Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Völd konungs skert Völd Gyanendra konungs í Nepal skerðast töluvert samkvæmt nýrri ályktun sem þing landsins samþykkti í morgun. 18.5.2006 13:30
Segjast ekki hafa boðið Gísla Einarssyni sæti á lista Forystumenn Frjálslynda flokksins segja ekkert hæft í þeirri „gróusögu" að flokkurinn hafi í undanfara kosningabaráttu boðið Gísla S. Einarssyni, fyrrverandi alþingismanni Samfylkingar, sæti á framboðslista Frjálslyndra og óháðra á Akranesi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. 18.5.2006 13:15
Nýrri öryggissveit mótmælt Tugir vopnaðra Fatah-liða hröktu vara-forsætisráðherra heimastjórnar Palestínumanna á flótta úr borg á Vesturbakkanum í morgun, þar sem hann var kominn til fundar. Spenna milli stuðningsmanna Hamas og Fatah á Vesturbakkanum hefur magnast síðustu daga, sér í lagi eftir að heimastjórn Hamas stofnaði eigin öryggissveit í gær. 18.5.2006 13:00
Dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir ýmis brot Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Ólaf Hrafn Magnússon í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, tvær sérstaklega hættulegar líkamsárásir, kynferðisbrot og vörslu barnakláms. 18.5.2006 12:51
Efasemdir um ágæti vaxtahækkana Vaxandi efasemda er farið að gæta um að stýrivaxtahækkanir þjóni lengur tilgangi sínum, og að úr þessu geti þær jafnvel farið að hafa neikvæð áhrif. 18.5.2006 12:30
Vaxandi skuldsetning ungra einhleypra karla Ungir einhleypir karlmenn og einstæðar mæður eru skuldsettust allra og í erfiðustu fjárhagskröggunum. Jón Kristjánsson, félagsmálaráðherra, ætlar að láta kanna stöðu einstæðra karla sérstaklega. 18.5.2006 12:15
Átta létust í Kína af völdum fellibyls Átta létu lífið, þar af tvö börn, þegar fellibylurinn Chanchu skall á suðurströnd Kína í morgun. Bylurinn hafði áður orðið þrjátíu og sjö að bana á Filippseyjum. Hátt í milljón manns hefur þurft að yfirgefa heimili sín í Suður-Kína vegna bylsins. 18.5.2006 12:10
Kona deyr úr fuglaflensu í Egyptalandi Sjötíu og fimm ára gömul kona í Egyptalandi lést úr fuglaflensu í morgun. Talsmaður Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar staðfesti þetta. Þar með hafa sex orðið flensunni að bráð þar í landi. Konan bjó í suðurhluta landsins og hafði að sögn komist í tæri við sýkta fugla. 18.5.2006 12:01
Stýrivextir í sögulegu hámarki Stýrivextir Seðlabankans hækka í 12,25 prósent samkvæmt ákvörðun sem bankastjórn Seðlabankans tilkynnti í morgun. Stýrivextir hafa aldrei verið hærri en þeir eru núna. 18.5.2006 11:58
Þráðlaust net á vellinum í sumar Og Vodafone hefur tekið í notkun þráðlaust net (Hot Spot) á öllum völlum í efstu deild karla og kvenna í sumar, alls 13 völlum. 18.5.2006 11:19
Má sletta skyri eða klifra upp í byggingakrana? Má sletta skyri eða klifra upp í byggingakrana? Hve langt mega yfirvöld ganga til að hefta mótmælendur? Þetta er meðal þeirra spurninga sem ræddar verða á málþingi um mótmæli og lýðræði sem ReykjavíkurAkademían stendur að í dag. 18.5.2006 11:13
Röð sprenginga í Bagdad Ekkert lát virðist ætla að verða á ofbeldisverkum og sprengjuárásum í Írak. Sjö féllu og fjölmargir særðust í röð sprenginga í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Þá voru átta skotnir til bana í borginni á sama tíma. 18.5.2006 10:45
80 féllu í átökum og árásum í Afganistan Um það bil 80 manns hafa farist í átökum og sjálfsvígsárás í Afganistan síðasta sólahringinn. 18.5.2006 10:30
Svifryk í Reykjavík frá Rússlandi Svifryksmengun í Reykjavík var yfir heilsuverndarmörkum samfellt í tvo sólarhringa í síðustu viku vegna mengunar sem barst frá Rússlandi. Mengunin var viðvarandi í tvo sólarhringa og féll ekki niður yfir nóttina eins og vant er þegar mengunin er af völdum bílaumferðar í Reykjavík. 18.5.2006 10:30
Ágúst verður forstjóri Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir hafa skipt um störf hjá Bakkavör, fyrirtæki sem er að mestu í þeirra eigu. Ágúst tekur við forstjórastarfinu af Lýði sem tekur við stjórnarformennsku af Ágústi. 18.5.2006 10:27
Þyrlurnar ekki komnar í gagnið Ekki tókst að koma stóru þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF- LÍF, í lag í gær en vonast er til að hún komist í gagnið fyrir helgina. Litla þyrlan, TF-SIF, er enn í Noregi þar sem meðal annars er verið að ganga frá nætursjónauka í henni. 18.5.2006 10:14
Eiturlyfjabarón handtekinn í Brasilíu Lögregla í Bandaríkjunum, Brasilíu og Kólumbíu hafa að líkindum greitt einum umfangsmesta eiturlyfjahring í heimi náðarhöggið með aðgerðum sínum fyrr í vikunni. Þá var leiðtogi hans og einn eftirlýstasti eiturlyfjabarón í heimi handtekinn. 18.5.2006 10:00
Seðlabankinn hækkar stýrivexti Seðlabanki Íslands hefur hækkað stýrivexti um 0,75 prósentustig í 12,25 prósent. Hækkunin er í samræmi við spár greiningadeilda bankanna, sem spáðu um 50 til 75 punkta hækkun stýrivaxta. 18.5.2006 09:02
Mótmælt við sendiráð Finna og Svía Sendiráð Finna og Svía í Buenos Aires í Argentínu urðu fyrir barðinu á æfum mótmælendum sem segja áætlanir um byggingu trjákvoðuverksmiðja í nágrannaríkinu Úrúgvæ skaða landbúnað og ferðamannaiðnað í Argentínu. Finnskt og sænskt fyrirtæki taka þátt í framkvæmdunum. 18.5.2006 09:00
Þjófar gripnir glóðvolgir Lögreglumenn gripu þrjá menn glóðvolga þar sem þeir munduðu sig við að brjótast inn í íbúðarhús við Laufásveg um fjögurleytið í nótt. Þeir voru með margvíslegan búnað til innbrota í fórum sínum, eins og kúbein, skrúfjárn, hnífa og fleira. Þeir hafa allir gerst brotlegir við lög áður og gista fangageymslur þar til þeir verða yfirheyrðir í dag. 18.5.2006 08:30
Keyrði á ljósastaur Ökumaður, sem grunaður er um ölvun, missti stjórn á jeppa sínum í Árbæjarhverfi í gærkvöldi og hafnaði á ljósastaur. Við það féll staurinn ofan á strætóskýli, en svo vel vildi til að þar var enginn þá stundina. Við höggið meiddist ökumaðurinn, en þó ekki alvarlega, og voru stafsmenn Orkuveitunnar kallaðir út til að aftengja staurinn. 18.5.2006 08:30
Óvíst hvenær bandarískir hermenn koma heim frá Írak Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segist ekki geta lofað því að stór hluti þeirra bandarísku hermanna sem eru í Írak verði kallaðir heim fyrir lok þessa árs. 18.5.2006 08:30
Mikil verðmunur á verði í hillum og á kassa Meira ósamræmi er á milli verðs í hillum og afgreiðslukössum í einstökum matvörverslunum en nokkru sinni fyrr, og vekur Neytendastofa sérstaka athygli á þessu. Af tilkynningu Neytendastofu má ráða að í öllum tilvikum sé fólk að greiða meira fyrir vöruna en það taldi sig vera að kaupa hana á. 18.5.2006 08:00
Mörg hundruð þúsund manns yfirgefa heimili sín Meira en 600 þúsund manns þurftu að yfirgefa heimili sín á suðurströnd Kína í morgun vegna fellibylsins Chanchu sem búist er við að gangi þar á land í dag. 18.5.2006 08:00
Matarverð í Reykjavík nær helmingi hærra en í Stokkhólmi Matarkarfan í Reykjavík er nærri tvöfalt dýrari en í Stokkhólmi samkvæmt nýrri verðkönnun Alþýðusambands Íslands í matvöruverslunum á Norðurlöndum. Af íbúum í höfuðborgum norrænu ríkjanna borga Oslóbúar einir svipað verð og Reykvíkingar fyrir matinn. 17.5.2006 22:25
Flugmóðurskipi sökkt á Mexíkóflóa Bandaríska herskipinu Oriskany var sökkt í Mexíkóflóa í dag. Ekki voru það þó óvinasveitir sem grönduðu skipinu, heldur bandaríski sjóherinn sjálfur, með því að sprengja tæp 230 kíló af sprengiefni um borð í skipinu til að sökkva því. 17.5.2006 23:13
Kosningaþátttaka innflytjenda geti hugsanlega ráðið úrslitum Þátttaka innflytjenda getur hugsanlega skipt sköpum varðandi úrslit kosninga í einstökum bæjarfélögum, að mati framkvæmdastjóra Alþjóðahúss. Hann bendir á hópurinn sé stór og mikilvægur og að stjórnmálaflokkarnir séu að átta sig á þeirri staðreynd. 17.5.2006 23:00
Boða aðgerðir til að draga úr vanda Landspítalans Ákveðið hefur verið að grípa til fjölþættra aðgerða til að draga úr útskriftarvanda Landsspítalans og slá á þá manneklu sem hann stendur frammi fyrir Þetta var ákveðið á fundi sem Siv Friðleifsdóttir átti með stjórnendum spítalans. 17.5.2006 22:27
Beðið um frið í Sómalíu Hundruð Sómala söfnuðust saman í íþróttahöllinni í Mogadishu í dag til að krefjast friðar eftir vikulanga bardaga sem hafa banað yfir 140 manns. Ofbeldið er eitt það versta í áratug í Sómalíu. Baráttan hefur staðið milli vopnaðra hópa múslima og hópa borgara sem ekki eru tengdir trúarhópum. 17.5.2006 21:33
Svifryksmengun yfir heilsuverndarmörkum í tvo daga Svifryksmengun yfir Reykjavík var yfir heilsuverndarmörkum samfellt í tvo sólarhringa í síðustu viku vegna mengunar sem barst frá Rússlandi. Þetta kemur fram á vef umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. 17.5.2006 20:23
Prodi kynnir ríkisstjórn sína Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, kynnti ríkisstjórn sína í dag. Hennar bíður erfitt verkefni við að koma efnahag landsins á réttan kjöl. 17.5.2006 20:00
Mills og McCartney skilin Bítillinn Paul McCartney og Heather Mills, eiginkona hans, hafa ákveðið að skilja að borði og sæng eftir fjögurra ára hjónaband. Þau segja ágang fjölmiðla hafa gert sér ókleift að lifa eðlilegu lífi og því hafi þau ákveðið að fara hvort sína leið. 17.5.2006 19:00
Varað við ósamræmi í verðmerkingum Óvenjumikið ósamræmi hefur verið í verðmerkingum í matvöruverslunum þannig að verð á afgreiðslukassa er hærra en hilluverð. Það er Neytendastofa sem vekur athygli á þessu. Á heimasíðu stofnunarinnar kemur fram að í nýlegri könnun hafi komið í ljós meira ósamræmi milli hilluverðs og verðs á kassa en áður hafi þekkst. 17.5.2006 19:00
Caput í Háskólabíó í kvöld Caput-tónlistarhópurinn frumflytur í kvöld verkið Tár Díónýsusar. Verkið er flutt undir upplestri úr verkum Friedrichs Nietches og myndskeiði sem unnið er upp úr gömlum klámmyndum. 17.5.2006 18:59
Engin sérstök náttúrufegurð í landinu sem sekkur! Nú eru aðeins fjórir mánuðir í það að byrjað verði að safna vatni í lón Kárahnjúkavirkjunar og fer því hver að verða síðastur til að sjá það land sem fer á kaf. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir að engin sérstök náttúrufegurð sé í landinu sem hverfi undir lónið. 17.5.2006 18:49
Ráðherrar liðka fyrir umdeildu frumvarpi Ráðherrar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa náð samkomulagi um að gera breytingar á umdeildu frumvarpi iðnaðarráðherra um Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra vonast til að þær liðki fyrir því að málið nái fram að ganga án þess að kollvarpa frumvarpinu. 17.5.2006 18:46
Ofsatrúarmaður skaut dómara Íslamskur öfgamaður réðst inn í réttarsal í Ankara í Tyrklandi í morgun og skaut á dómara. Hann er sagður hafa viljað hefna fyrir dóm yfir kennurum sem bannað var að bera íslamska höfuðklúta. 17.5.2006 18:30
Tvöfalt fleiri erlendir ríkisborgarar á kjörskrá Um tvöfalt fleiri erlendir ríkisborgarar hafa kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum í vor en í kosningunum fyrir fjórum árum. Þá hafa nærri 2500 manns þegar neytt atkvæðisréttar síns í utankjörfundaratkvæðagreiðslu í Laugardalshöll frá mánaðamótum. 17.5.2006 17:30
Fleyttu kertum vegna Péturs Grunnskólabörn á Egilsstöðum fleyttu kertum í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum í gærkvöldi fyrir Pétur Þorvarðarson sem enn er ófundinn. Með þessu vildu þau sýna samstöðu með þeim sem leita Péturs og þeim sem eiga um sárt að binda heima, meðan hann er ófundinn. 17.5.2006 17:00
Framsóknarflokkurinn vill sérstakan Kópavogsstrætó Framsóknarflokkurinn í Kópavogi vill halda áfram að lækka dagvistargjöld og koma á fót sérstökum Kópavogsstrætó. Oddviti B-listans segist ekki leggja áherslu á að Framsóknarflokkurinn endurheimti bæjarstjórastólinn í Kópavogi. 17.5.2006 16:52
Halda áfram undirbúningi álvers Alcoa, ríkisstjórnin og Húsavíkurbær undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um að halda áfram rannsóknum á hagkvæmni þess að bygja 250 þúsund tonna álver á Norðurlandi. Viljayfirlýsingin kemur í framhaldi af staðarvalssamkomulagi frá í mars. 17.5.2006 16:45
Samið um kaup í Fjarðaáli Í dag var gengið frá kjarasamningum fyrir þá starfsmenn sem koma til með að vinna hjá álveri Fjarðaáls á Reyðarfirði. Fulltrúar Alcoa Fjarðaáls, Starfsgreinafélags Austurlands, Rafiðnaðarsambands Íslands og Verkalýðsfélags Reyðarfjarðar skrifuðu undir vinnustaðasamninginn í dag. 17.5.2006 16:06
Veita kannski aðstoð við eftirlit Færeyingar eru reiðubúnir að skoða hvort færeyskt eftirlitsskip geti orðið Landhelgisgæslu Íslands að liði við eftirlit með veiðum á Reykjaneshrygg. Þetta kom fram í viðræðum Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra við Björn Kalsö, starfsbróður hans frá Færeyjum. 17.5.2006 15:59
Margir vilja vinna hjá Landhelgisgæslunni Mikill áhugi er á störfum hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar. Um 120 manns sóttu um vinnu hjá Landhelgisgæslunni eftir að auglýst var eftir fólki til starfa hjá þyrlusveitinni vegna stækkunar hennar. 17.5.2006 15:21
Samþykktu nýgerðan samning við OR Félagar í Starfsmannafélagi Reykjavíkur sem vinna hjá Orkuveitu Reykjavíkur samþykktu í dag nýjan kjarasamning sem gerður var í fyrradag. Tæplega helmingur félaganna, eða 108 manns, neytti atkvæðisréttar síns og sögðu 85 prósent já við samningnum. Kjaraviðræður hafa staðið lengi en síðasti kjarasamningur rann út 1. desember síðastliðinn. 17.5.2006 15:16