Fleiri fréttir

Leiðtogar Kýpur hittast í næstu viku

Demetris Christofias nýr forseti Kýpurgrikkja mun hitta leiðtoga tyrkneska hluta Kýpur 21. mars næstkomandi. Eftir kosningu Christofias í síðasta mánuði óskaði hann eftir því að SÞ hefði milligöngu um fund milli hans og Mehmet Ali Talat til að endurvekja friðarviðræður sem sigldu í strand árið 2004.

Sakar Continental flugfélagið um manndráp

Franskur saksóknari hefur farið fram á að dómarar kæri bandaríska flugfélagið Continental fyrir manndráp vegna flugslyss árið 2000 þegar Concorde þota brotlenti við París. Saksóknarinn mælti einnig með svipuðum ákærum gegn tveimur starfsmönnum Continental og tveimur frönskum embættismönnum.

Tveir Litháanna sýknaðir af árás á lögreglu

Tveir af Litháunum þremur sem ákærðir voru fyrir að ráðast á lögreglumenn við skyldustörf í miðborg Reykjavíkur í janúar hafa verið sýknaðir af ákæru í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem ekki þótti komin fram lögfull sönnun fyrir aðild þeirra að árásinni. Þriðji maðurinn var hins vegar dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir að slegið tvo lögreglumenn í andlitið.

Annar verðbréfamiðlari handtekinn

Annar verðbréfamiðlari stórbankans Societe Generale hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn á verðbréfaviðskiptum fjárhættumiðlarans Jerome Kerviel. Miðlarinn er sagður vera kollegi Kerviel sem er í haldi í fangelsi í París.

Ráðning Sigríðar Önnu ekki pólitískur bitlingur

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir einu leiðina til að fjölga konum í stétt sendiherra að sækja þær út fyrir utanríkisþjónustuna. Hún segir ráðningu Sigríðar Önnu Þórðardóttur ekki pólitískan bitling.

„Hefur í mínum huga alltaf legið ljóst fyrir“

Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, fagnar nýrri samantekt OECD sem sýnir að skattar barnafjölkskyldna hér á landi hafi aukist á árunum 2000-2006 eins og hann hafi haldið fram. Hann veltir fyrir sér hvort Árni Mathiesen fjármálaráðherra muni draga til baka orð sem hann lét falla um að Stefán kynni ekki að reikna.

Óveður gengur enn yfir Bretland

Mikið hvassviðri heldur áfram að ganga yfir Bretland og valda tjóni. Vörubílar fjúka um koll og tré rifna upp með rótum. Skipuleggjendur Cheltenham kappaksturshátíðarinnar ákváðu að aflýsa öðrum degi kappakstursins. Sömu sögu er að segja af veðreiðum í Gloucesterskíri þar sem búist var við 55 þúsund manns.

Nýjar spurningar um "hobbitana" í Kyrrahafinu

Nýjar spurningar hafa vaknað um "hobbitana" eftir að bein fundust á Palau eyjaklasanum í Kyrrahafinu nýlega. Áður höfðu svipaðar leyfar af smávöxnu mannfólki fundist á eyjunni Flores sem er í 2000 km fjarlægð.

Táragasi skotið að munkum í Tíbet

Kínverska lögreglan notaði táragas til að leysa upp hundruð Búddamunka sem mótmældu nálægt höfuðborg Tibet í gær. Samkvæmt fréttum Free Asia útvarpsstöðvarinnar sem er styrkt af bandarísku ríkisstjórninni umkringdu öryggisverðir um 500 munka í gær þegar þeir gengu nálægt lögreglustöðinni í Lhasa. Vitni sagði útvarpsstöðinni að um tvö þúsund vopnaðir lögreglumenn í mismunandi einkennisbúningum hefðu verið á staðnum og skotið táragasi að fólkinu.

250 mótmælendur í Danmörku ekki ákærðir

Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur fallið frá því að ákæra 250 manns sem handteknir voru í tengslum við óeirðir vegna niðurrifs Ungdómshússins í borginni í september 2006.

Harmar rasistatal í tengslum við bílslys

Anna Guðbjörg Kristinsdóttir, móðir Kristins Veigars Sigurðssonar, sem lést í hörmulegu bílslysi skömmu fyrir síðustu jól, segir það vera agalega sorglegt hvað fólk sé fljótt að snúa umræðunni upp í rasistatal.

Krotað á flugvél El Al

Veggjakrot með skilaboðum í þágu Palestínumanna var skrifað á arabísku inn í farangusgeymslu El Al flugvélar. Veggjakrotið uppgötvaðist þegar verið var að afferma vélina á Malpensa flugvelli í Mílanó. Atvikið hefur vakið áhyggjur meðal Ísrela um flugvallaöryggi á Ítalíu.

BNA: Afsögn þýðir ekki stríð við Íran

Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna ,hefur vísað á bug sem „fáránlegum" sögusögnum að afsögn æðsta yfirmanns hersins í Írak þýði að Bandaríkin ætli í stríð við Íran.

Gaf sig fram við lögreglu

Fimmti aðilinn sem lögreglan leitaði vegna þjófnaðar á skotvopnum í Hafnarfirði er nú fundinn. Hann gaf sig fram í gærkvöld eftir að lögreglan hafði náð tali af honum. Maðurinn, sem er rétt rúmlega tvítugur, viðurkenndi þátt sinn í málinu og einnig aðild sína að öðrum þjófnaðarmálum á höfuborgarsvæðinu að undanförnu. Manninum var sleppt að lokinni skýrslutöku og telst málið upplýst.

Laun hækkuðu mest í iðnaði í fyrra

Heildarlaunakostnaður í landinu jókst um á bilinu 6,3 til 9,6 prósent á milli áranna 2006 og 2007 samkvæmt vísitölu launakostnaðar sem birt er á vef Hagstofunnar.

Vill ekki að teikning verði notuð í pólitískum tilgangi

Danski teiknarinn Kurt Westergaard hefur ákveðið að leita til dómstóla til þess að koma í veg fyrir að andstæðingar múslíma í Danmörku noti teikningu hans af Múhameð spámanni í mótmælum sem fyrirhuguð eru í Álaborg á laugardag.

Skattar á barnafjölskyldur hafa aukist á síðustu árum, segir OECD

Ísland er í hópi þeirra ríkja þar sem skattar á barnafjölskyldur hafa aukist á árabilinu 2000-2006 samkvæmt samtantekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD. Þá hafa breytingar á skattkerfi hér á landi fyrst og fremst gagnast þeim tekjumeiri ólíkt því sem víða gerist innan OECD.

Thaksin lýsir yfir sakleysi sínu

Thaksin Shinawatra fyrrum forsætisráðherra Taílands lýsti yfir sakleysi sínu á fyrsta degi réttarhaldanna yfir honum fyrir spillingu í starfi.

Mikill áhugi á samvinnu Íslands og Mexíkó

Í viðræðum forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar við forseta Mexíkó Felipe Calderón á fyrsta degi opinberrar heimsóknar forseta Íslands kom fram ríkur áhugi á að hrinda í framkvæmd fjölmörgum samvinnuverkefnum milli landanna.

Reiknað er með afsögn ríkisstjórans í New York í dag

Reiknað er með að ríkisstjórinn í New York muni segja af sér í dag. Forystumaður Repúblikana á ríkisþinginu hefur gefið ríkisstjóranum 48 stunda frest til að segja af sér annars muni þingið svipta hann embættinu.

Dópmál gegn Jóhannesi í Kompás fellt niður

Mál sem lögreglan höfðaði gegn Jóhannesi Kr. Kristjánssyni ritstjóra fréttaskýringarþáttarins Kompás hefur verið fellt niður. Málið tengist fíkniefnum sem Jóhannes keypti en skilaði inn til lögreglu.

Sagður hætta vegna ágreinings um Íran

Yfirmaður herja Bandaríkjanna í Miðausturlöndum, þar á meðal Írak og Afganistan, William Fallon aðmíráll, lét í dag af embætti fyrr en áætlað var.

Hraðakstur í Hafnarfirði

Tuttugu og níu ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Suðurbraut í Hafnarfirði í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar.

UVG: Heimagreiðslur leysa engan vanda

Ung vinstri græn í Reykjavík harma ákvörðun meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur um að hefja heimgreiðslur til foreldra barna á biðlista eftir leikskólaplássi.

Sjá næstu 50 fréttir