Fleiri fréttir

Árni Þór: Eðlilegt að samgöngunefnd hafi fengið hótelgistingu

Þingmanni Vinstri grænna í Reykjavík finnst eðlilegt að samgöngunefnd gisti á hóteli á höfuðborgarsvæðinu, þegar nefndin er í vettvangsferð þar, þótt þorri þeirra eigi heimili á svæðinu, jafnvel í nokkurra mínútna fjarlægð frá hótelinu.

Mikil íbúafjölgun orsakasta af aðflutningi

Nýtt vefrit fjármálaráðuneytisins segir að sá miklu fólksfjöldi sem orðið hafi hérlendis undanfarin ár megi að mestu rekja til mikil aðflutnings erlendra ríkisborgara. Í nýlegum tölum Hagstofu Íslands um mannfjölda á Íslandi kemur fram að hér bjuggu rúmlega 319 þúsund manns á miðju ári 2008, sem eru tæplega átta þúsund fleiri íbúar en voru hér fyrir ári síðan og er það næstmesta fjölgun íbúa á einu ári.

Skessa á ferli í Reykjanesbæ

Íbúar í Reykjanesbæ hafa tekið eftir dularfullum tröllasporum í bænum undanfarna daga og leiða menn líkum að því að þar sé á ferð hin þjóðþekkta skessa sem sagt er frá í bókunum um Siggu og skessuna í fjallinu. Skessan sú arna hyggur nú á búferlaflutninga í Svartahelli við Grófarhöfn.

Bolvískar mæður í kröppum dansi í Frankfurt

Fréttamiðillinn Bæjarins besta á Ísafirði greinir frá óskemmtilegri reynslu bolvískrar móður sem varð fyrir því að maður reyndi var að ræna barni hennar í Frankfurt. Hrund Karlsdóttir var ásamt sjö ára dóttur sinni í verslunarmiðstöð þegar ókunnugur maður vatt sér að þeim og reyndi að grípa stúlkuna.

Kaupa sér velvild

Stefán Jóhann Stefánsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að fá íþróttafélög hafi efni á því að bjóða borgarfulltrúum og embættismönnum í boð og veislur. ,,Það eru nokkur félög sem hafa efni á að halda slík boð og með því eru þau að kaupa sér ákveðna velvild."

Ekið á konu við Höfðabakka

Ekið var á konu sem var fara að ganga yfir gangbraut á gatnamótum Dvergshöfða og Höfðabakka á sjötta tímanum.

Tankur rifinn niður á Raufarhöfn

Fjórir tankar hafa staðið á Raufarhöfn síðan ein af stærstu loðnubræðslum landsins var starfrækt þar en hún hætti fyrir tólf árum. Var fyrsti tankurinn af fjórum rifinn niður í gær.

Ístak og Pósthúsið segja upp hundruðum manna

Vinnumálastofnun bárust í dag tvær tilkynningar um hópuppsagnir. Annars vegar er um að ræða Pósthúsið ehf, sem sér meðal annars um dreifingu á Fréttablaðinu, en þar verður 129 blaðberum sagt upp störfum. 600 manns starfa hjá fyrirtækinu. Hins vegar er um að ræða uppsagnir hjá Ístak en þar er ráðgert að segja upp 2-300 starfsmönnum.

Varaformaður allsherjarnefndar vill lög gegn nektardansstöðum

Það kemur fyllilega til greina að Alþingi setji lög til að koma í veg fyrir að nektardans sé stundaður hér á landi, að mati Ágústar Ólafs Ágústssonar, varaformanns allsherjarnefndar Alþingis. Borgarráð skoraði á Alþingi í morgun að setja slík lög.

Varað við stormi í nótt

Veðurstofa Íslands hefur gefið út viðvörun vegna storms sem gengur yfir landið vestanvert í nótt og fyrramálið. Búist er við ört vaxandi austanátt með rigningu í kvöld, fyrst sunnantil. Austan og norðaustan 15-25 og rigning í nótt, hvassast vestantil. Af því tilefni vill Slysavarnafélagið Landsbjörg brýna fyrir fólki að gera ráðstafanir svo hægt sé að koma í veg fyrir tjón og óþægindi er vilja fylgja slíku veðri.

Hlaupa 170 kílómetra um Mont Blanc

Fjórir Íslendingar eru komnir til Chamonix í Frakklandi til þess að taka þátt í Tour Du Mont-Blanc fjallahlaupinu. Hlaupið er tæpir 170 kílómetrar með um 10 kílómetra hækkun. Hlaupaleiðin liggur í gegnum þrjú lönd, Frakkland, Sviss og Ítalíu.

Niður með froskinn

Benedikt sextándi páfi hefur skrifað yfirvöldum í borginni Bolzano vegna höggmyndar af krossfestum froski. Bolzano er í Suður-Týrol sem er þýskumælandi sjálfstjórnarhérað á Norður-Ítalíu.

Borgarráð: Borgarstjóri spurður um veiðiferð

Borgarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna lögðu fram fyrirspurn á fundi borgarráðs fyrr í dag þar sem Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri er spurð hvort hún hafi látið kanna málavexti umtalaðar veiðiferðar sem farin var í Miðfjarðará í ágúst í fyrra.

Kirkjur brenna í trúarbragðauppþotum á Indlandi

Uppþot á milli hindúa og kristna hafa verið að breiðast út á Austur-Indlandi. Hópur hindúa rændu og rupluðu kirkju og lentu saman við kristna í dag samkvæmt lögreglu þar í landi. Yfirvöld hafa átt í erfiðleikum við að halda í skefjum sívaxandi ofbeldi vegna trúardeilna á þessu svæði Indlands.

Borgarráð vill lög til að banna nektardans

Borgarráð samþykkti sameiginlega tillögu á fundi sínum í dag þar sem skorað er á Alþingi að gera þær breytingar sem þarf á lagaumhverfinu til að koma megi í veg fyrir starfsemi veitingastaða sem bjóða upp á nektardans.

Silfurstrákarnir árita í Höllinni

Það er búist við mannfjölda í Laugardalshöll í dag. Þar munu Óli, Fúsi, Guðjón, Logi, Snorri og allir hinir strákarnir í landsliðinu afhenda árituð plaköt af Ólympíulandsliðinu og rabba við gesti.

Litla-Hraun vagga matjurtaræktar á Suðurlandi

„Ég er smiður og þetta byrjaði allt með því að ég var að smíða kassana utan um kálið og svoleiðis. Þá kviknaði áhuginn á þessu,“ segir Garðar Garðarsson, sem afplánar fimm ára dóm á Litla-Hrauni

Forseti Alþingis fundar með kollegum sínum í Lettlandi

Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, hefur síðustu daga sótt fund forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem haldinn er í Jurmala í Lettlandi en fundurinn hófst þann 26. ágúst og honum lýkur í dag. Til umræðu er nánara samstarf Norðurlandaráðs og Eystrasaltsþingsins og stöðu þjóðþinganna gagnvart Evrópusambandinu.

Háskólakennarinn áfrýjar ekki - Hefur afplánun í dag

53 ára háskólakennari sem nýlega var dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn sjö stúlkum ætlar að una dómnum. Verjandi hans, Oddgeir Einarsson, sendi ríkissaksóknara bréf í gær þar sem honum var tilkynnt þetta.

,,Það lekur inn í herbergi dóttur minnar"

Guðrún Margrét Steinarsdóttir, íbúi í Þorlákshöfn, gagnrýnir vinnubrögð Viðlagatryggingar Íslands í kjölfar jarðskjálftanna á Suðurlandi í maí. Hún segir að Þorlákshöfn hafi orðið út undan í kjölfar skjálftanna og meiri áhersla sé lögð á að meta byggingar í Hveragerði og Árborgarsvæðinu.

ESB íhugar refsiaðgerðir gegn Rússum

Leiðtogar Evrópusambandsins eru að íhuga refsiaðgerðir gegn Rússlandi, að sögn Bernards Kouchners, utanríkisráðherra Frakklands. Leiðtogarnir koma saman á mánudag til þess að ræða ástandið í Georgíu.

Dr. Sigurbjörn Einarsson er látinn

Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup er látinn. Hann lést í morgun, 97 ára að aldri. Sigurbjörn gegndi embætti biskups Íslands frá árinu 1959 til 1981. Núverandi biskup, Karl, er sonur Sigurbjörns. Tilkynning frá Biskupsstofu fer hér á eftir:

Þjófar herja æ meir á sýndarheima

Það hefðu þótt tíðindi fyrir áratug að sýndarheimar tölvuleikja gætu orðið vettvangur glæpa og raunverulegra þjófnaða, en nú er öldin önnur.

Gómaði bankaræningja fyrir tilviljun

Óeinkennisklæddur lögregluþjónn í Ballerup í Danmörku gómaði bankaræningja í gær þar sem hann var staddur við útibú Jyske Bank fyrir hreina tilviljun.

Keppast um að selja Dönum þotur

Þrír framleiðendur orrustuflugvéla heyja nú harða samkeppni um hver þeirra muni hreppa það hnoss að selja danska flughernum 48 nýjar flugvélar til loftvarna.

Um 50 þúsund flýja heimili á Kúbu

Hitabeltislægðin Gústaf veldur nú búsifjum á Kúbu og hafa um 50 þúsund manns neyðst til að flýja heimili sín þar. Lægðin þokast nær strönd Bandaríkjanna og er ekki ólíklegt að annar harmleikur sé í uppsiglingu

Heilsan dalar hjá Dalai Lama

Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbets, hefur frestað öllum alþjóðlegum heimsóknum sínum næstu þrjár vikur vegna ofþreytu. Þetta gerir hann að ráði lækna sinna sem telja ástand hans ekki bjóða upp á ferðalög.

Innbrot, eldur og fullar fangageymslur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú innbrotsþjófa sem brutust inn á að minnsta kosti þremur stöðum í nótt og stálu verðmætum. Þeir brutust inn i Bónusvídeó við Lækjargötu í Hafnarfirði, Hlöllabáta í Kópavogi og KFC kjúklingastað

Obama formlega útnefndur frambjóðandi demókrata

Barack Obama var í kvöld formlega útnefndur forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum fyrir kosningarnar í nóvember. Kosningin er söguleg enda Obama fyrsti blökkumaðurinn til að hljóta tilnefninguna.

Landsliðið fær fálkaorðuna

Íslenska karlalandsliðið í handknattleik var í kvöld veitt heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu af forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í kvöld.

Um fimmtíu þúsund fögnuðu með landsliðinu

Eftir nærri sólarhringsferðalag frá Peking lentu Strákarnir okkar á Ísa-landinu góða nú síðdegis. Slegið var upp þjóðhátíð af því tilefni og safnaðist ótrúlegur fjöldi manna í miðbænum til að fagna með landsliðinu. Hátíðarhöldin gengu vel fyrir sig og samkvæmt tölum frá lögreglu voru um fimmtíu þúsund manns viðstaddir þessa mögnuðustu móttöku í sögu landsins frá því að handritin komu heim.

Bíl ekið á ljósastaur

Bíl var ekið á staur á Hafnarfjarðarvegi við Hamraborg í Kópavogi rétt fyrir klukkan sjö í kvöld.

Sjá næstu 50 fréttir