Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Medvedev hrósar stórsigri í Rússlandi Frambjóðandi Vladimirs Putins til forsetaembættis í Rússlandi hefur unnið stórsigur, samkvæmt útgönguspám sem bárust klukkan sex. 2.3.2008 18:11
Einn af hverjum 100 Bandaríkjamönnum í fangelsi Einn af hverjum 100 fullorðnum Bandaríkjamönnum situr í fanagelsi samkvæmt nýrri skýrslu frá dómsmálaráðuneyti landsins. 2.3.2008 17:54
Starfsfólk sjúkrahúss í Eyjum komst loks heim Starfsfólkið á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum sem staðið hafði vaktina samfleytt í 17 klukkutíma, losnaði loks úr vinnunni nú um fjögurleytið þegar næstu vakt tókst að komast á staðinn. „Við óðum bara skaflana í kolvitlausu veðri,“ sagði sjúkraliði, nýkominn á vaktina, fyrir stundu. 2.3.2008 17:05
Leigubílstjóri handtekinn vegna lyga um kornabarn Leigubílsstjóri sem kom ungabarni á slökkvistöð í New York á fimmtudag og sagði að barnið hefði verið skilið eftir í bílnum hjá sér hefur verið handtekinn. Hann er ákærður fyrir að skálda upp söguna til að hjálpa fjölskyldu að losna við barnið. 2.3.2008 16:41
Undrabarn meðal þátttakenda á Skákhátíð í Reykjavík Undrabarnið og skáksnillingurinn Illya Nyzhnyk lærði að tefla fjögurra ára gamall með því að horfa á skákir Bobby Fischers. Búist er við því að Illya verði yngsti skákmeistari sögunnar innan skamms. Hann er einn fjölmargra sem tekur þátt í Alþjóðlegu skákhátíðinni í Reykjavík sem hefst á morgun. 2.3.2008 19:00
Áttræður situr uppi með ónýtan bíl Ökumaður klessti á kyrrstæðan bíl manns á áttræðisaldri við Hraunbæ í Reykjavík fyrir helgi og stakk af. Bíllinn er ónýtur og situr eigandi bílsins uppi með tjónið gefi ökumaðurinn sig ekki fram. 2.3.2008 18:45
Ólöf vill að borað sé fyrir fleiri jarðgöngum Menn þurfa að bora miklu meira, segir Ólöf Nordal, varaformaður samgöngunefndar Alþingis, sem telur að gefa verði í við jarðgangagerð um land allt. 2.3.2008 18:45
Hundur ættleiðir kiðling Hundur í Bretlandi hefur tekið sér munaðarlausan kiðling samkvæmt frétt breska blaðsins Daily Mail. Billy er boxarahundur og hefur tekið 12 daga kiðlingnum eins og eigin afkvæmi. Hann sefur við hlið hans, þvær honum og fylgist með hverju spori hans í dýragarði í Devon á englandi. 2.3.2008 18:00
Rafmagnsbyssur sagðar bjarga mannslífum Rafmagnsbyssurnar eru umdeildar og til dæmis eru samtökin Amnesty international á móti þeim. Fjölmargar fréttir hafa verið sagðar af því að menn hafi látist eftir að hafa fengið í sig skot úr rafbyssum. 2.3.2008 17:19
Drengur faldi sig eftir að keyra á húsvegg Fimm ára gamall tékkneskur drengur ákvað að láta sér ekki leiðast þegar hann vaknaði um miðja nótt. Miroslav Novak tók bíllykla foreldra sinna, skellti sér undir stýri fjölskyldubílsins, startaði honum, bakkaði út úr innkeyrslunni og keyrði af stað. Hann ók tæpa tvo kílómetra í heimabæ sínum í Mimon áður en hann endaði á húsvegg. 2.3.2008 16:30
Tímamótaheimsókn Íransforseta til Írak Mahmoud Ahmadinejad forseta Íran var fagnað við komuna til Bagdad í dag. Þetta er fyrsta heimsókn í sögunni þar sem íranskur forseti heimsæki Írak. Heimsóknin er hápunktur ferlisins sem stuðlar að eðilegum samskiptum landanna eftir langvarandi stríð milli þjóðanna á níunda áratugnum. 2.3.2008 16:08
ESB yfirlýsing gæti hjálpað efnahagslegum stöðugleika Yfirlýsing um að Ísland stefndi að aðild í Evrópusambandinu gæti umheiminum fyrirheit um hver stefna landsins væri á næstu tíu árum og gæti hjálpað til að koma efnahagslegum stöðuleika á. Þetta sagði Árni Páll Árnason þingmaður Samfylkingarinnar í Silfri Egils í dag. Hann benti á að þegar önnurlönd sem sótt hefðu um aðild að sambandinu hefðu gefið út yfirlýsingu þess efnis, hefði það haft áhrif í þá veru. Steingrímur J. Sigfússon þingmaður VG var þó ekki sammála Árna og benti á að sú hefði ekki verið raunin í Eistlandi. 2.3.2008 15:55
Vill að fæðuöryggi þjóðarinnar verði tryggt Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hvatti til þess við setningu Búnaðarþings á Hótel Sögu fyrir stundu að sáttmáli yrði mótaður um að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar. Hann kvaðst sannfærður um að landbúnaðurinn ætti eftir að verða Íslendingum enn mikilvægari á komandi árum en hingað til. Heimurinn hefði tekið stakkaskiptum. Til merkis um það nefndi forsetinn þætti eins og fólksfjölgun, stækkun borga, bættan efnahag, hlýnun jarðar, hækkun sjávarborðs og breytingar á vatnabúskap jarðar. 2.3.2008 15:11
Reyndi að mata látinn föður sinn Þroskaheftur maður sem bjó með öldruðum foreldrum sínum í Bournemouth í Bretlandi reyndi að næra föður sinn eftir að hann var látinn. Lögregla var kölluð til þegar nágrannar létu vita um að ekki væri allt með felldu. 2.3.2008 14:35
19 umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í dag Nítján umferðaróhöpp hafa verið tilkynnt til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi í dag, eða frá klukkan sjö í morgun. Árekstrarnir og útafakstur eru að mestu vegna hálku og slæmrar færðar. 2.3.2008 13:43
Lögregla kölluð að slagsmálum á Hverfisgötu Lögregla var kölluð til vegna áfloga á Hverfisgötu í Reykjavík um klukkan hálf tvö í dag. Tilkynnt var um að þrír menn væru að slást fyrir utan hús númer 102 við Hverfisgötu. Þrír lögreglubílar voru sendir á staðinn en málið reyndist ekki alvarlegt. 2.3.2008 13:41
Þróun bólusetningarlyfja ungbarna mikilvæg Varnir ungbarna yrðu sterkari gegn bakteríusýkingum sem valda meðal annars eyrnabólgu, lungnabólgu og heilahimnubólgu, ef börn yrðu bólusett á fyrstu vikum eftir fæðingu. Mikilvægt er að þróa bólusetningarlyf þannig að hægt sé að nota þau í þeim tilgangi. 2.3.2008 13:31
Björgunarsveitir í Eyjum komast ekki að sjúkrahúsinu Björgunarsveitir í Vestmannaeyjum komast ekki að sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum vegna ófærðar og hefur því ekki tekist að hafa vaktaskipti hjá starfsfólki frá því í gærkvöldi. Heilbrigðisstarfsfólk, sem kom á vaktina klukkan ellefu í gærkvöldi, hefur því ekki komist heim en vaktaskipti áttu að vera í morgun. Það sér nú fram á að þurfa að standa sína þriðju vakt í röð á sjúkrahúsinu þar sem óvíst er hvort björgunarsveitum takist að flytja starfsfólk um bæinn fyrir næstu vaktaskipti klukkan fjögur. 2.3.2008 13:26
Vegagerðin til liðs við áhugamenn um risaborkaup Vegagerðin er komin í samstarf með Austfirðingum og Norðmönnum í könnun á hagkvæmni þess að nota risabor við heilborun jarðganga fyrir þjóðvegi. 2.3.2008 13:22
Öryggisráðið fordæmir árásir fyrir botni Miðjarðarhafs Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur fordæmt bæði eldflaugaárásir Palestínumanna á Ísrael, og viðbrögð Ísraela við þeim árásum. Um eitthundrað manns hafa fallið í átökum Ísraela og Palestínumanna undanfarna daga. Mahmoud Abbas forseti Palestínu hefur hætt friðarviðræðum við Ísraela í kjölfar árásanna. 2.3.2008 12:53
Rót byggðavanda Vestfjarða vegna fólksflótta kvenna Rót byggðavandans á Vestfjörðum sem og annars staðar er að erfiðlega gengur að halda konum á svæðinu. Þetta segir Dofri Hermannsson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar. Hann segir lausn vandans felast í að koma til móts við þarfir kvenna. 2.3.2008 12:30
Abbas hættur friðarviðræðum við Ísraela Um eitthundrað manns hafa fallið í átökum Ísraela og Palestínumanna undanfarna daga. Þetta eru hörðustu átök sem hafa orðið lengi og þau stefna friðarferlinu í verulega hættu. 2.3.2008 12:01
Aftakaveður í Vestmannaeyjum Aftakaveður hefur verið í Vestmannaeyjum í morgun. Varla sést á milli húsa og er ófært innanbæjar. Í fyrsta sinn í tæpan áratug falla niður messur í Landakirkju vegna fannfergis og skafhríðar. 2.3.2008 11:47
Bíll valt á Gullinbrú Engan sakaði þegar fólksbíll valt á Gullinbrú í Reykjavík um klukkan hálf ellefu í morgun. Ökumaður bifreiðarinnar var einn í bílnum. Talið er að bíllinn hafi runnið út af veginum í hálku. Sjúkralið og slökkvilið komu á staðinn stuttu eftir bílveltuna og komu bílnum aftur á hjólin. Ökumaðurinn afþakkaði frekari aðstoð. 2.3.2008 11:10
Olmert vígreifur gegn Hamas á Gaza Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels hefur heitið því að halda árásum áfram gegn herskáum uppreisnarmönnum á Gaza þrátt fyrir að alþjóðasamfélagið hvetji til að Ísraelar haldi að sér höndum. Olmert sagðist ekki hafa nein áform um að hætta baráttunni, „jafnvel ekki í eina mínútu,“ er haft eftir honum á fréttavef BBC. 2.3.2008 11:00
Átta látnir í mótmælum í Armeníu Átta mótmælendur létust í átökum við lögreglu í Jerevan höfuðborg Armeníu í gær vegna úrslita forsetakosninganna, en mótmælendur segja brögð hafa verið í tafli. Ríkisstjórnin lýsti yfir neyðarástandi í gær og herinn og lögregla halda uppi eftirliti í borginni með brynvörðum bílum. 2.3.2008 10:39
Skíðasvæði opin á Siglufirði og í Hlíðarfjalli Skíðasvæðin á Siglufirði og í Hlíðarfjalli eru opin í dag en lokað er í Bláfjöllum og Skálafelli vegna hvassviðris. 2.3.2008 10:11
Búnaðarþing hefst í dag Búnaðarþing verður sett við hátíðlegri athöfn á Hótel Sögu klukkan hálftvö í dag. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, flytur ávarp en yfirskrift setningarathafnarinnar verður „Að lifa af landsins gæðum". 2.3.2008 10:07
Hringvegurinn lokaður við Reynisfjall Hringvegurinn er lokaður við Reynisfjall vestan við Vík í Mýrdal vegna ófærðar. Mikil ofankoma og hvassviðri hefur verið á Vík undanfarna daga. Leiðindaveður er í Vík og töluvert kóf eins og Gísli Reynisson, íbúi í bænum lýsti því í samtali við fréttastofu í morgun. Hann sagði töluvert af snjó í bænum enda hefði snjóað mikið síðustu daga og fokið í skafla. 2.3.2008 10:00
Mikill erill hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Átta gistu fangageymslur vegna ölvunar, þar af tveir vegna gruns um ölvun við akstur. Sex voru teknir af þeim sökum í nótt. Tvær minniháttar líkamsárásir áttu sér stað í miðbænum í nótt. Þá urðu sex árkestrar á höfuðborgarsvæðinu en engin slys urðu á fólki. 2.3.2008 09:58
Ófærð á Suðurnesjum Mikill erill hefur verið hjá björgunarsveitum á Suðurnesjum í morgun við að ná bílum úr ófærð. Dimm él og skafrenningur eru á svæðinu. Þrír bílar fóru útaf á Reykjanesbrautinni í morgun og náðu björgunarsveitir bílunum upp svo hægt væri að skafa brautina. Áhersla er lögð á að halda henni opinni. 2.3.2008 09:47
Rússar kjósa eftirmann Putins Rússar ganga að kjörborðinu í dag í forsetakosningum sem búist er við að leiði til þess að Vladimir Putin haldi áfram að stjórna landinu á bakvið tjöldin. 2.3.2008 09:45
Breska lögreglan varar fjölmiðla við Lögregla sem rannsakar ásakanir um misnotkun á upptökuheimili í Jersey hefur varað fjölmiðla alvarlega við því hvernig fjallað er um málið svo rannsóknarhagsmunir skaðist ekki. Viðvörunin kemur í kjölfar viðtals sem Sky fréttastofan átti við fyrrverandi vistmann heimilisins sem ólst þar upp. 2.3.2008 08:59
Tengist mafían hruni Tvíburaturnanna? Franska Óskarsverðlaunaleikkonan Marion Cotillard hefur komið sér í nokkur vandræði Vestanhafs vegna ummæla sem hún lét falla um árásirnar á tvíburaturnana. Í viðtali á franskri sjónvarpsstöð fyrir ári dró leikkonan í efa að árásirnar á tvíburaturnana hefðu verið af völdum hryðjuverka. 2.3.2008 00:01
Tveir látnir í óveðri í Þýskalandi Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir óveður sem gengið hefur yfir meginland Evrópu í dag. Stormurinn gengur undir heitinu Emma og nálgast fellibyljastyrk 3 samkvæmt heimildum CNN. Hellirigning hefur fylgt veðrinu og tré sem rifna upp með rótum hafa valdið miklum töfum á umferð og lestarsamgöngum. 1.3.2008 20:59
Neyðarlög sett í Armeníu Neyðarlög hafa verið sett í Armeníu á ellefta degi mótmæla gegn meintu svindli forsetakosninganna. Rober Kocharyan forseti undirritaði tilskipunina til að „forðast ógn gegn stjórnarskrárlegri reglu,“ er haft eftir forsetanum á fréttavef BBC. 1.3.2008 20:35
Auglýsingastríð Clinton og Obama Barack Obama og Hillary Clinton berjast nú um atkvæði í Texas og Ohio nokkrum dögum fyrir forkosningar í ríkjunum sem gætu skipt sköpum fyrir Clinton. Bæði framboð Obama og Bill Clinton hafa lýst því yfir að Hillary verði að ná góðum árangri í ríkjunum á þriðjudag ef hún á að halda áfram baráttu fyrir tilnefningu Demókrata. 1.3.2008 20:06
Bloggfærslur hurfu af bloggi Össurar Umdeild bloggfærsla Össurar Skarphéðinssonar um Gísla Martein Baldursson borgarfulltrúa hvarf af heimasíðu Össurar í gærkvöldi ásamt fjölda annarra sem meðal annars fjölluðu um málefni Orkuveitunnar. Össur segist ekki hafa eytt færslunum út og að verið sé að kanna hvernig stóð á hvarfi þeirra. 1.3.2008 19:11
Hægt að draga úr eyrnabólgum ungbarna Útlit er fyrir að hægt verði að draga verulega úr eyrnabólgu hjá ungbörnum með nýrri aðferð við bólusetningu samkvæmt nýrri rannsókn doktorsnema við Læknadeild Háskóla Íslands. 1.3.2008 18:55
Tvöfalt fleiri leita til Kvennaathvarfsins Rúmlega tvöfalt fleiri konur hafa leitað til Kvennaathvarfsins vegna heimilisofbeldis það sem af er þessu ári en á sama tíma í fyrra. Tæplega 30 konur hafa dvalið í athvarfinu síðustu tvo mánuði og er helmingur þeirra af erlendum uppruna. 1.3.2008 18:42
Síðasta kvöldmáltíðin besta auglýsingin Síðasta kvöldmáltíðin með þeim Júdasi og Jesú Kristi var valin besta sjónvarpsauglýsingin í keppni Ímarks um Íslensku auglýsingaverðlaunin. Síminn auglýsti þar farsímaþjónustu. Sama auglýsing hreppti einnig verðlaun sem besta dagblaðaauglýsingin. Fyrirtækið EnnEMM framleiddi auglýsingarnar. 1.3.2008 10:14
Vilja olíuhreinsistöð til að sporna við fólksflótta Vestfirðingar eru orðnir langþreyttir á að ekkert sé gert til að hindra byggðaflótta af fjörðunum. Hugmyndin um olíuhreinsunarstöð er því kærkomin þó ekki sé fyrir annað en að hún skapar umræðu um ástandið. Skortur á kvenhylli gæti verið örsok byggðavandans segir varaborgarfulltrúi Samfylkingar. 1.3.2008 19:03
Tíminn að renna út með kaup á risabor Sveitarstjórnarmenn og verktakar á Austurlandi kanna nú möguleika á að kaupa síðasta risaborinn í Kárahnjúkum áður en hann verður sendur úr landi eftir tvo mánuði. Íslendingum býðst að fá borinn fyrir lágt verð en forsenda kaupanna er að samstaða náist milli sveitarfélaga og stjórnvalda um að ráðast í jarðgangagerð á Miðausturlandi. 1.3.2008 18:48
Kornabarn skilið eftir í leigubíl Klever Sailema átti einskis ills von þegar hann tók mann með kornabarn upp í leigubílinn sinn. 1.3.2008 17:56
Rændu vitlausan bar Tveir ástralskir ræningjar munu líklega í framtíðinni kanna betur þá staði sem þeir ætla að ræna. Það er að segja þegar þeir sleppa út af sjúkrahúsinu og svo út úr fangelsinu. 1.3.2008 17:04