Fleiri fréttir

Vopnin í eigu Vítisengla

Fjöldi vopna sem fannst í skógi nærri Hobro á Norður Jótlandi á föstudagskvöld er talinn vera í eigu meðlima vélhjólaklúbbsins Vitisengla. Danskir fjölmiðlar segja að lögreglan hafi fylgst með meðlimum Vítisengla frá því að vopnin fundust og tveir menn sem voru handteknir í gær tilheyri félagsskapnum.

Brotthvarf Ingibjargar hefur engin áhrif á framtíðarsamstarf

„Þetta kom auðvitað á óvart af þvi að hún hafði kynnt gagnstæða niðurstöðu fyrir stuttu síðan. En ég held að við þessar aðstæður eigi fólk fyrst og fremst að hugsa um sjálft sig, heilsuna og fjölskylduna," segir Steingrímur J. Sigfússon um brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.

Guðbjartur Hannesson sigraði í Norðvesturkjördæmi

Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, er ótvíræður sigurvegari í prófkjöri Samfylkingarinnar sem fram fór dagana 6.-8 mars, en kosningu lauk klukkan fjögur i dag. Alls greiddu 854 atkvæði en einn seðill var auður. Kosningin er bindandi fyrir sex efstu sætin. Þau raðast þannig:

Ekki verið að refsa Kolbrúnu

Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi er hástökkvari forvals Vinstri grænna í Reykjavík þar sem konur unnu almennt sigra.

Harður árekstur á Njarðarbraut

Harður árekstur þriggja bifreiða varð á Njarðarbraut á móts við ÓB bensínstöðina í Reykjanesbæ klukkan hálffjögur í dag. Ökumenn tveggja bifreiðanna voru fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en fengu að fara heim að lokinni skoðun. Bifreiðarnar voru fluttar af vettvangi með kranabifeið.

Sigurður leiðir lista framsóknarmanna á Suðurlandi

Sigurður Ingi Jóhannsson dýralæknir mun leiða lista Framsóknarflokksins á Suðurlandi. Þetta er niðurstaða póstkosningar sem verið var að kynna á kjördæmisþingi flokksins á Selfossi. Eygló Harðardóttir, alþingismaður hafnaði í öðru sæti.

Stjórnarskrárnefnd þurfti fáeina mánuði til að ljúka við störf sín

Stjórnarskrárnefnd hefði einungis þurft fáeina mánuði til viðbótar til að ljúka við störf sín. Þetta kom fram í máli Þorsteins Pálssonar ritstjóra Fréttablaðsins sem átti sæti í nefndinni. Þorsteinn og Jón Sigurðsson, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, voru gestir á Sprengisandi á Bylgjunni i morgun.

Heilmikil endurnýjun

„Ég er bara mjög ánægð með þetta. Þetta er auðvitað heilmikil endurnýjun," segir Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna. Katrín hafnaði í fyrsta sæti á lista flokksins í Reykjavík í forvali sem fór fram í gær. Hún bendir á að Svandís Svavarsdóttir kemur ný inn á þennan vettvang. Sama á við um Lilju Mósesdóttur og Ara Matthíasson „Þannig að þetta er auðvitað talsverð endurnýjun. Flott blanda af gömlu og nýju," segir Katrín.

Varað við sterkum vindhviðum undir Ingólfsfjalli

Lögreglan á Selfossi varar ökumenn sem fara um Suðurlandsveg undir Ingólfsfjall við miklum vindhviðum. Tvær hestakerrur sem voru fastar aftan í bílum sem fóru um veginn fuku út af með stuttu millibili í morgun þegar vindurinn skall á þeim. Lögreglan hvetur því vegfarendur til að fara með gát þarna.

Ráðist á hermenn á N-Írlandi

Tveir breskir hermenn biðu bana í skotárás á herstöð í Antrim sýslu á Norður - Írlandi í gærkvöld. Talsmaður ráðuneytisins segir að fjórir starfsmenn heðu særst, einn af þeim mjög alvarlega í árásinni á Massereene herstöðina í Antrim skammt frá Belfast á Írlandi. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á hendur sér en talið er að

Allt með kyrrum kjörum hjá Fáfni

Allt var með kyrrum kjörum í veislu sem mótorhjólaklúbburinn Fáfnir hélt í nýju klúbbhúsi sínu í Hafnarfirði í gær. Dómsmálaráðherra taldi veisluna og væntanlega gesti hennar vera ógn við allsherjarreglu og þjóðaröryggi Íslands og herti því landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli. Fáfnir er yfirlýstur stuðningsklúbbur Vítisengla. 18 meðlimir Vítisengla voru stöðvaðir við komuna til landsins og sendir aftur til síns heima.

Stöðvaður á 158 kílómetra hraða

Lögreglan á Selfossi stöðvaði tæplega þrítugan mann á Hellisheiði á 158 km hraða. Hann mun verða sviptur ökuskírteini sínu en hefði hann verið á 4 km meiri hraða hefði hann verið sviptur á staðnum. Þá eru 2 ökumenn grunaðir um ölvunarakstur. Einn gisti fangageymslur útaf ólátum og eignaspjöllum á Eyrarbakka þar sem hann skemmdi bifreið.

Á þriðja tug létust í sjálfsvígsárás

Tuttugu og átta létust og fimmtíu og sjö særðust í sjálfsvígsárás á lögreglustöð í Baghdad, höfuðborg Írak, í morgun. Að sögn lögreglu var ódæðismaðurinn klæddur sprengjuvesti og á mótorhjóli sem var þakið sprengjuefni. Vettvangurinn var þannig að erfitt reynist að bera kennsl á líkin.

Sofnaði í miðju innbroti

Brotist var inn íbúð í Austurborginni seint í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar höfðu húsráðendur brugðið sér af bæ en þegar að þau komu til baka sáu þau að ljós loguðu í íbúðinni. Þegar inn var komið tóku þau eftir því að ókunnugur maður lá sofandi á stofugólfunni. Lögreglan var kvödd á staðinn og fékk maðurinn að klára svefninn í fangageymslum. Ekki er vitað hvernig maðurinn komst inn í íbúðina.

Klifruköttur slapp með skrekkinn

Karlmaður frá Georgíufylki í Bandaríkjunum slapp með skrekkinn þegar að hann klifraði upp í 4,5 metra háan rafmagnsstaur í gær. Maðurinn rann til í staurnum en svo vel vildi til að buxurnar sem hann var íklæddur festust í staurnum og hann fell því ekki í jörðina.

Katrín varð efst í Reykjavík

Katrín Jakobsdóttir sigraði í forvali Vinstri grænna í Reykjavík sem fram fór í gær. Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi hafnaði í öðru sæti forvalsins og Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur því þriðja. Niðurstöður urðu eftirfarandi:

Stefna á að fá þrjá menn kjörna

Kristján Möller samgönguráðherra var að vonum ánægður með niðurstöðu prófkjörs Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi en hann hlaut örugga kosningu í 1. sæti á listann.

Sigmundur Ernir líklega á leið á þing

Kristján L. Möller hlaut örugga kosningu í 1. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Sigmundur Ernir Rúnarsson fjölmiðlamaður hreppti annað sætið og er líklegt að þessi niðurstaða verði til þess að hann verði á meðal nýliða á þingi eftir næstu kosningar. Jónína Rós Guðmundsdóttir hreppti það þriðja en hún var færð í það sæti vegna kynjakvóta.

Hrönn ÍS sökk á Ísafirði

Hrönn ÍS sökk í höfninni á Ísafirði í dag og munaði minnstu að 50 tonna bátur Jón Forseti ÍS sem lá utan á Hrönn myndi líka sökkva. Lóðsinum tókst hins vegar að draga hann frá og bjarga honum. Þessir bátar hafa ekki siglt um skeið og samkvæmt heimildum fréttastofu er ólíklegt að Hrönn sigli aftur.

Björgvin hreppti fyrsta sætið

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður og fyrrverandi ráðherra, hreppti fyrsta sæti í prófkjöri samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Oddný Guðbjörg Harðardóttir lenti í öðru sæti en Róbert Marshall í þriðja sæti. All kusu 2389 manns og varðröð 6 efstu manna þessi

Átján Vítisenglum hefur verið vísað frá

Allt er til reiðu í nýju klúbbhúsi Fáfnis í Hafnarfirði fyrir veislu sem þar verður í kvöld. Lítið fer fyrir erlendum gestum sem boðað höfðu komu sína þar sem átján vítisenglar hafa verið stöðvaðir við komuna til landsins.

Stunginn í nárann í brúðkaupsveislu

Brúðkaupsveisla í Gladsaxe í Kaupmannahöfn tók óvæntan og ofbeldisfullan endi í morgun. Tveir ungir menn voru stungnir með hníf og lögreglan í Vestegnes í Kaupmannahöfn óskar nú eftir upplýsingum frá almenningi til að geta upplýst málið.

Að miðju Íslands á 150 jeppum

Þrjú hundruð manna ferðahópur á 150 jeppum fór í morgun að miðju Íslands sem er skammt norðaustur af Miklafelli í Hofsjökli. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu gekk ferðin vel að öðru leyti en því að bifreið annars mannsins,

Grétar leiðir lista frjálslyndra í Suðurkjördæmi

Grétar Mar Jónsson alþingismaður leiðir lista Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi í næstu kosningum. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar kjördæmisfélags flokksins í dag. Georg Eiður Arnarsson, Vestmannaeyjum verður í öðru sæti listans og Guðrún María Óskarsdóttir, Hafnarfirði verður í þriðja sæti.

Ökumaðurinn sem ók á Tsvangirai handtekinn

Ökumaður bifreiðarinnar sem ók á bifreið Morgans Tsvangirai, forseta Zimbabwe, með þeim afleiðingum að konan hans beið bana hefur verið handtekinn. Ökumaðurinn starfaði fyrir bandarísk stjórnvöld og sá um að flytja lyf gegn alnæmisveirunni. Susan Tsvangiarai, eiginkona Morgans, lést í slysinu en þau hjónin voru á ferð í syðri hluta Harare, sem er höfuðborg Zimbabwe. Morgan Tsvangirai hlaut áverka á höfði og hálsi en hann var útskrifaður af spítala í dag.

Sigmundur og Vigdís leiða lista framsóknarmanna

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson leiðir lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður og Vigdís Hauksdóttir leiðir lista í Reykjavíkurkjördæmi suður. Þetta varð niðurstaða framsóknarmanna á þingi

Obama ætlar að gera allt til að örva hagkerfið

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hét því í dag að gera allt sem þyrfti til þess að örva hagkerfið en sagði jafnframt að erfiðir tímar væru framundan fyrir Bandaríkjamenn. Obama, sem hefur hrint af stað ýmsum aðgerðum til að fást við kreppuna frá því að hann tók við embætti þann 20. janúar

Gott að ríkisstjórnin leiði hugann að hag atvinnulífsins og fjölskyldna

„Í tillögum ríkisstjórnarinnar er að finna mörg góð markmið," segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um þær tillögur sem ríkisstjórnin kynntu í gær til þess að sporna við atvinnuleysinu. Með tillögunum ætlar ríkisstjórnin að skapa rúmlega 4000 ársverk á næstu misserum.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst klukkan tvö í dag

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavík hefst klukkan tvö í dag í kosningamiðstöð Samfylkingarinnar á Skólabrú við Austurvöll. Hún stendur til 13. mars. Í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni segir að þeir kjósendur sem ekki eiga heimangegnt á kjördag, hafa ekki aðgang að tölvu, nota ekki heimabanka eða vilja kjósa með gamla laginu á pappír, er velkomið að kjósa utan kjörfundar.

Tæpur helmingur vill hvorki Jón Baldvin né Ingibjörgu

Um 45% vilja hvorki Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur né Jón Baldvin Hannibalsson sem næsta formann Samfylkingarinnar. Þetta voru niðurstöður nýrrar könnunar MMR. Þá sýna niðurstöður að rösklega 35% vilja heldur

Aldís enn ófundin

Engin formleg leit verður gerð að Aldísi Westergren um helgina. Ekkert hefur spurst til hennar í ellefu daga þrátt fyrir víðtæka leit. Síðast var leitað á fimmtudag en þá gengu eitthundrað björgunarsveitarmenn og konur um svæðið í kring um Reynisvatn.

Gera grín að Clinton

Rússneskir miðlar gera óspart grín að utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Hillary Clinton. Hún hitti kollega sinn frá Rússlandi í Genf og gaf honum við það tilefni gjöf. Það var starthnappur í litlu gulu boxi sem átti að tákna hið nýja samband Bandaríkjanna og Rússlands. Stafsetningin var þó eitthvað að flækjast fyrir Hillary. Í stað þess að á hnappnum stæði endurræsing stóð of hátt verð. Gjöfinni hefur verið lýst sem táknrænum mistökum í rússneskum miðlum í dag.

Víða hægt að skíða í dag

Víða er hægt að skella sér á skíði í dag. Skíðasvæðin á Dalvík, í Hlíðarfjalli á Akureyri, á Siglufirði og Tindastóll í Skagafirði eru opin. Þá eru skíðasvæði höfuðborgarbúa í Skálafelli og Bláfjöllum opin. Opið er til tíu í kvöld í Bláfjöllum. Eftir klukkan fjögur kostar þúsund krónur inn á svæðið og rennur sú upphæð óskipt til félagsins Breið bros, sem eru samtök barna með skarð í vör.

Tsvangirai á batavegi

Morgan Tsvangirai forsætisráðhera Simbabve er á batavegi eftir að hafa slasast í árekstri í gær. Hann fékk að fara heim af spítala í morgun. Eiginkona forsætisráðherrans lést í slysinu. Aðeins er um mánuður frá því að ráðherrann svór embættiseiðinn og tók við af Mugabe.

Lögreglan handtók menn í innbrotsleiðangri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo karlmenn um þrjú leytið í nótt þegar þeir voru að reyna að brjótast inn í verslun á Laugaveginum. Þegar lögregla kom að voru þeir þeir enn að reyna að spenna upp hurð verslunarinnar. Mennirnir sem eru á miðjum aldri gista nú fangageymslur.

Áfram viðbúnaður vegna Vítisengla

Töluverður viðbúnaður verður áfram á Leifsstöð í dag en búist er við að einhverjir meðlimir Vítisengla eða Hells Angels samtakana freysti þess að komst inn í landið þrátt fyrir strangt landamæraeftirlit. 12 meðlimir samtakanna voru stöðvaðir við komuna til landsins í gær og snúið við en þeir ætluðu allir í veislu sem mótorhjólaklúbburinn Fáfnir heldur í nýju klúbbhúsi sínu í Hafnarfirði í kvöld.

Fimm prófkjör um helgina

Úrslit ráðast í fimm prófkjörum nú um helgina auk þess sem Framsóknarmenn í Reykjavík munu stilla upp á sína framboðslista.

Yfirmönnum klínískra sviða Landspítala fækkar úr 23 í 6

Landspítalinn auglýsir eftir sex framkvæmdastjórum um helgina samkvæmt nýju skipuriti spítalans sem tekur gildi að fullu fyrsta júní 2009. Samkvæmt nýja skipuritinu verður klínískum sviðum á Landspítala fækka úr 12 í 6.

Sjá næstu 50 fréttir