Árshátíð þingmanna slegin af 31. janúar 2009 18:30
Árshátíð þingmanna hefur verið slegin af nú í kreppunni í sparnaðarskyni, ásamt með árshátíð starfsmanna Alþingis og móttökum ýmis konar. Við það sparast um átta milljónir króna. Allt bendir til að komist verði hjá uppsögnum starfsmanna Alþingis. Sturla Böðvarsson forseti Alþingis lagði nýverið til að felldar yrðu niður í sparnaðarskyni hefðbundnar móttökur sem þingforseti stendur fyrir á vegum Alþingis. Þannig verður sú ævaforna venja að halda þingveislu í febrúar slegin af á þessu ári. Þingveislan er einskonar árshátíð þingmanna en hana sækja einnig makar þeirra, forseti Íslands og forsetafrú. Veislan hefur undanfarin ár verið haldin á Hótel Sögu og er harla óvenjuleg miðað við önnur veisluhöld landsmanna því þar mega menn aðeins taka til máls í bundnu máli - aðeins forseti þings og alþingis mega mæla nokkur orð í óbundnu máli. „Þingveislan er rómuð skemmtun og hápunktur á starfi þingmanna í amstri tilverunnar," segir Sturla. Hann kveðst munu sakna veislunnar að þessu sinni og vonar að hún verði tekin upp að nýju þegar betur árar. Dýrasti liðurinn í veisluhöldum alþingis er hins vegar árshátíð starfsmanna alþingis sem verður líka slegin af á þessu ári, sem og móttaka fyrir heiðurslaunaþega alþingis, árleg móttaka fyrir sendiherra í Reykjavík. Þá verður dregið úr opinberum heimsóknum forseta alþingis til annarra þjóðþinga. Alls er áætlað að spara um 8 milljónir króna með þessu móti. Sparað verður á fleiri sviðum í rekstri alþingis og að sögn Sturlu bendir allt til þess að ekki þurfi að segja neinum starfsmönnum þingsins upp störfum.
Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Innlent Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Innlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Innlent Simmi vinsælasti leynigesturinn Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Fleiri fréttir Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Sjá meira