Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vítisenglar sendir heim í fylgd lögreglumanna Vítisenglarnir átta sem lögregla stöðvaði í Leifsstöð í gær við komuna til landsins voru fluttir til síns heima nú í morgunsárið. Tveir lögreglumenn munu fylgdu hverjum manni í flugvélunum. Sjö þeirra voru fluttir til Noregs en einn til Danmerkur og því munu alls sextán lögreglumenn halda utan með mótorhjólamönnunum. 3.11.2007 08:00
Enn einn engillinn stöðvaður Einn maður sem talinn er vera meðlimur í Vítisenglunum var handtekinn í Leifsstöð nú í kvöld en hann kom með flugi frá Kaupmannahöfn. Manninum verður að öllum líkindum synjað um landgöngu rétt eins og hinum vítisenglunum sjö sem teknir voru við komuna til landsins í dag. 2.11.2007 23:08
Sjö vítisenglum synjað um leyfi til landgöngu Íslensk lögregluyfirvöld synjuðu sjö norrænum félögum í vélhjólasamtökunum Hell’s Angels um leyfi til landgöngu við komu þeirra til landsins í dag. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að fólkið, sem kom hingað til lands með tveimur vélum frá Noregi, hafi ætlað að sækja veislu, sem vélhjólaklúbburinn Fafner MC-Iceland hefur boðað til í miðborg Reykjavíkur um helgina. 2.11.2007 22:12
Myndband: Vísir vitni að Vítisenglahandtöku Vísir var við landganginn þegar Vítisenglarnir komu með seinni vélinni frá Osló í kvöld. Vélin lenti klukkan 18:26 og voru hátt í 50 lögreglumenn sem tóku á móti hópnum. Vísir náði upp á myndband þegar einn Vítisenglanna var leiddur á brott í lgreglufylgd. 2.11.2007 20:36
Handritshöfundar ætla í verkfall Samtök handritshöfunda í Hollywood tilkynntu í kvöld að þeir hyggist leggja niður vinnu sína frá og með næstkomandi mánudegi. Höfundarnir krefjast þess að fá stærri hlut af sölu á DVD diskum. 2.11.2007 22:52
Lögmaður Vítisengla hefur enn ekki hitt þá Oddgeir Einarsson, lögmaður tveggja vítisengla sem handteknir voru í Leifsstöð fyrr í dag hefur enn ekki fengið að hitta skjólstæðinga sína. Hann hefur engar upplýsingar fengið um málið og er farinn aftur til Reykjavíkur. Hann segir að ef svo fari að mönnunum verði vísað úr landi án þess að fá aðstoð lögfræðings væri það magnað. 2.11.2007 20:49
Tíu til tólf handteknir til viðbótar Tíu til tólf karlmenn voru handteknir á Keflavíkurflugvelli nú í kvöld þegar seinni vélin frá Osló lenti klukkan 18.26. Þeir eru grunaðir um að vera meðlimir í mótorhjólasamtökunum Hells' Angels og samkvæmt heimildum Vísis voru nokkrir þeirra í leðurvestum merktum samtökunum. Von er á fleiri vítisenglum í kvöld þegar vélin frá Kaupmannahöfn lendir klukkan tíu. 2.11.2007 19:29
Glitnir ásælist Þeistareyki Landsvirkjunarmenn og Húsvíkingar fóru í hart í vor gegn áformum Akureyringa um að hleypa Glitni að jarðhitanýtingu Þeystareykja. Landsvirkjun óttaðist að missa forystuhlutverk sitt og Húsvíkingar að orkuöflun vegna álvers á Bakka yrði ógnað. 2.11.2007 19:24
Hvarf hljóðfæra úr Smáraskóla kært til lögreglu Bæjarráð Kópavogs samþykkti í gær að vísa til opinberrar rannsóknar lögreglu hvarfi á hljóðfærum og hljómflutningstækjum úr Smáraskóla. 2.11.2007 19:22
Áhersla á launahækkanir sem tryggi kaupmátt Þingi Landsambands íslenzkra verzlunarmanna lauk í dag og en á þinginu var meðal annars ályktað um kjaramál. Landsambandið leggur áherslu á að í komandi kjarasamningum verði samið um launahækkanir sem tryggi launafólki aukinn kaupmátt. 2.11.2007 19:16
Hættir hjá LHG eftir 35 ára starf Í dag lét Tómas Helgason flugstjóri af störfum eftir tæplega 35 ára farsælt starf hjá Landhelgisgæslu Íslands. „Tómas hóf störf hjá Landhelgisgæslunni í febrúar árið 1973 og starfaði þá á fyrstu Fokker flugvélinni, TF-SYR. Eftir um 15 ára starf á flugvélinni starfaði hann sem þyrluflugmaður og flugstjóri í allnokkur ár, þar til hann snéri sér alfarið að flugi á núverandi Fokker vél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN. Þeirri vél hafði hann jafnframt flogið samhliða þyrlufluginu,“ segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. 2.11.2007 19:10
Áhyggur af framhaldinu á Srí Lanka Blikur eru á lofti á Srí Lanka eftir að helsti samningamaður skæruliða Tamíltígra féll ásamt fimm öðrum háttsettum mönnum í loftárás stjórnarhersins í morgun. 2.11.2007 19:00
Ólafur Ragnar seldi lyklakippur í Smáralind Ólafur Ragnar Grímsson, hleypti formlega af stokkunum átaki Slysavarnafélagsins Landsbjargar "Neyðarkall frá björgunarsveitum" í Smáralind í dag. Forseti seldi lyklakippur með björgunarsveitarkonu til og tóku gestir verslunarmiðstöðvar honum vel. 2.11.2007 18:49
Metnir sem lífshættulegir bílar Toyota Hilux pallbílar eru lífshættulegir að mati sænsks bílablaðs. Bifreiðin fer nærri því að velta í ökuprófi. Samskonar próf olli vandræðum fyrir A-bíl Mercedez Benz fyrir áratug. 2.11.2007 18:45
Ungliðahópur Vítisengla stofnaður í Danmörku Vítisenglar í Danmörku hafa stofnað svokallaðan ungliðahóp fyrir þá sem vilja ganga í samtökin en hafa ekki efni á vélfáki. Ekki fæst gefið upp hvaða tilgangi nýi hópurinn þjóni. 2.11.2007 18:30
Vilhjálmur mun aldrei segja af sér Vilhjálmur Vilhjálmsson mun aldrei segja af sér sem oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins þrátt fyrir að hafa verið harðlega gagnrýndur fyrir framgöngu sína í sameiningarferli REI og GGE. Þetta hefur Vísir frá nánustu samstarfsmönnum Vilhjálms. 2.11.2007 17:21
Lögmaður fær ekki að hitta Vítisengla Oddgeir Einarsson, lögmaður norsku Vítisenglanna sem nú eru í haldi lögreglu á Leifsstöð, fær ekki að hitta skjólstæðinga sína. Hann yfirgaf flugstöðina rétt í þessu en er væntanlegur aftur innan skamms. 2.11.2007 16:56
Kaupás vill rannsókn á ásökunum um samráð Kaupás, sem meðal annars rekur Krónuna, mótmælir harðlega þeim ásökum um ólöglegt samráð og segir vegið að orðspori og óendanlega mikilvægu trúnaðartrausti verslunarinnar og viðskiptavina hennar. 2.11.2007 16:50
Umferðartafir vegna slyss við Grensásveg Fjórir voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild Landspítalans eftir árekstur fólksbíls og sendibíls á mótum Grensásvegar og Mikluabrautar laust eftir klukkan þrjú í dag. 2.11.2007 16:36
Eins og að Osama Bin Laden sé að koma til landsins Gríðarlegur viðbúnaður er á Leifsstöð þessa stundina vegna komu félaga úr Hells Angels í Noregi hingað til lands. Vísir er á staðnum og hefur rætt við fólk sem er að koma úr flugstöðinni. Einn þeirra skaut á að um 70 lögreglumenn biði komu norsku Hells Angels mannanna. Annar hafði það á orði að ástandið í flugstöðinni væri líkt og Osama Bin Laden væri væntanlegur til landsins. 2.11.2007 16:33
Neitar því að fíkniefni og vopn hafi verið gerð upptæk Jón Trausti Lúthersson, félagi í vélhjólaklúbbnum Fáfni, neitar því að lögregla hafi lagt hald á fíkniefni og vopn við húsleit í húsakynnum Fáfnis í gærdag. 2.11.2007 16:19
Vísir sýnir beint frá komu Hells Angels til Íslands Eins og sagt var frá hér á Vísi fyrr í dag er hópur Hells Angels manna frá Noregi væntanlegur til Íslands í dag. Hópur Fáfnismanna er á Keflavíkurflugvelli til þess að taka á móti mönnunum. Gert er ráð fyrir að lögreglan verði með töluverðan viðbúnað á Leifsstöð vegna þessa. Vísir verður á staðnum og verður hægt að horfa á beina útsendingu frá Leifsstöð hér á vefnum rétt eftir klukkan 16:00 2.11.2007 15:51
Lögreglan með aðgerðir vegna komu Hell´s Angels Íslensk lögregluyfirvöld hafa undirbúið aðgerðir vegna komu norrænna félaga í vélhjólasamtökunum Hell's Angels til landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra. Þar segir að að Ríkislögreglustjóri fari með yfirumsjón aðgerðarinnar en lögreglarn á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu hefur umsjón með framkvæmd einstakra þátta aðgerðarinnar. 2.11.2007 15:48
Samþykkt á fundi OR að fallast á tillögu borgarráðs Samþykkt var einróma á fundi stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur í dag að fallast á tillögu borgarráðs að falla frá hinum umdeilda samruna Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy sem samþykktur var á stjórnarfundi Orkuveitunnar þann 3. október. 2.11.2007 15:33
Lífeyrisfrumvarpið afgreitt til annarar umræðu á þingi Fyrstu umræðu um breytingar á lífeyrisgreiðslum æðstu embættismanna þjóðarinnar lauk á alþingi í dag og var málið afgreitt til annarar umræðu og allherjarnefndar. Markmiðið með flutningi frumvarpsins er að alþingismenn, ráðherrar og hæstaréttardómarar njóti sömu lífeyriskjara og ríkisstarfsmenn, en búi ekki við sérstök forréttindi. 2.11.2007 15:22
Fallni tamílaleiðtoginn hitti marga Íslendinga Tamílaleiðtoginn sem Bjarni Vestmann heilsaði á Sri Lanka á dögunum var einn af þeim Tamílum sem Norðmaðurinn Erik Solheim átti mest samskipti við þegar hann var að reyna að koma á friði í landinu. 2.11.2007 15:11
Sektaður fyrir að hafa ekið dópaður í tvígang Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann til að greiða 180 þúsund krónur í sekt og svipti hann ökurétti í fimm mánuði fyrir að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna í tvígang árinu. 2.11.2007 15:04
Salmonella finnst aftur í nagbeini Salmonella fannst í óinnpökkuðum svínseyrum og nagbeinum fyrir hunda úr nautgripum við eftirlit Landbúnaðarstofnunar á dögunum. Fram kemur í tilkynningu frá stofnunni að vörurnar hafi verið til sölu í gæludýraversluninni Tokyo í Hafnarfirði. 2.11.2007 14:43
Foreldrar 7100 barna hafa nýtt sér frístundakortið Foreldrar 7100 barna og unglinga í Reykjavík hafa nú sótt um frístundakortið og ráðstafað styrknum til félaga sem voru búin að skrá sig hjá borginni. Eru það um 60 prósent af þeim fjölda sem gert var ráð fyrir að myndi nýta sér frístundakortið í fyrsta áfanga. 2.11.2007 14:27
Hells Angels meðlimir væntanlegir til Íslands í dag Félagar úr mótohjólaklúbbnum Fáfni eru á leið til Keflavíkur að taka á móti félögum úr Hells Angels mótorhjólasamtökunum sem væntanlegir eru til landsins síðdegis í dag. 2.11.2007 14:19
Íslenskir barnaníðingar kynntir í Haag Tveir Íslendingar eru í alþjóðlegum hring barnaníðinga sem sagt verður frá á blaðamannafundi sem Interpol og Eurojust halda á mánudaginn. 2.11.2007 14:03
Nei ráðherra Ráðherra í breska innanríkisráðuneytinu var í dag sektaður um 100 sterlingspund, rúmar 12000 krónur fyrir að tala í farsíma undir stýri. 2.11.2007 13:17
RÚV og Árvakur máttu vinna saman í kannanamálum Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir við það að Ríkisútvarpið og Árvakur hafi í sameiningu samið við Capacent Gallup um gerð og birtingu vikulegra skoðanakannana á fylgi stjórnmálaflokkanna í aðdraganda síðustu alþingiskosninga. 2.11.2007 13:14
Harður árekstur á Suðurlandsvegi við Selfoss Ökumaður fólksbíls var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir harðan árekstur á Selfossi um ellefuleytið í morgun. 2.11.2007 13:03
Björgólfsfeðgar vilja Fáfnismenn úr sínum húsum Klúbbhús mótorhjólaklúbbsins Fáfnis, sem sérsveit lögreglu réðst inn í í gær, er í eigu eignarhaldsfélagsins Vatns og lands. Vatn og Land er í eigu Samson Properties sem aftur er í eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar. 2.11.2007 12:50
Svandísarmáli frestað um tvær vikur Málflutningi í máli Svandísar Svavarsdóttur, borgarfulltrúa vinstri grænna, gegn Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið frestað um tvær vikur, að beiðni Ragnars Hall, lögmanns Svandísar. 2.11.2007 12:47
Taka beri á samráði reynist ásakanir réttar Formaður viðskiptanefndar segir ásakanir á hendur Krónunni og Bónuss, um mögulegt verðsamráð alvarlegar og taka beri á þeim reynist þær réttar. Samkeppniseftirlitið hvetur alla sem telja sig vita um ólögmætt verðsamráð í verslunum að tilkynna það til eftirlitsins. 2.11.2007 12:36
Áfall fyrir friðarumleitanir á Sri Lanka Fráfall Thamilselvan, leiðtoga stjórnmálaarms Tamil tígra á Sri Lanka, er áfall fyrir friðarumleitanir á svæðinu að sögn fyrrverandi talsmanns vopnahléseftirlitsins þar. Hann segir nánast öruggt að hefndaraðgerðir fylgi í kjölfarið. 2.11.2007 12:28
Reyndi að eignast hlut í einu verðmætasta háhitasvæði landsins Glitnir freistaði þess í vor að eignast stóran hlut í Þeistareykjum ehf., sem hefur nýtingarrétt á einu verðmætasta háhitasvæði landsins. Akureyringar opnuðu á viðræður um sölu en Húsvíkingar og Landsvirkjun snerust gegn áformunum. Málið er nú í biðstöðu. 2.11.2007 12:18
Fimmtán rjúpur veiddar í gær samkvæmt veiðidagbók UST Fimmtán rjúpur veiddust í gær samkvæmt fyrstu tölum úr rafrænni veiðidagbók sem veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunar heldur utan um. 2.11.2007 12:14
Hendur vopnaframleiðenda á Hilton á litaðar blóði Samtök hernaðarandstæðinga gagnrýna harðlega fund stjórnenda vopnaframleiðslufyrirtækisins BAE Systems í Reykjavík. „Vopnaiðnaðurinn er án nokkurs vafa óviðfelldnasta atvinnugrein samtímans," segir í ályktun frá samtökunum. 2.11.2007 12:05
Ísraelar vilja frið áður en George Bush hættir Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels vonast til þess að ná friðarsamningum við Palestínumenn áður en George Bush forseti lætur af völdum. 2.11.2007 11:57
Minnihluti höfuborgarbúa á nagladekkjum í vetur Útlit er fyrir að innan við helmingur íbúa á höfuðborgarsvæðinu verði á nagladekkjum í vetur ef marka má könnun sem unnin var fyrir framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar í haust. 2.11.2007 11:53
Með reiðhjólalager í hjólageymslunni Lögreglan í Grafarvogi fann á dögunum allmikinn hjólalager í hjólageymslu fjölbýlishúss í hverfinu. Var það eftir ábendingu um að hjólum hefði fjölgað óvenju mikið í geymslunni á skömmum tíma. 2.11.2007 11:40
Ekki hægt að útiloka bótaskyldu borgarinnar Sigurður Líndal lagaprófessor segir að ekki sé hægt að útiloka bótaskyldu borgarinnar vegna þess að samruna REI og Geysir Green verði rift. „Ég hef að vísu ekki kynnt mér málið nánið en við fyrstu sín blasir þetta við,“ segir Sigurður Líndal í samtali við Vísi. 2.11.2007 11:31