Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Auglýsingin er nútímatrúboð Ný auglýsing Símans, þar sem síðasta kvöldmátíðin er endurgerð, er smekklaus að mati biskups Íslands. Á biskupsstofu er spurt hvort ekkert sé heilagt lengur. Jón Gnarr, höfundur auglýsingarinnar, segir um nútímatrúboð að ræða. 4.9.2007 18:59
Meira en helmingur tekna Íslandspósts á samkeppnismarkaði Íslandspóstur gengur langt út fyrir verksvið sitt í samkeppni við einkafyrirtæki, segja talsmenn Hans Petersen hf. Forstjóri Íslandspósts segir að rúmur helmingur tekna Íslandpósts komi frá starfsemi á samkeppnismarkaði. 4.9.2007 18:56
Ný heimasíða býður reykingamönnum félagslegan stuðning til að hætta Reykingamönnum sem gengur illa að losna undan níkótínfíkninni býðst nú nýtt hjálpartæki. Í gegnum netið geta þeir sótt félagslegan stuðning til að hætta að reykja. 4.9.2007 18:54
Sex réttindalausir ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði sex réttindalausa ökumenn um síðustu helgi. Einn karlmaður á sextugsaldri var tekinn í Hafnarfirði. Sá sagðist hafa gleymt ökuskírteininu heima en við nánari athugun kom í ljós að búið var að svipta manninn ökuleyfi ævilangt. 4.9.2007 18:51
MS ósátt við Siggi's skyr Mjólkursamsalan íhugar að kæra íslenskan skyrframleiðanda í New York fyrir að selja vöru sína undir nafninu Siggi's skyr. Samsalan kveðst eiga einkaleyfi á vörumerkinu skyri. 4.9.2007 18:45
Friðargæsluliði heim frá Írak Utanríkisráðherra hefur ákveðið að kalla íslenska friðargæsluliða heim frá Írak þar sem Íslendingar vilji ekki taka þátt í stríðsrekstri þar. 4.9.2007 18:30
Skólanemar streyma í strætó Farþegum Strætó á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað um fjórðung á þessu hausti - þökk sé fríkortinu sem sveitarfélögin ákváðu að gefa framhalds- og háskólanemum. Þetta er mat framkvæmdastjóra Strætó. 4.9.2007 18:30
Bláskógabyggð veðursælasta sveitarfélagið Bláskógabyggð var veðursælasta sveitarfélagið í sumar samkvæmt veðurleik veðurstofu Stöðvar 2 og Vísis. Borgarbyggð var í öðru sæti en Rangárþing Eystra í því þriðja. 4.9.2007 18:27
Strokupilta enn leitað Ekkert hefur enn spurst til piltanna tveggja sem struku frá meðferðarheimilinu Bergi í Aðaldal að kvöldi síðastliðins sunnudags. Talið er líklegt að piltarnir hafi stolið bíl og keyrt til Reykjavíkur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við Barnaverndaryfirvöld hefur nú tekið formlega við málinu af lögreglunni á Húsavík. 4.9.2007 17:25
Eldur í parhúsi í Breiðholti Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eld í parhúsi í Breiðholti laust eftir klukkan fimm í dag. Búið var að slökkva eldinn þegar slökkvilið bar að garði. 4.9.2007 17:13
Dagdeild opnuð við líknardeildina í Kópavogi Félagar í Oddfellow-reglunni á Íslandi færðu í dag Landspítalanum dag-, göngu- og fimm daga deild fyrir sjúklinga á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Slíkt er nýjung í starfsemi líknardeildar. 4.9.2007 16:59
Lúðvík Gizurarson á engar kröfur í dánarbú Hermanns Jónassonar Lúðvík Gizurarson getur ekki gert neinar kröfur um arf eftir Hermann Jónasson, jafnvel þótt forsætisráðherrann fyrrverandi verði úrskurðaður faðir hans. Það mál er nú fyrir dómi eftir að DNA próf leiddi í ljós að 99,9 prósent líkur eru á því að Lúðvík sé sonur Hermanns. 4.9.2007 16:55
Felldu tillögu um að kaupa Laugaveg 4 og 6 Tillaga fulltrúa Vinstri - grænna og Frjálslynda flokksins í borgarstjórn um að borgarstjóra yrði falið að leita leiða til að festa kaup á húsunum að Laugavegi 4 og 6 með það fyrir augum að varðveita þau í upprunalegri mynd var felld á fundi borgarstjórnar nú í eftirmiðdaginn. 4.9.2007 16:50
Heildstætt frumvarp um verkefnaflutning í haust Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin muni í haust flytja heildstætt frumvarp um breytingar á sérlögum vegna verkefnatilfærslna á milli ráðuneyta í samræmi við þær hugmyndir sem kynntar voru þegar ríkisstjórnin var mynduð. Þetta kemur fram í svarbréfi hans til Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins. 4.9.2007 16:32
Finnar rífast um norrænt samstarf Framtíð norræns samstarfs hefur verið margumrætt efni í Finnlandi. Í sumar birti dagblaðið Helsingin Sanomat greinaflokk um efnið. Umræðan hófst með grein sem Sampsa Saralehti skrifaði og staðhæfði að leggja mætti Norðurlandaráð og Norrænu ráðherranefndina niður. 4.9.2007 16:17
Ósamræmi fagfólks ein ástæða nauðgunarsýknu Algert ósamræmi í framburði vakthafandi læknis og hjúkrunarfræðings á neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb kynferðisbrota var ein af ástæðum þess að 33 ára karlmaður var í dag sýknaður af því að hafa nauðgað greindarskertri konu á heimili sínu í maí á síðasta ári. 4.9.2007 16:15
Yfir helmingur ók of hratt fram hjá Ingunnarskóla Meira en helmingur ökumanna sem ók fram hjá Ingunnarskóla í hádeginu í gær ók of hratt og má eiga von á sekt. Eftir því sem fram kemur í frétt frá lögreglunni fóru 70 ökutæki um Kristnibraut í Grafarholti fram hjá skólanum á einni klukkustund og óku 39 þeirra of hratt. 4.9.2007 16:08
Hérna eru geiturnar -fljúgum svo Forstöðumenn ríkisflugfélagsins í Nepal fórnuðu tveim geitum síðastliðinn sunnudag til þess að friða skýjaguðinn Akash Bairab. Ástæðan fyrir fórninni var sú að önnur Boeing þota flugfélagsins hafði verið biluð í nokkrar vikur og því þurft að aflýsa mörgum áætlunarferðum. 4.9.2007 16:05
Sölumenn SS í samúðarverkfalli Tíu til tólf sölumenn hjá Sláturfélagi Suðurlands mættu ekki til vinnu í morgun og báru við veikindum. Heimildir Vísis herma að sölumennirnir séu ósáttir við að sölustjóra þeirra hafi verið sagt upp. Forstjóri SS segir þetta valda ákveðinni truflun hjá fyrirtækinu en segist ekki vilja ætla mönnum það að þeir geri sér upp veikindi. 4.9.2007 16:03
Að minnsta kosti 1500 athugasemdir vegna hafnarsvæðis á Kársnesi „Þetta fer fram úr okkar björtustu vonum," segir Arna Harðadóttir, formaður Betri byggðar á Kársnesi, en bæjaryfirvöldum í Kópavogi bárust að minnsta kosti 1500 athugasemdir vegna skipulagstillögu á hafnarsvæði á Kársnesi. Athugasemdafrestur vegna tillagnanna rann út í gær. 4.9.2007 15:50
Biskup var búinn að blessa auglýsingar Jón Gnarr, hugmyndasmiður auglýsingaherferðar Símans, sem sýnir síðustu kvöldmáltíðina í spaugilegu ljósi, fundaði með Biskupi Íslands, Hr. Karli Sigurbjörnssyni, áður en herferðin fór í loftið. Jón leiklas handrit auglýsingarinnar fyrir Biskup sem síðan gerði engar efnislegar athugasemdir við auglýsingarnar en bað Jón um að fara varlega og sýna tillitsemi. Í dag sagði biskup auglýsingarnar smekklausar. Jón Gnarr er undrandi á ummælum biskups. 4.9.2007 15:21
Kynna niðurstöðu í hugmyndasamkeppni á fimmtudag Dómnefnd sem skipuð var vegna hugmyndasamkeppni um nýtt skipulag í Kvosinni skilar tillögum sínum á fimmtudag. Þetta kom fram í máli Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, formanns skipulagsráðsráðs borgarinnar og formanns dómnefndarinnar, á fundi borgarstjórnar í dag. Þar var verið að ræða niðurrif húsanna að Laugavegi 4 og 6. 4.9.2007 14:48
Stóri bróðir vaktaði höfund stóra bróður Breski rithöfundurinn George Orwell, sem bjó til hugtakið "Stóri bróðir," var sjálfur undir eftirliti þessa bróður án þess að hafa um það hugynd. Orwell skrifaði hina frægu bók 1984 um einræðisríki þar sem allir þegnarnir voru undir stöðugu eftirliti. Sumir þeirra voru reyndar jafnari en aðrir. 4.9.2007 14:38
Fótboltabullan fékk skilorðsbundinn dóm Frægasta fótboltabulla Norðurlanda, sem ákærð var fyrir að hlaupa inn á völlinn í leik Dana og Svía á Parken í júní síðastliðnum, var í dag dæmd í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi í bæjarrétti í Kaupmannahöfn. Auk þess var hinn 29 ára gamli Dani dæmdur til að sinna 40 klukkustundum í samfélagsvinnu og borga sakarkostnað. 4.9.2007 14:31
Vill aðgerðaáætlun í landgræðslu Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti í morgun ræðu á alþjóðlegri ráðstefnu um landgræðslu og loftslagsbreytingar sem haldin er á Selfossi. Ráðstefnan er haldin í tilefni af 100 ára afmæli Landgræðslu ríkisins og fjölmargir sérfræðingar og alþjóðlegir áhrifamenn eru meðal þátttakenda. 4.9.2007 14:08
Auglýsing Símans er ósmekkleg - Biskupsstofa Ný auglýsing frá Símanum hefur farið fyrir brjóstið á mörgum. Verið er að auglýsa nýjan farsíma og talað um að hann breyti gangi sögunnar. Og það er sannarlega farið inn í söguna því inn í þessa auglýsingu er skeytt síðustu kvöldmáltíðinni og samskiptum Júdasar og Krists. Auglýsingin er birt bæði í sjónvarpi og dagblöðum. 4.9.2007 14:06
Sýknaður af því að hafa nauðgað þroskahamlaðri konu 33 ára gamall misþroska karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sýknaður af ákæru þess efnis að hann hefði nauðgað 31 árs greindarskertri konu á heimili sínu í maí á síðasta ári. Ákærði viðurkenndi að hafa haft samræði við konuna en hann bar að það hefði verið með samþykki hennar. Í dómsorði kemur fram að framburður konunnar hafi verið efnislítill og óstöðugur og það megi rekja til mikillar greindarskerðingar hennar. Því var það talið ósannað að ákærði hefði þröngvað konunni til samræðis. 4.9.2007 13:31
Lánasýsla ríkisins lögð niður og verkefni færð undir Seðlabankann Verkefni Lánasýslu ríkisins verða færð til Seðlabanka Íslands og stofnunin formlega lögð niður samkvæmt tillögu sem Árni Mathiesen fjármálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun 4.9.2007 13:10
Öryggismat ekki gert eftir forskrift forsetans Ríkislögreglustjóri neitar því að öryggismat sem embættið gerði fyrir Laufásveg 72 hafi ekki verið gert eftir forskrift forseta. Húsið er gestahús forsetaembættisins en nágrannar hússins hafa ekki fengið að gera breytingar á húsum sínum á þeirri forsendu að öryggismat ríkislögreglustjóra komi í veg fyrir þær. 4.9.2007 13:08
Mun fleiri taka strætó í haust en á sama tíma í fyrra Mun fleiri taka strætó á höfuðborgarsvæðinu núna í haust en í fyrra, að sögn framkvæmdastjóra Strætó. 4.9.2007 12:52
William Shakespeare veldur umferðarslysi Þrír slösuðust þegar að vatnabuffalói, að nafni William Shakespeare slapp út af engi í Kúmbríu á Englandi og hljóp út á hraðbraut í veg fyrir aðvífandi umferð. 4.9.2007 12:47
Tólf stútar undir stýri á sunnudag Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu á sunnudaginn var. Alls voru sautján ölvaðir ökumenn stöðvaðir yfir helgina, ellefu í Reykjavík, fimm í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að um hafi verið að ræða sextán karla á aldrinum 18 - 48 ára og eina konu á fertugsaldri. 4.9.2007 12:46
Lausamunir á fleygiferð í fyrstu haustlægðinni Lausamunir hafa fokið víða um land en ekki er vitað um alvarleg óhöpp eða slys í þessari fyrstu alvöru haustlægð sem gengur yfir landið. 4.9.2007 12:30
Felix nær fullum styrk Fellibylurinn Felxi sem fer nú yfir Mið-Ameríku hefur náð fullum styrk. Hann stefnir hraðbyr á Hondúras og Níkaragva. Tugþúsundir manna hýrðust í neyðarskýlum í nótt og 15 þúsund manns komast hvorki lönd né strönd. 4.9.2007 12:23
Skora á stjórnvöld að bæta kjör öryrkja Heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytunum hafa í dag borist tölvupóstar þar sem skorað er á íslensk stjórnvöld að leiðrétta þegar í stað kjör öryrkja og aldraðra til samræmis við íslenskan veruleika. 4.9.2007 12:20
Verið að ganga frá skráningu starfsmanna Hunnebeck Verið er að ganga frá því að skrá tæplega fjörutíu starfsmenn pólska fyrirtækisins Hunnebeck, sem starfsmenn Arnarfells. Starfssemi fyrirtækisins verður því ekki stöðvuð í hádeginu, eins og útlit var fyrir. 4.9.2007 12:15
Þriðja stóra hryðjuverkamálið í Danmörku á tæpum tveimur árum Átta menn voru handteknir í Kaupmannahöfn í nótt - grunaðir um að hafa ætlað að smíða sprengjur sem nota átti til hryðjuverkaárása í Danmörku. Mennirnir eru sagðir tengjast al Kaída. Þetta er þriðja stóra hryðjuverkamálið í Danmörku á tæpum tveimur árum. 4.9.2007 12:13
Íslandspóstur má gefa út persónuleg frímerki Póst- og fjarskiptastofnun hefur heimilað Íslandspósti að gefa út persónuleg frímerki með áletruninni „Bréf 50 g Innanlands" í stað áletrunar um verðgildi. Íslandspóstur óskaði eftir því fyrr á árinu þar sem fyrirtækið hygðist bjóða viðskiptavinum upp á að setja eigin mynd eða velja mynd úr myndabanka á frímerki. 4.9.2007 12:04
Danskir hermenn í hálendisferð Hópur danskra hermanna kom með Norrænu til Seyðisfjarðar í morgun. Þeir flytja með sér vígalega herjeppa sem þeir ætla að spreyta sig á í óbyggðum á hálendi landsins næsta hálfa mánuðinn. 4.9.2007 11:31
Íslensk rannsókn á sýklalyfjanotkun vekur athygli Um þriðjungur íslenskra barna ber bakteríur serm eru ónæmar fyrir sýklalyfjum og geta auðveldlega smitast á milli þeirra, til dæmis á leikskólum. Þá fær þriðja hvert barn hljóðhimnurör á Íslandi í tengslum við eyrabólgu sem er algengasti sjúkdómur íslenskra barna. 4.9.2007 11:04
Haraldur ráðinn ritstjóri hjá Viðskiptablaðinu Haraldur Johannessen, fyrrverandi aðstoðarmaður umhverfisráðherra, hefur verið ráðinn ritstjóri Viðskiptablaðsins við hlið Jónasar Haraldssonar. 4.9.2007 11:02
Meintir hryðjuverkamenn tengdust al-Qaida Mennir sem handteknir voru í Kaupmannahöfn í nótt grunaðir um að leggja á ráðin um hryðjuverk, tengdust alþjóðlegum hryðjuverkasamtökum, þar meðal forystumönnum innan al-Qaida. Þetta kom fram í máli Jakobs Scharf, yfirmanns dönsku leyniþjónustunnar, á blaðamannafundi í morgun. 4.9.2007 10:28
Efnavopna Ali hengdur innan mánaðar Hæstiréttur í Írak hefur staðfest dauðadóm yfir Ali Hassan al-Majid frænda Saddams Hussein. Yfirsaksóknari í Írak segir að hann verði hengdur innan þrjátíu daga. Ali Hassan er þekktur undir nafninu Efnavopna Ali. Hann er fyrrverandi varnarmálaráðherra og hershöfðingi í íraska hernum. Það voru Kúrdar sem gáfu honum nafnið Efnavopna Ali fyrir fjöldamorð á Kúrdum og sjía múslimum meðan Saddam var við völd. 4.9.2007 10:25
Sautján ára sektaður þrisvar á einni viku Sami sautján ára ökumaðurinn var sektaður þrisvar fyrir umferðarlagabrot í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Hann fékk bílpróf fyrir hálfum öðrum mánuði. 4.9.2007 10:05
Lækkuðu verð á bensíni Stóru olíufélögin þrjú lækkuðu öll verð á bensíni um tvær krónur á lítrann síðdegis í gær, og er hækkunin frá því á föstudag því gengin til baka. Síðast í gærmorgun réttlættu talsmenn félaganna hækkunina með hækkun á heimsmarkaðsverði. 4.9.2007 07:25