Fleiri fréttir

Ágreiningur innan menntaráðs um trú

Meirihluti menntaráðs Reykjavíkur hefur lagt fram umsögn á breytingartillögum mannréttindaráðs á samstarfi leik- og grunnskóla í Reykjavík við trúar- og lífsskoðunarhópa.

Krónunni verður ekki kastað fyrir 2015

Íslenska krónan fylgir þjóðinni næstu árin, burtséð frá því hvort landið gengur í Evrópusambandið eða ekki. Um þetta voru framsögumenn sammála í gær á morgunfundi Íslenskra verðbréfa í Reykjavík.

Höfum tækifæri til að endurskoða allt

Þórunn Sveinbjarnardóttir vill breytingar innan þings sem utan. Björn Þór Sigbjörns­son settist niður með henni og spurði hana út í nokkur mál.

Fimm konur saka Gunnar í Krossinum um kynferðisbrot

Fimm konur hafa stigið fram og sakað Gunnar Þorsteinsson, forstöðumann trúfélagsins Krossins, um að hafa brotið á þeim kynferðislega. Brotin eru samkvæmt lýsingum kvennanna fyrnd að lögum sökum þess hversu langt er liðið frá því að þau áttu sér stað.

Ekki lægri í næstum sjö ár

Vísitala neysluverðs stóð svo til í stað á milli mánaða, hækkaði um 0,05 prósent, og mælist verðbólga nú 2,6 prósent, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Höfnuðu því að matsnefnd ákvæði bætur

Árbótarhjón höfnuðu í desember í fyrra tillögu Barnaverndarstofu um að deilu þeirra yrði vísað til bindandi matsnefndar ef allt um þryti. Lögmaður þeirra segir að uppsögn þjónustusamningsins hafi verið ólögmæt, enda stjórni Barnaverndarstofa sjálf eftirspurninni að meðferðarheimilum.

Ótti um að harðari átök séu í uppsiglingu

Kim Tae-young, varnarmálaráðherra Suður-Kóreu, sagði af sér í gær, tveimur dögum eftir harkalega árás Norður-Kóreuhers á eyjuna Yeongpyeong sem kostaði fjóra menn lífið.

Hafnar gagnrýni á skipan sonar síns

Jón Bjarnason, sjávar- og landbúnaðarráðherra var gagnrýndur á Alþingi í gær fyrir að skipa Bjarna son sinn í starfshóp um dragnótaveiðar í Skagafirði. Efaðist Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, um hæfi Bjarna vegna fyrri aðkomu hans að málaflokknum sem sveitarstjórnarmaður og vildi að ráðherrann svaraði því hvort hann teldi skipan sonarins vera góða stjórnsýslu.

Fangelsisstjóri tímabundið leystur frá störfum

Geirmundi Vilhjálmssyni, forstöðumanni í fangelsinu Kvíabryggju, hefur verið veitt tímabundin lausn frá störfum á meðan að Ríkisendurskoðun kannar bókhald fangelsins. Þetta kemur fram á vef dómsmálaráðuneytisins.

Fólk fór að streyma eftir kvöldfréttir

„Röðin er núna 35 mínútur vorum við að heyra,“ segir Bergþóra Sigmundsdóttir hjá kjörstjórn en langar biðraðir hafa verið frá því klukkan sjö í kvöld við Laugardalshöllina þar sem utankjörfundarkosning fer fram. Biðtími kjósenda hefur farið allt upp í einn klukkutíma.

Íslendingur vann rúma milljón í póker

Sævar Ingi Sævarsson van rúma eina milljón króna á stóru pókermóti sem nú stendur yfir í Barcelona á Spáni. Hann endaði í 98. sæti af 758 keppendum en mótið er hluti af Evrópusku Pókermótaröðinni (EPT). Að taka þátt í svona móti kostar 5.300 evrur, eða um 800 þúsund krónur. Sævar greiddi þó ekki fullt gjald heldur vann hann sér þátttökurétt á undanmóti á netinu.

Seldu merki í minningu um Hlyn Þór

Nokkrir krakkar úr knattspyrnudeild ÍR, tóku þátt í merkjasölu Hjartaheilla á dögunum. Með því vildu þau heiðra minningu Hlyns Þórs Sigurðssonar sem lést úr hjartaáfalli fyrir ári síðan, 25 október 2009, á íþróttavelli ÍR.

Blindir fá að velja aðstoðarmann að eigin vali

„Það er komin niðurstaða í þetta sem ég held að sé góð sátt um," segir Ögmundur Jónasson dómsmála- og mannréttindaráðherra. Hann segir að sáttin byggist á því að blindir muni geta greitt atkvæði í kosningunum til stjórnlagaþings á laugardaginn án þess að fulltrúi kjörstjórnar verði með inn í kjörklefanum. „Þeir fara því einir í klefann með aðstoðarmann að eigin vali," segir Ögmundur.

Brást illa við gagnrýninni

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og lanbúnaðarráðherra, var gagnrýndur á Alþingi í dag fyrir að ráða son sinn til að fara yfir skýrslu Hafrannsóknarstofnunar um fiskveiðimál. Ráðherra brást illa við gagnrýninni.

Ígrip stjórnvalda í atvinnulífið hættuleg þróun

Ígrip stjórnvalda í atvinnulífið hér á landi er hættuleg þróun en slík afskipti eru eitt helsta einkenni landa sem fara úr því að vera auðug í að verða fátæk á stuttum tíma. Þetta er mat Jóns Daníelssonar, hagfræðings.

„Ég er niðurbrotinn maður“

Gunnar Þorsteinsson í Krossinum segist niðurbrotinn vegna ásakanna um að hann hafi brotið gegn fimm konum. Á meðal þeirra sem saka Gunnar um kynferðislega áreitni er tvær fyrrverandi mágkonur hans

Íhuga að leggja fram kæru

Landssamband hestamanna íhugar að leggja fram kæru á hendur manni sem tekinn var með notuð reiðtyg í tollinum. "Grafalvarlegt mál" segir formaðurinn.

Íslendingar bjarga barnslífum

„Með þátttöku í degi rauða nefsins undanfarin tvö skipti hafa Íslendingar bjargað ótal barnslífum og veitt börnum um allan heim tækifæri sem þau hefðu annars ekki fengið og von um betra líf,“ segir Stefán Ingi Stefánsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Föstudaginn 3. desember er Dagur rauða nefsins og mun þá fara fram stærsta sjónvarpssöfnun íslandssögunnar á Stöð 2.

17 ára stúlka sýknuð af röngum sakargiftum

Hæstiréttur staðfesti sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur í dag þar sem stúlka var ákærð fyrir að hafa haft uppi alvarlegar og rangar sakargiftir með því að hafa með framburði fyrir lögreglu og fyrir dómi leitast við að koma því til leiðar að fjórir menn yrðu sakaðir um kynferðisbrot gegn henni.

Árs fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás á Apótekinu

Hæstiréttur dæmdi í dag 24 ára gamlan karlmann í árs fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir að hafa ráðist á karlmann þar sem hann lá á gólfi veitingastaðarins Apóteksins við Austurstræti og sparkað oftar en einu sinni í höfuð hans. Árásin átti sér stað í febrúar í fyrra. Við árásina brotnuðu bein í efri kjálka, nef- og kinnbeini brotnuðu og tennur efri og neðri kjálka. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt manninn í 8 mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundna.

Stakk mann í nauðavörn - Hæstiréttur klofnaði

Hæstiréttur mildaði í dag dóm yfir karlmanni sem var dæmdur fyrir að stinga mann í síðuna með hníf í nóvember 2008. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa haft fíkniefni undir höndum.

Um 83% á móti lögleiðingu kannabisefna

Um 83% svarenda í skoðanakönnun MMR eru andvíg lögleiðingu á neyslu kannabisefna en um 17% eru því fylgjandi. Hins vegar eru um 51% karla á aldrinum 18-29 ára fylgjandi lögleiðingu efnisins. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar sem gerð var í byrjun nóvember.

Örfá kúabú með lífræna vottun

Fjögur kúabú hér á landi eru með lífræna vottun. Til að fá slíka vottun þarf að uppfylla mun strangari skilyrði um aðbúnað dýra en almennar reglur segja til um. Þannig er kúm á búum með lífræna vottun hleypt út eins oft og veður leyfir, árið um kring. Einnig er gert ráð fyrir að þegar kýrnari eru inni þá geti þær hreyft sig meira en gengur og gerist á kúabúum.

Fordæma smygl á notuðum reiðtygjum

Helstu hagsmunaaðilar í hestamennsku fordæma smygl á notuðum reiðrygjum og óhreinum reiðfatnaði til landsins og harma að enn ríki slikt skilningsleysi á hættunni sem það hefur í för með sér fyrir heilbrigði

Fundust á lífi eftir 50 daga á reki

Þrír táningsdrengir sem taldir voru af eftir að þeir týndust á Kyrrahafi fundust á lífi fimmtíu dögum eftir að síðast hafði frést af þeim. Drengirnir eru frá Tokelau eyjum sem lúta stjórn Nýja-Sjálands og lifðu þeir á kókoshnetum, regnvatni og sjófugli sem þeim tókst að handsama. Túnfiskveiðimenn sigldu fram á drengina sem voru um borð í litlum álbáti og fögnuðu þeir innilega þegar hjálpin barst. Ítarleg leit hafði verið gerð að drengjunum og eftir að hún skilaði engu höfðu minningarathafnir verið haldnar í heimabæ þeirra.

Ölvaður skipstjórnandi sigldi á annað skip

Skipstjórnandi á Vestfjörðum hefur verið dæmdur fyrir brot á siglingalögum með því að hafa stjórnað bát undir áhrifum áfengis og orðið valdur að árekstri bátsins við annan bát við svonefndan Hrygg út af Kópanesi. Atvikið átti sér stað í ágústbyrjun á þessu ári og handtók lögreglan manninn við komu hans ti hafnar á Bíldudalshöfn.

S-Kórea: Varnarmálaráðherrann segir af sér

Varnarmálaráðherra Suður-Kóreu sagði af sér í dag en hann hefur setið undir gagnrýni um að hafa ekki brugðist nægilega hart við því þegar Norður-Kóreumenn hófu stórskotaliðsárás á eyju sem tilheyrir Suður-Kóreu. Forseti landsins ætlar að tilkynna um arftaka ráðherrans á morgun.

Sveitarstjóri á Húsavík: Þetta er gleðidagur

„Fyrir það fyrsta þá er þetta er gleðidagur að sameiginlega matinu er lokið,“ segir Begur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, um niðurstöðu Skipulagsstofnunnar sem Vísir greindi frá í dag.

Katrín Jakobsdóttir ólétt

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra ber barn undir belti. Þetta staðfestir hún í samtali við Vísi. „Ég var bara að segja þingflokknum frá þessu í gærkvöldi," sagði Katrín þegar Vísir náði tali af henni í morgun. Hún segir að þetta þýði að hún muni þurfa að taka sér leyfi frá störfum í maí ef að allt gengur að óskum.

Besti flokkurinn ætlar að skoða hvort Bubbi er bestur

„Við þurfum bara að sjá hvort hann samræmist því að vera bestur eða ekki," segir framkvæmdarstjóri og varaformaður Besta flokksins um Bubba Morthens, sem hefur lýst því yfir að hann áhuga á því að bjóða sig fram fyrir flokkinn. Besti flokkurinn hefur rætt það innan sinna raða að bjóða fram á landsvísu.

Ingibjörg Guðmundsdóttir er látin

Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og fyrrverandi varaforseti Alþýðusambands Íslands, lést í gær á Landspítalanum við Hringbraut, 61 árs að aldri.

Jarðskjálfti í Vatnajökli

Jarðskjálfti sem mældist um 3.9 á Richter kvarðanum reið yfir í Vatnajökli kortér fyrir tíu í morgun. Skjálftinn varð á eins kílómetra dýpi um ellefu kílómetra austur af Hamrinum og norðvestan við Grímsvötn.

Kýr lokaðar inni árið um kring - bíta aldrei ferskt gras

Mjólkurkýr eiga samkvæmt reglugerð að fá átta vikna útivist á ári. Því er leyfilegt að þeim sé haldið inni samfellt tíu mánuði á ári. Þó er misbrestur á því að þær fái þessa tveggja mánaða útivist sem þeim ber, eins og Vísir greindi frá fyrr í dag en Matvælastofnun hefur kært níu kúabú til lögreglunnar fyrir að brjóta þessar reglur.

Gróf tilraun til smygls á notuðum reiðtygjum

Notuð reiðtygi og óhreinn reiðfatnaður fundust í gær við tollskoðun á bíl sem var að koma erlendis frá með gámaflutningaskipi. Bíllinn sem er með íslenskt skráningarnúmer var einnig mjög óhreinn og var greinilega að koma beint úr umhverfi hesta. Um er að ræða brot á lögum um dýrasjúkdóma og vörnum gegn þeim, þar sem skýrt er kveðið á um bann við slíkum innflutningi. Frá þessu er greint á vef Matvælastofnunar.

Kastaðist út úr bílnum við árekstur

Harður árekstur varð á gatnamótum Bústaðavegar og Háaleitisbrautar nú rétt eftir hádegi. Fjórir voru fluttir á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu kastaðist einn maðurinn út úr bílnum og er hann með höfuðáverka. Ekki er vitað um tildrög slyssins.

Óska eftir fundi vegna Sjóvá sölunnar

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í viðskiptanefnd, þeir Sigurður Kári Kristjánsson og Guðlaugur Þór Þórðarson, hafa óskað eftir því að boðað verði til fundar í viðskiptanefnd þar sem farið verði yfir söluferlið á tryggingafélaginu Sjóvá sem nú hefur siglt í strand.

Jónína í þriðja sæti yfir mest seldu bækurnar

Ævisaga Jónínu Benediktsdóttur, sem Sölvi Tryggvason ritaði, er í þriðja sæti yfir mest seldu bækurnar á tímabilinu 15-21. nóvember. Það er matreiðslubókin Léttir Réttir Hagkaups eftir Friðriku Hjördídi Geirsdóttur, sem trónir á toppnum. Í öðru sæti er glæpasagan Furðustrandi eftir Arnald Indriðason.

Séra Sigurður vígslubiskup látinn

Séra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, andaðist á Landspítalanum í Reykjavík í morgun. Hann var 66 ára að aldri. Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er Arndís Jónsdóttir, skólastjóri. Þau eignuðust tvö börn, Stefaníu og Jón Magnús. Fóstursonur þeirra, Rúnar Kristjánsson, lést árið 2000.

Sjá næstu 50 fréttir