Fleiri fréttir

Ráðherralisti ríkisstjórnar Samfylkingar og VG

Ráðherrar í nýrri ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna voru kynntir á blaðamannafundi fyrir stundu. Tíu ráðherrar verða í ríkisstjórninni. Fimm karlar og fimm konur. Þar af eru tveir utanþings, þau Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra og Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mun ekki sitja í ríkisstjórn.

Össur fær fjögur ráðuneyti

Samkvæmt heimildum Vísis verður Össur Skarphéðinsson verða iðnaðar-, sjávarútvegs- landbúnaðar og utanríkisráðherra í nýrri ríkisstjórn sem verður kynnt eftir nokkrar mínútur.

Ingibjörg Sólrún ekki í nýrri ríkisstjórn

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingar verður ekki ráðherra í nýrri ríkisstjórn. Ingibjörg sagði á blaðamannafundi sem nú stendur yfir á Hótel Borg að hún ætlaði nú að einbeita sér að sjálfri sér.

Ragna Árnadóttir verður dómsmálaráherra

Samkvæmt heimildum fréttastofu verður Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna.

Bein útsending frá blaðamannafundinum

Nú fer fram blaðamannafundur á Hótel Borg þar sem ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna er kynnt. Þar verður aðgerðaráætlun nýju stjórnarinnar einnig kynnt.

Ánægður með að Jóhanna sé fyrsta konan

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands lýsti yfir sérstakri ánægju sinni með að Jóhanna Sigurðardóttir yrði fyrsti kvenforsætisráðherra þjóðarinnar. Þetta sagði Ólafur eftir fund sinn með Jóhönnu á Bessastöðum fyrir stundu. Hann sagði þetta ekki einungis vera merkilegan atburð í sögu þjóðarinnar, heldur einnig á heimsvísu. Hann sagði tíðindi dagsins ákveðinn sigur fyrir jafnréttisbaráttuna hér á landi.

Vonast til að ná sáttum við þjóðina

Jóhanna Sigurðardóttir sagðist eftir fund sinn með forseta Íslands á Bessastöðum þakka það traust og trúnað sem henni er sýnt með því að fá umboð til myndunar nýrrar ríkisstjórnar. Hún sagði minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna með stuðningi Framsóknarflokksins nú vera á lokastigi en verkáætlun tveggja fyrrnefndu flokkanna er tilbúin. Hún sagði því ekkert því til fyrirstöðu að mynda þessa ríkisstjórn og kynna ráðherra hennar fyrir forseta Íslands. Það mun hún gera á ríkisráðsfundi klukkan 18:00 í dag.

Hraðbanka stolið í Hveragerði

Brotist var inn í anddyri á verslunarmiðstöðinni Sunnumörk í Hveragerði í nótt eða morgun. Þaðan var hraðbanka stolið en hann var numinn á brott í heilu lagi. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er málið tiltölulega ný komið upp og er lögregla að rannsaka málið. Ekki er vitað hverjir voru þar að verki.

London er ekki Reykjavík við Thames ána

„London er ekki Reykjavík við Thames ánna," sagði Gordon Brown forsæisráðherra Breta á Davos fundinum í gær þegar hann ræddi ástandið í efnahagsmálum heimsins.

Alþingishúsið skemmt fyrir á annan tug milljóna

Það sem sparast átti í viðhaldi Alþingishússins á árinu til að mæta kreppunni mun gufa upp vegna kostnaðar við skemmdarverk síðustu mánaða. Kostnaður við að lagfæra, hreinsa og gera við Alþingi eftir grjót- og eggjakast undanfarið verður á annan tug milljóna króna.

Sjálfstæðisflokkurinn sveik ítrekað gefin loforð

Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar segir að forysta Sjálfstæðisflokksins hafi ítrekað gefið loforð um uppstokkun í Seðlabankanum en svikið öll fyrirheit þar af lútandi annað hvort vegna þess að þeir höfðu ekki til þess pólitískan vilja eða afl.

Óttast ákvarðanafælni nýrrar ríkisstjórnar

Árni Mathiesen fjármálaráðherra segist ekki hafa verið ákvarðanfælinn fjármálaráðherra. Bæði Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Daníelsson dósent sögðu í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að fráfarandi ríkisstjórn hefði forðast að taka ákvarðanir sem lýsti sér í því að lítið hefði gerst síðan bankarnir hrundu. Árni sagði ljóst að veikindi Ingibjargar Sólrúnar hefðu spilað þar stórt hlutverk og Samfylkingin hefði meðal annars tafið fjárlagagerð.

Opið í Bláfjöllum og Skálafelli

Opið verður á Skíðasvæðunum í Bláfjöllum og Skálafelli til klukkan 17:00 í dag. Frábært færi er í fjöllunum en Skálafell er að opna í fyrsta sinn á þessum vetri. Vegna snjóleysis efst er þó ekki hægt að opna stólalyftu þar.

Bein útsending frá Bessastöðum

Hádegisfréttir verða á Stöð 2 og Bylgjunni í dag. Vanalega eru fréttir einungis sendar út í útvarpinu en þær verða einnig á Stöð 2 í dag. Í fréttatímanum mun Heimir Már Pétursson fréttamaður vera í beinni útsendingu frá Bessastöðum þar sem formaður Samfylkingarinnar hittir forsetann á fundi.

Stærsti stjórnmálaflokkur landsins

Vinstri hreyfingin - grænt framboð sem nú er á leið í ríkisstjórn er stærsti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup sem Ríkisútvarpið sagði frá í gærkvöldi. Um 30% þjóðarinnar fylgja Vinstri grænum að málum á meðan 24% kjósenda styðja Sjálfstæðisflokkinn sem fer út úr ríkisstjórn í dag.

Kommúnistar að ná völdum í skjóli Framsóknarflokksins

Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður Frjálslynda flokksins segir að baráttan sé hafin. Í pistli á heimasíðu sinni segir Magnús að kommúnistar séu að ná völdum hér á landi í skjóli hins veikgeðja Framsóknarflokks sem alltaf sé reiðubúinn til að selja hugsjónir og hagsmuni íslensku þjóðarinnar fyrir völd, bitlinga og vegtyllur til handa eigin flokksgæðingum.

Ný ríkisstjórn formlega kynnt klukkan 16:00 í dag

Ný ríkisstjórn tekur að öllum líkindum við völdum á Bessastöðum seinnipartinn í dag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar sem fer með stjórnarmyndunarumboðið, gengur á fund Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands klukkan tólf á hádegi. Þar mun hún gera honum grein fyrir að flokkur hennar og Vinstri grænir hafi náð saman um ríkisstjórn sem Framsóknarflokkurinn muni verja falli.

Rændu debetkorti af fatlaðri konu

Um klukkan ellefu í gærkvöldi var framið rán í Hafnarfirði er par hrinti til fatlaðri konu er var að reyna að taka fé úr hraðbanka og stal af henni debetkorti hennar og hljóp á brott . Atvikið náðist á eftirlitsmyndavélar bankans.

Eldur í húsnæði Vídeoheima í Grafarvogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um eld í húsnæði Vídeóheima í Gylfaflöt í Grafarvogi rétt fyrir klukkan hálf þrjú í nótt. Í tilkynningu frá lögreglu segir að svo virðist sem sem bruninn hafi komuð upp í skrifstofuhúsnæði á annari hæð hússins. Talsverðar skemmdir af völdum hita og reyks, engann sakaði. Eldsupptök ókunn. Tæknideild LRH fer með rannsókn málsins.

Nýja ríkisstjórnin í beinni á Stöð 2 og Vísi

Bein útsending verður frá Hótel Borg klukkan 16:00 í dag þar sem minnihlutastjórn Samfylkinar og Vinstri grænna verður kynnt fyrir þjóðinni. Þar má gera ráð fyrir því að farið verði yfir aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar og ráðherralistinn kynntur.

Vann 16 milljónir í lottó

Einn lottóspilari var með allar tölurnar réttar í útdrættinum í kvöld og hlaut hann tæpar 16 milljón krónur í vinning. Hann keypti miðann í Fjarðarkaupum við Hólshraun í Hafnarfirði. Fjórir spilarar voru með fjórar réttar tölur og bónustölu og hlýtur hver um sig rúmlega 70 þúsund krónur.

Fagnar kosningum í Írak

Barack Obama forseti Bandaríkjanna segist fagna héraðskosningunum sem fram fóru í Írak í dag og segir þær mikilvægt skref í því að Írakar marki sér bjarta framtíð.

Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins á morgun

Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins verður haldin í Bratta, húsi Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð í Reykjavík klukkan 13:30. Þar mun formaður flokksins kynna framgang og niðurstöður viðræðna um að Framsóknarflokkurinn verji minnihlutastjórn falli fram að kosninum. Einnig verða almennar umræður.

Bjarni fer í formanninn

Bjarni Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins ætlar að bjóða sig fram til formanns á komandi landsfundi flokksins. Þetta kom fram í kvöldfréttum Sjónvarpsins.

Árshátíð þingmanna slegin af

Árshátíð þingmanna hefur verið slegin af nú í kreppunni í sparnaðarskyni, ásamt með árshátíð starfsmanna Alþingis og móttökum ýmis konar. Við það sparast um átta milljónir króna. Allt bendir til að komist verði hjá uppsögnum starfsmanna Alþingis.

Stúlkurnar fundnar

Stúlkurnar tvær, Karitas og Elísa, sem lýst var eftir í kvöld eru fundnar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Opna miðstöð vegna efnahagsástandsins

Miðstöð, þar sem aðstoð verður veitt í samræmi við neyðarvarnaskipulag Rauða krossins, verður sett á laggirnar á næstu vikum til að bregðast við þörf sem hefur skapast í samfélaginu í kjölfar efnahagsástandsins. Boðið verður upp á sálrænan stuðning, ráðgjöf og námskeið til að takast á við breyttar aðstæður fólks í landinu. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi Rauða krossins í gærkvöldi.

Nýjast úr þinghúsinu: Framsókn fundar aftur eftir hlé

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins funda nú með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar í félagsmálaráðuneytinu, eftir að Framsóknarmenn sátu á tveggja og hálfs tíma þingflokksfundir þar sem farið var yfir stöðu mála eftir atburði dagsins.

Segist ekki hafa beitt klækjastjórnmálum

Skúli Helgason framkvæmdarstjóri Samfylkingarinnar hafnar því að hafa beitt klækjastjórnmálum í gær líkt og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins gaf í skyn fyrr í dag. Þá sagði Sigmundur að aðra en Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon hafa farið fram úr sér þegar kynna átti opinberlega tillögur væntanlegrar ríkisstjórnar.

Segir klækjastjórnmálum hafa verið beitt í gær

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræddi við fréttamenn eftir að hlé var gert á þingflokksfundi Framsóknarmanna í þinghúsinu fyrir stundu. Þar sagði hann lítið standa útaf borðinu en hann var á leið á fund með Steingrími J. Sigfússyni. Sá fundur stóð þó stutt yfir en þeir tveir fóru síðan yfir í félagsmálaráðuneytið að hitta Jóhönnu Sigurðardóttur. Þeir bjuggust við að sá fundur stæði einnig stutt yfir þar sem aðeins þyrfti að ræða nokkrar útfærslur á efnahagsmálunum. Sigmundur sagði að klækjastjórnmálum hefði verið beitt í gær.

Fleiri í framboð hjá framsókn

Hallur Magnússon framkvæmdarstjóri Spesíu, ráðgjafafyrirtækis, hefur ákveðið að bjóða sig fram í eitt af efstu sætum Framsóknarflokksins í öðru hvoru kjördæminu. Hann segir fjölmarga hafa komið til sín undanfarið og hvatt sig til þess að fara fram.

Framsóknarmenn gera hlé á fundi sínum

Þingflokkur Framsóknarflokksins gerði hlé á fundi sínum fyrir stundu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður flokksins fer nú á fund Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar.

Ego verður N1

Þessa dagana er verið að breyta útliti á 7 mannlausum eldsneytisstöðvum sem hingað til hafa verið reknar undir nafni Egó. Allar þessar stöðvar munu bera merki N1 og verða hluti af þjónustuframboði N1 til bíleigenda.

Þúsundir mótmæla Pútín

Þúsundir mótmælenda hafa komið saman á fjöldafundi í austurhluta Rússlands þar sem þess er krafist að ríkisstjórn landsins segi af sér vegna efnahagsvandans sem þar ríkir. Mótmælendur í Vladivostok skella skuldinni á Vladimir Pútín forsætisráðherra og vilja meina að hann hafi haldið illa á spöðunum hvað varðar efnahagsmál. Þeir vilja einnig meina að hann hafi leynt þjóðina pólitískum ágreiningi sem þar ríkir.

Tæp þrjátíu ár frá síðustu minnihlutastjórn

Tæp 30 ár eru síðan minnihlutastjórn hélt síðast um stjórnartauma íslenska ríkisins. Afar sjaldgæft er að menn komi sér saman um minnihlutastjórn á Íslandi, eins og þá sem nú er í burðarliðnum.

Framsókn hagar sér eins og þriðji ríkisstjórnarflokkurinn

Framsóknarflokkurinn lætur eins og hann sé þriðji ríkisstjórnarflokkurinn, þótt hlutverk hans sé aðeins að verja verðandi ríkisstjórn falli, segir Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur. Hann telur þó að Samfylking og Vinstri grænir hafi farið framúr sér í gær þegar skipulögð var kynning á nýrri ríkisstjórn á Austurvelli án nægilegs samráðs við Framsóknarflokkinn.

Guðmundur Steingrímsson fær mótframboð

Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti framsóknarmanna í Skagafirði, sendi rétt í þessu frá sér yfirlýsingu þar sem hann sækist eftir fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Því er ljóst að Guðmundur Steingrímsson sem sækist eftir fyrsta sætinu í þessu sama kjördæmi hefur fengið mótframboð. Þetta kemur fram á fréttavefnum Feyki.

Ný ríkisstjórn líklega mynduð á morgun

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon ræddu við fréttamenn í þinghúsinu fyrir stundu eftir fundi með sínum þingflokkum. Þau sögðu vel hafa verið tekið í verkáætluna væntanlegrar ríkisstjórnar, en stefnt er að því að koma á starfhæfari ríkisstjórn fyrir mánudag. Ráðherralistar liggja ekki fyrir.

Dýrmætum tíma sóað í tilraunastarfsemi

Bjarni Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ekkert útilokað í því að flokkur hans komi að borðinu ef minnihlutastjórn Samfylkingar og VG með stuðningi Framsóknar gengur ekki upp. Hann segir ferlið sem fór í gang eftir að ríkisstjórnin sprakk hafa verið ólánlegt og síðasta vika hafi verið sóun á tíma. Bjarni er meðal gesta í þættinum Vikulokin á Rás 1.

Magnús gefur ekki kost á sér áfram

Magnús Stefánsson þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvestur kjördæmi hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til framboðs í komandi alþingiskosningum. Magnús var fyrst kosinn á þing fyrir fjórtán árum og hefur meðal annars gegnt ráðherraembætti. Guðmundur Steingrímsson sem nýlega gekk í flokkinn hefur lýst því yfir að hann stefni á fyrsta sætið í kjördæmi Magnúsar.

Mótmælt í Mývatnssveit

Mótmælafundur verðuk haldinn á Hallarflöt í Dimmuborgum í Mývatnssveit klukkan 15:00 í dag.

Þingflokkar Samfylkingar og VG funda

Fundi Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar í þinghúsinu lauk rétt fyrir klukkan 10:00 í morgun. Þá hófust þingflokksfundir hjá Samfylkingu og Vinstri grænum. Reiknað er með að fréttamenn fái að heyra í leiðtogum hinnar nýju riíkisstjórnar að loknum þeim fundum.

Sjá næstu 50 fréttir