Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hryggð í bland við feginleika Minningarnar brjótast fram á Flateyri segir Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands sem er komin þangað vegna minningarathafnar um að tíu ár eru liðin síðan snjóflóð féll á Flateyri og varð tuttugu íbúum að bana. 26.10.2005 15:10
Mál Auðar gegn Hannesi upp í desember Máli Auðar Laxness, ekkju Halldórs Laxness, gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor var frestað til 19. desember næstkomandi við fyrirtöku í Héraðdsómi Reykjavíkur í morgun. Auður höfðaði málið vegna meintra brota á höfundarrétti í bók Hannesar um Nóbelskáldið, Halldór. 26.10.2005 14:45
SFLÍ vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara Sjúkraliðafélag Íslands vísaði í gær kjaradeilum sínum við Launanefnd sveitarfélaga til ríkissáttasemjara. Fyrsti fundurinn hjá honum haldinn var síðdegis í gær þar sem fulltrúar launanefndar lögðu fram nýjar tillögur að kjarasamningi. 26.10.2005 14:30
Menningarstofnunum og -nefndum fækkað um níu Níu af tuttugu nefndum og stofnunum í menningarsamstarfinu verða lagðar niður, en starfsemi þeirra verður þó haldið áfram með ýmsu móti. Norrænu menningarmálaráðherrarnir ákváðu einróma á fundi sínum í dag að breyta skipulagi á menningarsamstarfi norrænu þjóðanna og gera það sveigjanlegra. 26.10.2005 13:54
Fylkingar súnníta saman í framboð Nú þegar ný stjórnarskrá hefur verið samþykkt í Írak hafa þrjár stjórnmálafylkingar súnníta tekið höndum saman og ætla að bjóða fram undir sömu merkjum í þingkosningum í landinu í desember. Í tilkynningu frá fylkingunum þremur eru súnnítar hvattir til að taka þátt í kosningunum, en þátttaka þeirra í kosningunum í janúar var afar dræm. 26.10.2005 13:45
Greiddu 682 milljónir fyrir ráðgjöf Morgan Stanley fjárfestingabankinn fékk greiddar 682 milljónir króna fyrir ráðgjöf sína vegna sölu Símans. Tíu milljónir af söluandvirði Símans fóru til framkvæmdanefndar um einkavæðingu vegna nefndarlauna og ferðakostnaðar. 26.10.2005 13:45
Bjart og fagurt veður á Flateyri Flateyringar minnast þess í dag að tíu ár eru liðin frá snjóflóðinu mikla sem kostaði tuttugu manns lífið. Bjart og fagurt veður er á Flateyri í dag og fátt sem minnir á ógnaratburðinn fyrir tíu árum. Hann er þó ofarlega í hugum manna og hans er minnst á margvíslegan hátt í dagskrá sem stendur í allan dag og lýkur með samkomu í kirkjunni sem hefst klukkan átta í kvöld. 26.10.2005 13:30
Ná ekki samkomulagi um reykingabann Breska ríkisstjórnin nær ekki að koma sér saman um lög gegn reykingum, sem átti að kynna í gær. Nokkra ráðherra greinir á um hvort bannið eigi að ná til allra opinberra staða eða hvort undanskilja eigi veitingastaði sem ekki selja mat. 26.10.2005 13:15
Tvö þúsund Bandaríkjamenn fallnir í Írak Tvö þúsund Bandaríkjamenn hafa fallið í Írak síðan innrásin í landið hófst í mars 2003. 26.10.2005 13:00
Starfsemi Medcare færð úr landi Stefnt er að því að færa starfsemi Medcare-Flögu úr landi og styrkja starfsemi félagsins í Bandaríkjunum og á Evrópumarkaði. Hátt í 40 starfsmönnum hér á landi verður sagt upp störfum um næstu mánaðamót og hefur það verið tilkynnt á starfsmannafundum. 26.10.2005 13:00
Máli vegna meintra atvinnréttindabrota vísað frá Héraðsdómur Reykjaness hefur vísað frá dómi máli ákæruvaldsins gegn fyrirsvarsmanni SK Smáverka ehf. og Perlunnar ehf. um að hafa brotið lög um atvinnuréttindi útlendinga með því að ráða í vinnu til sín sex Litháa. 26.10.2005 12:58
Minningar brjótast fram vegna snjóflóðs Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, segir miklar minningar brjótast fram þegar hún heimsæki Flateyri aftur, en hún er þar stödd til að minnast þess að tíu ár eru síðan snjóflóð féll á bæinn þar sem 20 manns létust. 26.10.2005 12:45
Banvænn stofn flensu greinist í Króatíu H5N1-stofninn af fuglaflensu hefur greinst í Króatíu. Þetta var staðfest í morgun. Fuglaflensa hefur enn á ný greinst í Kína, að þessu sinni í rúmlega fimm hundruð öndum og kjúklingum í Hunan-héraði. 26.10.2005 12:30
Segist hafa fengið margar fyrirspurnir Flugfélagið Iceland Express er komið á söluskrá og hefur fyrirtækjasviði Kaupþings banka verið falið að annast söluna. Annar eigenda félagsins segist hafa fengið margar fyrirspurnir um félagið. 26.10.2005 12:15
Aldrei í vafa að Flateyri yrði endurbyggð Tuttugu létust og stór hluti byggðarinnar þurrkaðist út þegar snjóflóðið féll. Þrátt fyrir það voru flestir heimamenn á því að Flateyri skyldi endurreist. Fyrir tíu árum vaknaði Magnea við að snjóflóð hafði fallið. Hún segir tilfinninguna hafa verið óraunverulega, en skelfilega. 26.10.2005 12:07
Aukin spurn eftir gæðahúsnæði hækkar vísitölu Aukin spurn eftir gæðahúseignum hefur hækkað húsnæðisvísitöluna talsvert umfram raunverulega hækkun og þar með skrúfað verðbólgu og neysluvísitölu óeðlilega mikið upp að mati Ásdísar Kristjánsdóttur hagfræðings. 26.10.2005 12:00
HR býður upp á meistaranám í tækni- og verkfræði Háskólinn í Reykjavík hyggst bjóða upp á meistaranám í tækni- og verkfræði frá og með næstu önn sem hefst í janúar, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá skólanum. 26.10.2005 11:45
Frestur Atlantsolíu til framkvæmda að renna út Frestur Atlantsolíu til að hefja byggingarframkvæmdir við bensínstöð á lóð, sem félagið fékk úthlutað á Skeiði á Ísafirði í fyrra, rennur út í byrjun nóvember en þau skilyrði voru sett við úthlutun lóðarinnar að framkvæmdir þyrftu að hefjast innan árs. 26.10.2005 11:30
Sýrlendingar vilja rannsaka morðið á Hariri Sýrlensk stjórnvöld segjast reiðubúin að hefja eigin rannsókn á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Hins vegar hafna þau rannsókn Sameinuðu þjóðanna á morðinu og segja hana ekki hlutlausa. 26.10.2005 11:00
Ekki verði auglýst í ljósvakamiðlum Stjórn Varðar, sem er fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, samþykkti á fundi sínum að skora á frambjóðendurna í prófkjöri flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar að auglýsa ekki í ljósvakamiðlum. 26.10.2005 10:30
Selur í höfninni í Þórshöfn Selur svamlaði í höfninni í Þórshöfn um helgina. Selurinn var mjög forvitinn og gerði margar tilraunir til að komast upp á bryggjuna en tókst ekki. Sjómenn töldu selinn tæplega fullvaxinn en vel á sig kominn og pattaralegan. 26.10.2005 10:15
Ný bygging á horni Lækjargötu og Vonarstrætis Fyrirhugað er að reisa fimm hæð banka- og skrifstofubyggingu á horni Lækjargötu og Vonarstrætis þar sem nú er meðal annars skrifstofubygging Íslandsbanka, Foreldrahús og bílastæði. Að sögn Morgunblaðsins er það Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. sem hyggst reisa stórhýsið sem verður tæplega ellefu þúsund fermetrar að stærð. 26.10.2005 10:00
Fyrirtaka í máli Auðar gegn Hannesi Nú klukkan tíu verður fyrirtaka í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Auðar Laxness, ekkju Halldórs Laxness, gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor vegna meintra brota á höfundarrétti í bók Hannesar um Nóbelskáldið, Halldór. 26.10.2005 10:00
Skera upp herör gegn grimmilegri meðferð á dýrum Yfirvöld í Róm á Ítalíu hafa skorið upp herör gegn kærulausum gæludýraeigendum og -seljendum og hafa sett margs konar reglur til þess að koma í veg fyrir grimmilega meðferð á dýrum. 26.10.2005 09:45
Kostnaður vegna Símasölu hátt í 800 milljónir Tíu milljónir af söluandvirði Símans fóru til framkvæmdanefndar um einkavæðingu vegna nefndarlauna og ferðakostnaðar. Auk þess fékk Morgan Stanley-fjárfestingabankinn greiddar 682 milljónir króna fyrir ráðgjöf sína. 26.10.2005 09:30
40 starfsmönnum Medcare sagt upp Stefnt er að því að færa starfsemi Medcare utan og verður hátt í 40 starfsmönnum hér á landi sagt upp. Búið er að tilkynna um yfirvofandi uppsagnir á starfsmannafundum. 26.10.2005 09:15
Stuðningur og samúð minnisstæð Flateyringum Stuðningur og samúð íslensku þjóðarinnar eru Flateyringum minnistæð nú þegar tíu ár eru liðin frá því að snjóflóðið féll á Flateyri þar sem 20 manns létu lífið. 26.10.2005 09:00
Hvatt til aukinna framlaga til þróunaraðstoðar 57. þing Norðurlandaráðs var sett á Hótel Nordica í Reykjavík í gær. Á dagskrá í gær voru almennar stjórnmálaumræður. 26.10.2005 08:45
Sérfræðikostnaður nær tvöfaldast Kostnaður hins opinbera við kaup á sérfræðiþjónustu nær tvöfaldaðist milli áranna 1998 og 2003 að því er fram kemur í úttekt Ríkisendurskoðunar sem unnin var að beiðni Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingar. 26.10.2005 08:30
Vinsældir Bush minnka Fimmtíu og fimm prósent Bandaríkjamanna myndu kjósa Demókrata ef gengið yrði til kosinga nú. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar Gallup, CNN og dagblaðsins USA Today. 26.10.2005 08:30
Segir margar ríkar þjóðir hafa brugðist Margar af ríkustu þjóðum heims hafa brugðist þegar kemur að því að aðstoða fórnarlömb jarðskjálftans í Suður-Asíu sem varð fyrir tæpum þremur vikum. Þetta segja bresku hjálparsamtökin Oxfam og benda á að einungis hafi fengist loforð fyrir þriðjungi þess fjár sem Sameinuðu þjóðirnar hafa farið fram á vegna hamfaranna. 26.10.2005 08:30
Grunur um fuglaflensu á Indlandi Yfirvöld á Indlandi hafa sent blóðsýni úr farfuglum sem fundist hafa dauðir í vesturhluta Bengal-skóganna síðustu vikuna til rannsókna vegna gruns um fuglaflensu. 26.10.2005 08:15
Rjúpnaskyttur gripnar á Þingvöllum Lögreglumenn frá Selfossi stóðu tvær rjúpnaskyttur að ólöglegum veiðum í þjóðgarðinum á Þingvöllum í gær. Skotmennirnir höfðu skotið fjórar rjúpur þegar að var komið, og lagði lögregla hald á þær og skotvopln mannanna, sem eiga yfir höfði sér sektir, þar sem skotveiðar eru bannaðar í þjóðgarðinum. 26.10.2005 08:00
Segja tengsl milli messusóknar og auðæfa Það að sækja trúarlegar athafnir getur ekki aðeins göfgað sálina heldur einnig stuðlað að ríkidæmi. 26.10.2005 08:00
Fuglaflensa í Þýskalandi Fuglaflensusmit greindist í dauðum gæsum í Þýskalandi í gær. Flensan sem greindist í gæsunum er talin af H5N1 stofn veirunnar. 26.10.2005 07:45
Norðmenn græða á fuglaflensu Fuglaflensa leiðir ekki aðeins til útgjalda fyrir ríki heims. Norðmenn hafa komist að raun um að það er líka hægt að græða á óttanum við fuglaflensu. 26.10.2005 07:45
Sagður hafa logið að þingnefnd Breski þingmaðurinn George Galloway þverneitar að hafa borið ljúgvitni fyrir bandarískri þingnefnd síðastliðið vor, eins og nýjar upplýsingar eru sagðar benda til að hann hafi gert. 26.10.2005 07:39
Norðurlandaráðsþing sett í gær 57. þing Norðurlandaráðs var sett á Hótel Nordica í Reykjavík í gær. Á dagskrá í gær voru almennar stjórnmálaumræður. 26.10.2005 07:30
Sveitarstjórnarmenn ekki á eitt sáttir Hugmyndir að breyttri skipan lögregluembætta víða um land fara mis vel í sveitarstjórnarmenn. Sveitarstjórinn í Reykhólahreppi undrast að samgöngubætur í sýslunni skuli ekki hafa verið höfð til hliðsjónar. Bæjarstjórinn á Hornafirði segir að við fyrstu sýn virðist tillögurnar ganga þvert á hugmyndir um nærþjónustu og ákvarðantöku íbúa í héraði. 26.10.2005 07:30
Greinist á enn fleiri stöðum Enn á ný hefur fuglaflensa greinst í Kína, að þessu sinni í rúmlega fimm hundruð öndum og kjúklingum í Hunan-héraði. Yfirvöld þar hafa fargað tvö þúsund og fimm hundruð fuglum í varúðarskyni. 26.10.2005 07:30
Fundu neyðarsendi Vamos Þyrla frá danska varðskipinu Hvítabirninum fann í gær neyðarsendi skútunnar Vamos á floti skammt undan austurströnd Grænlands. Þann 27. september bjargaði áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar skipverja af laskaðri skútunni en félagi hans fórst. Þá var sendirinn ofan í skútunni og er því talið að hún sé sokkin. 26.10.2005 07:26
Leituðu konu og stúlku á Möðrudalsöræfum Kona og stúlka sem leitað var að á Austurlandi fundust heilar á húfi á Möðrudalsöræfum laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. Þær voru gestkomandi á bæ í Breiðdal en ætluðu í stuttan bíltúr um hádegisbil. Þegar þær voru ekki komnar aftur um kvöldmatarleytið hófu björgunarsveitir leit eystra og eftirgrennslan víða um land. 26.10.2005 07:15
Ísraelsher skýtur á Gasa Ísraelski herinn skaut í morgun úr flugvélum og af jörðu niðri á svæði á norðanverðri Gasaströndinni, þaðan sem herskáir Palestínumenn skutu í nótt flugskeytum að borginni Sderot í Ísrael. Ekki er vitað til þess að neinn hafi fallið í valinn. 26.10.2005 07:11
Eyfirskir bændur vilja kynbæta kúastofninn Eyfirskir kúabændur samþykktu í vikunni ályktun til Landssambands kúabænda um að hafist verði þegar handa við undirbúning að kynbótum á íslenska kúastofninum með innfluttu erfðaefni. Í nóvember 2001 höfnuðu bændur hins vegar með afgerandi hætti kynblöndun íslenska kúastofnsins við þann norska. 26.10.2005 07:00
Áfengissýki norskra ungmenna eykst Norsk ungmenni hafa tvöfaldað áfengisneyslu sína síðustu árin og fjórðungi fleiri ungmenni eiga við áfengisvandamál að stríða nú en fyrir fimm árum. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem norska heilbrigðisráðuneytið hefur tekið saman og norska Ríkisútvarpið greinir frá. 26.10.2005 06:50