Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skapar tíu til fimmtán störf Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur ákveðið að innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar, vegna landsins í heild, verði komið upp á Blönduósi á næsta ári. Jóna Fanney Friðriksdóttir, bæjarstjóri Blönduósbæjar, segir að við það skapist á bilinu 10 til 15 ný störf í bæjarfélaginu og hluti þeirra verði líklega sérhæfð störf eins og lögfræði- og stjórnunarstörf. 5.11.2005 07:15
Maður laus úr gæsluvarðhaldi Manni sem setið hefur í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á fíkniefnasmygli um pósthús í Reykjavík var sleppt á fimmtudag. Gæsluvarðhaldið hefði annars átt að renna út í gær. Að sögn Harðar Jóhannessonar, yfirlögregluþjóns í Reykjavík, hafa ekki aðrir verið handteknir vegna málsins enn sem komið er, en rannsókn þess heldur áfram. 5.11.2005 07:15
Ekkert lát á óeirðunum Enn kom til óspekta í úthverfum Parísarborgar í fyrrinótt, áttundu nóttina í röð. Annars staðar í Frakklandi kom til átaka í innflytjendahverfum. 5.11.2005 07:00
Aldrei verið óvinsælli George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur aldrei verið jafn óvinsæll og nú. Í skoðanakönnun sem gerð var fyrir CBS-fréttastofuna reyndust aðeins 35 prósent þeirra sem spurðir voru ánægð með störf forsetans. Þetta er versta útkoma Bush frá upphafi og jafnframt ein versta útkoma sem nokkur forseti Bandaríkjanna hefur hlotið. 5.11.2005 07:00
Þrjú verðlaunuð fyrir starfsmenntastarf Landsvirkjun, Efling og Ingibjörg Hafstað hlutu í dag starfsmenntaverðlaun Menntar og Starfsmenntaráðs. Ólafur Ragnar Grímsson forseti afhenti verðlaunin. 4.11.2005 23:30
Dæmdur fyrir fíkniefnalagabrot Rúmlega tvítugur Reykvíkingur var í dag dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fíkniefnabrot. Við húsleit á heimili hans fundust 97 grömm af hassi, sautján grömm af maríjúana, tæp tólf grömm af amfetamíni og 68 MDMA-töflur. 4.11.2005 22:15
Útlit fyrir gjöfula skíðavertíð í Hlíðarfjalli Meiri snjór er nú í Hlíðarfjalli en mörg undanfarin ár og útlit fyrir að Akureyringar fái langa og gjöfula skíðavertíð. Starfsmenn Skíðastaða eru búnir að troða brekkurnar og í dag var unnið að lokafrágangi á skíðalyftunum. Framkvæmdir við uppsetningu á búnaði til snjóframleiðslu í Hlíðarfjalli hófust 11. ágúst í sumar. 4.11.2005 21:15
Um 4.000 greitt atkvæði hjá Sjálfstæðismönnum Tæplega fjögur þúsund sjálfstæðismenn höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þegar kjörfundi lauk klukkan níu í kvöld. Þar af höfðu um 1.200 greitt atkvæði utan kjörfundar. 4.11.2005 20:56
Sérstakt ökunám vegna pallbíla Þeir sem tóku bílpróf eftir 1. júní 1993 og keyra nú um á þungum, bandarískum pallbílum eða húsbílum, eru réttindalausir í umferðinni. Umferðarstofa hefur brugðist við aukinni útbreiðslu bíla þessarar gerðar með því að bjóða upp á sérstakt ökunám sem gefur réttindi á þessa millistærð af bílum. 4.11.2005 20:45
Prófkjör hjá Samfylkingu í Hafnarfirði Samfylkingarmenn í Hafnarfirði ganga til prófkjörs á morgun. Kjörfundur hefst klukkan tíu og eru rúmlega tvö þúsund félagar á kjörskrá. Úrslitin verða tilkynnt um ellefu leytið annað kvöld. 4.11.2005 20:42
Hanar með vegabréf Aðdáendur hanaslags geta andað léttar, því ríkisstjórn Taílands hefur fundið leið til að tryggja að slagsmálahanar hverfi ekki fyrir fullt og allt þrátt fyrir fuglaflensu. Þeir fá nú til að mynda sérstök vegabréf svo hægt sé að fara með þá svæða og landa á milli í keppnisferðir. 4.11.2005 20:30
Útvarp fyrir dýrin Netvarpsstöðvar eru ekki nýjar af nálinni en stöðin sem rekin er í Los Angeles og hlýða má á hvar sem er í heiminum er nokkuð nýstárleg. Hún er sérsniðin fyrir gæludýr sem skilin eru ein heima allan daginn. 4.11.2005 20:15
Stór skjálfti um kvöldmatarleytið Skjálftahrina hófst austur af Grímsey á þriðja tímanum í dag og stendur enn. Stór skjálfti, 3,3 á richter, mældist um hálfátta-leytið í kvöld. 4.11.2005 20:12
Úttekt á MÍ birt í næstu viku Skýrsla Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um úttekt á stjórnunarháttum og samskiptum innan Menntaskólans á Ísafirði verður birt í næstu viku. 4.11.2005 20:04
Böðvar að hætta hjá Medcare Böðvar Þórisson, framkvæmdastjóri Alþjóðasölu og Markaðssviðs Medcare, hefur sagt starfi sínu lausu. 4.11.2005 20:02
Segir kaupmátt í sögulegu hámarki Sérstök forsendunefnd Alþýðusambandsins og atvinnurekenda hefur ellefu daga til að úrskurða hvort grundvöllur kjarasamninga sé brostinn - vegna meiri verðbólgu en ráð var fyrir gert. Uppsögn kjarasamninga nú hefði skelfilegar afleiðingar fyrir allan vinnumarkaðinn, segir Ari Edwald og bendir á að kaupmáttur sé í sögulegu hámarki. 4.11.2005 20:00
Örykjum hafi fjölgað um þrjá hvern virkan dag frá áramótum Bílastyrkur til hreyfihamlaðra og aldraðra verður ekki afnuminn. Þetta tilkynnti Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra á Alþingi í dag þegar hann svaraði spurningum Helga Hjörvars við utandagskrárumræðu um fjölgun öryrkja og kjör þeirra. Ráðherra sagðist aldrei hafa haldið því fram að fólk færi á örorkubætur að gamni sínu, en benti á að öryrkjum hafi fjölgað um þrjá hvern virkan dag frá áramótum til 1. október og við því yrði að bregðast með einhverjum hætti. 4.11.2005 19:58
Telja kynslóð sem er við völd hafa afskrifað gamla fólkið Eldri hjón, sem fréttastofa Stöðvar 2 hitti í dag, segjast kvíða því að lenda á hjúkrunarheimili og hugsanlega þurfa að skiljast að. Þau segjast hafa það á tilfinningunni að kynslóðin sem nú er við völd hafi afskrifað gamla fólkið. 4.11.2005 19:45
150 bifreiðar í stóðu í ljósum logum Hundrað og fimmtíu bifreiðar stóðu í ljósum logum í Clichy-sous-bois, einu af fátækari úthverfum Parísar, í nótt. Þar gengu íbúar, einkum ungir, atvinnulausir karlar berserksgang, áttundu nóttina í röð. 4.11.2005 19:00
Á fjórða þúsund hefur kosið í prófkjöri Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík hófst í dag og höfðu á fjórða þúsund manna kosið nú skömmu fyrir fréttir. Um nítján þúsund manns hafa kosningarétt, en þeim hefur fjölgað rúm tíu prósent á undanförnum vikum. 4.11.2005 18:38
Ali að syngja sitt síðasta Hinn heimsfrægi hnefaleikakappi, Muhammad AlI, á líklega aðeins fáeina mánuði eftir ólifaða. Ali, sem er frægasti hnefaleikamaður allra tíma, hefur barist við Parkinson veiki í tuttugu ár og nú virðist síðasti bardaginn senn á enda. 4.11.2005 18:24
Ætluðu að sprengja spítala Tveir breskir menn á þrítugsaldri voru í dag ákærðir fyrir að hafa ætlað að fremja hryðjuverk í Bretlandi. Að sögn lögreglu leikur grunur á að tvímenningarnir hafi ætlað að gera sprengjuárás inni á spítala. 4.11.2005 18:22
Já símaskrá ekki til sölu Hvorki Já símaskrá né starfsstöð fyrirtækisins á Ísafirði eru til sölu. Þetta voru svörin sem Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, fékk á fundi sínum með stjórnarformanni Já símaskrár í dag að því er fram kemur á vef Bæjarins besta. 4.11.2005 18:15
Alvarlega slösuð eftir að hafa dottið af hestbaki Konan sem féll af hestbaki við Syðra-Langholt í Hrunamannahreppi fyrr í dag er alvarlega slösuð. TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti stúlkuna austur fyrir fjall laust eftir hádegi í dag og flaug með hana beint á Landspítalann í Fossvogi þar sem hún var flutt á gjörgæsludeild. Að sögn vakthafandi læknis er hún nú í aðgerð og er ástand hennar alvarlegt. 4.11.2005 17:45
Tíu þúsund mótmæla Bush í Argentínu Tíu þúsund mótmælendur hafa safnast saman á götum strandbæjarins Mar del Plata í Argentínu, þar sem leiðtogafundur Ameríkurikja fer fram. Átta þúsund lögreglumenn, gráir fyrir járnum vakta fundarstaðinn, enda búist við enn frekari mótmælendum í síðar í dag. 4.11.2005 17:37
Skorar á almenning og stjórnvöld að leggja meira fram Mannréttindaskrifstofa Íslands skorar á almenning og stjórnvöld að bregðast nú þegar við og leggja meira af mörkum til að koma í vega fyrir frekari hörmungar í Pakistan. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að í Kasmírhéraði einu sé áætlað að ennþá séu um 200.000 manns sem enn hafi ekki fengið neina aðstoð. Mikill skortur sé á hjálpargögnum og vetur í nánd með tilheyrandi kulda. 4.11.2005 17:14
Hollensk starsmannaleiga vill senda starfsmenn hingað Hollenska starfsmannaleigan Inter-Galaxy er að búa sig undir að stofna útibús hér á landi og hefur óskað eftir upplýsingum frá félagsmálaráðuneytinu og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu um lög og reglugerðir um starfsemi starfsmannaleiga. 4.11.2005 16:43
Allt að sex milljónir falla á ríkið Ríkið þarf að greiða á bilinu fjórar til sex milljónir króna vegna dóms Hæstaréttar um að Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli hafi verið óheimilt að hætta að greiða slökkviliðsmönnum rútugjald. 4.11.2005 16:40
Snörp skjálftahrina austur af Grímsey Allsnörp skjálftahrina hófst austur af Grímsey á þriðja tímanum í dag og og mældust 4 skjálftar af stærðinni 3 til 3,5 á Richter fyrstu 20 mínúturnar auk annarra smærri skjálfta. Um klukkan þrjú dró verulega úr virkninni, en þó hafa mælst 50-60 skjálftar eftir það, þeir stærstu um 2,4 á Richter. 4.11.2005 16:32
Bloggið auglýst á forsíðu Bloggmenningin hefur tröllriðið landanum síðustu misseri en hingað til hafa menn að mestu látið það vera að kaupa auglýsingar til að kynna skrif sín. Auglýsing á forsíðu Fréttablaðsins í dag og undanfarna daga, virðist þó gefa til kynna að þetta sé að breytast. 4.11.2005 16:15
Kjartan segist ekkert hafa vitað Kjartan Magnússon borgarfulltrúi segist ekkert hafa vitað af því að formaður KR-inga myndi hvetja sitt fólk til að greiða sér og Benedikt Geirssyni, starfsmanni ÍSÍ, atkvæði í prófkjörinu. 4.11.2005 16:14
KR-áskorun tekin af heimasíðunni Áskorun á heimasíðu KR, þar sem formaðurinn Guðjón Guðmundsson, hvetur KR-inga til að greiða Kjartani Magnússyni borgarfulltrúa og Benedikt Geirssyni starfsmanni ÍSÍ atkvæði í prófkjöri sjálfstæðismanna sem hófst í dag, hefur verið fjarlægð af heimasíðunni. 4.11.2005 16:10
Brunavörnum verulega ábótavant Engar úrbætur hafa verið gerðar á brunavörnum í húsnæðinu að Lágmúla 6-8, þrátt fyrir ítrekaðar kröfur þar um af hálfu eldvarnareftirlitsins. Eigandi fasteignarinnar er nú beittur dagsektum. 4.11.2005 15:51
KÍ og ÞSSÍ vinna saman Kennaraháskólinn og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands undirrituðu í dag samstarfssamning um markvissa þátttöku Kennaraháskólans í verkefnum á sviði þróunaraðstoðar í menntamálum. 4.11.2005 15:30
Gísli Marteinn með forskot en þriðjungur óákveðinn Gísli Marteinn Baldursson nýtur meira fylgis en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson í baráttunni um fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna komandi borgarstjórnarkosninga samkvæmt niðurstöðum könnunar sem 365 Nýmiðlun gerði á fylgi frambjóðenda. Athygli vekur að rúmlega þriðjungur segist enn óákveðinn. Könnunin sem var póstlistakönnun, var gerð fyrir stuðningsmenn Gísla Marteins og bárust rúmlega 4.500 svör. 4.11.2005 15:15
Bensínstyrkur ekki afnuminn Bensínstyrkur ellilífeyrisþega og öryrkja verður ekki afnuminn. Þetta sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra í utandagskrárumræðu um fjölgun öryrkja hér á landi á Alþingi í dag. Alls nær styrkurinn til 4000 ellilífeyrisþega og 2650 öryrkja. 4.11.2005 15:06
Olíutengivagn slitnaði aftan úr flutningabíl Betur fór en á horfðist þegar tengivagn olíuflutningabíls með fullan tank af olíu slitnaði aftan úr bílnum á hringtorginu við Kaplakrika í Hafnarfirði. Að sögn lögreglu í Hafnarfirði stöðvaðist vagninn strax og urðu engin slys á fólki og litlar sem engar skemmdir á umferðarmannvirkjum. 4.11.2005 15:00
Mætti drukkinn í bílpróf Þrjátíu og sex ára Dani drakk í sig kjarkinn og ákvað að fara aftur í bílpróf, en það hafði hann misst fyrir margt löngu vegna ölvunaraksturs. Heldur var hann djarfur til flöskunnar því ölvunin kom fram í aksturslagi hans. 4.11.2005 14:46
Gjöld bæjarins 20-30 milljónum meiri en búist var við Útlit er fyrir að gjöld Ísafjarðarbæjar á yfirstandandi rekstrarári fari tugir milljóna fram úr áætlun. Halldór Halldórsson bæjarstjóri segir í samtali við Bæjarins besta að þetta stafi af auknum launakostnaði sem stefni í að verða 20 til 30 milljónum króna meiri en gert var ráð fyrir. 4.11.2005 14:14
Ekki hægt að leita um borð í öllum skipum Tollgæslan fylgist með öllum skipum sem koma til landsins þótt eftirlit með einstökum skipum sé mismikil. Þegar upp koma stór smyglmál líkt og í Noregi í fyrradag, er fylgst náið með umræddum skipum og ferðum þeirra til landsins. Fjölmörg skip koma til landsins og því erfitt að framkvæma ítarlega leit um borð í þeim öllum. 4.11.2005 14:07
Kosið um sameiningu á morgun Kosningar um tvær sameiningartillögur sveitarfélaga fara fram á morgun. Í Aðaldælahreppi, Kelduneshreppi, Skútustaðahreppi og Tjörneshreppi verður kosið um sameiningu þessara sveitarfélaga við Húsavíkurbæ, Raufarhafnarhrepp og Öxarfjarðarhrepp, og í Reykhólahreppi verður kosið um sameiningu við Dalabyggð og Saurbæjarhrepp. 4.11.2005 14:05
Formaður hvetur KR-inga til að kjósa Guðjón Guðmundsson, formaður KR, hvetur KR-inga til að kjósa í prófkjöri sjálfstæðismanna tvo tiltekna frambjóðendur sem bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem hóst í dag. 4.11.2005 13:35
Rannsókn á lokastigi Rannsókn á fíkniefnasmygli með póstsendingum er á lokastigi. Karli og konu sem dæmd voru í gæsluvarðhald nýverið hefur verið sleppt. Búist er við að ákæra verði lögð fram um leið og rannsókn málsins lýkur. 4.11.2005 13:30
Varaðir við að kaupa Tamiflu á Netinu Norsk heilbrigðisyfirvöld vara landsmenn við að kaupa flensulyfið Tamiflu í gegnum Netið af óþekktum framleiðendum en Norðmenn hamstra lyfið í þeirri trú að það verji þá gegn fuglaflensu. Norskir tollverðir hafa lagt hald á talsvert af lyfinu þegar það berst til landsins með póstsendingum en Tamiflu er lyfseðilsskylt og því óheimilt að flytja það inn með þessum hætti. 4.11.2005 13:28
Vísað tvisvar út sama kvöldið Lögreglan í Keflavík vísaði sömu fimmtán ára stúlkunni út af tveimur vínveitingastöðum í bænum í nótt. Á einum staðnum voru þrjú ungmenni undir 18 ára aldri og þeirra á meðal stúlkan. Þeim var vísað út en þegar lögreglan kom á næsta stað mætti hún stúlkunni þar galvaskri, og var henni aftur vísað út. 4.11.2005 13:23