Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sökuð um úrræðaleysi í málum langt leiddra vímuefnasjúklinga Hart var deilt á heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnina fyrir dugleysi í málefnum langt leiddra áfengis- og vímuefnasjúklinga í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Það var Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem hóf umræðuna og benti á mikið hefði verið rætt um meðferðarstofnanir og starfsemi þeirra í kjölfar frétta af Byrginu. 21.2.2007 16:27
Karl Steinar verður yfirmaður fíkniefnadeildar Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn verður yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann tekur við starfinu af Ásgeiri Karlssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni sem verður daglegur stjórnandi greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Karl Steinar hefur verið aðstoðaryfirlögregluþjónn í almennu deild lögreglunnar frá 2002. Hann hefur farið með málefni almennu löggæslunnar og sólarhringsvaktanna frá þeim tíma, fyrst hjá lögreglunni í Reykjavík en frá áramótum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Karl Steinar hóf störf í lögreglunni í Reykjavík 1985. Hann var skipaður aðstoðaryfirlögregluþjónn 1997 og stýrði þá forvarnadeild lögreglunnar í Reykjavík. Hann lauk námi í afbrotafræði frá California State University í Bandaríkjunum 1994 og útskrifaðist frá Lögregluskóla bandarísku alríkislögreglunnar (FBI) 1999 og lauk námi fyrir stjórnendur í lögreglu frá sama skóla 2002. Karl Steinar lauk MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík 2006. 21.2.2007 15:46
DV verður aftur dagblað á morgun DV verður að dagblaði á morgun þegar dagleg útgáfa DV hefst að nýju eftir nokkurt hlé. Þetta kemur fram í tilkynningu frá blaðinu. DV mun framvegis koma út fimm daga vikunnar, mánudaga til föstudaga. 21.2.2007 15:24
Egyptar handtaka tilræðismann Tuttugu og þrír menn hafa verið handteknir í Egyptalandi eftir að palestinskur maður með sprengjubelti var handtekinn þar, en hann hafði komið þangað um jarðgöng frá Gaza ströndinni. Maðurinn ætlaði að fara í baðstrandarbæ á Sinai skaga, sem ísraelskir ferðamenn sækja mikið. Þar ætlaði hann að sprengja sig í loft upp og drepa eins marga Gyðinga og hann gæti. 21.2.2007 15:24
Menntamálaráðherra eins og nátttröll á norrænum vettvangi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttur menntamálaráðherra var sögð standa eins og nátttröll á norrænum vettvangi í umræðum á Alþingi í dag um skipan fulltrúa í sérfræðingaráð Norræna blaðamannaskólans. 21.2.2007 15:00
Þriðja útkallið vegna óhóflegrar tölvunotkunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var í vikunni í þriðja sinn á stuttum tíma kölluð til aðstoðar í heimahúsi þar tölvunotkun unglings hafði farið úr böndunum. Foreldrar unglingspilts voru komnir með nóg af óhóflegri tölvunotkun hans. 21.2.2007 14:44
Riða greinist í ám í Hrunamannahreppi Riða hefur greinst í tveimur ám frá bænum Hrafnkelsstöðum í Hrunamannahreppi. Landbúnaðarstofnun hefur tilkynnt landbúnaðarráðherra um málið. 21.2.2007 14:38
Flugher Írans engin fyrirstaða Bandaríska blaðið The New York Times skýrði frá því að það hefði komist yfir leynilegar áætlanir um árás Bandaríkjanna á Íran, að uppfylltum vissum forsendum. Stjórnvöld hafa marglýst því yfir að engin slík árás sé í undirbúningi, en hafa ekki viljað útiloka að gripið verði til vopna, ef allt annað þrýtur. 21.2.2007 14:22
28 mál hjá Samkeppniseftirlitinu frá 2005 eða eldri 85 stjórnsýslumál voru til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu nú um miðjan febrúar og eru 28 þeirra frá árinu 2005 eða eldri. Þetta kom fram í svari Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra við fyrirspurn Önnu Kristínar Gunnarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag. 21.2.2007 14:19
Heimshöfin súrna Heimshöfin eru farin að súrna vegna aukins magns koltvísýrings í andrúmsloftinu. Áhrif á líf í höfunum gætu orðið hrikaleg. Á næstu 50-100 árum gæti hækkað sýrustig sjávar leyst upp skeljar snigla og minnkað kóralrif tilfinnanlega að sögn vísindamanna við Vísindaþróunarstofnun Bandaríkjanna í San Francisco. 21.2.2007 14:10
Nýkomin með bílpróf á 130 kílómetra hraða Sautján ára stúlka var tekin á 130 kílómetra hraða í Ártúnsbrekku rétt eftir miðnætti í nótt. Stúlkan hefur aðeins haft bílpróf í fjóra mánuði. Skömmu síðar stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu jafnaldra hennar á Hafnarfjarðarvegi á 121 kílómetra hraða. 21.2.2007 13:48
Fulltrúar fjögurra flokka spyrja um kostnað við Baugsmál Fulltrúar frá öllum flokkum á Alþingi nema Sjálfstæðisflokknum hafa lagt fram fyrirspurn á Alþingi til dómsmálaráðherra um kostnað ríkisins við rannsókn og rekstur Baugsmálsins. 21.2.2007 13:38
Veitir reykvískum skólabörnum íslenskuverðlaun Menntaráð Reykjavíkurborgar tilkynnti í dag að komið yrði á fót íslenskuverðlaunum fyrir reykvísk skólabörn sem úthlutað verður á hverju ári á Degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember. 21.2.2007 13:28
Mugabe gefur afmælisgjöf Robert Mugabe, forseti Zimbabwe hélt upp á 83 ára afmæli sitt í dag með því að banna allar pólitískar samkomur í þrjá mánuði. Hann lýsti því jafnframt yfir að hann hefði alls ekki í hyggju að fara frá völdum í bráð. Kjörtímabil hans rennur út í mars á næsta ári, en forsetinn útilokaði ekki að hann byði sig fram aftur. 21.2.2007 13:17
Íran: Óttast ekki árás Bandaríkjamanna Ali Larijani, aðalsamningamaður Írana í kjarnorkudeilu þeirra við vesturveldin, segir stjórnvöld í Teheran ekki óttast árás Bandaríkjamanna. Vesturveldin komi ekki til með að beita hörku í deilunni. Frestur sá sem Sameinuðu þjóðirnar gáfu Írönum til að hætta auðgun úrans rennur út í dag. 21.2.2007 13:15
Íslenskt táknmál verði viðurkennt sem móðurmál heyrnarlausra Félag heyrnalausra skorar á Alþingi að viðurkenna íslenskt táknmál sem móðurmál heyrnalausra og hefur hafið undirskriftasöfnun til stuðnings við hagsmunabaráttu félagsins. 21.2.2007 13:11
Boðið að falla frá ákæru fyrir vitnisburð gegn Jóni Ásgeiri Yfirheyrslum yfir Tryggva Jónssyni, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, lauk laust fyrir klukkan eitt í Héraðsdómi Reykjavíkur. Eins og greint var frá fyrr í dag var Tryggvi meðal annars spurður út í meintan fjárdrátt frá Baugi sem tengist skemmtibátnum Thee Viking og getið er í 18. ákærulið endurákærunnar. 21.2.2007 13:06
Engin sátt um Kosovo Sérlegur fulltrúi Sameinuðu þjóðanna gagnvart Kosovo segir að engar líkur séu á því að Serbar og Albanar nái samkomulagi um framtíð héraðsins. Martti Athisari, stýrir samningaviðræðum sem hófust í Vínarborg í dag. Kosovo er bláfátætk hérað í Serbíu þar sem yfirgnæfandi 21.2.2007 13:04
Bretar fækka um 1.500 hermenn í Írak Tony Blair, forsætisráðherra Breta, tilkynnti rétt í þessu að breskum hermönnum yrði fækkað um 1.600 á næstu mánuðum. Sem stendur eru 7.100 breskir hermenn í Írak. 21.2.2007 12:47
Istanbúl: Íbúðarhús hrundi Minnst 2 týndu lífi og hátt í 30 slösuðust þegar 5 hæða íbúðarhús hrundi í Istanbúl í Tyrklandi í morgun. Yfirvöld í borginni segja lélegum frágangi við bygginguna um að kenna en engar frekari skýringar hafa fengist á því af hverju húsið hrundi. Talið er að allir sem voru í húsinu og lifðu hafi verið fluttir á sjúkrahús og enga sé að finna í rústunum. 21.2.2007 12:45
Danir frá Írak fyrir lok júlí Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, tilkynnti rétt í þessu að allir danskir hermenn verði farnir frá Írak áður en ágúst gengur í garð. Alls eru 470 danskir hermenn þar núna. Níu manna þyrlusveit verður þó áfram í landinu. 21.2.2007 12:41
Ritstjóri fjölmiðlis beri ábyrgð á ómerktum áfengisauglýsingum Talsmaður neytenda telur skýrt að ritstjóri fjölmiðils beri ábyrgð á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum ef auglýsandinn er ekki nafngreindur í auglýsingunni. 21.2.2007 12:40
Innflutt matvara oftast ódýrari á Íslandi en í Danmörku og Noregi Verð á innfluttri matvöru, annarri en landbúnaðarvörum, var oftast lægra á Íslandi en í Noregi og Danmörku samkvæmt nýrri verðkönnun félags íslenskra stórkaupmanna. 21.2.2007 12:30
Græddu HIV-smituð líffæri í sjúklinga Ítalskir læknar græddu óvart líffæri úr eyðnismituðum líffæragjafa í heilbrigt fólk. Alls fengu þrír sjúklingar líffæri úr konunni. Um tvö nýru og lifur var að ræða. Læknar segja miklar líkur á því að líffæraþegarnir eigi eftir að smitast af HIV. 21.2.2007 12:15
Meira af svartolíu í Wilson Muuga en talið var Miklu meira virðist hafa verið eftir af svartolíu í flutningaskipinu Wilson Muuga, en talið var því vinnuflokkur hefur dælt um 20 tonnum upp úr lest skipsins á strandstað síðan í gær. 21.2.2007 12:10
Heimkvaðning hermanna undirbúin Búist er við að Danir og Bretar tilkynni í dag um heimkvaðningu hermanna frá Írak. Áætlað er að Blair forsætisráðherra tilkynni að brottflutningur breskra hermanna hefjist innan örfárra vikna og að forsætisráðherra Dana útlisti áætlun sína á blaðamannafundi síðdegis. 21.2.2007 12:00
Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot vegna aldurs Héraðsdómur Vesturlands sýknaði í gær ungan mann af kynferðisbroti gegn stúlkubarni á þeim grundvelli að hann væri ósakhæfur fyrir aldurs sakir. Hann var hins vegar dæmdur til að greiða stúlkunni 300 þúsund krónur í miskabætur vegna brotsins. 21.2.2007 11:40
Engin sýking í seiðum á Laxeyri Ranglega var skýrt frá því á Vísir.is í gær, í frétt sem höfð var eftir Skessuhorni, Vesturlandsvefnum, að sýktum seiðum hefði verið eytt hjá seiðaeldisstöðinni á Laxeyri í Borgarfirði. Um slíkt var ekki að ræða eins og fram kemur í meðfylgjandi athugasemd Jóns Guðjónssonar stöðvarstjóra. Vísir biðst velvirðingar á þessum mistökum. 21.2.2007 11:35
Geta skotið kjarnasprengjum á Japan og S-Kóreu Norður-Kórea getur framleitt kjarnorkusprengjur sem hægt er að setja á eldflaugar sem ná bæði til Kóreu og Japans, samkvæmt skýrslu bandarískra sérfræðinga, sem Reuters fréttastofan hefur komið yfir. Bandaríkjamennirnir heimsóttu kjarnorkuver Norður-Kóreu norðan við höfuðborgina Pyongyang, og segja að norðamenn hafi framleitt nóg plútóníum fyrir fimm til tólf kjarnorkusprengjur. 21.2.2007 11:32
Lykilorð bloggara birt á síðum þeirra Lykilorð sumra bloggara á mbl.is voru birt í skamma stund á bloggsíðum þeirra nú í morgun. Um mikil mistök er að ræða því þeir sem sáu lykilorðin hefðu getað skrifað þau niður, farið inn á bloggsíðu viðkomandi og breytt henni. 21.2.2007 11:22
Blair brýnir Abbas Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna mun í dag eiga fund með Tony Blair, í Lundúnum, þar sem breski forsætisráðherrann mun leggja áherslu á að hin nýmyndaða þjóðstjórn Palestínumanna verði að fara að kröfum Miðausturlanda-kvartettsins svokallaða um að viðurkenna Ísraelsríki og láta af ofbeldisverkum. Abbas er á ferð um Evrópu til þess að afla stjórninni fylgis. 21.2.2007 11:10
Food and Fun hefst í dag - bein útsending frá setningu á Stöð 2 Hin árlega matar- og skemmtihátíð "Food and Fun " hefst í Reykjavík í hádeginu en þá setja Jóni Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Einar Kr. Guðfinnson sjávarútvegsráðherra hátíðina formlega frá Nordica-hótelinu. Sýnt verður beint frá setningunni í hádegisfréttum Stöðvar 2. 21.2.2007 11:00
Danskir hermenn heim frá Írak Búist er við að forsætisráðherra Danmerkur, Anders Fogh Rasmussen, tillkynnti í dag að Danir muni fara að dæmi Breta og kalla heim einhvern hluta hermanna sinna frá Írak. Danska fréttastofan Ritzau segir ekki hversu margir hermenn verði kvaddir heim, eða hvenær. 21.2.2007 10:49
Reynir á íslensku bankana, segir S & P Nú reynir á íslensku bankana þegar hægir á íslensku efnahagslífi og erfiðarar verður að nálgast lánsfé á erlendum mörkuðum, segir greiningarfyrirtækið Standard & Poors í nýrri skýrslu um íslensku bankana. 21.2.2007 10:47
Stóri nammidagurinn er í dag Í dag er öskudagur, stærsti nammidagur ársins og börn um allt land klæðast skrautlegum búningum og ganga hús úr húsi til að kría út gotterí. Börnin fara gjarnan um í stórum hópum og taka lagið til þess að þakka fyrir sig. Fyrr á árum var það siður að krakkar hengdu öskupoka aftan í fólk, en minna er um slíkt í dag. 21.2.2007 10:36
Föst undir steinvegg í fjóra klukukutíma Kona á fimmtugsaldri var flutt með sjúkrabifreið frá Húnavatnssýslu til Reykjavíkur í dag eftir að steinveggur brotnaði og féll á hana. Konan lá föst undir veggnum á bóndabæ í Vatnsdal í fjórar klukkustundir þar til hjálp barst. Konan mun hafa verið að reka hross út úr hesthúsi þegar slysið varð, en eitt hrossana sparkaði í vegginn með þessum afleiðingum. 20.2.2007 23:50
Breskt herlið frá Írak Búist er við að Tony Blair forsætisráðherra Breta tilkynni á morgun að flutningur herliðs Breta frá Írak hefjist innan nokkurra vikna. Þetta kemur fram á BBC og í öðrum breskum fjölmiðlum í dag. Áætlun Blairs er að fyrstu 1.500 hermennirnir úr 7.100 manna liði þeirra í Írak snúi heim á næstu vikum. 20.2.2007 23:20
Eiturgas umlukti heilan bæ Sex létust og tugir urðu fyrir eituráhrifum þegar tankbíll fullur af klór sprakk við veitingastað í bænum Taji í Írak í dag. Eiturgas umlukti bæinn sem er 20 km norður af höfuðborginni Baghdad. Tölur látinna voru á reiki, fyrstu tölur sögðu fimm látna og 148 sem orðið hefðu fyrir eitrun. Alls létust 20 manns í landinu í dag í nokkrum tilfellum, meðal annars í Baghdad. 20.2.2007 22:58
Áætlun í jafnréttismálum endurskoðuð Kynbundinn launamunur er eitt af helstu áhersluatriðum í endurskoðaðri áætlun í jafnréttismálum. Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja tillöguna fram til þingsályktunar. Tillagan var unnin í félagsmálaráðuneytinu ásamt skýrslu um stöðu og horfur í jafnréttismálum. 20.2.2007 22:11
Átak gegn sjálfsvígum í S-Kóreu Heilbrigðisyfirvöld í Suður Kóreu segjast vera að undirbúa herferð sem beinist gegn hárri sjálfsvígstíðni í landinu. Á fimm árum hafa sjálfsmorðstilfelli tvöfaldast. Verið er að skoða ýmsa möguleika eins og að koma upp ráðgjafamiðstöðvum og fjarlægja vefsíður sem sýna leiðir til sjálfsmorða og hvetja jafnvel fólk til að taka líf sitt. 20.2.2007 21:41
Alræmdi klósettrúlluþjófurinn varaður við Rað-klósettrúlluþjófur í Bretlandi hefur fengið viðvörun frá lögreglu eftir að upp komst að hann hefur stolið klósettrúllum af almenningssalernum. Konan er miðaldra og hefur tekið tíu rúllur á dag í að minnsta kosti þrjár vikur. Hún var gripin glóðvolg af bæjarstarfsmönnum í vestur Bridgford í Nottingham. 20.2.2007 21:30
Vilja virkja grasrótina Samstaða, baráttusamtök um bætta umferðarmenningu, hvetja alla til að skrá sig í samtökin og vinna að fækkun alvarlegra umferðarslysa. Félagið var stofnað í kjölfar slysaöldu á síðasta ári. Ekkert banaslys hefur orðið í umferðinni það sem af er þessu ári og hefur alvarlegum meiðslum á fólki fækkað. Steinþór Jónsson formaður samtakanna segir í fréttatilkynningu að það sé góð byrjun á löngu verkefni. 20.2.2007 21:00
Airbus íhugar uppsagnir tíu þúsund manns Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, segir að tíu þúsund starfsmönnum evrópska flugrisans Airbus verði sagt upp þegar fyrirtækið verði endurskipulagt. Illa hefur gengið að selja Airbus A-380 risaþotuna, stærstu farþegaflugvél í heimi, en framleiðsla hennar hefur tafist. Villepin sagði frönsk stjórnvöld andvíg uppsögnum. Þjóðverjar segja ekkert hæft í yfirlýsingum forsætisráðherrans. 20.2.2007 20:30
Hægt að læra af Sömum Samar í Norður-Noregi hafa fundið fyrir áhrifum loftslagsbreytinga í áratugi. Rannsóknir hafa leitt í ljós að áhrif þeirra eru áþreifanlegri í loftslagi norðurheimskautsins. Vísindamenn ætla nú að kanna viðbrögð Sama við breytingunum svo hægt verið að læra af þeim. 20.2.2007 20:00
Segist geta læknað alnæmi Forseti Afríkuríkisins Gambíu telur sig hafa fundið lækningu við alnæmi. Hann segist hafa læknað marga landa sína með jurtameðulum og fyrirbænum. Hátt í fjörutíu milljón manns í heiminum þjást af alnæmi, flestir í Afríku. 20.2.2007 19:30