Fleiri
Vélsleðaslys fyrir norðan 8.4.2007 14:51 Bandarísk sendinefnd um orkumál væntanleg til landsins Orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákveðið að senda sendinefnd til Íslands í sumar, til að kynna sér nýtingu Íslendinga á jarðvarma til orkuframleiðslu. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands greindi frá þessu í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag. 8.4.2007 14:31 Ungfrú Marple lifir Þegar vistfólkið á elliheimili í Saalfield í Þýskalandi var orðið hvekkt á peningaþjófnuðum, ákvað 95 ára gömul kona í þess hópi að taka til sinna ráða. Hún skildi eftir seðlabúnt á borðinu í herbergi sínu og faldi sig svo á baðherberginu til að sjá hvað gerðist. Fylgdist með í gegnum skráargatið. 8.4.2007 14:29 Kona í djúpum..... Kínversk kona bjargaðist á....undursamlegan ?...hátt þegar hún féll af svölum íbúðar sínnar á sjöttu hæð, í fjölbýlishúsi. Konan var að hengja út þvott, þegar hún missti jafnvægið og hrapaði til jarðar. Það vildi henni til lífs að það var einmitt verið að hreinsa rotþró hússins. 8.4.2007 14:07 Castro byrjaður að blogga Fidel Castro, er ekki alveg risinn upp af sjúkrabeðinu en hann er byrjaður að blogga í dagblaðinu Granma, sem er málgagn kúbverska kommúnistaflokksins. Varla kemur á óvart að í hans fyrsta bloggi skammar hann Bandaríkin blóðugum skömmum. Hann fjallar um áætlun Bandaríkjamanna um etanol framleiðslu til að knýja bíla, en til framleiðslu þess er notað korn sem ella færi til manneldis. 8.4.2007 13:36 Neyðarkall frá Karolinska -læknar þustu að úr öllum áttum Neyðarástand skapaðist þegar allt rafmagn fór af Karólinska háskólasjúkrahúsinu í Huddinge, í Svíþjóð í gær. Sérstaklega átti það við um gjörgæsludeild fyrir nýfædd börn sem voru í súrefniskassa. Vararafhlöðurnar þar tæmdust á aðeins fimmtán mínútum. Sent var út neyðarkall um neyðarboðleiðir sjúkrahússins og læknar og hjúkrunarfólk þusti að úr öllum áttum til þess að halda súrefniskössunum gangandi með handdælum. 8.4.2007 13:12 Tvö umferðarslys á stuttum tíma Tvö umferðarslys hafa orðið í norðan verðum Hólmahálsi. Það fyrra aðfaranótt laugardags þegar bíll fór út af veginum og stöðvaðist um 30 metrum utan við veginn. Kallað var út sjúkralið, læknir og tækjabíll frá slökkviliði Fjarðabyggðar. Þrennt var í bílnum og voru farþegarnir fluttir með sjúkrabíl á fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað til frekari aðhlynningar. Ökumaðurinn hlaut handleggsbrot en hinir reyndust minna slasaðir en haldið var í fyrstu. 8.4.2007 13:11 Óþolandi hegðun fólks Rúmlega tvöfalt fleiri hafa verið teknir fyrir ölvunaakstur í umdæmi lögeglunnar á Eskifirði það sem af er þessu ári en á sama tíma í fyrra. Lögreglan hefur miklar áhyggjur af þessari þróun mála í umdæminu en það sem af er ári hafa 18 verið teknir fyrir ölvunarakstur og fjórir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Á heimasíðu lögreglunnar segir hún það með öllu óþolandi að einstaklingar skuli leyfa sér að lítilsvirða samborgarar sína með þessu háttarlagi. 8.4.2007 13:09 Biskup segir mannkynið ganga freklega á lífríki jarðar Biskup Íslands sagði mannkynið ganga freklega gegn lífríki jarðar með græðgi, yfirgangi og rányrkju í páskapredikun sinni í morgun. Messur voru vel sóttar í morgun en í dag minnast kristnir menn upprisu Jésú Krists. 8.4.2007 13:05 Sjá næstu 50 fréttir
Íhuga stofnun samráðshóps Heimsins stærstu gasútflytjendur eru nú að skoða möguleikann á því að stofna með sér samráðshóp til þess að geta stjórnað verðinu á gasi. Á meðal þessara útflytjenda eru Rússland, sem sér stórum hluta Evrópu fyrir gasi, Íran og Qatar. 9.4.2007 14:13
Íranar halda kjarnorkuáætlun sinni áfram Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, tilkynnti á fréttamannafundi í dag að Íranar myndu ekki láta undan þrýstingi vesturveldanna og gefa kjarnorkuáætlun sína upp á bátinn. Ahmadinejad er enn að tala og hefur ekki skýrt nákvæmlega frá því hvað felst í yfirlýsingu hans. 9.4.2007 13:41
Ráðist á Ísland, ekki Íran Bandarískur háskólaprófessor birti í dag grein á vefsíðu Princeton háskóla. Í henni leggur hann til að ráðist verði á Ísland í stað Íran og að slík árás geti hagnast öllum, jafnvel Íslendingum. 9.4.2007 13:28
Íranar sýna ný myndbönd af sjóliðunum Írönsk sjónvarpsstöð hefur birt myndbandsupptökur af bresku sjóliðunum sem voru í haldi, þar sem þeir sjást tefla, spila borðtennis og horfa á sjónvarpið. Stjórnvöld í Teheran segja myndbandið sýna að fullyrðingar um að sjóliðarnir hafi verið beittir harðræði haldi ekki vatni. 9.4.2007 12:42
Írakar mótmæla í Najaf Allt að milljón Sjíja múslimar mun í dag fylkja liði um götur Najaf í Írak til að mótmæla hersetu Bandaríkjamanna, fjórum árum eftir að Baghdad var hernumin. Öllu rólegra er í höfuðborginni sjálfri á þessum tímamótum, enda öll bílaumferð bönnuð í sólarhring af ótta við hryðjuverk. 9.4.2007 12:40
Níu handteknir eftir hnífabardaga Níu hafa verið handteknir eftir hnífabardaga fyrir utan næturklúbb í Álaborg í Danmörku um helgina. Tuttugu og eins árs karlmaður lét lífið eftir að hafa orðið fyrir ítrekuðum hnífsstungum og sex til viðbótar slösuðust. 9.4.2007 12:22
Allt á suðupunkti í Afganistan Allt er á suðupunkti í Afghanistan, eftir að uppreisnarmenn úr röðum Talibana skáru afganskan túlk á háls í gær. Sex Kanadamenn féllu í bílsprengjuárás í suðurhluta landsins. 9.4.2007 12:20
Páskahelgin sífellt stærri ferðahelgi Páskahelgin verður sífellt stærri ferðahelgi meðal Íslendinga. Mikill straumur fólks lá á Akureyri um helgina og býst lögreglan þar við mikilli umferð út úr bænum í dag. 9.4.2007 12:18
Ólafur Ragnar semur kennsluefni Fyrirlestur sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti í Harvard háskóla verður notaður sem kennsluefni í á annað hundrað háskólum víða um heim. Gamli stjórnmálafræðiprófessorinn er því enn að semja kennsluefni. 9.4.2007 12:05
Líðan mæðginanna eftir atvikum Líðan mæðginanna sem lentu í vélsleðaslysinu í Grenjaárdal ofan Grenivíkur í gær er eftir atvikum. Bæði beinbrotnuðu en meiðsl þeirra eru þó ekki alvarleg. Mæðginin misstu stjórn á sleðanum sem valt yfir þau. 9.4.2007 12:02
Byggja stíflu og bjarga hafinu Stjórnvöld í Kasakstan fengu í gær vilyrði fyrir 128 milljóna dollara láni frá Heimsbankanum (e. World Bank) til þess að fylla Aralhafið á ný. Peningarnir verða notaðir til þess að hleypa af stokkunum öðrum hluta verkefnis sem miðar að því að koma sjó aftur í Aralhafið. Sameinuðu þjóðirnar segja að hvarf Aralhafsins sé eitthvert mesta og stærsta umhverfisslys sögunnar. Þetta verkefni mun þó verða til þess að hafið snýr aftur. 9.4.2007 11:59
Allt að verða klárt fyrir kvöldið Það styttist í lævi blandið loftið í Laugardalshöllinni en þar er allt að verða klárt fyrir tónleika stórsöngkonunnar Bjarkar í kvöld. Þetta verða fyrstu tónleikar listakonunnar á Íslandi í sex ár en þeir marka upphaf tónleikaraðar hennar um heiminn vegna útkomu nýrrar breiðskífu, Volta. 9.4.2007 11:41
Búist við tilkynningu um kjarnorkuáætlun Búist er við því að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, skýri frá því í dag að Íranar ætli að hefja auðgun úrans í stórum stíl. Hingað til hafa þeir aðeins verið með örfáar skilvindur, eða um 350, í tilraunaskyni. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) hefur sagt að Íranar hafi sett upp 300 skilvindur í viðbót og hugsanlegt er að nú verði tilkynnt að hafin hafi verið uppsetning á 3.000 skilvindum. 9.4.2007 11:15
Kosningabaráttan í Frakklandi formlega hafin Kosningabaráttan fyrir fyrstu umferð forsetakosninganna í Frakklandi 22. apríl er hafin. Tólf frambjóðendur ætla sér að feta í fótspor Jacques Chirac, hins aldna forseta sem nú lætur af völdum. Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægri flokksins UMP þykir líklegastur til sigurs. Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista fylgir honum fast á hæla. Ekki langt á eftir þeim er Francis Bayrou og Jean-Marie Le Pen situr í fjórða sæti. 9.4.2007 10:49
Kirkjan í Zimbabwe varar stjórnvöld við Biskupar rómversk-kaþólsku kirkjunnar í Zimbabwe vöruðu við því að ef ekki yrðu haldnar frjálsar kosningar myndi almenningur rísa upp á afturlappirnar og bylting yrði raunin. Þetta var fullyrt í bréfi sem hengt var upp í kirkjum víðs vegar um landið í gær. 9.4.2007 10:29
Búast við mikilli umferð úr bænum Lögreglan á Akureyri býst við mikilli umferð í kringum bæinn í dag enda lagði mikill fjöldi fólks leið sína á Akureyri um páskana. Margir komu til að skella sér á skíði en fjölmennt hefur verið í Hlíðarfjalli síðustu daga. 9.4.2007 09:54
Stöðvaður á 160 km hraða og hélt fótgangandi á brott Rúmlega þrítugur karlmaður var sviptur ökuréttindum í nótt eftir hafa verið stöðvaður á hundrað og sextíu kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni. 9.4.2007 09:53
Íranar segja sjóliðana ljúga Írönsk sjónvarpsstöð hefur birt myndbandsupptökur af bresku sjóliðunum sem voru í haldi, þar sem þeir sjást tefla, spila borðtennis og horfa á sjónvarpið. Stjórnvöld í Teheran segja myndbandið sýna að fullyrðingar um að sjóliðarnir hafi verið beittir harðræði haldi ekki vatni. 9.4.2007 09:52
Reyndist ekki alvarlega slasaður Ökumaður fjórhjóls, sem fluttur var með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi í gær, reyndist ekki eins alvarlega slasaður og talið var í fyrstu. Hann var undir eftirliti lækna í nótt en verður útskrifaður af spítalanum í dag. 9.4.2007 09:50
Slóveni lýkur Amazon sundi Rúmlega fimmtugur Slóveni afrekaði um helgina fyrstur allra að synda niður Amazon fljótið eins og það leggur sig. Slóveninn var skiljanlega hálf vankaður þegar hann kom á leiðarenda, enda meira en fimm þúsund kílómetrar að baki og mikil og hörð barátta við ofskynjanir, örmögnun og pírana fiska. 9.4.2007 09:47
Sjíar mótmæla hersetu Bandaríkjanna Tugþúsundir Sjía gengu morgun fylktu liði um götur Najaf í Írak til að mótmæla hersetu Bandaríkjamanna. Í dag eru fjögur ár liðin frá því bandarískar hersveitir náðu höfuðborginni Baghdad á sitt vald, en afmælisveislan er í daprara lagi. 9.4.2007 09:42
Talibanar myrtu gísl Uppreisnarmenn úr röðum Talibana skáru afganskan túlk á háls í gær. Uppreisnarmennirnir höfðu áður sleppt ítölskum blaðamanni sem túlkurinn vann með í Afghanistan. Þeir kröfðust þess að stjórnvöld í landinu létu nokkra uppreisnarmenn lausa úr fangelsum landsins, ef túlkurinn ætti að komast lífs af. 9.4.2007 09:37
Stúlkan fundin Sextán ára stúlka sem lögreglan á höfuðborgarssvæðinu hóf leit að í gær, er komin í leitirnar. Ekkert hafði spurst til stúlkunnar frá því á föstudaginn langa. 9.4.2007 09:33
Hálka sunnanlands Hálkublettir eru á Hellisheiði, Þrengslum og uppsveitum Árnessýslu og sömuleiðis er rétt að hafa gát á vegunum á norðanverðu Snæfellsnesi, svo sem á Vatnaleið og á Fróðárheiði. Þá er hálka á Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum gætir hálku á hálsum og heiðum og sömu sögu er að segja af Langadal og Öxnadalsheiði á Norðurlandi. 9.4.2007 09:30
Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur Flytja þurfti einn á slysadeild eftir árekstur tveggja bíla á Reykjanesbraut við Grindavíkurafleggjaranna á sjötta tímanum í morgun. Draga þurfti báða bílana af vettvangi. Lögreglan rannsakar tildrög slyssins. 9.4.2007 09:28
Gott skíðafæri víða um land Enn er mjög gott skíðafæri í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar að sögn staðarhaldara og verða allar lyftur opnar þar í dag til klukkan sautján síðdegis. Logn er í Hlíðarfjalli, skýjað og hiti við frostmark. Aðstæður til skíða- og brettaiðkunar hafa verið mjög góðar víða um land um páskana, svo sem á Dalvík, í Tindastóli, á Siglufirði og á Ísafirði. Einna síst hefur ástandið verið suðvestanlands eins og gjarnan áður í vetur. 9.4.2007 09:25
Lýst eftir sextán ára stúlku Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu leitar að Kristínu Diljá Þorgeirsdóttur 16 ára en ekkert hefur spurst til hennar síðan á föstudaginn langa. 8.4.2007 18:54
Innbrot á Tangarhöfða Bíræfnir þjófar stálu rándýru nýju bifhjóli á verkstæði á Tangarhöfða í Reykjavík um helgina og settu það inní sendiferðabíl fyrir utan verkstæðið og námu bæði hjól og bíl á brott. Eigandinn segir tjónið nema um tveimur og hálfri milljón króna en sem betur fer sé hann tryggður fyrir tjóninu. Hvorki bíllinn né bifhjólið hafa komið í leitirnar. 8.4.2007 18:47
Kjósendur neikvæðastir út í formann Samfylkingar Kjósendur annarra flokka en Samfylkingarinnar eru neikvæðastir út í Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur af leiðtogum stjórnmálaflokkanna og eru kjósendur Sjálfstæðisflokksins sérstaklega neikvæðir út í hana. Stuðningsmenn flokkanna eru hins vegar flestir jákvæðir til Geirs H. Haarde formanns Sjálfstæðisflokksins. 8.4.2007 18:33
Fluttur með þyrlu á slysadeild Jeppabifreið og fjórhjól skullu saman í Skarðsfjöru, rétt fyrir utan Vík í Mýrdal seinnipartinn í dag. Ökumaður fjórhjólsins kvartaði undan eymslum í baki og var þyrla Landhelgisgæslunnar send á staðinn. Hún lenti við Landspítalann í Fossvogi nú rétt fyrir fréttir. Maðurinn er ekki eins alvarlega slasaður og talið var í fyrstu. Þá valt jeppabifreið skammt frá Selfossi í dag og barn flutt með sjúkrabifreið til Reykjavíkur þar sem grunur lék á innvortis meiðslum. 8.4.2007 18:16
Róstursamt í Írak í dag Að minnsta kosti þrjátíu létust í átökum í Írak í dag. Á meðal látinna eru fimmtán almennir borgarar sem létust í bílsprengju í Mahmoudiyah suður af Bagdad höfuðborg Íraks. 8.4.2007 18:15
Dorrit heppin að vera á lífi Dorrit Mussayef, forsetafrú, var heppin að láta ekki lífið, þegar hún rakst nýlega harkalega á málmskilti í skíðabrekku í Aspen í Bandaríkjunum. Forsetafrúin brotnaði illa en er byrjuð í endurhæfingu og vonast læknar til þess að hún nái sér að fullu. 8.4.2007 17:55
Mæðgin í vélsleðaslysi Kona á fimmtugsaldri og 11 ára gamall sonur hennar lentu í vélsleðaslysi á Grenjárdal ofan Grenivíkur laust fyrir klukkan tvö í dag. Mæðginin misstu stjórn á sleðanum valt yfir þau. Ræstar voru út Björgunarsveitirnar Ægir á Grenivík og Súlur á Akureyri sem og sjúkraflutningamenn frá Akureyri og lögregla. 8.4.2007 16:24
Gæti skapað meiri verðmæti en útrás bankanna Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, segir Íslendinga í algerri forystu í heiminum í nýtingu jarðvarma og að þeir hafi allar forsendur til að leiða uppbyggingu meðal þjóða á umhverfisvænni orku. Forsetinn er nýkominn frá Bandaríkjunum þar sem hann átti fundi með forystumönnum beggja deilda Bandaríkjaþings, vísindamönnum og forráðamönnum fjögurra stærstu háskóla Bandaríkjanna. 8.4.2007 16:08
Íranar brýna klærnar Íranar hafa varað Íraka við því að það geti haft alvarleg áhrif á samskipti landanna ef fimm Íranar sem Bandaríkjamenn handtóku verði ekki látnir lausir. Talið er að það hafi verið vegna þessarra manna sem Íranar ráku flugvél forsætisráðherra Íraks út úr lofthelgi sinni um helgina. 8.4.2007 16:01
Bílar bannaðir í Bagdad Öll bílaumferð verður bönnuð í 24 klukkustundir á morgun, þegar fjögur ár eru liðin frá því borgin féll í hendur Bandaríkjanna. Þetta er gert til að koma í veg fyrir hryðjuverk, en bílsprengjur eru vinsælt vopn hjá upopreisnarmönnum. Bannið stendur frá klukkan fimm í fyrramálið til klukkan fimm að morgnu þriðjudags. 8.4.2007 15:16
Bandarísk sendinefnd um orkumál væntanleg til landsins Orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákveðið að senda sendinefnd til Íslands í sumar, til að kynna sér nýtingu Íslendinga á jarðvarma til orkuframleiðslu. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands greindi frá þessu í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag. 8.4.2007 14:31
Ungfrú Marple lifir Þegar vistfólkið á elliheimili í Saalfield í Þýskalandi var orðið hvekkt á peningaþjófnuðum, ákvað 95 ára gömul kona í þess hópi að taka til sinna ráða. Hún skildi eftir seðlabúnt á borðinu í herbergi sínu og faldi sig svo á baðherberginu til að sjá hvað gerðist. Fylgdist með í gegnum skráargatið. 8.4.2007 14:29
Kona í djúpum..... Kínversk kona bjargaðist á....undursamlegan ?...hátt þegar hún féll af svölum íbúðar sínnar á sjöttu hæð, í fjölbýlishúsi. Konan var að hengja út þvott, þegar hún missti jafnvægið og hrapaði til jarðar. Það vildi henni til lífs að það var einmitt verið að hreinsa rotþró hússins. 8.4.2007 14:07
Castro byrjaður að blogga Fidel Castro, er ekki alveg risinn upp af sjúkrabeðinu en hann er byrjaður að blogga í dagblaðinu Granma, sem er málgagn kúbverska kommúnistaflokksins. Varla kemur á óvart að í hans fyrsta bloggi skammar hann Bandaríkin blóðugum skömmum. Hann fjallar um áætlun Bandaríkjamanna um etanol framleiðslu til að knýja bíla, en til framleiðslu þess er notað korn sem ella færi til manneldis. 8.4.2007 13:36
Neyðarkall frá Karolinska -læknar þustu að úr öllum áttum Neyðarástand skapaðist þegar allt rafmagn fór af Karólinska háskólasjúkrahúsinu í Huddinge, í Svíþjóð í gær. Sérstaklega átti það við um gjörgæsludeild fyrir nýfædd börn sem voru í súrefniskassa. Vararafhlöðurnar þar tæmdust á aðeins fimmtán mínútum. Sent var út neyðarkall um neyðarboðleiðir sjúkrahússins og læknar og hjúkrunarfólk þusti að úr öllum áttum til þess að halda súrefniskössunum gangandi með handdælum. 8.4.2007 13:12
Tvö umferðarslys á stuttum tíma Tvö umferðarslys hafa orðið í norðan verðum Hólmahálsi. Það fyrra aðfaranótt laugardags þegar bíll fór út af veginum og stöðvaðist um 30 metrum utan við veginn. Kallað var út sjúkralið, læknir og tækjabíll frá slökkviliði Fjarðabyggðar. Þrennt var í bílnum og voru farþegarnir fluttir með sjúkrabíl á fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað til frekari aðhlynningar. Ökumaðurinn hlaut handleggsbrot en hinir reyndust minna slasaðir en haldið var í fyrstu. 8.4.2007 13:11
Óþolandi hegðun fólks Rúmlega tvöfalt fleiri hafa verið teknir fyrir ölvunaakstur í umdæmi lögeglunnar á Eskifirði það sem af er þessu ári en á sama tíma í fyrra. Lögreglan hefur miklar áhyggjur af þessari þróun mála í umdæminu en það sem af er ári hafa 18 verið teknir fyrir ölvunarakstur og fjórir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Á heimasíðu lögreglunnar segir hún það með öllu óþolandi að einstaklingar skuli leyfa sér að lítilsvirða samborgarar sína með þessu háttarlagi. 8.4.2007 13:09
Biskup segir mannkynið ganga freklega á lífríki jarðar Biskup Íslands sagði mannkynið ganga freklega gegn lífríki jarðar með græðgi, yfirgangi og rányrkju í páskapredikun sinni í morgun. Messur voru vel sóttar í morgun en í dag minnast kristnir menn upprisu Jésú Krists. 8.4.2007 13:05