Fleiri fréttir Íhuga bann við innflutningi á skrautfuglum og gaukum Til athugunar er í landbúnaðarráðuneytinu að banna innflutning á lifandi páfagaukum og skrautfuglum, að sögn Halldórs Runólfssonar yfirdýralæknis. Hann segir enga ákvörðun enn hafa verið tekna en það sé á hendi landbúnaðarráðherra. 27.10.2005 07:00 Engir friðargæsluliðar Flugmálastjórn hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að starfsmenn hennar tengist á engan hátt meintu kynferðisofbeldi, mútuþægni og spillingu friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í Pristina í Kosovo. Flugmálastjórn tekur fram að starfsmenn hennar séu ekki friðargæsluliðar og beri ekki vopn. 27.10.2005 07:00 Veikindi geta hafa áhrif á mætingareiningu í framhaldsskólum
Sjá næstu 50 fréttir
Íhuga bann við innflutningi á skrautfuglum og gaukum Til athugunar er í landbúnaðarráðuneytinu að banna innflutning á lifandi páfagaukum og skrautfuglum, að sögn Halldórs Runólfssonar yfirdýralæknis. Hann segir enga ákvörðun enn hafa verið tekna en það sé á hendi landbúnaðarráðherra. 27.10.2005 07:00
Engir friðargæsluliðar Flugmálastjórn hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að starfsmenn hennar tengist á engan hátt meintu kynferðisofbeldi, mútuþægni og spillingu friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í Pristina í Kosovo. Flugmálastjórn tekur fram að starfsmenn hennar séu ekki friðargæsluliðar og beri ekki vopn. 27.10.2005 07:00
Óánægður með rýran hlut menningarefnis í Kastljósi "Ég er alvarlega að íhuga að hætta," segir Jónatan Garðarsson, Kastljósmaður í Ríkissjónvarpinu. Hann kveðst afar óánægður með rýran hlut menningarumfjöllunar í Kastljósi. "Mér finnst þátturinn vera að þróast meira út í að vera stórt og mikið Kastljós heldur en þetta sambland sem hann átti að vera og kann því ekki vel." 27.10.2005 06:45
Veldur vonbrigðum "Í svörum heilbrigðisráðuneytisins vegna kvörtunar sálfræðinga kemur skýrt fram að ekkert sé því til fyrirstöðu að við þá verði samið," segir Halldór Kr. Júlíusson, formaður Sálfræðingafélags Íslands. Hann kveðst undrandi á ummælum heilbrigðisráðherra að athuga þurfi lagagrunninn áður en gengið verði til samninga við sjálfstætt starfandi sálfræðinga um niðurgreiðslur af hálfu hins opinbera. 27.10.2005 06:45
Ríkustu þjóðirnar hafa brugðist Sameinuðu þjóðirnar fara nú fram á að ríki heims leggi fórnarlömbum jarðskjálftans í Kasmír til tvöfalda þá upphæð sem stofnunin bað fyrst um. Mörg af ríkustu löndunum hafa ekkert látið af hendi rakna. 27.10.2005 06:15
Menningarsamstarf farið undir hnífinn Um tuttugu samstarfsnefndir og menningarstofnanir Norðurlandaráðs verða skornar niður samkvæmt ákvörðun sem tekin var á ráðherrafundi í gær. Norræna húsið heldur velli. Norræni blaðamannaskólinn verður sleginn af. 27.10.2005 06:15
Ótrúlegar skýringar segir Byko "Okkur finnst gróflega brotið á rétti okkar," segir Ingvar Sverrisson, annar framkvæmdastjóra Góðs fólks. "Með ólíkindum er að tveir risar á byggingavörumarkaði skuli koma fram með nákvæmlega sömu hugmyndina á sama tíma." Hann segir fyrirtækið hafa lagst yfir að kanna allt upplýsingaöryggi hjá sér og hefur ekki útlilokað að málið verði kært. 27.10.2005 06:15
Ölvaðir elgir vekja ugg Yfirvöld í Þelamörk hvetja fólk til að fara gætilega þar sem ölvaðir elgir gætu verið á ferli. Ávaxtaspretta í Noregi var góð þetta sumarið en þar sem vetrað hefur snemma hafa epli og ber skemmst vegna gerjunar og áfengi myndast í þeim sem elgirnir háma í sig með bestu lyst. 27.10.2005 06:00
Réttargeðdeildin byggð upp Starfshópur hefur verið skipaður af heilbrigðisráðherra, Jóni Kristjánssyni, til að huga að uppbyggingu á réttargeðdeildinni á Sogni. Ráðherra greindi frá þessu í heimsókn sinni á Sogni í gær þar sem hann kynnti sér starfsemina og aðstæður allar. 27.10.2005 06:00
2B synjað um atvinnuleyfi Vinnumálastofnun synjaði í gær beiðni atvinnumiðlunarinnar 2B um atvinnuleyfi fyrir 36 Pólverja sem starfa hér á landi. "Okkur sýnast ekki vera lagaforsendur til þess að afgreiða þessar umsóknir," segir Gissur Pétursson, forstjóri stofnunarinnar. 27.10.2005 06:00
Verðvernd til hagsbóta fyrir neytendur Fyrirtæki á heimilis- og byggingarvörumarkaði, Húsasmiðjan og BYKO, eru nú farin að bjóða viðskiptavinum sínum upp á þjónustu sem kallast verðvernd, en í henni felst að viðskiptavinurinn getur skilað vöru sem hann sér auglýsta á lægra verði, innan tuttugu daga frá kaupunum, og fengið mismuninn greiddan til baka. 27.10.2005 06:00
Misnota íþróttamót Færst hefur í aukana að þátttakendur á íþróttamótum í Danmörku hafi nýtt þau til að gerast ólöglegir innflytjendur í landinu. Samkvæmt frétt dagblaðsins Urban urðu 125 íþróttamenn, flestir frá Afríku, eftir í landinu í fyrra eftir að hafa komið til keppni í Danmörku. Nú í sumar struku fjórtán drengir frá Burkina Faso. Sjö af þeim hafa sótt um hæli í Svíþjóð en ekki er vitað hvað varð um hina. Einnig hefur ekkert spurst til 41 keppanda frá Moldóvu. 27.10.2005 06:00
Bótakrafa lögð fram aftur Endurskoðaða bótakröfu upp á 2,5 milljónir króna er að finna í nýrri stefnu sem lögð var fram við í fyrirtöku í máli Auðar Laxness á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Auður stefndi Hannesi fyrir höfundarréttarbrot eftir að út kom eftir Hannes bókin Halldór, en í henni er fjallað um ævi nóbelsskáldsins Halldórs Kiljans Laxness. 27.10.2005 06:00
Parið situr inni fram að dómi Réttað verður í Suður-Afríku 18. apríl á næsta ári í máli morðingja Gísla Þorkelssonar, að sögn Andy Pieke, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í Boksburg, úthverfi Jóhannesarborgar. 27.10.2005 06:00
Engin mannekla né biðlistar Engin börn eru á biðlista eftir leikskólaplássum í Mosfellsbæ og jafnframt eru allar deildir skólanna fjögurra fullmannaðar. Ríflega 100 manns starfa á leikskólum bæjarins og líta eftir um 450 börnum. 27.10.2005 05:45
Hálf milljón barna deyr árlega Ríflega tvær milljónir barna eru smitaðar af HIV-veirunni og deyr hálf milljón þeirra á hverju ári. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, hefur skorið upp herör gegn þessari válegu veiki. 27.10.2005 05:30
Auðvelt að hlera farsíma "Í Bandaríkjunum eyða menn árlega um 48 milljörðum íslenskra króna í búnað til hlerunar," segir Friðbert Pálsson, fulltrúi hjá írska markaðsfyrirtækinu EFF. 27.10.2005 05:15
Komin upp að nýju í Kína Fuglaflensa hefur aftur greinst í Kína, í annað sinn á einni viku. Veiran greindist í tæplega tvö þúsund gæsum í Austur-Kína. Jafnframt hafa índónesísk yfirvöld staðfest fjórða dauðsfallið af völdum veirunnar. 27.10.2005 05:00
Djúpavík fær nettengingu Þessa dagana stendur yfir vinna við að koma á ISDN-tengingu við bæi á Ströndum. Á fimmtudag siðastliðinn var gengið frá slíkri tengingu á Djúpavík en þar hefur verið rekin ferðaþjónusta árum saman. Áfram verður unnið við að tengja fleiri staði þar vestra, svo sem ystu byggðir í Bæjarhreppi og í Bjarnarfirði. 27.10.2005 05:00
Norðurlandasamstarf á krossgötum Endurskipulagning Norðurlandasamstarfsins er nauðsynleg, segir Sigríður Anna Þórðardóttir, samstarfsráðherra Norðurlanda. Stjórnmálamennirnir eru áhugalausir segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. 27.10.2005 04:45
Að lækka rafmagnsreikninginn Þó rafmagnsreikningarnir séu ekki veigamestu útgjöld heimilanna kostar rafmagnið sitt. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá Sambandi sveitarfélaga, segir hægan vanda að haga rafmagnsnotkun þannig að reikningurinn lækki. 27.10.2005 04:45
Gáfu Kvennaathvarfinu milljón Starfsmenn apótekanna Lyf og heilsu færðu Kvennaathvarfinu eina milljón í styrktarfé í gær þar sem konur sem starfa innan lyfjafyrirtækisins gáfu kvennafrídaginn eftir á mánudaginn. 27.10.2005 04:30
Betur komin án þeirra Mikil umræða hefur skapast um starfsmannaleigur og eru kærur og meiðyrðamál í farvatninu eftir hörð átök verkalýðshreyfingarinnar við starfsmannaleiguna 2B. 27.10.2005 04:30
Norrænt samstarf er athvarf og heimili Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að aðild að Evrópusambandinu reki engan fleyg milli Norðurlandaþjóða utan og innan sambandsins. Í samtali við Fréttablaðið fjallar hann um gildi samstarfsins og aðsteðjandi hættur. 27.10.2005 04:00
Minnumst og höldum áfram "Við minnumst þessara atburða en látum þá ekki trufla okkur og höldum ótrauð áfram," segir Sigurður Hafberg, grunnskólakennari á Flateyri. Húsfyllir var í íþróttahúsinu á Flateyri í gærkvöldi en þar fór fram minningarathöfn í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá því að snjóflóð féll á bæinn með þeim hörmulegu afleiðingum að tuttugu manns létu lífið. 27.10.2005 03:45
Krefst milljóna króna vegna tryggingasvika Forstjóri Tryggingastofnunar telur stofnunina ekki hafa nægilegar heimildir til að geta gengið að verki gegn tryggingasvikum. Engu að síður hefur stofnunin krafið einstaka viðskiptavini um endurgreiðslu milljóna króna. 27.10.2005 03:30
Göngubrúin er slysagildra Aðstæður fyrir gangandi vegfarendur við Hringbraut eru víða erfiðar og hættulegar. Göngubrú yfir götuna endar í lausu lofti. 27.10.2005 03:15
Endurskoðar bensínstyrkinn Heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, segist vera að endurskoða ákvörðun um afnám bensínstyrks til öryrkja. Samkvæmt tillögu ráðherra stóð til að fella hann niður frá áramótum. 27.10.2005 02:45
Dönsk kvikmynd hlýtur kvikmyndarverðlaun Norðurlandaráðs Danska kvikmyndin Morðið, eða Drabet eins og myndin heitir á frummálinu, hlýtur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs í ár. 26.10.2005 23:45
Menningarstofnunum fækkað Norrænum menningarstofnunum verður fækkað stórlega á næstunni. Þetta var staðfest á fundi Norðurlandaráðs í dag. 26.10.2005 21:30
Íslendingar með lægstu fjárframlög Norðurlandanna Íslendingar eru ekki einu sinni hálfdrættingar á við hinar Norðurlandaþjóðirnar þegar kemur að fjárframlögum til aðstoðar fórnarlömbum jarðskjálftans í Kasmír. 26.10.2005 20:00
Fyrirtæki flýja land Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins hefur verulegar áhyggjur af flótta íslenskra fyrirtækja til útlanda. Hann segir fjarri því að alltaf sé hægt að tala um jákvæða útrás því fjöldi starfa hafi tapast hér á landi vegna hennar á undanförnum árum. 26.10.2005 20:00
Íslendingar eru trúaðir Íslendingar fara með Faðir vorið að meðaltali þrisvar í viku. Barnatrúin er sterk og þeir eru duglegir að biðja bænirnar með börnunum. Kirkjusókn hefur aukist lítillega síðustu árin en þó sinnir landinn einkum trú sinni í gegnum barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar. 26.10.2005 19:27
Vopnahlé Ísraels og Paletínu í uppnámi Minnst fimm týndu lífi og um þrjátíu særðust í sjálfsmorðsprengjuárás í strandbænum Hadera í Ísrael í dag. Íslömsku samtökin Jíhad hafa lýst verknaðinum á hendur sér. 26.10.2005 19:15
Fjárhagslega háð sambýlismanni sínum Í gær sagði Stöð 2 frá fólki sem hefur rétt yfir 100 þúsund krónur í mánaðarlaun. Í dag hitti fréttastofan starfskonu á leikskóla sem segist háð sambýlismanni sínum vegna lágra launa. Þegar hún var ein átti hún enga möguleika á að kaupa sér íbúð og varð að selja bílinn. 26.10.2005 19:13
Undirstrika sterk tengsl þjóðanna Norska konungsfjölskyldan kom í sína fyrstu opinberu heimsókn til Bretlands í gær. Elísabet Bretlandsdrottning segir heimsóknina undirstrika sterk tengsl þjóðanna. 26.10.2005 19:08
Annan skorar á þjóðir heims til aðstoðar Hundruð þúsunda þeirra sem þegar eiga um sárt að binda eftir hamfarirnar í Pakistan, kunna að farast á næstu vikum, ef frekari aðstoð berst ekki áður en harður vetur skellur á. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, skorar á þjóðir heims að láta ekki sitt eftir liggja. 26.10.2005 19:07
Verðstríð háð milli Byko og Húsasmiðjunnar Byko og Húsasmiðjan há nú mikið verð- og auglýsingastríð. Nokkrar algengar vörutegundir sem fréttastofan kannaði verð á í dag voru í öllum tilfellum ódýrari í Byko. 26.10.2005 19:05
Eldur kviknaði og hjólbarði sprakk í lendingu Rúmlega tvö hundruð og fimmtíu farþegum um borð í vél tælenska flugfélagsins Thai Airways brá heldur betur í brún þegar vélin lenti á flugvellinum í Melbourne í Ástralíu í morgun. Vélin lenti svo harkalega að einn hjólbarði sprakk og annar búnaður laskaðist, með þeim afleiðingum að eldur kviknaði á nokkrum stöðum í vélinni. 26.10.2005 19:00
Samiðn kærir Samiðn, samtök iðnfélaga, hafa kært sex fyrirtæki sem nýta sér krafta starfsmanna á vegum starfsmannaleigunnar 2B. Ekkert fyrirtækjanna gat lagt fram atvinnuleyfi fyrir starfsmennina og því voru fyrirtækin kærð. 26.10.2005 18:44
Auknar líkur á lokun herstöðvar í Keflavík Líkurnar á að Keflavíkurstöðinni verði lokað stórjukust í dag þegar bandaríska utanríkisráðuneytið baðst undan því að koma að varnarviðræðum við Íslendinga. Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna mun framvegis fara með forræði í málinu, sem þykir benda til þess að varnarmálaráðuneytið fái sínu framgengt. 26.10.2005 18:36
Skuldabréfa útgáfa erlendis í íslenskum krónum nálgast þolmörk Útgáfa skuldabréfa í íslenskum krónum erlendis er komin nálægt þolmörkum íslenska hagkerfisins að sögn Tryggvs Þórs Herbertsson, forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Útgáfan er nú komin í eitt hundrað milljarða króna eða sem nemur einum þriðja af fjárlögum íslenska ríkisins. 26.10.2005 17:33
Hafa engin samskipti við dómstólinn Lögmenn Saddams Husseins segjast ekki munu hafa nein samskipti við dómstólinn sem réttar í máli hans þar til réttarhöldunum verður framhaldið í lok nóvember. Þeir vilji nefnilega ekki tefla lífi sínu í hættu en í síðustu viku var lögmaður eins af fyrrverandi samverkamönnum Saddams myrtur eftir að hafa verið rænt af skrifstofu sinni. 26.10.2005 17:22
Sala á framleiðslu jókst um 45% Sala á framleiðslu Össurar hf. jókst um fjörtíu og fimm prósent í Bandaríkjadölum samkvæmt uppgjöri þriðja ársfjórðungs. 26.10.2005 17:19