Innlent

Brotist inn í skóla á Stokkseyri

Fartölvum, skjám og öðrum tölvubúnaði var stolið úr skóla á Stokkseyri þegar brotist var þar inn í fyrrinótt. Þegar Fréttablaðið fór prentun í gærkvöldi hafði löreglan ekki náð þjófinum. Lögreglan á Selfossi væri þakklát ef fólk léti hana vita ef það hafi orðið vart við eitthvað grunsamlegt en engin staðfest grunsemd hafði borist lögreglunni í gærkveldi. Sömu nótt fann lögreglan 1 gramm af spýtti þegar hún hafði afskipti af ökumanni á Suðurlandsvegi. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu og var honum sleppt eftir yfirheyrslu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×