Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjórir þingmenn vildu ákæra Geir en ekki Ingibjörgu Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Helgi Hjörvar og Skúli Helgason greiddu öll atkvæði með ákæru á hendur Geir Haarde en gegn ákæru á hendur fyrrverandi ráðherrum Samfylkingarinnar úr ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar sem var við völd í aðdraganda hrunsins. 28.9.2010 18:31
Hreyfingin: Niðurstaðan er klækjapólitík Þingmenn Hreyfingarinnar segja niðurstöðu Alþingis í dag klækjapólitík og að flokkspólitískir hagsmunir hafi ráðið för. 28.9.2010 18:31
Geir segir ákæruna jaðra við pólitískar ofsóknir Ákæran sem Alþingi samþykkti í dag er pólitískt upphlaup og jaðrar við það að vera pólitískar ofsóknir, sagði Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í samtali við RÚV um ákærurnar gegn sér. 28.9.2010 18:16
Jóhanna Sigurðardóttir: Ekkert tilefni til þess að ákæra Geir „Mér þykir það miður að Geir H. Haarde hafi verið ákærður og fari fyrir landsdóm. Mér þykir það mjög miður því mér þykir ekkert tilefni til þess,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra í viðtali í útvarpsfréttum Ríkisútvarpsins. 28.9.2010 18:07
Fundu maríjúana í Breiðholti Fíkniefni fundust við húsleit í fjölbýlishúsi í Breiðholti á föstudag. Í tilkynningu frá lögreglu segir að um hafi verið að ræða nokkur hundruð grömm af marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á stera og töluvert af peningum sem lögregla segir að grunur leiki á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. 28.9.2010 17:31
Geir dreginn fyrir landsdóm - restin slapp Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra verður einn ákærður og dreginn fyrir landsdóm en Alþingi samþykkti ekki ákærur gegn hinum þremur ráðherrunum. 28.9.2010 17:14
Ingibjörg Sólrún: Vissi ekkert við hverju ég átti að búast „Ég ætla ekkert að tjá mig um þetta í dag,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, en Alþingi felldi þá tillögu að henni skyldi verða stefnt fyrir landsdóm. 28.9.2010 17:12
Björgvini ekki heldur stefnt fyrir landsdóm Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðherra verður ekki stefnt fyrir landsdóm samkvæmt niðurstöðum úr atkvæðagreiðslu á Alþingi. 28.9.2010 16:55
Árni sleppur líka Árni M. Mathiesen fyrrverandi fjármálaráðherra verður ekki stefnt fyrir landsdóm samkvæmt niðurstöðum úr atkvæðagreiðslu á Alþingi. 28.9.2010 16:49
Beina útsendingin með Chomsky að hefjast í Háskólabíó Nú styttist í að bein útsending með bandaríska rithöfundinum Noam Chomsky hefjist í sal eitt í Háskólabíó. Aðgangur að fyrirlestrinum er ókeypis en gríðarlegur áhugi er fyrir honum. 28.9.2010 16:45
Ingibjörg Sólrún sleppur við ákæru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, verður ekki stefnt fyrir landsdóm samkvæmt niðurstöðum úr atkvæðagreiðslum á Alþingi. 28.9.2010 16:42
Geir H. Haarde ákærður Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra verður stefnt fyrir landsdóm samkvæmt niðurstöðum úr atkvæðagreiðslu á Alþingi sem var að falla. 28.9.2010 16:22
Allir þingmenn samþykktu skýrsluna - bein útsending Alþingi samþykkti skýrslu þingmannanefndar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis með öllum greiddum atkvæðum. Allir þingmennirnir 63 voru mættir í þingsal. 28.9.2010 16:08
Mun ekki hafa áhrif á samstarfið Steingrímur J. Sigfússon segir að verði tillaga um að draga fyrrverandi ráðherra fyrir Landsdóm felld á Alþingi hafi það ekki áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. 28.9.2010 15:50
Smástirni nálgast jörðu óðfluga Stjörnufræðingar hafa fundið smástirni sem gæti verið hættulegt jörðinni. Það fannst innan við mánuði áður en það fer hér framhjá. 28.9.2010 15:41
Svandís lýsir sig vanhæfa Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra hefur lýst sig vanhæfa til að fjalla um aðalskipulag Ölfuss 2002-2014, sem tekur meðal annars til Bitruvirkjunar. Það gerir hún vegna ummæla um Bitruvirkjun sem hún hefur látið falla á vettvangi borgarstjórnar Reykjavíkur og stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. 28.9.2010 15:40
Ásgerður Jóna vill verða ráðuneytisstjóri Umsóknarfrestur um embætti ráðuneytisstjóra efnahags- og viðskiptaráðuneytisins rann út á miðnætti. Á meðal umsækjenda er Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður Fjölskylduhjálpar Íslands og Sigrún Elsa Smáradóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi. 28.9.2010 15:34
Mega veita eftirför en hafa ekki hlotið þjálfun Tollgæslumönnum er heimilt að veita mönnum eftirför, þrátt fyrir að hafa ekki hlotið sérstaka þjálfun í forgangsakstri. Harður árekstur varð í morgun þegar Jeppi, sem tollayfirvöld eltu lenti framan á Strætisvagni. 28.9.2010 15:19
Tobba sagði upp - Svanur Már tekur við sem ritstjóri „Ég sagði upp, ég er búin að vera þarna síðan ég útskrifaðist, þetta var komið gott,“ segir Þorbjörg Marinósdóttir, betur þekkt sem Tobba, blaðamaður á Séð og heyrt. 28.9.2010 15:08
Umræðum lokið - atkvæðagreiðsla klukkan fjögur Þingmenn hafa nú lokið umræðum um hvort höfða beri málshöfðun gegn ráðherrum í hrunstjórninni svokölluðu. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra var síðust á mælendaskrá og eftir það var þingfundi frestað. Forseti boðaði síðan til næsta fundar klukkan fjögur í dag og hefst hann á atkvæðagreiðslu um málið. 28.9.2010 15:06
Eiríkur Jónsson rekinn af Séð og heyrt Eiríkur Jónsson ritstjóri Séð og heyrt hefur verið rekinn af blaðinu. Þetta staðfestir hann í samtali við Vísi.is. 28.9.2010 14:39
Rauði krossinn vill fá 3000 til að ganga til góðs Rauði kross Íslands óskar eftir 3.000 sjálfboðaliðum um allt land laugardaginn 2. október til að Ganga til góðs. Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að markmiðið sé að virkja tæplega 1 prósent af íslensku þjóðinni til að sameinast um eitt málefni og leggja sitt að mörkum til að byggja betri heim. 28.9.2010 14:18
Heimsstyrjöldinni lýkur á sunnudag Það eru að vísu 92 ár síðan byssurnar þögnuðu en fyrri heimsstyrjöldinni er þó ekki formlega lokið. Það verður ekki fyrr en á sunnudag þegar Þjóðverjar borga síðustu afborgun af stríðsskaðabótum sem bandamenn gerðu þeim að greiða samkvæmt Versalasamningnum. 28.9.2010 14:14
Búist við ákæru þegar rannsókn er lokið Rannsókn er komin langt á veg í máli mannsins sem hélt samnemendum sínum í gíslingu í herbergi á nemendabústöðunum á Hvanneyri í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er búið að taka skýrslur af að minnsta kosti þremur árásarþolum. Búist er við því að ákæra verði gefin út þegar rannsókninni er lokið. 28.9.2010 13:57
Smyglarinn laus úr haldi lögreglu Maðurinn sem lögregla veitti eftirför á sjöunda tímanum í morgun er laus úr haldi lögreglu. Hann verður boðaður í skýrslutöku síðar og er málið í rannsókn bæði hjá lögreglu og Tollgæslunni. Samkvæmt upplýsingum frá Tollgæslunni er maðurinn íslenskur og á „miðjum aldri". 28.9.2010 13:23
Bæjarráð fundaði um Landeyjahöfn Bæjarráð Vestmannaeyja kom saman nú í hádeginu til að fjalla um málefni Landeyjahafnar en þangað verður ekki siglt á næstu dögum vegna sandburðar og gosefna úr Eyjafjallajökli. Dýpkunarskipið Perlan er væntanlegt úr slipp í næstu viku en ölduspá er ekki hagstæð til dýpkunar að sögn Siglingastofnunar og því má búast við að hreinsun innsiglingarinnar taki nokkurn tíma. 28.9.2010 12:50
Sígaunar héldu 200 börnum í þrælkun Tuttugu og sex sígaunar eru nú fyrir rétti í Rúmeníu sakaðir um að hafa rænt á annaðhundrað börnum sem voru send til Vestur-Evrópu til þess að betla og stela. 28.9.2010 12:45
Össur: Mugabe um miðja nótt, mækinn lengi tottar Eftir ríkisstjórnarfund í morgun var Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra spurður út í mynd af honum sem var tekin á leiðtogaþingi Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku og vakti athygli víða. 28.9.2010 12:38
Svefnmótmæli við Alþingishúsið Hópur fólks ætlar að leggjast út við Alþingishúsið á fimmtudagskvöld og sofa þar í svefnpokum eða umvafin teppum. Með því vill hópurinn vekja stjórnvöld til lífsins um það sem í vændum sé þegar fjöldi Íslendinga missi heimili sín. 28.9.2010 12:03
Þórunn greiðir ekki atkvæði með ákærum Þingflokksformaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi umhverfisráðherra mun ekki greiða atkvæði með því að fyrrverandir ráðherrum verði stefnt fyrir landsdóm. Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar telur réttast að þegar verði boðað til kosninga. 28.9.2010 11:58
Skipverji tekinn með smygl á Bústaðarvegi Maðurinn sem starfsmenn Tollgæslunnar veittu eftirför á sjöunda tímanum í morgun sem endaði með árekstri á gatnamótum Búastaðarvegar og Háaleitisbrautar var með „talsvert magn af smyglvarningi“ í bifreið sinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Tollgæslunni. 28.9.2010 11:03
Hæstiréttur vísar úrskurði um níumenninga frá dómi Hæstiréttur hefur vísað frá dómi kröfu Ragnars Aðalsteinssonar, lögmanns níumenninganna svokölluðu sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi í Búsáhaldabyltingunni. Ragnar krafðist þess að máli þeirra yrði vísað frá þar sem settur ríkissaksóknari, Lára V. Júlíusdóttir, væri í ákveðnum trúnaðartengslum við kærandann, það er að segja Alþingi. Lára situr í bankaráði Seðlabanka Íslands og er þangað kosin af Alþingi. 28.9.2010 10:57
Kannabisfíklum fækkar á Vogi Nýjar tölur frá sjúkrahúsinu Vogi sýna að kannabisfíklum sem þangað sækja fækkaði á síðasta ári miðað við árin á undan. Fækun í þessum hópi hefur mælst síðustu fjögur ár og það á einnig við um fólk yngra en 20 ára sem leggst inn á Vog. Nýir kannabisfíklar hafa raunar ekki verið færri í 11 ár. 28.9.2010 10:17
Kengúra í óskilum Ökukennara í Danmörku brá heldur en ekki í brún þegar hann var á ferð með nemanda sínum við Ringsted. Hann þurfti að nauðhemla þegar kengúra stökk í veg fyrir bílinn. Það tók kennarann nokkra stund að sannfæra lögregluna um hvað hann hefði séð en eftir nokkra leit á svæðinu fannst kengúran. Enginn veit þó enn hver á dýrið og því hefur lögreglan í Ringsted lýst eftir kengúrueigandanum. 28.9.2010 09:50
Dæmdir til dauða fyrir barnasölu Tveir menn hafa verið dæmdir til dauða í austur Kína en þeir eru sakaður um að hafa rænt og síðan selt um 40 ungabörn. Börnin, sem öll eru drengir, eru frá héruðunum Sichuan og Yunnan og þeir voru flestir seldir til Fujian héraðs þar sem fólk borgar allt að 700 þúsund krónum fyrir dreng. 28.9.2010 08:55
Forsetinn rak borgarstjórann í Moskvu Dimitri Medvedev forseti Rússlands, hefur rekið borgarstjóra Moskvuborgar. Yuri Luzhkov hefur hingað til verið talinn til valdameiri stjórnmálamanna í Rússlandi en nú hafa þau skilaboð borist frá Kreml um að Luzkov njóti ekki lengur trausts forsetans. 28.9.2010 08:52
Margir sektaðir í Hlíðunum 25 bíleigendur voru sektaðir í nótt í Hlíðahverfi í Reykjavík fyrir að leggja bílum sínum ólöglega, og þá einkum upp á gangstéttir. 28.9.2010 08:48
Mótorhjólamaður slapp með skrekkinn á Akureyri Ökumaður á stóru mótorhjóli slapp með skrekkinn þegar hann ók upp á umferðareyju og hafnaði á ljósastaur á Akureyri í gærkvöldi. Hann sá of seint hvar viðgerðarmenn voru búnir að loka götu, sem hann ók eftir, og missti því stjórn á hjólinu. Það skemmdist mikið, en hann slapp ómeiddur. 28.9.2010 08:46
Engin flóð þrátt fyrir úrhelli Aftur gerði úrhellis rigningu í Landeyjum og í Þórsmörk í gærkvöldi. Um tíma var óttast að Svaðbælisá ryfi veginn við brúnna, en það slapp til og er farið að sjatna í henni aftur. 28.9.2010 08:45
N-Kórea: Sonurinn gerður að hershöfðingja Sonur Kim Jong-il leiðtoga Norður Kóreu, var í nótt hækkaður í tign innan stjórnkerfis landsins og gerður að hershöfðingja. Kim Jong-un er talinn vera hálfþrítugur en lítið er vitað um hann annað en að hann hafi menntað sig í Sviss. Fastlega er búist við því að hann taki við af föður sínum áður en langt um líður en pabbinn er sagður fársjúkur. 28.9.2010 08:42
Eftirför Tollgæslumanna endaði með árekstri Jeppi og strætisvagn lentu í hörðum árekstri á mótum Bústaðavegar og Háaleitisbtrautar á áttunda tímanum í morgun og voru ökumenn beggja bílanna fluttir á Slysadeild. 28.9.2010 07:54
Náðu til Keflavíkur á síðustu dropunum Tveir erlendir flugmenn lendu í mikilli tvísýnu í eins hreyfils Bonanza vél sinni, á leið sinni frá Grænlandi til Íslands í nótt, en þeir náðu til Keflavíkurflugvallar á síðustu bensíndropunum og lentu þar heilu og höldnu. Þeir höfðu hreppt meiri mótvind en þeir bjuggust við og lent í ísingu, þannig að mjög gekk á eldsneytið. 28.9.2010 06:51
Flestir vilja ljúka viðræðum og kjósa Tæplega tveir af hverjum þremur sem afstöðu tóku í skoðanakönnun Fréttablaðsins vilja frekar að aðlidarviðræðum við Evrópusambandið verði lokið og málið lagt í dóm þjóðarinnar. 28.9.2010 06:00
Fimmti hver piltur tekur tóbak í vörina Sprenging hefur orðið í sölu neftóbaks hér á landi síðustu ár. Samkvæmt sölutölum ÁTVR seldust í fyrra 23,8 tonn af neftóbaki, sem er rúm tvöföldun frá árinu 2003 þegar 11,6 tonn seldust. 28.9.2010 06:00
Sjö af tíu vilja að stjórnvöld afturkalli kvóta Mikill meirihluti landsmanna er fylgjandi því að stjórnvöld afturkalli fiskveiðiheimildir og úthluti þeim aftur með breyttum reglum að því er fram kemur í nýlegri könnun MMR. 28.9.2010 05:30