Fleiri
Taking the P out of public transport 14.6.2006 11:02 Verið að laga Kjalveg Verið er að laga Kjalveg og verður hann væntanlega opnaður fyrir helgi, fyrir jeppa að minnstakosti. Komið hefur í ljós að talsvert mikið hefur runnið úr afleggjaranum í Kerlingafjöll í vatnavöxtum í vetur, og þarf að lagfæra hann nokkuð. Einhver tími mun þó líða þar til vegurinn um Sprengisand verður opnaður. 14.6.2006 10:45 Sjá næstu 50 fréttir
Engar refsiaðgerðir í bili Evrópusambandið hefur langtímaáætlun um lýðræðisþróun á Kúbu í smíðum og lýstu utanríkisráðherrar aðildarríkjanna 25 yfir djúpstæðum áhyggjum af bágri stöðu mannréttindamála í eyríkinu á mánudag. 15.6.2006 06:15
Löglegt á ný að selja byssur Dómari í Kaliforníu hefur komist að því að lögbann á sölu skammbyssna, sem samþykkt var af 58 prósentum borgarbúa í San Francisco í nóvember, standist ekki nánari skoðun. 15.6.2006 06:15
Engin áhrif á starfsemina Að frumvarp um Nýsköpunarmiðstöð Íslands hafi ekki verið samþykkt á vorþingi mun ekki hafa áhrif á störf Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, að sögn Smára Þórarinssonar fjármálastjóra. Hann segir fjárhagslega stöðu sjóðsins vera sterka og að einn milljarður hafi fengist í sjóðinn í kjölfar sölu Símans. 15.6.2006 06:15
Engar breytingar ráðgerðar Gunnar Stefánsson, sviðsstjóri björgunarsviðs Landsbjargar fagnar tillögu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar um afnám virðisaukaskatts á tækjakost björgunarsveitanna. Í máli Vilhjálms kom fram að ekki eigi að líta á rekstur sveitanna sem fyrirtækjarekstur en þetta sagði hann í ræðu sinni á sjómannadaginn. 15.6.2006 06:15
560 lögskilnaðir á síðasta ári Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands voru lögskilnaðir 560 á síðasta ári og sambúðarslit 631, að því er fram kemur á heimasíðu Hagstofunnar. Frá árinu 1992 hafa foreldrar hér á landi átt þess kost að fara sameiginlega með forsjá barna sinna eftir skilnað. 15.6.2006 06:15
Tæp hálf milljón Kínverja í biðröð Yfir þrjátíu þúsund kínverskir spilarar skráðu sig í fjölspilunarleikinn Eve Online á fyrstu klukkustundunum eftir að opnað var fyrir prófanir á honum í Kína í fyrradag. Þar að auki eru um 350.000 manns á biðlista eftir að fá að spila leikinn, en áætlað er að fullgerð útgáfa komi út í næsta mánuði. 15.6.2006 06:15
Ofbeldismál gegn lögreglu fara sjaldan fyrir dóm Allt að 95 prósent þeirra mála sem lögregla skrifar skýrslu um sem meint ofbeldi í sinn garð fara aldrei fyrir dómstóla, að sögn framkvæmdastjóra Landssambands lögreglumanna. Hann bendir jafnframt á að hafi 15.6.2006 06:00
Veiðist með uppsjávarfiski Landssamband veiðifélaga, í samvinnu við Veiðimálastofnun, fékk IMG-Gallup til að afla upplýsinga um hugsanlegan meðafla á laxi í veiðum íslenskra fiskiskipa. Gerð var símakönnun meðal sjómanna um áramótin 2005-2006. 15.6.2006 06:00
Fá börn taka mark á auglýsingum Íslensk könnun bendir til að 4% barna trúa því sem þau sjá og heyra í auglýsingum. Meirihluti barna er spurður álits þegar stærri innkaup eru gerð fyrir heimilið. 15.6.2006 06:00
Börn horfa mikið á klám Dönsk börn og unglingar milli tólf ára og tvítugs horfa mikið á klám samkvæmt nýlegri rannsókn í Danmörku, en niðurstöður hennar voru birtar í dönskum fjölmiðlum í vikunni. 15.6.2006 05:45
Færri bílar fluttir inn Í maí voru fluttar inn vörur fyrir 35,7 milljarða samkvæmt bráðabirgðatölum um innheimtu virðisaukaskatts. Ef horft er á hreyfingar milli mánaða má sjá að helstu drifkraftar innflutnings eru sem fyrr hrá- og rekstrarvörur ásamt fjárfestingarvörum, en aukinn innflutning í þeim flokkum má að mestu rekja til stóriðjuframkvæmda. Nokkuð virðist vera að hægja á innflutningi bifreiða en tölur um nýskráningar á bílum í maí gefa ekki til kynna að bílakaup almennings hafi aukist frá sama tíma í fyrra. 15.6.2006 05:45
Gerir kröfu í bú sakborninga Hæstiréttur Íslands staðfesti á þriðjudaginn úrskurð Héraðsdóms um að bú Ragnars Orra Benediktssonar yrði tekið til gjaldþrotaskipta að kröfu Símans hf. 15.6.2006 05:30
Hert lög um hvíldartíma Á seinustu starfsdögum Alþingis voru samþykktar breytingar á lögum sem varða reglur um hvíldartíma bílstjóra hópferða- og farmflutningabíla. 15.6.2006 05:30
Guevara malar gull í Bólivíu Minningu byltingarforingjans Che Guevara á að nýta í anda einkaframtaks og markaðshyggju. Á heimasíðu Reuters-fréttastofunnar er greint frá því að í Bólivíu ætli frumkvöðlar í ferðamannaþjónustu að sækja inn á markað "vinstri-túrisma" með því að leggja vegarslóða sem kenndur verður við dvöl Guevaras í Bólivíu. 15.6.2006 05:00
Upplýst um yfirheyrsluaðferðir Bandaríska varnarmálaráðuneytið ætlar að láta undan miklum þrýstingi frá bandarískum þingmönnum og mannréttindasamtökum og svipta alveg hulunni af tilsögn um hvernig skuli staðið að yfirheyrslum. 15.6.2006 05:00
Sjúkdómar gætu breiðst út Miklar deilur eru um áætlun Bush-stjórnarinnar um að staðsetja rannsóknarstöð banvænna veira á þéttbýlu svæði við San Fransiskó-flóa. 15.6.2006 05:00
Vilja meiri umræðu í skólum Æskilegt er að skólar nýti skýrslur Rannsóknarnefndar umferðarslysa ásamt öðrum skýrslum um umferðaröryggismál í verkefna- og rannsóknarvinnu nemenda 15.6.2006 05:00
Dæmdir fyrir hryðjuverk Þrír menn voru dæmdir í gær fyrir að undirbúa hryðjuverk og ráðast á kjörstað í Svíþjóð. Þetta er önnur sakfellingin síðan ný hryðjuverkalög voru sett á þar í landi árið 2003. 15.6.2006 04:45
Vísað í ólögmætt samráð Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá Kreditkortum hf., sem hefur umboð fyrir Mastercard á Íslandi, á þriðjudag í kjölfar húsleitar stofnunarinnar hjá Visa Ísland. 15.6.2006 04:45
Stofninn lítill og ræfilslegur Geitungastofninn á Íslandi er mjög illa á sig kominn það sem af er sumars. Búin eru lítil og fá og geitungarnir sjálfir eru ræfilslegir. Að sögn Róberts Ólafssonar meindýraeyðis er ástæðan fyrir þessu hrun stofnsins síðasta sumar þegar tvísýnt var um að hann lifði yfirleitt af, en líklegast þykir að einhvers konar sveppasýking hafi verið þar á ferðinni. 15.6.2006 04:45
Íslenskar bækur kynntar Ísland tók þátt í hinni árlegu Madrídarbókakaupstefnu sem stóð frá 26. maí til 11. júní. Kaupstefnan var haldin undir berum himni og voru íslenskar bókmenntir kynntar í Norðurlandabásnum. Þetta er tíunda árið í röð sem íslenskar bækur eru á boðstólunum á hátíðinni. 15.6.2006 04:45
Skora á ráðherra að banna hvalveiðar á hvalaskoðunarsvæðum Samtök ferðaþjónustunnar skora á sjávarútvegsráðherra að beina hvalveiðum út fyrir auglýst hvalaskoðunarsvæði til að minnka árekstra milli þeirra sem hafa lifibrauð sitt af að skoða hvali og þeirra sem finnst nauðsynlegt að skjóta þá. Samtökin segja óásættanlegt að hvalveiðimenn skjóti gæfustu hrefnurnar sem einmitt sé mesti fengurinn fyrir hvalaskoðara að sjá. 14.6.2006 23:15
Búið að opna í Kerlingarfjöllum Útivistarsvæðið í Kerlingarfjöllum opnaði formlega nú um helgina þar sem nú er búið að opna fyrir umferð um Kjalveg í báðar áttir og er hann nýheflaður og í góðu standi. Að sögn staðarhaldara hefur umferð til Kerlingarfjalla farið stigvaxandi frá því að skíðaiðkun var þar aflögð árið 2002 og farið að markaðssetja svæðið sem almennt útivistarsvæði yfir sumartímann. 14.6.2006 23:00
25 athugasemdir vegna frummatsskýrslu Fjarðaráls 25 athugasemdir bárust vegna frummatsskýrslu Alcoa Fjarðaráls á umhverfisáhrifum álvers á Reyðarfirði, frá náttúruverndarsamtökum og einstaklingum. Skýrslan gerir meðal annars úttekt á mengun frá álverinu í lofti sem á láði og er það niðurstaða skýrslunnar að með þurrhreinsibúnaði einvörðungu verði öll mengun frá álverinu undir viðmiðunarmörkum. 14.6.2006 22:45
Leiðtogar Mið- og Austur-Asíu funda í Shanghai Aðildarþjóðir Shanghai samvinnustofnunarinnar hittust í dag á aðalfundi hennar. Búist er við að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, eigi þar tvíhliða fundi með Kína og Rússlandi um afstöðu þeirra til kjarnorkudeilu Vesturveldanna við Íran. 14.6.2006 22:19
Icelandair semur við sænska ríkið Icelandair hefur náð samningum við sænska ríkið um að fljúga með starfsmenn þess á milli Svíþjóðar og Íslands annars vegar, og hins vegar á milli Svíþjóðar og Bandaríkjanna. Að sögn Sigmundar Halldórssonar, starfandi upplýsingafulltrúa Icelandair, er samningurinn stór áfangi fyrir félagið. 14.6.2006 22:19
Segir það ekki hlutverk sjóðanna að byggja og reka hjúkrunarheimili Framkvæmdarstjóri Landsamtaka Lífeyrissjóða segir það ekki vera hlutverk lífeyrissjóðanna að byggja og reka húsnæði fyrir eldri borgara. Hann segir hugmyndina vera andvana fædda. 14.6.2006 20:55
Vill að lífeyrissjóðirnir komi að uppbyggingu húsnæðis fyrir eldri borgara 70,8% þjóðarinnar er hlynt því að lífeyrissjóðirnir komi að uppbyggingu húsnæðis fyrir eldri borgara, samkvæmt nýlegri Gallup könnun. Helgi Vilhjálmsson, stjórnarmaður í Aðstandendafélagi aldraðra, vill lífeyrissjóðirnir skili hluta tekna sinna aftur til sjóðsþega með þessum hætt 14.6.2006 20:50
Miklar breytingar á sendiherraskipan Miklar breytingar verða gerðar á sendiherraskipan íslensku utanríkisþjónustunnar á næstunni. Ráðuneytið sendi frá tilkynningu síðdegis þar sem greint er frá þeim sem nú þegar hafa verið ákveðnar. 14.6.2006 20:39
Karlmaður sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gagnvart dóttur sinni Karlmaður á fimmtugsaldri var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af ákæru um kynferðisbrot gagnvart dóttur sinni. Maðurinn átti að hafa lagst ofan á dóttur sína, sem þá var tíu ára gömul, girt niður um hana og sett getnaðarlim sinn í leggöng hennar. Maðurinn hefur alla tíð neitað sök í málinu. Í dómnum kemur fram að orð standi gegn orði hjá stúlkunni og föður hennar. 14.6.2006 19:43
Íslensk börn of feit Eitt af hverjum tíu íslenskum börnum á aldrinum þriggja til sex ára er of feitt. Þróunin versnar eftir því sem börnin verða eldri. Á grunnskólaaldri er allt að fjórðungur barna of þungur. Fleiri þjást af offitu í heiminum en vannæringu. 14.6.2006 18:45
Hjólamennirnir komnir heim Fjórum veðurbörnum slökkviliðsmönnum var fagnað innilega við komuna heim til Reykjanesbæjar í dag, eftir að þeir höfðu hjólað hringinn í kringum landið til styrktar Umhyggju, félags foreldra langveikra barna. Mennirnir höfðu þá hreppt öll veður sem boðið er upp á á Íslandi í júní. 14.6.2006 17:52
Mótmæla fyrirhuguðum hrefnuveiðum Hvalaskoðunarsamtök Íslands mótmæla harðlega þeirri ákvörðun sjávarútvegsráðherra að leyfa veiðar á 50 hrefnum hér við land á þessu ári. Greint var frá þessari ákvörðun sjávarútvegsráðherra í gær og eiga veiðarnar að hefjast á næstu dögum. 14.6.2006 17:01
Föroyabanki PF skráður í Kauphöll Íslands Föroyabanki PF er frá og með deginum í dag skráður í Kauphöll Íslands. Er þess vænst að í kjölfarið muni viðskipti með færeysk bréf aukast. Kauphallaraðilar eru með þessu orðnir 25, en fimm af þeim eru erlendir. Føroya Banki P/F verður aðili að hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum Kauphallarinnar. 14.6.2006 16:21
Þurfa ekki að bera vitni í Baugsmálinu Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, um að settur ríkissaksóknari og dómstjóri Hérðasdóms Reykjavíkur, þyrftu ekki að vera vitni í Baugsmálinu. 14.6.2006 15:58
Danskir stjórnmálamenn hafa áhyggjur af fríblaði Danskir stjórnmálamenn virðast hafa nokkrar áhyggjur af fríblaðinu sem Dagsbrún er að hrinda af stokkunum, í Danmörku. Margir danskir þingmenn eru sagðir tilbúnir til þess að endurskoða stuðning við hin hefðbundnu dagblöð. 14.6.2006 15:40
Samingur Eiðs kynntur fyrir fjölmiðlum innan skamms Blaðamannafundur spænska knattspyrnuliðsins Barcelona vegna samningsins við Eið Smára Guðjohnsen hefst klukkan fjögur. Fundurinn átti upprunalega að vera klukkan þrjú, en honum var frestað um klukkustund vegna leiks Spánverja og Úkraínu á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Þar á að kynna fjögra ára samning Eiðs Smára við Evrópumeistara Barcelona. 14.6.2006 15:36
Útgöngubann á miðnætti Útgöngubann tekur gildi í Írak á miðnætti. Írakska stjórnin hefur boðað hertar aðgerðir gegn ofbeldisverkum í helstu borgum landsins og taka yfir fjörutíu þúsund hermenn þátt í aðgerðinni. 14.6.2006 15:09
Stefnir í harkalega lendingu Þrjú af fjórum helstu einkennum niðursveiflunnar hér á landi árin 2001 og tvö eru farin að gera vart við sig núna, og það fjórða liggur í loftinu. Einkennin fjögur eru lækkandi gengi á hlutabréfum, eða lækkandi úrvalsvísitala, lækkandi gengi gjaldmiðilsins, eða krónunnar, lækkandi fasteignaverð og hækkandi vextir. 14.6.2006 13:30
Samkeppniseftirlitið gerði einnig húsleit hjá Kreditkortum Eftir að Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá VISA Ísland í gær fóru fulltrúar stofnunarinnar í höfuðstöðvar Kreditkorta hf. og gerðu upptæk gögn. 14.6.2006 12:33
Bakslag í jafnréttismálum Reykjavíkurborgar Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir að gríðarlegt bakslag hafi orðið í jafnréttismálum Reykjavíkurborgar við kjör í nefndir, ráð, stjórnir og hverfaráð í gær. Í átta megin ráð borgarstjórnar hafi meirihlutinn kosið konur til formennsku í aðeins tveimur. 14.6.2006 12:00
25 milljónir í sekt og 7 mánuði í fangelsi Karlmaður var í gær dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi í þrjú ár í Héraðsdómi Suðurlands fyrir stórfelld skattalagabrot og bókhaldsbrot. Manninum er einnig gert að greiða 25 milljónir króna í sekt. Greiði hann ekki sekt sína innan fjögurra vikna skal hann sæta fangelsi í sex mánuði. 14.6.2006 11:40
Síamstvíburar aðskildir Læknar á barnaspítalanum í Los Angeles í Bandaríkjunum hófu í morgun aðgerð til að aðskilja símastvíbura. Stúlkurnar heita Regina og Renatta og hófst aðgerðin á þeim nú fyrir hádegið. 14.6.2006 11:15
Verið að laga Kjalveg Verið er að laga Kjalveg og verður hann væntanlega opnaður fyrir helgi, fyrir jeppa að minnstakosti. Komið hefur í ljós að talsvert mikið hefur runnið úr afleggjaranum í Kerlingafjöll í vatnavöxtum í vetur, og þarf að lagfæra hann nokkuð. Einhver tími mun þó líða þar til vegurinn um Sprengisand verður opnaður. 14.6.2006 10:45