Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vill bíða með atkvæðagreiðslur Forseti Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir rétt að bíða með frekari atkvæðagreiðslu um stjórnarskrá sambandsins eftir að Hollendingar og Frakkar höfnuðu henni. Jose Manuel Barroso segir að stjórnarskráin sé alls ekki endanlega búin að vera en hins vegar sé skynsamast að bíða með frekari atkvæðagreiðslur að sinni. 15.6.2005 00:01
Írak ekki öruggara en fyrir innrás Írak er ekki öruggara en árið 2003 þegar ráðist var inn í landið, segir Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Rumsfeld viðurkenndi í viðtali við sjónvarpsstöðina <em>BBC</em> í gærkvöldi að öryggi óbreyttra borgara væri síst meira nú en fyrir innrásina. Það mætti ekki síst rekja til þess að stjórnvöld í Sýrlandi og Íran gerðu ekki nóg til þess að loka landamærunum að Írak fyrir uppreisnarmönnum. 15.6.2005 00:01
Ármann tekur við af Gunnsteini Ármann Kr. Ólafsson var kosinn forseti bæjarstjórnar Kópavogs í gærkvöldi og tekur hann við embættinu af Gunnsteini Sigurðssyni. Aðrir í bæjarráði þessa næststærsta bæjar landsins eru Gunnar I. Birgisson, Halla Halldórsdóttir, Hansína Björgvinsdóttir, Ómar Stefánsson og Flosi Eiríksson. 15.6.2005 00:01
Vinnuvél stórskemmdist í bruna Vinnuvél stórskemmdist eða eyðilagðist í bruna í Kópavogi í gær. Tilkynnt var um eldinn seint í gærkvöldi en vinnuvélin var við Vatnsenda. Engan sakaði. 15.6.2005 00:01
Réðst á tólf ára dreng 44 ára vörubílsstjóri, Hreggviður Heiðarsson, réðst á tvo unga drengi, tólf og þrettán ára síðasta laugardagskvöld. Hluti árásarinnar var tekin upp á GSM síma og hefur DV myndskeiðið undir höndum. Ennfremur má sjá myndskeiðið hér á Vísi. 15.6.2005 00:01
Fólk óþarft við lyfjaprófun? Það kann að verða óþarft að nota fólk við prófun á lyfjum í allra nánustu framtíð. Nokkur lyfjafyrirtæki hafa þegar tekið í notkun tölvubúnað sem líkir eftir líffræðilegum ferlum í fólki og getur þannig sagt til um hugsanlega virkni lyfja sem verið er að þróa. Með þessari aðferð er einnig hægt að ákvarða áhrif mismunandi skammtastærða á fólk og því ekki þörf á að prófa lyf á fjölmörgum viðmiðunarhópum. 15.6.2005 00:01
Bjóða upp áritaða Mein Kampf Áhugasamir geta nú boðið í eintak af Mein Kampf, áritað af sjálfum Adolf Hitler. Bókin fannst í einni af skrifstofum Hitlers skömmu eftir lok seinni heimstyrjaldarinnar. Eintakið verður boðið upp hjá Bloomsbury í Bretlandi og búist er við að til að hreppa hnossið þurfi að reiða fram um það bil þrjár milljónir íslenskra króna. 15.6.2005 00:01
Kjötát auki líkur á ristilkrabba Ný viðamikil rannsókn bendir til þess að mikið kjötát auki verulega líkurnar á krabbameini í ristli. Samkvæmt rannsókninni er þróun slíks krabbameins meira en þriðjungi líklegri hjá þeim sem borða kjöt tvisvar á dag en hjá þeim sem aðeins borða kjöt einu sinni í viku. Fiskát vegur hins vegar á móti þessari þróun og því hvetja rannsakendur alla til þess að skipta út kjöti fyrir fisk þegar því verður viðkomið. 15.6.2005 00:01
Handtóku grunaða hryðjuverkamenn Lögregla á Spáni hefur handtekið sextán grunaða íslamska öfgamenn. Þar af eru ellefu tengdir Osama bin Laden, leiðtoga al-Qaida, að sögn talsmanns spænska innanríkisráðuneytisins. Hinir fimm eru sagðir tengjast hryðjuverkunum í Madríd þann 11. mars á síðasta ári. Fimm hundruð lögreglumenn tóku þátt í aðgerðunum sem leiddu til handtöku mannanna. 15.6.2005 00:01
Mannskæð árás í Bagdad Sjálfsmorðssprengjumaður myrti nú rétt áðan sextán manns þegar hann sprengdi sig í loft upp á veitingastað í Bagdad. Veitingastaðurinn er mikið sóttur af írökskum hermönnum. Frengir af árásinni eru enn óljósar en þó er vitað að sextán biðu bana í henni. 15.6.2005 00:01
Mótmæla virkjun áa fyrir álbræðslu Náttúruverndarsamtök Íslands mótæla harðlega áformum um virkjun Jökulsánna í Skagafirði og Skjálfandafljóts í þágu álbræðslu. Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi félagsins í gær. Þar segir einnig að álver á Norðurlandi krefjist gífurlegrar orku og sé hætt við að horft verði til virkjunar Jökulsár á Fjöllum þrátt fyrir gefin fyrirheit um að hún ásamt tilheyrandi vatnasviði verði friðlýst innan þjóðgarðs. 15.6.2005 00:01
Bin Laden sagður við hestaheilsu Osama bin Laden er við hestaheilsu að sögn háttsetts talibana. Sá vísar sögusögnum um heilsubrest leiðtoga al-Qaida á bug og segir þær ekki eiga við rök að styðjast. Mullah Akhtar Usmani sagði einnig að leiðtogi talbana, Mullah Mohammed Omar, væri hraustur og stýrði aðgerðum talibana í Afganistan. 15.6.2005 00:01
Fresta gildistöku vegabréfa Bandaríkjastjórn ætlar að veita 27 Evrópuríkjum enn lengri frest til að ganga frá rafrænum vegabréfum með stafrænum myndum og fingrafari. Ísland er meðal ríkjanna en borgarar þeirra þurfa ekki vegabréfsáritun hyggist þeir dvelja skemur en þrjá mánuði í Bandaríkjunum. Mörg ríkjanna hafa greint bandarískum yfirvöldum frá því að þau sjái sé ekki fært að uppfylla öll skilyrðin fyrir lok október næstkomandi þegar nýjustu reglurnar eiga að taka gildi. 15.6.2005 00:01
Víkurfréttavefur tíu ára í dag Vefur <em>Víkurfrétta</em> er tíu ára í dag en þetta er líklegasta elsti fréttavefur landsins af þessu tagi. <em>Víkurfréttir</em> voru fyrsti íslenski fréttamiðillinn sem bauð lesendum ókeypis aðgang að fréttaefni á Netinu. Á upphafsárunum var efni sett vikulega á vefinn en fyrir rúmum fimm árum var byrjað að setja efni inn á hann daglega og oft á dag. 15.6.2005 00:01
Ástandið hafi ekkert batnað í Írak Ástandið í Írak hefur ekkert batnað frá því að Saddam Hussein var steypt af stóli, að mati Donalds Rumsfelds, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. 15.6.2005 00:01
Rússi enn á gjörgæsludeild Rússneski sjómaðurinn, sem Landhelgisgæslan sótti í togarann Ostrovet frá Dóminíku í fyrrinótt, liggur enn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi en er þó ekki í lífshættu. Maðurinn hlaut stungusár á kvið við fiskvinnslu um borð og fer ræðismaður sendiráðs Rússlands á Íslandi fyrir máli hans. 15.6.2005 00:01
Lítil áhrif aukinnar framleiðslu Olíuframleiðsla verður aukin til að slá á verðið á olíufatinu en talið er ólíklegt að það hafi nokkur áhrif. 15.6.2005 00:01
Sunny Jane á leið til Kalíngrad Flutningaskipið Sunny Jane, sem tók við afla úr svokölluðum sjóræningjaskipum suður af Íslandi, er nú á leið til Kalíngrad sem tilheyrir Rússlandi með aflann. Skipinu var neitað um löndun í Hollandi. Síðasta föstudag tók skipið olíu og kost í Hollandi og lét úr höfn áleiðis til Kalíngrad. 15.6.2005 00:01
Slíta öllu samstarfi við ráðherra Kennarasambandið hefur slitið öllu samstarfi við menntamálaráðherra um að stytta námstíma til stúdentsprófs. Formaður Kennarasambandsins segir að með þessu sé verið að mótmæla afskiptaleysi ráðherra sem hvorki ræði við kennara né svari ósk þeirra um viðræður vegna áformanna. 15.6.2005 00:01
Sakfelldir fyrir skattsvik Fjórir menn voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir fyrir að standa ekki skil á tugmilljónum króna í virðisaukaskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda. Þrír menn úr Landssímamálinu voru sakfelldir en einn þeirra, Sveinbjörn Kristjánsson, var sýknaður af ákærum. 15.6.2005 00:01
Þvær hendur sínar af mótmælanda Náttúruvaktin þvær hendur sínar af Ólafi Páli Sigurðssyni, sem er einn þriggja mótmælenda, sem skvettu grænleitum vökva á ráðstefnugesti á álráðstefnu á Nordica-hóteli í gær. Þremenningarnir voru enn í haldi lögreglu skömmu fyrir hádegisfréttir. 15.6.2005 00:01
Ætlar ekki að selja flugvallarland Samgönguráðherra ætlar ekki að selja land ríkisins sem Reykjavíkurflugvöllur er á og byggja nýja flugvöll verða þar með við áskorun flokksbræðra sinna á Akureyri. Þá telur hann ekki tímabært að gera hálendisveg á meðan enn er margt óunnið við hringveginn. 15.6.2005 00:01
Vísar ásökunum kennara á bug Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra vísar því á bug að hún hafi hvorki viljað tala við kennara né hlustað á sjónarmið þeirra vegna áforma um að stytta nám til stúdentsprófs. Hún segir það slæmt ef forysta kennara vilji ekki vera með í því umfangsmikla ferli að endurskoða öll skólastigin því um sé að ræða mikla hagsmuni til framtíðar. 15.6.2005 00:01
Farið fram á gæsluvarðhald Farið hefur verið fram á gæsluvarðhald yfir Paul Gill, breska atvinnumótmælandanum, sem var einn þremenninganna sem mótmæltu á álráðstefnu á Nordica-hóteli í gær. Náttúruvaktin þvær hendur sínar af Ólafi Páli Sigurðssyni, einum mótmælendanna, þrátt fyrir að fram komi á heimasíðu samtakanna að þegar hún varð að fullgildum samtökum í október síðastliðnum gegndi Ólafur Páll Sigurðsson starfi framkvæmdastjóra þar. 15.6.2005 00:01
Vilja styrkja háskóla enn frekar Tímamót urðu í sögu háskólastigsins í morgun þegar rektorar allra háskóla landsins undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um að styrkja háskólana enn frekar og standa vörð um akademískt frelsi. 15.6.2005 00:01
Samið um vátryggingavernd Fulltrúar Hrafnistu, Sjómannadagsráð og fleiri aðilar þeim tengdir hafa skrifað undir samning við Tryggingamiðstöðina hf. um víðtæka vátryggingavernd. Nær hún til ábyrgðartrygginga, eignatrygginga, slysatrygginga og ökutækjatrygginga og er m.a. samið um tryggingar á yfir tuttugu þúsund fermetrum af fasteignum og tryggingar fleiri en eitt þúsund starfsmanna. 15.6.2005 00:01
Önnur mannskæð árás í Írak Að minnsta kosti tíu létust og 29 særðust í bílsprengjuárás á hóp írakskra lögreglumannna sem voru á eftirlitsferð um Suður-Bagdad í dag. Meðal hinna látnu voru bæði almennir borgarar og lögreglumenn og segja yfirvöld í borginni að sprengingin hafi verið svo öflug að stór gígur hafi myndast eftir hana og þá eyðilögðust einnig nokkrir bílar. 15.6.2005 00:01
95% sóttu um framhaldsskólavist 95 prósent nemenda úr 10. bekk, eða 4.231 nemandi, sóttu um framhaldsskólavist í ár en aldrei hafa hlutfallslega jafnmargir sótt um skólavist í framhaldsskólum úr einum árgangi. Rafrænni innritun í framhaldsskóla lauk á miðnætti í nótt en þetta var í fyrsta sinn sem nemendum 10. bekkjar gafst færi á að sækja um á Netinu. 15.6.2005 00:01
Hersveitir frelsa ástralskan gísl Írakskar og bandarískar hersveitir hafa frelsað Ástralann Douglas Wood sem hefur verið haldi írakskra uppreisnarmanna í sex vikur. Frá þessu greindi John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, á ástralska þinginu í dag. Ekki er ljóst hvort um var að ræða skipulagða aðgerð til að frelsa hann eða hvort hann hafi fundist í áhlaupi hersveita á aðsetur uppreisnarmanna en Howard sagði að hann nyti nú verndar ástralskra hersins. 15.6.2005 00:01
Kanna auglýsingar Ego Áfengis- og vímuvarnadeild Lýðheilsustofnunnar hyggst kanna hvort auglýsingar þær sem uppi hafa verið á bensínstöðvum Ego síðustu daga brjóti í bága við áfengis- og tóbaksvarnarlög. 15.6.2005 00:01
Fundu frænku jarðar Frænka jarðarinnar er fundin. Pláneta, sem líkist jörðinni mjög, hefur fundist og það alls ekki langt frá sólkerfi okkar. 15.6.2005 00:01
Hlakka til að byrja að ganga Á mánudag hefst Íslandsganga þeirra Bjarka Birgissonar og Guðbrands Einarssonar hringinn í kringum landið. Þeir félagar ganga undir kjörorðinu "Haltur leiðir blindan, til betra lífs" og vilja þeir vekja athygli á aðstæðum fatlaðra á Íslandi. 15.6.2005 00:01
Dótturfyrirtæki Össurar fær bætur Bandaríska stoðtækjafyrirtækið Bledsoe Brace Systems hefur verið dæmt af alríkisdómstól í Seattle í Washington-ríki til að greiða dótturfélagi stoðtækjafyrirtækisins Össurar, Generation Orthotics, tæplega sjö milljónir bandaríkjadala, jafnvirði 455 milljóna íslenskra króna í bætur, fyrir brot á einkaleyfum fyrirtækisins. 15.6.2005 00:01
Slegist um garðsláttinn Samkeppnin í garðslættinum er hörð og heyrst hefur af undirboðum á markaðnum. Á meðan sumir óttast ástandið eru aðrir rólegir og benda á að nóg sé af görðum. </font /></b /> 15.6.2005 00:01
Vigfús veiðir lúðu Vigfús Vigfússon á Dögg SF landað 2-3 tonnum af lúðu á þriðjudag, að því er fram kemur á fréttavefnum horn.is. Lúðurnar ku vera af öllum stærðum og mældust þær stærstu um tveir metrar að lengd. Samkvæmt horn.is lagði Vigfús lúðulínuna við Ingólfshöfðann og verður aflinn seldur ferskur til Englands. 15.6.2005 00:01
Í gæsluvarðhaldi fram á mánudag Paul Gill, breski atvinnumótmælandinn, sem var einn þremenninganna, sem mótmæltu álráðstefnu á Nordica-hóteli í gær, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni fram á mánudag. Hinum tveimur mótmælendunum var sleppt eftir yfirheyrslur í dag. 15.6.2005 00:01
Frakkar sakna frankans Þrír af hverjum fimm Frökkum sakna frankans, gjaldmiðilsins sem evran leysti af hólmi fyrir þremur árum. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem gerð var fyrir franska tímaritið <em>Valeurs Actuelles</em> og undirstrikar frekar afstöðu margra Frakka til samstarfs innan Evrópusambandsins, en eins og kunnugt er felldu Frakkar stjórnarskrá sambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu á dögunum. 15.6.2005 00:01
Allt að 42 daga bið eftir einkunn Þrátt fyrir reglur Háskóla Íslands um að kennarar hafi að hámarki þrjár vikur til að fara yfir prófin og skila einkunnum eru dæmi um allt að 42 dagar líði frá prófdegi, eða einn og hálfur mánuður án þess að einkunn hafi verið skilað. Flestum einkunnum hefur þegar verið skilað en sjö áfangar eru nú í vanskilum að því er greint er frá á vefnum prof.is. 15.6.2005 00:01
Markús og Guðmundur halda utan Utanríkisráðuneytið hefur í dag staðfest að Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri og Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, taki við sendiherrastöðum - eins og fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar greindi frá fyrir þremur vikum. Þá könnuðust hvorki Guðmundur Árni né Markús við að þetta stæði til og sögðust „koma af fjöllum“. 15.6.2005 00:01
Fá ekki greiðslur úr ríkissjóði Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag íslenska ríkið af kröfum bænda á bænum Hjallalandi í Sveinsstaðahreppi í Austur-Húnavatnssýslu, en þeir vildu að viðurkennt yrði með dómi að þeir ættu rétt á greiðslum úr ríkissjóði sem handhafar beingreiðslna sauðfjárbúsins á bænum. Þeir töldu sig eiga rétt á skaðabótagreiðslum úr ríkissjóði vegna breytinga á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á landbúnaðarafurðum sem tóku gildi árið 2000. 15.6.2005 00:01
Vifta bilar á Grundartanga Mikinn reyk leggur þessa stundina frá Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga. Að sögn Ingimundar Birnis framleiðslustjóra bilaði ein vifta fyrir filter í ofni þrjú í verksmiðjunni en ekki er vitað hvað olli biluninni. Hann segir að unnið sé að því að koma viftunni í lag. 15.6.2005 00:01
UNICEF aftur til starfa í Sómalíu Starfsmenn Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sneru aftur til starfa í norðausturhluta Sómalíu í dag, þremur vikum eftir að þeir höfðu fengið líflátshótanir. Í tilkynningu frá barnahjálpinni segir hún hafi leyst deilur við yfirvöld í Puntland-héraði og að unnið verði sameiginlega að velferð barna í héraðinu. Barnhjálpin lokaði í síðasta mánuði skrifstofum sínum í héraðinu eftir að starfsmenn hennar höfðu fengið nokkrar líflátshótanir, en róstusamt hefur verið í landinu í 14 ár. 15.6.2005 00:01
Reynir aftur við nektargöngu Einn frægasti strípalingur Bretlandseyja, Stephen Gough, sem reyndi fyrir rúmu ári að ganga nakinn frá syðsta odda Bretlands til þess nyrsta, hefur aftur komist í fréttirnar. Hann hyggst nú reyna í annað sinn að fara þessa 1400 kílómetra leið og þetta sinn með kærustu sinni. 15.6.2005 00:01
Bíður með að staðfesta sáttmála Stuðningsmenn stjórnarskár Evrópusambandsins urðu fyrir enn einu áfallinu í dag þegar Horst Köhler, forseti Þýskalands, tilkynnti að hann myndi ekki undirrita stjórnarskrársáttmálann fyrr en dómstólar í Þýskalandi hefðu staðfest að hann samræmdist stjórnarskrá Þýskalands. Bæði neðri og efri deild þýska þingsins samþykktu stjórnarskrársáttmálann í síðasta mánuði en forsetinn þarf að staðfesta hann með undirskrift. 15.6.2005 00:01
Grunaður um kynferðislegt ofbeldi Reykvíkingur á fertugsaldri er grunaður um að hafa beitt fjórar ungar stúlkur kynferðislegu ofbeldi. Á heimili mannsins fundust tugir barnaklámsmynda í tölvu hans. 15.6.2005 00:01
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent