Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
CCP var þvingað í krónulán Hugbúnaðarfyrirtækið CCP, sem á og rekur fjölspilunarleikinn EVE Online, neyddist til að endurfjármagna víxil í krónum í gegnum MP banka í enda síðasta mánaðar. Fyrirtækið hefði viljað endurfjármagna lánið með útgáfu skuldabréfs í krónum og greiða til baka í dölum. Fjárfestar höfðu ekki áhuga. 7.11.2009 07:45
Um 50 þúsund hafa veikst Sóttvarnalæknir, Haraldur Briem, telur að um fimmtíu þúsund Íslendingar hafi veikst nú þegar af svínainflúensu. Hún sé ekki lengur í sókn, þegar litið er á landið í heild. 7.11.2009 06:00
Afskriftir nema 4-5 landsframleiðslum Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að afskriftir lána vegna bankahrunsins verði óhjákvæmilega þær mestu sem dæmi eru um í sögu vestrænna hagkerfa. „Líklega tapast fjórar til fimm landsframleiðslur í hagkerfinu,“ sagði Gylfi í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær. Tapið lendir að langmestu leyti á erlendum kröfuhöfum bankanna. 7.11.2009 06:00
Rafmagnsstrengur grafinn í sundur Flugstoðir þurftu að grípa til varaaflstöðvar til að knýja starfsemi sína um hádegið í gær. Grafa, sem var við störf á framkvæmdasvæði í Vatnsmýrinni, gróf rafmagnsstreng í sundur með fyrrgreindum afleiðingum. 7.11.2009 05:00
Óvissa um framhaldið hætti Abbas Bernard Kouchner, utanríkisráðherra Frakklands, segir það ógna friðnum geri Mahmoud Abbas alvöru úr yfirlýsingum sínum um að bjóða sig ekki fram til næsta kjörtímabils. 7.11.2009 04:00
Byssumaður á sjúkrahúsi Nidal Malik Hasan, majór í bandaríska hernum, var fluttur á sjúkrahús strax á fimmtudagskvöld eftir að hann hafði drepið þrettán manns og sært tugi annarra í herstöðinni Fort Wood í Texas. 7.11.2009 04:00
KSÍ rukkað fyrir kampavín og klám Óljóst er hvort fjármálastjóri Knattspyrnusambands Íslands framvísaði korti sambandsins á nektarstað í Sviss eða hvort það var tekið ófrjálsri hendi. Svissneski vefmiðilinn 20minutenonline.ch segir frá því að starfsmaður KSÍ og sambandið sjálft hafi verið rukkað fyrir jafnvirði átta milljóna króna eftir næturheimsókn starfsmannsins á strípibúllu í Zürich. Af þessu hafi spunnist dómsmál. 7.11.2009 03:00
Strætó bjóði út allan rekstur strætisvagna Rekstur á strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu verður boðinn út til einkaaðila, verði farið að tillögum Par-x viðskiptaráðgjafar IBM, sem skilað hefur skýrslu til stjórnar Samtaka sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu. Mikill hallarekstur hefur verið á rekstri byggðarsamlagsins Strætó bs. Sveitarfélögin sem eiga Strætó leggja nú afar mikla áherslu á að þau þurfi ekki að bera neinar viðbótar byrðar vegna strætisvagnarekstursins. Meðal annars hefur verið brugðist við því með ákvörðun um að Strætó kaupi enga nýja vagna á næsta ári. 7.11.2009 02:00
Þrjúþúsund minnkar drápust í Skagafirði Um þrjúþúsund minkar hafa drepist á minkabúinu á Skörðugili í Skagafirði á einni viku. 6.11.2009 19:30
Deilt um íþróttahús í Kópavogi Grunnskólabörn í Kópavogi þurfa að taka rútu langar leiðir til að komast í leikfimi á sama tíma og glæsilegt íþróttahús sem þeim er ætlað stendur autt vegna deilu Knattspyrnuakademíu Íslands og Kópavogsbæjar. 6.11.2009 18:55
Rafmagn komið á á Akranesi Rafmagn er komið á Akranesi. Bilun varð í jarðstreng kl. 18:06 og tókst að tengja framhjá henni og koma á rafmagni hjá öllum notendum kl. 18:45 6.11.2009 18:53
Nýja Hvítárbrúin steypt Uppundir 150 manns hafa frá því eldsnemma í morgun unnið að einhverju viðamesta steypuverkefni sem um getur hérlendis, að steypa nýju Hvítárbrúna við Flúðir í Árnessýslu. 32 steypubílar eru í stöðugum ferðum fram á morgundaginn, bæði frá Selfossi og úr Reykjavík. 6.11.2009 18:50
Rafmagnslaust á Akranesi Fyrir stundu varð bilun í háspennukerfi sem veldur því að rafmagnslaust er á Akranesi. Unnið er að bilanaleit og verður ráðist í viðgerðir um leið og bilunin finnst. 6.11.2009 18:39
Tveir stútar stöðvaðir Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Átján ára piltur var tekinn fyrir þessar sakir í Breiðholti en kauði hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Karl á þrítugsaldri var svo stöðvaður í Kópavogi af sömu ástæðu. 6.11.2009 17:30
Stálu staðsetningatækjum Brotist var inn í nokkra bíla í Reykjavík og Hafnarfirði í gær en sjö slíkar tilkynningar bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 6.11.2009 17:27
Handtekinn eftir misheppnaða ránstilraun Karl á fertugsaldri var handtekinn í verslun í Reykjavík síðdegis í gær samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 6.11.2009 17:25
Óþarfi að hræðast hjartaþræðingu „Það hefur bjargað mörgum mannslífum að fara í þetta af því að einkennin eru svo lúmsk," segir Reynir Traustason, ritstjóri DV, sem fór í hjartaþræðingu í gær. Hann ráðleggur fólki sem þarf að gangast undir aðgerð sem þessa að hræðast ekki of mikið. 6.11.2009 16:15
Óhjákvæmilegt að Ísraelar ráðist á Íran Hvorki Vesturlönd né Ísrael trúa því að kjarnorkuáætlun Íraks sé friðsamleg. Síðast í dag var uppýst að Íranar væru að gera tilraunir með nýja tegund kjarnaodda til þess að setja í eldflaugar. 6.11.2009 15:49
Borgarstjóri og Rice hjálpuðu leikskólabörnum að gróðursetja Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, írski tónlistarmaðurinn Damien Rice og Gísli Marteinn Baldursson, formaður Umhverfis- og samgönguráðs, aðstoðuðu börn af Laufásborg við gróðursetningu fyrstu plantnanna í svokölluðum Laufásborgarlundi í Hljómskálagarðinum í dag. Skrifað var undir samstarfssamning um lundinn eða svokallaðan grenndargarð leikskólans fyrr um daginn. 6.11.2009 15:28
Erlendum ferðamönnum fækkar Rúmlega 30 þúsund erlendir gestir fóru úr landi um Leifsstöð í októbermánuði og fækkaði þeim um 7,5% frá árinu áður. Fækkunin nemur 2.455 gestum. Svipaður fjöldi kemur frá Norðurlöndunum, Mið- og Suður-Evrópu og Norður-Ameríku en lítilsháttar fækkun er frá Bretlandi. 6.11.2009 14:56
Karlmaður á fertugsaldri dæmdur fyrir mök við 13 ára stúlku Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann á fertugsaldri í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft tvívegis mök við 13 ára gamla stúlku í september í fyrra. 6.11.2009 14:35
Bjarni: Þurfum sátt um niðurskurðartillögur Ríkisstjórnin þarf að finna leiðir til þess að skera niður og finna sem breiðasta sátt um niðurskurðartillögurnar, sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í utandagskrárumræðum á Alþingi eftir hádegi í dag. 6.11.2009 13:51
Óttast að sérfræðiþekking á neyðarmóttöku tapist Til stendur að læknar slysadeildar sinni störfum fyrir neyðarmóttöku nauðgana í stað sérfræðinga hennar sem hafa áralanga reynslu af nauðgunarmálum. 6.11.2009 12:16
Skráning í svínaflensubólusetningu hefst 16. nóvember Landsmenn allir geta pantað tíma á heilsugæslustöðvum fyrir bólusetningu gegn H1N! inflúensu eða svokallaðri svínaflensu frá og með mánudeginum 16. nóvember. Viku síðar, mánudaginn 23. nóvember, verður byrjað að bólusetja þá sem fyrstir skráðu sig. 6.11.2009 12:08
Segir Guðlaug brjóta trúnað Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur braut trúnað þegar að hann dró fram upplýsingar um samningaviðræður við Norðurál sem ræddar voru á stjórnarfundi Orkuveitunnar á föstudag fyrir viku, segir Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG, í stjórn Orkuveitunnar. 6.11.2009 11:54
Stálu þúsund ferðatöskum Hjón í Arizona hafa verið handtekin fyrir að stela um eittþúsund ferðatöskum af færiböndum á flugvellinum í Phoenix. 6.11.2009 11:34
Dómsmálaráðherra hefur skipað sérstakt teymi um mansal Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur skipað sérfræði- og samhæfingarteymi um mansal í samræmi við aðgerðaáætlun gegn mansali, sem samþykkt var á fundi ríkisstjórnar þann 17. mars síðastliðinn. 6.11.2009 11:12
Tilfinningahiti í sölum Alþingis Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, krafðist afsökunarbeiðni af Höskuldi Þórhallssyni, þingmanni Framsóknarflokksins, en hann hafi sagt í þingræðu í gær að í tíð sinni sem umhverfisráðherra hefði Þórunn fellt ólöglegan úrskurð um sameiginlegt umhverfismat á Bakka og vísað í álit Umboðsmanns Alþingis máli sínu til stuðnings. 6.11.2009 10:42
Líðan fólksins eftir atvikum góð Líðan fólksins sem slasaðist í bílveltu í Langadal í Húnavatnssýslu er eftir atvikum góð. Að sögn vakthafandi læknis slasaðist fólkið minna en óttast var í fyrstu en ökumaður bílsins missti stjórn á honum í fljúgandi hálku. Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti fólkið á slysstað og flutti á Landspítalann. Fólkið, karl og kona, liggja nú á almennri skurðdeild og verða þau undir eftirliti næsta sólarhringinn. 6.11.2009 10:32
Talibanar sprengja enn einn stúlknaskólann Talibanar sprengdu í gær upp stúlknaskóla í Khyber í Pakistan. Það er annar stúlknaskólinn sem þeir hafa sprengt í þessari viku en alls hafa þeir sprengt yfir 200 skóla. 6.11.2009 10:11
Saudi-Arabía gerir loftárásir í Yemen Flugher Saudi-Arabíu hefur gert stórfelldar loftárásir á búðir skæruliða í nágrannaríkinu Yemen. 6.11.2009 10:07
Sýknaður af ákæru um árás Karlmaður var sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands eystra í morgun af ákæru um að hafa slegið annan karlmann tvö högg í andlitið og brotið í honum tennur. Fyrir dómi kvaðst meintur árásarþoli ekki hafa neina vissu um það hvernig hann fékk áverka sína, en sagðist telja líklegast að ákærði hafi veitt sér þá. Sá sem var ákærður í málinu neitaði hins vegar eindregið sök og taldi dómari því að vafi væri í málinu sem bæri að skýra ákærða í hag. 6.11.2009 10:03
Öryggisvörður hvarf með 10 milljónir evra Lögregla í Frakklandi leitar nú dyrum og dyngjum að öryggisverði sem gerði sér lítið fyrir og ók á brott í peningaflutningabíl með 10 milljónir evra. 6.11.2009 08:40
Þúsundir minka dauðir í Skagafirði Mikið tjón hefur orðið í minkabúinu á Skörðugili í Skagafirði en þar hafa á þriðja þúsund minka drepist eftir að hafa sýkst af lungnabólgu undanfarið. Frá þessu greinir skagfirski fréttamiðillinn Feykir og hefur eftir Einari Einarssyni, ráðunauti og bónda að Skörðugili að um bráðsmitandi pest sé að ræða sem orsakast af bakteríu sem algeng er í umhverfinu en verður hættuleg þegar vissar aðstæður skapast eins og mikill raki og stillt veður. 6.11.2009 07:25
Ákærðir fyrir að vera tengiliðir hryðjuverkamanna Gefnar hafa verið út ákærur á hendur tveimur mönnum í Massachusetts fyrir að vera tengiliðir við hryðjuverkamenn og vera þeim til aðstoðar. 6.11.2009 07:18
Danskir stöðumælaverðir á hryðjuverkavakt Stöðumælaverðir Kaupmannahafnar munu á næstunni hljóta sérstaka þjálfun í að bera kennsl á grunsamlega aðila og koma í veg fyrir hryðjuverk og árásir. 6.11.2009 07:12
Vilja útskýringar á tilraunum Írana Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefur farið fram á að írönsk yfirvöld útskýri hvernig á því stendur að vísindamenn í Íran hafi verið að gera tilraunir með nýja tegund kjarnaodda en allt bendir til þess að svo hafi verið. 6.11.2009 07:09
Sarkozy biður forsetafrúna að hafa sig hæga Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti hefur beðið eiginkonu sína, Cörlu Bruni-Sarkozy, um að taka vinsamlegast ekki þátt í stjórnmálaumræðu í fjölmiðlum. 6.11.2009 07:08
Tólf manns liggja í valnum í Fort Hood - morðinginn á lífi Tólf manns liggja í valnum og yfir 30 eru særðir eftir að hermaður gekk berserksgang í Fort Hood-herstöðinni í Texas í gær. Maðurinn, Nidal Malik Hasan, er majór að tign og starfar sem geðlæknir í herstöðinni. 6.11.2009 07:03
Innbrot í hestavöruverslun Brotist var inn í hestavöruverslun í Kópavogi í nótt. Vegfarandi sem leið átti hjá kallaði til lögreglu þegar hann sá að búið var að brjóta rúðu í versluninni. Þjófurinn komst að minnsta kosti á brott með skiptimynt úr peningakassanum en óljóst er hvort fleira hafi verið tekið. 6.11.2009 06:55
Stjórnlagaþing taki til starfa 17. júní Kosið verður til stjórnlagaþings samhliða sveitarstjórnarkosningum næsta vor, samkvæmt stjórnarfrumvarpi sem fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Þingið á að koma saman í síðasta lagi 17. júní 2010, starfa í þremur lotum og ljúka störfum fyrir 17, febrúar. Á þinginu munu sitja 25-31 þjóðkjörinn fulltrúi, sem kjósa á persónukosningu. 6.11.2009 06:00
Framkvæmdin gæti ógnað vatnsbólunum Sú hætta er óhjákvæmileg að lagning Suðvesturlínu hafi neikvæð áhrif á vatnsverndarsvæði og um leið neysluvatn ef mengunarslys verði. Þetta kemur fram í umhverfismati Skipulagsstofnunar um framkvæmdina. Er þar tekið undir áhyggjur heilbrigðisnefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdin er engu að síður talin svo þjóðhagslega mikilvæg að rétt sé að ráðast í hana. 6.11.2009 06:00
Mest aukning í dönskum búum Mjólkurframleiðsla hefur hvergi aukist jafnmikið að jafnaði og í dönskum kúabúum, hefur Landssamband kúabænda (LK)eftir nýútkominni skýrslu International Farm Comparison Network. 6.11.2009 06:00
Gefur lyf fyrir 5,7 milljónir Lyfjafyrirtækið Actavis gefur lyf að andvirði 60 þúsunda búlgarskra leva, eða sem nemur 5,7 milljónum króna, í mannúðaraðstoð í Úkraínu. Þetta hefur upplýsingavefur Focus eftir tilkynningu félagsins í Búlgaríu. 6.11.2009 06:00
Konur sitja fastar í ofbeldissambúðum Þess eru dæmi að konur sitji fastar í ofbeldissambúðum, þar sem þær deila óseljanlegum eignum með makanum, bæði eru með mikla skuldabyrði og þær sjá ekki fram á að geta sett á stofn og rekið nýtt heimili. 6.11.2009 06:00