Fleiri
Hægt að tengjast netinu þó ekkert sé háhraðanetið 21.7.2007 15:34 Fjörutíu og átta bandarískir hermenn hafa látist í Írak í júlí Bandarískur hermaður lét lífið þegar sprengja sprakk í Diyla héraðinu í Írak. Þar með hafa 48 bandarískir hermenn látist í Írak það sem af er júlí. 21.7.2007 15:09 Nýttu daginn til að fegra borgina Margir íbúar í hverfum í nálægð við Laugardalinn nýttu daginn í dag til að fegra umhverfi sitt og mátti víða sjá iðjusamt fólk að störfum. Tiltektardeginum lauk klukkan 14 með grillhátíð við Þróttaraheimilið í Laugardalnum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri veitti fólkinu liðsinni. Hann gróðursetti meðal annars blátopp, sultartopp og reyniblöðkur við Engjaveg í morgun. 21.7.2007 14:37 Mars-jeppar í kröppum dansi Rannsóknar-jeppunum tveimur sem staddir eru á reikistjörnunni Mars stafar mikil ógn af heljarinnar sandstormi sem skekur nú reikistjörnuna. Jepparnir eru knúnir áfram af sólarorku en sandstormurinn er svo þykkur að geislar sólar ná ekki í gegnum hann. Óttast að óveðrið ríði jeppunum að fullu fari ekki að linna í bráð. 21.7.2007 14:33 Á 180 kílómetra hraða á Reykjanesbraut Ökumaður um þrítugt var stöðvaður á 180 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, við álverið í Straumsvík um áttaleytið í morgun. Hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund á þessum veg. Maðurinn var færður á lögreglustöð og sviptur ökuréttindum. 21.7.2007 14:23 Bifreið rann inn í húsagarð Bifreið rann niður götu og hafnaði í húsagarði í Lundabrekku í Kópavogi skömmu eftir hádegið í dag. Lögregla og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru kvödd á staðinn enda lagði nokkurn reyk frá bílnum. Sem betur fer urðu engin slys á fólki. Ekki er vitað hvað orsakaði atvikið. 21.7.2007 14:17 Sjá næstu 50 fréttir
Sjálfstýrðir bílar í framför Þróun sjálfstýrðra bifreiða þýtur fram þessa dagana. Að öllum líkindum er þess ekki lengi að bíða að slíkir bílar komi á almennan markað. 22.7.2007 15:50
Talíbanar gefa afgönskum stjórnvöldum lengri frest Talsmaður Talíbana, Qari Yousef Ahmadi, sagði fyrr í dag að frestur afganskra stjórnvalda til að leysa úr haldi 23 talíbanska fanga yrði framlengdur til morguns. Mannræningjarnir hafa hótað að myrða 23 suður-kóreska gísla sleppi afgönsk stjórnvöld ekki föngunum. 22.7.2007 15:48
Manntjón varð þegar lest skall á hópferðabíl Átta manns létust og á þriðja tug slösuðust þegar lest rakst á hópferðabíl í Gura Ocnitei í Rúmeníu. Slysið varð rétt fyrir klukkan þrjú í dag að íslenskum tíma. Lestin skall á vinstri hlið bílsins og dró hann þrjú hundruð metra eftir veginum. 22.7.2007 15:10
Orðið hæsta hús í heimi Ókláraður skýjakljúfur í Dúbai, Burj Dubai, er orðinn hæsta hús í heimi, fullyrða verkfræðingar sem koma að verkinu. Segja þeir turninn kominn yfir 512 metra, eða fjórum metrum hærri en hingað til hæsta hús í heimi, Taipei 101 turninn í Tævan. 22.7.2007 14:37
Taka þátt í þrekraunakeppni Fjórir íslenskir ævintýramenn taka þátt í þrekraunakeppni sem fram fer á Grænlandi þessa dagana. Keppnin sem ber titilinn SIKU Extreme Arctic Challenge hófst í gær. 22.7.2007 14:27
Flugvél Iceland Express varð fyrir eldingu Eldingu laust niður í flugvél Iceland Express þegar hún var í lendingu á Keflavíkurflugvelli í gær. Vélin var að koma frá Lundúnum. Matthías Páll Imsland, forstjóri Iceland Express, segir að engin hætta hafi verið á ferðum. 22.7.2007 13:54
Heyjað á gamla mátann í Árbæjarsafni Heyannadagur upp á gamla mátann verður haldinn í Árbæjarsafni í dag. Allt fram undir 1940 tíðkaðist víða um land að slá gras með orfi og ljá. Þessi gömlu heyvinnuverkfæri verða nú dreginn fram og er gestum og gangandi boðið að fylgjast með. 22.7.2007 12:41
Tuttugu flóttamenn dvelja á Fit Hostel Samkvæmt heimildum fréttastofu dvelja rúmlega 20 flóttamenn á gistiheimilinu Fit Hostel og koma þeir flestir frá Rússlandi og svæðum þar í kring, Írak, Íran, Afganistan og Afríku. 22.7.2007 12:38
Viðskiptaráðherra vill tryggja garðyrkjubændum raforkuverð á lægra verði Garðyrkjubændur á Suðurlandi hafa lengi kvartað undan of háu raforkuverði í gróðurhúsum. Þeir hafa gagnrýnt stjórnvöld fyrir að þurfa greiða hærra raforkuverð fyrir starfsemi sína en til að mynda álver hafa þurft að greiða. 22.7.2007 12:34
Nýr upplýsingavefur um íslenska tónlist opnaður Ný upplýsingavefur um íslenska tónlist var opnaður á miðvikudag. Vefnum, sem er ríkisstyrktur, er ætlað að auka aðgengi á íslenskri tónlist um allan heim. Á honum er að finna upplýsingar um íslenska tónlistarmenn, tónlistarviðburði og annað það sem tengist íslenskri útgáfu á tónlist sem og fréttir og aðrar upplýsingar sem gagnast geta þeim sem vilja kynna sér tónlistarflóru Íslands. 22.7.2007 12:24
Velheppnaðri listahátíðinni lokið Vikulangri Listahátíð ungs fólks á Austurlandi lauk í gær með uppskeruhátíð á Seyðisfirði og gekk hátíðin vel fyrir sig. Þetta er í áttunda sinn sem listahátíðin fer fram á Seyðisfirði og tóku alls um 130 ungmenni frá sex löndum þátt í henni að þessu sinni. Á hátíðnni voru reknar sjö listasmiðjur þar sem ungmennum gafst tækifæri til að spreyta sig í myndlist, tónlist, leiklist og sirkusfimi svo eitthvað sé nefnt. 22.7.2007 12:22
Flæddi inn í 80 þúsund byggingar Flóð halda áfram í Bretlandi í dag eftir úrhellisrigningar helgarinnar. Í morgun flæddi aftur yfir sum svæði Oxfordskíris. Aðstæður eru víða hættulegar, en hjálparsveitir björguðu hundruð manna í morgun og þurfti bæði báta og þyrlur til björgunarstarfsins. Flætt hefur inn í um 80 þúsund byggingar eða heimili og 200 þúsund manns verða beint fyrir óþægindum af flóðunum. 22.7.2007 12:08
Clinton vill tryggja Afríkubúum malaríulyf Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er að hefja tilraunaverkefni sem miðar að því að auka aðgengi að nýjum malaríulyfjum í Tansaníu. Á hverju ári látast 3 milljónir manna af völdum malaríu og 300 milljónir veikjast alvarlega. Níutíu prósent dauðsfalla eru í Suður-Afríku og Sahara. 22.7.2007 11:57
Karlmaður mikið slasaður eftir bílslys Hjólreiðamaður var fluttur alvarlega slasaður á bráðamóttöku Landspítala -Háskólasjúkrahúss eftir að ekið var á hann við Keldur um kl. 9 í morgun. Samkvæmt upplýsingum vakthafandi læknis mun maðurinn gangast undir aðgerð á eftir og verður fluttur á gjörgæsludeild eftir það. 22.7.2007 11:45
Hundrað manns létust í óveðri í Kína Óveður varð að minnsta kosti 100 manns að bana í Kína í síðustu viku. Í Austur-Shandong héraði hafa 40 látíst síðan á miðvikudag. Þá hafa fjörutíu lík fundist við Chongqing eftir flóð og aurskriður. Fjölda manns er saknað þar. 22.7.2007 10:47
Ólýsanleg tilfinning að geta hlaupið og hoppað að nýju eftir 12 ára bið „Það er alveg ótrúleg og í raun ólýsanleg tilfinning að vita að maður getur hlaupið aftur,“ segir Alma Ýr Ingólfsdóttir, þjónustufulltrúi hjá Sjóvá, en hún var ein þeirra fimm íslensku stoðtækjanotenda sem fengu háþróaða hlaupafætur að gjöf frá Össuri hf. fyrir tveimur vikum. 22.7.2007 10:30
Rólegt í miðborginni í nótt Fámennt var í miðborg Reykjavíkur í nótt og var mikil kyrrð yfir bænum að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fimm voru teknir fyrir ölvunarakstur sem þykir ekki mikið á aðfararnótt sunnudags. 22.7.2007 10:28
Vinsæll sjónvarpspredikari fallinn frá Tammy Faye Messner fyrrverandi sjónvarpsprestur og gospel söngvari í Bandaríkjunum lést í gær. Hún var 65 ára og barðist við eiturlyfjafíkn og síðar ólæknandi krabbamein. 22.7.2007 10:24
Íslenskt bakarí nýtur vinsælda í Orlando Íslenska bakaríið Bread´n Buns í Flórída er nú í fjórða sæti í netúrslitkeppni hjá sjónvarpsstöðinni TV Channel two þar í landi sem besta bæjarfyrirtækið í Orlando. 22.7.2007 10:20
Kosið í Tyrklandi Þingiskosningar hófust í Tyrklandi í morgun. Þær þykja skipta sköpum í átökum milli veraldlega sinnaðra Tyrkja sem styðja aðskilnað ríkis og íslam, og trúaðra múslima. Gripið var til þess að halda þingiskosningar þar sem þingið komst ekki að samkomulagi um frambjóðendur til forseta. 22.7.2007 10:17
Suður-kóresku gíslarnir enn í haldi Öryggissveitir hafa umkringt staðinn þar sem Talibanar halda suður kóreskum gíslum í Ghazni héraði í Afghanistan. Ekki hefur verið ráðist til atlögu með hervaldi til að frelsa gíslana, en talsmaður talibana sagði í gær að yrði það reynt myndu allir gíslarnir verða teknir af lífi. 22.7.2007 10:09
Lík annars Þjóðverjans fundið í Afghanistan Öryggissveitir hafa umkringt staðinn þar sem Talibanar halda 18 suður kóreskum gíslum í Ghazni héraði í Afghanistan. Ekki hefur verið ráðist til atlögu með hervaldi til að frelsa gíslana, en talsmaður talibana sagði í gær að yrði það reynt myndu allir gíslarnir verða teknir af lífi. Lík þjóðverja sem talibanarnir höfðu í haldi fannst í morgun. 22.7.2007 10:00
20 manns farast í rútuslysi í Frakklandi 20 manns fórust í rútuslysi á suðurausturströnd Frakklands, nálægt bænum Grenoble í morgun. Um borð í rútunni voru 50 pólskir pílagrímar á leið til bæjarins La Mure og var rútan á leið niður bratta brekku þegar hún ók útaf veginum, hrapaði niður gljúfur þar sem hún varð alelda á svipstundu. Talið er að bremsubúnaður rútunnar hafi bilað sem varð til þess að ökumaðurinn missti stjórn á henni. 22.7.2007 09:59
Hómer og félagar koma fyrst við í Vermont Kvikmyndin um Simpson fjölskylduna verður frumsýnd í Springfield í Vermont í Bandaríkjunum. 21.7.2007 20:45
Á 142 kílómetra hraða við Húsafell Ellefu ökumenn hafa verið stöðvaður fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í dag. Sá sem ók hraðast var á 142 kílómetra hraða. Hann var stöðvarður í Reykholtsdal skammt frá Húsafelli. Að öðru leyti hefur umferð gengið vel á vesturlandi, að sögn lögreglunnar í Borgarnesi. 21.7.2007 20:30
Ekki heimsfrægur og þó? Páll Óskar Hjálmtýsson, söngvari, kannast ekki við að vera orðinn heimsfrægur, þrátt fyrir að myndband hans við lagið Allt fyrir ástina hafi verið sett inn á bloggsíðu slúðurkóngsins Perez Hilton sem milljónir manna heimsækja dag hvern. 21.7.2007 20:06
Féll af vélhjóli Betur fór en á horfðist þegar vélhjólamður féll af bifhjóli í Finnafirði innan af Bakkafirði á fjórða tímanum í dag. Maðurinn var fluttur með sjúkraflugi frá Þórshöfn til Reykjavíkur en mun ekki vera alvarlega slasaður samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á bráðamótttöku. 21.7.2007 19:21
Herinn kallaður til vegna flóða í Bretlandi Óveður og úrhellisrigning í gærkvöldi og nótt orsökuðu flóð á stórum svæðum í Bretlandi. Algjört umferðaröngþveiti skapaðist á helstu hraðbrautum Englands. Fjöldi ökumanna og farþega þurfti að gista í bílum sínum en helgin er ein mesta ferðahelgi sumarsins. Herinn og björgunarsveitir hafa unnið að því í allan dag að koma fólki til hjálpar. 21.7.2007 19:17
Viðskiptaráðherra afhuga stóriðju Viðskiptaráðherra er andvígur því að reistar verði þrjár nýjar virkjanir í neðri hluta Þjórsár og vonar að stóriðjutímabilinu sé lokið á Íslandi. Hann segir samkomulag um það í ríkisstjórninni að taka aftur til Alþingis ákvarðanir um virkjanaleyfi. 21.7.2007 19:15
Aukið umferðareftirlit kostnaðarsamt Lögregluembætti landsins greiða ríkislögreglustjóra kílómetragjald fyrir hvern ekinn kílómetra en bílarninr sem lögreglan ekur á eru í eigu ríkislögreglustjóra. Þetta þýðir að aukið og virkt umferðareftirlit eykur kostnað lögregluembættanna á rekstri bifreiðanna. Dæmi eru um að bílarnir standi ónotaðir við lögreglustöðvar landsins vegna þessa. 21.7.2007 19:14
Leystu gátuna um dammtafl Íslenskur vísindamaður, doktor Yngvi Björnsson, tók þátt í að leysa gátuna um eitt vinsælasta borðspil heims en unnið hefur verið að lausn gátunnar í hart nær 20 ár. Hugbúnaðurinn sem notaður var til að útbúa lausnina byggir á gervigreindartækni og markar niðurstaðan mikilvæg þáttaskil í stærð vandamála sem hægt er að leysa með slíkri tækni. 21.7.2007 19:13
Hakkarar eyðileggja íslenskar heimasíður Erlendir tölvuhakkarar herja á íslenska vefi en þrír austfirskir vefir hafa orðið fyrir barðinu á hökkurunum og liggja niðri. Vefirnir eiga það allir sameiginlegt að vera hannaðir af veffyrirtækinu Galdri á Hornafirði og eru hýstir í Þýskalandi. Svo virðist sem óheppnin ein hafi ráðið því að hakkararnir brutu sér leið inn á þessa vefi. 21.7.2007 19:06
Neytendastofa annist verðlagseftirlit Neytendastofa á að annast allt verðlagseftirlit á matvöru segir forstjóri Neytendastofu og telur skynsamlegast að opinber stofnun annist slíkt eftirlit. Hann segir aðferðir ASÍ við verðlagseftirlit úreltar og vill fá matvöruverslanir til liðs við sig svo unnt sé að vinna með rafrænar upplýsingar beint frá verslununum. 21.7.2007 19:04
Þrír meintir hryðjuverkamenn handteknir í Ítalíu Ítalska lögreglan hefur handtekið þrjá Marokkóbúa sem grunaðir eru um að starfrækja hryðjuverkaskóla í borginni Perugia. Þeir leita nú fjórða mannsins, en talið er að hann hafi flúið Ítalíu. 21.7.2007 17:33
Ráðherra minnir á reglur um útgáfu leyfa vegna útihátíða Björn Bjarnarson, dóms-, og kirkjumálaráðherra, hefur sent ríkislögreglustjóra og öllum lögreglustjórum bréf þar sem minnt er á þær reglur sem gilda um útgáfu leyfa vegna útihátíða. Venja hefur verið undanfarin ár að senda slíkar áminningar þegar verslunarmannahelgin er í nánd. 21.7.2007 17:26
Íslendingur uppgötvar óstöðvandi leikaðferð í dammtafli Fjölmiðlar víða um heim greina frá því að með sérstökum tölvuhugbúnaði hafi verið fundin leikaðferð í dammtafli sem ekki getur ekki endað með öðru en sigri. Íslenskur vísindamaður, dr. Yngvi Björnsson, tók þátt í smíði hugbúnaðarins. 21.7.2007 16:24
Verð á bifreiðum lækkar vegna styrkrar stöðu krónunnar Bílabúð Benna hefur ákveðið að lækka verð á öllum nýjum bílum sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Benedikt Eyjólfsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir ástæðuna vera þá að gengi krónunnar sé ákaflega hagstætt fyrir innflutning. 21.7.2007 16:13
Ók á ljósastaur Ökumaður Suzuki bifreiðar ók bíl sínum á ljósastaur við BYKO á Akureyri um eittleytið í dag. Að sögn lögreglu gereyðilagðist bíllinn en ökumaður slasaðist ekki. 21.7.2007 16:01
Afganar segja þýsku gíslana á lífi Utanríkisráðherra Afghanistan segir ekki rétt að talibanar hafi tekið tvo þýska gísla af lífi. Annar hafi látist úr hjartaáfalli, en hinn sé enn lifandi. Mannræningjarnir tóku 23 aðila í gíslingu í vikunni og hótuðu að taka þá alla af lífi í dag ef talibönum í afgönskum fangelsum yrði ekki sleppt og þjóðirnar tvær drægju ekki herlið sitt til baka frá Afghanistan. 21.7.2007 15:42
Fjörutíu og átta bandarískir hermenn hafa látist í Írak í júlí Bandarískur hermaður lét lífið þegar sprengja sprakk í Diyla héraðinu í Írak. Þar með hafa 48 bandarískir hermenn látist í Írak það sem af er júlí. 21.7.2007 15:09
Nýttu daginn til að fegra borgina Margir íbúar í hverfum í nálægð við Laugardalinn nýttu daginn í dag til að fegra umhverfi sitt og mátti víða sjá iðjusamt fólk að störfum. Tiltektardeginum lauk klukkan 14 með grillhátíð við Þróttaraheimilið í Laugardalnum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri veitti fólkinu liðsinni. Hann gróðursetti meðal annars blátopp, sultartopp og reyniblöðkur við Engjaveg í morgun. 21.7.2007 14:37
Mars-jeppar í kröppum dansi Rannsóknar-jeppunum tveimur sem staddir eru á reikistjörnunni Mars stafar mikil ógn af heljarinnar sandstormi sem skekur nú reikistjörnuna. Jepparnir eru knúnir áfram af sólarorku en sandstormurinn er svo þykkur að geislar sólar ná ekki í gegnum hann. Óttast að óveðrið ríði jeppunum að fullu fari ekki að linna í bráð. 21.7.2007 14:33
Á 180 kílómetra hraða á Reykjanesbraut Ökumaður um þrítugt var stöðvaður á 180 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, við álverið í Straumsvík um áttaleytið í morgun. Hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund á þessum veg. Maðurinn var færður á lögreglustöð og sviptur ökuréttindum. 21.7.2007 14:23
Bifreið rann inn í húsagarð Bifreið rann niður götu og hafnaði í húsagarði í Lundabrekku í Kópavogi skömmu eftir hádegið í dag. Lögregla og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru kvödd á staðinn enda lagði nokkurn reyk frá bílnum. Sem betur fer urðu engin slys á fólki. Ekki er vitað hvað orsakaði atvikið. 21.7.2007 14:17