Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Borgarar falla í Írak Sjötíu manns liggja í valnum eftir að bandarískar hersveitir réðust gegn uppreisnarmönnum í vesturhluta Íraks. Íbúar svæðisins segja flesta hina látnu vera saklausa borgara. 17.10.2005 00:01
Borgarar falla í Írak Sjötíu manns liggja í valnum eftir að bandarískar hersveitir réðust gegn uppreisnarmönnum í vesturhluta Íraks. Íbúar svæðisins segja flesta hina látnu vera saklausa borgara. 17.10.2005 00:01
Fuglaflensan komin til Grikklands Grísk yfirvöld greindu frá því í gær að fuglaflensu hefði orðið vart í landinu í fyrsta sinn. Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO búast við að pestin haldi áfram að breiðast út. 17.10.2005 00:01
Rússarnir stungu af Furðuleg uppákoma átti sér stað á Barentshafi í gær þegar rússneskur togari með norska veiðieftirlitsmenn innanborðs óhlýðnaðist skipunum norsku strandgæslunnar og sigldi yfir í rússneska efnahagslögsögu. Norðmenn hafa íhugað að beita fallbyssum til að stöðva skipið. 17.10.2005 00:01
Hnútukast um bensínstyrk Framsóknarmenn telja Árna Mathiesen fjármálaráðherra varpa áformum um afnám bensínstyrks öryrkja og aldraðra yfir á heilbrigðisráðherra. Rýtingsstunga í bak Jóns Kristjánssonar segir stjórnarandstaðan. 17.10.2005 00:01
Vatnið að sjatna á götum Hafnar Töluvert hefur sjatnað í vatninu á götum Hafnar í Hornafirði eftir einn mesta vatnselg í manna minnum í gær. Þá flæddi inni tíu til fimmtán hús í bænum og höfðu bæjarstarfsmenn og slökkvilið í nógu að snúast að dæla vatninu burt og var vatn eins metra hátt á sumum stöðum í bænum. Rigningunni slotaði í nótt eftir að það hafði rignt stanslaust í nær tvo sólarhringa og að sögn lögreglu sjatnaði vatnið af sjálfu sér í kjölfarið. 16.10.2005 00:01
Talning atkvæða hafin í Írak Talning er hafin eftir kosningu um stjórnarskrá Íraks í gær. Örlög stjórnarskrárinnar eru í höndum nokkurra héraða sem geta fellt hafa með því að segja nei. Tveir þriðju hlutar kjósenda í þremur héruðum þurfa að hafna stjórnarskránni til að fella hana. 16.10.2005 00:01
Herþyrla hrapaði í Kasmírhéraði Herþyrla við hjálparstörf hrapaði í pakistanska hluta Kasmír í gærdag og fórust sex hermenn sem voru um borð. Þyrlan var að flytja hjálpargögn í Bagh-dalinn, en engin leið er fær þangað utan loftleiðarinnar. Flak þyrlunnar fannst í gær en talsmenn pakistanska hersins segja óljóst á þessari stundu hvort að veður, vélarbilun eða eitthvað annað er ástæða þess að þyrlan hrapaði. 16.10.2005 00:01
Lagði til manns með hnífi á balli Maður er í haldi lögreglunnar á Selfossi eftir að hann lagði til annars manns með hnífi á dansleik í bænum í gærkvöld. Sá sem lagt var til slasaðist lítillega á höfði og var hann færður undir læknishendur og voru saumuð nokkur sporið í höfuðið á honum. Árásarmaðurinn mun hafa verið ölvaður og verður hann yfirheyrður þegar ölvíman rennur af honum. 16.10.2005 00:01
Ekið á pilt á Hverfisgötu í gær Ekið var á pilt á Hverfisgötu um klukkan hálfellefu í gærkvöld. Að sögn lögreglu er hann kominn til meðvitundar. Mikil ölvun var í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld og nótt og höfðu laganna verðir í nógu að snúast, meðal annars við að ganga á milli manna sem slógust í borginni. Þá voru fimm teknir ölvaðir við akstur. 16.10.2005 00:01
Fjöldi veiðimanna í Árnessýslu Töluverður fjöldi rjúpnaveiðimanna var á ferð um uppsveitir Árnessýslu í gær þegar veiðitímabilið hófst og hafði lögregla á Selfossi eftirlit með þeim. Lögreglu barst ein tilkynning um skyttu á veiðum á óleyfilegum stað og þegar betur var að gáð hafði hún ruglast og farið öfugum megin girðingar sem skilur að veiðisvæði og bannsvæði. 16.10.2005 00:01
Jarðskjálfti skekur Tókýó Jarðskjálfti skók Tókýó og nærliggjandi byggðir í morgun en engar fregnir hafa borist af skemmdum. Japanska veðurstofan gef heldur ekki út viðvörun vegna sjávarskafls eða flóðbylgju. Skjálftinn reyndist 5,1 að styrkleika og átti upptök sín skammt norður af Tókýó. 16.10.2005 00:01
Lét ófriðlega á skemmtistöðum Lögregla í Kerflavík þurfti í nótt að hafa afskipti af manni sem lét ófriðlega á skemmtistöðum í miðbæ Keflavíkur. Maðurinn mun hafa ráðist á annan mann á skemmtistað og slegið hann og var það tilkynnt til lögreglu. Þegar hún kom á vettvang var maðurinn á bak og burt og hafði þá farið á annan veitingastað. Þar handtók lögregla hann þar sem hann var við það að lenda í stimpingum við annan mann og var hann látinn gista fangageymslur á meðan hann róaði sig. 16.10.2005 00:01
Ráðist á Kandahar-flugvöll Tvær breskar orrustuþotur löskuðust í flugskeytaárás skæruliða talibana í Afganistan á föstudaginn var. Frá þessu var greint í morgun. Árásin var gerð á Kandahar-flugvöll í suðurhluta Afganistans. Á þriðja tug afganskra hermanna, fimm afganskir hjálparstarfsmenn og í það minnsta tveir bandarískir hermenn hafa fallið í árásum talibana á undanförnum vikum. 16.10.2005 00:01
Örlög ráðast í nokkrum héruðum Talning er hafin eftir kosningu um stjórnarskrá Íraks í gær. Örlög stjórnarskrárinnar eru í höndum íbúa nokkurra héraða sem geta fellt hana með því að kjósa nei. 16.10.2005 00:01
Ekki vitað hversu mikið tjónið er Vatnið á götum Hafnar í Hornafirði sjatnaði mikið í nótt eftir eina mestu úrkomu og vatnselg í manna minnum þar í bæ í gær. Ekki liggur fyrir hversu mikið tjónið varð í flóðunum. 16.10.2005 00:01
Frumvarp kosti 650 milljónir Gróft mat frá Fjársýslu ríkisins segir að eftirlaunafrumvarpið umdeilda kosti 650 milljónir króna, eða 50 prósentum meira en haldið var fram á þingi. 16.10.2005 00:01
Snarpur skjálfti í Vatnajökli Jarðskjálfti, upp á 3,6 stig á Richter, reið yfir í Vatnajökli í gærkvöld, fjórtán kílómetra suður af Trölladyngju og fleiri skjálftar fylgdu í kjölfarið í nótt og í morgun. Heilmikil virkni hefur einnig verið austur af Grímsey frá því fyrir helgi. Síðustu ár hafa viðlíka hrinur gengið yfir á þessum svæðum og enn er ekki sjá að þær boði nokkuð sérstakt, að sögn Ragnars Stefánssonar jarðskjálftafræðings. 16.10.2005 00:01
Enn slæmt veður á hamfarasvæðum Það rignir enn eldi og brennisteini á hamfarasvæðunum í Kasmír og talið víst að fjöldi fórnarlamba muni hækka vegna vosbúðar og farsótta. 16.10.2005 00:01
Hafi hugsanlega verið ýtt Nítján ára piltur hlaut alvarlega áverka á höfði þegar ekið var á hann á Hverfisgötu klukkan hálfellefu í gærkvöld. Hann var í litlum hópi ungmenna að skemmta sér, að sögn lögreglu, og var áfengi haft um hönd. Svo virðist sem pilturinn hafa annað hvort farið út á götuna eða verið ýtt. Ökumaður bílsins var 21 árs gömul stúlka. Enginn var handtekinn, en þrjú ungmenni voru flutt á lögreglustöð í áfalli. 16.10.2005 00:01
Flestir fara að lögum og reglum Rjúpnaveiðiðimenn virðast flestir hafa farið að lögum og virt tilmæli um hóflegar veiðar þann sólarhring sem liðinn er af veiðitímabilinu, en misjafnlega hefur viðrað til veiða á landinu. 16.10.2005 00:01
Barátta um varaformannsembætti Landsfundi Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll, sem staðið hefur síðan á fimmtudag, lýkur um miðjan dag í dag. Geir H. Haarde utanríkisráðherra tekur við sem formaður flokksins af Davíð Oddssyni en Geir er sá eini sem hefur boðið sig fram til starfans. Þá verður kosið um eftirmann Geirs í embætti varaformanns flokksins klukkan þrjú í dag, en þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri hafa þegar gefið kost á sér. 16.10.2005 00:01
Tvö umferðaróhöpp í gærkvöld Tvö umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í gærkvöld og var um útafasktur að ræða í báðum tilvikum. Bíll fór út af veginum við Reykholt um klukkan hálftíu. Engin slys urðu á fólki en fjarlægja þurfti bílinn með dráttarbíl. Svipað var uppi á teningnum á Holtavörðuheiði laust eftir klukkan ellefu í gærkvöld en þá skemmdist fólksbíll nokkuð þegar hann fór út af veginum. Enginn í bílnum slasaðist. 16.10.2005 00:01
Fimm hermenn drepnir í Írak Fimm bandarískir hermenn létust þegar sprengja sprakk nærri farartæki þeirra í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks í gær. Frá þessu greindi Bandaríkjaher í dag. Uppreisnarmenn létu lítið að sér kveða á flestum stöðum í landinu í gær þegar Írakar greiddu atkvæði um drög að nýrri stjórnarskrá fyrir landið en þó kom til átaka á milli uppreisnarmanna úr röðum súnníta og bandarískra og írakskra sveita í Ramadi í gær og hafði það nokkur áhrif á kjörsókn þar. 16.10.2005 00:01
Býst við að taka ákvörðun Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist ekki sjá neitt annað í spilunum en að hann taki ákvörðun um nýjan saksóknara sem taka á við þeim 32 ákæruatriðum í Baugsmálinu sem Bogi Nilsson ríkissaksóknari sagði sig frá fyrir helgi. Þetta sagði ráðherrann í Silfri Egils á Stöð 2 fyrr í dag. 16.10.2005 00:01
Níu konur í miðstjórn Kosningu í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins sem fram fór á landsfundi í Laugardalshöll er lokið, en alls börðust 24 um ellefu sæti í stjórninni. Alls voru níu konur kjörnar í miðstjórnina og tveir karlar, en það eru Birna Lárusdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir, Elínbjörg Magnúsdóttir, Grímur Gíslason, Magni Kristjánsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Björk Guðjónsdóttir, Helga Þorbergsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Stefanía Katrín Karlsdóttir, Sigríður Ásthildur Andersen. 16.10.2005 00:01
Fangauppreisn nærri Búenos Aíres Að minnsta kosti sautján eru látnir í fangauppreisn í fangelsi suður af Búenos Aíres, höfuðborg Argentínu, sem enn stendur yfir. Eftir því sem argentínskir fjölmiðlar greina frá kom til átaka í kjölfar þess að beiðni fanga um lengri heimsóknartíma í dag var hafnað í gærkvöld. Um 200 fangar eru sagðir hafa tekið þátt í uppreisninni og logar eldur í hluta fangelsisins. 16.10.2005 00:01
Sjálfstæði fjölmiðla verði tryggt Landsfundur Sjálfstæðisflokksins skorar á Alþingi að setja lög sem tryggja sjálfstæði íslenskra fjölmiðla með hagsmuni samfélagsins af heiðarlegri og vandaðri fjölmiðlun að leiðarljósi. Þetta kemur fram í ályktun nefndar um menningarmál sem samþykkt var á fundinum í dag. 16.10.2005 00:01
Tveir Ísraelsmenn féllu í fyrirsát Tveir Ísraelsmenn létust og fimm særðust í skotárás Palestínumanna á Vestubakkanum síðdegis, að sögn talsmanns ísraelskra hjálparsveita á svæðinu. Árásármennirnir gerðu fórnarlömbunum fyrirsát á stað þar sem puttaferðalangar hafast gjarnan við, skammt suður af Jerúsalem. 16.10.2005 00:01
Búið að yfirheyra mann á Selfossi Lögregla á Selfossi hefur nú sleppt manni sem handtekinn var á dansleik í nótt eftir að hann lagði til annars manns með hnífi. Að sögn lögreglu var árásarmaðurinn, sem var ölvaður þegar atvikið átti sér stað, yfirheyrður þegar ölvíman rann af honum og honum sleppt í kjölfarið. Málið fer nú til sýslumanns sem tekur ákvörðun um ákæru á hendur manninum. 16.10.2005 00:01
Vill afnema synjunarvald forseta Landsfundur Sjálfstæðisflokksins telur óhjákvæmilegt að ákvæði 26. greinar stjórnarskrárinnar um synjunarvald forseta verði numið úr gildi. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var að fundinum í dag. Þá telur fundurinn að huga verði að almennri heimild í stjórnarskrá til þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekin mál. 16.10.2005 00:01
Háttsettur Palestínumaður drepinn Palestínumaður, sem sagður var háttsettur innan hinna herskáu samtaka „Íslamska jíhad", var drepinn af ísraelskum hersveitum norðarlega á Vesturbakkanum í dag. Ísraelsk útvarpsstöð hefur þetta eftir heimildarmanni úr röðum Palestínumanna. 16.10.2005 00:01
Unglingur handtekinn vegna hótana Lögregla í Árósum handtók í gær 17 ára pilt fyrir að hóta teiknurum hjá danska blaðinu Jótlandspóstinum lífláti vegna mynda af spámanninum Múhameð sem birtust í blaðinu. Myndirnar, sem voru tólf talsins og birstust í blaðinu 30. september, vöktu mikla reiði hjá múslímum í Danmörku sem sögðu þær guðlast og gengu um 3500 þeirra um götur Kaupmannahafnar og mótmæltu þeim á föstudag. 16.10.2005 00:01
Börn finnast á lífi í rústunum Fjögur börn fundust á lífi í dag í rústum byggingar nærri Balakot-borg sem hrundi í jarðskjálftanum sem reið yfir Kasmír um síðastliðna helgi. Yngsta barnið er sagt vera aðeins nokkura mánaða gamalt og það elsta níu ára. 16.10.2005 00:01
Truflun á netsambandi við útlönd Truflun hefur orðið á netsambandi við útlönd vegna bilunar í endabúnaði Farice-sæstrengsins í Skotlandi. Þetta kemur fram á heimasíðu Farice. Viðgerð á strengnum stendur yfir og er búist við að hann verði kominn í lag síðar í dag. Á meðan fer öll umferð um Cantat 3 sæstrenginn. 16.10.2005 00:01
Pilturinn útskrifaður af gjörgæslu Nítján ára piltur, sem hlaut alvarlega áverka á höfði þegar ekið var á hann á Hverfisgötu í gærkvöld, er á batavegi og hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild. Pilturinn var í litlum hópi ungmenna að skemmta sér þegar hann annað hvort fór út á götuna af sjálfsdáðum, eða var ýtt, að sögn lögreglu. 16.10.2005 00:01
Bretar neita aðild að árás í Íran Bretar neituðu í dag ásökunum íranskra yfirvalda um aðild að sprengjutilræðum í suðurvesturhluta Írans í gær sem kostuðu fimm manns lífið. Tvær heimatilbúnar sprengjur sprungu með nokkurra mínútna millibili í miðbæ borgarinnar Ahvaz í Khuzestan-héraði og auk þeirra fimm sem létust særðust ríflega 80 manns. 16.10.2005 00:01
Geir hlaut 94,3 prósent atkvæða Geir H. Haarde utanríkisráðherra var rétt í þessu kjörinn áttundi formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í Laugardalshöll. Geir hlaut 94,3 prósent atkvæða, en hann gaf einn kost á sér til formanns. 23 aðrir sjálfstæðismenn hlutu samtals 65 atkvæði, en auðir seðlar voru 40. Nú stendur yfir varaformannskjör en þar höfðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, gefið kost á sér. 16.10.2005 00:01
Segir 50 þúsund deyja í Bretlandi Landlæknir Bretlands, Sir Liam Donaldson, segir að fuglaflensa muni koma til Bretlands en ekki sé víst að hún geri það í vetur. Þá segir hann að ef hin banvæna fuglaflensuveira H5N1 stökkbreytist og fari að berast á milli manna megi búast við því að um 50 þúsund manns látist af hennar völdum í landinu. Hins vegar muni hún hafa mest áhrif í Austur-Asíu en þar hafa 65 þegar látist af völdum H5N1-stofnsins. 16.10.2005 00:01
Eitt barn sem fannst í rústunum Stúlka fannst í dag í rústum byggingar nærri Balakot-borg sem hrundi í jarðskjálftanum sem reið yfir Kasmír um síðastliðna helgi. Fyrr í dag greindi Reuters-fréttastofan frá því að fjögur börn hefðu fundust á lífi en misskilningurinn byggðist á því að þrjú börn, sem sögð eru systkini stúlkunnar, tilkynntu hjálparstarfsmönnum um hvar hana væri að finna í rústunum. 16.10.2005 00:01
Hefur ekki áhuga á forsetaembætti Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að hún hefði engan áhuga á því að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna í næstu forsetakosningunum, en þegar hafa verið opnaðar að minnsta kosti tvær vefsíður þar sem Rice er hvött til að gefa kost á sér sem forsetaefni repúblikana í kosningunum 2008. 16.10.2005 00:01
Gjafir streyma til nýfædds prins Hundruð Dana hafa lagt leið sína til Amalíuborgar í Kaupmannahöfn til að færa hinum nýfædda syni Friðriks krónprins og Maríu Elísabetar krónprinsessu gjafir. Lög biðröð myndaðist í gær við höllina og tóku starfsmenn í höllinni við pökkunum. Þegar yfir lauk í gær höfðu hátt í 400 pakkar borist og meðal þess sem prinsinn ungi fékk var barnastóll, bækur, leikföng auk fjölmargra bangsa. 16.10.2005 00:01
Ráðherralisti tilbúinn í Noregi Jens Stoltenberg, tilvonandi forsætisráðherra Noregs, segist hafa komist að samkomulagi um hvert ráðherraembætti í nýrri ríkisstjórn en hann hyggst ekki greina frá því hverjir sitja í henni fyrr en hann hefur látið Harald konung fá lista yfir ráðherrana í fyrramálið. 16.10.2005 00:01
Braut rúðu í farþegaþotu á flugi Karlmaður var handtekinn af lögreglunni á Flórída á dögunum eftir að hafa brotið rúðu í farþegaþotu sem var á leið frá Las Vegas til borgarinnar Tampa í Flórídaríki. Aðeins innri rúðan brotnaði og því varð engum meint af athæfi mannsins. Maðurinn gæti átt yfir höfði sér tuttugu ára fangelsisdóm fyrir athæfið. 16.10.2005 00:01
Þorgerður kjörin varaformaður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var rétt í þessu kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins. 16.10.2005 00:01