Fleiri fréttir

Leysigeislar umhverfis Washington

Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur umkringt Washington-borg með leysigeislum til þess að hindra að flugvélar fljúgi án leyfis yfir höfuðborgina.

Fögnuðu próflokum uppi í sveit

Víða mátti sjá rútur fullar af unglingum á leið upp í sveit til að fagna því að samræmdum prófum lauk í dag. Skólayfirvöld, foreldrar og lögregla gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að tíundu bekkingar sameinist í drykkju að prófum loknum.

Formannsslagur og framtíðarsýn

Stefán Jón Hafstein, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, telur að framtíðarsýn og hugmyndafræði jafnaðarmanna hafi ekki notið sín sem skyldi í baráttunni um formannsstólinn í Samfykingunni undanfarna mánuði. Hann kveðst ganga lengra í ályktunum en framtíðarhópur flokksins og skilgreinir sig sem róttækan endurskoðunarsinna.

Húsvíkingar vongóðir um álver

Húsvíkingar eru bjartsýnir á að fá álver á svæðið eftir að hafa fundað með mönnum frá Alcoa. "Við höfum alltaf trúað því að það verði á endanum ákveðið að reisa álver hér á Húsavík, þar sem allar aðstæður hér eru fyrir hendi. Í þokkabót virðist vera að skapast um þetta sátt á Norðurlandi öllu,," segir Reinard Reynisson bæjarstjóri.

Kolmunnaafli yfir 100 þúsund tonn

Kolmunnaafli íslenskra skipa á vertíðinni fór yfir hundrað þúsund tonnin í fyrradag þegar Hólmaborg SU landaði tæpum tvö þúsund tonnum á Eskifirði.

Þeir tekjuminnstu græða ekkert

Skerðingarhlutfall námslána lækkar en frítekjumark er lagt niður samkvæmt nýjum úthlutunarreglum sem stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur samþykkt. Grunnframfærsla námsmanna hækkar jafnframt úr 79.500 krónum í 82.500 krónur.

Borgi 66 milljarða í skaðabætur

Morgan Stanley verður að greiða fjárfestinum Ron Perelman andvirði 66 milljarða króna í skaðabætur. Þetta er niðurstaða dómstóls í Flórída sem komst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið hefði beitt svikum og hjálpað Sunbeam að hafa fé af fjárfestum í viðskiptum árið 1998.

Hvetja Gunnar til afsagnar

Frambjóðendur og stuðningsmenn Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi segja Gunnar Örlygsson hafa fyrirgert því trausti sem þeir báru til hans, með því að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Frambjóðendur og stuðningsmenn Frjálsynda flokksins hvetja Gunnar til til að sýna af sér þann drengskap að segja sig frá þingmennsku.

Eldur á Broadway

Slökkvilið var kallað að skemmtistaðnum Broadway á fimmta tímanum í morgun eftir að eldur kom þar upp. Svo virðist sem kviknað hafi í út frá rafmagni en slökkvikerfi í húsinu slökkti eldinn. Litlar skemmdir urðu vegna elds en töluverður reykur var í húsinu.

Manndrápið snerist um heiður

Manndrápið í Kópavogi á sunnudagskvöld snerist um heiður, samkvæmt frásögn manns sem reyndi að koma hinum látna til bjargar. Hann segir að fórnarlambið hafi ekki ávarpað hinn meinta morðingja með tilhlýðilegri virðingu og hann því reiðst.

Fjórir féllu í morgun

Fjórir hermenn féllu í valinn í bardögum við uppreisnarmenn nærri kjarnorkuveri í suðurhluta Íraks í morgun. Að sögn írakska hersins voru hermennirnir við skyldustörf þegar uppreisnarmennirnir létu til skarar skríða.

Ísland í 3. sæti í jafnréttismálum

Norðurlöndin eru þau staður í heiminum sem best hefur gengið að tryggja jafnrétti kynjanna og er Ísland í þriðja sæti listans. Þetta kemur fram í skýrslu sem stofnunin World Economic Forum birti í gær.

Enn skotið að fólki í Úsbekistan

Enn berast fregnir af byssugelti í borginni Andijan í Úsbekistan. Í gærkvöldi skutu hermenn enn að mótmælendum og eins að hópi fólks sem reyndi að flýja yfir til nágrannaríkisins Kirgistans.

Ávarpaði leiðtogafund Evrópuráðs

Davíð Oddsson utanríkisráðherra ávarpaði í dag leiðtogafund Evrópuráðsins sem stendur yfir í Varsjá í Póllandi. Í máli utanríkisráðherra kom fram að eining Evrópu væri háð lýðræði og virðingu fyrir mannréttindum og grunnvallarreglum réttarríkisins. Hér hefði Evrópuráðið einstöku hlutverki að gegna.

Ný lög um öryggismál

Ný lög um öryggismál og heilbrigðisþjónustu verða efsta á baugi í stefnumálum verkamannaflokksins á nýju kjörtímabili. Elísabet Bretlandsdrottning mun síðar í dag kynna stefnumál flokksins við hátíðlega athöfn þegar þingið í Bretlandi verður sett.

Harður árekstur jeppa og fólksbíls

Mjög harður árekstur varð í gærkvöldi á mótum Biskupstungnabrautar og Suðurlandsvegar þegar jeppi og fólksbíll skullu saman. Enginn slasaðist alvarlega en bílarnir skemmdust báðir mikið og voru þeir fluttir af vettvangi með kranabíl.

Mannrán vekur upp ótta

Rán fjögurra vopnaðra manna á ítölskum hjálparstarfsmanni í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í gær hefur vakið upp ótta um að uppreisnarmenn þar hyggist taka upp sömu aðferðir og notaðar eru í Írak.

Morðingja leitað í Alsír

Ellefu alsírskir hermenn féllu á sunnudaginn þegar hópur uppreisnarmanna, sem talið er að tengist al-Qaida, sátu fyrir þeim og gerðu á þá árásir með sprengjum og vélbyssum. Tvær þyrlur og fjölmennt herlið hafa hafið leit að uppreisnarmönnunum sem flýðu inn í skóglendi nærri borginni Kenkela.

Dómsuppkvaðningu enn frestað

Dómsuppkvaðningu í máli rússneska auðjöfursins Mikhails Khodorkovskys, eiganda Yukos-olíurisans, hefur enn á ný verið frestað þangað til á morgun. Enginn vafi virðist þó leika á því að Khodorkovsky verði fundinn sekur.

Tjáir sig aðeins með tónlist

Óþekktur maður, sem fannst ráfandi um götur Kent í Englandi fyrir nærri einum og hálfum mánuði síðan, hefur eingöngu tjáð sig með tónlist síðan. Maðurinn hefur ekki sagt orð síðan hann fannst blautur og kaldur í byrjun apríl.

Landbúnaðarstofnun á Suðurlandi?

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir að vilji sé til þess innan þingsins að ný Landbúnaðarstofnun verði staðsett utan höfuðborgarsvæðisins. Reykir í Ölfusi og Selfoss koma helst til greina. 

Vanvirðing og heiðursvörn ástæðan

Vanvirðing og heiðursvörn virðast hafa verið ástæða átakanna í Hlíðarhjalla á sunnudagskvöld sem leiddu til dauða tæplega þrítugs karlmanns frá Víetnam.

Grunuðum nauðgara sleppt

Lögreglan í Keflavík hefur sleppt karlmanni sem handtekinn var, grunaður um að nauðga ungri konu á salerni skemmtistaðar í Keflavík. Starfsmenn skemmtistaðarins komu konunni til hjálpar en talið er að maðurinn hafi nýtt sér ölvunarástand hennar.

Fyrir rétti vegna Beslan-árásar

Réttarhöld hófust í dag yfir tsjetsjenskum skæruliða sem tók þátt í árásinni á grunnskólann í Beslan á síðasta ári þar sem 330 manns létust, aðallega konur og börn. 

Ástand jafnréttismála samt slæmt

Þótt Ísland sé í þriðja sæti yfir þau lönd sem best hefur gengið að tryggja jafnrétti kynjanna er ástandið þó ekkert til að hrópa húrra fyrir, að mati framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu.

Boða hertar innflytjendareglur

Nafnskírteini, hertar reglur um innflytjendur og uppstokkun í heilbrigðiskerfinu eru meðal helstu stefnumála bresku ríkisstjórnarinnar næsta kjörtímabil. Elísabet Bretadrottning setti nýkjörið þing í morgun við hátíðlega athöfn og kynnti þá, eins og venja er, helstu stefnumál Verkamannaflokksins.

Sinubruni í Breiðholti

Slökkviliðið í Reykjavík var kallað út rétt eftir klukkan eitt í dag vegna sinubruna við Erluhóla í Reykjavík. Vel gekk að slökkva eldinn sem var ekki mikill að þessu sinni.

7-10 þúsund atkvæði í húsi

Á bilinu sjö til tíu þúsund atkvæði í formannskjöri Samfylkingarinnar eru komin í hús en tæplega tuttugu þúsund félagsmenn í Samfylkingunni eru á kjörskrá. Frestur til að skila inn atkvæðum rennur út á fimmtudag.

Nýtt fangelsi fyrir árslok 2008

Fangelsismálastofnun vill endurbætur á fangelsum landsins og í framkvæmdaáætlun hennar er gert ráð fyrir byggingu nýs fangelsis fyrir lok ársins 2008. Þá er gert ráð fyrir að endurbótum á þremur fangelsum verði lokið á sama tíma.

Dettifossmálið þingfest

Dettifossmálið svokallaða var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegi. Fimm eru ákærð í málinu. Þremur þeirra er gefið að sök stórfelld brot gegn lögum um fíkniefni,með því að hafa, í júní og júlí á síðasta ári, flutt inn tæp átta kíló af amfetamíni.

Fóru naktar að heimili forsetans

Fimmtán mexíkóskar konur örkuðu um naktar fyrir framan heimili forseta Mexíkós í gær og kröfðust afsagnar tveggja þingmanna vegna spillingar. Konurnar eru í hópi 800 indíána frá Veracruz en þær segja mennina eiga að vera rekna úr embætti fyrir að hafa gert land þeirra upptækt.

Vill fleiri íslenskar sendinefndir

Forseti Kína vill fá fleiri sendinefndir frá Íslandi í heimsókn, þar á meðal frá stjórnmálaflokkunum, verkalýðsfélögunum og almannafélögum ýmiss konar, eftir því sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir, en þeir áttu fund í Peking nú fyrir hádegi. Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, er í Kína.

Eldri borgarar krefjast kjarabóta

Landssamband eldri borgara vill að ríkisstjórnin geri nú þegar ráðstafanir til þess að bæta kjör eldri borgara og krefst þess að grunnlífeyrir verði alltaf undanþeginn sköttum. Þá er farið fram á að tekjutrygging, heimilisuppbót, tekjutryggingarauki og eingreiðslur verði felldar saman í einn greiðsluflokk.

169 látnir samkvæmt yfirvöldum

Ríkissaksóknari í Úsbekistan lýsti því yfir í dag að 169 hefðu látið lífið í átökum mótmælenda og hermanna í borginni í Andijan í síðustu viku. Þetta er hæsta tala sem yfirvöld í landinu hafa látið hafa eftir sér um tölu fallinna en þó mun lægri tala en sjónarvottar áætla. Þeir segja mörg hundruð manns hafa fallið.

Þátttaka fatlaðra á vinnumarkaði

Þjónusta við fjölskyldur fatlaðra barna um landið og þátttaka fatlaðra á almennum vinnumarkaði verður meðal þess sem tekið verður til umræðu á málþingi útskriftarnema á þroskaþjálfabraut Kennaraháskóla Íslands á morgun. Yfirskrift málþingsins er „Fögur orð og framkvæmd“.

Danskir fréttamenn í verkfalli

Fréttaútsendingar danska ríkisútvarpsins Danmarks Radio féllu niður í gær vegna verkfalls fréttamanna. Átti þetta bæði við um útvarp og sjónvarp auk þess sem fréttamenn svæðisstöðva lögðu niður vinnu í samúðarskyni við starfsfélaga sína. 

Dönsk börn hætt að hreyfa sig

Dönsk börn hreyfa sig allt of lítið samkvæmt nýrri danskri rannsókn. Í stað þess að hreyfa sig útivið sitja þau meira en þrjár klukkustundir daglega fyrir framan sjónvarp eða tölvu. 

Skuggaleg skuldaauking borgarinnar

"Það er skylda okkar í minnihlutanum að gera borgarbúum ljóst hversu alvarleg staða hefur skapast undir óstjórn R-listans," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, en hann fór hörðum orðum um sívaxandi skuldahala Reykjavíkurborgar.

Farsímar hættulegri úti á landi

Sænsk rannsókn leiðir í ljós að mun hættulegra er að tala í farsíma í dreifbýli en þéttbýli. Farsímanotendur í dreifbýli eru þrisvar sinnum líklegri til að fá illkynja heilaæxli en þeir sem nota farsíma í þéttbýli.

Dregið úr matardreifingu í Afríku?

Matarhjálp Sameinuðu þjóðanna lýsti því yfir í dag að draga verði verulega úr matvæladreifingu í Afríku á þessu ári, ef fjárframlög muni ekki aukast umtalsvert á næstunni. Samtökin segja að þau hafi aðeins fengið tæplega helming þess fjármagns sem lofað hafi verið fyrir þetta ár.

Flóttamenn fái hæli í Svíþjóð

Fimm stjórnmálaflokkar á sænska þinginu hyggjast leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis að öllum flóttamönnum sem komið hafa til Svíþjóðar fram til síðustu áramóta verði veitt hæli í landinu.

Lúðvík í varaformanninn

Lúðvík Bergvinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins sem haldinn verður um næstu helgi. Ágúst Ólafur Ágústsson hafði áður lýst yfir framboði til varaformanns.

Svíar íhuguðu innrás í Noreg

Litlu munaði að Svíar réðust á Norðmenn með hernaði árið 1905 þegar Norðmenn sögðu sig einhliða úr ríkjasambandinu við Svíþjóð.

Hundaræktendur takast á

"Fráfarandi formaður tilkynnti mér á fulltrúafundi að hún ætlaði ekki að gefa kost á sér aftur, en taldi ekki þörf á því að tilkynna það neinum nema stjórninni," segir Guðmundur Helgi Guðmundsson, annar frambjóðandi til formanns Hundaræktarfélags Íslands um vinnubrögð Þórhildar Bjartmarz, fráfarandi formanns félagsins.

Sjá næstu 50 fréttir