Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fékk þrjá stóra hákarla Bjarni Elíasson á Drangsnesi á Ströndum setti heldur betur í veiði í fyrradag þegar hann fór út á trillu sinni að renna fyrir hákarl, djúpt út af Kaldbaksvík. Hann fékk þrjá stóra hákarla í róðrinum og var mikið um að vera á bryggjunni á Drangsnesi þegar hann kom að landi, enda þurfti hann hjálparhönd við löndunina. 27.4.2005 00:01
Úrskurðarnefnd í ferðaþjónustu Samtök ferðaþjónustunnar og Neytendasamtökin undirrituðu í gær samkomulag um stofnun sérstakrar úrskurðarnefndar. Nefndin mun taka til meðferðar hvers konar kvartanir frá neytendum vegna vöru og þjónustu af fyrirtækjum innan samtaka ferðaþjónustunnar. 27.4.2005 00:01
Reyndi að selja FBI flugskeyti Breti, sem ákærður var fyrir að reyna að selja hryðjuverkamönnum flugskeyti til notkunar í Bandaríkjunum, var fundinn sekur um athæfið fyrir rétti í New Jersey í dag. Hann var handtekinn árið 2003 eftir að hafa reynt að selja bandarískum alríkislögeglumanni, sem þóttist vera íslamskur hryðjuverkamaður, flugskeytið. 27.4.2005 00:01
Umfangsmesta friðun hér á landi Nú eru á lokastigi umfangsmestu friðunaraðgerðir sem gerðar hafa verið hér á landi. Allt sauðfé í Landnámi Ingólfs verður girt inni í beitarhólfum, en svæðið verður að öðru leyti friðað. Þau 20. 30.000 tonn af hrossataði sem falla til á höfuðborgarsvæðinu geta farið til uppgræðslu. </font /></b /> 27.4.2005 00:01
Forsætisnefnd geri tillögur Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra telur eðlilegt að tillögur um breytingar á eftirlaunalögunum verði gerðar af forsætisnefnd. 27.4.2005 00:01
Stórhert eftirlit með örorkusvikum Tryggingastofnun ríkisins er nú að skera upp herör gegn þeim sem svíkja út örorkulífeyri. Þar er um að ræða fólk sem er á bótum en vinnur "svart". Einnig lífeyrisþega með börn sem eru fráskildir á pappírunum og fá þar með hærri barnalífeyri. 27.4.2005 00:01
Vilja reyklausa veitingastaði Sex hundruð nemendur í unglingadeild Áslandsskóla í Hafnarfirði vilja reyklausa veitingastaði í Hafnarfirði. Fulltrúar nemendanna gengu á fund Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra í gær og afhentu honum undirskriftalistanna þar sem skorað er á bæjaryfirvöld að beita sér fyrir því að veitingastaðir í Hafnarfirði verði reyklausir. 27.4.2005 00:01
Minni samdráttur í sumar Áætlað er að samdráttur í starfsemi Landspítala-háskólasjúkrahúss í sumar verði heldur minni en undanfarin sumur eða 13 prósent af mögulegum legudögum. Á síðasta ári var hann 15 prósent og 16 prósent árið 2003, að því er fram kemur í upplýsingum frá spítalanum. 27.4.2005 00:01
Fyrningamál verði unnin í samhengi Björn Bjarnason dómsmálaráðherra vill að litið verði á afnám fyrningar kynferðisbrota gegn börnum í samhengi, en í ráðuneyti hans liggja fyrir tillögur í þeim efnum. Hann segist munu taka því vel ákveði allsherjarnefnd að vísa frumvarpi sama efnis til ráðuneytisins. </font /></b /> 27.4.2005 00:01
Vetnistilraunir haldi hér áfram Tilraunaverkefni um vetnisknúna strætisvagna lýkur í sumarlok en frá því að það hófst í október 2003 hafa vetnisvagnarnir ekið rúmlega 65 þúsund kílómetra. 27.4.2005 00:01
Drepum hænur í stað kjúklinga Magnús Þór Hafsteinsson alþingismaður hafnar með öllu þeim skýringum forsvarsmanna Hafrannsóknastofnunarinnar að sókn umfram ráðgjöf Hafró skýri að hluta bágborið ástand þorskstofnsins. 27.4.2005 00:01
Afplánar dóm fyrir fordóma Mogens Glistrup, stofnandi danska Framfaraflokksins, þarf á næstunni að afplána tuttugu daga fangelsisdóm fyrir brot á lögum um kynþáttafordóma. 27.4.2005 00:01
Norsk kona dæmd fyrir nauðgun Dómstóll í Björgvin í Noregi dæmdi í gær 23 ára gamla konu í níu mánaða fangelsi fyrir nauðgun. 27.4.2005 00:01
Ekkert heyrst frá mannræningjunum Ekkert hefur heyrst frá mannræningjum þriggja rúmenskra fréttamanna sem rænt var í Írak í lok mars. Mannræningjarnir höfðu gefið forseta Rúmeníu frest til klukkan eitt í dag að kalla um 800 rúmenska hermenn heim frá Írak, ellegar yrðu fréttamennirnir líflátnir. 27.4.2005 00:01
Bændur heimsækja grunnskóla Tæplega eitt þúsund börn í sjöunda bekk í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri hafa fengið bónda í heimsókn í kennslustund í tengslum við verkefnið „Dagur með bónda“. 27.4.2005 00:01
Ólga heldur áfram í Tógó Ófremdarástand hefur ríkt í Afríkuríkinu Tógó í kjölfar vafasamra kosninga um síðustu helgi þar sem Faure Gnassinbe, sonur fyrrum einræðisherra landsins, bar sigur úr býtum. Sex manns, þar af þrír borgarar, létu lítið í átökum í höfuðborginni Lomé í gær. 27.4.2005 00:01
Fimm börn á verði eins Teresa Anderson, 25 ára gömul kona frá Phoenix, fæddi í fyrradag fimmbura. Slíkt væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þá sök að Anderson hafði tekið að sér að ganga með börnin fyrir hjón sem ekki gátu gert það sjálf. 27.4.2005 00:01
Rúta í árekstri við lest 35 manns biðu bana þegar farþegalest ók á rútu skammt utan við Colombo, höfuðborg Srí Lanka, í gær. Yfir 60 manns slösuðust, sumir þeirra alvarlega. 27.4.2005 00:01
Stjórnarkreppan á enda Allar líkur eru á að stjórnlagaþing Íraka muni í dag greiða atkvæði um ráðherralista al-Jaafari, verðandi forsætisráðherra. Írösk þingkona var skotin til bana á heimili sínu á miðvikudagskvöldið. 27.4.2005 00:01
Samsæriskenningar á kreiki Samsæriskenningarnar fóru á kreik þegar dómarar í máli rússneska auðkýfingsins Mikhails Khodorkovskys frestuðu óvænt dómsuppkvaðningu í dag. Engin skýring fékkst á frestuninni en andstæðingar Pútíns forseta eru sannfærðir um að hann hafi kippt í spotta, en þeir Khodorkovsky eru pólitískir andstæðingar. 27.4.2005 00:01
Stærsta farþegaþota sögunnar Nýr kafli í sögu farþegaflugsins hófst í gær þegar Airbus A380 flaug sitt fyrsta flug. 555 farþegar rúmast hæglega í þessari risaþotu en ekki er víst hvort smíði hennar muni nokkurn tímann standa undir kostnaði. 27.4.2005 00:01
Reyndu að handjárna ráðherrann Ruth Kelly, menntamálaráðherra Bretlands, fékk ekki góðar móttökur þegar hún mætti til kosningafundar í kjördæmi sínu í Bolton á Englandi í fyrrakvöld. 27.4.2005 00:01
500 tonna fljúgandi flykki Loftið var hlaðið spennu á flugvellinum í Toulouse í Frakklandi í morgun þar sem þúsundir biðu þess að sjá nærri fimm hundruð tonna risaflugvél á tveimur hæðum taka á loft. Vænghafið er rétt tæpir áttatíu metrar sem er lengra en fyrsta flug Wright-bræðranna árið 1903. 27.4.2005 00:01
Áhyggjur af áhugaleysi kjósenda Þegar tæp vika er til þingkosninga í Bretlandi eru kosningastjórar Verkamannaflokksins farnir að hafa áhyggjur af að margir stuðningsmenn flokksins telji ekki taka því að mæta á kjörstað. </font /></b /> 27.4.2005 00:01
Birgir og Friðrik á eftirlaunum Sex sendiherrar þiggja eftirlaun ráðherra ásamt launum fyrir sendiherrastörf sín. Þá þiggja þrír forstjórar opinberra stofnana eftirlaun, þar á meðal seðlabankastjóri og forstjóri Landsvirkjunar. Þessu verður ekki breytt samkvæmt lögfræðiáliti ríkisstjórnarinnar. 27.4.2005 00:01
Karlar drekka næstum þrefalt meira Íslenskir karlar drekka næstum þrefalt meira áfengi en konur, þrátt fyrir að ungar konur hafi stóraukið áfengisneyslu sína síðustu ár. Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnun á drykkjuvenjum Íslendinga, sem gerð var á vegum Lýðheilsustöðvar í lok síðasta árs, og borin var saman við könnun sem gerð var árið 2001. 27.4.2005 00:01
Nýjustu Nokia-símarnir kynntir Farsímarisinn Nokia kynnti í dag nýjustu gerðir gemsa. Flestir eru þeir orðnir meira en bara símar og sömu sögu er að segja af tólunum sem kynnt voru í dag. Einn síminn er eiginlega myndbandsupptökuvél, með hágæðalinsu frá þýska framleiðandanum Zeiss, og getur tekið upp myndskeið í sömu gæðum og VHS-myndavél. 27.4.2005 00:01
Vafasamar skráningar í flokkinn Móðir misþroska drengs hringdi öskureið á skrifstofu Samfylkingarinnar í gær og kvartaði undan því að fimmtán ára sonur hennar hefði verið skráður í Samfylkinguna. Flosi Eiríksson, formaður kjörstjórnar Samfylkingarinnar, segir nokkuð ljóst að menn hafi farið offari og skráð einhverja sem ekki vilji vera í flokknum. 27.4.2005 00:01
Uppgangur á Hvanneyri Það fer vart fram hjá nokkrum þeim er leið á um Hvanneyri að þar ríkir uppgangur mikill. Allnokkur ný hús hafa risið þar að undanförnu og er ráðgert að byggja allt að 20 í viðbót á næstu mánuðum. 27.4.2005 00:01
Líkfundur við Skúlagötu Lík fannst við Skúlagötu í kvöld og stendur rannsókn lögreglunnar í Reykjavík yfir. 27.4.2005 00:01
Spennan magnast í Bretlandi Spennan magnast dag frá degi fyrir kosningarnar í Bretlandi. Það eru átta dagar þangað til Tony Blair verður endurkjörinn forsætisráðherra Bretlands, ef eitthvað er að marka skoðanakannanir dagsins. 27.4.2005 00:01
Forsætisráðherra ekið í vetnisbíl Forsætisráðherra var ekið í fólksbíl inn í ráðstefnusal í dag. Um var að ræða vetnisknúinn bíl og markaði ökuferðin upphaf ráðstefnu þar sem kynntar eru niðurstöður vetnisstrætisvagna-verkefnisins sem staðið hefur yfir síðustu tvö ár. 27.4.2005 00:01
Mikil eftirsjá í Eyrarhrauni Eyrarhraun, húsið sem brann til kaldra kola í Hafnarfirði í gærkvöldi, hafði mikið menningarsögulegt gildi fyrir bæinn að mati sagnfræðings við Byggðasafn Hafnarfjarðar. Hann segir yfirvöld hafa reynt að vernda húsið fyrir skemmdarvörgum - en það sé erfitt verkefni. 27.4.2005 00:01
Nota borgarkerfið í formannsslag "Afskipti æðstu embættismanna af innanflokksátökum í ákveðnum stjórnmálaflokki með svona áberandi hætti hafa ekki tíðkast til þessa," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Hann er ósáttur við stuðningsyfirlýsingar þriggja embættismanna við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í formannskjöri Samfylkingar. 27.4.2005 00:01
Spá sex prósenta hagvexti Fjármálaráðuneytið spáir nær sex prósenta hagvexti bæði í ár og á næsta ári og telur ekki útlit fyrir að hann fari lækkandi fyrr en dregur úr stóriðju árið 2007. Eftir það á meira jafnvægi að komast á efnahagslífið. Verðbólga verður nálægt fjórum prósentum samkvæmt spánni, 3,9 prósent í ár og 3,8 prósent á næsta ári. 27.4.2005 00:01
Kærður fyrir kverkatak Þingfest var fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær mál Lögreglustjórans í Reykjavík á hendur Jóni Trausta Lútherssyni fyrir líkamsárás. 27.4.2005 00:01
Þremur bjargað úr lestarflaki Björgunarsveitarmenn í Japan náðu í morgun þrem mönnum á lífi undan braki lestar sem fór út af sporinu í námunda við Osaka í gær. Í nótt fundust 16 lík í brakinu og nú er ljóst að meira en 70 manns fórust í slysinu, sem er mannskæðasta lestarslys í Japan í meira en fjörutíu ár. Þá eru fjölmargir þeirra sem slösuðust enn í lífshættu. 26.4.2005 00:01
Á 170 km hraða í Kópavogi Kópavogslögreglan stöðvaði ökumann á Reykjanesbraut til móts við Fífuhvamm í gærkvöldi eftir að hann hafði mælst á rétt tæplega 170 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar. Hann var því á um það bil hundrað kílómetra hraða umfram leyfðan hámarkshraða. Hann verður sviptur ökuréttindum og á yfir höfði sér geysiháa sekt. 26.4.2005 00:01
Hersetu Sýrlands í Líbanon lýkur Sýrlenskir leyniþjónustumenn yfirgáfu höfuðstöðvar sínar í Líbanon í gær og í dag lýkur formlega 29 ára hersetu Sýrlands í Líbanon. Fyrir aðeins tveimur mánuðum voru fjórtán þúsund sýrlenskir hermenn í Líbanon en nú eru aðeins um þrjú hundruð eftir. 26.4.2005 00:01
Allt að 70% verðmunur á lyfjum Allt að 70 prósenta verðmunur reyndist á lausasölulyfjum í apótekum á höfuðborgarsvæðinu í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í 12 apótekum fyrir tæpri viku. Langhagstæðast er að versla í Lyfjaveri við Suðurlandsbraut samkvæmt könnuninni en þar voru 20 lyf af þeim 22 lyfjum, sem könnuð voru, á lægsta verðinu. 26.4.2005 00:01
Bilið milli flokka eykst Verkamannaflokkurinn í Bretlandi eykur fylgi sitt samkvæmt tveimur skoðanakönnunum sem birtust í morgun. Flokkurinn mælist með 40 prósenta fylgi samkvæmt nýrri könnun dagblaðsins <em>Independent</em>, sem er þrem prósentum meira en í síðustu viku. Fylgi Íhaldsflokksins minnkar hins vegar úr 32 prósentum niður í 30. 26.4.2005 00:01
Skoða nýja flugvél fyrir Gæsluna Þrír fulltrúar Landhelgisgæslunnar eru farnir til Kanada til að skoða deHavilland Dash-8 skrúfuþotu sem mun hugsanlega leysa gömlu Fokker-gæsluvélina af hólmi. Vélin er háþekja eins og Fokkerinn og álíka stór. Hún hefur um árabil verið notuð til strandgæslu víða um heim. 26.4.2005 00:01
Neyðarástand í Georgíu vegna flóða Neyðarástand ríkir nú í nokkrum þorpum í Georgíu eftir mikil flóð undanfarna daga. Ár hafa flætt yfir bakka sína í tólf þorpum og þar hafa hundruðir íbúa neyðst til þess að yfirgefa heimili sín, sem mörg hver eru ónýt í kjölfar flóðanna. Hjálparstarf gengur erfiðlega þar sem ausandi rigning er á svæðinu og ekki útlit fyrir að það stytti upp í bráð. 26.4.2005 00:01
Kynjahlutföll jöfnust í Rúanda Hvergi í heiminum eru konur jafnstór hluti þingmanna og í Afríkuríkinu Rúanda þar sem rétt tæplega helmingur þingmanna eru konur. Að Rúanda undanskildu er hlutfall kvenna á þingi mest á Norðurlöndum. Ríflega 45 prósent sænskra þingmanna eru konur og alls staðar á Norðurlöndum eru um það bil fjórir af hverjum tíu þingmönnum kvennkyns. 26.4.2005 00:01
Lestin reyndist á of miklum hraða Komið er á daginn að lestinni sem fór út af sporinu skammt frá Osaka í Japan í gærmorgun var ekið allt of hratt þegar slysið varð. Hún var á 100 kílómetra hraða þegar hún þeyttist af sporinu en mátti aðeins vera á 70 kílómetra hraða á þessum stað. 26.4.2005 00:01