Fleiri fréttir Harry hótar að hætta í hernum Breska herstjórnin er orðin hikandi við að senda Harry prins til Íraks með hersveit sinni. Síðasti mánuður var sá blóðugasti sem breskir hermenn hafa upplifað í Írak, síðan innrásin var gerð árið 2003. Prinsinn er sagður hafa hótað því að hætta í hernum, ef hann verði ekki sendur. Harry er þriðji í erfðaröðinni til bresku krúnunnar. 27.4.2007 15:36 Afar óheppilegt að listinn barst til Impregilo Heilbrigðisstofnun Austurlands og Impregilo hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu. Þar segir að afar óheppilegt hafi verið að bráðabirgðalisti um sjúklinga sem mögulega urðu fyrir mengunaráhrifum í aðrennslisgöngum virkjunarinnar skuli hafa borist Impregilo. Listanum verður skilað til HSA. 27.4.2007 14:55 Bakkavík segir upp 48 starfsmönnum 48 starfsmönnum hjá rækjuvinnslunni Bakkavík í Bolungarvík hefur verið sagt upp í landvinnslu félagsins. Hjá landvinnslunni störfuðu 60 manns áður en til uppsagna kom. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að rekstur rækjuvinnslunnar hafi gengið erfiðlega undanfarin ár. 27.4.2007 14:14 Lærðu flug fyrir hryðjuverkaárásir Grunaðir hryðjuverkamenn sem voru handtekinir í Saudi-Arabíu, voru að læra að fljúga til þess að geta gert sjálfsmorðsárásir á mikilvæg skotmörk eins og olíustöðvar og herstöðvar bæði innanlands og utan. 27.4.2007 14:12 Víkingar með atgeir á lofti í bankaráni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um bankarán í útibúi Glitnis í Lækjargötu klukkan 13:25 í dag. Hópur fólks í víkingabúningum réðist inn í bankann. Þegar lögreglan kom á staðinn kom í ljós að um fíflalæti dimmiterandi skólakrakka var að ræða. Þau höfðu ráðist inn í bankann með miklum látum og öskrað að um bankarán væri að ræða. 27.4.2007 14:11 Berlusconi sýknaður aftur Áfrýjunardómstóll í Mílanó sýknaði í dag Silvio Berlusconi fyrrverandi forsætisráðherra, af ákærum um spillingu. Þetta er í annað skipti sem hann er sýknaður í þessu sama máli. Í fyrra skiptið var það árið 2004. 27.4.2007 13:51 Skora á veitingamenn að lækka matarverð Ákvörðun stórs hóps veitingamanna að lækka ekki verðskrá sína í kjölfar lækkun virðisaukaskatts veldur áhyggjum. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Samtaka ferðaþjónustunnar. Stjórnin segir veitingamenn með þessu skaða trúverðugleika samtakanna. 27.4.2007 13:45 Dansflokkurinn slær í gegn í Kína Mikil eftirspurn hefur verið eftir miðum á sýningu Íslenska dansflokksins í Shanghai í Kína, segir Bryndís Nielsen, kynningarfulltrúi dansflokksins. Starfsfólk Shanghai Dramatic Arts Centre Theatre, þar sem sýningin fer fram, sagt að fáir atburðir hafi verið jafn vinsælir. 27.4.2007 13:43 Sáttatillaga Hótel Sögu til klámframleiðenda Hótel Saga hefur svarað kröfu lögmanna aðstandenda klámráðstefnunnar sem halda átti hér á landi með sáttatillögu. Ekki hefur verið gefið upp hver upphæð sáttatillögunnar er en aðstandendur ráðstefnunnar krefjast rúmlega 10 milljóna króna í skaðabætur frá hótelinu. 27.4.2007 13:39 Einn lést og 60 særðust í óeirðum í Tallin Maður var stunginn til bana og hátt í sextíu manns særðust í miklum óeirðum í Tallinn í Eistlandi í gærkvöldi. Átökin brutust út þegar hópur fólks mótmælti niðurrifi sovésks minnismerkis um afrek Rauða hersins í seinni heimsstyrjöldinni, sem staðið hefur í miðborg Tallinn í áratugi. 27.4.2007 13:29 Framboðsfrestur útrunninn Frestur til að skila inn framboðum fyrir komandi alþingiskosningar rann út klukkan tólf á hádegi. Tvö ný framboð hafa sótt um listabókstaf og hyggjast bjóða fram, Íslandshreyfingin og Baráttusamtökin. Ekki er þó enn ljóst hvort þau skiluðu inn framboðslistum í öllum kjördæmum. 27.4.2007 13:25 Fimm ár fyrir líkamsárásir og nauðganir Hæstiréttur dæmdi í gær Jón Pétursson í fimm ára fangelsi fyrir líkamsárásir og nauðgun. Hann var sakfelldur fyrir þrjár líkamsárásir á fyrrverandi sambýliskonu sína og húsbrot þegar hann ruddist í heimildarleysi inn í húsnæði þar sem hún var stödd. 27.4.2007 13:20 Veldu þinn stað – nýr lóðavefur hjá borginni Nýr vefur hefur verið settur í loftið hjá Reykjavíkurborg sem gerir fólki kleift að skoða á netinu ný íbúðasvæði og lóðir sem í boði verða. Borgarstjóri opnaði vefinn formlega í dag á blaðamannafundi borgarstjórnarmeirihlutans. 27.4.2007 13:16 Baráttusamtökin bara með lista í Norðausturkjördæmi Baráttusamtökin, framboð eldri borgara, bjóða eingöngu fram lista Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 12. maí. Fresturinn til að skila inn listum rann út á hádegií dag. Íslandshreyfingin náði að skila inn framboðslistum í öllum kjördæmum eins og hinir flokkarnir fimm. 27.4.2007 13:06 „Noregur úr NATO og NATO úr þessum heimi“ Þetta voru slagorð mótmælenda gegn NATO á götum Óslóborgar í gærkvöldi. Óeirðalögreglan beitti á endanum táragasi á hópinn, og þurftu fréttamaður okkar og utanríkisráðherra að forða sér undan gasinu sem lagði um nágrenni ráðhússins. 27.4.2007 12:46 West Ham gert að greiða metfjárhæð í sekt Knattspyrnufélagið West Ham United, hefur verið sektað um fimm og hálfa milljón sterlingspunda fyrir brot á reglum um kaup á leikmönnum. Ekki verða hinsvegar dregin stig af félaginu, sem er mjög mikilvægt þar sem það er í fallbaráttu. Carlos Tevez fær ekki að spila fyrir félagið í bráð. 27.4.2007 12:40 Markmiðið að tryggja sameiginlega hagsmuni Markmið samninga Íslendinga við Dani og Norðmenn um öryggis- og varnarmál, sem undirritaðir voru í Ósló í gær, er að tryggja sameiginlega hagsmuni landanna í Norður-Atlantshafi. Auknu eftirliti með skipaferðum er ætlað að forða slysum við flutning á olíu og gasi. 27.4.2007 12:36 Áhyggjur af viðbrögðum veitingamanna Samtök ferðaþjónustunnar hefur miklar áhyggjur af viðbrögðum þeirra veitingamanna sem ekki lækkuðu verðskrár eftir 1. mars þegar virðisaukaskattur lækkaði. Þau segja samtöðu í málinu auka trúverðugleika samtakanna gagnvart stjórnvöldum. Hins vegar hafi skammtímasjónarmið ráðið ferðinni hjá mörgum á tímabilinu. 27.4.2007 12:21 Hrottaleg árás unglinga á leigubílsstjóra Leigubílstjóri liggur talsvert meiddur á Landsspítalanum, eftir að sextán ára unglingur og félagi hans réðust á hann og veittu honum alvarlega áverka með barefli í nótt. Bílstjóranum tókst að kalla á hjálp og var hann fluttur í sjúkrabíl á slysadeild. Snemma í morgun sást svo til unglings við að stela bíl við Sundlaugarnar í Laugardalnum og bar lýsing á honum saman við við útlit árásarmannsins. Hófst þá gríðarleg leit með þáttöku tuga leigubíla, að stolna bílnum, sem fanst mannlaus skömmu síðar. Eftir snarpa leit lögreglumanna þar á vettvangi, fanst unglingurinn og er nú verið að yfirheyra hann. Vitorðsmaðurinn er ófundinn. 27.4.2007 12:11 Siðmennt fylgjandi hjónabandi samkynhneigðra Siðmennt félag siðrænna húmanista á Íslandi vill að trúfélög fái heimild til að gefa saman samkynhneigð pör. Þeir telja að samkynhneigðir eigi að njóta sömu réttinda og aðrir í íslensku samfélagi. Þetta segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Siðmennt sendi Allsherjarþingi Alþingis umsögn sína um frumvarp til laga um réttarstöðu samkynhneigðra á síðasta ári. 27.4.2007 12:02 Flaska á viku Breskar stúlkur á aldrinum ellefu til þrettán ára sem á annað borð innbyrða áfengi drekka að meðaltali flösku af léttvíni á viku, eða átta áfengiseiningar. Þetta kemur fram í skýrslu sem samtökin Alcohol Concern létu gera þar í landi. Breskir drengir á þessum aldri drekka enn meira, eða sem samsvarar einni og hálfri léttvínsflösku á viku. 27.4.2007 11:44 Hafði ekki hugmynd um að stúlkan tengdist ráðherra Guðrún Ögmundsdóttir, þingmaður, segir ekkert athugavert við að hinni 22 ára gömlu Luciu Celeste Molina Sierra var veittur íslenskur ríkisborgararéttur eftir fimmtán mánaða búsetu hér á landi. Hún segist ekki muna hvers vegna stúlkan hafi talist hæf til að hljóta undanþágu frá venjulegum reglum um veitingu ríkisborgararéttar. 27.4.2007 11:34 Nú má svipta ökuníðinga bílnum Ökuníðingar eiga framvegis yfir höfði sér að missa bíla sína fyrir fullt og fast til ríkissjóðs vegna ítrekaðra umferðarlagabrota. Þetta er samkvæmt nýrri reglugerð, sem tók gildi í gær. Að auki þurfa þeir að greiða sektir eins og hingað til, og missa ökuréttindin 27.4.2007 11:29 Starfshópur til höfuðs mengun Ríki og sveitarfélög hafa komist að samkomulagi um stofnun starfshóps um almenningssamgöngur sem finna á leiðir til að draga úr mengun af völdum bílaumferðar. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, undirrituðu samkomulagið í morgun. 27.4.2007 11:15 Ugluhausar hata Travolta Íbúar smábæjarins Ugluhöfuðs í Maine í Bandaríkjunum eru þreyttir mjög á nágranna sínum John Travolta. Ástæðan er sú að við Ugluhöfuð er lítill flugvöllur, fyrir litlar einkaflugvélar. Það er óskrifuð regla hjá flugmönnum sem nota hann hann ekki eftir klukkan tíu á kvöldin til klukkan sex á morgnana. 27.4.2007 10:48 Rússnesk herþyrla skotin niður 27.4.2007 10:34 Slasaðist illa þegar hún féll af hestbaki Kona á fimmtugsaldri slasaðist alvarlega í gær þegar hún féll af hestbaki í Hegranesi skammt austan við Sauðárkrók. Flytja þurfti hana með sjúkraflugi til Reykjavíkur til frekari aðhlynningar. 27.4.2007 10:34 Marijúana í austurborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haldlagði 120 grömm af ætluðu marijúana í fyrirtæki í austurborginni í gær, að því er kemur fram í tilkynningu. Á sama stað fannst lítilræði af ætluðu amfetamíni í neysluskömmtum. 27.4.2007 10:19 Rostropovich látinn Hinn heimsfrægi sellóleikari og tónskáld Mstislav Rostropovich lést í dag, 80 ára að aldri. Rostropovich var elskaður og dáður fyrir list sína um allan heim. Hann var einnig dáður fyrir hetjulega mannréttindabaráttu sína á tímum Sovétríkjanna. 27.4.2007 10:11 Æfð viðbrögð við flugslysi við Sauðárkrók Á þriðja hundrað manns munu taka þátt í umfangsmikilli flugslysaæfingu á Sauðárkróki á morgun. Er þetta stærsta æfing sinnar tegundar í umdæminu í áraraðir. 27.4.2007 10:06 Forstjóri Alcan segir álverskosninguna ekki bindandi Forstjóri Alcan, Dick Evans, segir að íbúakosning um framtíð álversins í Straumsvík hafi ekki verið bindandi. Hann segir kosningaúrslitin vissulega tefja fyrir stækkun álversins en hann sé þess fullviss að fyrirtækið nái að afla sér stuðnings almennings. 27.4.2007 09:58 SAS hefur aftur flug SAS flugfélagið hefur hafið flug að nýju eftir að flugfreyjur þess aflýstu ólöglegu verkfalli sínu. Verkfallið hófst á þriðjudag og setti úr skorðum ferðaáætlanir tugþúsunda manna. Nokkur tími mun líða áður en flugið kemst í eðlilegt horf, þar sem mikið þarf að vinna upp. 27.4.2007 09:56 Átján umferðaróhöpp í gær Tilkynnt var um átján umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í gær samkvæmt lögreglunni. Flest voru þau minniháttar. Þá var einn tekinn fyrir ölvun við akstur. 27.4.2007 09:38 Færist í vöxt að ökumenn stingi af frá slysstað Sífellt fleiri ökumenn kjósa að stinga af frá slysstað eftir að hafa keyrt á kyrrstæðan bíl að sögn lögreglunnar. Vilja hinir óprúttnu ökumenn komast hjá því að greiða fyrir skemmdirnar sem þeir hafa unnið. Tveir stungu af bara í gær. 27.4.2007 09:13 Topp al-Kaída liðsmaður skotinn til bana Hersveitir í Alsír skutu annan æðsta liðsmann al-Kaída í Norður-Afríku til bana í dag. Samir Moussaab, sem réttu nafni hét Samir Saioud, fannst eftir að hersveitir fengu upplýsingar frá fyrrum meðlimum hreyfingarinnar, sem hlutu sakaruppgjöf á síðasta ári. Opinbera fréttastofan APS í Alsír greinir frá þessu. 26.4.2007 22:45 Fáfræðin lengir lífið Eitt hundrað og sextán ára úkraínskur geitahirðir segir að ástæðuna fyrir langlífi sínu megi rekja til þess að hann hafi aldrei verið með konu. Auk þess hafi hann ekki verið forvitinn. Fólk sem viti of mikið eigi ekki langa lífdaga. Grigoriy Nestor er frá þorpinu Stariy Yarichev nálægt höfuðborginni Kiev í Úkraínu. 26.4.2007 22:15 Maraþonhlaupari í hægagangi Einn keppendanna sem hóf maraþonið í London á sunnudag er enn að hlaupa ... og mun ekki ljúka maraþoninu fyrr en á sunnudag. Greg Billingham hleypur afar hægt í átaki til styrktar börnum með hvítblæði. Hann hleypur einungis eitt skref á hverjum fimm eða sex sekúntum. 26.4.2007 21:30 Kökur og brauð fyrir kindurnar Sauðburður er hafinn á Hafralæk í Þingeyjarsýslu. Nýburarnir þar fá ekki bara gras að bíta heldur kökur og brauð einnig. Bóndinn á bænum segir terturnar njóta mestra vinsælda. Fréttastofu Stöðvar 2 bar að garði á Hafralæk í Aðaldalnum um hádegisbil í þeim tilgangi að mynda einhver fyrstu lömb ársins. 26.4.2007 20:52 Samstarfsmaður Orkuveitunnar fær “Litla Nóbelinn” Wallace S. Broecker helsti samstarfsmaður Orkuveitur Reykjavíkur í verkefninu CO2á Hengilssvæðinu hlaut í dag Crafoord verðlaunin. Verðlaunin eru virtustu jarðvísindaverðlaun heims. Þau eru oft kölluð Litli Nóbelinn og eru veitt af Sænsku vísindaakademíunni, eins og Nóbelsverðlaunin. 26.4.2007 20:20 Þjónusta við geðfatlaða færist til borgarinnar Til stendur að Reykjavíkurborg taki að sér uppbyggingu búsetu og þjónustu við geðfatlað fólk í Reykjavík. Velferðarráð borgarinnar samþykkti á fundi í gær að verða við beiðni Félagsmálaráðuneytisins um viðræður þess efnis. 26.4.2007 20:00 Ekki verið að gefa út óútfyllta ávísun Geir H. Haarde forsætisráðherra segir samningana við Norðmenn og Dani í varnar- og öryggismálum tímabæra jafnvel þótt Bandaríkjaher hefði verið hér enn á landi. Hann segir stjórnvöld ekki vera að gefa út óútfyllta ávísun þó kostnaður Íslendinga af samkomulaginu sé ekki enn ljós. 26.4.2007 19:25 Kirkjan gengur ekki í takt með þjóðinni Fáránlegt er að halda því fram að íslenska þjóðkirkjan hefði sagt sig úr lögum við aðrar kirkjur hefði hún heimilað samkynhneigðum að ganga í hjónaband. Þetta segir prestur sem telur kirkjuna ekki ganga í takt með þjóðinni. Þegar greidd voru atkvæði um hvort leyfa ætti samkynhneigðum að ganga í hjónaband á Prestastefnunni á Húsavík í gær sögðu 66 nei en 22 já. 26.4.2007 19:24 Sjálfstæðismenn heimsóttu Ölgerðina Málefni Barna og unglingingageðdeildar, fyrirhugað álver í Helguvík og mannekla á spítölum var meðal þess sem frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins voru spurðir að þegar þeir heimsóttu starfsmenn Ölgerðar Egils Skallagrímssonar í dag. 26.4.2007 19:21 Aukið eftirlit með oíu- og gasflutningum umhverfis Ísland Eftirlit með flutningum á olíu og gasi á svæðinu umhverfis Ísland verður stóraukið samkvæmt samningi um samstarf í varnar- og öryggismálum, sem utanríkisráðherrar Íslands og Norges undirrituðu í Ósló í dag. Einnig er gert ráð fyrir að Íslendingar beri hundruð milljóna króna kostnað af staðsetningu og æfingum norskra hermanna á Íslandi. 26.4.2007 19:19 Ólík afstaða meðal formanna stjórnarandstöðuflokkanna Formaður Vinstri-grænna gagnrýnir aðdraganda og innihald samkomulagsins að ýmsu leyti og segir að réttar hefði verið að bíða fram yfir kosningar með að skrifa undir það. Formaður Samfylkingarinnar segir hins vegar samkomulagið eðlilega þróun í ljósi breyttrar heimsmyndar. 26.4.2007 19:12 Sjá næstu 50 fréttir
Harry hótar að hætta í hernum Breska herstjórnin er orðin hikandi við að senda Harry prins til Íraks með hersveit sinni. Síðasti mánuður var sá blóðugasti sem breskir hermenn hafa upplifað í Írak, síðan innrásin var gerð árið 2003. Prinsinn er sagður hafa hótað því að hætta í hernum, ef hann verði ekki sendur. Harry er þriðji í erfðaröðinni til bresku krúnunnar. 27.4.2007 15:36
Afar óheppilegt að listinn barst til Impregilo Heilbrigðisstofnun Austurlands og Impregilo hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu. Þar segir að afar óheppilegt hafi verið að bráðabirgðalisti um sjúklinga sem mögulega urðu fyrir mengunaráhrifum í aðrennslisgöngum virkjunarinnar skuli hafa borist Impregilo. Listanum verður skilað til HSA. 27.4.2007 14:55
Bakkavík segir upp 48 starfsmönnum 48 starfsmönnum hjá rækjuvinnslunni Bakkavík í Bolungarvík hefur verið sagt upp í landvinnslu félagsins. Hjá landvinnslunni störfuðu 60 manns áður en til uppsagna kom. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að rekstur rækjuvinnslunnar hafi gengið erfiðlega undanfarin ár. 27.4.2007 14:14
Lærðu flug fyrir hryðjuverkaárásir Grunaðir hryðjuverkamenn sem voru handtekinir í Saudi-Arabíu, voru að læra að fljúga til þess að geta gert sjálfsmorðsárásir á mikilvæg skotmörk eins og olíustöðvar og herstöðvar bæði innanlands og utan. 27.4.2007 14:12
Víkingar með atgeir á lofti í bankaráni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um bankarán í útibúi Glitnis í Lækjargötu klukkan 13:25 í dag. Hópur fólks í víkingabúningum réðist inn í bankann. Þegar lögreglan kom á staðinn kom í ljós að um fíflalæti dimmiterandi skólakrakka var að ræða. Þau höfðu ráðist inn í bankann með miklum látum og öskrað að um bankarán væri að ræða. 27.4.2007 14:11
Berlusconi sýknaður aftur Áfrýjunardómstóll í Mílanó sýknaði í dag Silvio Berlusconi fyrrverandi forsætisráðherra, af ákærum um spillingu. Þetta er í annað skipti sem hann er sýknaður í þessu sama máli. Í fyrra skiptið var það árið 2004. 27.4.2007 13:51
Skora á veitingamenn að lækka matarverð Ákvörðun stórs hóps veitingamanna að lækka ekki verðskrá sína í kjölfar lækkun virðisaukaskatts veldur áhyggjum. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Samtaka ferðaþjónustunnar. Stjórnin segir veitingamenn með þessu skaða trúverðugleika samtakanna. 27.4.2007 13:45
Dansflokkurinn slær í gegn í Kína Mikil eftirspurn hefur verið eftir miðum á sýningu Íslenska dansflokksins í Shanghai í Kína, segir Bryndís Nielsen, kynningarfulltrúi dansflokksins. Starfsfólk Shanghai Dramatic Arts Centre Theatre, þar sem sýningin fer fram, sagt að fáir atburðir hafi verið jafn vinsælir. 27.4.2007 13:43
Sáttatillaga Hótel Sögu til klámframleiðenda Hótel Saga hefur svarað kröfu lögmanna aðstandenda klámráðstefnunnar sem halda átti hér á landi með sáttatillögu. Ekki hefur verið gefið upp hver upphæð sáttatillögunnar er en aðstandendur ráðstefnunnar krefjast rúmlega 10 milljóna króna í skaðabætur frá hótelinu. 27.4.2007 13:39
Einn lést og 60 særðust í óeirðum í Tallin Maður var stunginn til bana og hátt í sextíu manns særðust í miklum óeirðum í Tallinn í Eistlandi í gærkvöldi. Átökin brutust út þegar hópur fólks mótmælti niðurrifi sovésks minnismerkis um afrek Rauða hersins í seinni heimsstyrjöldinni, sem staðið hefur í miðborg Tallinn í áratugi. 27.4.2007 13:29
Framboðsfrestur útrunninn Frestur til að skila inn framboðum fyrir komandi alþingiskosningar rann út klukkan tólf á hádegi. Tvö ný framboð hafa sótt um listabókstaf og hyggjast bjóða fram, Íslandshreyfingin og Baráttusamtökin. Ekki er þó enn ljóst hvort þau skiluðu inn framboðslistum í öllum kjördæmum. 27.4.2007 13:25
Fimm ár fyrir líkamsárásir og nauðganir Hæstiréttur dæmdi í gær Jón Pétursson í fimm ára fangelsi fyrir líkamsárásir og nauðgun. Hann var sakfelldur fyrir þrjár líkamsárásir á fyrrverandi sambýliskonu sína og húsbrot þegar hann ruddist í heimildarleysi inn í húsnæði þar sem hún var stödd. 27.4.2007 13:20
Veldu þinn stað – nýr lóðavefur hjá borginni Nýr vefur hefur verið settur í loftið hjá Reykjavíkurborg sem gerir fólki kleift að skoða á netinu ný íbúðasvæði og lóðir sem í boði verða. Borgarstjóri opnaði vefinn formlega í dag á blaðamannafundi borgarstjórnarmeirihlutans. 27.4.2007 13:16
Baráttusamtökin bara með lista í Norðausturkjördæmi Baráttusamtökin, framboð eldri borgara, bjóða eingöngu fram lista Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 12. maí. Fresturinn til að skila inn listum rann út á hádegií dag. Íslandshreyfingin náði að skila inn framboðslistum í öllum kjördæmum eins og hinir flokkarnir fimm. 27.4.2007 13:06
„Noregur úr NATO og NATO úr þessum heimi“ Þetta voru slagorð mótmælenda gegn NATO á götum Óslóborgar í gærkvöldi. Óeirðalögreglan beitti á endanum táragasi á hópinn, og þurftu fréttamaður okkar og utanríkisráðherra að forða sér undan gasinu sem lagði um nágrenni ráðhússins. 27.4.2007 12:46
West Ham gert að greiða metfjárhæð í sekt Knattspyrnufélagið West Ham United, hefur verið sektað um fimm og hálfa milljón sterlingspunda fyrir brot á reglum um kaup á leikmönnum. Ekki verða hinsvegar dregin stig af félaginu, sem er mjög mikilvægt þar sem það er í fallbaráttu. Carlos Tevez fær ekki að spila fyrir félagið í bráð. 27.4.2007 12:40
Markmiðið að tryggja sameiginlega hagsmuni Markmið samninga Íslendinga við Dani og Norðmenn um öryggis- og varnarmál, sem undirritaðir voru í Ósló í gær, er að tryggja sameiginlega hagsmuni landanna í Norður-Atlantshafi. Auknu eftirliti með skipaferðum er ætlað að forða slysum við flutning á olíu og gasi. 27.4.2007 12:36
Áhyggjur af viðbrögðum veitingamanna Samtök ferðaþjónustunnar hefur miklar áhyggjur af viðbrögðum þeirra veitingamanna sem ekki lækkuðu verðskrár eftir 1. mars þegar virðisaukaskattur lækkaði. Þau segja samtöðu í málinu auka trúverðugleika samtakanna gagnvart stjórnvöldum. Hins vegar hafi skammtímasjónarmið ráðið ferðinni hjá mörgum á tímabilinu. 27.4.2007 12:21
Hrottaleg árás unglinga á leigubílsstjóra Leigubílstjóri liggur talsvert meiddur á Landsspítalanum, eftir að sextán ára unglingur og félagi hans réðust á hann og veittu honum alvarlega áverka með barefli í nótt. Bílstjóranum tókst að kalla á hjálp og var hann fluttur í sjúkrabíl á slysadeild. Snemma í morgun sást svo til unglings við að stela bíl við Sundlaugarnar í Laugardalnum og bar lýsing á honum saman við við útlit árásarmannsins. Hófst þá gríðarleg leit með þáttöku tuga leigubíla, að stolna bílnum, sem fanst mannlaus skömmu síðar. Eftir snarpa leit lögreglumanna þar á vettvangi, fanst unglingurinn og er nú verið að yfirheyra hann. Vitorðsmaðurinn er ófundinn. 27.4.2007 12:11
Siðmennt fylgjandi hjónabandi samkynhneigðra Siðmennt félag siðrænna húmanista á Íslandi vill að trúfélög fái heimild til að gefa saman samkynhneigð pör. Þeir telja að samkynhneigðir eigi að njóta sömu réttinda og aðrir í íslensku samfélagi. Þetta segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Siðmennt sendi Allsherjarþingi Alþingis umsögn sína um frumvarp til laga um réttarstöðu samkynhneigðra á síðasta ári. 27.4.2007 12:02
Flaska á viku Breskar stúlkur á aldrinum ellefu til þrettán ára sem á annað borð innbyrða áfengi drekka að meðaltali flösku af léttvíni á viku, eða átta áfengiseiningar. Þetta kemur fram í skýrslu sem samtökin Alcohol Concern létu gera þar í landi. Breskir drengir á þessum aldri drekka enn meira, eða sem samsvarar einni og hálfri léttvínsflösku á viku. 27.4.2007 11:44
Hafði ekki hugmynd um að stúlkan tengdist ráðherra Guðrún Ögmundsdóttir, þingmaður, segir ekkert athugavert við að hinni 22 ára gömlu Luciu Celeste Molina Sierra var veittur íslenskur ríkisborgararéttur eftir fimmtán mánaða búsetu hér á landi. Hún segist ekki muna hvers vegna stúlkan hafi talist hæf til að hljóta undanþágu frá venjulegum reglum um veitingu ríkisborgararéttar. 27.4.2007 11:34
Nú má svipta ökuníðinga bílnum Ökuníðingar eiga framvegis yfir höfði sér að missa bíla sína fyrir fullt og fast til ríkissjóðs vegna ítrekaðra umferðarlagabrota. Þetta er samkvæmt nýrri reglugerð, sem tók gildi í gær. Að auki þurfa þeir að greiða sektir eins og hingað til, og missa ökuréttindin 27.4.2007 11:29
Starfshópur til höfuðs mengun Ríki og sveitarfélög hafa komist að samkomulagi um stofnun starfshóps um almenningssamgöngur sem finna á leiðir til að draga úr mengun af völdum bílaumferðar. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, undirrituðu samkomulagið í morgun. 27.4.2007 11:15
Ugluhausar hata Travolta Íbúar smábæjarins Ugluhöfuðs í Maine í Bandaríkjunum eru þreyttir mjög á nágranna sínum John Travolta. Ástæðan er sú að við Ugluhöfuð er lítill flugvöllur, fyrir litlar einkaflugvélar. Það er óskrifuð regla hjá flugmönnum sem nota hann hann ekki eftir klukkan tíu á kvöldin til klukkan sex á morgnana. 27.4.2007 10:48
Slasaðist illa þegar hún féll af hestbaki Kona á fimmtugsaldri slasaðist alvarlega í gær þegar hún féll af hestbaki í Hegranesi skammt austan við Sauðárkrók. Flytja þurfti hana með sjúkraflugi til Reykjavíkur til frekari aðhlynningar. 27.4.2007 10:34
Marijúana í austurborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haldlagði 120 grömm af ætluðu marijúana í fyrirtæki í austurborginni í gær, að því er kemur fram í tilkynningu. Á sama stað fannst lítilræði af ætluðu amfetamíni í neysluskömmtum. 27.4.2007 10:19
Rostropovich látinn Hinn heimsfrægi sellóleikari og tónskáld Mstislav Rostropovich lést í dag, 80 ára að aldri. Rostropovich var elskaður og dáður fyrir list sína um allan heim. Hann var einnig dáður fyrir hetjulega mannréttindabaráttu sína á tímum Sovétríkjanna. 27.4.2007 10:11
Æfð viðbrögð við flugslysi við Sauðárkrók Á þriðja hundrað manns munu taka þátt í umfangsmikilli flugslysaæfingu á Sauðárkróki á morgun. Er þetta stærsta æfing sinnar tegundar í umdæminu í áraraðir. 27.4.2007 10:06
Forstjóri Alcan segir álverskosninguna ekki bindandi Forstjóri Alcan, Dick Evans, segir að íbúakosning um framtíð álversins í Straumsvík hafi ekki verið bindandi. Hann segir kosningaúrslitin vissulega tefja fyrir stækkun álversins en hann sé þess fullviss að fyrirtækið nái að afla sér stuðnings almennings. 27.4.2007 09:58
SAS hefur aftur flug SAS flugfélagið hefur hafið flug að nýju eftir að flugfreyjur þess aflýstu ólöglegu verkfalli sínu. Verkfallið hófst á þriðjudag og setti úr skorðum ferðaáætlanir tugþúsunda manna. Nokkur tími mun líða áður en flugið kemst í eðlilegt horf, þar sem mikið þarf að vinna upp. 27.4.2007 09:56
Átján umferðaróhöpp í gær Tilkynnt var um átján umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í gær samkvæmt lögreglunni. Flest voru þau minniháttar. Þá var einn tekinn fyrir ölvun við akstur. 27.4.2007 09:38
Færist í vöxt að ökumenn stingi af frá slysstað Sífellt fleiri ökumenn kjósa að stinga af frá slysstað eftir að hafa keyrt á kyrrstæðan bíl að sögn lögreglunnar. Vilja hinir óprúttnu ökumenn komast hjá því að greiða fyrir skemmdirnar sem þeir hafa unnið. Tveir stungu af bara í gær. 27.4.2007 09:13
Topp al-Kaída liðsmaður skotinn til bana Hersveitir í Alsír skutu annan æðsta liðsmann al-Kaída í Norður-Afríku til bana í dag. Samir Moussaab, sem réttu nafni hét Samir Saioud, fannst eftir að hersveitir fengu upplýsingar frá fyrrum meðlimum hreyfingarinnar, sem hlutu sakaruppgjöf á síðasta ári. Opinbera fréttastofan APS í Alsír greinir frá þessu. 26.4.2007 22:45
Fáfræðin lengir lífið Eitt hundrað og sextán ára úkraínskur geitahirðir segir að ástæðuna fyrir langlífi sínu megi rekja til þess að hann hafi aldrei verið með konu. Auk þess hafi hann ekki verið forvitinn. Fólk sem viti of mikið eigi ekki langa lífdaga. Grigoriy Nestor er frá þorpinu Stariy Yarichev nálægt höfuðborginni Kiev í Úkraínu. 26.4.2007 22:15
Maraþonhlaupari í hægagangi Einn keppendanna sem hóf maraþonið í London á sunnudag er enn að hlaupa ... og mun ekki ljúka maraþoninu fyrr en á sunnudag. Greg Billingham hleypur afar hægt í átaki til styrktar börnum með hvítblæði. Hann hleypur einungis eitt skref á hverjum fimm eða sex sekúntum. 26.4.2007 21:30
Kökur og brauð fyrir kindurnar Sauðburður er hafinn á Hafralæk í Þingeyjarsýslu. Nýburarnir þar fá ekki bara gras að bíta heldur kökur og brauð einnig. Bóndinn á bænum segir terturnar njóta mestra vinsælda. Fréttastofu Stöðvar 2 bar að garði á Hafralæk í Aðaldalnum um hádegisbil í þeim tilgangi að mynda einhver fyrstu lömb ársins. 26.4.2007 20:52
Samstarfsmaður Orkuveitunnar fær “Litla Nóbelinn” Wallace S. Broecker helsti samstarfsmaður Orkuveitur Reykjavíkur í verkefninu CO2á Hengilssvæðinu hlaut í dag Crafoord verðlaunin. Verðlaunin eru virtustu jarðvísindaverðlaun heims. Þau eru oft kölluð Litli Nóbelinn og eru veitt af Sænsku vísindaakademíunni, eins og Nóbelsverðlaunin. 26.4.2007 20:20
Þjónusta við geðfatlaða færist til borgarinnar Til stendur að Reykjavíkurborg taki að sér uppbyggingu búsetu og þjónustu við geðfatlað fólk í Reykjavík. Velferðarráð borgarinnar samþykkti á fundi í gær að verða við beiðni Félagsmálaráðuneytisins um viðræður þess efnis. 26.4.2007 20:00
Ekki verið að gefa út óútfyllta ávísun Geir H. Haarde forsætisráðherra segir samningana við Norðmenn og Dani í varnar- og öryggismálum tímabæra jafnvel þótt Bandaríkjaher hefði verið hér enn á landi. Hann segir stjórnvöld ekki vera að gefa út óútfyllta ávísun þó kostnaður Íslendinga af samkomulaginu sé ekki enn ljós. 26.4.2007 19:25
Kirkjan gengur ekki í takt með þjóðinni Fáránlegt er að halda því fram að íslenska þjóðkirkjan hefði sagt sig úr lögum við aðrar kirkjur hefði hún heimilað samkynhneigðum að ganga í hjónaband. Þetta segir prestur sem telur kirkjuna ekki ganga í takt með þjóðinni. Þegar greidd voru atkvæði um hvort leyfa ætti samkynhneigðum að ganga í hjónaband á Prestastefnunni á Húsavík í gær sögðu 66 nei en 22 já. 26.4.2007 19:24
Sjálfstæðismenn heimsóttu Ölgerðina Málefni Barna og unglingingageðdeildar, fyrirhugað álver í Helguvík og mannekla á spítölum var meðal þess sem frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins voru spurðir að þegar þeir heimsóttu starfsmenn Ölgerðar Egils Skallagrímssonar í dag. 26.4.2007 19:21
Aukið eftirlit með oíu- og gasflutningum umhverfis Ísland Eftirlit með flutningum á olíu og gasi á svæðinu umhverfis Ísland verður stóraukið samkvæmt samningi um samstarf í varnar- og öryggismálum, sem utanríkisráðherrar Íslands og Norges undirrituðu í Ósló í dag. Einnig er gert ráð fyrir að Íslendingar beri hundruð milljóna króna kostnað af staðsetningu og æfingum norskra hermanna á Íslandi. 26.4.2007 19:19
Ólík afstaða meðal formanna stjórnarandstöðuflokkanna Formaður Vinstri-grænna gagnrýnir aðdraganda og innihald samkomulagsins að ýmsu leyti og segir að réttar hefði verið að bíða fram yfir kosningar með að skrifa undir það. Formaður Samfylkingarinnar segir hins vegar samkomulagið eðlilega þróun í ljósi breyttrar heimsmyndar. 26.4.2007 19:12