Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Langstærsta framkvæmdin í Bolungarvík um árabil Bæjarstjórn Bolungarvíkur samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að heimila framkvæmdir og útboð vegna uppbyggingar Félagsheimilis Bolungarvíkur. 27.11.2007 11:41
Sýknuð af skaðabótakröfu vegna meintrar líkamsárásar Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag tvær konur og tvo karla af skaðabótakröfu manns sem sagði þau hafa ráðist á sig eftir dansleik á Patreksfirði árið 2004. 27.11.2007 11:28
Flutningaskipið Axel gengur fyrir eigin vélarafli Flutningaskipið Axel, sem strandaði við Hornafjarðarós í morgun, er komið af strandstað og gengur nú fyrir eigin vélarafli. 27.11.2007 10:48
Konur streyma í kynlífsferðir til Kenya Fullorðnar hvítar konur streyma nú í kynlífsferðir til Kenía þar sem þær finna sér stæðilega unga karlmenn til þess að deila fríinu með. 27.11.2007 10:45
Brotthvarf varnarliðsins ber vott um skammsýni Brotthvarf bandaríska varnarliðsins frá Íslandi ber vott um skammsýni með hliðsjón af miklum hagsmunum Bandaríkjamanna af því að fyllsta öryggis sé gætt á siglingaleiðum olíu- og gasflutningaskipa. 27.11.2007 10:45
Til hamingju Ísland Ísland hefur náð forystunni af Noregi á lista yfir þær þjóðir þar sem best þykir að búa í, samkvæmt þróunarstuðli sem birtist í árlegri skýrslu Sameinuðu þjóðanna í dag. 27.11.2007 10:22
Varað við lúmskri hálku á götum og gangstéttum Sjóvá Forvarnahúsið varar við mjög lúmskri hálku á götum og gangstéttum á höfuðborgarsvæðinu í dag. 27.11.2007 10:20
Koma upp olíugirðingu við flutningaskipið Axel Björgunarsveitarfólk úr Björgunarsveit Hornafjarðar vinnur nú að því að koma upp olíugirðingu til þess að koma í veg fyrir hugsanlega olíumengun frá flutningaskipinu Axel sem strandaði á Borgeyjarboða við Hornafjarðarós í morgun. 27.11.2007 10:02
Í kulda og trekki Átján milljónum fleiri karlmenn en konur á giftingaaldri búa í Kína. Þetta ójafnvægi er að mestu til komið vegna þeirrar stefnu stjórnvalda að banna hjónum að eignasts fleiri en eitt barn. 27.11.2007 10:00
Tekinn með 50 e-töflur Í gærkvöldi handtók lögreglan á Akureyri mann um tvítugt sem var grunaður um að vera með fíkniefni í fórum sínum. Í ljós kom að maðurinn var með um fimmtíu e-töflur. Maðurinn játaði að vera eigandi fíkniefnanna og var hann látinn laus að yfirheyrslu lokinni 27.11.2007 09:58
Flutningaskip steytti á skeri við Hornafjarðarós Flutningaskipið Axel steytti á skeri í Hornafjarðarósi þegar það var á leið frá Hornafirði um klukkan átta í morgun. 27.11.2007 09:17
Bresk kennslukona fangelsuð í Súdan Breskur grunnskólakennari, Gillian Gibbons, var nýlega handtekin í Súdan, sökuð um að svívirða samfélag múslima, með því að leyfa nemendum sínum að nefna bangsann sinn Múhameð í höfuðið á spámanninum. 27.11.2007 08:31
Lokatilraun til að elta uppi Nasista Hafin er lokatilraun til að elta uppi og lögsækja fyrrverandi stríðsglæpamenn Nasista úr síðari heimsstyrjöldinni. Verkefnið er kallað "Lokatækifærið" og er skipulagt af stofnun Símons Wiesenthal. Barátta þeirra er háð með auglýsingum og með því að bjóða þeim peningaverðlaun sem veita gagnlegar upplýsingar um Nasista. Lokatilraunin er háð í Chile, Úrugvæ, Argentínu og Brasilíu en talið er að fjölmargir Nasistar hafi flúið þangað eftir seinni heimsstyrjöldina. 27.11.2007 08:17
Handritshöfundar snúa aftur að samningaborðinu Handritshöfundar í Hollywood sneru að samningaborði með fulltrúum helstu kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðendanna í gær í fyrsta sinn síðan að verkfall þeirra hófst fyrir þremur vikum. 27.11.2007 08:08
Þrjú hundruð sérfræðingar á HIV ráðstefnu Yfir þrjú hundruð sérfræðingar í heilbrigðisvísindum eru saman komnir á ráðstefnu um HIV veiruna í Brussel. Þeir vilja að HIV próf séu bætt svo hægt sé að berjast gegn aukinni útbreiðslu veirunnar. 27.11.2007 08:03
Síldarævintýri á Grundarfirði Vind hafði ekki fyrr lægt í Grundarfirði í gær en að síldveilðiskipin hófu veiðar þar við bæjardyrnar og veiddu vel. Þar eru nú sex skip og bíða birtingar, en síldin veiðist aðeins í dagsbirtu.Síðan veiðarnar hófust í Grundarfirði fyrir hálfum örðum mánuði er búið að veiða þar yfir 60 þúsund tonn á ör litlum bletti og virðist ekki sjá högg á vatni að sögn sjómanna. 27.11.2007 07:59
Lögreglan leitar skemmdarvarga Lögregla leitaði í nótt tveggja ungra manna, sem unnu skemmdarverk á strætisvagnaskýli við Grensásveg, á móts við Espigerði í Reykjavík í nótt. 27.11.2007 07:56
Sextíu franskir lögreglumenn slösuðust í átökum Til átaka kom á milli franskra ungmenna og lögreglunnar í úthverfi Parísar aðra nóttina í röð. Lögreglan er sökuð um að bera ábyrgð á því að tvö ungmenni létust þegar vélhjól sem þau óku skall saman við lögreglubíl um helgina. 27.11.2007 07:49
Vongóðir um árangur í friðarviðræðum George Bush forseti Bandaríkjanna, Olmert forsætisráðherra Ísrael og Abbas leiðtogi Palestínumanna, segjast allir vera vongóður um að fundur sem þeir áttu saman í Maryland í Bandaríkjunum í gær geti skilað árangri í friðarviðræðum. 27.11.2007 07:45
Þrjú ungmenni slösuðust í árekstri á Akranesi Þrjú ungmenni slösuðust, en ekkert þeirra lífshættulega, þegar bíll þeirra skall af miklu afli á öðrum bíl, sem var kyrrstæður og mannlaus við Faxabraut á Akranesi í gærkvöldi. Farþegi í aftursæti kastaðist fram yfir farþega í framsæti og skarst mikið í andliti og missti framan af fingri. Hinir tveir hlutu meðal annars kviðáverka. Fólkið mun ekki hafa verið í öryggisbeltum. Þá var barnshafandi kona flutt á sjúkrahúsið á Akranesi í nótt eftir að bíll, sem hún var í, fór út af þjóðveginum á milli Borgarness og Akraness í fljúgandi hálku og hafnaði úti í skurði. 27.11.2007 07:40
Ný kenning um hvarf Madelaine Samkvæmt portúgalska dagblaðinu Publico er lögreglan þar í landi nú sannfærð um að Madelaine McCann hafi verið myrt af barnaníðing á hótelherbergi foreldra hennar. 26.11.2007 23:17
Blogg blaðamanns ekki brotlegt við siðareglur Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands(BÍ) hefur vísað frá kæru Rannveigar Rist, forstjóra Alcan, á hendur Þórði Snæ Júlíussyni, blaðamanns 24 stunda, vegna skrifa sem birt voru á bloggsíðu í febrúar á þessu ári. 26.11.2007 20:43
Tímabærar breytingar á kennaramenntun Elna Katrín Jónsdóttir varaformaður Kennarasambands Íslands, segir breytingar á kennaramenntun í nýju menntafrumvarpi sem til stendur að leggja fram vera tímabærar og í takt við þróunina í nágrannalöndum okkar. Eins og greint var frá í fréttum RÚV í kvöld verður kennaranám í núverandi mynd lagt af á næstu árum og til stendur að krefjast meistaragráðu af kennurum framtíðarinnar. Fjögur ný frumvörp munu vera á teikniborðinu hjá menntamálaráðuneytinu og ná þau til leik-, grunn- og framhaldsskóla. Elna Katrín sat í nefnd sem fjallaði um framtíðarskipan kennaramentunnar og segir hún einhug hafa ríkt í nefndinni um tillögur í þessa veru. 26.11.2007 20:55
Bændur ósáttir við að þurfa að setja kýrnar í haga Bændur eru sumir ósáttir við að neyðast til að setja kýr sínar á beit út í haga. Bændasamtökin eru hins vegar einbeitt í að halda þeirri reglu til streitu að beljur fái að viðra sig úti - þótt víða í Evrópu séu bændur jafnvel hættir útibeit. 26.11.2007 19:52
Þurftu að bíða af sér veðurhaminn í marga klukkutíma Þjóðvegurinn undir Hafnarfjalli var lokaður flutningabílum frá því í gærkvöldi og framundir hádegi vegna ofsaveðurs á svæðinu. Á annan tug flutningabíla þurfti að bíða af sér veðurhaminn. 26.11.2007 18:48
Kristján Þór neitar að hafa lofað Hagkaupum verslun á Akureyrarvelli Fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri neitar að hann hafi verið búinn að gera samkomulag um Hagkaupsverslun þar sem Akureyrarvöllur stendur nú eins og áhöld hafa verið uppi um. 26.11.2007 18:46
Læknar, dómarar og flugumferðarstjórar launahæstir Læknar, dómarar og flugumferðarstjórar eru launahæstu stéttir hjá hinu opinbera, samkvæmt tölum kjararannsóknarnefndar opinberra starfsmanna. Leikarar og starfsmenn Sinfóníuhljómsveitarinnar eru hins vegar í hópi þeirra sem bera minnst úr býtum. 26.11.2007 18:43
Segir verktakafyrirtæki reyna að græða á félagslegum afslætti Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar óttast að verktakafyrirtæki í Reykjavík sé að reyna stinga afslætti sem eingöngu er ætlaður félagslegum íbúðaúrræðum í eigin vasa. Fyrirtækið hafi fengið afslátt af lóða- og gatnagerðargjöldum en ætli nú að selja íbúðirnar á fullu markaðsverði til ríkisins. 26.11.2007 18:42
Ekkja Pavarottis krefst skaðabóta Ekkja Lucianos Pavarottis krefst tæplega þriggja milljarða króna skaðabóta af vinum óperusöngvarans fyrir særandi ummæli um sig. 26.11.2007 18:30
Ísland fylgist með rússneskum kafbátum Ferðum rússneskra kafbáta undan ströndum Noregs hefur fjölgað verulega að undanförnu. 26.11.2007 17:21
Feðgar með 13 rétta: Datt ekki í hug að spá United sigri Átta ára strákur og pabbi hans voru með 13 rétta í enska boltanum um helgina. Þeir uppskáru rúmar tvær milljónir í sinn hlut en þeir höfðu þann háttinn á að strákurinn spáði fyrir um úrslitin og síðan tvítryggði pabbinn sex leiki. Það kom þó ekki annað til greina en að spá Bolton sigri á Manchester United, enda heldur strákurinn með Liverpool. 26.11.2007 17:01
Vilja hafa ólympíueldinn umhverfisvænni Skipuleggjendur Ólympíuleikanna í Lundúnum 2012 leita nú orkugjafa sem nota á í ólympíueldinn þannig að hann gefi frá sér eins lítið af koltvísýringi og mögulegt er. 26.11.2007 16:59
Rökstuddur grunur um að kona hafi verið seld mansali hingað til lands Hildur Dungal, forstjóri Útlendingastofnunar, staðfestir dæmi þess að erlend kona hafi fengið dvalarleyfi á Íslandi vegna vísbendinga um að hún hafi verið seld mansali hingað til lands. 26.11.2007 16:41
FÁR: Leggst gegn áfengisfrumvarpinu Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa, (FÁR), hefur sent ályktun á alla alþingismenn þar sem þeir eru hvattir til þess að leggjast gegn frumvarpi sem heimilar sölu áfengis í matvöruverslunum. Magnús Einarsson, ritari FÁR, segir að þar á bæ séu menn vongóðir um að þinmenn átti sig á alvarleika málsins og þeim afleiðingum sem sala léttvíns og bjórs í matvöru búðum myndi hafa í för með sér. 26.11.2007 16:23
Slys á jólahlaðborðum danskra fyrirtækja eru vinnuslys Þau slys sem verða á jólahlaðborðum danskra fyrirtækja teljast til vinnuslysa. 26.11.2007 16:04
Skjálftahrina í grennd við Hveravelli Þónokkur skjálftavirkni hefur verið norðvestur af Hveravöllum síðustu klukkutíma. Sex skjálftar hafa riðið yfir og var sá stærsti 4,4 á Richter kvarðanum en sá minnsti mældist 2,3 á Richter. Búast má við eftirskjálftum. 26.11.2007 16:00
Reykur úr kjallara reyndist vera gufa Slökkvilið höfuðborgvarsvæðisins var kallað að Þverbrekku í Kópavogi í morgun vegna reyks sem lagði úr kjallara verslunar við götuna. 26.11.2007 15:34
Musharraf mun láta af embætti hershöfðingja Pervez Musharraf mun sverja embættiseið sem forseti Pakistan í þriðja skipti á fimmtudag. Þetta hefur BBC fréttastofan eftir Rashid Qureshi talsmanni Musharrafs. Qureshi sagði jafnframt að Musharraf myndi segja af sér embætti hershöfðingja í landinu áður en hann myndi sverja forsetaeiðinn. 26.11.2007 15:32
Fundu fíkniefni í kjölfar umferðaróhapps Karlmaður var í Héraðsdómi Norðurlands eysta dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa í fórum sínum ýmiss konar fíkniefni þegar lögregla leitaði á honum eftir umferðaróhapp. 26.11.2007 15:05
Díana var ekki með barni Lík Díönu prinsessu af Wales, sýndi engin merki þess að hún hefði verið ófrísk. Þetta fullyrti meinafræðingurinn Dr. Robert Chapman fyrir rétti í dag. Dr. Chapman krufði lík Díönu. Hann sagði að kviður hennar og móðurlíf hefðu ekki tekið þeim breytingum sem það myndi gera í ófrískri konu. Chapman viðurkenndi þó að þessar breytingar þyrftu ekki endilega að vera ljósar á fyrstu þremur vikum meðgöngunnar. 26.11.2007 14:38
Pútín sakar ÖSE um að ganga erinda Bandaríkjamanna Vladímír Pútín Rússlandsforseti segir Bandaríkjamenn reyna að grafa undan þingkosningum í Rússlandi um næstu helgi með því að þrýsta á vestræna kosningaeftirlitsmenn að sniðganga kosningarnar. 26.11.2007 14:25
Héldu að foreldrarnir hefðu selt Madeleine Portúgölsku lögregluna grunaði um tíma að foreldrar Madeleine McCann hefðu selt hana barnaníðingum til þess að losna úr fjárhagskröggum. 26.11.2007 14:19
Torrent-mál tekið fyrir 12. desember Mál nokkurra höfundarréttarsamtaka á hendur eiganda skráardeilingarsíðunnar torrent.is verður tekið fyrir hjá dómstólum þann 12. desember 26.11.2007 14:02
Kæra vörusvik á ginsengi til Neytendastofu Neytendasamtökin hafa kært til Neytendastofu vörusvik við sölu á ginsengi. Eftir því sem segir á vef Neytendasamtakanna er um að ræða rautt ginseng sem ekki hefur haft þá virkni sem ætla mætti. 26.11.2007 13:15
Við erum í góðum málum..... Hvernig heldur maður eftirminnilega upp á þrítugsafmæli sitt? Morgunþáttastjórnandi við dönsku svæðisútvarpsstöðina Radio Globus mætti nú bara samviskusamlega í sína vinnu. 26.11.2007 13:15
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent