Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Cox á móti Hillary Edward Cox, tengdasonur Richards Nixon, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, íhugar að bjóða sig fram á móti Hillary Clinton í kosningum til öldungardeildar þingsins á næsta ári. 28.1.2005 00:01
Hertar öryggiskröfur í Írak Á annan tug óbreyttra borgara og íraskra lögreglumanna létust í árásum uppreisnarmanna í Írak í gær. Þá voru fimm bandarískir hermenn drepnir í þremur árásum í Bagdad. 28.1.2005 00:01
Lekinn fordæmdur Utanríkismálanefnd fordæmir harðlega að trúnaðarupplýsingar frá fundum nefndarinnar um Íraksmálið hafi komist í hendur Fréttablaðsins. Hætt verður að dreifa fundargerðum. Stjórnarandstaðan fer fram á að trúnaði verði aflétt af ummælum Halldórs Ásgrímssonar tengdum Írak. 28.1.2005 00:01
Rangt hjá Siv Fulltrúar meirihluta í stjórn Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, segja rangt sem Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir á heimasíðu sinni að fundarkonur á fundi félagsins í gær hafi sjálfar tekið þátt í að kjósa sig inn í félagið. 28.1.2005 00:01
Hættir dreifingu fundargerða Utanríkismálanefnd hefur ákveðið að hætta dreifingu fundargerða til þess hóps sem þær hefur fengið og verða þær framvegis eingöngu aðgengilegar til aflestrar á fundum nefndarinnar og hjá ritara hennar milli funda. 28.1.2005 00:01
Fjölmenni á borgarafundi í Eyjum Hátt í fimm hundruð manns mættu á borgarafund í Vestmannaeyjum í gærkvöldi þar sem Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, lagði fram skýrslu um hugsanlega gangagerð milli Eyja og lands. Hann sagði að yfirmenn sænska verktakafyrirtækisins NCC hefðu farið yfir skýrsluna og vitað að hann ætlaði að kynna hana opinberlega. Þeir hafi ekki gert athugasemdir við það. 27.1.2005 00:01
Hefur ekki skilað lægra vöruverði Sterk staða krónunnar hefur í mörgum tilvikum ekki skilað sér í lægra verði á innfluttum vörum, samkvæmt athugun sem Alþýðusamband Íslands hefur gert nokkur ár aftur í tímann. Þegar dollarinn var sem sterkastur fyrir nokkrum misserum og var kominn upp í 110 krónur hækkuðu nær allar vörur til samræmis við það. 27.1.2005 00:01
Rice orðin utanríkisráðherra Condoleezza Rice sór í gær embættiseið sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna og hefur störf í dag. 85 þingmenn öldungadeildar samþykktu Rice í embættið en 13 greiddu atkvæði gegn því. Ekki hafa jafnmargir öldungadeildarþingmenn lagst gegn embættistöku utanríkisráðherra Bandaríkjanna síðan árið 1825. 27.1.2005 00:01
Telja menn hafa skapað alnæmi Nærri 40 prósent blökkumanna í Bandaríkjunum telja að menn hafi skapað alnæmi, samkvæmt nýrri könnun ríkisháskólans í Oregon-fylki. Könnunin náði til fimm hundruð blökkumanna í Bandaríkjunum og taldi fjórðungur þeirra að vísindamenn á vegum hins opinbera hefðu skapað HIV-veiruna en um tólf prósent voru á því að bandaríska leyniþjónustan stæði á bak við sjúkdóminn. 27.1.2005 00:01
Snjóar mikið á Spáni Víða á norðurhluta Spánar hefur mikið snjóað undanfarna daga og hefur sums staðar gengið erfiðlega að moka vegna stöðugrar ofankomu. 675 snjóruðningsbílar hafa verið ræstir út og eins eru 60 þúsund tonn af salti til reiðu til að sigrast á hálku sem búist er við að fylgi snjókomunni. 27.1.2005 00:01
Þungatakmarkanir á sumum vegum Aurbleytu er sums staðar farið að gæta á malarvegum vegna hlákunnar að undanförnu, en athygli vekur að Vegagerðin hefur víða sett þungatakmarkanir á vegi með bundnu slitlagi. Að sögn Vegagerðarinnar er það vegna þess að klaki, sem enn er í jörðu undir vegunum, hindrar að vatn renni undan slitlaginu. 27.1.2005 00:01
Búist ekki við betri árangri Palestínumenn ættu ekki að búast við því að ná betri árangri í friðarviðarviðræðum nú en árið 2000 þegar Bill Clinton Bandaríkjaforseti miðlaði málum. Þetta segir Madeleine Albright, utanríkisráðherra í tíð Clintons. Árið 2000 var til umræðu að Ísraelsmenn hörfuðu langleiðina að landamærunum eins og þau voru árið 1967 en Jassir Arafat sætti sig ekki við þá niðurstöðu. 27.1.2005 00:01
Múslímar íhuga að stofna dagblað Múslímar í Danmörku leggja á ráðin um stofnum dagblaðs. Um 170 þúsund múslímar búa í Danmörku og finnst þeim mörgum sem þeir fái litla umfjöllun og athygli í fjölmiðlum. Nýleg könnun leiddi í ljós að 87 prósentum aðspurðra þótti það góð hugmynd að stofna sérstakt dagblað múslíma. 27.1.2005 00:01
Ákvörðun um Fischer frestað Allsherjarnefnd Alþingis frestaði í morgun að taka afstöðu til bréfs Bobbys Fischers, fyrrverandi heimsmeistara í skák, þar sem hann fer fram á að honum verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Bréf Fischers var lagt fram en efni þess vísað til næsta fundar eftir viku. 27.1.2005 00:01
Landsbankinn og SÁÁ semja Landsbanki Íslands og SÁÁ hafa gert samkomulag um að bankinn fjármagni húsnæði félagssamtakanna. Er annars vegar um að ræða endurfjármögnun á langtímalánum SÁÁ að fjárhæð 300 milljónir króna og hins vegar 200 milljóna króna lán vegna nýbyggingar á lóð samtakanna við Efstaleiti í Reykjavík. 27.1.2005 00:01
Fóstureyðingum hefur fækkað Fóstureyðingum ungra stúlkna hefur farið fækkandi á síðustu árum samkvæmt nýrri skýrslu Landlæknis. Þá verða færri konur undir tvítugu mæður en áður. 27.1.2005 00:01
Fagnar endurskoðun laga Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fagnar því að ráðamenn vilji endurskoða lög um eftirlaun alþingismanna og æðstu embættismanna ríkisins. Jafnframt krefst miðstjórnin þess að þetta tækifæri verði notað til að stíga raunveruleg skref í þá átt að samræma lífeyrisrétt allra landsmanna. 27.1.2005 00:01
Frétt dregin til baka Í frétt Stöðvar tvö í gærkvöldi um að Ísland hefði verið komið á lista hinna viljugu þjóða fyrir ríkisstjórnarfund þann 18. mars 2003 voru gerð þau mistök að tímasetning fréttar CNN um atburðinn var mislesin. Sú ályktun sem dregin var af tímasetningunni er því röng. Fréttastofan dregur því frétt sína til baka og biðst velvirðingar á þessum mistökum. 27.1.2005 00:01
Til skammar fyrir landið Það er til skammar fyrir landið hve lítið íslenskir læknar gera af því að tilkynna um aukaverkanir lyfja, segir Sif Ormarsdóttir læknir í sérfræðinefnd Evrópsku lyfjastofnunarinnar. Forstjóri Lyfjastofnunar segir slíkar tilkynningar fara í gagnabanka í Evrópusambandinu. </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Vindmyllan verður eitthvað áfram Enn er ekki komið á hreint hver á og ber ábyrgð á vindmyllunni í Grímsey, að sögn Óttars Jóhannssonar oddvita í sveitarfélaginu. Málið hefði verið til umræðu í sveitarstjórn en ekkert meira. 27.1.2005 00:01
Fagnaðarfundir í varðskipi Fagnaðarfundir urðu um borð í danska varðskipinu Triton í gær, þegar íslensku kajakmennirnir, sem réru meðfram Grænlandsströnd í sumar og haust, heimsóttu skipverja til að þakka þeim fyrir björgunina í september. Skipið liggur nú í Reykjavíkurhöfn 27.1.2005 00:01
Fimm tóku Vioxx, fengu hjartaáfall Tilkynnt hefur verið til Landlæknisembættisins á síðustu dögum um fimm einstaklinga sem tóku gigtarlyfið Vioxx og fengu hjartaáfall. Embættið hyggst gera rannsókn á hugsanlegum afleiðingum notkunar lyfsins hér á land </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Sharon ánægður með Abbas Ariel Sharon kveðst mjög ánægður með Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, og þær aðgerðir sem hann hefur gripið til frá því að hann tók við embættinu fyrr á þessu ári. Sharon kveðst ætla að vinna að framgangi friðar með Abbas og að á meðan friður ríki meðal Palestínumanna þurfi Ísraelsmenn ekki að beita hörku. 27.1.2005 00:01
Hýsti ítalskan mafíósa Dönsk kona er grunuð um að hafa í um vikutíma hýst ítalskan mafíuleiðtoga sem var handtekinn í Kaupmannahöfn í fyrradag. 27.1.2005 00:01
Brugðist við atviki á Hrafnistu Sveinn Skúlason, forstjóri Hrafnistu, segir að þegar hafi verið brugðist við með úrbótum eftir að maður á níræðisaldri lést á vistheimilinu eftir höfuðhögg á síðasta ári. Landlæknisembættið telur í bráðabirgðaúrskurði að maðurinn hafi ekki fengið þá meðferð og umönnun sem ætlast er til af heilbrigðisstarfsfólki. 27.1.2005 00:01
Gerðu athugasemdir við vinnubrögð Þingmenn Samfylkingarinnar gerðu alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð ráðherra ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær og gagnrýndu þá fyrir að svara fyrirspurnum seint, illa eða alls ekki. 27.1.2005 00:01
Góð kosningaþátttaka Um þrjátíu Danir sem staddir eru hér á landi hafa kosið til danska þingsins í danska sendiráðinu, að sögn Ernst Hemmingsen, ræðismanns Dana hér á landi. Þá kusu rúmlega fimmtíu manns, nú um helgina, sem eru á danska varðskipinu sem liggur við Reykjavíkurhöfn. 27.1.2005 00:01
Vilja tungumálalög Opinber skjöl, auglýsingaspjöld, bæklinga, vinnureglur og samninga skal einungis birta á dönsku. Grunnskólakennarar skulu einnig einungis tala dönsku við nemendur sína. Þetta er meðal þess sem Danski þjóðarflokkurinn segjast vilja með setningu tungumálalaga. 27.1.2005 00:01
Atvinnuleysi minnkar Atvinnulausum í Danmörku fækkaði um 1.700 í byrjun janúar, miðað við mánuðinn þar á undan. Um áramótin voru því 171.900 Danir atvinnulausir, sem samsvarar 6,2 prósenta atvinnuleysi. Í nóvember var atvinnuleysið 6,3 prósent. 27.1.2005 00:01
Átak í uppeldismálum Forsætisráðuneytið, Þjóðkirkjan og Velferðarsjóður barna undirrituðu í gær samstarfsyfirlýsingu um átaksverkefni í uppeldismálum undir heitinu Verndum bernskuna. Þetta er sagt vera liður í því að bæta stöðu barna í samfélaginu og styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu. 27.1.2005 00:01
Vilja sannreyna skýrslu um göng Að minnsta kosti tveir bæjarfulltrúar í Vestmannaeyjum vilja fá úr því skorið á bæjarstjórnarfundi í kvöld hvort skýrsla sem Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, kynnti á borgarafundi í Vestmannaeyjum í gærkvöldi eigi við einhver rök að styðjast. 27.1.2005 00:01
Danir vilja Dani heim Danir vilja hermenn sína heim frá Írak, eftir því sem fram kom í könnun sem Gallup í Danmörku gerði fyrir Berlingske Tidende. 27.1.2005 00:01
Meðalhiti gæti hækkað um 11 stig Gróðurhúsaáhrifin gætu valdið mun viðameiri breytingum á veðurfari og lífsskilyrðum á jörðinni en áður hefur verið talið. Ný rannsókn bendir til þess að haldi fram sem horfi, gæti meðalhiti jarðar hækkað um ellefu gráður. 27.1.2005 00:01
Sýknaðir af árás Tveir menn voru dæmdir í 45 og 30 daga fangelsi fyrir húsbrot á heimili Steingríms Njálssonar í maí árið 2003. Mennirnir voru sýknaðir af líkamsárás gegn Steingrími sem þeir voru einnig ákærðir fyrir. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag. 27.1.2005 00:01
Vill endurskoða barnaklámslöggjöf Dómsmálaráðherra Svíþjóðar vill láta endurskoða barnklámslöggjöfina með tilliti til þess hvort gera eigi refsivert að skoða barnaklám á Netinu. Enn fremur á að rannsaka hvort börn, sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi, eigi að fá hærri skaðabætur en þau fá nú. Í Svíþjóð er bannað að vista í tölvu klámefni með börnum en lögin ná ekki til þess að skoða það á skjánum. 27.1.2005 00:01
Fékk skilorð með skilyrðum Nítján ára piltur var, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir vopnað rán í Hringbrautarapóteki með gasskammbyssu. Þá var hann sakfelldur fyrir að leggja haglabyssu að andliti manns í heimahúsi. Tólf mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir í þrjú ár með þeim skilyrðum að pilturinn sæti umsjón á skilorðstímanum. 27.1.2005 00:01
Tölurnar komu frá NCC Byggingarverkfræðingur hjá norska verktakafyrirtækinu NCC staðfestir að hann hafi fyrir hönd fyrirtækisins unnið skýrslu fyrir Árna Johnsen um kostnað vegna jarðganga til Vestmannaeyja. 27.1.2005 00:01
Mikið rætt en lítið gert Allar líkur eru á því að frumvarp Kolbrúnar Halldórsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, um að auka valdheimildir lögreglu til að fjarlæga ofbeldismenn af heimilum sínum dagi upp í allsherjarnefnd í annað sinn, þrátt fyrir að um þennan málaflokk virðist ríkja þverpólitísk sátt. 27.1.2005 00:01
Bandaríkjamenn starfi með öðrum Bandaríkjamenn verða að starfa með öðrum þjóðum að því að bregðast við alheimsógn á borð við hryðjuverk. Þetta segir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Hann segir Bandaríkjamenn hafa áttað sig á því að þeir geti ekki staðið einir í baráttunni en að þeir verði að bregðast við áhyggjum og sjónarmiðum annarra þjóða geri þeir sér vonir um samvinnu. 27.1.2005 00:01
Truflanir á ATM-kerfi Og Vodafone Truflanir hvoru á ATM-kerfi Og Vodafone í dag og hafa tæknimenn fyrirtækisins ásamt tæknimönnum Ericsson í Danmörku og Svíþjóð unnið að viðgerð sem lauk nú rétt fyrir klukkan fimm. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Og Vodafone olli bilunin víðtækum áhrifum á netþjónustu viðskiptavina, þ.m.t. ADSL-tengingar. 27.1.2005 00:01
Sofið á verðinum? Félagsmálaráðherra vill reyna til þrautar að leysa deiluna við Impregilo og segir að starfshópur eigi að fjalla um stöðu erlendra starfsmannaleiga. Formaður Samfylkingarinnar telur að stjórnvöld hafi sofið á verðinum. </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Útgerðin að hefjast Útgerð verksmiðjuskipanna nýju hjá Sjólaskipum eru að hefjast. Fyrsta skipið leysir landfestar frá Kanaríeyjum á næstu vikum. 27.1.2005 00:01
Styrking krónunnar ekki skilað sér Margt bendir til þess að styrking krónunnar að undanförnu hafi ekki skilað sér að fullu í vasa neytenda. Lyf, heimilisbúnaður og bílar hafa hækkað í verði. Verð á fatnaði hefur haldist nokku stöðugt og matarverð hefur farið lækkandi. </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Bíða á hóteli eftir íbúðinni sinni Um 15 einstaklingar bíða á hóteli eða í leiguíbúðum úti í bæ eftir að fá afhenta íbúð í 101 Skuggahverfi. "Þetta er mjög bagalegt og hefur komið illa við marga," segir Einar Halldórsson, framkvæmdastjóri Stoða. </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Norskar vinnubúðir á Kárahnjúkum Verið er að reisa fimm nýjar einingar af norsku vinnubúðunum Moelven á Kárahnjúkum. Þær rúma hátt í 140 manns. 27.1.2005 00:01
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent