Fleiri fréttir Íslamski klerkurinn Bashir laus úr fangelsi Yfirvöld á Indónesíu létu í morgun lausan hinn herskáa íslamska klerk Abu Bakar Bashir. Hann var hnepptur í fangelsi fyrir rúmum tveimur árum fyrir að hafa tekið þátt í skipulagninu sprenginga á Balí árið 2002. 14.6.2006 09:30 Spáir harkalegri lendingu íslenska hagkerfisins Poul Rawkins, sérfræðingur Fitch Ratings sagði á fundi í London í gær að vaxandi líkur væri á að íslenska hagkerfið stefndi í harkalega lendingu. Það var Fitch Ratings, sem breytti horfum á lánshæfi íslenska ríkisins úr stöðugum í neikvæðar, í febrúar síðastliðnum. 14.6.2006 09:17 Eiður skrifar undir samning við Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen skrifar í dag undir fjögurra ára samning við Evrópumeistara Barcelona. Fréttamannafundur vegna málsins verður klukkan þrjú. 14.6.2006 08:54 Þróa byltingarkennda aðferð Samstarfssamningur Háskóla Íslands og Jarðarstofnunar Kólumbíuháskóla um víðtækt samstarf um rannsóknir og kennslu var undirritaður í gær. Með samningnum er verið að formgera samstarf skólanna sem hefur þróast á undanförnum árum. Áhersla verður lögð á verkefni á sviði loftslagsbreytinga. 14.6.2006 08:00 Segja kjötverð ekki hafa ýtt undir verðbólgu Bændasamtök Íslands blása á þær fullyrðingar forsvarsmanna matvælakeðjanna að kjötskortur og þar af leiðandi hærra kjötverð hafi ýtt undir hækkanir á neysluverðsvísitölu. Framkvæmdastjóri samtakanna segir verð á mjólkurvörum hafi hækkað mun meira þrátt fyrir að framleiðendur hafi ekki hækkað verð til smásala síðustu mánuði. 14.6.2006 08:00 Hlutabréf féllu um allan heim Hlutabréf féllu um allan heim í gær af ótta við frekari vaxtahækkanir sem draga munu úr hagvexti og hagnaði fyrirtækja. Flestar hlutabréfavísitölur heims eru komnar undir það gildi sem þær stóðu í um áramót eftir miklar hækkanir framan af ári. 14.6.2006 07:45 Hefur efasemdir um getu Seðlabankans Gylfi Zoëga, prófessor í þjóðhagfræði, telur að ríkisstjórnin hafi ekki sinnt hagstjórninni nægilega vel. Seðlabankinn hafi staðið einn í baráttunni. Hætta sé á að hann hafi misst trúverðugleika og hafi lítil áhrif á ákvörðun gengis. 14.6.2006 07:30 Veiðimenn hætt komnir Vatnsmagn í Norðurá í Borgarfirði hefur sveiflast undanfarna daga og var yfirborðið á tímabili tveimur metrum hærra en þegar það var sem lægst í maí. Svo hörð var áin í fyrradag að hún hreif með sér bát með fjórum veiðimönnum niður foss, en betur fór en á horfðist og sluppu mennirnir ómeiddir. 14.6.2006 07:15 Unnið samkvæmt álitsgerð Jón Kristjánsson, fráfarandi félagsmálaráðherra, segir vinnu við breytingar á Íbúðalánasjóði vera vel á veg komna en líklegt má telja að breytingarnar nái fram að ganga á þessu ári. 14.6.2006 07:15 Mikilvægur áfangifyrir Háskóla Íslands Háskóli Íslands gerði í gær samkomulag við Jarðarstofnun hins bandaríska Kólumbíuháskóla um fjölþætt samstarf. Áhersla verður lögð á rannsóknir á sviði loftslagsbreytinga þar sem íslenskir vísindamenn eru í fararbroddi. 14.6.2006 07:15 Telur upptökin hjá samkeppnisaðila "Mér fannst ég vera staddur í ríki sem hefði eitthvað annað réttarfar en við," sagði Halldór Guðbjarnarson, forstjóri Visa Ísland um húsleit sem Samkeppniseftirlitið gerði hjá fyrirtækinu í gærmorgun samkvæmt dómsúrskurði. 14.6.2006 07:00 Fimmtíu hrefnur verða veiddar í ár Ákveðið hefur verið að veiða 50 hrefnur á þessu ári en ekki 39 eins og í fyrra. Skynsamlegt að flýta rannsóknunum, segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra. Markmiðið er að kanna hlutverk hrefnu í vistkerfinu við landið. 14.6.2006 07:00 Stefnt að sátt um samninga í vikunni Halldór Ásgrímsson vonast til þess að samkomulag náist um kjarasamninga fyrir vikulok. Ríkisstjórnin hafnaði kröfum Alþýðusambandsins um nýtt skattþrep og breytingar á eftirlaunakerfi æðstu embættismanna um helgina. 14.6.2006 07:00 Gatnamót Kringlumýrar- og Miklubrautar verða mislæg Fjölgun hjúkrunarrýma fyrir aldraða, lækkun leikskólagjalda, útgáfa frístundakorta, opnun gæsluvalla og skipulagning íbúðabyggðar í Örfirisey er meðal þess sem nýr borgarstjórnarmeirihluti ætlar að gera á kjörtímabilinu. Þá á að hefja og ljúka framkvæmdum 14.6.2006 07:00 Tíu ára öku-maður tekinn 14.6.2006 07:00 Enn skortur á svínakjöti Skortur er á kjöti og ekki víst að úr rætist þó að landbúnaðarráðuneytið hafi heimilað innflutning á tæplega 320 þúsund kílóum af kjöti. 14.6.2006 06:45 Braut rifbein, borð og rúðu Karlmaður á sextugsaldri var á mánudag dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir líkamsárásir og eignaspjöll, skilorðsbundið til tveggja ára. 14.6.2006 06:45 Kaupmenn tala um kjötskort Matvörukarfan verður stöðugt dýrari. Þetta kemur fram í verðbólgumælingu Hagstofunnar sem kynnt var í gær. Verðbólgan er nú átta prósent og er það fyrst og fremst vegna þess að viðhald á eigin húsnæði er dýrara og svo hefur verð á mat- og drykkjarvörum hækkað verulega. 14.6.2006 06:45 Finn fyrir nokkurri depurð "Ég finn fyrir nokkurri depurð í dag og það er í fyrsta sinn síðan úrslit kosninganna lágu fyrir," sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fráfarandi borgarstjóri, rétt áður en hún afhenti Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, nýjum borgarstjóra, lyklana að skrifstofu borgarstjóra í gær. 14.6.2006 06:45 Geir víðförlasti ráðherrann Þrír nýir ráðherrar munu taka sæti í ríkisstjórn á morgun. Jón Sigurðsson fer í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Jónína Bjartmarz í umhverfisráðuneytið og Magnús Stefánsson í félagsmálaráðuneytið. 14.6.2006 06:45 Færir liðinu gæfu Lukkudýr japanska knattspyrnulandsliðsins er kannski krúttlegt, en nafnið á því vekur sannarlega upp spurningar. Þessi tíu ára hundur ber nafnið Rommel, en hann er ekki fyrstur í sögunni til að bera þetta nafn, því nafni hans er þýski nasistaforinginn Erwin Rommel. 14.6.2006 06:45 Karl Rove ekki ákærður Einn helsti ráðunautur Hvíta hússins, Karl Rove, fékk í fyrradag að vita að ekki verða lagðar fram ákærur gegn honum vegna aðildar hans að leka á nafni leyniþjónustumanns. Fyrrverandi starfsmannastjóri Dick Cheney varaforseta, Lewis Libby, hefur verið ákærður vegna málsins. 14.6.2006 06:30 Hert áætlun til að koma á friði Forsætisráðherra Íraks, Nouri al-Maliki, mun í dag setja af stað nýjar aðgerðir til að stilla til friðar í Bagdad og nærhéruðum. Aðgerðirnar fela í sér að 75 þúsund hermenn verða settir í öryggisgæslu í borginni og hefur ráðherrann ekki gefið upp nein tímamörk á hvenær aðgerðunum muni ljúka. 14.6.2006 06:30 Þrýst á endurkomu Tómasar Lögmaður Tómasar Zoëga læknis hefur sent forstjóra Landspítalans erindi þar sem óskað er eftir því að haft verði samráð við lækningaforstjóra spítalans um það hvenær Tómas taki aftur við starfi yfirlæknis geðsviðs. 14.6.2006 06:15 Rok og rigning í Reykjavík Veðurhorfur eru ekki góðar fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins næstu vikuna. Samkvæmt veðurstofu byrjar að rigna á þá í dag og verður bleyta og rok fram yfir helgi. Ástæðan er lægð sem er að ganga yfir landið í kjölfar hæðarhryggs, en henni fylgja skýjasvæði sem orsaka rigninguna. 14.6.2006 06:00 Þagði um félagana vegna ótta Maður á þrítugsaldri, Mikael Már Pálsson, var í gær dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stórfelld fíkniefnabrot og fleiri afbrot. 14.6.2006 06:00 Eve in China 14.6.2006 06:00 Man ekki eftir að vera sviptur Maður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að aka bifreið án ökuréttinda og undir áhrifum róandi lyfja í tvígang. Maðurinn hafði verið sviptur ökuréttindum ævilangt en var gripinn við að aka bifreið tvo daga í röð í ágústmánuði í fyrra. Hann bar við minnisleysi vegna heilablóðfalls. 14.6.2006 05:45 Endurupptöku málsins hafnað Endurupptökubeiðni Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar vegna dómsmáls Jóns Ólafssonar gegn Hannesi í Englandi var fyrir nokkru hafnað en í dag verður áfrýjun Hannesar vegna úrskurðarins tekin fyrir í breskum dómstóli. 14.6.2006 05:45 Bush kom óvænt til Írak George Bush Bandaríkjaforseti flaug óvænt til Íraks í gær, en hann hvetur aðrar þjóðir til að standa við gefin loforð um fjárframlög til hernaðarins. 14.6.2006 05:45 Fjögur hringormasmit í fólki Á undanförnum tveimur árum hafa greinst fjögur tilfelli af hringormasmiti í mönnum á Tilraunastöð Háskólans að Keldum. Þeir sem smitast hafa eiga það sameiginlegt að hafa borðað hráan eða illa soðinn fisk, að því er segir í Farsóttafréttum Landlæknis. 14.6.2006 05:30 Kveikt í blaðabunka Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að gamla Hampiðjuhúsinu við Brautarholt í fyrrinótt. Þetta er í annað skiptið sem slökkvilið höfuðborgarinnar er kallað út vegna elds í húsinu á rúmum mánuði. 14.6.2006 05:15 274 nemendur brautskráðir Háskólinn í Reykjavík brautskráði 274 nemendur síðastliðinn laugardag. Nemendurnir voru af átján brautum og úr þremur deildum. Úr lagadeild útskrifuðust 53 nemendur, úr viðskiptadeild 119 nemendur, 78 nemendur útskrifuðust úr tækni- og verkfræðideild og 24 voru brautskráðir af frumgreinasviði. 14.6.2006 05:00 Lithái áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald til 21. júní yfir Litháa sem grunaður er um aðild að innflutningi á tæpum tveimur lítrum af amfetamíni í vökvaformi, en það nægir til að framleiða rúm 13 kíló af amfetamíni í duftformi. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn í gæsluvarðhald á föstudag en úrskurðurinn var kærður. 14.6.2006 04:45 Rúta valt á Bláfellshálsi Hópferðabíll með 16 erlendum ferðamönnum valt á Bláfellshálsi á Kjalvegi í gær. Tveir sjúkrabílar voru sendir á staðinn og var ökumaður bílsins fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Hann var þó ekki alvarlega slasaður og sakaði aðra farþega ekki. 14.6.2006 04:45 Býst ekki við áframhaldi á risarækjueldi Guðlaugur Þór Þórðarsson, nýr stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, á ekki von á því að mikill áhugi verði hjá nýjum meirihluta borgarstjórnar að halda áfram risarækjueldi á vegum fyrirtækisins. 13.6.2006 22:57 Nýr leiðtogi Al Kaída í Írak hótar árásum á næstu dögum Nýr leiðtogi Al Kaída samtakanna í Írak, Abu Hamza al-Muhajer, heitir því að hefna fyrirrennara síns, al-Zarqawis, og hótar hræðilegum árásum á næstu dögum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá al-Muhajer sem birt var á internetinu í dag. 13.6.2006 22:22 Mótmælum flaggað á Sigurboganum Sigurboginn í París varð óvænt vettvangur mótmæla gegn Íransstjórn í dag þegar andstæðingar kjarnorkuáætlana Íransstjórnar flögguðu skilaboðum sínum uppi á boganum. 13.6.2006 22:19 Landsflug rifti samningnum vegna vanefnda Landsflug hefur rift samningi sem gerður var við Flugfélag Vestmannaeyja um kaup á flugvélum Landsflugs og yfirtöku á innanlandsflugi Landsflugs. Þá hefur Landsflug dregið til baka uppsagnir flugmanna og annarra starfsmanna sem sagt var upp störfum eftir að kaupsamningur var undirritaður 24. maí síðastliðinn. Framkvæmdastjóri Landsflugs segir vanefndir Flugfélags Vestmannaeyja ástæður riftunar. 13.6.2006 21:45 Framkvæmd EES samningsins rædd á fundi ráðherraráðs Framkvæmd EES samningsins var meðal þess sem rætt var á fundi ráðherraráðs Evrópska efnahagssvæðisins í Lúxemborg í gær. Á fundinum voru fulltrúar frá Noregi; Liechtenstein, Íslandi, Austurríki og Finnlandi, auk fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB. 13.6.2006 20:57 Dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir smygl á fíkniefnum Karlmaður var í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi Austurlands fyrir innflutning á rúmum þremur kílóum af hassi og tæpum fjörtíu og sjö grömmum af kókaíni. Maðurinn reyndi að smygla fíkniefnunum til landsins í bíl með farþegarferjunni Norrænu en efnin fundust við leit tollvarða og lögreglu á Seyðisfirði 7. mars. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því 8. mars og kemur gæsluvarðhaldið til frádráttar fangelsisdómi hans. 13.6.2006 20:26 Albert varð ekki að fellibyl Íbúar Flórídaríkis búa sig undir að hitabeltisstormurinn Albert gangi á land. Búist er við mikilli úrkomu tengdri óveðrinu en líkurnar á að það verði að fyrsta fellibyl ársins eru sagðar dvínandi. 13.6.2006 20:00 Telur að rekja megi húsleitina til samkeppnisaðila Samkeppniseftirlitið gerði fyrr í dag húsleit hjá Vísa Íslandi vegna gruns um brot á samkeppnislögum. Framkvæmdastjóri VISA segist ekkert skilja í aðgerðunum og telur að rekja megi þetta allt til samkeppnisaðila. 13.6.2006 19:54 Dæmdur fyrir stórfelld skattalagabrot og bókhaldsbrot Karlmaður var í dag dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi í þrjú ár í Héraðsdómi Suðurlands fyrir stórfelld skattalagabrot og bókhaldsbrot. Maðurinn framdi brot sín með því að skila ekki skýrslum til skattyfirvalda vegna sjálfstæðrar atvinnustarfsemi og með því að hafa komið sér undan því að greiða tekjuskatt og úrsvar á árunum 1998 til 2002. Manninum er einnig gert að tuttugu og fimm milljónir króna í sekt. Greiði hann ekki sekt sína innan fjögurra vikna skal hann sæta fangelsi í sex mánuði. 13.6.2006 19:47 Eve Online fer vel af stað í Kína Yfir þrjátíu þúsund notendur skráðu sig inn á netleikinn Eve Online á fyrstu klukkustundunum eftir að opnað var fyrir aðgang að honum í Kína í dag. Það er íslenska fyrirtækið CCP sem á og rekur leikinn, en hann gerist úti í geimnum eftir mörg þúsund ár. Fram kemur í tilkynningu frá forsvarsmönnum CCP að yfir 200 þúsund manns hafi skráð sig til leiks á opnunardeginum sem nálgast fjölda íslensku þjóðarinnar. 13.6.2006 19:15 Sjá næstu 50 fréttir
Íslamski klerkurinn Bashir laus úr fangelsi Yfirvöld á Indónesíu létu í morgun lausan hinn herskáa íslamska klerk Abu Bakar Bashir. Hann var hnepptur í fangelsi fyrir rúmum tveimur árum fyrir að hafa tekið þátt í skipulagninu sprenginga á Balí árið 2002. 14.6.2006 09:30
Spáir harkalegri lendingu íslenska hagkerfisins Poul Rawkins, sérfræðingur Fitch Ratings sagði á fundi í London í gær að vaxandi líkur væri á að íslenska hagkerfið stefndi í harkalega lendingu. Það var Fitch Ratings, sem breytti horfum á lánshæfi íslenska ríkisins úr stöðugum í neikvæðar, í febrúar síðastliðnum. 14.6.2006 09:17
Eiður skrifar undir samning við Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen skrifar í dag undir fjögurra ára samning við Evrópumeistara Barcelona. Fréttamannafundur vegna málsins verður klukkan þrjú. 14.6.2006 08:54
Þróa byltingarkennda aðferð Samstarfssamningur Háskóla Íslands og Jarðarstofnunar Kólumbíuháskóla um víðtækt samstarf um rannsóknir og kennslu var undirritaður í gær. Með samningnum er verið að formgera samstarf skólanna sem hefur þróast á undanförnum árum. Áhersla verður lögð á verkefni á sviði loftslagsbreytinga. 14.6.2006 08:00
Segja kjötverð ekki hafa ýtt undir verðbólgu Bændasamtök Íslands blása á þær fullyrðingar forsvarsmanna matvælakeðjanna að kjötskortur og þar af leiðandi hærra kjötverð hafi ýtt undir hækkanir á neysluverðsvísitölu. Framkvæmdastjóri samtakanna segir verð á mjólkurvörum hafi hækkað mun meira þrátt fyrir að framleiðendur hafi ekki hækkað verð til smásala síðustu mánuði. 14.6.2006 08:00
Hlutabréf féllu um allan heim Hlutabréf féllu um allan heim í gær af ótta við frekari vaxtahækkanir sem draga munu úr hagvexti og hagnaði fyrirtækja. Flestar hlutabréfavísitölur heims eru komnar undir það gildi sem þær stóðu í um áramót eftir miklar hækkanir framan af ári. 14.6.2006 07:45
Hefur efasemdir um getu Seðlabankans Gylfi Zoëga, prófessor í þjóðhagfræði, telur að ríkisstjórnin hafi ekki sinnt hagstjórninni nægilega vel. Seðlabankinn hafi staðið einn í baráttunni. Hætta sé á að hann hafi misst trúverðugleika og hafi lítil áhrif á ákvörðun gengis. 14.6.2006 07:30
Veiðimenn hætt komnir Vatnsmagn í Norðurá í Borgarfirði hefur sveiflast undanfarna daga og var yfirborðið á tímabili tveimur metrum hærra en þegar það var sem lægst í maí. Svo hörð var áin í fyrradag að hún hreif með sér bát með fjórum veiðimönnum niður foss, en betur fór en á horfðist og sluppu mennirnir ómeiddir. 14.6.2006 07:15
Unnið samkvæmt álitsgerð Jón Kristjánsson, fráfarandi félagsmálaráðherra, segir vinnu við breytingar á Íbúðalánasjóði vera vel á veg komna en líklegt má telja að breytingarnar nái fram að ganga á þessu ári. 14.6.2006 07:15
Mikilvægur áfangifyrir Háskóla Íslands Háskóli Íslands gerði í gær samkomulag við Jarðarstofnun hins bandaríska Kólumbíuháskóla um fjölþætt samstarf. Áhersla verður lögð á rannsóknir á sviði loftslagsbreytinga þar sem íslenskir vísindamenn eru í fararbroddi. 14.6.2006 07:15
Telur upptökin hjá samkeppnisaðila "Mér fannst ég vera staddur í ríki sem hefði eitthvað annað réttarfar en við," sagði Halldór Guðbjarnarson, forstjóri Visa Ísland um húsleit sem Samkeppniseftirlitið gerði hjá fyrirtækinu í gærmorgun samkvæmt dómsúrskurði. 14.6.2006 07:00
Fimmtíu hrefnur verða veiddar í ár Ákveðið hefur verið að veiða 50 hrefnur á þessu ári en ekki 39 eins og í fyrra. Skynsamlegt að flýta rannsóknunum, segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra. Markmiðið er að kanna hlutverk hrefnu í vistkerfinu við landið. 14.6.2006 07:00
Stefnt að sátt um samninga í vikunni Halldór Ásgrímsson vonast til þess að samkomulag náist um kjarasamninga fyrir vikulok. Ríkisstjórnin hafnaði kröfum Alþýðusambandsins um nýtt skattþrep og breytingar á eftirlaunakerfi æðstu embættismanna um helgina. 14.6.2006 07:00
Gatnamót Kringlumýrar- og Miklubrautar verða mislæg Fjölgun hjúkrunarrýma fyrir aldraða, lækkun leikskólagjalda, útgáfa frístundakorta, opnun gæsluvalla og skipulagning íbúðabyggðar í Örfirisey er meðal þess sem nýr borgarstjórnarmeirihluti ætlar að gera á kjörtímabilinu. Þá á að hefja og ljúka framkvæmdum 14.6.2006 07:00
Enn skortur á svínakjöti Skortur er á kjöti og ekki víst að úr rætist þó að landbúnaðarráðuneytið hafi heimilað innflutning á tæplega 320 þúsund kílóum af kjöti. 14.6.2006 06:45
Braut rifbein, borð og rúðu Karlmaður á sextugsaldri var á mánudag dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir líkamsárásir og eignaspjöll, skilorðsbundið til tveggja ára. 14.6.2006 06:45
Kaupmenn tala um kjötskort Matvörukarfan verður stöðugt dýrari. Þetta kemur fram í verðbólgumælingu Hagstofunnar sem kynnt var í gær. Verðbólgan er nú átta prósent og er það fyrst og fremst vegna þess að viðhald á eigin húsnæði er dýrara og svo hefur verð á mat- og drykkjarvörum hækkað verulega. 14.6.2006 06:45
Finn fyrir nokkurri depurð "Ég finn fyrir nokkurri depurð í dag og það er í fyrsta sinn síðan úrslit kosninganna lágu fyrir," sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fráfarandi borgarstjóri, rétt áður en hún afhenti Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, nýjum borgarstjóra, lyklana að skrifstofu borgarstjóra í gær. 14.6.2006 06:45
Geir víðförlasti ráðherrann Þrír nýir ráðherrar munu taka sæti í ríkisstjórn á morgun. Jón Sigurðsson fer í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Jónína Bjartmarz í umhverfisráðuneytið og Magnús Stefánsson í félagsmálaráðuneytið. 14.6.2006 06:45
Færir liðinu gæfu Lukkudýr japanska knattspyrnulandsliðsins er kannski krúttlegt, en nafnið á því vekur sannarlega upp spurningar. Þessi tíu ára hundur ber nafnið Rommel, en hann er ekki fyrstur í sögunni til að bera þetta nafn, því nafni hans er þýski nasistaforinginn Erwin Rommel. 14.6.2006 06:45
Karl Rove ekki ákærður Einn helsti ráðunautur Hvíta hússins, Karl Rove, fékk í fyrradag að vita að ekki verða lagðar fram ákærur gegn honum vegna aðildar hans að leka á nafni leyniþjónustumanns. Fyrrverandi starfsmannastjóri Dick Cheney varaforseta, Lewis Libby, hefur verið ákærður vegna málsins. 14.6.2006 06:30
Hert áætlun til að koma á friði Forsætisráðherra Íraks, Nouri al-Maliki, mun í dag setja af stað nýjar aðgerðir til að stilla til friðar í Bagdad og nærhéruðum. Aðgerðirnar fela í sér að 75 þúsund hermenn verða settir í öryggisgæslu í borginni og hefur ráðherrann ekki gefið upp nein tímamörk á hvenær aðgerðunum muni ljúka. 14.6.2006 06:30
Þrýst á endurkomu Tómasar Lögmaður Tómasar Zoëga læknis hefur sent forstjóra Landspítalans erindi þar sem óskað er eftir því að haft verði samráð við lækningaforstjóra spítalans um það hvenær Tómas taki aftur við starfi yfirlæknis geðsviðs. 14.6.2006 06:15
Rok og rigning í Reykjavík Veðurhorfur eru ekki góðar fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins næstu vikuna. Samkvæmt veðurstofu byrjar að rigna á þá í dag og verður bleyta og rok fram yfir helgi. Ástæðan er lægð sem er að ganga yfir landið í kjölfar hæðarhryggs, en henni fylgja skýjasvæði sem orsaka rigninguna. 14.6.2006 06:00
Þagði um félagana vegna ótta Maður á þrítugsaldri, Mikael Már Pálsson, var í gær dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stórfelld fíkniefnabrot og fleiri afbrot. 14.6.2006 06:00
Man ekki eftir að vera sviptur Maður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að aka bifreið án ökuréttinda og undir áhrifum róandi lyfja í tvígang. Maðurinn hafði verið sviptur ökuréttindum ævilangt en var gripinn við að aka bifreið tvo daga í röð í ágústmánuði í fyrra. Hann bar við minnisleysi vegna heilablóðfalls. 14.6.2006 05:45
Endurupptöku málsins hafnað Endurupptökubeiðni Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar vegna dómsmáls Jóns Ólafssonar gegn Hannesi í Englandi var fyrir nokkru hafnað en í dag verður áfrýjun Hannesar vegna úrskurðarins tekin fyrir í breskum dómstóli. 14.6.2006 05:45
Bush kom óvænt til Írak George Bush Bandaríkjaforseti flaug óvænt til Íraks í gær, en hann hvetur aðrar þjóðir til að standa við gefin loforð um fjárframlög til hernaðarins. 14.6.2006 05:45
Fjögur hringormasmit í fólki Á undanförnum tveimur árum hafa greinst fjögur tilfelli af hringormasmiti í mönnum á Tilraunastöð Háskólans að Keldum. Þeir sem smitast hafa eiga það sameiginlegt að hafa borðað hráan eða illa soðinn fisk, að því er segir í Farsóttafréttum Landlæknis. 14.6.2006 05:30
Kveikt í blaðabunka Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að gamla Hampiðjuhúsinu við Brautarholt í fyrrinótt. Þetta er í annað skiptið sem slökkvilið höfuðborgarinnar er kallað út vegna elds í húsinu á rúmum mánuði. 14.6.2006 05:15
274 nemendur brautskráðir Háskólinn í Reykjavík brautskráði 274 nemendur síðastliðinn laugardag. Nemendurnir voru af átján brautum og úr þremur deildum. Úr lagadeild útskrifuðust 53 nemendur, úr viðskiptadeild 119 nemendur, 78 nemendur útskrifuðust úr tækni- og verkfræðideild og 24 voru brautskráðir af frumgreinasviði. 14.6.2006 05:00
Lithái áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald til 21. júní yfir Litháa sem grunaður er um aðild að innflutningi á tæpum tveimur lítrum af amfetamíni í vökvaformi, en það nægir til að framleiða rúm 13 kíló af amfetamíni í duftformi. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn í gæsluvarðhald á föstudag en úrskurðurinn var kærður. 14.6.2006 04:45
Rúta valt á Bláfellshálsi Hópferðabíll með 16 erlendum ferðamönnum valt á Bláfellshálsi á Kjalvegi í gær. Tveir sjúkrabílar voru sendir á staðinn og var ökumaður bílsins fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Hann var þó ekki alvarlega slasaður og sakaði aðra farþega ekki. 14.6.2006 04:45
Býst ekki við áframhaldi á risarækjueldi Guðlaugur Þór Þórðarsson, nýr stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, á ekki von á því að mikill áhugi verði hjá nýjum meirihluta borgarstjórnar að halda áfram risarækjueldi á vegum fyrirtækisins. 13.6.2006 22:57
Nýr leiðtogi Al Kaída í Írak hótar árásum á næstu dögum Nýr leiðtogi Al Kaída samtakanna í Írak, Abu Hamza al-Muhajer, heitir því að hefna fyrirrennara síns, al-Zarqawis, og hótar hræðilegum árásum á næstu dögum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá al-Muhajer sem birt var á internetinu í dag. 13.6.2006 22:22
Mótmælum flaggað á Sigurboganum Sigurboginn í París varð óvænt vettvangur mótmæla gegn Íransstjórn í dag þegar andstæðingar kjarnorkuáætlana Íransstjórnar flögguðu skilaboðum sínum uppi á boganum. 13.6.2006 22:19
Landsflug rifti samningnum vegna vanefnda Landsflug hefur rift samningi sem gerður var við Flugfélag Vestmannaeyja um kaup á flugvélum Landsflugs og yfirtöku á innanlandsflugi Landsflugs. Þá hefur Landsflug dregið til baka uppsagnir flugmanna og annarra starfsmanna sem sagt var upp störfum eftir að kaupsamningur var undirritaður 24. maí síðastliðinn. Framkvæmdastjóri Landsflugs segir vanefndir Flugfélags Vestmannaeyja ástæður riftunar. 13.6.2006 21:45
Framkvæmd EES samningsins rædd á fundi ráðherraráðs Framkvæmd EES samningsins var meðal þess sem rætt var á fundi ráðherraráðs Evrópska efnahagssvæðisins í Lúxemborg í gær. Á fundinum voru fulltrúar frá Noregi; Liechtenstein, Íslandi, Austurríki og Finnlandi, auk fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB. 13.6.2006 20:57
Dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir smygl á fíkniefnum Karlmaður var í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi Austurlands fyrir innflutning á rúmum þremur kílóum af hassi og tæpum fjörtíu og sjö grömmum af kókaíni. Maðurinn reyndi að smygla fíkniefnunum til landsins í bíl með farþegarferjunni Norrænu en efnin fundust við leit tollvarða og lögreglu á Seyðisfirði 7. mars. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því 8. mars og kemur gæsluvarðhaldið til frádráttar fangelsisdómi hans. 13.6.2006 20:26
Albert varð ekki að fellibyl Íbúar Flórídaríkis búa sig undir að hitabeltisstormurinn Albert gangi á land. Búist er við mikilli úrkomu tengdri óveðrinu en líkurnar á að það verði að fyrsta fellibyl ársins eru sagðar dvínandi. 13.6.2006 20:00
Telur að rekja megi húsleitina til samkeppnisaðila Samkeppniseftirlitið gerði fyrr í dag húsleit hjá Vísa Íslandi vegna gruns um brot á samkeppnislögum. Framkvæmdastjóri VISA segist ekkert skilja í aðgerðunum og telur að rekja megi þetta allt til samkeppnisaðila. 13.6.2006 19:54
Dæmdur fyrir stórfelld skattalagabrot og bókhaldsbrot Karlmaður var í dag dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi í þrjú ár í Héraðsdómi Suðurlands fyrir stórfelld skattalagabrot og bókhaldsbrot. Maðurinn framdi brot sín með því að skila ekki skýrslum til skattyfirvalda vegna sjálfstæðrar atvinnustarfsemi og með því að hafa komið sér undan því að greiða tekjuskatt og úrsvar á árunum 1998 til 2002. Manninum er einnig gert að tuttugu og fimm milljónir króna í sekt. Greiði hann ekki sekt sína innan fjögurra vikna skal hann sæta fangelsi í sex mánuði. 13.6.2006 19:47
Eve Online fer vel af stað í Kína Yfir þrjátíu þúsund notendur skráðu sig inn á netleikinn Eve Online á fyrstu klukkustundunum eftir að opnað var fyrir aðgang að honum í Kína í dag. Það er íslenska fyrirtækið CCP sem á og rekur leikinn, en hann gerist úti í geimnum eftir mörg þúsund ár. Fram kemur í tilkynningu frá forsvarsmönnum CCP að yfir 200 þúsund manns hafi skráð sig til leiks á opnunardeginum sem nálgast fjölda íslensku þjóðarinnar. 13.6.2006 19:15