Fleiri fréttir

Dæmdur fyrir tilraun til manndráps

Rúmlega fertugur maður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í eins og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hann stakk vin fyrrverandi sambýliskonu sinnar með hnífi fyrir framan hús hennar við Bjargartanga í Mosfellsbæ í byrjun febrúar.

Kreppa hjá frönskum sósíalistum

Franski Sósíalistaflokkurinn sem áður réði lögum og lofum í frönskum stjórnmálum er nú skyndilega í mikilli kreppu.

Allsherjarverkfall í Simbabve

Tveggja daga allsherjarverkfall hófst í Simbabve í gær. Til verkfallsins var boðað til að mótmæla aðgerðum ríkisstjórnar Robert Mugabe, sem hefur nú látið handtaka meira en þrjátíu þúsund fátæka íbúa landsins fyrir litlar sem engar sakir.

Landtökumenn burt af Gaza

Hæstiréttur Ísraels úrskurðaði í gær að fyrirhugaður brottflutningur Ísraelsstjórnar á landtökumönnum frá Gaza-svæðinu væri lögmætur.

Öryggisverðir í Írak rannsakaðir

Sextán bandarískir einkaöryggisverðir sæta nú rannsókn fyrir að hafa skotið á bandaríska landgönguliða og óbreytta íraska borgara í Fallujah í síðasta mánuði.

Nýtt síldarævintýri í uppsiglingu?

Síld gengur nú svo gott sem inn á firði fyrir austan en hún hefur ekki sést jafn nærri Íslandsströndum í áratugi. Þetta er talið styrkja samningsstöðu Íslendinga í viðræðum við Norðmenn um veiðar úr norsk-íslenska stofninum.

Vafasömum lögum aflétt í Sýrlandi

Baath-flokkurinn í Sýrlandi, sem hefur öllu ráðið þar áratugum saman, hefur ákveðið að aflétta neyðarlögum sem hafa verið í gildi í fjörutíu og tvö ár. Þau leyfa yfirvöldum að handtaka borgara og rétta yfir þeim án rökstuðnings eða sjáanlegrar ástæðu. Lögin munu nú aðeins ná yfir brot á lögum sem varða þjóðaröryggi.

Fá að nýju fjárhagsaðstoð

Serbía og Svartfjallaland fá nú að nýju fjárhagsaðstoð frá Bandaríkjunum. Ástæðan er sú að tólf eftirlýstir stríðsglæpamenn frá Serbíu hafa verið framseldir til alþjóðadómstólsins í Haag á þessu ári. Nú er vonast til þess að Ratko Mladic, sem leiddi serbneska herinn í borgarastríðinu á árunum 1992-1995, verði loksins handtekinn og framseldur.

Herafli NATO ófullnægjandi

Atlantshafsbandalagið viðurkenndi í dag að alvarlegur fjárskortur kæmi í veg fyrir að hersveitir á vegum bandalagsins gætu brugðist skjótt við ef neyðarástand kæmi upp. Eingöngu þrjár af Evrópusambandsþjóðunum tuttugu og fimm hafa mætt kröfum um að verja tveimur prósentum þjóðartekna sinna til varnarmála. Þetta eru Frakkland, Bretland og Grikkland.

Tveir metanflutningabílar á götuna

Fyrstu „fullvaxtar“, metanknúnu farartækin á landinu voru tekin í notkun í dag þegar tveir flutningabílar voru afhentir eigendum sínum. Þá eru metanbílar á landinu orðnir fjörutíu og átta og mun þeim fjölga enn frekar í lok sumars.

Festust í Hallgrímskirkjuturni

Nokkrir ferðamenn festust í lyftunni efst í Hallgrímskirkjuturni á miðvikudag. Of margir ætluðu niður úr turninum í einu og voru tíu manns í lyftunni, sem tekur aðeins átta.

Metanvörubílar teknir í notkun

Tveir nýir vörubílar sem ganga fyrir metangasi voru teknir í notkun í gær. Annar þeirra, af gerðinni Mercedes Benz Econic er í eigu GT verktaka og er fluttur inn af Ræsi hf. Hann mun flytja úrgang fyrir Sorpu frá móttökustöð í Gufunesi til urðunar í Álftanesi.

Tíu þúsund vegabréf í júní

Ef fram heldur sem horfir verða tíu þúsund vegabréf gefin út í þessum mánuði. Mikill erill hefur verið hjá útlendingastofnun. Hátt gengi krónunnar, einkum gagnvart dollar, og kröfur um vegabréf með segulrönd meginástæðurnar.

Andstaða við brottflutning vex

Andstaða við brottflutning gyðinga frá Gasasvæðinu fer vaxandi meðal almennings í Ísrael og palestínsk stjórnvöld gagnrýna hvernig að honum er staðið. Það eina sem Ariel Sharon virðist geta huggað sig við er að Hæstiréttur í Ísrael lagði blessun sína yfir fólksflutningana í dag.

Hæfi Halldórs rannsakað

Ríkisendurskoðun ætlar að kanna hvort forsætisráðherra hafa verið vanhæfur til að fjalla um sölu ríkisbankanna á sínum tíma vegna tengsla við Skinney Þinganes og fyrirtæki S-hópsins sem keypti Búnaðarbankann. Forsætisráðherrann neitaði viðtali en segist fagna rannsókninni.

Landsbankinn traustari en Framsókn

Björgólfur Guðmundsson svaraði Valgerði Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, fullum hálsi í útvarpsviðtali á Bylgunni um hádegi í gær. Um morguninn hafði Valgerður sagt það óæskilegt að Björgólfsfeðgar eignuðust Íslandsbanka og sagt að þeir ginu yfir öllu kviku á markaði.

Boðar að flugvöllurinn skuli fara

Borgarfulltrúar R-listans boða að flugvöllurinn skuli fara en borgarstjóri vinnur með samgönguráðherra að undirbúningi nýrrar flugstöðvar.

Laun æðstu ráðamanna hækka

Laun æðstu ráðamanna landsins hækka um tvö prósent í júlí samkvæmt úrskurði Kjaradóms í dag. Hækkunin kemur til viðbótar þriggja prósenta launahækkun um áramótin sem var í takt við almenna kjarasamninga.

Málinu vísað frá

Máli sem Auður Sveinsdóttir Laxness höfðaði gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, prófessor, var í gær vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur. Auði var að auki gert að greiða Hannesi fimmhundruð þúsund krónur í málskostnað.

Fellur á formsatriðum

Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi alþingsmaður og ráðherra, vann í gær mál sem íslenska ríkið, Alcoa á Íslandi og Fjarðarál höfðu áfrýjað, eftir að Héraðsdómur dæmdi Hjörleifi í vil fyrr á árinu.

Sex mánuði fyrir rassskellinguna

Sævar Óli Helgason var í gær dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að rjúfa skilorð með því að rassskella leikskólakennara sem lagði fyrir innkeyrslu hans í fyrrahaust.

Tólf mánaða fangelsi fyrir smygl

Tuttugu og níu ára gamall maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í eins ár fangelsi fyrir smygl á rúmlega 200 grömum af kókaíni frá Þýskalandi til Íslands.

Ástþóri dæmdar 400 þúsund krónur

Sjóvá-Almennum var í gær gert að greiða Ástþóri Magnússyni 400 þúsund krónur í bætur, fyrir skemmdir á bíl hans sem tekin var ófrjálsri hendi í mars síðast liðnum.

Verða að gera nýtt umhverfismat

Alcoa verður að kosta nýtt umhverfismat á álverksmiðju sinni í Fjarðabyggð eftir að Hæstiréttur ógilti úrskuð umhverfisráðherra í dag. Náttúruverndarsinnar fagna en Alcoa-menn segja þetta engin áhrif hafa á framkvæmdir. Umhverfisráðherra tekur í sama streng.

Ítalskur gísl látinn laus

Clementina Cantoni, ítalski hjálparstarfsmaðurinn sem var rænt í afgönsku höfuðborginni Kabúl fyrir þremur vikum, var í gær látin laus, heil á húfi.

Líkur sagðar á framsali Mladic

Ratko Mladic, fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-Serba, kann að verða framseldur til stríðsglæpadómstólsins í Haag bráðlega, að því er aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna lét hafa eftir sér í gær. Hann boðaði ennfremur að Bandaríkjastjórn hygðist aflétta frystingu tíu milljóna dala greiðslu til uppbyggingar í Serbíu og Svartfjallalandi.

Dáin í yfir tvö ár

Jarðneskar leifar fjögurra manna af þremur kynslóðum sömu fjölskyldu hafa fundist í íbúð í Moskvu, þar sem líkin lágu í að minnsta kosti í tvö ár uns lögreglu var gert viðvart vegna vangreiddra reikninga.

Ræddu hvarf 3000 manna í Kosovo

Embættismenn Kosovo Albana og Serba funduðu í Pristina í Kosovo í dag þar sem ætlunin var að ræða hvarf þriggja þúsunda manna í Kosovo á stríðstímum. Þetta er þriðji fundurinn þar sem Sameinuðu þjóðirnar reyna að fá þessar fyrrum stríðandi fylkingar til að ná lendingu um framtíð Kososvo.

Þröngt mega flugfarþegar sitja

Icelandair og Iceland Express eru í hópi þeirra flugfélaga heims sem þéttast raða fólki í vélarnar sínar samkvæmt úttekt bresks fyrirtækis. Sterling, sem einnig er í eigu Íslendinga, er það flugfélag sem býður farþegum upp á minnsta sætarýmið.

Höfuðstöðvar Eimskips að hóteli

Þar sem áður var leikið með fjöregg þjóðarinnar, þar sem auðmenn landsins réðu ríkjum, býðst nú þreyttum ferðalöngum að hvíla lúin bein. Höfuðstöðvar Eimskips eru orðnar að hóteli.

Framtíð Landakotsskóla í óvissu

Ástandið í Landakotsskóla er ekki að skýrast þrátt fyrir fund stjórnar og foreldra í gær. Formaður stjórnar Landakotsskóla sagði á fundinum að spurningin væri hvort skólastarf myndi halda áfram eða bundinn verði endir á það

30 milljóna byggingastyrkur

Landakotsskóli fékk vilyrði fyrir sextíu milljón króna fjárstyrk frá Reykjavíkurborg til að byggja nýtt íþróttahús. Þrjátíu milljónir hafa þegar fengist til verksins, en af byggingu hefur ekki orðið.

Vilja fleiri tillögur

Hópur íbúa á Álftanesi hafa safna undirskriftum gegn deiliskipulagi skipulagsyfirvalda í bænum. Á fimmtudag afhentu þeir bæjaryfirvöldum undirskriftirnar.

Ólöglegar aðferðir

Hópur kennara við Landakotsskóla hefur leitað til lögfræðings vegna bréfs sem stjórn Landakotsskóla sendi þeim á miðvikudag. Í bréfinu var sagt að þeir kennarar sem vilji starfa áfram við skólann þurfi að lýsa yfir stuðningi við nýkjörna stjórn Landakotsskóla til að halda starfi sínu.

Lýsir stuðningi við Aron Pálma

Bandaríkjamaðurinn Scott Smith lýsir yfir stuðningi við baráttuna um frelsi Arons Pálma Ágústssonar sem dvelur í stofufangelsi í Texas.

Á að flytja Bílddælinga til Kína?

Kristinn H. Gunnarsson segir að Framsóknarflokkurinn hafi fylgt þeirri stefnu að nýta náttúruauðlindir heima í héraði. Hann er því algerlega ósammála formanni flokksins um að ekki megi flytja kvóta til sjávarbyggða þegar aðrar byggðir njóti annarra auðlinda.

80% heimila á móti skipulaginu

Hópur íbúa á Álftanesi tók höndum saman nú í vikunni og gekk í hús í bæjarfélaginu til að safna undirskriftum undir áskorun gegn fyrirhuguðu deiliskipulagi sem kynnt hefur verið um miðbæjarsvæðið á Álftanesi.

Fullnægingarvandi bundinn erfðum

Breskir vísindamenn telja sig hafa fundið út að fullnægingarvandi kvenna kunni að tengjast erfðum. Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá rannsókn tveggja vísindamanna á 4.000 kvenkyns tvíburum á aldrinum 19 til 83 ára sem leiðir í ljós að fullnæging kvenna er ekki einvörðungu tengd sálarlífi og félagslegum þáttum líkt og sumir hafa haldið fram.

Skólp var leitt í drenlögn

Mælingar heilbrigðiseftirlits í Arnarneslæk í Garðabæ í maí sýndu saurgerla langt yfir öllum mörkum. Fyrir neðan Ljósamýri í Garðabæ mældust 17.000 saurkólígerlar í hverjum 100 millilítrum vatns og 73 þúsund saurkokkar.

Erum með í 14 af 20 verkefnum

Ísland er þátttakandi í 14 af 20 verkefnum sem NORA, Norður Atlantsnefndin, hefur ákveðið að styrkja með fjárveitingu upp á 39,4 milljónir króna. Fjallað var um 40 styrkumsóknir á árfundi nefndarinnar dagana 4. og 5. júní í Nuuk á Grænlandi. Um er að ræða margvísleg samstarfsverkefni á milli Færeyja, Grænlands, Íslands og Noregs.

Blair hótar ESB neitunarvaldi

Breski forsætisráðherrann Tony Blair varaði við því í gær að Bretar myndu beita neitunarvaldi gegn næsta fjárlagaramma Evrópusambandsins ef hin ESB-ríkin munu standa fast á þeirri kröfu að Bretar gefi eftir endurgreiðslu sem þeir hafa fengið úr sjóðum ESB frá því að Margaret Thatcher samdi um hana árið 1984.

Tölvuþrjótur laus gegn tryggingu

Gary McKinnon, 39 ára gamall Breti sem sakaður er um að hafa brotist inn í 53 tölvur Bandaríkjahers, varnarmálaráðuneytis og Varnarmálaskrifstofu Bandaríkjanna (Pentagon), auk Bandarísku geimrannsóknastofnunarinnar (NASA) á árunum 2001 og 2002, var í gær látinn laus gegn tryggingu eftir að hafa verið dreginn fyrir dómara.

Bættar horfur á friði í Darfur

Evrópusambandið hyggst gera allt sem í þess valdi stendur til að aðstoða við að sátta- og friðargæsluverkefni Afríkusambandsins (AU) í Darfur í Súdan skili áþreifanlegum árangri. Þetta sagði Sten Rylander, sérlegur sáttasemjari á vegum Evrópusambandsins í Darfur, í samtali við Fréttablaðið.

Lífi dansks ráðherra ógnað

Ráðherra innflytjendamála í Danmörku segist vera bæði slegin og reið eftir að kveikt var í bíl hennar og íbúðarhúsi snemma í morgun. Óþekkt samtök segjast vera að refsa Dönum fyrir kynþáttahatur.

Sjá næstu 50 fréttir