Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skíðasvæðin fyrir norðan opin Skíðasvæðin í Hliðarfjalli og Tindastóli verða opin til klukkan 16:00 í dag. Klukkan 8:00 í morgun var snjónkoma og norðan 6 m/s og mínust 3 gráður í Hlíðarfjalli. 31.1.2009 09:26
Flokkstjórnarfundi Samfylkingar frestað Flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem átti að hefjast klukkan 11:00 í morgun hefur verið frestað þar til annað kemur í ljós. Flokksfélagar eru beðnir að fylgjast með. 31.1.2009 09:17
Minnihlutinn segist geta stýrt Enginn starfandi meirihluti er í bæjarstjórn Blönduóss eftir að leiðir Jónu Fanneyjar Friðriksdóttur og hinna þriggja bæjarfulltrúa E-listans skildi á fimmtudag. Ágúst Þór Bragason, annar tveggja bæjarfulltrúa 31.1.2009 07:00
Afleitt að loka stöðinni í Breiðholti „Mér finnst afleitt að flytja hverfalögregluna úr Breiðholti,“ segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar í borgarstjórn. „Þar og í Árbæ þjónar hún 40 þúsund íbúum og hefur náð afburðaárangri. Þarna er horfið mörg ár aftur í tímann.“ 31.1.2009 06:00
Hatrið stjórnaði Samfylkingunni Geir H. Haarde gerði upp stjórnarsamstarfið á fundi Sjálfstæðisflokksins í gær. 31.1.2009 06:00
Hafa áhyggjur af börnum á Sri Lanka Fjöldi barna hefur fallið eða slasast í átökum á Sri Lanka undanfarna 10 daga, segja talsmenn UNICEF. Þeir krefjast þess að stjórnvöld þar í landi og uppreisnarmenn úr röðum Tamíl Tígra gæti öryggis barna og almennum borgurum. 30.1.2009 23:25
Þurfa að vinna sameiginlega að lausn efnahagskreppunnar Bandaríkin og Kína verða að koma alþjóðaviðskiptum og lánamörkuðum í lag til þess að ná tökum á efnahagskreppunni sem geysar um allan heim. Þetta voru þeir Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Hu Jintao, forseti Kína, sammála um þegar þeir ræddu saman í símann í dag. 30.1.2009 22:04
Eldur í ruslatunnu á Hverfisgötu Eldur kom upp í ruslatunnu við Hverfisgötu 49 í Reykjavík um níuleytið í kvöld. Að sögn slökkviliðsins voru lögreglumenn í nágrenninu þegar að eldurinn kom upp og drógu þeir tunnuna hæfilega langt frá húsinu þannig að engin hætta væri á að eldurinn myndi breiðast í það. Eldurinn í tunnunni var svo slökktur. 30.1.2009 22:43
Með vel á annað hundrað vopna Danska lögreglan hefur á síðustu dögum fundið um 150 skotvopn á mismunandi stöðum á Djursland, eftir því sem Danska ríkisútvarpið hefur eftir lögreglunni á Austur-Jótlandi. 30.1.2009 21:18
Upphafið og endi að stjórnmálaferlinum Ég á von á því að þessi ráðherradómur verði bæði upphafið og endirinn á mínum pólitíska ferli segir Gylfi Magnússon, verðandi viðskiptaráðherra. 30.1.2009 18:53
Sjálfstæðismönnum líst illa á seinagang við stjórnarmyndun Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa áhyggjur af þeirri seinkunn sem hefur orðið á myndun nýrrar ríkisstjórnar Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs og Samfylkingarinnar. Mikilvægt sé að ný ríkisstjórn geti tekið til starfa sem fyrst. 30.1.2009 18:21
Banna Darvocet verkjalyf Lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum leggur til að Darvon, verkjalyf sem hefur verið á markaði í 50 ár, verði bannað. Kosið var um þetta hjá Lyfjaeftirlitinu í dag og greiddu 14 banninu atkvæði sitt en 12 greiddu á móti því. Lyfið var fyrst samþykkt árið 1957 þegar engin önnur verkjalyf voru í boði fyrir utan aspirin og sterk verkjalyf. 30.1.2009 21:48
Viða hálka eða hálkublettir á landinu Það er hálka á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka er á flestum leiðum á Suðurlandi, þó er þæfingur í Grafningnum og nokkrum öðrum útvegum. Þungfært er á Krísuvíkurvegi, Ísólfsskálavegi og Bláfjallavegi sunnan Bláfjalla. 30.1.2009 20:30
Sigmundur: Ætlum ekki að afhenda óútfylltan tékka Það vantaði upp á raunhæfar leiðir til að hrinda í framkvæmd þeim hugmyndum sem þegar eru komnar fram, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. „Það er samstaða um markmiðin þetta snýst um leiðirnar," segir Sigmundur. 30.1.2009 17:27
Engin ríkisstjórn fyrr en eftir helgi Þingflokksfundi Framsóknarflokksins sem haldinn var í Alþingishúsinu í dag er lokið. Þingmenn sem komið hafa út af fundinum hafa ekkert viljað tjá sig við fréttamenn og vísa þeir allir á formann sinn Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Hann hefur haldið til fundar við þau Steingrím J. Sigfússon og Jóhönnu Sigurðardóttir. 30.1.2009 16:46
Árni sammála AGS um seinagang í endurreisn bankakerfisins Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að endurreisn íslenska bankakerfisins hafi gengið of hægt, segir Árni M. Mathiesen starfandi fjármálaráðherra. Hann tekur undir gagnrýni sjóðsins og segir að endurreisn bankanna verði að ganga hraðar. Aftur á móti hafi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lýst ánægju sinni með fjárlögin og hvernig gangi að endurreisa krónuna. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma fráfarandi ráðherra sjálfstæðismanna á fundi flokksins á Grand hótel í dag. 30.1.2009 16:43
Mótmæla kjaralækkandi aðgerðum Reykjavíkurborgar „Starfsmenn Reykjavíkur hafa sætt lakari kjörum en aðrir, undir því yfirskyni að þeir byggju í staðinn við atvinnuöryggi. Það hlýtur því að sæta furðu að þegar á þetta atvinnuöryggi reynir skuli þeir þurfa að greiða það enn hærra verði,“ segir í ályktun sameiginlegs félagsfundar Fræðagarðs, Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga og Stéttarfélags lögfræðinga, sem haldinn var í dag. 30.1.2009 16:40
Mótmælt í Dimmuborgum Mótmæla- og samstöðufundur verður haldinn í Dimmuborgum í Mývatnssveit á morgun laugardag. „Okkur, sem stöndum að mótmælum hér í Mývatnssveit finnst rétt að safnast saman enn á ný og láta af okkur vita. Þótt áfangasigrar hafi unnist, er ekki öllum kröfum mótmælenda fullnægt. Þar sem unnið er að stofnun nýrrar ríkisstjórnar og fleiri málum finnst okkur þó rétt að staldra við og sjá hverju fram vindur,“ segir í tilkynningu. Sem fyrr verður mótmælt á Hallarflöt í Dimmuborgum klukkan 15. 30.1.2009 16:25
Yfirvinna endurskoðuð - engar uppsagnir Hallur Páll Jónsson, mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar, segir að við endurskoðun á yfirvinnu hjá starfsmönnum Reykjavíkurborgar hafi rauði þráðurinn í aðgerðunum verið að tryggja störf starfsmanna. Þeir sem hæst launin hafa taka á sig hlutfallslega mesta lækkun fastra heildarlauna og við endurskoðun fastlaunasamninga sé sú regla höfð i heiðri að lækka ekki föst heildarlaun sem eru undir 300 þúsund krónum. 30.1.2009 16:19
Reginhneyksli verði hætt við hvalveiðarnar Einar K. Guðfinnsson, starfandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, telur að það væri reginhneyksli ef minnistjórn Samfylkingar og Vinstri grænna ákveði að breyta ákvörðun hans em heimilar hvalveiðar. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma fráfarandi ráðherra sjálfstæðismanna á fundi þeirra á Grand hótel í dag. 30.1.2009 16:02
Lúðvík vísar ummælum Gunnars Páls einnig á bug Lúðvík Lúðvíksson, sem er í framboði til formanns hjá VR segir ummæli Gunnar Páls Pálsonar formanns VR varla svara verð og dæma sig sjálf. Vísar hann þeim alfarið á bug. Lúðvík er að vitna til viðtals sem birtist við Gunnar Pál í fréttum Stöðvar 2 þar sem hann velti því upp hvort upplýsingum úr Kaupþingi hefði verið lekið úr bankanum til þess að hafa áhrif á formannskjörið. 30.1.2009 15:40
Áttburamóðir átti sex börn fyrir Kona sem fæddi áttbura á sjúkrahúsi í Kaliforníu á dögunum átti sex börn fyrir. 30.1.2009 15:28
Íslenskur friðargæsluliði til starfa í Palestínu Ólöf Magnúsdóttir, fulltrúi Íslensku friðargæslunnar, heldur um helgina til starfa í Palestínu í tveggja mánaða verkefni hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Ólöf mun aðstoða staðarskrifstofu Barnahjálparinnar við að miðla upplýsingum um aðstæður barna á átakasvæðum Palestínu og neyðaraðstoð þeim til handa. 30.1.2009 15:24
Ný ríkisstjórn kynnt á morgun Búið er að fresta þingflokksfundum Vinstri grænna og Samfylkingarinnar þangað til klukkan 10 í fyrramálið. Fyrirhugað var að ný ríkisstjórn yrði kynnt á Austurvelli síðar í dag en búist er við að ekki verði af fyrr enn í hádeginu á morgun. Flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem halda átti í dag hefur einnig verið frestað og hefst hann klukkan 11 í fyrramálið. 30.1.2009 15:15
Nýskráningar ökutækja dragast saman um 90 prósent Umferðarstofa hefur tekið saman yfirlit yfir nýskráningar ökutækja og eigendaskipti á fyrstu 23 dögum ársins borið saman við sama tímabil árið á undan. Í ljós kemur mjög mikil fækkun nýskráninga. 30.1.2009 14:56
Fleiri en þúsund í sjósund í janúar Sjósund virðist vera að slá í gegn. Starfsfólk Ylstrandarinnar í Nauthólsvík segir fjölgun gesta þar í janúar ævintýri líkasta, en 1036 gestir hafa skráð sig í gestabók strandarinnar í mánuðinum. 30.1.2009 14:54
Fundi þingflokks Samfylkingarinnar frestað Þingflokksfundi Samfylkingarinnar sem átti að hefjast klukkan 15 hefur verið frestað til klukkan 10 í fyrramálið. Flokksstjórn Samfylkingarinnar á að koma saman klukkan 16 á Nasa og ræða stjórnarsáttmála og ráðherraskipan tilvonandi ríkisstjórnar. Líklegt verður að teljast að þeim fundi verði einnig frestað til morguns. 30.1.2009 14:42
Vaxandi spenna í þinghúsinu Fæðing nýrrar ríkisstjórnar virðist ganga treglegar en búist var við. Framsóknarmenn voru ekki sáttir við þau drög að nýjum ríkisstjórnarsáttmála sem þeim voru kynnt í morgun. Þeir fengu ný drög til skoðunar í hádeginu og fundar þingflokkur Framsóknarflokksins um þau. 30.1.2009 14:36
Raddir fólksins boða til sigurhátíðar Sautjándi mótmælafundur Radda fólksins verður haldinn á Austurvelli á morgun laugardag klukkan 15. Samtökin boða til sigurhátíðar. 30.1.2009 14:36
Fjölmörgum snjóbrettum stolið Töluvert er um að snjóbrettum sé stolið þessa dagana. Að undanförnu hafa lögreglu borist margar slíkar tilkynningar, flestar ef ekki allar úr Bláfjöllum. „Þar hafa óprúttnir aðilar verið á ferð en þeir virðast nota tækifærið á meðan snjóbrettafólkið hvílir lúin bein og borðar nestið sitt. Allmörg snjóbretti hafa horfið með þessum hætti og því er full ástæða til að vera betur á varðbergi,“ segir í tilkynningu frá lögreglu. 30.1.2009 14:10
Leiðir málefnahóp um endurreisnarstarf Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, mun leiða málefnahóp Sjálfstæðisflokksins fyrir landsfund flokksins um endurreisn íslensks efnahagslífs. Tilkynnt var um þetta á fundi sjálfstæðismanna á Grand Hótel. 30.1.2009 13:56
Indefence.is í breskar sögubækur Landsbókasafn Bretlands - British Library - hefur ákveðið að varðveita vef indefence.is sem heimild um fjármálakreppuna fyrir fræðimenn framtíðar. 30.1.2009 13:55
Óskar: Grunnlaun ekki lækkuð heldur dregið úr yfirvinnu Grunnlaun starfsmanna Reykjavíkurborgarar lækka ekki heldur verður dregið úr yfirvinnu, að sögn Óskars Bergssonar formanns borgarráðs. „Við höfðum náttúrulega samráð við okkar sviðsstjóra en það er hugsanlega misjafnt hvernig menn hafa unnið úr því hver fyrir sig. Við erum ekki að lækka grunnlaun heldur að draga úr yfirvinnu." 30.1.2009 13:41
Geir: Stjórnarmyndun langt komin áður en Ingibjörg kom heim Fullt er út úr dyrum á fundi sjálfstæðismanna á Grand hotel sem hófst klukkan eitt. Á fundinum fer Geir H. Haarde, formaður flokksins og fráfarandi forsætisráðherra yfir stöðuna og það „uppbyggingarstarf sem framundan er í íslensku þjóðfélagi,“ eins og sagði í tilkynningu frá flokknum. Í máli Geirs kom meðal annars fram að hann telji myndun nýrrar ríkisstjórnar hafa verið langt komna áður en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sneri heim frá Svíþjóð. 30.1.2009 13:11
Samfylking óskar skýringa á launabreytingum Samfylkingin hefur sent borgarstjóra og mannauðsstjóra Reykjavíkurborgar bréf og óskað skýringa á framgöngu við uppsagnir fastlaunasamninga og launalækkun hjá starfsfólki borgarinnar sem áformaðar eru. 30.1.2009 12:59
Bifreið stolið í Borgartúni Í gærmorgun rétt fyrir klukkan tíu var bifreiðinni PA 301, sem er 2ja dyra hvítur Nissan Sunny árgerð 1994 stolið úr porti við Borgartún 7. 30.1.2009 12:37
Fagnað sem þjóðhetju eftir að hafa strunsað út af fundi Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, rauk öskureiður af ársþingi Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss í gær eftir snörp orðaskipti við Peres Ísraelsforseta. Deiluefnið var árásir Ísraela á Gaza. Erdogan var fagnað sem hetju við heimkomuna til Tyrklands í gærkvöldi. 30.1.2009 12:32
Ríkisstjóri Illinois rekinn Ríkisþingið í Illinois í Bandaríkjunum rak í gærkvöldi ríkisstjórann Rod Blagojevich fyrir brot í starfi. Allir fulltrúar á þinginu greiddu atkvæði með því að reka hann. Blagojevich er einnig bannað héðan í frá að gegna opinberu embætti í Illinois-ríki. 30.1.2009 12:20
Loftrýmiseftirlit í höndum utanríkisráðherra Formaður Vinstri grænna segir loftrýmiseftirlit Atlantshafsbandalagsríkja yfir Íslandi drauga frá fyrri ríkisstjórnar og að flokkurinn vilji ekki sóa peningum í slíkt brölt. Það verði hins vegar í höndum utanríkisráðherra nýrrar ríkisstjórnar að annast framkvæmd slíkra mála. 30.1.2009 12:18
Ný ríkisstjórn kynnt við styttu Jón Sigurðssonar Stefnt er að því að ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna verði kynnt við styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli klukkan sex í kvöld þar sem búsáhaldabyltingin svokallaða hófst. Gert er ráð fyrir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, gangi á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, eftir hádegið og að forseti feli Jóhönnu Sigurðardóttur umboð til að mynda stjórn. Að öllum líkindum verður kosið laugardaginn 25. apríl. 30.1.2009 12:02
Hjúkrunarfræðingar vara við sparnaðaraðgerðum Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga varar við afleiðingum þeirra sparnaðaraðgerða sem boðaðar hafa verið hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Í ályktun stjórnarinnar segir að öflugt starf hafi verið byggst upp á þremur heilsuverndarsviðum en það eru miðstöð heilsuverndar barna, miðstöð mæðraverndar og miðstöð tannverndar. 30.1.2009 11:46
Mánudagsútgáfu DV hætt Biríngur, útgáfufélag DV, hefur ákvaðið að fækka útgáfudögum og héðan í frá kemur DV ekki út á mánudögum. Blaðið mun koma út frá þriðjudegi til föstudags. Þetta er gert til að mæta samdrætti á auglýsingamarkaði og mikilli hækkun á kostnaði. Aðgerðunum fylgja engar uppsagnir á ritstjórn DV. 30.1.2009 11:33
Undirbúningi rafrænnar sjúkraskrár verði hraðað Lagt er til í áliti stýrihóps um upplýsingatækni að undirbúningi rafrænnar sjúkraskrár fyrir landið allt verði hraðað. Stýrihópur um upplýsingatækni hefur skilað áfangaskýrslu sinni til Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, og hvetur eindregið til átaks í rafrænum samskiptum í heilbrigðisþjónustu. 30.1.2009 11:11
Frjálslyndir funda um stjórnarmynd Miðstjórn Frjálslynda flokksins hefur verið boðuð til fundar á morgun laugardag í húsnæði flokksins við Skúlatún. Þar mun Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, greina frá viðræðum um stjórnarmyndun og aðkomu flokksins að þeim, eins og segir í tilkynningu frá flokknum. 30.1.2009 11:05
25 vilja stýra þjónustumiðstöð fyrir blinda Tuttugu og fimm umsóknir bárust um starf forstjóra nýrrar Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Lög um stofnunina voru samþykkt á Alþingi 18. desember síðastliðinn. 30.1.2009 10:55