Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umferðaröngþveiti í Bretlandi vegna rigninga Algjört umferðaröngþveiti og ringulreið skapaðist á fjölda aðalumferðaræða í Englandi í gær og nótt vegna úrhellisrigningar. Margir sátu fastir í bílum sínum í meira en fjórtán klukkustundir en helgin er ein mesta ferðahelgi sumarsins. 21.7.2007 12:22
Úrhellisrigning í Bretlandi í gær Mestu rigningar í manna minnum gengu yfir suðurhluta Bretlands í gær. Á einum sólarhring rigndi jafn mikið og á tveimur mánuðum í meðalári. Rigningin truflaði gervihnattarsamskipti, olli rafmagnsleysi og truflaði samgöngur. Þá þurfti að rýma skólabyggingar og heimili vegna vatnavaxta. 21.7.2007 12:10
George Bush í krabbameinsskoðun George Bush Bandaríkjaforseti fer í reglubundna krabbameinsskoðun í dag og mun Dick Cheney varaforseti gegna embætti hans á meðan. Samkvæmt læknisráði fer Bush í slíka skoðun á fimm ára fresti. Hann bar engin einkenni krabbameins þegar hann fór fyrst, árið 2002. 21.7.2007 11:22
Lyfjafyrirtæki dæmt fyrir að veita rangar upplýsingar um ávanabindingu lyfs Lyfjafyrirtækið Purdue Pharma var dæmt í Bandaríkjunum í gær til að borga 37 milljarða sekt fyrir að gefa almenningi rangar upplýsingar um ávanabindingu verkjalyfsins OxyContin. 21.7.2007 10:56
Hátt í 250 manns á ungmennamóti á Gufuskálum Landsmót ungmenna á aldrinum 14-18 ára stendur yfir um helgina, á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Hátt á annað hundrað ungmenna eru þar samankomin ásamt fimmtíu umsjónarmönnum. Þau sækja námskeið í skyndihjálp, læra sigtækni, meðferð björgunarbáta og grunnatriði í leitartækni. Ungmennin eru öll virk í ungliðastarfi björgunarsveita Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. 21.7.2007 10:46
Með vökva í stað heila Manni, með óvenju lítinn heila, hefur tekist að lifa eðlilegu lífi í fjörutíu ár. Rannsóknir franskra vísindamanna á höfði hans sýna að hauskúpa hans inniheldur að mestu leyti vökva. 21.7.2007 10:45
SÞ rannsaka meint kynferðisbrot friðargæslumanna á Fílabeinsströnd Sameinuðu þjóðirnar rannsaka nú ásakanir um að friðargæslumenn á Fílabeinsströndinni hafi stundað víðtæka kynferðismisnotkun og arðrán. Samtökin segja að liðsafli í Bouake, höfuðvígi uppreisnarmanna í norðri, hafi verið kallaður til vegna málsins, en vildu ekki gefa upp af hvaða þjóðerni mennirnir voru. 21.7.2007 10:36
Slökkviliðið kallað að Caruso í nótt Allt tiltækt lið slökkviliðsins í Reykjavík var kallað að veitingastaðnum Caruso um tvöleytið í nótt vegna reyks. Þegar fyrsti slökkvibíll kom á staðinn varð ljóst að enginn eldur var í húsinu og að reykurinn kom úr bökunarofni. 21.7.2007 10:32
Sex teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í nótt Sex voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í nótt. Mikil ölvun var í miðborginni og var nokkuð um minniháttar pústra. Allt gekk þó vel að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 21.7.2007 10:28
Bandaríkjaforseti setur reglur um yfirheyrsluaðferðir George Bush Bandaríkjaforseti hefur gefið út reglugerð sem bannar ómannúðlegar og niðurlægjandi aðferðir við yfirheyrslur á meintum hryðjuverkamönnum. 21.7.2007 10:23
Tóku tvo þýska gísla af lífi Talibanar í Afghanistan greindu frá því í morgun að þeir hefðu tekið tvo þýska gísla af lífi úr hópi Þjóðverja og Suður-Kóreumanna sem þeir rændu á fimmtudag. Mannræningjarnir hótuðu því að taka hina gíslana af lífi fyrir hádegi í dag nema stjórnvöld í Suður-Kóreu og Þýskalandi fækki í herliði sínu í Afganistan. 21.7.2007 10:19
Framlag Íslendinga til flóttamannahjálpar Palestínu tvöfaldað Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra tilkynnti í gær að framlag íslendinga til flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Palestínu yrði tvöfaldað á næsta ári. Þá mun íslenska ríkið greiða 28 milljónir til verkefnisins. 21.7.2007 10:11
Húsbíll sprakk Mikil mildi var að ekki fór verr þegar húsbíll sprakk við Oddastaðarvatn á Snæfellsnesi í nótt. Gas lak út frá ferðaísskáp sem var í bílnum með þeim afleiðingum að ógnarsprenging varð. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi voru eigendur bílsins fjarverandi og enginn meiddist við atvikið en bíllinn er mikið skemmdur. Lögreglan vill brýna fyrir fólki að það gangi vel frá gastækjum sem það hefur meðferðis í ferðalögum. 21.7.2007 10:10
Gátan um eitt vinsælasta borðspil heims leyst Dr. Yngvi Björnsson, dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík,tók þátt í að finna hina fullkomnu lausn á því hvernig eigi að spila leikinn dammtafl án þess að eiga minnsta möguleika á því að tapa. 20.7.2007 23:35
Bílslys í Axarfirði Harður árekstur varð á vegamótum að skólanum Lundi og þjóðvegar um Axarfjörð um klukkan hálfsjö í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Húsavík var bíl ekið í veg fyrir annan en um fólksbíl og jeppa er að ræða. Annar bíllinn er mikið skemmdur en engin slys urðu á fólki. 20.7.2007 22:50
Þremur matvælafyrirtækjum lokað í Kína Þremur matvælafyrirtækjum hefur verið lokað í Kína og nokkrir hafa verið handteknir í tengslum við matar og lyfjahneyksli þar í landi. Dauði fólks og dýra bæði innanlands og utan hefur verið rakinn til vara frá fyrirtækjunum. 20.7.2007 22:30
Bamir Topir kosinn forseti Albaníu Albanska þingið kaus Bamir Topir, varaformann Demókrataflokksins, forseta í dag. Sú niðurstaða verður til þess að ekki þarf að ganga til almennra kosninga í Albaníu sem hefði getað seinkað inngöngu landsins í Nató og Evrópusambandið. 20.7.2007 21:31
LSS lýsir yfir ánægju með viðbrögð heilbrigðisráðherra Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir ánægju með viðbrögð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra við þeim vanda sem hefur verið með mönnun og þjónustustig sjúkraflutninga sums staðar á landsbyggðinni. 20.7.2007 20:53
Bush undirritar reglur um yfirheyrslur grunaðra hryðjuverkamanna George W. Bush Bandaríkjaforseti undirritaði í dag nýjar reglur um yfirheyrslur grunaðra hryðjuverkamanna. Samkvæmt reglunum verður bannað að beita grimmilegum eða ómannúðlegum yfirheyrsluaðferðum, niðurlægja fanga eða misbjóða trú þeirra. 20.7.2007 20:21
Sátt um lækkun áfengisverðs? Álögur á áfengi eru meira en helmingi hærri á Íslandi en að meðaltali í Evrópu. Þverpólitískur vilji virðist vera að myndast til þess að lækka áfengisverð hér á landi, en í öllum flokkum eru samt Alþingismenn sem efast. Erna Hauksdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir settust hjá Sölva í Íslandi í dag. 20.7.2007 20:20
Samtök ferðaþjónustunnar fagna vilja til að lækka áfengisverð Samtök ferðaþjónustunnar fagna þverpólitískum vilja til að lækka áfengisverð. Framkvæmdastjóri samtakanna vonar að ný kynslóð þingmanna og ný ríkisstjórn geti gert í eitthvað í þessu áralanga baráttumáli samtakanna. 20.7.2007 20:15
Styttri biðlistar eftir augasteinaaðgerðum náist samningar við ríkið Augnlæknir í Reykjavík segist geta stytt biðlistana fyrir augasteinaaðgerðir náist samningar við ríkið um niðurgreiðslu á slíkum aðgerðum. Rúmlega sjö hundruð og fimmtíu manns bíða eftir að komast í augasteinaaðgerð á Landspítalanum og biðtíminn getur verið allt að eitt ár. 20.7.2007 20:12
Flóð valda vandræðum á Englandi Úrhellisrigning og flóð á suður- og austurhluta Englands hefur valdið miklum vandræðum þar í dag. Berkshire varð einna verst úti og sumir íbúar notuðu báta til að komast leiðar sinnar. Þar flæddi einnig inn á rúmlega þrjátíu heimili og loka þurfti skóla. 20.7.2007 20:04
Segir ný lög um einkasýningar stríða gegn atvinnufrelsi Ný lög sem banna með öllu hvers konar einkasýningar á nektardansstöðum stríða gegn atvinnufrelsi. Þetta segir lögmaður eiganda Goldfingers. Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi er ósammála túlkun Héraðsdóms Reykjaness á vafa með hugtakið "lokað rými". 20.7.2007 19:57
Saving Iceland býður OR til opinna viðræðna um siðgæði fyrirtækisins Í tilkynningu frá Saving Iceland segir að samtökin hafi óskað eftir því að fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur taki þátt í opnum umræðum við þau um siðgæði þess að selja orku til fyrirtækja sem stunda glæpsamlega iðju, eins og bæði Century-Rusal og Alcan-Rio Tinto gera. 20.7.2007 19:22
Áhöfnin á TF-SIF fór á ný í loftið í dag Áhöfnin á TF-Sif hélt í sína fyrstu flugferð í framhaldi af nauðlendingu þyrlunnar við Straumsvík á mánudag. Það var smáskjálfti í flugstjóranum en áhöfnin óskaði eftir því að komast í loftið sem allra fyrst. 20.7.2007 18:59
Lélegt sílamáfsvarp vísbending um hrun í sandsílastofni og slaka nýliðun þorsks Flótti sílamáfs frá Reykjavík er vísbending um hrun í sandsílastofninum. Á tveimur árum hefur varppörum fækkað úr 37 þúsund niður í 7 þúsund. Fuglafræðingar telja jafnvel samhengi milli fjölda sílamáva við landið og nýliðunar í þorski. 20.7.2007 18:54
Bilun í hemlunarbúnaði flugvélarinnar í Brasilíu Komið hefur í ljós að bilun var í hemlunarbúnaði annars hreyfils Airbus farþegaþotunnar sem fórst í Brasilíu á miðvikudag. Í dag tilkynnti Tam flugfélagið að ástand þotunnar hafi verið í samræmi við notkunarreglur framleiðandans sem samþykktar eru af flugumferðaryfirvöldum í Brasilíu. 20.7.2007 18:54
Fiski ekið þúsund kílómetra til vinnslu á Þingeyri Fiskur sem er unninn á Þingeyri er veiddur úti fyrir austfjörðum og fluttur landleiðina meira en þúsund kílómetra. Forkólfar Vísis hf. á Þingeyri segja úrslitaatriði að bæta vegakerfið á Vestfjörðum til að tryggja gæði hráefnis. Forvígismenn Vísis hf. vinna upp kostnað við flutningana með verkþekkingu og afköstum á Þingeyri. 20.7.2007 18:53
Varar við að lausn fanga séu mútur Ismail Haniyeh leiðtogi Hamas og fyrrverandi forsætisráðherra Palestínu varar við því að lausn 250 palestínskra Fatah fanga sé notuð sem gildra, eða mútur af hálfu Ísraelsmanna til bráðabirgðastjórnarinnar í Palestínu. 20.7.2007 18:51
Skorinn á háls vegna rispu á bíl Nítján ára kínverskur karlmaður var skorinn á háls í Västerås í Svíþjóð í gær með þeim afleiðingum að hann lést. Lögreglan í Svíþjóð hefur lýst eftir 28 ára gömlum karlmanni í tengslum við morðið. Atvikið átti sér stað á bílaplani og höfðu mennirnir mælt sér mót þar til að gera upp rispu á bíl hins meinta morðingja. 20.7.2007 18:42
Komið að ögurstund fyrir botni Miðjarðarhafs Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segist skynja það sterkt í Ísrael og Palestínu að komið sé að ögurstund í friðarmálum fyrir botni Miðjarðarhafs. Hún segir þjóðirnar í hlekkjum ótta vegna komandi kynslóða. Íslendingar eigi ekki að skorast undan því að taka sér hlutverk í friðarferlinu. 20.7.2007 18:36
Reykingar gegn Parkinson Reykingamönnum steðjar helmingi minni ógn af Parkinson sjúkdómnum en reyklausum. Raunar minnka líkurnar á að sjúkdómurinn myndist eftir því hve viðkomandi hefur reykt lengi. Þetta er niðurstaða vísindamanna við Háskólann í Kaliforníu. 20.7.2007 18:05
Afrek sem verður minnst lengi Fimm manna skáksveit Salaskóla í Kópavogi kom til landsins frá Tékklandi í gærkvöldi, eftir að hafa fyrst íslenskra skáksveita unnið heimsmeistaratitil. Forseti Skáksambands Íslands segir að afrek sveitarinnar verði lengi í minnum haft. 20.7.2007 18:02
Bílalest út úr bænum Mikil umferð er þessa stundina út úr bænum. Suður yfir Hellisheiði er bíll við bíl. Lögreglan í Reykjavík hefur ekki fengið tilkynningu um nein óhöpp en segir mikilvægt að fólk fari sér hægt. 20.7.2007 17:53
Galdrasúpa og grillaðar pulsur fyrir aðdáendur Harry Potter Stemmningin fer vaxandi í biðröðinni fyrir utan Bókabúð Máls og menningar við Laugaveg. Þar bíður fjöldi ungmenna eftir því að fá síðustu Harry Potter bókina í hendur. Sala hefst á slaginu 23:01. 20.7.2007 17:27
Ætluðu upp á þak en enduðu á annari hæð Samtökin Saving Iceland mótmæltu sölu Orkuveitu Reykjavíkur á raforku til álvera Century Aluminium og Alcan í höfuðstöðvum fyrirtækisins fyrr í dag. Í tilkynningu sem samtökin sendu frá sér sögðu þau trúðahóp samtakanna vera á þaki hússins og hafa hengt þar upp flagg með áletruninni ,,Vopnaveita Reykjavíkur". 20.7.2007 17:00
Ökumenn í ýmsu ástandi stöðvaðir Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt en einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Einn ökumaður var stöðvaður fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og annar fyrir að vera ekki fær um að stjórna ökutæki örugglega vegna veikinda. 20.7.2007 16:55
Rússar vilja sættast við Breta Utanríkisráðherra Rússlands sagði í dag að hann vonaðist til þess að eðlileg samskipti kæmust á milli Bretlands og Rússlands, eftir að Rússar ráku fjóra breska sendifulltrúa úr landi. Það var í hefndarskyni fyrir að Bretar gerðu fjóra Rússa landræka. Og það gerðu Bretar vegna þess að Rússar vilja ekki framselja meintan morðingja KGB njósnarans Litvinenkos, sem var myrtur í Lundúnum. 20.7.2007 15:38
Þrír piltar lögðu byggingarsvæði í rúst Þrír barnungir piltar gengu berserksgang um byggingasvæði á höfuðborgarsvæðinu og ollu þar þónokkrum skemdum. Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna þessa í gærmorgun. Drengirnir höfðu brotið ljós á vinnuvél og við kaffiskúr og brotið rúður. Þá krotuðu piltarnir á veggi og skettu málingu nærliggjandi íbúðarhús. 20.7.2007 15:34
Vegi um Öskjuhlíð lokað vegna framkvæmda Vegarslóð um Öskjuhlíð frá Hlíðarfæti að Kirkjugörðum Reykjavíkur verður lokað á mánudag vegna framkvæmda við undirbúning lóðar fyrir framtíðarhúsnæði Háskólans í Reykjavík við Nauthólsvík. Gert er ráð fyrir að vegurinn verði lokaður til haustsins 2009 þegar byggingarframkvæmdum líkur. Á meðan er einungis hægt að keyra til Nauthólsvíkur um Flugvallarveg og Hlíðarfót. 20.7.2007 15:31
Kona fékk yfir sig heitt vatn úr hraðsuðukatli Kona brenndist á nokkrum stöðum við vinnu sína á hóteli í Reykjavík um miðjan dag í gær. Konan fékk yfir sig heitt vatn úr hraðsuðukatli. Starfsfélagi kom til hennar og hjálpaði við að kæla brunasárin. Sjúkralið kom síðar á vettvang og flutti konuna á slysadeild. Ekki er vitað frekar um líðan hennar. 20.7.2007 15:18
ASÍ vísar gagnrýni Samtaka Atvinnulífsins á bug Verðlagseftirlit ASÍ vísar gagnrýni Vilhjálms Egilssonar formanns SA á hendur stofnuninni á bug. Vilhjálmur sagði í bréfi til Geirs H. Haarde forsætisráðherra að hann teldi eðlilegast að Hagstofa Íslands færi með verðlagseftirlit í samstarfi við hagsmunaaðila. 20.7.2007 14:44
Mótmæla stórri mosku í Lundúnum Hátt á þriðja hundrað þúsund manns hafa skrifað undir mótmæli gegn stórri mosku sem múslimasöfnuður vill byggja í Lundúnum. Moskan yrði kostuð af opinberu fé og kosta milljarða króna. Mótmælendurnir vilja að því fé verði varið til heilbrigðismála. 20.7.2007 14:36
Nýtt tungl við Satúrnus Nýtt tungl er fundið á braut um reikistjörnuna Satúrnus. Þar með eru þekkt tungl Satúrnusar orðin sextíu talsins. Tunglið sást á myndum sem geimfarið Cassini-Huygens tók. 20.7.2007 14:24