Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Selveiðar aftur hagkvæmar? Selveiðar gætu aftur orðið vænleg atvinnugrein hér á landi, ef þær fréttir frá Noregi reynast réttar að lýsi, unnið úr sel, sé tíu til tuttugu sinnum áhrifaríkara en venjuelgt þorska- og ufsalýsi. 17.10.2005 00:01
Eitur í gámi Slökkviliðsmenn í eiturefnabúningum ásamt starfsmönnum Samskipa og áhöfn Akrafells, leiguskips félagsins, unnu í alla nótt að því að ná eiturefnum úr löskuðum gámi og koma í veg fyrir að þau bærust út í andrúmsloftið eða í jarðveg. 17.10.2005 00:01
Jarðskjálftar í Tyrklandi Tveir öflugir jarðskjálftar skóku borgina Izmir í vesturhluta Tyrklands í morgun. Sá fyrri mældist 5,7 stig á Richter og sá síðari 5,9 stig á Richter. 17.10.2005 00:01
Ný ríkisstjórn í Noregi Ríkisstjórn vinstri og miðflokka tók við völdum í Noregi í dag. Þetta er í fyrsta skipti í 20 ár, sem norska stjórnin hefur meirihluta á þingi en í stjórninni eiga sæti 19 ráðherrar, 10 karlar og 9 konur. 17.10.2005 00:01
Minnkandi virkni við Grímsey Verulega tók að draga úr jarðskjálftahrinunni austur af Grímsey síðdegis í gær og hefur verið rólegt á svæðinu í nótt. Frá því að hrinan hófst á föstudag hafa á fjórða hundrað skjálftar mælst, eða heldur færri en í hrinunni í janúar. 17.10.2005 00:01
Rjúpnaskyttur á röngum stað Rjúpnaskyttur hófu skothríð í sumarbústaðalandi í Hrunamannahreppi í gær, svo fólki þar brá í brún og hringdi á lögreglu. 17.10.2005 00:01
Berjast fyrir togveiðibanni Umhverfisverndarsinnum, sem berjast gegn því að togarar fái að veiða fisk, bættist liðsauki fimmtíu breskra vísindamanna í morgun, sem skora á bresk stjórnvöld að beita sér á vettvangi Sameinuðu þjóðanna fyrir alheimstogveiðibanni. 17.10.2005 00:01
Tölvupóstur með tengli á barnaklám Tölvupóstur með tengli á barnaklámssíður fer nú um eins og eldur í sinu í Danmörku. Danska lögreglan hefur fengið yfir tvö hundruð tilkynningar vegna þessa. 17.10.2005 00:01
Slær varnagla við einkavæðingu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, nýkjörinn varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir það ekki forngangsmál að selja hlut ríkisins í Landsvirkjun eins og ályktað var um á Landsfundi flokksins um helgina og Geir H. Haarde nýkjörinn formaður gerði að sérstöku umtalsefni í ræðu sinni á laugardag. Sjálfstæðismenn vilja Íbúðalánasjóð út af almennum húsnæðislánamarkaði og leggja niður stimpilgjöld. 17.10.2005 00:01
Öryggisráðsframboði ekki mótmælt Ekki var ályktað gegn framboði Íslands í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær, þrátt fyrir tilraunir ungra sjálfstæðismanna í þá átt. Fyrrverandi formaður flokksins gerði það svo að einu af sínum síðustu verkum að hvetja til að róttæk ályktun um afnám ríkisstyrkja í landbúnaði yrði felld. 17.10.2005 00:01
Víða vatnstjón á Höfn Talið er að hátt í 20 hús hafi orðið fyrir vatnstjóni á Höfn í Hornafirði um helgina eftir eina úrkomumestu helgi sem sögur fara af þar á slóðum. Enn er verið að meta skemmdir af völdum tjónsins. 17.10.2005 00:01
Bótahækkanir gætu fallið niður Ef hætt verður við að afnema bensínstyrk til öryrkja getur það orðið til þess að hætta verður við hækkanir bóta til öryrkja sem lagðar eru til í fjárlagafrumvarpinu, sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra við upphaf þingfundar. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, hafði hvatt sér hljóðs um málið vegna ályktunar landsfundar Sjálfstæðisflokksins 17.10.2005 00:01
Óttast rangar áherslur Forsvarsmenn Alþjóða heilbrigðissstofnunarinnar óttast að fuglaflensutilfelli sem hafa greinst í Evrópu verði til þess að Evrópuríki hætti að veita fé til að berjast gegn sjúkdómnum í Suð-Austur Asíu, þess í stað einbeiti ríkin sér að því að koma í veg fyrir fuglaflensu í Evrópu. 17.10.2005 00:01
Greiða 43 milljarða í bætur Svissneska lyfjafyrirtækið Serono hefur samþykkt að greiða andvirði 43 milljarða króna í miskabætur fyrir að hafa beitt ólöglegum aðferðum við að koma alnæmislyfinu Serostim á markað. 17.10.2005 00:01
Tyrkir áhugasamir um Ástarfleyið Upptökur á raunveruleikaþættinum Ástarfleyið, sem sýndur verður á sjónvarpsstöðinni Sirkús, hafa vakið athygli í Tyrklandi. Þarlendir sjónvarpsmenn mættu á tökustað fyrir nokkrum dögum og tóku viðtöl við keppendur og umsjónarmenn. 17.10.2005 00:01
Börnunum haldið heima Leikskólar í Kópavogi og víðar hafa brugðið á það ráð að loka einni deild á dag, svo foreldrar verða annað hvort að vera heima með börnum sínum þann dag eða bregða á önnur ráð þegar kemur að barnagæslu. 17.10.2005 00:01
Sambýli illa mönnuð á Reykjanesi Illa gengur að manna sambýli og visheimili hvers konar í Reykjavík og nágrenni. Á vistheimilinu Dimmuhvarfi á Reykjanesi vantar í níu stöðugildi af tuttugu og einu. Sambýli og vistheimili eru mörg hver í sama vanda og leikskólar og fleiri opinberar stofnanir um þessar mundir. Það gengur ekkert að ráða nýtt starfsfólk. Víða á höfuðborgarsvæðinu vantar starfsmenn og því treysta yfirmenn á að þeir starfsmenn sem eru til staðar vinni meira en fullt starf. 17.10.2005 00:01
Aragrúi óþekktra barna Gagnagrunnur Interpol geymir netmyndir af meira en 20.000 börnum sem beitt hafa verið kynferðislegu ofbeldi. Aðeins 350 þessara barna hafa fengið hjálp. Í fæstum tilvikum hafa kennsl verið borin á börnin. 17.10.2005 00:01
Aragrúi óþekktra barna Gagnagrunnur Interpol geymir netmyndir af meira en 20.000 börnum sem beitt hafa verið kynferðislegu ofbeldi. Aðeins 350 þessara barna hafa fengið hjálp. Í fæstum tilvikum hafa kennsl verið borin á börnin. 17.10.2005 00:01
44 morð framin daglega í BNA Sextán þúsund eitt hundrað þrjátíu og sjö manns voru myrtir í Bandaríkjunum í fyrra. Að meðaltali eru því framin um fjörutíu og fjögur morð á hverjum einasta degi í Bandaríkjunum. Morðum fækaði samt um nærri tvö prósent frá árinu 2003, þegar sextán þúsund og fimm hundruð manns voru myrtir. 17.10.2005 00:01
70 létust í loftárásum Um 70 manns létust í loftárásum Bandaríkjamanna á skotmörk í Ramadi í vestanverðu Írak. Talsmenn Bandaríkjahers segja að þeir látnu hafi allir verið vígamenn sem börðust gegn íröskum stjórnvöldum og veru erlends herliðs í Írak. Lögreglumenn í Ramadi segja hins vegar að um tuttugu þeirra sem létust hafi verið óbreyttir borgarar, sumir þeirra börn. 17.10.2005 00:01
Berjast fyrir togveiðibanni Umhverfisverndarsinnar sem berjast gegn togveiðum á alþjóðlegum hafsvæðum barst liðsauki breskra vísindamanna í morgun þar sem þeir skora á bresk stjórnvöld að beita sér fyrir togveiðivanni á alþjóðlegum hafsvæðum. 17.10.2005 00:01
Tveir jarðskjálftar í Tyrklandi Tveir stórir jarðskjálftar skóku vesturhluta Tyrklands í morgun. Upptök skjálftanna, sem voru 5,7 og 5,9 á Richter, voru á botni Sigacik-flóa, um fimmtíu kílómetra suðvestur af hafnarborginni Izmir, þriðju stærstu borg Tyrklands. Mikil skelfing greip um sig meðal borgarbúa og slösuðust að minnsta kosti þrír við að stökkva út um glugga. 17.10.2005 00:01
Reiði vegna hofheimsóknar Þegar Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, laut í gær höfði í Yasukuni-hofinu í Tókýó, sem tileinkað er minningu Japana sem látið hafa lífið í stríði, voru viðbrögðin í öðrum Asíulöndum snör og hörð: Ráðamenn í Seoul sögðu réttast að aflýsa áformuðum leiðtogafundi og í Peking var því lýst yfir að hofheimsóknin væri ögrun. 17.10.2005 00:01
Lenín undir græna torfu? Héraðsstjóri Pétursborgar, sem er talinn náinn pólitískur samherji Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, hvatti í gær opinberlega til þess að lík Vladimírs Lenín, sem enn stendur uppi í grafhýsi á Rauða torginu í Moskvu, verði fjarlægt þaðan og grafið. 17.10.2005 00:01
Faldi hass í holri bók 37 ára gömul dönsk kona hefur verið dæmd í mánaðarfangelsi fyrir að reyna að smygla hingað 320,19 grömmum af hassi 30. september síðastliðinn. Dómurinn, sem upp var kveðinn í Héraðsdómi Reykjaness, er skilorðsbundinn í þrjú ár. 17.10.2005 00:01
Maður ógnaði með hnífi 24 ára gamall maður hefur verið dæmdur í mánaðarfangelsi fyrir að leggja vasahníf að hálsi annars sem sat í bíl í Kópavogi í mars á þessu ári. 17.10.2005 00:01
Sektaður fyrir landasölu Ungur maður þarf að greiða 60.000 krónur í sekt fyrir að hafa í apríl 2003, þá 19 ára, selt landa úr bíl í nágrenni Korpúlfsstaða. Lögregla sá til landasölunnar og fann bæði peninga og landa á manninum og félaga hans. 17.10.2005 00:01
Úkraína fái að semja um NATO-aðild Viktor Jústsjenko, forseti Úkraínu, sagðist í gær vonast til að viðræður um aðild landsins að Atlantshafsbandalaginu gætu hafist á vori komanda. Ennfremur sagði hann að fríverslunarsamningur við Evrópusambandið gæti orðið að veruleika innan 12-15 mánaða. Hann þáði viðurkenningu úr hendi Elísabetar Englandsdrottningar í Lundúnum í gær. 17.10.2005 00:01
Fleiri útgerðir ætla að kæra Enn bætist í hóp útgerðarfélaga sem höfða ætla skaðabótamál á hendur olíufélögunum vegna ólöglegs verðsamráðs þeirra, að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna. 17.10.2005 00:01
Forsetaljóðabók skyldulesning Forseti Túrkmenistans fyrir lífstíð, Saparmurat Niyazov, hefur gefið út nýja ljóðabók sem verður skyldulesning fyrir alla þegna landsins, að því er fram kom í ríkisfjölmiðlum landsins í gær. 17.10.2005 00:01
Fá eftirlaun en gegna öðru starfi Níu fyrrverandi ráðherrar þiggja nú eftirlaun þótt þeir séu í öðrum störfum hjá ríkinu. Fjárlaganefnd Alþingis ætlar að skoða sérstaklega hvers vegna 250 milljón krónum meira hefur farið í eftirlaun þingmanna, ráðherra og æðstu embættismanna, en ráð var fyrir gert. 17.10.2005 00:01
Fólkið neitar sök Par sem skvetti grænlituðu skyri á gesti álráðstefnu neitar sakargiftum um stórfelld eignaspjöll og húsbrot. Skemmdir eru mun minni en taldar voru í fyrstu. Breskur maður hefur þegar hlotið fangelsisdóm vegna málsins. 17.10.2005 00:01
Merkel kynnir ráðherralið sitt Forystumenn stóru flokkanna tveggja í Þýskalandi, Kristilegra demókrata (CDU/CSU) og Jafnaðarmanna (SPD) hittust í gær til að hefja formlegar viðræður um gerð málefnasamnings samsteypustjórnar flokkanna. Og Angela Merkel, leiðtogi kristilegra, kynnti hverjir úr röðum hennar flokksmanna setjast með henni í þessa væntanlegu ríkisstjórn. 17.10.2005 00:01
Svikamylla í gervi leikjarpósts Í tölvupósti biðja þrjótar sem þykjast vera frá tölvuleiknum Eve-Online um staðfestingu skráningarupplýsinga áskrifenda leiksins. Svikamillan er ein af fjölmörgum svipuðum undir yfirskini heiðvirðra netfyrirtækja. 17.10.2005 00:01
Vilja evrópska fuglaflensunefnd Fuglaflensa hefur greinst í Grikklandi og beðið er niðurstöðu rannsókna á sýnum úr dauðum farfuglum í Króatíu. Sérfræðingar telja núna ómögulegt að koma í veg fyrir að flensan breiðist út um Evrópu, en markmiðið er að hindra að menn smitist af henni. 17.10.2005 00:01
Clark myndar samsteypustjórn Helen Clark, starfandi forsætisráðherra Nýja Sjálands, kynnti í gær samkomulag sem flokkur hennar, Verkamannaflokurinn, hefur gert við þrjá smjáflokka um myndun nýrrar ríkisstjórnar undir sinni forystu. 17.10.2005 00:01
60 ábendingar um klámsíður Um sextíu ábendingar um klámsíður á netinu berast ábendingarlínu Barnaheilla á Íslandi að meðaltali á mánuði, af þeim birtir þriðjungur barnaklám. Þetta segir Kristín Jónasdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. 17.10.2005 00:01
Misráðin ályktun Formenn stjórnarandstöðuflokkanna segja að ályktun Sjálfstæðisflokksins um að synjunarvald forsetans verði fellt úr gildi, sé misráðin og beri ekki vott um sáttatón. Flokkurinn sé hikandi við að ákveða hvað eigi að koma í staðinn. 17.10.2005 00:01
Sjálfstæðisflokkurinn mildast Sjórnmálafræðingar virðast nokkuð sammála um að yfirbragð Sjálfstæðisflokksins muni mildast við brotthvarf Davíðs Oddssonar. Að öðru leyti er ekki búist við miklum breytingum. Úlfar Hauksson, stjórnmálafræðingur á ekki von á miklum breytingum og benti á að forystan hefði náð kjöri með miklum yfirborðum á landsfundinum. Því hefði forystan í góðan styrk á bakvið sig og gott umboð. Hann sagði að flokkurinn héldi sínu striki. 17.10.2005 00:01
Biðtími flóttamanna 7-8 vikur Að jafnaði tekur sjö til átta vikur að afgreiða umsóknir útlendinga um hæli hér á landi. Dæmi eru þó um að hælisleitendur hafi þurft að bíða á annað ár eftir endanlegu svari. 17.10.2005 00:01
Ólíklegt að neytendur sjái lækkun Ólíklegt er að lækkun á matarskatti skili sér í vasa neytenda. Líklegra er að verslanir og heildsalar hækki álagningu sem skattalækkuninni nemur segir Guðmundur Ólafsson lektor í hagfræði. Allsherjarskattalækkanir skili sér mun betur til almennings. 17.10.2005 00:01
Leggja til algjört reykingabann Heilbrigðisráðherra Norður-Írlands, Shaun Woodward tilkynnti í dag að hún muni leggja til algert reykingabann á opinberum stöðum, þar með öllum tegundum öldurhúsa og veitingastaða. 17.10.2005 00:01
Prodi vann yfirburðasigur Romano Prodi, fyrrverandi forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vann yfirburðasigur í leiðtogaprófkjöri miðju- og vinstri manna á Ítalíu í gær. 17.10.2005 00:01
Dæmd fyrir að aka á pilt Kona á Akureyri var í dag dæmd til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar og svipt ökuleyfi í tvo mánuði fyrir að keyra yfir gatnamót á rauðu ljósi og aka á ungan pilt sem var á leið yfir gangbraut. 17.10.2005 00:01