu sinni. 24.11.2010 12:20
Óheimilt að eigna drykknum lækningarmátt Bónus Engifer heilsudrykkur með mintu & lime hefur verið innkallaður af Matvælastofnun þar sem á umbúðum drykkjarins er hann sagður lækna og fyrirbyggja ýmsa sjúkdóma. 24.11.2010 11:06
Benedikt gerir sína fyrstu kvikmynd „Þetta er tvö hundruð milljóna króna mynd sem fjallar um samskipti manna og hesta,“ segir Benedikt Erlingsson, sem hefur tökur á myndinni Hross um oss næsta vor. 24.11.2010 11:00
Arnaldur á toppnum - Þorgrímur Þráinsson í því þriðja Rithöfundurinn Arnaldur Indriðason heldur toppsæti sínu á metsölulista Eymundsson. Bók Arnaldar, Furðustrandir er í fyrsta sætinu en á eftir kemur Jólasyrpan 2010 frá Walt Disney. 24.11.2010 10:47
Biskupi sparkað fyrir að móðga krúnuna Breskum biskupi hefur verið vikið úr embætti í óákveðinn tíma vegna óviðurkvæmilegrar bloggfærslu um hjónaband þeirra Vilhjálms prins og Kate Middleton. 24.11.2010 10:31
Íslendingur í N-Kóreu: Kominn til Kína Nítján ára drengur, Ævar Ingi Matthíasson, sem staddur var í Norður-Kóreu þegar heimamenn gerðu stórskotaliðsárás á Suður-Kóreu í gærmorgun, er nú kominn yfir landamærin til Kína þar sem faðir hans er búsettur. Móðir Ævars gerði utanríkisráðuneytinu viðvart í gær og gerði sþað endiráði Íslands í Peking viðvart en það sér um sendiráðsstörf gagnvart Norður-Kóreu. 24.11.2010 10:25
Íslendingur í Seoul: Stríð skilar aldrei neinu „Nánast allir mínir vinir hafa þjónað þessari herskyldu eða eru að þjóna henni núna og ef það kæmi til stríðs yrðu þeir allir kallaðir til," segir segir Sverrir Örn Sverrisson, kóreskunemi sem dvalið hefur í Seoul síðan í ágúst. Allir karlmenn í Suður-Kóreu þurfa að þjóna herskyldu í 22 mánuði milli tvítugs og þrítugs. 24.11.2010 10:17
Flugmóðurskip á leið til Kóreuskaga Bandaríska flugmóðurskipið George Washington er á leið að Kóreuskaga ásamt fjölmörgum beitiskipum, tundurspillum og freigátum. Flotadeildin mun taka þátt í heræfingum með flota Suður-Kóreu. 24.11.2010 09:59
Blindir efast um lögmæti kosninganna „Það er grundvallarregla allra lýðræðisríkja að menn fái notið kosningaréttar síns við frjálsa kosningu og að þeir fái á kjörstað notið réttinda sinna til að kjósa fulltrúa sína með leynilegri kosningu." Þetta segir í bréfi sem sent hefur verið til dóms- og mannréttindaráðherra frá lögmanni blindra og sjónskertra einstaklinga sem krefjast þess að mannréttindi þeirra verði virt í kosningum til stjórnlagaþings. Ragnar Aðalsteinsson er lögmaður þeirra fimm einstaklinga sem um ræðir. 24.11.2010 09:09
Miðbaugsmaddaman: Kaupa vændi fyrir syni sína „Íslenskir kúnnar eru allt öðruvísi en viðskiptavinir í öðrum heimshlutum. Þeir eru auðveldir og koma vel fram við mann. Margir þeirra eru bara einmana og hafa jafnvel misst eiginkonu sína. Þeir þrá snertingu og vináttu,“ segir Catalina Mikue Ncoco í bókinni Hið dökka man – saga Catalinu, sem kemur út á föstudaginn. Catalina situr í kvennafangelsinu í Kópavogi þar sem hún afplánar þungan dóm, rúm fimm ár, meðal annars fyrir hórmang en hún rak á árunum 2006 til 2009 umfangsmikla vændisstarfsemi á Íslandi. 24.11.2010 09:00
Innbrot í Bankastræti Brotist var inn í veitingahús við Bankastræti í nótt. Þjófavarnakerfi fór í gang og öryggisvörður kom á vettvang skömmu síðar, en þá var þjófurinn horfinn. Hann virðist engu hafa stolið. 24.11.2010 08:02
Lögregla kölluð til vegna hávaða í tölvuleik Íbúar í fjölbýlishúsi í Reykjavík vöknuðu upp við þann vonda draum í nótt, að svo virtist sem verði væri að drepa einhvern í húsinu. 24.11.2010 07:58
Námumennirnir á Nýja Sjálandi taldir af Allir námumennirnir 29 sem lokuðust inn í Pike River námunni í suðurhluta Nýja Sjálands fyrir fimm dögum síðan eru nú taldir af. 24.11.2010 07:48
Allsherjarverkfall lamar Portúgal í dag Boðað hefur verið til allsherjarverkfalls í Portúgal í dag og vonast verkalýðsfélög landsins til þess að það muni lama allt athafnalíf í landinu. 24.11.2010 07:45
Óvenjuleg slys í Árnessýslu Lögreglan í Árnessýslu hafði afskipti af tveimur óvenjulegum slysum í gærkvöldi. 24.11.2010 07:43
Ekkert dregur úr spennunni á Kóreuskaganum Ekkert dregur úr spennunni á Kóreuskaganum og ganga hótanir á víxl á milli stjórnvalda í Norður og Suður Kóreu. 24.11.2010 07:40
Starfsmannaveisla endaði með hópslagsmálum Þrír voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar, eftir að starfsmannaveisla fyrirtækis fór úr böndunum á veitingastað í miðborginni í nótt og hópslagsmál brutust út. 24.11.2010 07:38
Komu í veg fyrir að bátur strandaði við Löngusker Starfsmenn vaktstöðvar siglinga sáu á tækjum sínum í nótt, að lítill fiskibátur, sem var á leið inn til Hafnarfjarðar, var kominn af réttri leið og stefndi upp í Löngusker á Skerjafirði. 24.11.2010 07:21
Taugatrekkjandi að semja við Norður Kóreumenn Það getur tekið verulega á taugarnar að standa í samningaviðræðum við Norður Kórerumenn. Nokkrir vestrænir diplómatar hafa greint frá reynslu sinni í þeim efnum. 24.11.2010 07:17
Ríkisendurskoðun mun skoða Árbót Ríkisendurskoðun mun taka málefni Árbótar til skoðunar. „Við förum örugglega í gegnum þetta einhvern tímann, hvort sem það verður fyrr eða seinna, það er engin spurning,“ segir Sveinn Arason ríkisendurskoðandi. 24.11.2010 06:15
Þrýsti á um bótagreiðslur í nálega 40 tölvubréfum Björgvin Þorsteinsson, lögmaður Árbótarhjóna, sendi nálega fjörutíu tölvubréf á félagsmálaráðuneytið, flest til skrifstofustjórans Einars Njálssonar, frá 11. janúar á þessu ári og fram í októberlok, þar af helming eftir 1. september, þar sem hann þrýsti á um að málinu yrði lokið með greiðslu bóta. Hér á eftir fer úrval þeirra. 24.11.2010 06:00
Umferð flutningabíla á skólalóð mótmælt Foreldrar barna í Austurbæjarskóla telja öryggi þeirra á skólalóðinni ógnað af umferð flutningabíla frá Orkuveitu Reykjavíkur. 24.11.2010 06:00
Vilja leggja grunninn að nýjum stöðugleikasáttmála Forvígismenn vinnuveitenda og launþega, á opinbera og almenna vinnumarkaðnum, ætla að fara yfir komandi kjarasamningsgerð á fundi á morgun. Mun Magnús Pétursson ríkissáttasemjari stýra fundinum. 24.11.2010 06:00
Íhuga styttri afgreiðslutíma sundlauga Til greina kemur að breyta afgreiðslutíma sundlauga Reykjavíkurborgar til að hagræða í rekstri, Hugmyndir þess efnis frá Íþrótta- og tómstundaráði (ÍTR) verða til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs. 24.11.2010 06:00
Kjör og réttindi verða óbreytt Samkomulag um faglegt og fjárhagslegt fyrirkomulag á tilfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaganna var undirritað í gær. Frumvarp til laga um tilfærsluna verður lagt fyrir Alþingi á næstu dögum. Málefni fatlaðra færast til sveitarfélaganna 1. janúar 2011. 24.11.2010 05:45
Vonarstræti 12 á leið á næsta horn Hafinn er flutningur á byggingunum við Vonarstræti 12 yfir á nýjan stað á horni Kirkjustrætis og Tjarnargötu. Húsið hefur síðustu árin þjónað sem skrifstofa þingflokks Vinstri grænna en þar voru ýmsir flokkar áður. 24.11.2010 05:30
Gerði fyrst og fremst það sem embættismenn lögðu til „Það var mjög eðlilega að þessu máli staðið af minni hendi að öllu leyti," segir Árni Páll Árnason, þáverandi félagsmálaráðherra, í samtali við Fréttablaðið. „Málið kemur til kasta ráðuneytisins vegna þess að það nást ekki samningar. Það hafði alltaf verið gengið út frá því að semja um starfslok á milli Barnaverndarstofu og fólksins. Það var forsendan fyrir uppsögninni og gefin fyrirheit um það þegar Barnaverndarstofa segir upp samningnum," segir Árni Páll. 24.11.2010 05:30
Átta ára fangelsi fyrir dópsmygl Kona um fertugt var í gær dæmd í átta ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að reyna að smygla til landsins tæplega tuttugu lítrum af vökva sem innihélt amfetamínbasa. Önnur kona sem var ákærð fyrir sömu sakir, var sýknuð. 24.11.2010 05:30
Langur aðdragandi að ákvörðun Breta Þótt sú ákvörðun breskra stjórnvalda að beita lögum um eignafrystingu, sem kölluð hafa verið hryðjuverkalög, á Landsbankann haustið 2008 hafi komið fyrirvaralaust átti hún sér langan aðdraganda í Bretlandi. 24.11.2010 05:30
Vilja tvo stóra dómsali í húsi Silla og Valda Lausn á hluta húsnæðisvanda Héraðsdóms Reykjavíkur er í augsýn. Í bígerð er að dómurinn leigi eina hæð í Austurstræti 17 og leysi með því þörfina fyrir bætta starfsaðstöðu dómara, aðstoðarmanna og dómritara. Húsið er sambyggt húsi Héraðsdóms við Lækjartorg. Er ætlunin að opna á milli húsanna enda augljósir kostir því samfara. 24.11.2010 05:15
Úlpuþjófurinn ófundinn Stúlkan sem sást taka fimm úlpur úr fatahenginu í Valhúsaskóla í fyrramorgun var ófundin síðdegis í gær. Hún sást greinilega á öryggismyndavélum. 24.11.2010 05:00
Ferðavenjurnar hafa breyst Færri nota nú einkabílinn til að fara til og frá vinnu og færri grunnskólabörn eru keyrð í skólann en árin 2009 og 2008. Reiðhjól eru aftur á móti orðin vinsælli. Þetta kemur fram í árlegri ferðavenjukönnun Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar. 24.11.2010 04:15
Norður-Kóreumenn telja sig hafa verið í fullum rétti Norður-Kóreumenn telja sig hafa verið í fullum rétti þegar þeir gerðu árás á eyjuna Yeonpyeong í gær meðan heræfingar stóðu þar yfir á vegum Suður-Kóreumanna. 24.11.2010 04:00
Formaður fjárlaganefndar tjáir sig ekki um Árbótarmálið Oddný G. Harðardóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, vill ekki tjá sig um Árbótarmálið að svo stöddu. Henni hafi ekki gefist tóm til að kynna sér allar hliðar málsins, enda fjárlagavinnan í fullum gangi. Það hyggist hún þó gera. 24.11.2010 03:30
Siðbótar og rannsókna krafist vegna Árbótar Alþingismenn kröfðust þess í gær að Árbótarmálið yrði rannsakað. Stjórnarþingmenn kölluðu eftir bættri siðvitund og því að menn létu af kjördæmapoti. 24.11.2010 03:15
Íbúar flúðu í ofboði Bandaríkin fordæmdu árás Norður-Kóreumanna í gær. Robert Gibbs, blaðafulltrúi Hvíta hússins, skoraði á Norður-Kóreu að láta af árásum og sagði Bandaríkin staðráðin í að verja Suður-Kóreu. Bandaríkin eru með nærri 30 þúsund hermenn í Suður-Kóreu. 24.11.2010 03:00
Flatskjár og Nokia N8 í verðlaun í Vinaleik Vísis Vinaleikur Vísis heldur áfram og enn er til mikils að vinna fyrir þá sem fylgjast með Vísi á Facebook. Við vinningana hafa bæst flatskjár af flottustu gerð, nýi Nokia N8 síminn, tugir jólabóka og fleiri spennandi glaðningar. Frá og með morgundeginum verður dregið á hverjum degi til 20. desember. 24.11.2010 00:01
Brotnaði á höndum og fótum þegar strætó ók á hann Starfsmaður Hjálpræðishersins verður frá vinnu í fimm vikur eftir að strætisvagni var ekið á hann á laugardagskvöldið. Maðurinn var á hjóli þegar slysið varð en hann segir tillitsleysi ökumanna í garð hjólreiðafólks gríðarlegt. 24.11.2010 19:31
Björgunarsveitarmenn fundu hjálm Björgunarsveitarmenn fundu í kvöld hjálm sem tilheyrði einum af námuverkamönnunum 29 sem saknað hefur verið frá því á föstudag þegar sprenging varð í námu í Nýja Sjálandi. 23.11.2010 21:58
Drengurinn fundinn Aron Geir Ragnarsson, 13 ára drengur sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í dag, er kominn fram heill heilsu. Ekkert hafði spurst til Arons frá því á sunnudagskvöld. Lögreglan þakkar þeim sem aðstoðuðu við leit að honum. 23.11.2010 21:32
Viðræður um fríverslun við Rússa hefjast á næsta ári Össur Skarphéðinsson, utanríkisviðskiptaráðherra, staðfesti í dag fyrir Íslands hönd að viðræður um fríverslunarsamning við Rússland hefjist í byrjun næsta árs. Staðfestingin fór fram á ráðherrafundi EFTA-ríkjanna í Genf, og samhliða staðfestu EFTA-ríkin viðræður um fríverslun við Hvíta-Rússland og Kasakstan, en ríkin eru í sameiginlegu tollabandalagi með Rússum, að því er fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 23.11.2010 19:31
Mikilvægt að svara með afgerandi hætti Herir Kóreuríkjanna eru báðir í viðbragðsstöðu fyrir frekari bardaga. Ef til þeirra kemur er óttast að þeir fari fljótlega úr böndunum. Forseti Suður-Kóreu segir mikilvægt að svara með afgerandi hætti. 23.11.2010 19:25