Full samstaða stjórnarliða um RÚV 8. desember 2006 12:25
Full samstaða er meðal stjórnarliða um RÚV-frumvarpið segir menntamálaráðherra og átelur menn fyrir að setja frestun lokaumræðunnar í annarlegt ljós. Þriðju umræðu um Ríkisútvarpið ohf. hefur verið frestað fram yfir áramót en þetta er í þriðja sinn sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur árangurslaust reynt að koma frumvarpi um RÚV í gegnum þingið. Aðspurð segir hún stjórnarmeirihlutann hafa treyst sér fyllilega til að koma frumvarpinu í gegn fyrir jól. "En menn mátu það einfaldlega þannig að það væru önnur mál sem væri líka brýnt að fá í gegn fyrir áramót." En voru það ekki vonbrigði fyrir ráðherra í ljósi þess að þetta er þriðja atrenna hennar við lög um Ríkisútvarpið? "Menn eru að reyna að setja þetta upp í alls konar annarlegt ljós. Þingið starfar bæði fyrir og eftir áramót. Og auðvitað setur hver ráðherra sér það markmið að klára mál sem fyrst. En það er alveg ljóst að það hefur ekkert mál verið jafn vel rætt og er jafn vel þekkt þannig að menn ættu að hafa auðveldlega haft tækifæri til að taka afstöðu til málsins. Þannig að ég bara geri ráð fyrir því að við byrjum 15. janúar og þá hefst þriðja umræða Ríkisútvarpsins." En eru Framsóknarmenn að draga lappirnar í þessu máli? "Alls ekki. Framsóknarmenn hafa staðið sem klettur við hlið mér í öllu þessu máli."
Fréttir Innlent Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira