Fleiri fréttir Neyddist til lendingar á Keflavíkurflugvelli Bandarísk Herkúles herflugvél þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli í kvöld vegna bilunar í vökvakerfi vélarinnar. Vélin lenti heilu og höldnu á flugvellinum rétt fyrir hálfsjö í kvöld. 20.3.2007 19:15 Ástandið í Írak veldur vonbrigðum Utanríkisráðherra segir að ástandið í Írak valdi vissulega vonbrigðum en það sé áfram stefna íslensku ríkisstjórnarinnar að styðja írösku þjóðina eftir megni. Fjögur ár eru í dag frá upphafi átaka í landinu og endurreisn landsins heldur áfram í skugga ofbeldis. 20.3.2007 19:15 Lögreglan rannsakar innflutning á tugum kvenna Lögreglan rannsakar innflutning á tugum kvenna frá Austur-Evrópu, sem fluttar voru til Íslands sem listamenn, en Vinnumálastofnun segir þær vera selskapsdömur sem selji kampavín án atvinnu- og dvalarleyfis. Eigandi veitingastaðar, sem flytur stúlkurnar til landsins, segir að þær séu listamenn sem dansi fyrir gesti staðarins. 20.3.2007 19:13 Heilsan á að njóta vafans Heilsan á að njóta vafans þegar menn taka ákvörðun um stækkun álversins, segir Finnbogi Óskarsson efnafræðingur á Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. Hann segir langtímaáhrif mengunar á íbúa ekki þekkt og því borgi sig ekki að taka þá áhættu að tvö- til þrefalda mengun frá álverinu. 20.3.2007 18:59 Morfínfíklum fækkað um helming Morfínfíklum sem leita til SÁÁ hefur fækkað um helming eftir að lyfjagagnagrunnur Landlæknisembættisins var tekinn í notkun fyrir tveimur árum. Læknar hafa verið varaðir við nokkrum tugum manna og kvenna sem fara lækna á milli í leit að ávanalyfjum. Sú kræfasta hefur leitað til fjölda heilsugæslustöðva undir að minnsta kosti fimm nöfnum. 20.3.2007 18:52 Lentu í deilum við konu á Hebron Íslenskur karlmaður um tvítugt var færður til yfirheyrslu hjá ísrelsku lögreglunni í Hebron á Vesturbakkanum í fyrradag. Ísraelsk kona sem þau lentu í útistöðu við hafði þá kært danska vinkonu hans fyrir líkamsárás. Atvikið náðist allt á myndband. 20.3.2007 18:45 Stytta af Jaka í Breiðholti Lagt hefur verið til að reist verði stytta af verkalýðsleiðtoganum Guðmundi J. Guðmundssyni, - Gvendi Jaka - í Breiðholti. Með staðsetningunni er vísað til þess að hann var einn þeirra manna sem stuðlaði að þeim miklu umbótum í húsnæðismálum sem fólust í uppbyggingu Breiðholtsins. 20.3.2007 18:32 Umhverfisráðherra undirritar sáttmála Framtíðarlandsins Umhverfisráðherra, Jónína Bjartmarz, hefur skrifað undir sáttmála Framtíðarlandsins, fyrst stjórnarþingmanna. Á fjórða þúsund höfðu nú síðdegis undirritað sáttmálann. 20.3.2007 18:30 Borgin kynnir þriggja ára áætlun Borgarstjórnarmeirihlutinn stefnir að því að stórauka tekjur borgarinnar á næstu árum með íbúafjölgun og hagræðingu. Kynnt voru í dag áform í rekstri borgarinnar á næstu þremur árum en lykillinn að fjölgun er stóraukið lóðaframboð. 20.3.2007 18:29 Gæsluvarðhald framlengt Hæstiréttur staðfesti í dag framlengingu á gæsluvarðhaldi til ellefta maí yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um aðild að smygli á nærri fjórum kílóum af kókaíni. Mennirnir hafa verið í haldi síðan áttunda febrúar. Fíkniefnin voru falin í bifreið sem flutt var frá Þýskalandi en tollgæsla fann þau áður en þeirra var vitjað og skipti þeim út fyrir gerviefni. 20.3.2007 18:24 Bílar fuku víða útaf og rýma þurfti hús á Vestfjörðum Skjólborð af vörubíl fauk framan á tvo bíla á Reykjanesbraut og rúta með um þrjátíu unglinga innanborðs fauk út af Suðurlandsvegi. Í Bolungarvík voru hús rýmd vegna snjóflóðahættu. 20.3.2007 18:17 Ingibjörg ítrekar framburð sinn Ingibjörg S. Pálmadóttir, sambýliskona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hún ítrekar að Jón Steinar Gunnlaugsson hafi sagt henni að ýmsir aðilar hafi þrýst á sig að taka að sér mál Jóns Geralds. Jón Steinar hafði í gær sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði fullyrðingar Ingibjargar við yfirheyrslu í Hæstarétti ekki sannar. 20.3.2007 17:59 Handtóku 171 í aðgerðum gegn mafíunni Ítalska lögreglan handtók í dag vel á annað hundrað manns í aðgerðum gegn mafíunni í Napólí. Heilu fjölskyldurnar voru þá sendar í steininn en alls var um 171 manns að ræða. Þúsund lögreglumenn tóku þátt í aðgerðunum. Eiturlyfjahringur var leystur upp og afhjúpuð ýmis glæpastarfsemi sem mun að sögn lögreglu hafa skilað jafnvirði rúmlega þrjátíu milljóna króna í tekjur á mánuði. 20.3.2007 17:42 Varðskip með Sólborgu í togi Varðskip Landhelgisgæslunnar nú á leið til Reykjavíkur með Sólborgu RE-270, 115 tonna dragnótarbát, í togi. Báturinn varð vélarvana á Sandvík við Reykjanes um tvöleytið í dag. Ekki er búist við að komið verði til Reykjavíkur fyrr en seint í kvöld. 20.3.2007 17:19 Júdas var góður gæi 20.3.2007 17:04
Sjá næstu 50 fréttir
Neyddist til lendingar á Keflavíkurflugvelli Bandarísk Herkúles herflugvél þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli í kvöld vegna bilunar í vökvakerfi vélarinnar. Vélin lenti heilu og höldnu á flugvellinum rétt fyrir hálfsjö í kvöld. 20.3.2007 19:15
Ástandið í Írak veldur vonbrigðum Utanríkisráðherra segir að ástandið í Írak valdi vissulega vonbrigðum en það sé áfram stefna íslensku ríkisstjórnarinnar að styðja írösku þjóðina eftir megni. Fjögur ár eru í dag frá upphafi átaka í landinu og endurreisn landsins heldur áfram í skugga ofbeldis. 20.3.2007 19:15
Lögreglan rannsakar innflutning á tugum kvenna Lögreglan rannsakar innflutning á tugum kvenna frá Austur-Evrópu, sem fluttar voru til Íslands sem listamenn, en Vinnumálastofnun segir þær vera selskapsdömur sem selji kampavín án atvinnu- og dvalarleyfis. Eigandi veitingastaðar, sem flytur stúlkurnar til landsins, segir að þær séu listamenn sem dansi fyrir gesti staðarins. 20.3.2007 19:13
Heilsan á að njóta vafans Heilsan á að njóta vafans þegar menn taka ákvörðun um stækkun álversins, segir Finnbogi Óskarsson efnafræðingur á Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. Hann segir langtímaáhrif mengunar á íbúa ekki þekkt og því borgi sig ekki að taka þá áhættu að tvö- til þrefalda mengun frá álverinu. 20.3.2007 18:59
Morfínfíklum fækkað um helming Morfínfíklum sem leita til SÁÁ hefur fækkað um helming eftir að lyfjagagnagrunnur Landlæknisembættisins var tekinn í notkun fyrir tveimur árum. Læknar hafa verið varaðir við nokkrum tugum manna og kvenna sem fara lækna á milli í leit að ávanalyfjum. Sú kræfasta hefur leitað til fjölda heilsugæslustöðva undir að minnsta kosti fimm nöfnum. 20.3.2007 18:52
Lentu í deilum við konu á Hebron Íslenskur karlmaður um tvítugt var færður til yfirheyrslu hjá ísrelsku lögreglunni í Hebron á Vesturbakkanum í fyrradag. Ísraelsk kona sem þau lentu í útistöðu við hafði þá kært danska vinkonu hans fyrir líkamsárás. Atvikið náðist allt á myndband. 20.3.2007 18:45
Stytta af Jaka í Breiðholti Lagt hefur verið til að reist verði stytta af verkalýðsleiðtoganum Guðmundi J. Guðmundssyni, - Gvendi Jaka - í Breiðholti. Með staðsetningunni er vísað til þess að hann var einn þeirra manna sem stuðlaði að þeim miklu umbótum í húsnæðismálum sem fólust í uppbyggingu Breiðholtsins. 20.3.2007 18:32
Umhverfisráðherra undirritar sáttmála Framtíðarlandsins Umhverfisráðherra, Jónína Bjartmarz, hefur skrifað undir sáttmála Framtíðarlandsins, fyrst stjórnarþingmanna. Á fjórða þúsund höfðu nú síðdegis undirritað sáttmálann. 20.3.2007 18:30
Borgin kynnir þriggja ára áætlun Borgarstjórnarmeirihlutinn stefnir að því að stórauka tekjur borgarinnar á næstu árum með íbúafjölgun og hagræðingu. Kynnt voru í dag áform í rekstri borgarinnar á næstu þremur árum en lykillinn að fjölgun er stóraukið lóðaframboð. 20.3.2007 18:29
Gæsluvarðhald framlengt Hæstiréttur staðfesti í dag framlengingu á gæsluvarðhaldi til ellefta maí yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um aðild að smygli á nærri fjórum kílóum af kókaíni. Mennirnir hafa verið í haldi síðan áttunda febrúar. Fíkniefnin voru falin í bifreið sem flutt var frá Þýskalandi en tollgæsla fann þau áður en þeirra var vitjað og skipti þeim út fyrir gerviefni. 20.3.2007 18:24
Bílar fuku víða útaf og rýma þurfti hús á Vestfjörðum Skjólborð af vörubíl fauk framan á tvo bíla á Reykjanesbraut og rúta með um þrjátíu unglinga innanborðs fauk út af Suðurlandsvegi. Í Bolungarvík voru hús rýmd vegna snjóflóðahættu. 20.3.2007 18:17
Ingibjörg ítrekar framburð sinn Ingibjörg S. Pálmadóttir, sambýliskona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hún ítrekar að Jón Steinar Gunnlaugsson hafi sagt henni að ýmsir aðilar hafi þrýst á sig að taka að sér mál Jóns Geralds. Jón Steinar hafði í gær sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði fullyrðingar Ingibjargar við yfirheyrslu í Hæstarétti ekki sannar. 20.3.2007 17:59
Handtóku 171 í aðgerðum gegn mafíunni Ítalska lögreglan handtók í dag vel á annað hundrað manns í aðgerðum gegn mafíunni í Napólí. Heilu fjölskyldurnar voru þá sendar í steininn en alls var um 171 manns að ræða. Þúsund lögreglumenn tóku þátt í aðgerðunum. Eiturlyfjahringur var leystur upp og afhjúpuð ýmis glæpastarfsemi sem mun að sögn lögreglu hafa skilað jafnvirði rúmlega þrjátíu milljóna króna í tekjur á mánuði. 20.3.2007 17:42
Varðskip með Sólborgu í togi Varðskip Landhelgisgæslunnar nú á leið til Reykjavíkur með Sólborgu RE-270, 115 tonna dragnótarbát, í togi. Báturinn varð vélarvana á Sandvík við Reykjanes um tvöleytið í dag. Ekki er búist við að komið verði til Reykjavíkur fyrr en seint í kvöld. 20.3.2007 17:19
Sektaður fyrir að skafa ekki bílrúðu Lögregla stöðvaði ökumann í dag vegna þess að hann hirti ekki um að skafa af bílrúðunum. Útsýni mannsins var mjög takmarkað og setti hann sjálfan sig og aðra í hættu, segir í tilkynningu frá lögreglunni. Hann var sektaður um fimm þúsund krónur samkvæmt reglugerð um hélaðar rúður á ökutækjum. Þrjátíu og eitt umferðaróhapp var tilkynnt til lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt. 20.3.2007 16:53
Laganemar aðstoða innflytjendur Innflytjendur fá ókeypis lögfræðiþjónustu hjá laganemum Háskólans í Reykjavík frá og með morgundeginum. Þjónustan fer fram á efstu hæð Alþjóðahússins við Hverfisgötu. Að henni munu starfa laganemar á þriðja til fimmta námsári. Markmiðið er að veita aðstoð á hvaða réttarsviði sem er. 20.3.2007 16:42
Lögreglan stöðvaði líkfylgd Lögregla í Hollandi hefur verið gagnrýnd fyrir að stöðva líkfylgd til að taka öndunarpróf af ökumönnum. Syrgjendurnir voru nýlagðir af stað frá kirkju í Enschede á leið til kirkjugarðsins Usselo. Lögreglan leyfði líkbílnum og fjórum næstu bílum að halda ferðinni áfram. Tíu bifreiðum fjölskyldumeðlima og vina var hins vegar vikið til hliðar. 20.3.2007 16:11
Uppnám í Evróvision Mikið uppnám varð í Evróvision söngvakeppninni, í gær, þegar í ljós kom að bresku þáttakendurnir höfðu leynilega liðsmenn. Í söngbandinu Scooch eru tvær stúlkur og tveir piltar. Í keppninni í gær kom í ljós að þau höfðu tvær stúlkur baksviðs, sem sungu með. Hinir þáttakendurnir urðu öskureiðir og sökuðu Scooch um svindl og svínarí. Um að hafa leikið að þau væru að syngja. 20.3.2007 16:01
Sýn tryggir sér Formúluna Sýn hefur tryggt sér sýningarréttinn á Formúlu 1 kappakstrinum. Sýningarrétturinn er til þriggja ára. Sýn byrjar útsendingar á Formúlunni með mótaröðinni sem hefst í ársbyrjun 2008 og stendur til loka ársins 2010. 20.3.2007 16:00
Ísraelar hunsa Norðmann Ísraelar hafa aflýst öllum fundum með Raymond Johansen, ráðuneytisstjóra norska utanríkisráðuneytisins. Johansen er í Miðausturlöndum og átti í gær fund með Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Hamas í þjóðstjórn Palestínumanna. Hann átti að hitta ísraelska ráðamenn í dag, en þeim fundum var aflýst. 20.3.2007 15:36
Nokkuð um minniháttar slys í gær Þrjár konur á níræðisaldri voru fluttar undir læknishendur í Reykjavík í gær. Tvær þeirra duttu í hálku og voru fluttar á slysadeild. Sú þriðja datt í Kringlunni. Þá skarst maður á tíræðisaldri á höfði þegar hann féll í Austurveri og þurfti læknisaðstoð. Fimm ára drengur rann á tré á skíðum í Fossvogi í gær. Hann var með hjálm en fékk stóra kúlu á ennið. 20.3.2007 15:24
Lélegur brandari Tuttugu og níu ára gamall Kaupmannahafnarbúi hefur verið dæmdur í tíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að segja að hann væri með skammbyssu. Það þótti lélegur brandari á Kastrup flugvelli, þar sem maðurinn var að fara um borð í flugvél til útlanda. 20.3.2007 15:20
Varðskip á leið til bjargar fiskiskipi Varðskip Landhelgisgæslunnar er nú á leið suður fyrir Reykjanessskaga til að draga vélarvana fiskiskip í land. Gæslunni var tilkynnt um skipið út af Reykjanesi á þriðja tímanum í dag. Skipið er 70 tonna snurvoðabátur með fimm manna áhöfn. Það bilaði upp úr hádegi og liggur fyrir akkerum stutt frá landi. 20.3.2007 15:08
Hætta á niðurföll stíflist Búast má við miklu vatnsveðri þegar líður á daginn samfara hlýindum. Hætta er á að niðurföll stíflist en þau eru mörg hver eru full af ís eftir kuldakastið síðustu daga. 20.3.2007 15:07
Fangelsi fyrir ofbeldi gegn lögreglumönnum Kona á þrítugsaldri var í dag dæmd í fjögurra mánaða fangelsi fyrir ofbeldi gegn tveimur lögreglumönnum. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur og er skilorðsbundinn til fimm ára. Ákæra gegn karlmanni sem lést 11. þessa mánaðar var felld niður. 20.3.2007 14:33
Íslendingar fara yngstir í klámið Börn og unglingar á Norðurlöndunum eru stórfelldir klámneytendur og íslensk börn byrja langfyrst að skoða það. Samnorræn könnun náði til ungmenna á aldrinum 12-20 ára og þriðjungur þeirra skoðar klám nánast á hverjum einasta degi. Könnunin var gerð á vegum samtakanna NIKK sem er "Nordisk institut for kvinde- og könsforskning." Drengir skoða klám meira en stúlkur. Þeir eru oftast einir og helsti tilgangur þeirra að fróa sér. Stúlkur skoða aðallega klám vegna þess að þær eru forvitnar, eða bara sér til gamans 20.3.2007 14:28
Rúta með 30 unglingum fauk útaf Rúta með um þrjátíu unglinga innanborðs fauk útaf Suðurlandsvegi vestan Markafljót skömmu fyrir hádegi. Engan sakaði. Um borð í rútunni voru erlendir nemar á leið frá Reykjavík á Vík í Mýrdal. 20.3.2007 14:19
Yfirbygging fauk af flutningabíl Yfirbygging fauk af flutningabíl á tvo fólksbíla á Reykjanesbrautinni við Ásvelli í Hafnarfirði á öðrum tímanum. Ekki er talið að nein alvarleg slys hafi orðið á fólki. Miklar umferðatafir eru á Reykjanesbrautinni í átt til vesturs vegna óhappsins. 20.3.2007 14:05
Kinnbeinin orsökuðu hrakfarir Kínverskur maður lét minnnka kinnbeinin í lýtaaðgerð til að eiginkonan myndi lifa lengur. Spákonur sögðu Lang Qiang að konan myndi deyja á undan honum, vegna kinnbeinanna. Lang var sannfærður um að það væri rétt þar sem konan var einstaklega óheppin, en hann ekki. 20.3.2007 14:01
Suðurlandsvegur opinn á ný - Ekkert ferðaveður enn Suðurlandsvegur hefur verið opnaður aftur. Honum var lokað á tólfta tímanum vegna ófærðar. Björgunarsveitarmenn hafa þurft að aðstoða ökumenn sem lent hafa í vandræðum vegna veðursins. Vonskuveður er víða á Vesturlandi og Norðurlandi vestra, ekki ferðaveður og versnandi færð, segir Vegagerðin. 20.3.2007 13:41
Strætó fauk út af á Kjalanesi Fimmtíu manna rúta með sjö manns innanborðs fauk út af á Kjalarnesi á ellefta tímanum í morgun. Atvikið átti sér stað rétt ofan við Hvalfjarðargöngin í snarpri vindhviðu. Farþega og ökumann sakaði ekki og engar skemmdir urðu á bifreiðinni, sem er í eigu Teits Jónassonar. Fyrirtækið sér um áætlunarferðir á Kjalarnesi fyrir Strætó bs. 20.3.2007 12:46
Hjólbarðar í hættu á Akureyri Oddhvass mulningur, sem borinn er á götur Akureyrar í hálku, getur stórskemmt dekk bifreiða. Þetta segir hjólbarðasali en bærinn kemur af fjöllum. Um er að ræða gróft efni með skarpri egg og er hjólbarðasölunum hjá Heldi nóg boðið vegna dreifingar á götum. Þeir hafa séð mörg dæmi um að efnið skemmi dekk þegar ekið er yfir. 20.3.2007 12:45
Semja þurfi um frestun stækkunar álvers Formaður Samfylkingar tekur undir með bæjarstjóranum í Hafnarfirði um að semja þurfi við Alcan og orkufyrirtæki um frestun á stækkun álversins í Straumsvík, samþykki Hafnfirðingar stækkunina í lok mánaðarins. 20.3.2007 12:21
Samherji kaupir Engey Samherji á Akureyri hefur keypt Engey, flaggskip íslenska fiskiskipaflotans af Granda, en Grandi ætlaði að gera skipið út við Afríkustrendur. Engey er umþaðbil fjórum sinnum stærri en meðal stór frystitogari. Hún kom til hafnar í Færeyjum úr sinni síðustu veiðiferð fyrir Granda, þegar gengið var frá kaupunum upp á hátt í þrá milljarða króna. 20.3.2007 12:13
Dómsmálaráðherra vill kaupa þyrlur með Norðmönnum Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, lagði í morgun til á ríkisstjórnarfundi að áfram verði rætt við norsk stjórnvöld um sameiginlegt útboð Íslands og Noregs vegna kaupa á nýjum þyrlum. Þetta er í samræmi við tillögur starfshóps um þyrlurekstur Landhelgisgæslu Íslands 20.3.2007 12:11
Fiskverð upp úr öllu valdi Fiskverð fór upp úr öllu valdi á innlendum fiskmörkuðum í síðustu viku og hefur aldrei verið hærra í krónum talið. Verð á leigukvóta hefur líka náð sögulegum hæðum. Verð fyrir kílóið af nýveiddum fiski upp úr bát var að meðaltali tæpar 193 krónur fyrir allar tegundir og stærðir. 20.3.2007 12:05
Verktakar í Reykjanesbæ bjartsýnir á sölu Verktaki og byggingarmeistari í Reykjanesbæ blása á áhyggjur minnihlutans um að erfitt geti reynst að selja allar þær 1900 íbúðir sem búið er að skipuleggja í bænum. Verktakinn fagnar miklu lóðaframboði og segir það á ábyrgð byggingarmeistara að byggja ekki meira en markaðurinn þolir. 20.3.2007 12:00
Flóttamannabúðir að fyllast Flóttamannabúðir sem ætlaðar eru fyrir þá sem þurft hafa að flýja frá heimilum sínum í Darfur-héraði í Súdan eru að fyllast. Þetta segja embættismenn Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Meira en 80 þúsund manns hafa flúið heimili sín það sem af er ári og alls hafast um 2 milljónir manna við í flóttamannabúðum. Flestir hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna átakanna sem geysað hafa milli Janjaweed hersveitanna sem eru hliðhollar stjórnvöldum og uppreisnarhópa. Minnst 200 þúsund hafa farist í átökunum. 20.3.2007 11:42
Engey RE seld HB Grandi hf. hefur selt Samherja hf. Engey RE, stærsta skip landsins. Þetta kemur fram á vef Fiskifrétta. Söluverðið er 2,7 milljarðir króna og er söluhagnaðurinn um 700 milljónir króna. 20.3.2007 11:32
Málfrelsi nemenda í hættu í Bandaríkjunum Hæstiréttur Bandaríkjanna veltir nú fyrir sér málfrelsi í nemenda í skólum í Bandaríkjunum. Er þetta í fyrsta sinn í rúmlega 20 ár sem slíkt mál kemur fyrir dómstólinn. Dæmt verður um hvort að skólastjóri hafi brotið á málfrelsi nemanda þegar að hún rak nemandann úr skólanum fyrir að sýna borða sem á stóð „Reykjum gras fyrir Jesús.“ (e. Bong hits 4 Jesus). 19.3.2007 23:45
Reyndi að refsa Lampard Ósáttur aðdáandi hljóp út á völlinn eftir að leik Chelsea og Tottenham lauk í kvöld og reyndi að gefa Frank Lampard, leikmanni Chelsea, einn á lúðurinn. Lampard var að fagna með liðsfélögunum sínum þegar maðurinn kom hlaupandi með hnefann á lofti og rétt náði að bregða sér undan hægrihandarsveiflu hins reiða áhanganda Tottenham. Öryggisverðir brugðust snögglega við og yfirbuguðu manninn á örskotsstundu. 19.3.2007 23:10
Lögðu hald á 19,4 tonn af kókaíni Eiturlyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum hefur í samstarfi við lögregluna í Panama lagt hald á 19,4 tonn af kókaíni. Kókaínið fannst um borð í skipi á Kyrrahafi um helgina og talið er að aldrei hafi meira magn eiturlyfja verið gert upptækt á hafi úti. Lögreglan í Panama skýrði frá þessu í kvöld. Skipið er flutningaskip og er skráð í Panama. 14 voru handteknir í tengslum við málið. 19.3.2007 22:59
Lögregla í Bandaríkjunum handtekur mótmælendur Lögregla í New York og í San Francisco í Bandaríkjunum handtók í dag tugi manns sem voru að mótmæla stríðinu í Írak. Fjögur ár eru nú liðin síðan að stríðið hófst. Lögreglumenn í einkennisbúningum voru mun fleiri en mótmælendur í New York en þeir voru aðeins um hundrað talsins. Af þeim voru 44 handteknir. 19.3.2007 22:36
88 ára kona skotin fimm sinnum í svefni 88 ára kona er nú á batavegi á sjúkrahúsi í Flórídaríki í Bandaríkjunum eftir að hafa verið skotin fimm sinnum á meðan hún var sofandi heima hjá sér. Lögreglan í Orange County er ennþá að rannsaka hvers vegna ráðist var á hana. Hún telur að skotárásin hafi ekki verið tilviljun en er enn að leita að hugsanlegu tilefni. Lögreglan hefur enn enga grunaða í málinu. 19.3.2007 22:13