Fleiri fréttir

Sat fastur undir Höfðabakkabrú

Vörubifreið með tengivagn festist undir Höfðabakkabrú yfir Vesturlandsveg um klukkan tuttugu mínútur fyrir 12 í gærdag. Ökumaður bifreiðarinnar hafði ekki gætt að því að farmur tengivagnsins var hærri en svo að hann kæmist undir brúnna og því fór sem fór.

Sömu fargjöld hjá flugfélögunum

Bandaríska flugfélagið Delta hækkaði þann 15. júní flest fargjöld í flugi yfir Atlantshafið. Þotueldsneyti hefur hækkað töluvert í verði síðustu mánuði og gætu fleiri fargjöld átt eftir að hækka. Íslensku flugfélögin búast þó ekki við að hækka fargjöld á næstunni.

Ummæli Jóns Baldvins ómerkt

Ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar sendiherra sem hann viðhafði í Dagblaðinu um fyrrum tengdason sinn Marco Brancaccia, yfirmann ítölsku fréttaþjónustunnar ANSA í Mið-Ameríku, voru á miðvikudag ómerkt í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Stærra hótel í Stykkishólmi

Hótel Stykkishólmur stækkar um rúmlega helming þegar nýbygging hótelsins verður tilbúin á næstu dögum. Nýja byggingin verður alls þrjár hæðir en þegar hefur neðsta hæðin verið opnuð en eftir stækkunina verða alls áttatíu herbergi á hótelinu en voru fyrir hana rúmlega þrjátíu.

Sjö og hálft ár fyrir axarárás

Hæstiréttur staðfesti dóm yfir Birki Birgissyni sem hlaut sjö og hálfs árs fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði. Birkir réðst á mann með exi og sló hann í höfuðið. Hann var enn fremur dæmdur fyrir sjö líkamsárásir, brot á vopnalögum og umferðarlögum.

Vilja breska mótmælandann lausan

Efnt var til mótmæla fyrir framan Dómsmálaráðuneytið vegna gæsluvarðhaldsúrskurðarins sem Bretinn Paul Gill fékk. Paul var einn þremenninganna sem tók þátt í slettumótmælunum í Nordica-hóteli fyrr í vikunni. Íslendingunum tveimur var sleppt, en Paul var á miðvikudaginn dæmdur í sex daga gæsluvarðhald á Litla-Hrauni.

Ómálefnalegur dómur segir lögmaður

Tveir erlendir starfsmenn ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo við Kárahnjúka voru dæmdir í gær í Héraðsdómi Austurlands til greiðslu 50 þúsund króna sektar auk sakarkostnaðar hvor fyrir að hafa starfað hér að löggiltri iðngrein án viðurkenningar á starfsréttindum. Annar var verkstjóri smíðaverkstæðis og hinn verkstjóri í rafmagnsdeild.

Sýknuð þrátt fyrir ölvun

Héraðsdómur Reykjaness sýknaði gær konu af ölvunarakstri. Konan hafði ekið á gangandi vegfaranda hjá Fjörukránni í Hafnarfirði. Áfengismagn í blóði hennar var 1,58 prómill.

Baugur stofnar styrktarsjóð

Baugur ákvað í síðustu viku að verja þrjú hundruð milljónum króna á árinu í stofnun sjóðs sem á að styrkja líknar- og velferðarmál barna en einnig menningar- og listalíf. Gert er ráð fyrir að heildarframlög sjóðsins verði 40-60 milljónir króna á ári.

Braut glas á andliti annars

31 árs gamall maður var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að brjóta glas á andliti manns inni á skemmtistaðnum Glaumbar í apríllok 2001. Refsingin er skilorðsbundin í tvö ár, en að auki þarf hann að greiða fórnarlambi sínu, sem missti fimm tennur, tæpar 370.000 krónur.

Urðu bensínlausir eftir innbrot

Tveir menn, 22 og 25 ára gamlir, voru í Héraðsdómi Austurlands í gær dæmdir í mánaðarfangelsi hvor, en báðir eru dómarnir skilorðsbundnir í tvö ár. Þá er þeim gert að greiða hvor um sig Olíuverslun Íslands hf. 51.790 krónur með vöxtum.

Geymdi þýfi fyrir litla bróður

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær þrítugan mann í sjö mánaða fangelsi fyrir að taka við og geyma þýfi fyrir sex árum yngri bróður sinn. Fimm mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir í þrjú ár.

Baugur stofnar styrktarsjóð

Baugur Group hefur ákveðið að verja 300 milljónum króna til að stofna sérstakan styrktarsjóð. Gert er ráð fyrir að framlög úr sjóðnum verði 40 til 60 milljónir króna á ári og verður það til að styðja margvísleg líknar- og velferðarmál barna auk menningar og listar.

Snyrtileg höfuðföt á Ascot

Það er höfuðmál að vera glæsilegur til höfuðsins á konunglegu Ascot-veðreiðunum í Bretlandi en þær standa nú sem hæst. Það þykir að vísu reginhneyksli að aðallinn sem sækir þessar veðreiðar heim þurfi nú að fara alla leið til York til að vera við þær og hattatískan virðist ekki hafa batnað við flutningana. Hattarnir gætu þó komið að góðum notum því að í gær var veðrið heldur nöturlegt: rok og rigning.

Sameining dæmd lögleg

Sveitarstjórn Norður-Héraðs fór að lögum þegar sameining sveitarfélagsins Fellahrepps og Austur-Héraðs stóð fyrir dyrum og því hafnaði Hæstiréttur í gær kröfu átta einstaklinga sem kröfðust þess að staðfesting Félagsmálaráðuneytisins á sameiningunni væri dæmd ógild.

Samherji styrkir Stöðvarfjörð

Samherji hefur ákveðið að leggja tuttugu milljónir í uppbyggingu smærri fyrirtækja á Stöðvarfirði. Fyrsta september næstkomandi munu 32 Stöðfirðingar missa vinnu sína hjá Samherja þegar fyrirtækið lokar frystihúsi sínu á staðnum.

Brutu lögin í góðri trú

Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í gær Humarvinnsluna í Þorlákshöfn fyrir brot á lögum um stjórn fiskveiða. Framkvæmdastjórinn sagðist hafa brotið lögin fyrir mistök, en hann hefði verið nýbyrjaður í útgerð. Átti brotið sér stað sumarið 2003.

Eignin 34 en ekki 25 prósent

Ríkisendurskoðandi gat ekki veitt fullnægjandi svör um eignarhald venslamanna forsætisráðherra í Ketillaugu ehf. og eign félagsins í Skinney Þinganesi á fundi fjárlaganefndar í gær.

Þungur rekstur skóla og sendiráða

Ráðuneyti utanríkismála og landbúnaðarmála fóru um og yfir tíu prósent fram úr fjárheimildum á síðasta ári samkvæmt bráðabirgðayfirliti fjármálaráðuneytisins, samtals um 550 milljónir króna.

Ríkisendurskoðandi lauk rannsókn

Ríkisendurskoðandi lauk nú undir kvöld endurskoðun sinni á hæfi forsætisráðherra varðandi sölu ríkisbankanna eftir að hafa fengið enn eitt atriðið til úrlausnar í dag. Nýjar upplýsingar, sem lagðar voru fram á fundi fjárlaganefndar Alþingis, bentu til að eignarhlutur Halldórs Ásgrímssonar og fjölskyldu hans í fyrirtækjum, sem tengdust bankasölunni, væri stærri en gert var ráð fyrir í fyrri könnun Ríkisendurskoðanda.

Holræsagjald ekki lagt niður

Dælustöðin í Gufunesi er tilbúin og þar með lýkur hreinsun strandlengju borgarinnar af skólpi. Holræsagjaldið verður samt ekki fellt niður, en því var ætlað að standa straum af þessum framkvæmdum.

Fáir mótmæltu varðhaldi yfir Gill

Fáir sinntu því kalli að mótmæla gæsluvarðahaldi yfir Paul Gill við dómsmálaráðuneytið í dag. Gill er einn þremenninganna sem skvettu grænu skyri á ráðstefnugesti á Nordica-hóteli og sá eini sem situr í gæsluvarðhaldi vegna verknaðarins.

Fjárdráttur kærður til lögreglu

Lögreglu verður sent fjárdráttarmál starfsmanns Reykjavíkurborgar til rannsóknar komi í ljós við athugun að hann hafi dregið sér fé frá geðsjúkum.

Gerð Kárahnjúkastíflu hálfnuð

Gerð Kárahnjúkastíflu, stærsta mannvirkis Íslands, er nú hálfnuð og er endanleg mynd komin á hluta stíflunnar. Eftirlitsaðilar segja verktakann kominn yfir erfiðasta hjallan og fram undan sé beinn og breiður vegur.

Svartsýni á árangur

Við upphaf tveggja daga leiðtogafundar Evrópusambandsins í Brussel í gær kallaði Jacques Chirac Frakklandsforseti eftir því að efnt verði til sérstaks leiðtogafundar aðildarríkjanna 25 um framtíð sambandsins. "Þetta er einn erfiðasti leiðtogafundur sem við höfum nokkru sinni haldið," sagði Jean Asselborn, utanríkisráðherra Lúxemborgar.

Heppin amma

Donna Goeppert, 55 ára gömul amma í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, vann eina milljón dollara, andvirði um 65 milljóna króna, í lottói í vikunni. Það væri ekki sérstaklega í frásögur færandi nema vegna þess að hún hafði áður unnið milljón dollara hámarksvinninginn.

Segir bin Laden ekki í Afganistan

Sendiherra Bandaríkjanna í Afganistan, Zalmay Khalilzad, fullyrti í gær að hvorki Osama bin Laden né fyrrverandi talibanaleiðtoginn Mullah Omar væru í landinu.

Danir styðja afnám hvalveiðibanns

Eina leiðin til að vernda hvali er að afnema hið algera bann við veiðum í atvinnuskyni sem verið hefur í gildi frá því árið 1986. Þetta hefur danska blaðið Politiken eftir Per Stig Møller, utanríkisráðherra Danmerkur.

Gagnrýna ESB fyrir Hamas-tengsl

Ísraelsk stjórnvöld sögðust í gær hafa lagt inn formleg mótmæli hjá Evrópusambandinu gegn auknum samskiptum þeirra við hin herskáu Hamas-samtök Palestínumanna. Talsmenn Hamas staðfestu að tengsl við erindreka ESB færust í aukana.

Hyggjast sniðganga kosningar

Íranar hyggjast margir hverjir sniðganga kosningar á morgun þar sem þeir vilja breytingar í landinu. Þeir eru hins vegar ekki sammála um hvaða breytingar. Hver sem verður kosinn munu harðlínumenn eftir sem áður ráða mestu.

Samið við súnní-araba

Sex bandarískir hermenn féllu í sprengju-og skotárásum í vesturhluta Íraks í gær og minnst átta írakskir lögreglumenn létu lífið í sjálfmorðs-bílsprengjuárás nærri Bagdadflugvelli. Ofbeldisverkin eru talinn liður í baráttu uppreisnarmanna gegn því að nýju stjórnkerfi Íraks takist að festa sig í sessi.

Lengri frestur á stafræn vegabréf

Bandarísk yfirvöld hafa ákveðið að gefa borgurum 27 landa sem hafa mátt ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar, þar á meðal Íslands, eins árs lengri frest til að verða sér úti um vegabréf sem uppfylla nýjustu öryggiskröfur.

Gott veður á þjóðhátíðardaginn

Það er þjóðsaga á Íslandi að það sé alltaf rigning á 17. júní en þann dag árið 1911 var glampandi sól um allt land og hiti 8-15 stig, hlýjast í höfuðborginni. Þannig verður það einnig á morgun.

Nýtt síldarævintýri í uppsiglingu?

Munum við aftur upplifa síldarævintýri eins og í gamla daga þar sem ungar stúlkur og piltar flykktust þúsundum saman til Norður- og Austurlands til að vinna í síld? Endurkoma norsk-íslensku síldarinnar inn í íslenska lögsögu vekur slíkar spurningar.

Mikil vatnsnotkun í Reykjavík

Meðalvatnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu hefur vaxið gríðarlega að undanförnu vegna þurrka, samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur. Hefur hún farið upp í 85.630 þúsund tonn á sólarhring en er í eðlilegu árferði 47.520 þúsund tonn á sólarhring.

Sjóræningjaskip á karfaslóð

Nokkur skip sáust í eftirlitsflugi TF-SYN, flugvélar Landhelgisgæslunnar, á karfaslóð á Reykjaneshrygg utan íslenskrar lögsögu í gær.

Skutu barn til bana

Fjórir grímuklæddir byssumenn tóku tugi barna í gíslingu í alþjóðlegum skóla nærri Ankor Wat hofunum í Kambódíu í gær. Mennirnir skutu eitt barnið, þriggja ára gamlan kanadískan strák til bana því hann grét of mikið.

Páfi vill sátt við aðra kristna

Samuel Kobia, leiðtogi Heimsráðs kirkja, lýsti því yfir í gær á fundi með páfa að hann vildi sættast við rómversk-kaþólsku kirkjuna og auka sameiginlegan skilning. Benedikt sextándi páfi tók vel í umleitanir hans um að bæta sambandið.

Miklar framkvæmdir í Leifsstöð

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar að undanförnu og í dag var opnuð ný komuverslun Fríhafnarinnar.

Arftaki Concorde

Frakkar og Japanir hafa hafið samstarf um þróun á nýrri háhraðaþotu sem gæti tekið við hlutverki Concorde-þotanna sem lagt var fyrir fullt og allt í fyrra. Fyrirtæki frá báðum löndum hafa skuldbundið sig til að verja samtals 1,84 milljónum Bandaríkjadala árlega næstu þrjú ár til að þróa hugmyndina.

Deep Throat gerir útgáfusamning

Mark Felt, maðurinn sem nýverið gekkst við því að vera hinn svokallaði "Depp Throat" í Watergatemálinu, hefur nú selt Public Affairs útgáfufyrirtækinu réttinn á bæði ævisögu sinni og því að gera kvikmynd um líf sitt.

Kasparov gagnrýnir lögreglu

Garrí Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, hefur gagnrýnt rússnesku lögregluna harðlega fyrir að hafa ráðist að mótmælendum með ofbeldi við réttarhöldin yfir Mikhail Khodorkovsky.

Danir styðja afnám hvalveiðibanns

Eina leiðin til að vernda hvali er að afnema hið algera bann við veiðum í atvinnuskyni sem verið hefur í gildi frá því árið 1986. Þetta hefur danska blaðið Politiken eftir Per Stig Møller, utanríkisráðherra Danmerkur.

Koizumi hættir á næsta ári

Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, ætlar að hætta í september á næsta ári. Kouzumi tilkynnti þetta í dag og sagðist ætla að segja af sér um leið og formennskutími hans í LDP-flokknum rennur út. Koizumi komst til valda árið 2001 þegar hann var kjörinn með miklum meirihluta en eitt af loforðum hans var að knýja fram endurbætur á flokknum, sem verið hafa lítt áberandi.

Sjá næstu 50 fréttir