Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldur í húsi í Hafnarfirði Eldur kom upp í litlu yfirgefnu húsi við Herjólfsbraut í Hafnarfirði nú undir kvöld. Slökkvilið lét húsið brenna til grunna með leyfi bæjaryfirvalda en eldur hafði kviknað þar í gær líka. Nú er unnið að því að slökkva í glæðum. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 var tekist á um það í Hafnarfirði hvort vernda ætti þetta hús eða ekki. 26.4.2005 00:01
Fær ekki styrk í ár Utanríkisráðuneytið hefur synjað beiðni Mannréttindaskrifstofu Íslands um styrk fyrir árið í ár. Áður hefur komið fram að loka þurfi skrifstofunni ef styrkurinn fáist ekki. Utanríkisráðherra segir utanríkisráðuneytið hafa óskað eftir breyttri skipan mála áður en hann varð utanríkisráðherra. 26.4.2005 00:01
Vill frekari aðstoð í ópíumbaráttu Ópíumræktun í Afganistan dróst saman um meira en þriðjung á síðasta ári. Forseti landsins biður um frekari alþjóðlega aðstoð svo afganskir bændur geti alfarið sagt skilið við ópíumrækt. 26.4.2005 00:01
Barna sé gætt á hættulegum stöðum Herdís Storgaard, verkefnisstjóri barnaslysavarna hjá Lýðheilsustöð, brýnir fyrir foreldrum að líta aldrei af ungum börnum sínum á stöðum þar sem hættur eru augljósar. Hún segir það skelfilegt að slys hafi orðið að undanförnu þar sem legið hefur við drukknun lítilla barna. 26.4.2005 00:01
Ísum bara meira Grímseyjarferjan Sæfari er komin í slipp og liggja því siglingar milli lands og eyju niðri í um viku. 26.4.2005 00:01
Fundu upp nýstárlega barnagælu Nú geta foreldrar látið barnið sitt sofa úti í vagni og þurfa ekki að hafa áhyggjur af því þótt það vakni því barnagælan sér um að vagga því í svefn aftur. Dugi það ekki til sendir barnagælan SMS-skilaboð til foreldranna. 26.4.2005 00:01
Skákað í skjóli IP-tölu Samkvæmt úrskurði Hæstaréttar á mánudag þurfa IP-fjarskipti ekki að láta af hendi til lögreglu upplýsingar um ákveðna IP-tölu sem tengist innbroti á heimasíðu tölvuverslunarinnar Task 9. febrúar síðastliðinn. 26.4.2005 00:01
Drengirnir fleiri í leikskólanum Í árslok 2004 sóttu tæplega 17 þúsund börn leikskóla hér á landi að því er fram kemur í Hagtíðindum Hagstofunnar. 26.4.2005 00:01
Braut glas á dyraverði Héraðsdómur Norðurlands eystra sýknaði í gær mann af ákæru um að hafa brotið bjórglas á höfði dyravarðar og rispað hann með því á hægri kinn. Dyravörðurinn krafðist rúmlega 360 þúsund króna í bætur. 26.4.2005 00:01
Áunninn réttur stjórnarskrárvarinn Fordæmi er fyrir skerðingu áunninna réttinda með breytingum á biðlaunarétti ríkisstarfsmanna. Eiríkur Tómasson lagaprófessor segir breytingarnar hafa verið staðfestar af Hæstarétti. Atli Gíslason lögmaður segir lög um lífeyri þingmanna og ráðherra meingölluð. </font /></b /> 26.4.2005 00:01
Má takmarka eftirlaun Í lögfræðiáliti sem Halldór Ásgrímsson lét vinna um breytingar á eftirlaunalögum ráðamanna kemur fram að heimilt er að takmarka eða fella niður eftirlaunaréttindi ráðamanna sem gegna launuðu starfi. Framsókn stefnir á frumvarp fyrir haustþing.</font /> 26.4.2005 00:01
Opinberuðu eignir og tengsl Þingflokkur Framsóknarflokksins hefur birt opinberlega upplýsingar um fjárhag, eignir, hagsmuni og tengsl þingmanna flokksins í samræmi við reglur sem þingflokkurinn hefur sett sér. Þar kom fram að sjö þingmanna flokksins eiga hlutabréf í fyrirtækjum og fjórir þeirra að auki stofnfjáreign í kaupfélögum. 26.4.2005 00:01
Mannskætt lestarslys í Japan Að minnsta kosti 50 manns fórust þegar farþegalest fór út af sporinu nærri Osaka í Japan í nótt og keyrði utan í íbúðarblokk. Nærri 300 manns slösuðust í árekstrinum, bæði farþegar lestarinnar, vegfarendur í nágrenninu og íbúar í blokkinni sem lestin keyrði utan í. Lestin lenti á bíl þar sem lestarteinarnir liggja yfir veg en ekki er enn ljóst hvort það var fyrir eða eftir að hún fór út af sporinu. 25.4.2005 00:01
Fundað vegna þorskstofns Um klukkan níu hófst svonefndur neyðarfundur í sjávarútvegsnefnd Alþingis vegna lélegs ástands yngstu þorsksárganganna hér við land, að beiðni Magnúsar Þórs Hafsteinssonar fiskifræðings og þingmanns frjálslyndra. Á fundinn koma Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, og Björn Ævar Steinarsson fiskifræðingur. 25.4.2005 00:01
Þeyttist út af Suðurlandsvegi Til allrar hamingju rásaði bíll út af Suðurlandsveginum en ekki inn á öfugan vegarhelming á móti bílum þegar ökumaðurinn, sem var í mikilli fíkniefnavímu, missti stjórn á honum í Lögbergsbrekku í gær. Bíllinn þeyttist 70 metra út af veginum. Lögreglumenn frá Selfossi komu fyrstir á vettvang og handtóku ökumann og farþega þegar ljóst var að þeir voru báðir út úr skakkir af vímuefnum og afhentu þá Kópavogslögreglunni sem hefur lögsögu á svæðinu. 25.4.2005 00:01
Þrýsta á myndun stjórnar í Írak Stjórnvöld í Bandaríkjunum þrýsta nú hart á nýkjörna leiðtoga í Írak að ná saman um myndun nýrrar ríkisstjórnar í landinu. Stjórnvöld í Washington lögðu á það ríka áherslu eftir kosningar í Írak að þau myndu ekki skipta sér af innanríkismálum landsins í kjölfarið. 25.4.2005 00:01
Eldur í timburhúsi í Eyjum Elds varð vart í tvílyftu timburhúsi í Vestmannaeyjum undir kvöldið í gær og var þegar kallað á slökkviliðið. Húsráðendur voru ekki heima en verulegar skemmdir urðu á húsinu af völdum elds, reyks og vatns. Hugsanlegt er talið að eldurinn hafi kviknað út frá eldavél. 25.4.2005 00:01
Flutningabíll valt í Námaskarði Ökumaður slasaðist, en þó ekki alvarlega, þegar stór flutningabíll með tengivagni sem flutti tvo lestaða fiskigáma valt í Námaskarði í Mývatnssveit í gær. Ökumaðurinn var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem gert var að sárum hans. Bíllinn var á leið frá Seyðisfirði til Dalvíkur þegar slysið varð í krappri beygju þar sem annar flutningabíll valt nýverið. 25.4.2005 00:01
Abbas tekur öryggissveitir í gegn Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur skipað þrjá nýja yfirmenn yfir öyggissveitum landsins. Þá hefur Abbas einnig neytt nokkur hundruð starfsmenn öryggissveita landsins til þess að fara á eftirlaun með nýjum lögum sem kveða á um að starfsmenn sveitanna verði að hætta störfum þegar sextugsaldri er náð. 25.4.2005 00:01
Sneru til baka úr alþjóðageimstöð Rússnesk geimskutla með áhöfn frá alþjóðageimstöðinni lenti í Kasakstan seint í gærkvöldi. Um borð voru Rússi og Bandaríkjamaður sem hafa verið í geimstöðinni síðan í október auk Ítala sem dvaldi þar undanfarna átta daga. Lendingin gekk vel og er áhöfnin við hestaheilsu að eigin sögn. 25.4.2005 00:01
Borgarísjakar fyrir norðan land Skip tilkynnti um borgarísjaka og nokkra smærri jaka 10 til 20 mílur austur af Hornbjargi um miðnætti þar sem þeir gætu verið varasamir skipum. Þá lónar gríðarstór borgarísjaki inni á Húnaflóa en ekki hefur sést til ísbjarna á honum þrátt fyrir eftirgrennslan. 25.4.2005 00:01
Kyrrt eftir skjálfta við Grindavík Engir jarðskjálftar mældust norðaustur af Grindavík í gærkvöldi og í nótt en þar varð skjálfti upp á 3,2 á Richter laust fyrir klukkan sex í gærkvöldi. Hann fannst greinilega í Grindavík og síðan urðu nokkrir smáir eftirskjálftar en eftir það hefur allt verið kyrrt á svæðinu. 25.4.2005 00:01
Segir af sér vegna spillingar Stanislav Gross, forsætisráðherra Tékklands, sagði af sér embætti í morgun. Afsögnin kemur í kjölfar þess að upp komst um spillingu Gross við fjármögnun íbúðar sem hann keypti sér fyrir sex árum. Jiri Paroubek, félagi Gross í flokki Sósíaldemókrata, tekur við starfi forsætisráðherra Tékklands á hádegi í dag. 25.4.2005 00:01
Talinn hafa misnotað 445 drengi Finnskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið hnepptur í varðhald grunaður um að hafa beitt 445 taílenska drengi kynferðisofbeldi. Hann hefur farið 26 sinnum til Taílands síðan árið 1989 og í fórum hans fannst nákvæmt bókhald yfir athafnir hans með drengjunum. Þetta er langumsvifamesti barnaníðingur í sögu Finnlands og sjálfsagt þótt víðar væri leitað, en upp komst um hann vegna rannsóknar hollensku lögreglunnar á svipuðu máli Hollendings. 25.4.2005 00:01
Rússar stjórni lýðræðisþróun Rússar ákveða sjálfir hvernig lýðræði þróast í landinu, sagði Vladímír Pútín í ávarpi til þjóðarinnar í gær og svaraði þannig meðal annars gagnrýni Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hún gagnrýndi nýlega þróunina í Rússlandi en Pútín þykir í vaxandi mæli minna á valdamikla ráðamenn Sovétríkjanna fyrr á dögum. 25.4.2005 00:01
Versta lestarslys í 40 ár í Japan Fimmtíu hið minnsta týndu lífið þegar farþegalest fór út af sporinu á háannatíma skammt frá borginni Osaka í Japan. Lestin brunaði beint inn í hús skammt frá teinunum. 300 manns slösuðust. 25.4.2005 00:01
Sóknarprestur beri hluta af sök Sóknarpresturinn í Garðasókn á sjálfur að hluta til sök á deilum sem upp eru komnar í sókninni, að mati sálfræðings. Presturinn segist hafa verið ginntur til samstarfs við sálfræðinginn og hafa orðið fyrir einelti af hálfu djákna. 25.4.2005 00:01
Skattayfirvöld hætti ofsóknum Rússar ákveða sjálfir hvernig lýðræði þróast í landinu, sagði Vladímír Pútín í ávarpi til þjóðarinnar í gær. Hann skipaði einnig skattayfirvöldum að hætta ofsóknum á hendur stórfyrirtækjum. 25.4.2005 00:01
Safna fé með göngu á Íslandi Þrjár breskar konur ætla í sumar að ganga frá Reykjavík til Stakkholtsgjár til að safna peningum til styrktar börnum með hvítblæði. Konurnar vonast til að safna rúmlega fimm þúsund dollurum í ferðinni en eiginmaður einnar konunnar greindist með hvítblæði í mars í fyrra. 25.4.2005 00:01
Breytingar ná ekki til skotmanna Breytingar á almennum hegningarlögum sem gerðar voru í fyrra og áttu að tryggja skjótvirkari og skilvirkari úrræði gagnvart afbrotamönnum sem brjóta af sér í reynslulausn ná ekki til ofbeldismannanna sem skutu mörgum sinnum á ungan mann á Akureyri nýverið. 25.4.2005 00:01
Líkfundarmál fyrir Hæstarétti Sakborningarnir í líkfundarmálinu svokallaða krefjast allir sýknu af ákæru um að hafa ekki komið Vaidasi Juciviciusi til aðstoðar í neyð og fyrir að fara illa með líkið af honum. Tomas Malakauskas viðurkennir hlut sinn í smygli á fíkniefnunum sem Jucivicius var með innvortis. Aðalmeðferð þessa máls hófst fyrir Hæstarétti í morgun. 25.4.2005 00:01
Upplýsingar birtar fljótlega Þingmenn Framsóknarflokksins munu fljótlega birta upplýsingar um eignir sínar í hlutabréfum og tengsl sín við atvinnulífið. 25.4.2005 00:01
Hefði átt að fylgja ráðum Hafró Ef ráðum Hafrannsóknarstofnunarinn hefði verið fylgt á síðustu áratugum væri þorskstofninn helmingi stærri en hann er í dag. Þetta var meðal þess sem kom fram á fundi sjávarútvegsnefndar Alþingis í dag. 25.4.2005 00:01
Hirtu hangikjötshníf af manni Lögreglan á Ísafirði hafði afskipti af manni á skemmtistað í bænum að kvöldi síðasta vetrardags þar sem hann var með hníf inn á staðnum. Í ljós kom að maðurinn var með hangikjötslæri með sér og hugðist hann gefa gestum sneiðar af lærinu og nota hnífinn til þess. Hnífurinn var tekinn af manninum en hann fékk að halda lærinu. 25.4.2005 00:01
Ekki tilkynnt um ríkisstjórn í dag Enn á ný var því frestað að tilkynna um nýja ríkisstjórn í Írak í dag. Sem fyrr voru það deilur um einstök ráðuneyti milli ólíkra trúarhópa sem settu strik í reikninginn, en bandalag sjíta, sem hlaut flest atkvæði í þingkosningum í lok janúar, vinnur að því að mynda stjórn með Kúrdum og súnnítum. 25.4.2005 00:01
Níu létust í slysi í Suður-Afríku Níu létust og 59 slösuðust í árekstri lestar og rútu í norðurhluta Suður-Afríku í dag. Svo virðist sem ökumaður rútunnar hafi virt stöðvunarskyldumerki að vettugi og ekið yfir lestarteina um leið og flutningalest nálgaðist með fyrrgreindum afleiðingum. Allir þeir sem létust og meiddust voru í rútunni og voru hinir slösuðu fluttir með þyrlum og sjúkrabílum á fimm sjúkrahús. 25.4.2005 00:01
Sagði upp á röngum forsendum Kona sem vann hjá Tollstjóranum í Reykjavík skrifaði undir uppsagnarbréf sitt á röngum forsendum að mati umboðsmanns Alþingis. Konunni var gefinn kostur á að segja upp starfi sínu vegna ávirðinga sem á hana voru bornar og henni sagt að gerði hún það ekki íhugaði embættið að segja henni upp störfum án áminningar. 25.4.2005 00:01
Sigrast á fuglaflensu í N-Kóreu Tekist hefur að hefta útbreiðslu fuglaflensu í Norður-Kóreu og reyndist veiran ekki skyld þeirri sem borist getur úr fuglum í menn. Frá þessu greindi Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna í dag. Að sögn talsmanna stofnunarinnar reyndist fuglaflensuveiran af stofninum H7 sem veldur alvarlegum veikindum í fiðurfénaði en hann er ekki skyldur H5N1-stofninum sem borist hefur í menn og dregið 52 til dauða í Kambódíu, Víetnam og Taílandi. 25.4.2005 00:01
Ein miðstöð starfsendurhæfingar Sjö manna starfshópur um starfsendurhæfingu hefur lagt til við Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og Árna Magnússon félagsmálaráðherra að komið verði á fót einni miðstöð fyrir starfsendurhæfingu í landinu. 25.4.2005 00:01
Bíður niðurstöðu ráðuneytis Framkvæmdaáætlun Fangelsismálastofnunar er enn til athugunar í dómsmálaráðuneytinu, að sögn Valtýs Sigurðssonar forstjóra stofnunarinnar. Hann segist telja biðina eftir niðurstöðum í dögum en ekki vikum. 25.4.2005 00:01
Uppsögn á röngum forsendum Kona, sem vann hjá Tollstjóranum í Reykjavík, var látin skrifa undir uppsagnarbréf á röngum forsendum, samkvæmt nýframkomnu áliti Umboðsmanns Alþingis. 25.4.2005 00:01
Gagnrýndi Vatnsmýrarhugmyndir Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, gagnrýndi harðlega þær hugmyndir að safna helstu háskólum og rannsóknarstofnunum landsins á einn stað í miðborg Reykjavíkur, í Vatnsmýrinni, í ræðu sem hann hélt við útskrift við skólann í gær. Sagði Runólfur að slíkar hugmyndir, að safna stofnununum á einn stað, væru í besta falli úreltar og í versta falli til þess ætlaðar að skipta þjóðinni í tvær þjóðir. 25.4.2005 00:01
Vantar fjármagn Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt ályktun þar sem skýrslu Ríkisendurskoðunar um úttekt á Háskóla Íslands er fagnað. Í skýrslunni kemur fram að skólinn hafi staðið sig vel miðað við það fjármagn sem hann hafi haft úr að spila. 25.4.2005 00:01
Veðsetning fyrr heimil Reglur um veðsetningu lóða við Lambasel í Reykjavík hafa verið rýmkaðar. Lóðarhöfum er nú heimilt að veðsetja lóðirnar fyrr en áður og á það að auðvelda þeim að fjármagna framkvæmdirnar. 25.4.2005 00:01
Úthlutun dregin til baka Einn umsækjenda um lóð í Lambaseli hefur fengið afsvar. Ekki kemur til greina að hann fái lóð þar sem hann fékk úthlutað lóð árið 2001 þó að hann hafi ekki nýtt sér þá úthlutun. 25.4.2005 00:01