Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lithái dæmdur í farbann Hæstiréttur dæmdi í dag Litháa í farbann til 18. maí. Maðurinn kom hingað til lands með Norrænu í byrjun mars en hann er eftirlýstur af þýsku lögreglunni og talinn tengjast skipulagðri glæpastarfsemi í Þýskalandi og Litháen. Í lok mars barst framsalsbeiðni frá þýskum dómsmálayfirvöldum en maðurinn er sakaður um að hafa flutt fíkniefni og falsaða peninga til Þýskalands auk innbrota og þjófnaða. 25.4.2005 00:01
Grunaður um morðið í Kristjaníu Tuttugu og fimm ára gamall maður af írökskum uppruna hefur verið handtekinn í tengslum við morðárásina í Kristjaníu í Kaupmannahöfn í síðustu viku. 25.4.2005 00:01
Neita öllum sakargiftum Réttarhöldin yfir 24 meintum al-Kaída-liðum á Spáni sem grunaðir eru um að hafa skipulagt hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 standa nú sem hæst. 25.4.2005 00:01
Tekist á í Nepal Stjórnarherinn í Nepal hóf í gær stórsókn gegn uppreisnarmönnum í landinu og létu þyrlur meðal annars sprengjur rigna yfir búðir þeirra. 25.4.2005 00:01
Rúmar 2 milljónir í fangelsi í BNA Ríflega 2,1 milljón manna situr í fangelsi í Bandaríkjunum, eftir því sem fram kemur í ársuppgjöri fyrir síðasta ár frá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Þetta jafngildir því að 726 af hverjum 100 þúsund íbúum sitji inni fyrir glæp. Þar kemur einnig fram að föngum hafi fjölgað um 2,3 prósent í fyrra. 25.4.2005 00:01
Allt í hnút í Írak Hvorki gengur né rekur í stjórnarmyndunarviðræðunum í Írak og á meðan berast landsmenn á banaspjót. 25.4.2005 00:01
Glæpaalda í Svíþjóð Fleiri lík finnast grafin á víðavangi í Svíþjóð. Tvennt fannst myrt grafið í malargryfju á Gotlandi um helgina. 25.4.2005 00:01
Pútín flytur stefnuræðu sína Vladimír Pútín, forseti Rússlands, flutti í gær sjöttu stefnuræðu sína. Hann eyddi mestu púðri í að fullvissa fjárfesta um að gráðugir embættismenn, óstöðugt efnahagsástand og umfangsmiklar skattrannsóknir heyrðu sögunni til. 25.4.2005 00:01
Níutíu ár frá Gallipoli Í gær voru liðin níutíu ár síðan einn mannskæðasti bardagi heimsstyrjaldarinnar fyrri hófst, orrustan á Gallipoli-skaga í Tyrklandi. Þúsundir manna minntust atburðarins í Canakkale í Tyrklandi í gær. 25.4.2005 00:01
Boðar viðræður um varnarsamstarf Nýjar viðræður um framhald tvíhliða varnarsamnings Bandaríkjanna og Íslands munu hefjast innan skamms. Þetta segir Heather Conley, sem er einn aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna. Conley átti í gær samráðsfundi með fulltrúum íslenskra stjórnvalda. 25.4.2005 00:01
Finni misnotaði 445 unga drengi Finnskur karlmaður hefur verið handtekinn í Finnlandi vegna gruns um að hann hafi misnotað 445 drengi í Taílandi síðastliðin 15 ár. 25.4.2005 00:01
Sauðfé fjölgar á Álftanesi Sauðfé á Álftanesi hefur fjölgað um ríflega 100 prósent samkvæmt tölum um búfé sveitarfélaga sem heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis hefur gefið út. Samkvæmt þeim tölum eru 39 ær nú á Álftanesi nú en voru 19 á sama tíma í fyrra, en frá þessu er greint á fréttavef <em>Víkurfrétta</em> í Hafnarfirði. Í Garðabæ hefur sauðfé fjölgað lítillega, eða úr 130 í 143 en fækkað lítillega í Hafnarfirði, úr 127 í 103. 25.4.2005 00:01
Verður að synda til Ameríku Nú hefur komið á daginn að hinn hálfíslenski eigandi og forstjóri tölvufyrirtækisins Opera Software í Noregi, Jón Stephenson von Tetzchner, verður að standa við stóru orðin og synda til Ameríku frá Noregi. 25.4.2005 00:01
Stúlkur eru hin gleymdu fórnarlömb Tæpur helmingur barna sem þvinguð eru til að taka þátt í stríðsátökum er stúlkur. Í hernaðinum eru þær beittar margvíslegu oftbeldi og að átökum loknum eiga þær erfiðara en piltar með að laga sig að þjóðfélaginu á ný. 25.4.2005 00:01
Nýir ríkisarfar væntanlegir Nýr danskur ríkisarfi er væntanlegur í heiminn í haust og undir áramót er fjölgunar von í norsku konungsfjölskyldunni. 25.4.2005 00:01
Íraksmálin aftur í brennidepli Íhaldsmenn kalla Tony Blair lygara og frjálslyndir krefjast þess að hann upplýsi um samskipti þeirra Goldsmith lávarðar, ráðgjafa ríkisstjórnarinnar, í aðdraganda innrásarinnar í Írak. 25.4.2005 00:01
Ávarpaði jarðhitaráðstefnu Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra flutti í dag ávarp við opnun alþjóðlegu jarðhitaráðstefnunnar sem að þessu sinni er haldin í Antalya í Tyrklandi, að því er segir í tilkynningu frá viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu. Um 1300 þátttakendur sitja ráðstefnuna. 25.4.2005 00:01
Ríflega fimmtíu dóu í lestarslysi Nær 60 manns fórust og á fimmta hundrað slösuðust í miklu lestarslysi í Japan í gærmorgun. Talið er að óreyndur lestarstjórinn hafi ekið lestinni allt of hratt með þeim afleiðingum að hún þeyttist út af sporinu. 25.4.2005 00:01
Segist hafa rænt sex Súdönum Íslamskur uppreisnarhópur, Her Ansars al-Sunna, lýsti því yfir í dag að hann hefði rænt sex súdönskum bílstjórum sem störfuðu á vegum Bandaríkjahers í Írak. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá hópnum sem birt var á Netinu í dag. Uppreisnarmennirnir sögðust einnig ætla senda frá sér myndband fljótlega af sexmenningunum, en þeim var rænt skömmu eftir að þeir höfðu yfirgefið herstöð vestur af Bagdad í dag. 25.4.2005 00:01
Segjast saklausir af nánast öllu Sakborningarnir í líkfundarmálinu svokallaða krefjast sýknu af nánast öllum ákæruliðum. Verjandi eins þeirra segir hægt að hugsa sér verri meðferð á líki en hafi verið í þessu tilfelli og verjandi annars segir að fyrst fórnarlambinu hafi ekki verið ljós sú lífshætta sem við blasti hafi sakborningum ekki átt að vera hún ljós. 25.4.2005 00:01
Samstaða sé um lagabreytingu Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, segir að unnið sé að breytingum á eftirlaunalögunum í forsætisráðuneytinu. Þverpólitísk samstaða sé um að breyta ákvæði sem hafi einnig verið fyrir hendi í eldri lögum sem gefi fyrrverandi ráðherrum færi á að taka full eftirlaun ráðherra þótt þeir séu enn í fullu starfi hjá hinu opinbera. Hann varar við því að ummæli formanns Sjálfstæðisflokksins í fréttum Stöðvar 2 á föstudag séu oftúlkuð. 25.4.2005 00:01
10. bekkingar með í formannskjöri Hópur barna í tíunda bekk í Breiðholtsskóla er genginn í Samfylkinguna í tengslum við formannskjörið í flokknum. Einn þeirra sem það gerði vissi ekki að hann væri að ganga í flokkinn en er hæstánægður með það eftir á. Formaður kjörstjórnar Samfylkingarinnar segir það í samræmi við lög og reglur að fólk á sextánda ári geti gengið í flokkinn. 25.4.2005 00:01
Fólks enn leitað eftir lestarslys Fólks er enn leitað í flaki japanskrar farþegalestar sem þeyttist út af sporinu í morgun. 57 fórust og á fimmta hundrað slasaðist. 25.4.2005 00:01
Rógburður ástæða siðareglna Rógburður veldur miklu um það að þingmenn Framsóknar ákváðu að setja sér nýjar siðareglur, segir formaður þingflokksins. Þingmenn Samfylkingarinnar eru að semja sér siðareglur. 25.4.2005 00:01
Fischer ofar í huga en varnarmál Bobby Fischer virðist varaaðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna mun ofar í huga en varnarmálaviðræður. Hún segir eðlilegt að bandarískum diplómötum misbjóði yfirlýsingar Fischers. Framtíð varnarsamstarfsins skýrist svo vonandi sem fyrst. 25.4.2005 00:01
Eftirlaunamálið enn óútkljáð Framsóknarmenn standa fastir við fyrirætlan sína að afnema rétt fyrrverandi stjórnmálamanna á tvöföldum launum og ræddu það á þingflokksfundi í gær. Sjálfstæðismenn tóku málið ekki til umræðu og segja óþarfi að ræða það. </font /></b /> 25.4.2005 00:01
Fiskveiðistjórnun hafi mistekist Ástand þorsksins á Íslandsmiðum er áhyggjuefni, segir forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar. Fiskveiðistjórnunin hefur mistekist, að mati minnihlutans í sjávarútvegsnefnd Alþingis. 25.4.2005 00:01
Eftirlaunafrumvarp í bígerð Óljósar afleiðingar breytinga á lögum um eftirlaun æðstu embættismanna gætu komið í veg fyrir að lögunum verði breytt. Verið er að kanna það í forsætisráðuneytinu hvaða möguleikar eru til staðar lagalega. Málið var rætt á þingflokksfundi framsóknarmanna í gær en ekki sjálfstæðismanna. </font /></b /> 25.4.2005 00:01
Fundu lyf sem frestar Alzheimer Lyf hefur fundist sem virðist fresta því að fólk fái Alzheimer-sjúkdóminn. Það vekur vonir um að hægt sé að fyrirbyggja sjúkdóminn með öllu. 25.4.2005 00:01
Mótmæltu nýjum samkeppnislögum Starfsmenn Samkeppnisstofnunar og Löggildingarstofu mótmæltu harðlega fyrirhuguðum breytingum á samkeppnislögum á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í morgun. Fulltrúi starfsmanna furðar sig á að það eigi að gera slíkar breytingar án þess að stjórnsýsluúttekt hafi verið gerð á núverandi fyrirkomulagi. 25.4.2005 00:01
Barðist fyrir pólitísku lífi sínu Einn litríkasti stjórnmálamaður Evrópu barðist fyrir pólitísku lífi sínu í beinni sjónvarpsútsendingu í morgun. Joscka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, bar þá vitni fyrir rannsóknarnefnd þingsins, en mikil spenna ríkti vegna vitnisburðarins. 25.4.2005 00:01
Sagður hafa vanrækt störf sín Séra Hans Markús Hafsteinsson sóknarprestur í Garðaprestakalli misnotaði stöðu sína til að fá stuðning og samúð sóknarbarna með því að koma trúnaðargögnum til þeirra. Þetta kemur fram í úrskurði úrskurðunarnefndar þjóðkirkjunnar. 25.4.2005 00:01
Sóknarprestur lagður í einelti Séra Hans Markús Hafsteinsson sóknarprestur í Garðaprestakalli segir að hann hafi þurft að þola ögrandi smáskilaboð skilaboð og hótanir í kjölfar samstarfsörðugleika í Garðasókn. Við athugun kom í ljós að skilaboðin komu frá síma í eigu eiginmanns Nönnu Guðrúnar Zoëga djákna sem séra Hans Markús hefur átt í útistöðum við. 25.4.2005 00:01
Þremenningarnir krefjast sýknu Tveggja og hálfs árs refsingar er krafist yfir Jónasi Inga Ragnarssyni, Grétari Sigurðssyni og Tomasi Malakauskas í líkfundarmálinu svokallaða en aðalmeðferð í Hæstarétti hófst í gær. 25.4.2005 00:01
Kristinn fyrstur Kristinn H. Gunnarsson varð fyrstur þingmanna Framsóknarflokksins til að birta opinberlega upplýsingar um eignir og hagsmunatengsl í samræmi við reglur sem þingflokkurinn setti sér í gær. 25.4.2005 00:01
Tvær þjóðir í einu landi Íslendingar verða tvær þjóðir í einu landi ef ekki verður gerður skurkur í að byggja upp fjarskiptamöguleika á landsbyggðinni, sagði Runólfur Ágústsson, rektor við Viðskiptaháskólann á Bifröst, við útskrift kvenna í atvinnurekstri á landsbyggðinni. 25.4.2005 00:01
Djúp gjá í sjávarútvegsnefnd Hrygningarstofn þorsksins nær sér ekki á strik. Það veldur því að illa gengur að auka afrakstursgetu stofnsins, segja talsmenn Hafrannsóknastofnunarinnar. Þingmaður segir þá víkja sér undan ábyrgð.</font /> </b /> 25.4.2005 00:01
Þjarmað að Joshka Fischer Joshka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, mátti í allan gærdag svara spurningum þingmanna um fyrirmæli sín um útgáfu vegabréfsáritana til erlendra ferðamanna sem andstæðingar hans segja að hafi orðið til þess að opna austur-evrópskum glæpamönnum leið inn í Þýskaland og þar með á allt evrópska efnahagssvæðið. 25.4.2005 00:01
Mikill eldur í húsi við Mýrargötu Allt tiltækt slökkvilið var kvatt að Mýrargötu 26 skömmu fyrir miðnætti. Tilkynnt var um töluverðan eld og stóðu logar út um glugga þegar slökkvilið kom á staðinn. Ein íbúð var í húsinu en ekki var vitað hvort einhver var í húsinu. 24.4.2005 00:01
Skorradalshreppur gegn sameiningu Skorradalshreppur var sá eini sem felldi sameiningu fimm sveitarfélaga á Vesturlandi í sameiningarkosningu í gær. Sameiningin var samþykkt í Borgarbyggð, Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppi og Kolbeinsstaðahreppi. 24.4.2005 00:01
Benedikt XVI formlega orðinn páfi Benedikt páfi söng messu á Péturstorginu í Róm í morgun en hún markar embættistöku hans formlega. Tugþúsundir pílagríma hlýddu á páfa, margir frá Þýskalandi þaðan sem Benedikt rekur ættir sínar, auk fjölda þjóðarleiðtoga. 24.4.2005 00:01
Líklega íkveikja við Mýrargötu Talið er líklegt að kveikt hafi verið í húsinu sem logaði við Mýrargötu á hafnarsvæði Reykjavíkur seint í gærkvöldi. Töluverður tími fór í að leita að fólki í húsinu sem reyndist svo vera mannlaust. 24.4.2005 00:01
Ölvaður bílþjófur á Reykjanesbraut Drukkinn bílþjófur, sem stal bifreið í Keflavík í nótt, náðist skömmu síðar á Reykjanesbrautinni eftir að hafa rásað þar á milli vegarhelminga. Lögreglu barst tilkynning um bílstuldinn um fjögurleytið í nótt en eigandinn hafði brugðið sér frá og skilið bílinn eftir í gangi. 24.4.2005 00:01
Sprengingar við lögregluskóla Að minnsta kosti sjö létust og tugir særðust í tveimur sjálfsmorðsprengingum sem gerðar voru í námunda við lögregluskóla í bænum Tíkrit í Írak í morgun. Fyrri sprengjan sprakk þegar árásarmaðurinn ók bifreið að byggingunni og sprengjan sprakk innan um fjölda lögreglumanna. 24.4.2005 00:01
Ölvaður og ók niður skilti Tveir voru teknir ölvaðir við akstur í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í nótt. Annar hafði ekið niður umferðarskilti við hringtorgið á gatnamótum Fossheiði og Tryggvagötu og reyndist hann ölvaður þegar lögreglan kom á staðinn. Hinn var tekinn við reglubundið eftirlit á Eyrarbakkavegi. 24.4.2005 00:01