Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samstarfið gott Söngvarinn Friðrik Dór og sjónvarpsmaðurinn Steindi gáfu nýverið út nýtt lag saman. Þeir segja að samstarfið hafi gengið vel. Rætt var við þá í þættinum Ísland í dag að loknum fréttum í kvöld. 26.11.2010 21:31
Fjalli um geldingar á svínum Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað starfshóp til að leysa úr þeim vanda sem steðjar að svínarækt í landinu. Hópnum er m.a. ætlað að fjalla um aðbúnað og meðferð svína. 26.11.2010 21:02
Komnir heim Rússneskt Soyuz geimfar flutti í dag tvo Bandaríkjamenn og einn Rússa heim frá Alþjóðlegu geimstöðinni. Þeir höfðu verið um borð í geimstöðinni frá 15. júní. 2. nóvember síðastliðinn héldu þeir uppá að tíu ár voru liðin frá því geimfarar hófu fyrst störf í stöðinni. Þrír geimfarar eru þar enn um borð, einn Bandaríkjamaður og tveir Rússar. Þeir fá til sín þrjá nýja félaga 17. desember næstkomandi. 26.11.2010 20:49
Öflugir íþróttamenn á Seltjarnarnesi Nokkrir nemendur úr 10. bekk Valhúsaskóla gómuðu í dag skæðan úlpuþjóf sem hefur stundað það að koma í skólann og stela úlpum af nemendum. „Það eru miklir íþróttamenn á Seltjarnarnesi. Þeir stökkva bara af stað og fara létt með þetta,“ segir Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri Valhúsaskóla. 26.11.2010 20:38
Atli Gíslason mikið í fríi Atli Gíslason þingmaður Vinstri grænna hefur verið frá þingstörfum í bráðum átta vikur. Enginn núverandi þingmanna hefur eins oft og lengi tekið sér frí frá þingstörfum og Atli. Hann tók sér leyfi frá þingstörfum hinn 1. október, í þriðja sinn frá kosningum, og hefur nú verið 121 dag frá þingstörfum frá kosningunum í maí 2009. 26.11.2010 18:45
Hvað þýðir þessi aðlögun? Ísland er í aðlögun að Evrópusambandinu, það er að minnsta kosti afstaða Evrópusambandsins. En hvað þýðir þessi aðlögun? 26.11.2010 18:43
Minni niðurskurður Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu á næsta fjárlagaári verður 1,3 milljarðar í staðinn fyrir 3 milljarða líkt og boðað hafði verið. Þetta var meðal þess sem ákveðið var á ríkisstjórnarfundi í dag. 26.11.2010 18:26
Önnur sprenging í kolanámunni Enn ein sprenging varð í dag í kolanámunni á Nýja Sjálandi þar sem 29 námumenn fórust. Sprengingin varð næstum upp á mínútu einni viku eftir fyrstu sprenginguna sem talið er að hafi orðið námumönnunum að fjörtjóni. 26.11.2010 18:23
Skeljungur segir upp starfsfólki Átta starfsmönnum á skrifstofu olíufélagsins Skeljungs og tveimur fastráðnum starfsmönnum í dreifingu var sagt upp störfum í dag. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er meirihluti fólksins með margra ára starfsreynslu að baki. 26.11.2010 17:43
Árbótarmálið verður rætt í fjárlaganefnd Árbótarmálið verður rætt í fjárlaganefnd, segir Oddný Harðardóttir, formaður nefndarinnar, í samtali við Vísi. Fjáraukalög eru nú til umræðu í þinginu og ljóst er að bætur til hjónanna sem ráku meðferðarheimilið Árbót verða ekki greiddar nema að samþykki fáist fyrir því á fjáraukalögum. 26.11.2010 16:35
Hljóðskreytir stiklu fyrir stórmynd Lag eftir tónlistarmanninn Jóhann Jóhannesson hljómar undir stiklu að stórmyndinni Battle: Los Angeles. 26.11.2010 16:27
Miðbaugsmaddaman með allt að tólf milljónir á mánuði Vændiskonan Catalina Ncogo þénaði allt að tólf milljónir króna á mánuði samkvæmt öðrum höfundi bókarinnar Hið svarta man, eftir Þórarin Þórarinsson og Jakob Bjarnar Bjarnason. 26.11.2010 15:15
Pyntuðu mann við innheimtu fíkniefnaskuldar Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag Andra Vilhelm Guðmundsson í 2½ árs fangelsi og Gunnar Jóhann Gunnarsson í tveggja ára fangelsi fyrir fjölmörg brot. Meðal annars eru þeir ákærðir fyrir frelsissviptingu og líkamsárás. 26.11.2010 15:15
Dorrit kveikir á jólatré Kringlunnar Frú Dorrit Moussaieff mun tendra ljósin á jólatré Kringlunnar við hátíðlega áthöfn á laugardaginn klukkan þrjú. Við sama tækifæri hefst formlega góðgerðarsöfnun á jólapökkum undir jólatréð 26.11.2010 15:07
Bandaríkin jafna við Rússa í Afganistan Bandarískt herlið hefur í dag verið í Afganistan í níu ár og 50 daga. Það er nákvæmlega jafn lengi og Sovéski herinn hélt þar út á árunum 1979 til 1989. 26.11.2010 15:04
Óbeinar reykingar drepa 600 þúsund á ári Fyrsta alþjóðlega rannsóknin á áhrifum óbeinna reykinga leiðir í ljós að 600 þúsund manns látast árlega af völdum þeirra. Einn þriðji þeirra sem láta lífið vegna óbeinna reykinga eru börn, sem verða fyrir reyknum heimafyrir að því er fram kemur í rannsókninni sem unnin var af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni og náði til 192 landa. Rannsóknin leiðir einnig í ljós að óbeinar reykingar auki líkurnar á vöggudauða, lungnabólgu og astma hjá börnum. 26.11.2010 14:42
Segja Kóreu á barmi styrjaldar Norður-Kórea hóf í dag á ný skothríð í grennd við eyna sem ráðist var á fyrr í þessari viku. Ekki var þó skotið á eyna sjálfa heldur á haf út. 26.11.2010 14:41
Sonur Gunnars: „Pabbi, ég stend með þér alla leið“ Sonur Gunnars Þorsteinssonar, forstöðumanns Krossins, lýsir yfir fullum stuðningi við föður sinn vegna þeirra ásakana sem fram hafa komið um að hann hafi áreitt fjölda kvenna kynferðislega. Sonurinn, Guðni Gunnarsson, hefur sett inn á Facebook-síðu sína tengil á lagið „Vertu hjá mér" með kristilegu hljómsveitinni GIG, sem hann er sjálfur meðlimur í. Með tenglinum fylgja skilaboð til föður hans: „Textinn er fyrir dag eins og í dag... pabbi ég stend með þér alla leið.." 26.11.2010 14:31
Guðríður Arnardóttir: Gunnar fer með rangt mál „Hann fer bara með rangt mál,“ segir Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, sem svarar Gunnari Birgissyni, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, fullum hálsi. 26.11.2010 14:24
Tekur ekki afstöðu til málefna sem Alþingi á óafgreidd Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að hann muni ekki taka afstöðu til samninga eða málefna sem Alþingi á eftir að afgreiða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá forsetanum vegna Bloombergs viðtals þar sem fjallað er um Icesave samkomulag sem fullyrt hefur verið að sé í sjónmáli. 26.11.2010 14:13
Sænskir skattgreiðendur til aðstoðar Kristjáni Ra og Árna Sænska ríkið þurfti að hlaupa undir bagga til að starfsmenn fyrirtækisins 3 Sagas, sem er í eigu félaganna Kristjáns Ra Kristjánssonar og Árna Þórs Vigfússonar, fengu greitt. 26.11.2010 13:36
Biðst afsökunar á að hafa flutt inn notuð reiðtygi Karlmaður sem stöðvaður var í tollinum í fyrradag með notuð reiðtygi segir að um hugsunarleysi hafi verið að ræða. Matvælastofnun og Landssamband hestamanna líta málið grafalvarlegum augum enda hætta á að smitsjúkdómar geti borist hingað til lands með þessum hætti. 26.11.2010 13:19
Brestir í greiðsluaðlögunarúrræðinu Umboðsmaður skuldara telur að dómur Hæstaréttar, frá því í gær, um að kröfuhöfum sé heimilt að ganga að ábyrgðarmönnum einstaklinga sem gengist hafa undir nauðasamning til greiðsluaðlögunar sýnir hugsanlega bresti í því úrræði sem greiðsluaðlögun á að vera. 26.11.2010 12:58
Minnsta utankjörfundaraðsókn síðastliðinn áratug á Suðurnesjum Atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna stjórnlagaþingskosninga er lokið hjá sýslumanninum í Keflavík. 26.11.2010 12:34
Indefence spyr ríkisstjórn um nýtt Icesave samkomulag Indefence-samtökin hafa sent stjórnvöldum spurningalista vegna frétta um að ríkisstjónin hafi á undanförnum dögum kynnt nýtt Icesave samkomulag fyrir hagsmunasamtökum atvinnulífsins. 26.11.2010 12:30
Bændur gelda ódeyfð lömb með töngum Dæmi eru um að íslenskir bændur noti svokallaðar geldingatangir til að gelda lambhrúta og kálfa án deyfingar. Leyfilegt er að selja tangirnar til almennings. Dýralæknar einir hafa heimild til að gefa dýrum deyfilyf og hafa sömuleiðis einir aðgang að þeim lyfjum. Í drögum að nýjum dýraverndarlögum verður lagt til að aðeins verði heimilt að selja tangirnar dýralæknum. Þetta er viðleitni til að tryggja að dýrin séu alltaf deyfð fyrir aðgerð. 26.11.2010 12:27
Vildu koma í veg fyrir brottflutning hersins með stuðningi við stríð Stuðningur Íslands við innrás Bandaríkjamanna í Írak árið 2003 var til að koma í veg fyrir að Bandaríkjamenn lokuðu herstöðinni á Miðnesheiði. Þetta sýnir minnisblað úr utanríkisráðuneytinu. 26.11.2010 12:17
Um fjórtán þúsund atvinnulausir - SA segir ástandið ólíðandi Um hádegisbil í gær voru 13.923 án atvinnu á Íslandi skv. vef Vinnumálastofnunar. 26.11.2010 12:15
Stjórnlagaþing: Fjölmenni í Laugardalshöll í morgun Fólk hefur streymt að Laugardalshöll í morgun þar sem utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefur farið fram vegna kosninganna til stjórnlagaþings sem fram fara á laugardaginn. 26.11.2010 12:03
Geir ritaði dómsmálaráðherra bréf Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, vill að dómsmálaráðuneytið veiti sér nánari upplýsingar um aðkomu saksóknara Alþingis að samningu frumvarps um breytingar á lögum um landsdóm. 26.11.2010 11:48
Bandaríkjamenn dauðhræddir við diplomatapósta Bandarísk stjórnvöld eru nú að búa bandalagsþjóðir sínar undir leka á tæplega þrem milljónum tölvupósta sem hafa farið á milli utanríkisráðuneytisins og sendiráða Bandaríkjanna undanfarin ár. 26.11.2010 11:44
„Þetta er pólitískur ruddaháttur af verstu sort“ Bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, Gunnari Birgissyni, var vísað út af fundi eftir bæjarstjórnarfund á þriðjudaginn þegar hefja átti vinnu að fjárhagsáætlun bæjarins. Gunnar fullyrðir þetta sjálfur í samtali við Vísi. 26.11.2010 11:39
Grunnskólabörn gómuðu úlpuþjófinn skæða Skólabörn í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi hlupu uppi skæðan úlpuþjóf sem laumaðist inn í skólann í morgun. Stúlkan var að skoða úlpur sem hún hefur sennilegast ætlað stela. Þessi sama stúlka náðist á öryggismyndavél í skólanum á mánudag, en þá er talið að hún hafi stolið fimm 66° Norður úlpum. Slíkar úlpur eru dýrar. Þær geta kostað allt upp undir 70 þúsund krónur. 26.11.2010 11:12
Vill ákvæði um dýravernd í stjórnarskrá Íslands Dýravernd er fyrir borð borin og setja þarf ákvæði í stjórnarskrá til að tryggja velferð dýra á Íslandi. Þetta er mat Árna Stefáns Árnasonar sem er að ljúka við meistararitgerð sína um íslensku dýraverndarlögin, við lagadeild Háskólans í Reykjavík. 26.11.2010 10:25
Auglýsingastofa í mál við Framsóknarflokkinn Auglýsingastofan Gott fólk hefur höfðað skuldamál í Héraðsdómi Reykjavíkur gegn Framsóknarflokknum vegna reikninga sem deilt er um. 26.11.2010 10:01
Árni Johnsen vill 10 þúsund milljarða frá Bretum Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að ríkisstjórnin höfði mál gegn breska ríkinu vegna hryðjuverkalaganna sem beitt var gegn Íslendingum við bankahrunið. Þá vill hann að Atlantshafsbandalaginu og Evrópusambandinu fyrir afskiptaleysi þeirra i málinu. 26.11.2010 10:00
Ríkisstjórnin hefur skipað um 250 nýja vinnuhópa Alls hafa 252 nýjar nefndir, ráð, verkefnisstjórnir, starfshópar og aðrir hópar verið skipaðir á vegum ráðuneytanna frá því 1. febrúar 2009. 26.11.2010 09:30
Langflest fyrirtækja nota tölvur Næstum öll fyrirtæki með 10 starfsmenn eða fleiri nota tölvur og net við starfsemi sína, samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Það gera einnig um 94% fyrirtækja með 2-9 starfsmenn og 82% einstaklingsfyrirtækja. Vefsíða er aðgengileg hjá 38% íslenskra fyrirtækja og í 78% tilvika hjá fyrirtækjum með fleiri en 10 starfsmenn. 26.11.2010 09:05
Kallað í lögreglu vegna litfagurrar landnámshænu Lögreglunni á Selfossi barst í gær tilkynning um lausagöngu fiðurfénaðar í Hveragerði. Þaðan hringdi húsmóðir og sagði að litfögur landnámshæna var að spranga um í garðinum sínum og vildi að lögreglan skærist í leikinn. 26.11.2010 08:25
Tvö sjúkraflug frá Akureyri Tvö sjúkraflug voru farin frá miðstöð sjúkraflugs á Akureyri í gær, og eru sjúkraflugin í ár því komin yfir 400. 26.11.2010 07:37
Stríðsástand í einu fátækrahverfa Rio de Janeiro Stríðsástand hefur ríkt í fátækrahverfinu Vila Cruzeira í borginni Rio de Janeiro í Brasilíu undanfarna daga en þar hafa vopnuð fíkniefnagengi átt í skotbardögum við lögregluna. 26.11.2010 07:28
Abba stjarna tapar dómsmáli Anni-Frid Reuss, betur þekkt sem Abba stjarnan Frida, hefur tapað dómsmáli gegn Marcus Bongart leiðtoga qigong musterisins í Svíþjóð. 26.11.2010 07:21
Hljómflutningstækjum og flatskjám rigndi úr bílnum Lögreglan á Selfossi handtók tvo innbrotsþjófa undir morgun eftir að þeir höfðu brotist inn í að minnsta kosti tvo sumarbústaði í Grímsnesi í nótt. 26.11.2010 07:19
Um 600 þúsund deyja árlega af óbeinum reykingum Ný alþjóðleg rannsókn leiðir í ljós að óbeinar reykingar valda dauða um 600 þúsund manns á heimsvísu á hverju ári. 26.11.2010 07:15
The Economist segir tímabært að Ítalir losi sig við Berlusconi Hið virta tímarit The Economist segir að tími sé til kominn að Ítalir losi sig við Silvio Berlusconi forsætisráðherra sinn. 26.11.2010 07:13